Heimskringla


Heimskringla - 02.07.1896, Qupperneq 1

Heimskringla - 02.07.1896, Qupperneq 1
X. ÁR. WTNNIPEGr, MAN., 2. JÚLÍ 1896. NR. 27 Tvískiftir skólar. EftirfylgjanAi greinarkorn stóð í ritstjórnardálkum bláðsins ‘Free Press’ A mánudaginn 29. Júní: “Það sýndi sig ljóslega fyrir tveim- ur dögum siðan hér í bænum hve skóla- ópið var meiningarlaust. þegar um það mál var talað við ‘liber’-sinna einn ‘hátt upp hafinn’, sem vann meðdugn- aði fyrir Laurier-sinna í ný afstaðinni sókn. Þegar honum var sagt að hinn franski meirihluti Lauriers á þinginu mundi ganga ríkt eftir að minnihlutinn í Manitoba fengi sína skóla aftur, sagði hann að nú, þegar ‘liberalar’ hefðu náð völdunum, væri sér sama þó sérstakir skólar væru stofnaðir á hverjum fer- hyrningsmilu fjórðungi í Manitoba! ‘Free Press’ var með einlægni að reyna að sannfæra kjÓ6endurna um, að skóla- málið væri notað bara sem partisk veiðivéi, og ihér er nú einn aðal-maður- inn við það svikatafl feúinn að viður- kenna í aliri einlægni að svo hafi viiki- lega verið”. Þetta er, eins og ‘iFree Press’ segir, sönnun fyrir því hve einlægir; ‘liberalar’ eru, þegar þeir með ‘andaktar- svipinn’ standa frammi fyrir almenn- ingi og segja að nú sé áríðandi að vera einlægur og segja satt! Enda ‘Tri- bune’ segir ekki nema sanngjarnt að skelt sé tviskiftum skólutn á Manitoba, af því Manitobamenn afllir greiddu ekki atkv. á sama hátt og þeir kaþólsku í Quebec ! Það verður gaman að athuga hverju megin liiehardsen verður, ef til kemur að greiða atkv. með og móti upi bótalögum á sambandsþingi. Dominion-kosniugar. Síðan fylkjasambandið myndaðist, hafa sambandsþings-kosningar farið fram 8 sinnum, að meðtaldri þessari síðustu sókn. Fylkjasambandið gekk i gildi 1. Júli 1867 og fóru fyrstu :Domin- ion kosningar fram í September um haustið. Fylkjasamfeand eða ifylkjar samband ekki, var þá aðal-málið á dagT skrá. í sambándið voru þá gengin að nafninu síðartalin fylki. Úrslit þessara fyrstu kosninga urðu þessi, í hinum ýmsu fylkjum: Fylkin. Stjórnarsinnar. Andstæðingar Ontario....... 47 ..........36 Quebec ....... 45 .........20 New Brunswick 7 _______... 8 Nova Scotia.... 3 __________15 102 80 Hinar aðrar Dominion kosningar; fóru fram 20. Júlí 1872. Var þá komin á greinileg flokkaskifting og tvö ný fylki komin i sambandið: Manitoba og British Columbia. Úrslit þeirra kosn- inga urðu þau að conservativar höfðu 103 fylgismenn, en liberalir 97. Hinar 3. kosningar fóru fram 14. • Janúar 1874 og var þá eitt fylki enn gengið í sambandið: Prince Edwards- •eyjan. Úrslit þeirra kosninga urðu þau, að liberalir höfðu 133 fylgendur, en con- servativar 73. Hinar 4. kosningar fóru frana 10. September 1878 og urðu úrslitin þau, að conservativar höfðu 137 fylgjendur, en fiberaiir 69. Hinar 5. kosningar fóru fram 20. ■Júní 1882 og urðu úrslitin þau, að con- ®ervativar höfðu 139 fylgjendur, en libe- raJir ,71. Hinar 6. kosningar fóru fram 22. Ffebrúar 1887 og var þá búið að veita Norðveetur héruðunum hluttöku í þing-; málum, þannig, að tilvonandi fylkin 3, Alberta, As^iniboia, Saskatchewan,; kusu tii eamans 4 fulltrúa á sambands- þing, þáeins og nú. Úrslit þeirra kosn- inga urðu þau, að conservativar höfðu 122 fylgjendur, en liberalir 93. VEITT hæstu verðlaun a heimssýninqunn DR BáKIMG P0WDIR IÐ BEZT TILBÚNA Oblönduð vínberja Cream of Tartar dowder. Ekkert álún, ammonia eða Snnur óholl efni. 40 ára reynslu. Hinar 7. kosningar fóru fram 5. Marz 1891 og urðu úrslitin þau, að con- servativar fengu kjörna 122 fýlgjendur, en liberalir 92. Hinar 8. dominion kosningar fóru fram 23. Júní 1896 og urðu úrslitin þau, að liberalir fengu kjörna 111, conserva- tivar 91. Smáflokkar aðrir, patrónar, McCarty-ítar, o. s. frv., fenguþá kjörna alls 11 menn. Lengra verðurkosninga-sagan ekki rakin í þetta skifti. Yeglyndi Greenways. Ef maður nenti að tína til öll dæmi! sem gefast til að sýna hve “frjálslynd- ir” þeir eru í raun og veru, eða hitt þó heldur, “frjálslyndu” garparair, sem ís- lendingum er lagt svo rikt á hjarta að dýrka “að trúa og treysta” umfram alla hluti, þá mætti framsetja æðimörg þau dæmi, að enda ofstækisfullirflokksmenn gætu ekki auðveldlega afsakað þá sem valdir eru að þessu eða hinu. En það er ekki tími til að telja upp slík dæmi, enda sannast, að það er óþarft. íslend- ingar eru óðum farnir að sjá, að það er "ekki allt gull sem glóir”, ekki allt frjálslyndi, sem gengur undir því nafni. En hér er eitt dæmi, sem rangt væri að ganga framhjá. Það sýnir svo greinilega, hve lágt Greenway og hans “frjálslyndu”! gæðingar geta lotið, þeg- ar þeim ræður svo við að horfa, þegar þeir hugsa að eitthvað megi vinna með því að banna rit eða ræðu-frelsi. Um undanfarin 14 ár hefir nafn- kunnur maður hér í bænum, hra Joseph Wolf, verið friðdómari og í 11 af þeim 14 árum, hefir hann einnig haft vald til að gegna lögreglu-dómara-störfum, og , hefir ekki ósjaldan verið gripið til hans til að dæma í málum fyrir pólití-rétti bæjarins. í öll þessi ár hefir ekki svo kunnugt sé, komið fram kæra á hendur ,honum þess efnis, að hann í einu eða öðru tilfelli hafi verið hlutdrægur dóm- ari. Það var þess vegna ekki að á- stæðulausð að hann vonaði, eftir að hafa haldið þessari stöðu svona lengi, að hann fengi að hafa þessi völd framveg- is, —i.æfina út, ef hann sjálfur ekki krefðist lausnar. En hafi liann vonað það, . varð sú von hans tál-von ein. Wolf. er conservative og dregur ekki 'dulur á skoðanir sínar, þegar svo stend- ur á, en “frjálslynd” ! stjórfi ríkir í Manitoba og hefir þar af leiðandi lykla- völd lífs og dauða, að því er snertir þessa stöðu og aðrar slikar. Og það var .ekki samLvæmt hennar ‘frjálslyndis- legú’ kokkabók, að láta mann hafa nokkur völd, sem annars heflr aðrar skoðaniriá-stjórnmálum en hún. Þess vegna hafði hann fim bara tvo kosti að veija : llialda sér saman, eða vera rúinn dómaravaldinu. A'ð morgni hins 22. Júní, daginn fyrir kosningarnar, fékk Mr. Wolf tvö bréf, hljóðandi á þessa leið : “'Winnipeg, 16. Júní 1896. Josetpíh Wolf, Esq., Winnipeg. Herra:— Eg h-efi þann heiður að tilkynna yð- ur, að samkvæmt ráðaneytisskipun nr. 5,445, dags. 13..Júní 1896, er köllun yð- ar sem friðdómara úr gildi numin. Ég hefi þann ’heiður að vera, herra, Yðar auðsveipur þjónn. (Undirritað) David Philip, skrif8tofu»tjóri. Hitt bréfið er dagsett sama dag, — 16. Júní, og hefiröll hin sömu ummerki og þetta, að undanteknu því, að inni- hald þess er á þessa ieið : “Ég hefi þann heiður að tilkynna yður, að samkvæmt ráðaneytisskpun nr. 5,446, dags. 13. Júní 1896, er köllun yðar sem lögregludómara úr gildi num- in”. Þar með var karl sviftur dómara- valdinu, í hefndarskyni fyrir það. að hann skyldi ljá Hon. Hugh J, Macdon- ald lið sitt i kosningasókninni. Lægra en þetta sýnist ekki auðgert að lúta, enda virðist svo, að hin ‘frjálslýnda (!) stjórn hafi í þetta skifti skammast sín svo fyrir þennan sinn einkennilega ‘frjálslyndis’-vott, að hún hafi æskt að sem fæstir vissu um hann. En hvað sem er um það, þá er það eitt víst, að hin löghlýðnastjórn braut hér lög. Þess ber sem sé að gæta, að engar ráðaneyt- isskipanir hafa lagagildi fyrr en fylkis- stjóri hefir staðfest þær, eins og hver önnur lög. Herra Wolf kom þetta á ó- vart, og af því engin kæra, engin sök, eða ástæða var gefin í bréfunum, leit- aði hann þegar eftir nánari upplýsing - um hjá fylkisstjóra. Sem svar upp á það bréf sitt fékk hann samdægurs bréf frá ritara fylkisstjórans, sem er á þessa leið : “Herra : Fylkisstjórinn biður mig að endur- senda yður tvö innlögð bréf, dags. 16. Júní, sem þér senduð honum í dag, á- hrærandi það að köllun yðar sem lög- regludómari og friðdómari hefir verið úr gildi numin. Fylkisstjórinn æskir að égsegi aðhann hafi ekki skrifað und ir neina slíka ráðaneytisskipun, og að tilkynning þessi, sem yður hefir verið send, sé óundirbúin, að maður ekki segi meirá”. 'Yðar trúverðugur, (Undirritað) Charles Patterson, prival ritari. Eftir þessu að dæma var Mr. Wolf góður og gildur lögregludómari enn, en þó fyrirbauð lögreglustjórinn honum að rannsaka og dæma nokkurt mál fyrir lögregluréttinum degi Isíðar, þegar Mr. Wolf ætlaði að mæta þar. í hvers nafni og umboði hann tók sér það vald er enn ekki víst, en líkur þykja til að eftir því verði grafist og alt þetta mál gaum- gæfilega rannsakað, því fremur sem lögreglustjórinn nú kveðst hafa fengið tilkynningu frá dómsmálastjóra fylkis- ins þess efnis, að Mr. Wolf haldi sínum völdum enn. Sem sagt sýnir þessi aðferð öll hve lágt hinir ‘frjálslyndu’(!) geta kropið þegar þeir hugsa að hagur sé i ódreng- skap. En hér kom ódrengskapurinn ekki aðhaidi, nema ef vera skyldi í því, að auka óvinafjölda Greenways enn meir. Því enda flokksmenns hans, að undanteknum þeim ofsafylstu, væmir við þessum og öðrum eins smá-líðileg- heitum, það þrí fremur sem þau eru leyst af hendi eins frámunalega klaufa- lega eins og í þetta skifti. Það er sann arlega ekki tignarlegt né lögfræðingum sæmandi að ganga þannig til verks: 1. Að svifta manninn sínum tak- mörkuðu völdum að ósekju; 2. Að fá fyrir það tiltæki þá aug- lýsingu frá governornum, að sú skipun stjórnarinnar sé ólögmæt; 3. Að láta leigutól sín í millitíðinni skipa lögreglustjóranum að banna Mr. Wolf að mæta fyrir rétti sem lögreglu dómari; og 4. að fá að öllu loknu þann úrskurð dómsmálastjórans, að Mr. Wolf haldi sínum völdum enn. Það sýnist óneitanlega að stjórnar- formennirnir, (sem þetta aðhafast, viti ekki hvað þeir eru að gera. Þeir hafa að virðist ekki hugsað lengraen það, að svala sér á Mr. Wolf. Um afleiðingarn ar af smásálarskap sínum og stráks- legri óart hafa þeir ekki hugsað þá. Þeir eru máské farnir að hugsa um þær nú, þegar þeir eru flæktir orðnir. Eftir að hafa þannig komið upp um stjórnina, sagði Mr. Wolf af sér 26. Júní. ÆÐAHNÚTAR LÆKNAÐIR Á 3— 6 nóttum. — Dr. Agnews Ointment læknar æðahnúta frá 3—6 nóttum. Menn fá linun undireins og menn hafa borið það á. Ekkert meðal getur jafn- ast við það. Það læknar einnig hring- orma og alls konar útbrot: Salt Rheum. Eczema, Barbers Itch o. s. frv. 35 cent. TÍU CENTS LÆKNA HÆGÐA- leysi og lifrarsjúkdóma. — Dr. Agnews Liver Pills, eru ágætari en nokkrar aðrar piliur. Þær lækna svo undrun gegnir: höfuðverk, liægðaleysi, gall- sýki, meltingarleysi og lifrarsjúkdóma. Kostar 10 cents glasið — 40 inntökur. HAY FEVER OG KVEF LÆKN- ast á 10—60 mínútura. — Menn þurfa að eins einu sinni að draga að sér and- ann um blástnrspiþuna úr flösku með Dr- Agnews Catarrhal Powder, þá dreif ist duft þetta um slímhúðina í öllum nasaholunum. Það veldur engum sárs- auka, en er mjög þægilegt. Það linar veikina undir eins, og læknar að fulln og öllu kvef. Hay Fever, köldu, liöftið- veiki, sárindi í hálsinum, sárindi í tung- urótunum og heyrnarleysi. HJARTVEIKI LÆKNUÐ Á 30 mínútum. — Dr. Agnewshjartveikislyf lækna i öllum tilfellum hjartyeiki á 30 minútum svo að sjúklingurinn fær al- gjörðan bata. Það er óviðjafnanlegt moðal við hjartslætti. andarteppu og andarteppuflogum, við sting í vinstri síðunni og öllum einkennum að hjartað sé sjúkt. Ein inntaka mun sannfæra yður. GIGT LÆKNUÐ Á EINUM degi. — South American Rheumatic Cure læknar gigt og fluggigt á 1—3 dögum. Áhrif lyfs þessa á líkamann er dularfalt og mjög inerkilegt. Á skömm- um tíma eyðir það orsökum sjúkdóms- ins svo að hann hverfur undir eins. Hin fyrsta inntaka gjörir stóran bata. 75 cents. FRÉTTIR. DAGBÓK. ÞRIÐJUDAG 23. JÚNÍ. Það voru 30,000 manns sem biðu bana af jarðskjálftunum og flóðöldunum í Japan um daginn, en ekki að eins 1000 eins og í fyrstu var sagt. Hiti ægilegur i New York í gær. varð 2 mönnum að bana. . Stjórn Breta hefir hætt við menta- málafrumvarp sitt í bráð. Verður ekki hreyft við því framar á þessu þingi. Ejtkjufrú fyrverandi Kína-kejsara og móðir hins núverandi keisara Kína, lézt í Peking 19. . þ. m. 62 ára gömul. Nafn hennar var Tsou Hsi. Þjóðverjar hafa nú tvo nafntogaða austræna heiðursgesti í Berlín og eru hálfráðalausir með þá, því gestir þessir eru engir vinir. Þeir eru Li Hung Chang, stjórnfræðingur Kínverja og Yamagata, stórmarskálkur og yfirher- stjóri Japaníta. Venezuélastjórnhefir látið taka fast- an og setja í fangelsi brezkan mann sem stóð fyrir brautargerð í þrætulandinu. Venezuelamenn létu reka starfsmennina burtu, en tóku verkstjórann fastan, þó engin sérstök ástæða væri til. Bretar hafa heimtað lausn hans og skaðabætur í þokkabætur. MIÐVIKUDAG 24. JÚNÍ. Demokratar í Ulinois heimta ótak- markaða frísláttu silfurs og ótakmark- aða frísláttu gulls ; að báðar málmteg- undir hafi jafnræði sem verðmiðill, og að verðgildi silfurs sé metið og með lög- um ákveðið 16 móti 1. Þessu eiga full- trúarnir á stórþingi demókrata að halda fram. Eftir margra ára sókn samþykti lávarðadeildin á þingi Breta í gær, með 142, gegn 113 atkv., lögin sem leyfa manni að kvongast systur fyrri konu sinnar. Meðal þeirra sem greiddu atkv. með lögunum voru : prinzinn af Wales, sonur hans hertoginn af York, hertog- inn af Fife, tengdasonur prinzins af Wales og Roseberry jarl. Meðal þeirra sem á móti vorn, var Salisbury jarl, stjórnarformaður Breta. Dáinn er í Chicago nafnkunnur blaðamaður, Joseph K. Forrest að nafni er stofnaði blaðið Chicago “Tribune.” Hann var 76 ára gamall. Læknir einn í Kansas, Dolphin að nafni, kveðst hafa uppgötvað meðal til að lækna holdsveiki. Cleveland forseti sýnir að sögn meiri áhuga fyrir pólitiskum málum nú en um mörg undanfarin ár. Er það gull og silfurþrætan sem veldur því. En þrátt fyrir kapp hans nú, er álitið að silfurmenn verði ekki yfirbugaðir á til- vonandi demókrata*-fundi í Chicago. FIMTUDAG 25. JÚNÍ. . Bandaríkjamenn yfir höfuð fagna yfir kosningaúrslitunum í Canada, eftir fregnum í blöðunum að dæma. I gær voru haldnir kjörfundir í 4 ríkjum Bandaríkja, til að kjósa fulltrúa á útnefningafund demókrata í Chicago. Á þreraur þessum fundum höfðu silfur- ítar tögl og hagldir, í Ohio, Indiana og Texas. Fjórði kjörfundurinn var i New York og þar réðu silfurítar litlu. Kólera er að réna í Kairo og Alex- andríu, en að aukast hvervetna annar- staðar í Egyftalandi. I öllu Egyfta- landi varð hún 181 manni að bana í gær. Eftir framkomu stjórnmálamann- anna sumra á Spáni að dæma, þykja horfur á að þeir séu að búa sig til stríðs við Bandaríkin. Á þingi Spánverja hef- ir verið talað um að nema úr gildi við- skiftasamninginn við Bandaríkin. Og fyrir þingið hefir verið lagt frumvarp til laga, er levfir stjórninni að selja og hagnýta h vernig og hvar sem lienni sýn- ist allar opinberar eignir á Spáni og Cuba, svo framarlega sem þess þvirfi herkostnaðar vegna. Samtímis hefir verið borið frain frumvarp um að hætta viðskifta eða tollstriðinu, sem Spánverj- ar hafa lialdið uppi gegn Þjóðverjum. Alt þetta þykir benda á að Spánverjar ætli að reyna sig við Bandaríkin. Það sagði líka einn ræðumaðurinn, í sam- bandi við þessi mál, að það stríð kæmi af sjálfu sér eftir 4. Marz næstkomandi, þegar McKinley vreri orðinn forseti Bandaríkja og tæki alvarlega í streng með uppreistarinönnum á Cuba. FÖSTUDAG 26. JÚNÍ. Einn af “feðrum” Canada-sambands- ins, Sir Leonard Tilley, lézt í gær að heimili sínu í Sti Jolin, New Bruns- wick, fullra 78 ára garnall (fæddur 8. Maí 1818). Hann var stjórnmálamað- ur mikill og við opinber mál riðinn mcg- inhlut æfinnar. Hnefaleiksmaðurinn nafntogaði, James J.Córbett, fékk sig fullreyndaun í fyrrakvöld í San Francisco. Átti við réttan og sléttan sjómann. Börðust þeir 12 mínútur og var þá Corbett út- taugaður, og tóku lögregluþjónarnir hann þá burtu. Sjómaðurinn, Thomas Sliarkey, skoraði ótæpt á Corbett að berjast fyrir heimsbeltinu, en til einskis. Corbett var mátaður. Illa fór að tarna! “Guð” Matabela- manna er fallinn. Féll fyrir byssu kúlu núna í vikunni. Yar það svertingi einn, Mlimo að nafni, sem Matabelamenn dýrkuðu sem guð, og sem hafðist við í hellieinum. Voru svertingjar margir umhverfis hann að færa honum fórnir þegar kúlan stytti honum aldur. Skýstrokkur olli stórmiklu eigna- tjóni í Ohio í gær. Sambandsstjórnin, sem undir varð í kosningunum,hefír afráðið, að sagt er. að leggja niður völdin nú þegar, þó ekki sé hún skyldug til þess, fyrri en eftir að þingið er kornið saman (16. Júli). LAUGARDAG 27. JÚNÍ. Gull-náma-æðið í British Columbia fer vaxandi dag frá degi. Umboðsmenn manna i Evrópu kaupa hvað sem býðst og sem hefir gull-námu-heiti. Forseta-kosningar í Chili í Suður- Ameríku eru rétt afstaðnar, en ekki víst orðið um úrslitin. Spánarstjórn hefir ákveðið að gefa út $12 milj. í seðilpeningum, innleysan- legum í gulli, til aðlétta peningaeklunni á Cuba. Nú er sagt að Henri Villard, fyrrum forseti Northern Pacifíc-fqlagsins, sé að ná haldi á þvi félagi, ennfremurábraut- unum Chicago & Great Western og Baltimore & Ohio, er innan skamms verður seld við opinbert uppboð. Sé það satt, fær Villard bráðum óslitna braut frá hafi til hafs innan Bandaríkja. Peningar hafa ekki í manna minn- um verið eins ódýrir, hvað afgjald snert- ir, eins og þeir eru nú í London. Þar má að sögn fá peninga lánaða fyrir af- gjald er svari minna en nemur 2% yfir árið, með öðrum orðum má þar fá $5000 gegn 25 centa afgjaldi yfir sólarhring- inn. Englandsbanki einn hefir 250 milj. doll. meira innlegg nú en fyrir 9 mán- uðum síðan. Formenn brezka Suður-Afríkufé- lagsins, Rhods,Bait ogHarris.hafa sagt af sér og hefir uppsögn þeirra verið tek- in gild. MÁNUDAG 29. JÚNÍ. í lok Ágúst næstk. leggja 37,558 hermenn af stað frá Spáni til Cuba, f einum hóp — á 20 gufuskipum. “Free trade”-sinnar á Englandi — Cobdenítar — héldu hátíðlegt hið 50. af- mæli “free trade”-laganna á Englandi á laugardaginn og fögnuðu þeir yfir sigri “liberala” i Canada. Samtimis ávítuðu þeir og sögðu ómögulega hina umtöluðu tolleining hins brezka veldis. Horfur þjTkja á að Allan-“línan” hreppi umtalaðau stjórnarstyrk fyrir að koma upp hraðskreiðum gufuskipum milli Canada og Englands. Fél. býðst til að gera það fyrir tillag er nemi $lj milj. á ári í 10 ár, og er það $100 þús. meira en stjórnin ætlaðist til. Það er haldið að Laurier taki vel í það mál nú, þó hann tæki því dauflega í fyrstu. Stjórn Frakka hefir hafið máls á að Bretar víki fyrir fullt og alt úr Egyfta- landi, — verði burt þaðan með alt sitt að 2 árum liðnum. Hugmynd Frakka er að halda því máli til þrauta og sjá hvernig fer. Kolanánm lirundi saman í Pennsyl- vania aðfara nótt hins 28. og voru þá 90 menn að vinna þar niðri. Það er ótt- ast að þeir láti allir lífið áður en hjálp kemur. ÞRIÐJUDAG, 30. JÚNÍ. Englendingar athuga með nákvæmni hverja hreyfingu í sambandi við fyrir- hugaðan útnefningafund demódrata i Bandaríkjum. Er það gjaldeyrismálið sem vekur áhugann. Ef fundurinn við tekur ályktun um aðvinna að jafnræði gulls 'og silfurs og getur varist ákveðnu verðgildi silfurs, verður þeirri úrlausn þrætunnar almont vel tekið á Englandi Tízkusnið á Windsor-kastala. Vic- toria drottning hefir látið tengja skrif- stofu sína í Windsor kastalanum við ýmsa staði í Lofidon og grendinni með telefón. Getui hún nú talað við Salis- bury, við son sinn prinzinn af Wafisí Marborough-House og við fleiri í Lon- don, án þess að víkja úr stól sínum, eða ómaka þá á sinn fund. Innan fárra daga verða herbergi hennar í kastalan- um tengd söngleikahúsum, leikhúsum o. s. frv. í ;London með hljóðberavír (Electrophone) og getur hún þá heima hjá sér hlýtt á ræður, söng o. s. frv. i London. Það þykir margt benda á að hin nú- verandi stjórn á Englandi eigi skamt eftir ólifað. Ástæðan fyrir þessu áliti er sú, að ekkert gengur né rekur í að ljúka málum á þingi, og það, að eftir alt saman varð stjórnin' að leggja menntamála-lög sín á hilluna vegna andróðurs. Stórþing irskra þjóðvina verður sett í Dublin 1. Sept. næstk. Mæta þar full- trúar svo hundruðum skiftir frá Banda- ríkjum og Canada. Tilraun hefir verið gerð að ráða hinn unga Persa-konung af dögum. Morð- inginn var höndlaður. Fregn frá Selkirk segir að Angus McKay, umboðsmaður Indíána við Be- rens River við Winnipeg-vatn, hafi hvolft fari sínu við Willow-tanga (fram af Gimli) aðfaranótt laugardagsins, en að hann og allir á bátnum, hafi komist á kjöl og fest sig þar með böndum. Þannig hröktust þeir svo alla nóttina, en um morgunin sáu íslendingar þá og björguðu þeim. Félag í Montreal hefir tekist í fang að framleiða þar í grendinni 32 þúsund hestöfl af vatnsafli til notkunar þar í borginni, eftir að þvi er umhverft í raf- urmagn. Að koma þessu í kring kost- ar 3£ milj. dollars. Skógareldar ollu tjóni miklu á Ný- fundnalandi. Yfir 50 bændabýli eru brunnin í skóginum. LEIÐRÉTTING á fréttagrein tekinni eftir “Free Press”, og sem stóð í Hkr. 21. Maí. Greinin er algerlega öfug frá sann- leikanum. Vil ég því biðja yður, herra ritstjóri, að taka eftifylgjandi leiðrétt- ingu í yðar heiðraða blað. Fyrir rúmum 2 árum síðan, þókn- aðist Mrs. Breiðfjörð, einhverra hluta vegna, að hlaupa frá mér, þá í Winni- peg, suður til Mountain, N. D., og hefir neitað að lifa saman við mig síðan. Fékk ég því lögmann M. Brynjólfsson til að sækja skilnaðarmál fyrir mína hönd. Og þann 16. Maí mætti ég í Grafton, N. D., og fékk lögskilnað við Mrs. Breiðfjörd, semvarekki “sýnilega nálæg”, og stóð ég allan af málinu leið- andi kostnað. Þessu til sönnunar hef ég skilnaðar- bréfið í minni geymslu ef einhver kynni að óska frekari upplýsinga. Mér þykir enginn heiður að skilnaði þessum, og hefði ekki látið hans getið ef “Free Press” hefði ekki verið notað til að útbreiða þessa öfugu píslarsögu, líklega af einhverjum miðurvönduðum fréttaritara og máske kunningja Mrs. Svanborgar Pétursdóttir, sem sýnist vilja hafa allan heiðurinn af skilnað- inum. Mountain, 30. Maí, 1896. Jón J. Breiðfjörd. if OOODWAN & T7ERGESEN, hafa til sölu hinar ágætu og billegu GRAND JEWEL MATREIÐSLUSTÓR. Ennfremur allar tegundir af EIR, BLUCK OG GRANIT VÖRUM, VATNSPUMPUR, ÞVOTTAVÍNDUR og fleira. Setja inn kjallaraofna (Fnrnaces.) Goodman & Tœrgesen, CORNER YOUNG & NOTRE DAME AVE.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.