Heimskringla - 02.07.1896, Side 2
HEIMSKRINGLA 2. JÚLÍ 1896.
Heimskringla
PUBLISHBD BY
The Heimskringla Prtg. & Publ. Co.
•• ••
Verð blaðsins í Canda og Bandar.:
$2 um árið [fyrirfram borgað]
Sent til íslands [fyrirfram borgað
af kaupendum bl. hér] $ 1.
••••
Uppsögn ógild að lögum nema
kaupandi sé skuldlaus við blaðið.
• •••
Peningar sendist í P. O. Money
Order, Registered Letter eða Ex-
press Money Order'. Bankaávis-
anir á aðra banka en í Winnipeg
að eins teknar með afföllum.
• • ••
EGGERTJOHANNSSON
EDITOR.
EINAR OLAFSSON
BUSINESS MANAGER.
• • ••
Office :
Comer Ross Ave & Nena Str.
P. O. Itox 305.
Kosningarnar.
Á síðasta Dominionþingi sátu í
neðri deild 215 þingmenn. Á næsta
þingi verða þeir ekki nema 213 í neðri
deildinni. Samkvæmt lögum um það
efni getur fjöldi þingmanna minkaðeða
aukist í hvert skifti sem manntal er tek-
ið,—nema í Quebec og Ontario. Þar
stendur þingmannafjöldinn altaf í stað,
til þess öðru vísi er ákveðið með lögum.
Afleiðingin af þessum lögum er sú, að
eftir aö manntalsskýrslurnar frá 1891
komu út, hlutu sambandsþingmenn að
fækka sem hér segir : í Prince Ed-
wards eyju 1 ; í Nova Scotia 1; í New
Brunswick 2. í Manitoba íjölguðu þeir
aftur um 2, en ekki annars staðar, þó
ekki vantaði nema örfá þúsund íbúa til
íyrir ári sí^an, að Alberta fengi tvo
þingmenn í staðinn fyrir einn. Af þessu
leiðir að þingmenu eru nú 2 færrií neðri
deild, þangað til manntalsskýrslurnar
næstu koma út,—árið 1901.
Að afstöðnum síðustu þingkosning-
um (5. Marz 1891) var flokkaskifting á
þingi sem hér segir :
Con. “Lib.”
Prince Edward Island..... 2 4
Nova Scotia.............. 16 5
New Brunswick........... 13 3
Quebec................... 30 35
Ontario.................. 48 44
Manitoba .................. 4 1
Norðvesturhéruðin.......... 4 0
British Columbia........... 3 0
Alls 123 92
Fleirtala conservativa 31.
Aukakosningar margar áttu sér
stað á ýmsum tímum á kjörtímabilina
og græddu þar ýmsir. En er þing var
rofið 23. Apríl 1896, mun sem næst að
flokkarnir hafi staðið þannig :
Con.‘ Lib.’ Óháðir,
Prince Edw. Isl. 2 4 0
Nova Scotia .. 15 6 0
New Brunswick 15 i 0
Quebec .. 31 34 0
Ontario 33 3
Manitoba .. 4 1 0
Norðv.héruðin... ... 4 0 0
British Columbia 6 0 0
AIls 134 79 3
Fleírtala conservativa þá á þingi 53, séu
hinir 3 óháðu látnir fylla flokk ‘liberala.’
í þessum siðustu kosningum (23.
Júní 1896) urðu breytingar á, og standa
flokkarnir nú sem hér segir, að því er
framast verður séð :
Lib. Con. Óháðir.
Prince Edw. Isl. 3 . 2 0
Nova Scotia.. .. . 10 10 0
New Brunswick 4 9 1
Quebec 18 2
Ontario . 10* 45 6
Manitoba . 2 4 1
Norðv-.héruðin ... . 2 1 1
British Columbia 4 2 0
Alls 110 91 11
Séu ‘liberölum’ gefnir allir þessir
11 einstæðingar, McCarthy-ítar,patrón-
ar og óháðir. verður fleirtala þeirra á
næsta þingi 29, en sé einstæðingunum
skift þannig, að 6 fylgi stjórninni, en
5 conservativum, og það er liklega
nokkru nær ætlað, verður fleirtala
hennar 19., þ. e., hún hefir þá 19 atkv.
um fram alla aðrafiokka á þingi. Þann
ig stendur það, að kosningunum lokn-
um í öflura nema einu kjördæmi.
*) Eftir að kjósa í einu kjördæmi
—Algoma, eða réttara sagt, fréttir það-
an ekki komnar nákvæmar.
Ætli maður ‘liberölum’ annan mann
og það líklega er óhætt að gera, þá hef-
ir stjórnin að minsta kosti 29 atkv. um-
fram öll önnur atkv. á þingi. Það má
gera ráð fyrir að þessar tölur taki
breytingum áður en langt um líður
því ef eftir vanda lætur, verða fleiri eða
færri af þeim feldir, sem nú eru kjörn
ir, og þar af leiðandi svo og svo marg-
ar aukakosningar væntanlegar.
Hér má geta þess, að þegar þetta er
ritað, er óvíst að McDonell sé kjörinn í
Selkirk, þó vér ætlum honum sætið í
skýrslunni. Sama er um Saskatchewan
kjördæmið vestra, að það er engin vissa
fyrir að Laurier hafi náð kostningu þar.
Dragi maður alla einstaklingana,
11 talsins, frá, sýnir skýrsla þessi
hverjir það eiginlega eru sem ráða þess-
ari byltingu og sem þar af leiðandi ráða
ríki í næstu 4—5 ár. Athugi maður
skýrsluna sér maður að protestanta-
fylkin til samans hafa gefið conserva-
tívum 6atkv. umfram ‘liberals’, sé gert
ráð fyrir að ‘liberalar’ vinni sigur í Al-
goma. Það eru þess vegna ekki þau
sem ráða byltingunni. Það er Quebec,
hið fransk-kaþólska fylki, sem gerir
strykið í reikninginn. Þegar síðasta
þing var rofið voru Quebec-fylgjendur
Louriers 3 fleiri en fylgjendur conserva-
tíva. Að þessum kosningum liðnum
eru þeir orðnir 29 fleiri en eru fylgjend-
ur conservatíva. Það er þetta fylki
eitt sem nú ræður öllu Canadaríki. Það
væri sannarlega fróðlegt að vita hið
eiginlega álit þeirra Dalton McCarthys
og N. Clark Wallace’sá kosningaúrslit-
unum. Þó hvor fyrir sig rói á sínum
sérstaka ‘dalli’ berjast þó báðir fyrir að
komast að einu og sama takmarki—að
draga sem mest vald úr höndum kaþ-
ólskra og franskra manna og svifta þá
öllum álirifum sem unt er og enda jafn-
rétti, eins og t. d. í Manitoba. I því
skyni svo, að hjálpa því málefni áfram
lögðust þeir á eitt með að koma con-
servatívum á kné, af því þeir höfðu á-
kveðið að rétta hluta kaþólíka í Mani-
toba. Sú fyrirhugaða réttarbót var nú
ekki meiri en svo, að meginþorri kaþ-
ólskra manna á þingi sagði nei við
henni, vildu ekki nýta svo lélega réttar
bót. Samt snerust þeir McCarthy og
Wallace og margir aðrir góðir coserva-
tívar á móti flokki sínum og afleiðingin
af því er nú sú, að það sem þeir af al-
efli hafa barizt á móti er nú fram kom-
ið. Þeir gátu ekki vitað fransk-kaþ-
ólska menn í völdum. Nú eru einmitt
þeir alvaldir í ríkisstjórninni. Það má
segja um þessa tvo menn og annars
alla þeirra fylgismenn, eins og Hall-
grímur heitinn Pétursson sagði um
Pílatus : ‘‘Þetta sem helzt að varast
vann, varð þó að koma yfir hann”.
Þetta er nú þegar svo auðsætt,að enda
‘liberalar’ sjálfir, þeir sem protestantar
eru, eru ekki neitt sérlega ‘upp með
sér’ af þessu ástandi. Þeim þykir eins
og prestinum í þjóðsögunni “passleg
pilsa bezt”. Laurier er góður út af fyr-
ir sig, en að hafa hann stjórnarformann
eingöngu af því franskir menn og kaþ-
ólskir halda honum uppi, það þykir
þeim ekkert gleðiefui, ekki til að stæra
sig af; Undir niðri eru þeir hræddir
um að þetta ástand kunni að hafa mið-
ur æskileg áhrif á skólamálið, en þó
eru sumir þeirra að reyna að telja sér
ogöðrum trú um, að þessi sigur Lau-
riers í Quebec sé því til sönnunar, að
ekki verði hugsað til tvískiftra skóla í
Manitoba! Það er með öðrum orðum
þeirra röksemkafærsla, að af því Lau-
rier og allir hans fylgismenn í Quebec
lofuðu fullkoinnari réttarbót en Sir
Charles bauð, af því öll þeirra blöð
heimtuðu hið sama, og af því klerkalýð-
urinn skoraði á kjósendurna að greiða
þeim einum atkvæði, sem einlæglega
og eindregið lofuðu Manitoba-kaþólík-
um ærlegri réttarbót, og af því svo að
alt þettasveigði 2 af hverjum 3 kjósend-
um af stefnu sinni og inn í hjörð Lau-
riers,—af því eiga menn að ráða að Lau
rier-stjórnin geri ekkert í skólamálinu,
veiti trúbræðrum sínum engar réttar-
bætur ! Það er ólíklegt að nokkur mað
ur trúi öðru eins, því þeir sem bera það
fram geta auðvitað ekki trúað því. En
svo gerir það lítið til hvort nokkur trú-
ir því eða enginn. Það smá nálgast sá
tími, að Laurier verður að sýna hvort
hann svíkur öll sín Quebec-loforö eða
ekki, eða hvort hann sannar , sig
sekan í að hafa dregið menn í prote-
stanta-fylkjunum á tálar og látið laut-
enanta sína gera það, þar sem hann
kom því ekki við sjálfur. I millitíð-
inni geta menn staðið við að bíða róleg
ir og ef mönnum sýnist gert sér gott
af að trúa því, að Quebec-menn sem
nú eru einráðir í Canada, muni ekki
líta víð að rétta hlut meðbræðra sinna
Manitoba.
Þessi afstaðna sókn er Mauitoba-
mönnum i heild sinni til heiðurs. Ur-
slitin sýna að þeir voru farnir að skilja
skólamálið, skílja og viðurkenna að
einhver réttarbót var og er nauðsynleg.
Svo sýndu þeir þá jafnframt að þeir
vildu heldur trúa protestöntum en kaþ-
ólíkum fyTÍr að gera þá réttarbót. Það
er líka sannast, að það hljóta að vera
blindir menn af flokksofstæki. sem ekki
sjá að kaþólskur stjórnarformaður með
kaþólskan meirihluta á þingi að baki
sínu og kaþólskan meirihluta einungis,
er líklegur til að vera djarftækari þeg-
ar til réttarbóta kemur, heldur en
stjórnarformaður út flokki protestanta
með protestanta meirihluta að baki sér.
Þetta hafa Manitobamenn séð og skilið
og sýnt það með úrslitunum undireins
og þeir með atkv. sínum sýndu, að þeir
væru ekki andvígir sæmilegri eða sann-
gjarnri réttarbót. Úrslitin í Manitoba
eru sem sé sem fylgir, ogtákna tölurn
ar á eftir nöfnunum atkv. fjöldann um
fram gagnsækjandann : «
Kjördæmi Lib. Cons.
Winnipeg.............Macdonald 126
Provencher........... LaRiviere 666
Macdonald............ Boyd yfir 400
Marquette............ dr.Roach 60-70
Selkirk....(óvíst).................
Lisgar Richardson 66?..............
Brandon McCarthy 372?..............
Þó McCarthy sé hér tallinn ‘liber-
al’, þá er langt frá því víst að hann geti
talizt með þeim. Að minsta kosti er
ekki auðsætt hvar hann getur verið, ef
til umbótalaga kemur. En svo eru
horfur á, að hann segi af sér í Brandon
nú þegar og gefi Laurier það eftir handa
Sifton, hinum væntanlega (?) innanríkis-
stjóra Lauriers, og sem þá mundi að
sjálfsögðu vinna sigur, ef til aukakosn-
inga kemur. Þegar á það er litið að
þegar síðasta þing var rofið voru á
þingi frá Manitcba 4 conservatívar og
1 ‘liberal’, því kjördæmin tvö: Macdon
ald og Brandon, eru ný kjördæmi, þá
verður bezt séð hve fast Manitobamenn
stóðu fyrir, þrátt fyrir skólamáls-ósköp
in.
Norðvesturhéruðin gerðu ekki eins
vel. Þaðan voru allir (4) þingmennirn-
ir conservativar, er þing var rofið, en
nú sendu þau ekki svo víst sé nema 1
conservatíva austur—gamla N. F. Da-
vin í Regina, þó útlit sé fyrir ab J. F.
McKay í Prince Albert sé kjörinn, en
ekki Laurier. En sem sagt, eru úrslit-
in í því kjördæmi ekki kunn enn og
verða líklega ekki fyrri en í næstu viku,
af því kjördæmið er svo óendanlega víð
áttumikið. í austur-Assiniboia vann
Mr. Douglass, sem telur sig patión, og
þau úrslit eru ekki nema eðlileg, því
gagnsækjandi hans, Mr. McDonald
brúkaði skólamálið sem aðal-vopn og
mælti eindregið með umbótalögunum
sem seinasta þing var að burðast með.
Afleiðingin varð sú, að Douglass náði
kjöri með yflrllOO atkv. umfram gagn-
sækjandasinn, en Davin gamli fékk að
eins 2 atkv, fleira, en patróninn Mc-
InneS, er sótti á móti honum. I Al-
berta eru og úrslitin eðliles. ‘Liberal-
sinninn, Frank Oliver, ri> jóri blaðs-
ins ‘Bulletin’ í Edmonto’
héraði áþekt álit alþýðu i
Macdonald hefir i Wiuni|i.
sækjandi hans, Mr. Cochi.
ur alþýðu. Að minsta !.<■
ekki eins alþýðlegur maður
'iefi" i sínu
lugh John
En gagn-
lítt kunn
■■i; or bann
u ' Oiiver.
Það réði úrslitunum í Alberta öldungis
eins og það réðiþeim í Winnipeg, miklu
fremur en skólamálið, eða nokkurt at-
riði í stefnuskrá stjórnmálaflokkanna.
Oliver fékk 835 atkv. um fram Coch-
Afskifti klerkanna.
Á meðan nýafstaðin kosningasókn
stóð yfir kvörtuðu ‘liberal’-blöðin og
kveinuðu í sífellu yfir afskiftum bysk-
upanna og klerkanna í Quebec af stjórn
málum. Ef það hefði verið einlægur
vilji þeirra, aðklerkar sleptu stjórnmál-
um, en héldu við sína eigin sérstöku
kenningu, sem þeir hafa helgað líf sitt,
þá hefði vel verið. En í því ópi þeirra
var engin einlægni, ekki snefill meiri af
einlægni en er í öllum öðrum ópum
þeirra. Aö svo sé virkilega sér maður
af framkomu klerkanna allstaðar ann-
arfstaðar, — protestanta-klerkanna. Til
sönnunar því þarf ekki annað en benda
á hamfarirnar þeirra Presbyteriana og
Metodista. Þeirklerkar allir æptu eins
alvarlega að kaþólskum skyldi ekki
veitt umbeðið jafnrétti, eins og kaþ-
ólsku klerkarnir æptu að þeim skyldi
veitt það. Út á þau afskifti klerkanna
hér vestra 'höfðu ‘líberl’-blöðin ekkert
að setja. Þvert á móti var þeim hrós-
að fyrir að gera það sama, sem kaþ-
ólsku Jklerkarnir voru ávítaðir fyrir.
Þetta sýnir hve mikil er alvaran í þessu
máli hjá þeim ‘liberölu’. Að spana
þennan upp til að gera það og gera þaö
sem mest þeir geti, af því sem þeir i
sömu andránni fordæma annan fyrir
að gera ! Það er bernaðaraðferð ‘liber-
ala’.
Nú þegar sóknin er á enda og alt
gekk þsim að óskum—í Quebec, hafa
þau auðvitað furðanlega litið um af-
skifti klerkanna að segja. En eitthvað
v.erða þau að láta það heita—til mála-
mynda. Það liti illa út að leggja niður
rófuna svona undir eins, enda þótt þau
sjái að nú fyrst eru þau komin í klip-
una, — nauðug, viljug orðín að leigu-
tólum kaþólsku klerkanna í Quebec, er
nú ráða stjórnmálum Canada-sambands
ins. Það sem þau nú hafa að segja um
afskifti klerkanna, er broslegt fremur
þegar lítið er á úrslitin. Þau segja
sem sé að úrslitin í Quebec bendi á að
enda alþýða þar láti ekki klerkana
ráða fyrir sér lengur. Þegar litið er á
afskifti klerkanna í Quebec og í Mani-
toba og þegar svo er litið á úrslitin í
þeim fylkjum, þá væri ekki fjarri sanni
að segja að lýðurinn í Manit. léti eíkki
froðufellandi Methodista, Presbyteri-
ana, eða aðra klerka hræða eða véla frá
sér skynsemina eða sjálfstæði. En að
segja það urn Quebec, það er sannar-
lega skoplegt undir kringumstæðunum.
Það sem fram var tekið í skipun bysk-
upanna, og það er hún sem var orsök í
öllum klögunum eins og að venju, var
það, að enga skyldi kjósa til sambands-
þingsins nema þá, sem ótvíræðilega lof-
uðu og skuldbundu sig til að hjálpa til
að rétta hluta trúbræðra sinna í Mani-
toba. Og úrslitin sýna hvort þessu
boði byskupanna var fullnægt eða ekki.
Laurier og þar fyrir neðan allir ‘liberal-
ar’ færðu það greinilega og við öll tæki-
færi sem ástæðu sína til að andæfa um-
bótafrumvarpi Sir Charles Tuppers, að
það næði á engan hátt tiiganginum. 1
þess stað lofuðu þeir svo fullnaðar-rétt-
arbótf ef þeirra kaþólsku bræður vildu
bara gefa þeim tækifæri til þess. Af-
leiðingin af þessu bandalagi Lauriers
og byskupanna er nú auðsæ, þar sem
Laurier nú hefir 45 eða 46 fylgismenn
frá Quebec á móti 34, er þing var rofið,
en Sir Charles 17 eða 18 á mótí 31, er
þing var rofið. Þessi bylting sýnir
hvorum Quehec-íngar hafa trúað betur
til að útvega trúbræðrunum í Mani-
taba fullnaðarréttindi: Laurier og ka-
þólíkum eða Si r Charles og protestönt-
um.
Afsklfti klerkanna i stjórnmálum
ættu ekki að líðast, þegar þeir eru í
stólnum eða [í embættisskrúða sínum.
Utan stólsins og klæddir úr hempunni
hafa þeir auðvitað sama rétt og aðrir
til að vaslast í pólitiskum málum, ef
þeir svo vilja. En þá er líka hægt að
svara þeim eins og öðrum, en sem ekki
er mögulegt á meðan þeim er leyft að
brúka stólinn fyrir skálkaskjól. En á
meðan protestanta klerkarnir fara að
eins og þeir í Manitoba og víðar í síð-
ustu sókn, situr ekki á protestöntum í
heild sinni að fordæma kaþólska presta,
ef þeir gera slíkt hið sama. Og i þess-
ari sókn gengu þeir ekki lengra en pró-
testanta klerkarnir, þó safnaðarlimir
þeirra sýndu nú eins og áður, að þeir
t>i i 'cici t.amari j en protestantar og
hi, i bctur boðskap kyrkju sinnar.
Ao .-.<• e<. er nokkuð seni ‘liberalar’ nú
mega þakka fyrir.
54. þjóðþingið.
Eins og getið var um fyrir skömmu
hér í blaðinu, fær þetta þing, eða fyrri
liður þess, ekki hrós hjá Bandaríkja-
þjóðinni. Til þess að þingmenn gætu
tekið þátt í liinum pólitisku vígaferlum
í St. Louis, var þinginu frestað ll. Júni
og kemur svo að vændum ekki saman
aftur fyrri en 7. Des. í vetur. Það er
eitt, og eitt einungis, sem þessu þingi er
talið til ágætis, og það er, að það sat
venju fremur stutta stund. Stórvirkt
var það og, það er sannast að segja, á
þeim stutta tíma, en stórvirki þessi eru
ekki metin, að minsta kosti ekki nærri
öll, nema þá af litlum hluta þjóðarinn-
ar. Þegar lagasafnið sem eftir það ligg-
ur er athugað, þykir mönnum það ekki
hafa verið stórvirkt. Fyrir þingið
komu alls 12,780 lagafrumyörp, að
þingsályktunum ineðtöldum, og áttu
9,500 þeirra upptök í neðri deild, en 3250
iþeirriefri. Af öllum þessum frum-
varpafjölda samþykti þingið tæplega
250, eða eitt af hverjum 51, sem fram
voru borin í báðum deildum. í þessu
efni var það því ekki mikilvirkt. En
það vann það upp í öðrum greinum.
Það samþykti meðal annars f járveiting-
ar svo nemur rétt um 600 milj. dollárs,
en það er yflr 200 milj. meira en nokk-
urt undanfarandi þing hefir veitt á sam-
svarandi tímahili, að undanteknu 51.
þjóðþinginu. Að meðtöldum væntan-
legum tekjuhalla á yfirstandandi fjár-
hagsári. er þessi upphæð öll sem næst
$170 milj. meiri en væntanlegar tekjur
á næsta fjárhagsári. Þetta er eitt af
þrekvirkjum Jiingsins, sem þjóðin met-
ur ekki. Það virðist sem sé að eins einn
vegur til að auka tekjurnar svo að þær
geti mætt þessum vaxandi gjöldum, og
það er að auka tollinn á aðfluttum varn-
ingi, með öðrum orðum lögleiða Mc-
Kinley-lögin á ný, eða önnur samskon-
ar tolllög. Verði McKinley forseti frá
4. Marz næstk. og nái repúblíkar völd-
unum aftur í liaust, þá er líka öll von til
að vel gangi að fá tollinn aukinn. Er
það s’zt tilhlökkunarefni, því tollurinn
sem nú er, 41% að meðaltali á tolluðum
aðfluttum vörum, er sæmilega hár, eða
svo mundi þykja hér í Canada, þar sem
ekki þykir lifandi af því tollurinn er 28
til 29%. Ef tollurinn hækkar enn meira
er líka auðsætt hve aðdáunarvert verð-
ur ástand Canadamanna, eftir að “lib-
eral ”- stjórnvitringarnir svifta burtu
Canada-tollinum, eins og þeir að sjálf-
sögðu gera, ef þeir vilja að sannist, að
viðtekin stefna þeirra sé eitthvað meira
en agn til að draga þá á tálar með, sem
ekki hugsa um annað en að bannfæra
tollinn. Af því hér eru nú orðin stjórn-
arskifti og að af þeim leiðir að sjálfsögðu
stórkostleg lækkun, ef ekki algert af-
nám Canadatollsins, eru þessar horfur i
Bandaríkjunum sannarlega þess verðar
að Canadamenn gefi þeim gaum og at-
hugi hvar þeir sjálfir standa þegar
þeirra tiltölulega lági varnargarður er
burtu numinn. Og að þetta séu horf-
urnar, að það sé tilgangur repúblíka að
auka tollinn, það er nokkuð sem þeir
munu ekki bera á móti, þó það mál liggi
að miklu leyti í láginni nú, vegna hins
risavaxna gjaldeyrismáls, sem gnæfir
hátt yfir öll önnur mál á dagskrá
Bandarikja.
Meðal annara þrekvirkja þingsins,
en sem tiltölulega fáir meta öðru vísi en
þeir meta þessar hóflitlu fjárveitingar,
má telja einkum tvö mál, er bæði heyra
undir gjaldeyrismálið. Hvorugt þeirra
er meira en hálfbakað enn, og er það
komið undir úrslitum kosninganna í
haust, hvort þau nokkurn tíma komast
lengra. En þrekvirki þj'kir að þau kom-
ust svona langt áleiðis á einu þingi, — í
efri deild. Annað þeirra er um frisláttu
silfurs með lögboðnu verði silfursins, 16
únsur móti einni af gulli. Var þess efn-
is þingsályktun samþykt 1. Febr. síð-
astl. með 42 gegn 35 atkv. Það er hið
annað þrekvirkið, og sem enginn metur
að undanteknum silfur-ítum. Þriðja
þrekvirkið er það, er efrideild samþykti
með 32 gegn 25 atkv., að banna stjórn-
inni að gefa út rentuberandi skuldabréf
án samþykkis þjóðþingsins. Með öðr-
um orðum er stjórninni gersamlega
bannað að taka fé til láns, hvað sem á
liggur, fyrri en báðar deildir þingsins
hafa leyft það, en á því leyfi getur staðið
svo mánuðum skifti. Og á þeim tíma
getur gullsjóðurinn þorrið algerlega, en
sem lögin á aðra hönd heimta að standi
í 100 milj. dollars að minsta kosti. Nái
þessi lög gildi, getur svo farið, að stjórn
in verði neydd til að hætta að borga lög-
mætar ávísanir á gullið i fjárliirzlunni,
annað tveggja af því, að gullið alt er út-
gengið, eða stjórnin framfylgir lögun-
um stranglega, sem ákveða 100 milj.
gnllsjóð. Þetta þykir óþolandi. Það
sé sama sem að auglýsa fyrir heiminum
að framvegis neiti Bandaríkin að borga
lögmætar skuldakröfur. Þeir sern þessi
lög afsaka benda aftur á, að jafnóþob-
andi sé að stjórnin geti í leyfisleysi
þings og þjóðar tekið alt það lán sem
hún vill og eytt því eins og henni sýn-
ist.
Vilja sinn í þessu efni á þjóðin að
sýna i haust.
Innanríkisstjóri Lauri-
ers.
Hver verður hann ? Þeirri spurn-
ingu er ekki búið að svara enn. Það
eitt er víst að hann verður vestmaður,
i. e. búsettur hér vestra, samkvæmt
viðtekinni venju. Aðalstarfsvið innan-
ríkisstjórans er vestan stórvatnanna og
stærsta héraðið og öflugasta í þeim
hluta landsins er Manitoba. Það fylki
á þess vegna heimting á að leggja til
innanríkisstjórann, eins og verið hefir
undanfarin ár. Það má ganga út frá
því sem sjálfsögðu að Laurier vjður-
kenni þann rétt Manitobamanna alveg
umllugsunarlaust og breyti samkvæmt
því. Hver hlýtur þá hnossið ? Það er
gátan. Það má virðast að Joseph Mar-
tin standi næstur, en það er ekki alt
sem sýnist. Það er óséð að Laurier
langi eftir honum á sambandsþing,
hvað þá í ráðaneytið, að minsta kosti
benda blaðafregnir á, að flokksmenn
Lauriers eystra séu ósköp ánægðir með
úrslitin í Winnipeg. Sifton dómsmála-
stjóri fylkisins hefir verið nefndur í
sambandi við innanríkisstjórnina og er
það ef til vill ekki ólíkleg tilgáta. Það
má þó heldur hemja hann í samvinnu
en Martin. í þetta skifti hefir sá mað-
ur ekki verið nefndur f þessu sambandi,
þó það hafi verið gert áður, sem allra
manna í flokki Lauriers er bezt vaxinn
þeirri stöðu. Það er Thomas Greenway
sjálfur. Vestan stórvatnanna á Lauri-
er engan hans jafningja til að skipa þá
stöðu og það er hæpið að hann gæti gert
Manitobamönnum þægra verk, en að
veita honum embættið. Greenway er
bóndi og hefir að auki 8 ára reynslu sem
stjórnarformaður og formaður stjórnar-
deildar, sem í aðalatriðunum er eitt og
hið sama sem innanrikisstjórnin í Ott-
awa. Þegar hugsað er um Martin eða
enda Sifton i sæti innanríkisstjórans, þá
verður Thomas Greenway sem ljóssins
engill við samanhurðinn. Þess vegna
ætti hann að hreppa þá stöðu. en þeir
Hrapparnir að skja heima.
Komst lijá uppskurði.
Merkisfrétt frá Smith’s Falls.
Heimakoma í andlitinu varð að
opnu sári. Læknarnir sögðu að
uppskurður væri það eina sem
gæti hjálpað. Meðal sem gerði
uppskurð ónauðsynlegan.
Tekið eftir Smith’s Falls Record.
Frægur þýzkur læknir sagði einu
sinni, að heimurinn væri fullur af fólki
sem væri veikt af vantrausti. Sannind-
in sem í þessu eru fólgin hafa aldrei
komið beturíljós heldur en nú. Það
eru til ótal margir menn og konur, sem
heldur vildu taka út óbærilegar kvalir,
lieldur en að taka meðul sem ekki eru
fyrirskrifuð af uppáhaldslæknum þeirra
Fólk af þessu tagi kynni að geta lært
ýmislegt af sögu Mr. Thos. E. Philips
frá Smitlis Falls. Sagan er þannig sögð
af Mr. Philips og tekin niður af fregn-
rita blaðsins Record :
Fyrir nokkrum árum fór ég að
leggja af, varð lystarlaus og fékk heima
komu í andlitið, og loks fékk ég opið
sár á hálsinn sem olli miklum óþægind-
um. Eg leitaði til þriggja lækna og
þeir sögðu allir að það þyrfti að taka
part af andlitsbeininu.
Allan þennan tíma gat ég ekkert
verk gert, og leið óþolandi kvalir á sál
og likama, þar til ég af tilviljun rakst á
grein, um Dr. Villiams Pink Pills i
blaðinu “Record” og afréði að reyna
þær, vitandi að þær mundu í það
minnsta ekkert illt gera mér. Ég hafði
ekki brúkað úr einum öskjum þegar ég
fanntilbata. Eg hélt áfram, og eftir
að hafa brúkað úr átta öskjum, greri
sárið á kinninni á mér svo algerlega, að
skurður sá sem læknunum hafði komið
saman um að þyrfti að gera var með
öllu ónauðsynlegur. Eg náði þyngd
minni aftur, og hefi dú fengið mína
fyrri matarlyst. í stuttu máli, svo
stórkostleg var breytingin, að ég var
orðin að nýjum manni. Við álítum
Pink Pills nú, sem hverja aðra heimilis
nauðsyn. Mr. Phillips var heiðvirður
efnabóndi, í Valford héraðinu, þar til;
8Íðastliðið vor, að hann seldi bú sitt og
lifír nú hægu lifi í Smith Falls. Hann
er hér um bil fimmtugur að aldri, þó'
hann sýnist unglegri, og er hann lifandi
vottur um hinn undraverða lækninga-
kraft, sem Dr. Villiams Pink Pills inni-
halda. Þessi lyfjafræðislega uppfind-
iné hefir náð sínu háa áliti, fyrir sina
eigin verðleika-. Séu þær teknar í tíma
gera þær hinn heilsuveika hraustann,
fölar kinnar fá hinn fagra roða aftur.
Tapað hugrekki endurnýjast, og þeir
sem líða, frelsast frá þraujtum sínum.
Ef matvörusali sá, er þér skiftið
við, hefir gkki Pink Pills í búð sinni,
getið þér fengið einar öskjur sendur til
yðar með pósti, fyrir 50 cent eða 6
öskjur fyrir $2,50 með því að skrifa fé-
laginu til Brockvill, Ont., eða Schenec-
tady, N. Y. Munið að Dr. Williams
Pink Pills lækua, þegar önnur meðöl
reynast ónýt, og látið ekki telja yður
á að brúka neinar eftirlíkingar.
Tveimur bjargað.
Mrs. Phoebe Thomas, íJunction
City, 111., var sact af lækninum, sem
stundaði hana, að hún hefði tæringu, og
að það væri engin lifsvon fyrir hana, en
t vö glös ;if I)r. Kings New Discovery
læknaði haria, og bjargaði lifi hennar.
Mr. Thomas Eggers, 139 Florida Str.
San Francisco, leið af vondu kvefi, sem
leit út fyrir að mundi verða að tæringu,
liann reyndi ýms meðul. enekkert dugði
fyr en hanu fékk Dr. lý'ngs New Dis-
covery, sein læknaði hann á tvoimur
vikuin Svona löguð sjúkdómstilfelli
oru það sem sanna hversu óyggjandi
þetta meðal er við kvefi og hósta. Ein
fiaska til reynslu ókeyp.is, Yana stærð
50c. og $1.00.