Heimskringla - 02.07.1896, Síða 4
HEHÍSKRINGLA 2. JÚLÍ 1896.
Winnipeg.
Hra J. S. Bergman, kaupmaður að
Gardar, N. Dak., var hér 4 ferð í bæn-
um í vikunni sem leið.
Hr. Gisli Jónsson í Glenboro, kom
til bæjarins i vikunni er leið.
Hra B. L. Baldwinson brá sér til
Nýja íslands fyrir síðustu helgi. Er
hann væntanlegur heim aftur nú þessa
dagana.
Samkvæmt síðustu nafnatalsskýrsl-
um eru nú 1400 íbúar í Morden, Man.,
714 í Boissevain, 615 i Manitou, 400 í
Pilot Mound, 312 í Melita.
Mr. og Mrs. Jos. Anderson, frá Se-
attle, fóru suður í Dakota-nýlendu ís-
lendinga á fimtudaginn var í kynnisför
til Jóhanns Jóhannssonar, Hallson P.O.
og dvelja þar um óákveðinn tíma.
Hra Þorleifur Jónsson.bóndi í Lög-
bergs-nýlendunni í Assiniboia, kom til
bæjarins í vikunni er leið, þá sunnan úr
Dakota. Hafði dvalið þar síðan um
miðjan Maí. En er nú á heimleið.
Tólf ára gamall drengur drukknaði
í Rauðá hér í bænum fyrra þriðjudags-
kvöld. Hafði verið með mörgum öðrum
drengjum að baða sig í ánni og eins og
þeim er títt, verið fremur ógætinn.
Dr. Oronhyatekha, hinn nafntogaði
formaður óháðu Eorrester-reglunnar,
verður hér i bænum á ársþingi High
Courts reglunnar í Manitoba, senj sett
verður á þriðjudaginn 21. Júh',
Sendibréf á skrifstofu Hkr. eiga :
Miss Vilborg Árnadóttir; Mr. Teitur
Ingimundarson ; Mr. Jón Jónsson (end-
ursent ritaranum frá dauðrabréfaskrif-
stofunni í Ottawa); Mr. Jón Kr. Reyk-
dal; O. P. Anderson; Sigurður Vil-
hjálmsson.
Hra J. P. Sólmundsson á Gimli,
kom til bæjarins í vikunni er leið. Veg-
leysið og vetviðrin m. fl., hefir til þessa
gert ómögulegt að byrja á smérgerð á
Gimli, en undir eins og vegirnir verða
slarkfærir verður byrjað. Hann fór
heimleiðis aftur um helgina.
Hra. Jóhannes Sigurðsson, sem fór
heim til Islands fyrir nærri tveimur ár-
um, og sem síðan hefir verið í Laxár-
dalnum i Þingeyjarsýslu, er nú fluttur
að Akureyri. Vinir hans hér, sem skrif
ast á við hann, eru þvi beðnir að gæta
þess, að addressa hans framvegis er:
Jóhannes Sigurðsson, c/o Frb. Steins-
son, Akureyri, Iceland.
Þjóðhátíð Bandarikja (4. Júlí)halda
Dakota-íslendingar í sumar að Garðar.
Forstöðunefndin er : E. H. Bergman,
John Johnson, B. J. Brandsson, Geo.
Peterson, Chr. Johnson. Ritari Jónas
Hall; forseti dagsins E. H. Bergman.
Ræðumenn eru : Major J. G. Hamil-
ton (frá Grand Forks), Rev. F. J. Berg-
man, B. G. Sxúlason, B. A., M. Brynj-
ólfssog, o. fl. D. J. Laxdal les réttar-
skrá lýðveldisforingjanna (Declaration
of Independence). Skemtanir verða næg-
ar allan daginn, svo sem söngur og hljóð-
færasláttur, dans, íþróttaleikir allskon-
ar, veðreiðar o. s. frv., o. s. frv.
Klúðurslegar aðfarir eru uppvisar
orðnar í sambandi við sýningabygginga
smiðið hér í bænum. Meðal þeirra sem
tekið höfðu að sér hússmíð nokkra, var
Chamberlain atkvæðafalsari, og fórst
honum smíðið eins og alt annað — svik-
samlega. Hafði keypt gamlan trjávið
og alt aðra tegund, en ákveðið var i
skilmálunum og að sama skapi var alt
smíðið. Yfirumsjónarmaður var þar
fyrir hönd bæjarins og sýningarstjórn-
arinnar, en ekkert af þessu sá hann fyr
en aðrir voru húnir að koma upp svik-
unum. Eini vegurinn er, að rifa niður
alt smíði CkamberJains og byggja á ný.
Mál þetta er ekki útkljáð enn.
Rev. Mr. T. B. Forbush, Unitara-
prestur í Chicago, er væntanlegur til
bæjarinsfyrir helgina. Hann prédikar
i Únitarakyrkjunni á sunnudagskvöld-
ið kemur.
Haglél og á eftir fádæma steypi-
regn dundi á hér í bænum og grendinni
seint á föstudagskveldið 26. Júní.
Fylgdi því ofsaveður af norðvestri.
Haglið gerði skaða mikinn í kálgörðum
í útjöðrum bæjarins.
Hra J, B. Tyrrell, frá Hamilton,
Ont., jarðfræðingur í þjónustu sam-
bandsstjórnarinnar, kom til bæjarins
um síðustu helgi og er á ferðinni til
Winnipeg-vatns, til að halda áfram
mælingum sínum og rannsóknum á
ströndum þess.
Iðnaðarsýningin venjulega, hér í
bænum, verður opnuð á mánudaginn
20, þ. m. (Júlí) og heldur áfram til viku-
loka, Auk sýningarinnar sjálfrar verða
skemtanir meiri miklu og margbreytt-
ari en nokkru sinni áður. Helmings af-
sláttur á fargjaldi frá öllum stöðum í
fylkinu.
Hra N. Th. Snædal, bóndií Grunna-
vatnsnýlendunni, kom til bæjarins fyrir
helgina. Líðan manna segir hann góða
en fádæma bleytu, það svo, að útlit
fyrir heyskap er hið ískyggilegasta.
Enn kvað ekki verið byrjað á skurða-
gerðinni sem íslendingum var lofað svo
rækilega í fylkis-kosninga sókninni i
vetur er leið.
Yfirréttardómarar fylkisins hafa
dæmd ógild lögin, sem bæjarstjórnin
fyrir nokkru samþykti og sem knúðu
verzlunarmenn til að !oka búðum sín-
um kl. 7 á kvöldin. Dómararnir sögðu
lögin ffl, af því þau miðuðu til að tak-
marka verzlun. Það varfranskur verzl-
unarmaður hér í bænum, Cloutier að
nafni, sem klagaði, eftir að bæjarstjórn
in hafði oftar en einusinni leikið hann
illa fyrir óhlýðni við lögin.
Hér með auglýsist
að á laugardaginn kemur, (4. Júlí)
kl. 8 e. h., verður fundur haldinn í
North West Hall til að ræða um fs-
lendingadagshald í sumar og kjósa
nefnd til að standa fyrir því. Skor-
að er á sem flesta íslendinga að sækja
fundinn.
NEFNDIN.
Dáin
Að heimilu sínu, 118 Lydia Street
Winnipeg að kvöldi þess 24. Júní 1896.
Ingibjörg G. Johannesdóttir kona
Mr. Wm. Andersons. Ingibjörg heitin
var fædd á Vatnsnesinu í Húnavatns-
sýslu á Islandi, og uppólzt þar, hjá
móður sinni Kristinu Johannesdóttir.
Árið 1874 fluttist hún til Canada með
móður sinni er nú er til heimilis í Nýja
íslandi og árið 1880 giftist húa manni
sinum. Þeim varð 6 barna auðið og af
þeim eru 4 á lífi. 1882 fluttu þau hjón
til Norður Dakota og settust þar að á
landi. Þar bjuggu þau til þess áríð 1888
að þau fluttu afur til Winnipeg og
hafa verið þar siðan.
Ingibjörg heitin var góð kona og
ástkær móðir, gestrisin og góðlynd og
unnu henni því allir er til hennar þektu.
BATNAÐI Á 6 KLUKKUSTTJND-
um. — Vondir nýrna og blöðrusjúk-
dómar læknast á 6 klukkustundum með
South American Kidney Cure. Þetta
nýja meðal er svo aðdáanlegt þar eð
það læknar á svo skömmum tima kval-
ir í blöðrunni, nýrunum og í öllum
þvaggöngum karla og kvenna, Það
losar um þvagið undir eins og leiðir það
kvala laust niður. Ef þér viljið fá skjóta
lækning þá er þetta hið rétta meðal.
Pen i nga=sparnadur.
Fyrir kvenfolk
Fallegir Tan Juliet skór, búnir til af J. D. King, Toronto.
Þessir skór eru mjög fallegir, með stórum hnöppum ; hafa
verið seldir $3.50 ; fást nú fyrir $2.95. Handsaumaðir Ox-
ford skór $1.00. Góðir reimaðir ylskór á 75 cents.
Fyrir karlmenn.
Góðir, sterkir verkaskór á 90c. “Black Butcher”-skór á $1.00
og fínir skór með lágu verði. Skoðið hjá oss hin svokölluðu
Cnicago-stigvél á $2.50.
Fyrir Drengi.
Hér gefur á að líta : Drengjastígvél, stærðin 1—5, $1.00, og
11—13, fyrir 90 cents. Bamaskór, stærðin 2—7, 25 cts. og
8—10, 40cents.
E.Knight & Co.
351 Hain Str. Andspænis Portage Ave.
G0LD
, Yirgina Flake Cut:
Reyktobak
W. S. KIMBALL & CO. •
Rochester, N.Y., U.S.A.
17 Hæstu verðlaun. •
Til kaupenda Heimskringlu.
Þær premíu pantanir, sem safnast
hafa saman um noákurn undanfarinn
tíma, verða nú afgreiddar innan skamms.
Til bréfaskifta vinanna
Ó, hvað gengur að yður, eruð þér
nú alveg hættir að skrifa mér?
Er ég ei verður að eyða á mig línu?
Er alt nú svo lélegt í fari mínu?
Skrifaði ég yður svo ómerkt hjal?
Er þar nein perla, sem meta skal?
Fyrst eitt sinn ég verður var að þér
virtuð mig tals og skrifuðuð mér,
ja, því þá ei enn?Eg ereins og forðum;
á enn þá til mikið af hlýjum orðum.
Því hjartað slær alt eins heitt og þá;
eins heitt eins og yðar, giska ég á.
En svo á ég til fáein sannleiks orð,
(sem sýnast að stundum sé vinskaps
morð),
og hreinskilni og djörfung á heiminn
yrða
þó hafi ég tungu fremur stirða.
En smjaður eg kann ei, og kann ske
af því
ég komist svo seintáfram heiminumi.
Ef kostar það hræsni að komast af,
að kaupa hvað náttúran öllum gaf,
með tvöfeldnisbrosi og bljúgum svörum
með blikandi lýgi á hræsnis yörum.
Hve gjörsnauður er ég þá glöggt ég
skil—
gjaldmiðil hef ég engan til.
Samt reyni ég lifa eins lengi og ég get
því lífið ég stundum nokkurs met.
Hvert viðkvæmnis bros, já hver vin-
samleg lína,
, er veglegur geisli á lífsbraut mina.
Því vinátta annara lengir mitt líf
og linar—já strykar burt sorg og kíf.
Æ, skrifið mér, vinir, eitt einasta orð,
því endalaus þögn er mér sálar morð.
En ef ég er vinur ekki lengur
og enginn mig kannast við mær né
drengur,
þá látið mig einann um harma og hel
mitt hinsta orð, til yðar—farið vel.
S. B. Benedictson.
Islands-fréttir.
Frá Akureyri
er oss ritað 17. Maí síðastl., að vonað sé
að Þorsteinn Erlingsson flytji þangað í
sumar og taki við ritstjórn “Stefnis.”
Er því við bætt, að verði af því muni
Þingeyingar og Eyfirðingar hafa í hug
að styðja svo það blaðfyrirtæki, að hann
geti lifað af tekjum fyrir blaðið.
, Um tíðarfarið o. fl. segir ritarinn
þetta : “Tíðarfar hér hefir verið hið in-
dælasta allan veturinn og vortíðin hin
bezta. Tún eru farin að gróa. Þó er
íshroði fyrir norðurlandi, en hann
grandar ekki skipum og geta þau þess
vegna farið ferða sinna.”
“Heilsufar gott manna á meðal.”
“Menn eru farnir að hugsa um að
komaupp íshúsum, ef fjársölubannið á
Englandi kemst á.”
“Dagskrá,”
hið nýja blað, sem Eingr Benediktsson
ætlar að fara að gefa út í Reykjavík,
kemur ekki eins snemma eins og til
hafði verið ætlast. samkvæmt auglýs-
ingum stofnandans í Rvíkurblöðunum.
Kennir hann það því, að “ Vesta” hindr-
aðist í ferðum sínum, en hún átti að
flytja prentáhöld o. s. frv. til Rvíkur.
stj. Jón Þórðarson). Hákarlaskipin hafa
afiað mætavel, mest á 4. hundrað tunn-
ur lifrar (“Geir”, skipstj, Sig. Símonar-
son.
22. Maí.
Sœmundur Eyjólfsson, cand. theol.,
andaðist hér í bænum úr lungnatæringu
18. þ. m., rúmlega hálffertugur að aldri.
Hann var fæddur í Sveinatungu í Norð-
urárdal 10. Jan. 1861, en þar bjó þá fað-
ir hans Eyjólfur, nú bóndi í Hvammi í
Hvítársíðu son Jóhannesar Lund snikk-
ara í Gullbringum, Jóhannesar, Gests-
sonar, Árnasonar lögréttumans á Myr-
arlóni við Eyjafjörð. Kona Eyjólfs og
‘ móðir Sæmundar er Helga Guðmunds-
dóttir frá Sámstöðum, Guðmundssonar
á Háafelli, Hjálmssonar i Norðtungu,
Guðmundssonar á Hafþórsstöðum,
Hjálmssonar á Skarðshömrum, Guð-
mundssonar, Kolbeinssonar bartskerara
Hjálmssonar. Er þessi Hjálmsætt mjög
fjölmenn, einkum um Borgarfjörð^ og
margir mikilhæfir menn í þvi kyni.—
Um tvitugsaldur gekk Sæmundur á
búnaðarskólann i Ólafsdal og lauk þa fc
námi meðbezta vitnisburði, en aflöngV
un til frekari menntunar og fyrir áeggj-
an og tilstuðlan ýmsra góðkunningja
sinna tók hann að læra undir skóla, og
settist í 3. bekk lærðaskólans 1885, þá á
25. aldursári, og var útskrifaður þaðan
1889 með 1, einkunn, en af prestaskól-
anum 1891 einnig með 1. eink. Meðan
hann var í skóla og jafnan síðan var
hann ávallt í þjónustu búnaðarfélags
Suðuramtsins á sumrum, ogersú starf-
semi hans mörgum kunn, enda hefir
hann ritað mjög marg búnað áhrærandi
í tímarit og dagblöð...Hann kvænt-
ist næstliðið vor (1. Júní) merkiskon-
unni Elínu Eggertsdóttir Briem for-
stöðukonu kvennaskólans á Ytriey,
systur Eiriks Briem prestaskólakennara
og þeirra góðfrægu systkina. Sambúð
þeirra varð þvi ekki fullt ár.
Sigurður Jónsson, kaupmaður á
Vestdalseyri, bróðis Kristjáns yfirdóm-
ara og þeirra systkina, andaðist 17. þ.
m. úr blóðspýju, eftir þriggja daga legu
tæplega fimtugur að aldri. Var hann
fæddur og uppahnn á Gautlöndum, en
flutti til Seyðisijarðar 1873; tók þá við
Gránufélagsverzlan á Vestdalseyri, og
veitti henni forstöðu til 1886.
Gufuskipið “Otra” kom hingað vest-
an um land 19. þ. m.* Varð að snúa
aftur á austurleið móts við Grímsey,
því að þar var fyrir samföst hafíshella.
Á leiðinni hingað aftur slapp það með
naumindum fyrir Horn sakir hafíss, er
þá var þar meiri en í austurleið skips-
ins. Það lagði af stað héðan aftur sunn-
an um land til Austfjarða (lengst til
Vopnafjarðar) í fyrra dag, og með því
fjöldi farþegja héðan úr sjáfarsveitun-
um við flóann til að leita sér atvinnu
eystra. Er “Otra” væntanleg hingað
aptur undir mánaðamótin.
. Settur sýslumaður i Vestmanneyj-
um frá 1. þ. m. er Magnús Jónsson
cand. jur„ en hann hefir enn ekki sakir
veikinda getað farið til eyjanna, og
gegnir Þorsteinn Jónsson héraðslæknir
sýslumannsembættinu á meðan.
Veitt prestaköll: Bergstaðirí Húna-
vatnssýslu eru veittir séra Ásmundi
Gíslasyni aðstoðarpresti í brauðinu, og
Eyvindarhólar veittir Jes Gíslasyni
cand. theól. (frá Vestmanneyjum),hyort-
tveggja samkvæmt kosningu safnað-
anna.
Strandferðaskipið Thyra kom hing-
að í gær austan um land. Hafði orðið
að snúa aftur við Sléttu sakir íss. Fór
héðan þegar aftur í gærkveldi vestur
um land, og ætlar sér að komast á
norðurhafnirnar þeim megin.
BUCKLENS ARNICA SALVE.
Bezta smyrsl sem til er við skýrðum,
mari, sárum, kýlum, úthrotum, bólgu-
sárum, frostbóígu, líkþornum, og öll-
um sjúkdómum á hörundinu. Læknar
gylliniæð, að öðrum kosti ekki krafist
borgunar. Vér ábjrrgjumst að þetta
meðal dugar í öllum þeim tilfellum sem
talin'hafa verið, ef ekki borgum vér pen
ingana tii baka. —Askjan kostar 25 cts.
Fæst í öllum lyfjabúðum.
MICA ROOFING-
Hr. W. G. Fonseca. í haust er leið
var eitt ár liðið síðan ég þakti heflimyln-
una mina með Mica-þófa, sem þér hafið
til sölu, og tjargadi ég það ekki fyr en
nærri sex mánuðum eftir að það var
lagt. en þrátt fyrir þaðþó rigningasamt
væri bar ekkert á leka og ekkert hafði
þekjan skemst við tjöruleysið. Þetta
þak þolir bæði hita og kulda. R. D.
Patehson. Þetta Mica á ekkert skylt
við hið svokallaða Metal Brand Ready
Roofing. W. G. Fonseca.
Viltudrekka?
Allar tegundir af óáfengum svala-
drykkjum eru ætíð á reiðum höndum hjá
Mr. Hall, 405 Ross Ave.
Auk svaladrykkjanna hefir hann og
birgðir miklar af allskonar aldinum og
ávöxtum, hnetum, brjóstsykri af ótal
tegundum, sætabrauði af ýmsum teg-
undum; allskonar vindlum, reyktóbaki
og reykpípum ; barnaglingri allskonar
o. fl., o. fl. Og verðið er hvergi lægra
í allri borginni.
ICE CREAM
er til á hverjum degi, ágætt og hvergi
ódýrara en hjá
John Hall,
405 Ross Ave.
S. Anderson,
651 Bannatyne Ave.
(Corner of Nena Str.)
hefir fengið inn miklar byrgðir af
Veggja-pappír
sem hann selur með langtum lægra verð
en nokkur annar pappírssali í þessum
bæ. Hann hefar 125 mismunandi teg-
undir, sem hann selur frá 5c. upp í 30c.
rúlluna.
Allir á siglingu til beztu
Skraddarabúðarinnar
PEACE & OO.
56« JMain Str.
horninu á Pacific Ave.
Fötin sniðin, saumuð, og útbúin
eins og þér segið fyrir.
Peace & Co.
566 Main Str.
Buxur! Buxur! Buxur!
handa öllum.
Bezta búðin í Winnipeg er
Merki: Bia Stjarna 434 Main St,
ALT ÓDYRT!
Það gleður oss að geta tilkynt almenn-
ingi og þó sérstaklega viðskiftavinum
vorum, að Mr. N. Chevrier er nýkom-
inn austan úr fylkjum og hefir þar tek-
ist að kaupa afarmikið af tilbúnum föt-
um fyrir svo lítið dollars virðið, að
The Blue Store getur nú sélt
rneð lægra verði en nokk-
ur önnur verzlun- hér.
Drengjabuxur vorar eru frá 25c. upp í
40c., 50c., 75c. og 81.00. Karlmanna-
buxur frá $1.00 upp i $1.25, $1.50. $1.75
og $2.00. Þú hefir enga hugmynd um
þessi kostaboð nema þú komir og kaupir
af oss. Meðan erindsreki vor stóð við í
Ottawa, lukkaðist honum að ná í 200
alfatnaði úr skosku vaðmáli hjá hinum
nafnkunna skraddara Chabot & Co., Nr
124 Rideau St., Ottawa. Þessi föt hafa
öll verið gerð með mestu nærgætni af
P. C. Chabot, sem gerir langmest áf
fötum þeim, sem stjórnin lætur búa til
Munið eftir því að öll þessi föt eru búin
til eftir máli. Þau eru $26.00 til $28.00
virði, en vér seljum þau nú á $15.50,
Þú verður að koma og skoða þessi
föt til þess að sannfærast. Alt annað í
búðinni selt á sama verði að tiltölu.
500 drengja alfatnaðir á 75c. og yfir.
Hattar ! Hattar!
fyrir hálfvirði. Gleymið ekki
The BLUE STORE,
MERKI: BLÁ STJARNA.
434 MAIN STR.
A. Chevrier.
Hugsið um
ykkur sjálfa.
Og skoðið varninginn sem vér höfum nú
á boðstólum. Hér gefst tækifæri sem
menn ættu ekki að láta ónotað. Búð
vor er vel full af vel völdum, nýjum og
vönduðum varningi,sem fullnægir kröf-
um tízkunnar og kröfum tímanna. Hjá
oss er staðurinn til að fá hina beztu og
ódýrustu fatnaði, skyrtur, skó, mat-
vöru o. s. frv. Allir eru ánægðir með
varning vorn, enda fæst enginn honum
betri. Verðið er ekki til fyrirstöðu,
— það er hvergi lægra. Verið vissir um
að þið fáið fullgildi þeninga ykkar. Vér
verðskuldum að þér verzlið við oss, því
vér gefum ykkur hina beztu kosti. Vér
borgum hæsta verð fyrir ull.
Munið eftir staðnum.
The
Cavalier, N. Dak.
Blair’s Fountain Pen
Eitt af því nauðsynlegasta sem þú getur haft í fórum þínum ér BLAIR’S
SECURITY FOUNTAIN PEN. Þú hefir þá penna ætíð við hendina. Og þú
sparar þér margt ómak með Því að þú skrifar jafnara og betur, og þeir kosta
þig minna með tímanum holdur en vanalegir stálpennar og ritblý. Penninn
geymir sjálfur blekið í ser.
Þessir pennar eru úr.14 karat gulli og endast mannsaldur.
Þið getið fengið að reyna þá í 30 daga án þess það kosti nokkuð. Ef þeir
reynast ekki góðir, þá sendið þá til baka og vér sendum yður peningana aftur.
Verðlisti : No. 1 gullpenni með fínum snáp......$1.75
No. 2 gulipenni með fínum eða stýfðum snáp $2,00
No- 3 gullpenni með fínum eða stifðum snáp $2.50
No. 4 gullpenni með fínum eða stýfðum snáp $3.00
Með sérlega vðnduðu skafti 75 cts. auk áðurgreinds verðs.
Blair’s Fountain Pen Company,
141 Brodway-----------New York,
Eftir “Þjódólfi”.
Rvík 15. Maí.
AUabrögð. Vetrarvertíðin hér við
Faxaflóa hefir yfirleitt verið einhver hin
bágbornasta, er menn muna. Hér á
Innnesjum engir hlutir, að kalla má,
þetta frá 30—100 hjá almenningi af rey t-
ingsfiski, og hjá sárfáum 200 eða þar
yfir. Langbeztur afli hér við Flóann
hefur verið { Keflavík og Njarðvikum,
hæsti á 4. hundrað, en miklu minna að
jafnaði í Garði og Leiru. Á Stokkseyri
og Eyrarbakka hefir einnig aflazt sár-
lítið, en hins vegar mjög vel í Þorláks-
höfn. Hæstur hlutur þar um 800, í
Herdísarvík um 700, í Höfnum og á
Miðnesi tæp 600. En mestur afli hér
syðra hefir verið í Grindavík. Er sagt,
að þar sé hæstur hlutur eitthvað á 10.
hundrað.
Þilskip, er gengið hafa til fiskjar
hér við Flóann, hafa aflað vel yflrleitt.
Mun hæstur afli á þeim vera 19,000
(“Margrét”, skipstj. Finnur Finnsson),
en þar næst um 16,500 ("Stjernen”,skip-
MURRAY
&
LANMAN’S
FLORIDA water
áLL DRUCGISTS, PEBFUMERS AND
GENERAL DEALERS.
j>ið fáið 5% afslátt á pennum þessum, ef þið minnist þess í
pðntuninni, að þið hafið séð þessa auglýsing í Heimskringlu.
Kosta minna en ódýrasta blýhvíta. Endast 5 ár
Hammar Paints
eru þétt í sér. Þau eru sett saman á réttan hátt úr blýi og zinki, eru
endingargóð og fást með öllum lituin. Þú gerir málið þitt hreint, end-
ingargott og fallegt með því að hræra saman við það nýja Linseed olíu.
Eugin önnur olía dugar. 4 pottar af þykku (Hammars) máli og 4 pott-
ar af hreinni Linseed olíu gera 8 potta af bezta máli, sem kostar að eins
§1.10 fyrir hverja 4 potta.
O., DALBY selur alls konar húsgögn, veggjapappir, málolín og gler
etc. Ég kaupi heil vagnhlöss af varningi í einu og spara þannig við-
skiftavinum mikla peninga. Komið og talið við mig.
O. DALBY,
Edinburgh, N. Dak.