Heimskringla - 30.07.1896, Qupperneq 1
IflUBf
uosio -g-3
w w • tl ® f
neimsKnngla.
X. ÁR.
WINNIPEG, MAN., 30. JÚLÍ 1896.
NR. 31
íslands-bréf.
(Niðurlag frá 2. bls.)
hafa alt sem frjálsast, aðrir eru því
mótfallnir, mest fyrir þá sök að þá geti,
ef til vill, fáir menn náð undir sig öllu
kyrkju fénu. En ég segi, því má ekki
leysa upp hina lútersku þjóðkyrkju, láta
landssjóð (þjóðina) taka til sín eignir
allar og láta síðan hvern þann flokk er
vill, taka sér sinn prest og hafa sitt eig-
ið form, eða þá að sumir er það- kysu
mœttu vera utan við alt, vera sjálfir
sinir eigin sálusorgarar. Hávaðinn af
mönnum vill að sönnu hafa lúterska
presta, aj minnsta kosti únítara presta,
en menn vantar fé til að launaþeim,
segja menn. Má þá ekki launa þeim úr
landssjóði? Landssjóður hjálpar hvort
sem er, undir nú gildandi lögum. *
Þá sný ég mér að atburðum þeim,
er gerzt liafa meðal manna í Þingeyjar-
sýslu út af trúarbrögðum, og mér finst
þess vert að á það sé minnst. Er þá
fyrst til að taka að haldin var sam-
koma í Múla í Aðalreykjadal af ungum
mönnum eða ungu fólki. Var það um
jólaleytið 1894, Eitt, af því sem til
skemtunar var haft var kvæði er Ind-
riði bróðir Jóhannesar á Felli hafði ort
og kom upp sá kvittur, að allóvirðulega
væri þar talað um Maríu mey. Þetta
barzt til eyrna hins röggsama drottins-
Þjóns, séra Benedikts Kristjánssonar á
Grenjaðarstað. Var vinnufólk hans að
hafa vísur þær á spöðunum og náði
hann svo í kvæðið með cinhverjum ráð-
um. Leið svo um hríð, þar til frétt sú
kemur að kvæðið sé komið til byskups
og hann búinn að skipa amtmanni að
láta sýslumann rannsaka málið og
koma Indriða í sekt fyrir að hafa hæðzt
að trúarbrögðunum. Kom það upp að
þetta var alt fyrir aðgerðir séra Bene-
dikts. Var svo málið tekið fyrir haust-
ið 1895,, og hefi ég lítið af því frétt ann
að en það, að Indriði dæmdist frí af
sektum, en 19 kr. málskostnað varð
hanh að borga, og gaf þó sýslumaður
helming. Þannig orsakaði flutnings-
maður hins kristilega kærleika fátæk-
um manni fjárútlát, en orðin um Mariu
gátu ekkí orðíð útskafin að heldur.
Ekki vill Indriði iurta kvæðið. Tvær
vísur hafa samt borizt, og eru það ein-
mitt þær er mest meiddu Maríu. Þær
hljóða þanníg :
“Nú fyrst eru nálæg jól,
er nógu vel til fallið,
að minnast þess er María ól,
—sú mundi til í brallið.
Kunni ei feðra krakkann drós,
svo karlinn hlaut að nýta.
Það gengur svona, rjóða rós,
já, rós og liljan hvíta”.
Þar næst er að geta greinar þeirrar
®r Jóhannes Þorkelsson reit í fyrravet-
ur. Hún vakti kurr mikinn og var
sem sumir klerkar klóruðu sér bak við
eyrað og yrðu hálf-vandræðalegir, en
sumir fundu hjá sér köllun til að svara
og hafa nú flestir lesendur Heims-
kringlu að líkindum lesið þau svör, og
mi er svar Jóhannesar að koma út í
‘Ejallkonunni’ á móti þeim og þykir
mörgum sem hann fari all-ómjúkum
orðum um ritgerðir og stefnu séra M.
Jockumsonar, en flestum þykir hann
faera gild og góð rök fyrir sínu máli, og
eg er einn meðal þeirra. En það var
annað sem ég ætlaði að segja frá þessu
viðvikjandi og það er, að séra Bened.
Kristjánsson, sem er sálusorgari Jó-
*) Nær virðist að fríkyrkjunni væru
gefnar allar eignir ríkiskyrkjunnar og
kyrkjustjórnin svo látin annast um
laun presta. Ættu pólitiskir valdsmenn
að launa þeim, væri þar ekki um neinn
virkilegan aðskilnað ríkis og kyrkju að
gera, og þar af leiðandi ekki um frí-
kyrkju heldur nema i orði kveðnu.
Ritstj.
VEETT
HÆSTU VERÐI.AUN A IIP.IMSSÝNINQUNN
DR
BASdNd
KHi
, IÐ BEZT TILBÚNA
hlönduð vínberja Crearn of Tartar
cfo-wder. Ekkert áiún ammonia eða
-Rnur óholl efni.
40 ára ™?ynslu.
hanne^ar, varð æfur mjög. Sagt er að
hann hafi þrisvar byrjað að rita móti
honum, en alt af orðið of skjálfhentur
og seinast látið sór nægja með að senda
til ‘Austra’ hina stuttu grein eða sam-
líking um Herostratus hinn gríska og
eru sumir á að hann hafi þar slegið
sjálfan sig á munninn. En svo stefnir
hann til fundar á Grenjaðarstað og hef-
ir það víst átt að heita nokkurskonav
rannsóknarréttur og jafnvel átt að
reyna að fá Jóhannes til að taka sumt
til baka af því er hann sagði í grein
sinni um kyrkjuna og prestana, og líka
vildi prestur fá að vita hve margir i sín-
um söfnuði væru sama sinnis og Jó-
hannes eða honum fylgjandi. 'Jóhannes
varði grein sína með kjarki og gætni og
var mér sagt, að prestur hefði þar enga
sæmdarför farið, og svo lauk, að söfn-
uðurinn kaus Jóhannes í sóknarnefnd,
og sagði klerkur, að slíkt sýndi að söfn
uðurinn væri Jóhannesar megin, en
ekki sin megin i skoðunum, því úr
söfnuði vildi klerkur hafa hann umfram
alt. Á fundinum töluðu þeir Jón al-
þingismaður frá Múla og Guðmundur
Friðjónsson frá Sandi, og var það lielzt
í þá átt, að vara prest við að vekja
flokkadrátt eða ofsóknir gegn Jóhann-
esi, því þá mundi fljótt öll vopn á lofti,
bæði illog góð, og varla sýnt hvort Jó-
hannes stæði e i n n á þeim vígvelli, en
flestir mundu þó friðinn kjósa sem
lengst. Var það allviturlega mælt,
þótt ég aldrei geti sóð að komist verði
hjá flokkadráttum og andlegum róst-
urp, ef ræsta skal vel til og hreinsa hið
andlega og kyrkjulega líf á Islandi,
enda er nú mót á að slíkt sé í góðri
byrjun þar sem hjálpræðisherinn bá-
súnar nú í Reykjavik, og í öðru lagi
kaþólski klerkurinn og Jón Helgason
komnir í hár saman. Kyrkjublaðið er
þar mitt á miiji, en vantrúarmennirnir
að einsskjóta örfum við og við í 'Fjall-
konunni’, ‘Stofni' eða ‘Eimreiðinni’.
Það lítur út fyrir að flokkarnir sé í að-
sigi hvað som út þiú verður, og um
hjálpræðisherinn er það að segja, að
mótihonum só óg ekki mælt, nema
það sem gamli Gröndal hefir óspart
dregið að honum og liygg cg það sé hin
rótta aðferð til að benda öðrum á hve
hoimskuleg og fáranleg sú gnðsdýrkun
er, sem sáluhjálparherinn brúkar. Auð-
vitaðsegir það ekkert gagnvart þeira
sem gengnir eru í ha’nn á annað borð.
Að öðru leyti get óg ekki skilið að sá
flokkur eigi mikin viðgang í vændum
hér á Islandi.
Þá er að minnast á tíðarfar. Það
hefir verið hið ákjósanlegasta alt þetta
ár, þótt snemma snjóaði síðastl. haust.
Snjókoma hefir verið mjög lítil í vetur
og síðan um sumarmál hefir verið næst
um hver dagurinn öðrum blíðari, og nú
eru tún farin að grænka. Þó hefir liaf
ís verið að flækjast hér fyrir landi öðru
livoru.
Verzlun lítur dauflega út, ef inn-
flutningsbannið á Englandi verður að
lögum um langan tíma. Þó hugsa
menn sór að korna upp isliúsum og
senda kjötið í ís til Englands.
JÓHANNBS SlGURÐSSON.
Hvað ég elska.
F,g olska mæra morgun stund,
Sem merki ber um gleði fund;
Þá vaknar alt við lifsins ljóð
Og litblóm vermir sólar glóð.
Ég elska fagran fugla söng
Og fögur, iðgræn skógar-göng,
Og sanuan kælu, er kveður lirein,
Sinn kærleiks-óð við laufga grein.
Ég elska blíða aftan-stund.
Þá eygló sendirkveðju’ í lund
Og skóg, er klæðist gyltri gerð,
Þar gripihn skuggi var á ferð.
Eg elska rósa-krans á kvist,
Sem kvöldsól hefir áður kyst,
Og dögg í harma huldri ró,
Þeim hjúp úr tára-perlum bjó.
Ég elska læk með ljúfan nið,
Sem liðast gegnum bakka hlið,
Og sei’r við blómið: “Sofðu rótt,
Eg syngja skal þér góða nótt”.
Ég elska þetta af heilum hug';
Það hefir vikið sorg á bug,
Því það að elska er óg írjáls,
Sem aldrei verður mér til táls.
H.
Heíir þú
nokkurntíma reynt Electric Bittors sem
meðal við vcikindum þínum, Ef ekki
þá fáðu þér flösku nú og láttu þér
batna. Þetta meðal hefir re.vnst að vera
sérlega gott við öllum ujúkdómum sem
kvennfólk á vanda fyrir. Með því það
erir líilærin sterk og vinnandi. Ef þú
efir matarólyst, hægðaleysi.höfuðvei'k,
svima, eða ert taugaveiklaður, átt báot
með að sofa etc. þá þarftu að fá þór El-
ectric Bitter, það er meðaliðsem læknar
— 50 cts. og Sl.OOÍöllum lyfjabúðum.
FRETTIR.
DAGBÓK.
MIÐVIKUDAG, 22. JÚLÍ.
Barkskip á ferð frá Boston til Bue-
nos Ayros í Argentina kom til Halifax í
gærmorgun. Hafði snúið aftur af því
skipstjórinn, koua hans og undirstýri-
maðurinn höfðu verið myrt. Yfirstýri-
maðurinn er grunaður og fleiri af skip-
verjum og eru allir í haldi.
Stjórnmálamaðurinn nafnkunni,
Crispi, á Ítalíu, ersVo fátækur, að hann
hefir neyðzt til að biðja stjórnina um
eftirlaun, af því hann sé orðinn of gam-
all til að gegna málafærslustörfum. —
Þykir Itölum þar farast illa við svo
mikinn mann.
I dag var settur þjóðfundur popul-
ista og repúblíka siliuríta í St. Louis.
Að því er séð verður í upphafinu eru
populistar óánægðir með Bryan, íor-
setaefni silfuríta, en vilja ekki líða Se-
wall, varaforsetaefnið, af því hann er
ríkur maður, bankastjóri o. þvl.
I dag voru þau gefin saman í hjóna
band, Carl prinz, sonarsonur Kristjáns
IX., og Maud prinsessa, þriðja dóttir
prinzins af Wales. Vígslan fór fram í
kapellunni í Buckingham-höllinni í við-
urvist stórmennaskara mikils. En úti
á strætunum var tiltölulega lítið um
dýrðir, — ekki nærri eins mikið og
venjulegt er við samskonar tækifæri.
Borgin Cleveland í Ohio er 100 ára
gömul í dag og stendur þar yfir minn-
ingarhátíð borgarinnar.
FIMTUDAG 23. JÚLÍ.
Járnbrautaskýrsla Bandaríkja-
stjórnar, fyrir síðastl. fjárhagsár, er út
komin, og sýnir að mílnatal járhbrauta
i Bandaríkjunum i lok fjárliagsáráins,
var 180,657 mílur. Stofnfó þeirra sam-
tals 10,685J milj. dollars. Nærri fjórði
hluti allra þessara brauta var þá gjald-
þrotaogundir umsjón stjórnarinnar.
Stofnfé hinna gjaldþrota bTauta sam-
tals S2500 milj. Tekjur allra járnbrauta-
félaganna á árinu voruYúmlega $2 milj.
meiri en árið næsta á undan og var það
því að þakka, að viðhalds- og vinnu-
kostnaður við þær var á árinu rýrður
um §5£ milj. Við járnbrautaslys töp-
uðu lifi: Járnbrauta þjónar 1,118; far-
þegjar 270; — samtals 1,388. Eu 28,071
slösuðust moira og minna.
Rússar fá því ekki framgengt að Li
Hung Chang hætti við Ameriku-ferð
3Ína. Eftir að hafa heimsótt Breta-
stjórn fer karl beinaleið til Washington.
Repúbiíkar i Norður Dakota komu
saman á fundi í Grand Forks í dag til
að ákveða hverjir skuli sækja um ríkis-
stjórnar-embættin pndir merkjum
flokksins.
Nú or uppkomið að Hermann prest-
ur í Utah, sem þar hefir ráðið tveimur
stúlkum bana. hefir að sögn drepið
marga menn heima í Svíaríki.
Útnefningafundi Dakota-repúblíka
er lokið. Voru þessir kvaddir til sókn-
ar: þjóðþingmannsefni M. N. Johnson;
governor, Frank A. Briggs frá Mandan;
vara-governor J. M. Devin frá Lamoure
Co.; ríkisritari, Fred Falley frá Rich-
land; féhirðir Geo. E. Niohols frá Cass
Co.; reikninga yfirskoðari. .1. U. Cowan
frá Ramsev Co.; ábyrgða-eftirlitsmaður,
Fred Fancher frá Stutsman Co.; um-
boðsmaður montamála, J. G. Holland
frá Traill Co.; umboðsmaður akuryrkju
og atvinnutnála H. U. Thomás frá Ben-
son; járnbrauta-umboðsnefnd: Geo. H.
Keyes frá Dickey, L. L. Walter frá
Wells og J. E. Gibson frá Pembina Co.
FÖSTUDAG 24. ,TÚLÍ.
Laurier hefir elcki tilnefnt neinn inn
anríkis stjóra enn. Josepli Aiartin, sem
gjarnan vill ná i embættið, er kominn
á heimleið svo búinn og er ekki neitt á-
nægður með Laurier. M’Innes, senator
frá British Columbia, vill einnig ná
erabættinu og vakir yflr því í Ottawa.
Það mál liggur milli liluta þangað til
ráðherra-kosningar eru afstaðnar.
jUvógareldur tnikill geysar á Kyrra-
hafsBröndinni, — við Puget-fjörð norö-
austanverðan, rótt fyrir sunnan British
Columbia landamærin. Segir skeyti frá
Seattle að skaöinn sé nú þegar orðinn
¥1—2 milj.
Banka-félög í Bandaríkjum hafa
ákveðið að hlaupa undir bagga meö
stjórninni og.lána henni gttll, jafnótt og
þarf, sem nregi til að halda gullsjóðn-
unt í lögákveðnum mæli — S100 milj.
Tolla-strlð mikið hefir staðið yfir um
undanfarinn tima tnilli stjórnanna á
Jamaica og Colontbia og er það nú nærri
búið að oyðilegjrja báðar.
Kjörherrarnir sem í ár kjósa Banda-
ríkja-forseta, —- sem almenningur kýs
til að kjósa fyrir sina hönd — verða 417
talsins. Þó enn sé óvfst hvort demó-
kratar senda út forsetaefni eru blöðin
farin að gera áætlun um úrslitin. Er
fyrsta tilgáta sú, að af 447 atkvæðun-
um fái McKinley 272, en Bryan 175
atkv.
LAUGARDAG 25. JÚLÍ.
Nú kemur sú fregn frá Ottawa að
Laurier muni bjóða Sir Donald A. Smith
innanrfkis-stjórnina. Fylgir það og
fregninni að Sir*Donald muni taka því
boði.
Læknir einn í Berlín hefir látið fótó-
grafa sig 30 sinnum fneð X-geislanum,
í þeim tilgangi að fá sem nákvæmastar
myndir af innýflunum. Af því leiðir að
hann er nú næ.r dauða en lífi. Hárið
alt er af höfðinu, andlitið orðið gul-
mórautt á lit og eins og brunasár á
brjósti og baki.
JÍaria, elzta dóttir skáldsagnahöf-
undarins nafnfræga, Charles Dickens,
lézt í London 23. þ. m.
Populista þjóðfundinum í St. Louis
er lokið. Lyktaði með því að tilnefndir
voru þeir Bryan og Sewall, — merkis-
berar demókrata-silfuríta.
Smá-hreður eiga sér stað á landa-
mærum Grikkja og Tyrkja í Mace-
dóníu, og veitir Grikkjum betur.
Thos. F. Bayard, ráðherra Banda-
ríkja á Englandf, er nú að skemta sér í
Noregi. .
Auk 30,000 sem fórust í Japan í vor
mistu þar 60,000 manns aleigu sína,
í jarðskjálftanum og flóðinu.
MÁNUDAG 27. JÚLÍ.
Flóð mikið og óvanalegt í Ohio-
fljótinu.
Northern Pacific-félagið, eða braut-
ir þess allar, voru seidar við uppboð á
laugardaginu 25. þ. m. fyrir §13 milj.
Sama daginn var Duluth og Winnipeg
brautin seld íyrir tæplega $21 milj. Að
nafninu til var IJað félag í New York er
keypti, en viikilega er það C. P. R.
félagið
“Cataract Construction”-félagið,
sem er að hagnýta vatnsaflið í Niagara,-
fossi, er um það bil að stofna verksmiðju
Canadamegin við fossinn. Hefir að
sögn lokið samningi það áhrærandi við
Ontario-st.jórnina.
Sir Donald A. Smith, nú heimkom-
inn frá London, segir hlægilegt að stinga
upp á að hann t.aki við stjórn innan-
ríkisdeildarinnar.
Laurier hefir auglýst (í ræðu á póli-
tiskum fundi) að á j-firstandandi ári
verði ekki snert við tollinum. En við
því býzt hann, að innan 6 mán. verði
skólamálið útkljáð.
ÞRIÐJDAG, 28. JÚLÍ.
Fregn frá Ottawa segir, að Sir Do-
nald A. Smith verði okki látinn “segja
af sér”, en fái að halda áfram sem er-
indreki Canadamanna í London.
Það er þegar víst orðið áð frumvarp
Breta um fjárveiting til að byggja járn-
brautina um austur-Afríku frá Mom-
basa upp til Victoria Nyanza. Það var
sem sé samþykt í gær raoð 239 gogu 86
atkv. að hleypa málinu til annarar um-
ræðu, og þá er sigurinn æfinlega talinn
vís. í millitiðinni er haldið áfram
járnbrautargorðinni.
Ofsaveður ogsteypiregn olli miklu
tjóni á ökrum sumstaðar í Ontario og
Ohio í gær.
Mikillhluti af skipasmiðisverkstöð
þeirra Harl mds & Wolfs í Belfast á ír-
landi brann í gær. Eignatjón $1J til 2
milj.
.Tapanitar fara að sögn með Kin-
verjana á eynni Formosa cins og Tyrk-
ir fara ineð Armeníu-menn, — drepa þá
og brena býli þeirra. Er sagt að þeir
séu þannig búnir að leggja 60 kínversk
þorp í oyði.
MIDVIKUDAGUIl 29. JÚLÍ.
MexicO'Stjórn er að selja Japanit-
um til landnáms og ræktunar 300 þús.
ekrur af landi i óslitinni spildu og byj'j-
ar innílutningur Japaníta undireins og
kaupin eru gerð. Verðið er$l,00elcran.
Gullsjóöur Bandaríkjastjórnar var í
gær kominu niður í tæpar 90 milj. doll-
ars, — 10 inilj. minni en lögin heimta.
Victoria drotning verður yfir-dóm-
ari 1 landamerkjaþrætu-málinu milli
Chili og Argentíuu-rikjanna í Suður
Ameriku.
Dr. Jamieson, sá er í vetur er leið
Iióf herforðina gcgn Transvaal-mönnum
I or eekuv fundinn og félagar hans allir,
uindur til 15 mánaða faagelsis.
Isiendinga-
dagurinn
3. August 1896.
i Exhibition Park.
Forseti dagsins: Árni Friðriksson.
Garðurinn opnaður kl. 9 árdegis.
Forseti dagsins setur samkomuna kl. 10 ardegis.
Nefndin vill láta þess getið, að
þótt, því miður, hr. Þorsteinn Er-
lingsson ekki gæti beðið hér fram yf-
ir Islendingadaginn, þá skildi hann
eftir kvæði sem verður prentað, og
lesið upp á Islendingadaginn.
Aðgangur að garðinum er 15 cts.
fyrir fullorðna, lOc. fyrir hörn 6—12
ára; yngri börn ókeypis.
Hluttökueyrir er: fyrir nr. 10,12
14, 15, 16 og 17 á prógramminu 20c.
fyrir hvert. Fyrir hjólreið 20c. fyr-
ir hvert atriði. Fyrir stökk 15c. fyr-
ir hvert. Fyrir glímnr 20c.
Evan’s Consert Band spilar á sam-
komunni.
Hr. Jchn Hall hefir á hendi veit-
ingar í garðinum, og geta þeir sem
vilja fengið keypt hjá hontim mat
(lunch), mjóik, kaffl, allskonar kalda
drykki, allskonar ávexti, vindla 0. fl.
Alt með mjög sanngjörnu verði.
—_— \
*»
Programm:
kl. 10 f. m. til. kl. 1 e. m.
Kapphlaup :
1. Stúlkur innan 6 ára.... .50 yds.
1. verðl. sólhlif 50c.
2. “ brúða 25c
2. Dreugir innan 6 ára... .50 “
1. verðl. mnnnharpa 60c
2. “ bolti 25c
3. Stúlkur 6—8 ára....:. .50 “
1. verðl. eldhúsáhöld Sl,25
2. “ Hattur 75c
4. Drengir 6—8 ára.......50 “
1. verðl. lilaupaskór 75c
2. “ hnífnr 35c
5. Stúlknr 8—12 ára......50 “
1. vcrðl. brjóstnál $1.50
2. “ brúða í kerru $1,25
3. “ Skæii 50c
6. Drengir 8—12-ára......50 “
1. vcrðl. hnífur $1.25
2. “ iiúfu 75c
3. “ hiaupaskór 50c
7. Stúlkur 12—16 ára.... 100 “
1. verðl. sólhlíf $2,00
2. “ silfur-brjðstnál $1,50
3. “ Llfstykki 50c
8. Drcngir 12—16 ára.... 100 “
1. verðl. $2.00 virði
2. “ tíkyrta $1,50
3. “ blanj'askðr 75e
9. Ógiftar konurylir 16 ára 100 “
1. verðl. 1 dús. myndir $4,00
2. “ Skór $3,00
3. “ Brjóstnál $1,50
4. “ Autograpli album 75c
10. Ógiftir karlm.yflr I6ára 150 “
1. vcrðl. sígarakassi $3,00
2. “ Tri’iune 6 mos. $3.00
3. “ h.attur $2,00
4. “ lilanpaskór 60c,slipsi 50c
11. Giftar ):ormr........100 j-ds.
1. veiði. Piclvle stand : 3.50
2. “ veggjapappír $2,50
3. “ fruit casa $2,25
4. “ ’ doK.silförskeiðar$1,00
12. Kværitir menn........150 yds.
1. verðl. 'akór $5,00
2. “ Úocking Chcr $3,00
3. “ sigarakassi $2,00
4. “ 1 doz. hntfapör $1,50
13. Konur.giftarsein ógiftar 100 vds.
1. verðl. Diessing bottles $5,00
2. “ Album $3,00
3. “ 1 basket berries $1,50
4. “ sýrópskanna, smjörkúpa,
kaffibrennari $1,25
14. Kariar, giftir og ógiftir 200 yds.
1. verðl.: Málverk $6,00.
2. “ klukka §3,00
3. “ 1 sekkur haframjöl $1,50
4. “ Roast $1,00, | sekk
mjöl 50c
15. Allir kvæntir menn hálf míla.
1. verðl. reykpípa í hulstri $3,00
2. “ feltskór $1,50
16. Allir ókvæntir menn hálf míla
1. verðl. gullpenni $4.00
2. “ lampi $2,00
17. Islendingadagsnefndin 150 yds.
1. verðl. hattur $3,00
2. “ bók $2,50
18. “Potato liace.”
1. verðl. slifsispinni $1,00
2. “ hlaupaskór 60c
HJÓL^ETÐ :
1. Kvart míla.
1. verðl.: medalía $4,50.
2. “ ‘ ‘sici or.ic Ti''« $2,00
2. Ilálf míla.
1. verðl. medalia $4,50
2. “ 1 doz. myndir $4,00
3. Ein míla.
1. verðl. medalía $4,50
2. “ sígarakassi $4,00
4. Ein míla “handicap race.”
1. verðl. medalía $4,50
2. “ Nor-Wester, 6 mos $3,00
3. “ $1.50 virði.
5. Tvær mflur “handicap race”
1. verðl. medalía $4,50
2. “ Free Press 6 mos. $4.00
3. “ belt $1,50
Kl. 2—5 e. h.
RÆÐUR OG KVÆÐI.
Vestur-Islendingar:
Kvæði: Kr. Stefánsson
Ræða: Jón Ólafsson.
Island:
Kvæði: Þorst. Erlingsson
Ræða: Valtýr Guðmundsson.
Ameríka:
Kvæði: Jón Ólafsson
Ræða: W. II. Paulson.
Kl. 5—7 e. li.
Aflraun á kaðli, verðlaun $16,00.
(Conservatives og Liberals togast á).
Stökk fyrir alla :
1. Hástökk.
1. verðl. skyrta og hnappar $1,50
2. “ Tvenn bollapör $1,00
2. Iláftökk jafnfætis.
1. Skyrta og silkiklútur $1,75
2. “ 3 kassar kaldir dr. $1,50
3. Langstökk.
1. verðl. vindlakassi $1,50
2. “ Lampi $1,25
4. Hopp-stig-stökk.
1. verðl. úrkeðja $2.00
2. “ hlaupaskór,slippers$l,10
5. Stökk á staf.
1. verði. hattur $2,00
2. “ göngustafur $1,50
Glimur.
1. verðl. 1 doz. myndir $4,00
2' “ buxur $3,00
3. “ hattur $2,00
Dans að kvöldinn
til klukkan 11.