Heimskringla - 27.08.1896, Blaðsíða 2

Heimskringla - 27.08.1896, Blaðsíða 2
HEIMSKRINGLA aGÚST 27 1896. Heimskringla PUBLISHED BY The Heimskringla Prtg. & Pabl. Co. •• •• Verð blaðsins í Canda og Bandar.: $2 um árið [íjTÍrfram borgað] Sent til íslands [fyrirfram borgað af kaupendum bl. bér] $ 1. • ••• Uppsögn ógild að lögum nema kaupandi sé skuldlaus við blaðið. • ••• Peningar sendist í P. O. Money Order, Registered Letter eða Ex- press Money Order. Bankaávis- anir á aðra banka en í Winnipeg að eins teknar með afföllum. •• •• EGGERT JOHANNSSON BDITOR. EINAR OLAFSSON BUSINESS MANAGER. • • ••. Office : Corner Ross Ave & Nena Str. P. O. Box 305. International-lög. Eins og kunnugt er hafa stjórnir Breta og Bandaríkja um undanfarinn tíma verið að skrifast á um það, hvert tiltækilegt sé fyrir þær að bindast samn- ing um að útkljá öll sín þrætumál fyrir þar til kjörnum sátta rétti. Og eins og kunnugt er hafa báðar stjórnir gefið í skyn, að horfurnar á samkomulagi í þessu efni séu hinar vænlegustu. Nú fyrir skömmu gerði forseti hæzta- réttardómaranna á Englandi sér ferð til Ameríku, til þess sérstaklega að mæta á ársfundi allsherjar lögfræðingafélags Bandarikja og flytja þar ræðu um In- ternational-lög, eða lög, sem nllar þjóðir eiga að hlýða. Það er með öðrum orð- um, ræðu um það, hvort tiltækilegt sé að hafa sáttarétt, til að útkljá þrætu- mál þjóðanna og með því koma í veg fyrir stríð og styrjöld. Það er sagt »ð báðar stjórnir hafi hvatt Russell lávarð, en ekki latt, til fararinnar, eftir að kunnugt var að lög- fræðingafélagið bauð honum á fundinn. En hvert sem það var eða ekki. þá er nú þegar viðurkent, að með ræðu sinni hafi hann stutt málefnið mikillega. Það er hvorttveggja að Russell lávarður er nafnfrægur maður, í enskutalandi lönd- um að minnsta kosti, enda var honum fagnað eius og þjóðhöfðingja, bæði þeg- ar hann kom til New York fyrst og aft- ur á fundinum. Ef til vill á hann það meðfram því að þakka: að hann af eigin ramleik hefir hroðið sér veg úr fátækt og þrengingulh í ungdæmi sínu til þess- arar miklu upphefðar, auðs og valda; að hann er fyrsti Irlendingurinn, sem náð hefir þvíeftirsóknarverðatakraarki, að verða Lord Chief Justice Breta; og, að hann svo snildarlega varði Ch. S. Parnell um árið gegn ofsóknum •Times’, eða eiganda þess blaðs. En hvert sem þetta hefir átt mikinn eða litinn þátt í viðtökunum sem houm hafa verið sýnd- ar, þá er það eigi að síður vottur um á- huga fyrir málefninu, að miklu fleiri frægir lögfræðingar og stjórnmálamenn þyrptust saman til að hlusta á Russell lávarð, en fengu þrengt sér í fundarsal- inn. Því fremur er þessi áhugi eítir- tektaverður þegar athugað er, að á- heyrendurnir flestir taka sinn ósvikinn skerf í kosninga-baráttunni sem hajin er og sem hélt áfram uppihaldslaust á meðan foringjarnir viku frá, til að stú- dera International-lög. Russell lávarður byrjaði ræðu sína með því að segja, að til hefðu verið margir frægir lögfræðingar, sem segðu það álit sitt, að í raun og veru væru engin International-lög til. Það álit sagði hann þeir bygðu á því, að ‘’lög” væri valdboð til hinna undirgefnu, en í International-laga skilningi væri ekkert shkt vald til, sem boðið gæti hinum að gera svo og svo, því stórveldin legðu þann skilning í reglur þær allar, sem kallaðar eru International-lög, að minsta veldið sé jafnt þvi voldugasta é, meðan deilt er nm þýðingu þessa eða hins atriðis í International lögum. En hann kyaðst ekki alskostar samþykkur þeirri skoðun, að “lög” séu skipun yfir- boðarans. Á sínum tíma hafi sjálfsagt verið rétt að líta þannig á þau, en eftir því sera stjórnarfyrirkomulag hafi breytzt í alþýðlegra form, eftir því hafi merking laganna breytzt. Þau séu nú miklu fremur vottur um vilja alþýðu, hygð á hefð og samkomulagi. Hvað snerti svo nefnd Internation- al-lög, eða reglur þjóðanna, er ráða skyldu breytni einnar gagnvart annari, þá sagði hann minst af þeim væri fært í nokkurt greinilegt letur, — enginn In- ternational-laga-bálkur væri til. Það væri hefð og vani, sem þar væri miklu fremur um að gera og sem síðan væri framkominn í anda og ákvæðum samn- inga sem ein þjóð gerir við aðra. Þrátt fyrir það, aðþessilögeruí þessu ástandi, sagði hann tiltölulega auðvelt að rekja þau, og sýna á hverju þau eru bygð. Og í þessu ástandi kvaðst hann álíta heppilegt að þau væru fyrst um sinn, á meðan þau væru á þroskaskeiði og sí- feldum breytingum undirorpin. Hann kvaðst ekki álíta heppilegt að þau væru skráð í skorðum bundinn lagabálk. Þá fór hann mörgum orðum um stefnu þessara laga og hvaða helztu breytingum undirorpin. Komst hann að þeirri niðurstöðu, að þau væru ár frá ári meir og meir að verða mannúð- legri. Og til dæmis um hvernig- hinn mentaði heimur nú liti á breytni bar- bara þjóða, minti hann áheyrendur sína á hve öllum hefði ógnað fréttin um að Menelek Abyssiniu-konungur í fyrra hefði látið höggva hægri hönd og hægri fót af 500 herteknum Ítalíu mönnum. Fyrir ekki svo mörgum árum sagði hann að enginn mundi hafa fengist um slíkt, eða álitið annað en sæmilega hernaðar-aðferð. Þá mintist hann á hernaðar-andann og herkostnað þjóðanna á landi og sjó og komst %ð þeirri niðurstöðu að sátt og friður væri ekki ríkjandi. Taldi hann svo fram herkostnað 6 Evrópu- rikja í fyrra (Englands, Frakklands, Þýzkalands, Austurrikis, Rússlands, Italíu), samtals fullar 900 miljónir doll- ars og sagði svo, að þegar þessi ógna- gjöld væru athuguð, þá væri ekki und- arlegt þó alvörugefnir menn og fram- gjarnir töluðu margt í þá átt, að þús- undára ríkið yrði hafið sarndægurs og fengist alsherjar samkomulag allra þjóða um að leggja niður vopnin, en út- kljá öll sin þrætumál fyrir dómstóli. En þrátt fyrir alt sem búið er að gera í þessa átt, áleit fyrirlesarinn samt, að enn væri þúsundára rikið ekki fyrir dyrum. Hann sagðist ekki vera nógu vongóður til að trú því. Takmarkalaus metorðagirni, ágyrndin, drambið sem valdinu fylgir.— alt þetta óttaðist hann að réði of miklu enn, til þess að hægt væri að segja striðs og styrjaldatímabil- ið útrunnið, enda þó menn hlytu að viðurkenna að heilsusamlegt álit alþýðu hefði meiri áhrif nú orðið en nokkru sinni áður. En svo sýndi hann jafn- framt fram á hvað miklir réttmætir örðugleikar mættu þeim, sem vildu fá sáttarétt stofnaðan. Það væri ekki ein- göngu hroki, o. þ. 1., sem væri þrep- skjöldur á veginum. Og vist sagði hann það, að ill og hræðileg eins og stríðin væru, væri þó annað tii enn skaðlegra fyrir þjóðirnar, svo sem vanheiður,rang- læti í öndvegi og framhald drepandi harðstjórnar. Þegar alt shkt væri tek- ið til greina, sagði hann nokkurn veginn augljóst, að þó International-sáttarétt- ur kæmist á, gæti hann aldrei dæmt í nema sumum af ágreiningsmálum þjóð- anna. Annað sem jafnf/amt þyrfti að athuga væri það, að nema allar stór- þjóðirnar bindust í bræðralag í þeim tilgangi að þrengja einstökum þjóðum til að hlýða og framfylgja úrskurði sátt- aréttarins, en sem þau án þess banda- lags gætu þegar þeim sýndist neitað að framfylgja. “Eigum við þá að álykta að aflið sé eina valdið í heiminum enn?” spurði hann svo og svaraði sér sjálfur, að það væri ekkert Hkt því. Hin önnur öflin, sem aftra herskáum manni og óbil- gjörnum sagði hann væri engin smá- ræðis-öfl, og öfl sem þroskuðust ár frá ári. Það væri á aðra hönd óttinn yið að leggja í stríð og á hina: álit og undir- eins ávítanir alþýðu hvervetna. Al- menningsálitið léti til sín taka nú orðið í heiminum í hverri kró og í hverjum af- kima heimsins og hvergi fremur en í mentuðustu ríkjunum. Og sterkustu öflin sem það almenningsálit hefði ráð á 'og sem undireins væri beitt, hvar sem eitthvert ranglæti ætti sér stað, væri prentvélarnar og telegraf-þráðurinn. Á þennan hátt yxu áhrif almenningsálits- ins og veldi þess vikkaði ár frá ári. Það stórveldi hefði hvorki herflokka á landi eða herskipaflota á sjó, en þó væri það svo voldugt orðið að þjóðhöfðingjarnir voldugustu óttuðust það ©g beygðu sig fj-rir veldissprota þess. Vaxandi viðskiftiog viðkj-nnig þjóð anna fj-rir sívaxandi ferðalög landa og ríkja á milli, sagði hann einnig hefðu friðstillandi áhrif. Þess betur sem ein þjóð kynntist annari og þess nánari við- skiftaböndum sem þær tengdust, þess meir styrktust bönd friðarins. Ekki leizt honum ráðlegt að skipa fasta menn sem International-dómara, en heppilegra miklu að kjósa þessa menn til að dæma í þessu málinu og hina i hinu. Það sem hann einkum óttaðist, væri viðvarandi sáttaréttur ákominn með ákveðnum dómurum, var það, að þá kynnu ýmsar þjóðir að kæra þar mál sem ekkert hefðu við að Slyðjast, nema ofsafulla barsmíð íjdgismanna í því landi og sem því miður svo mikið væri til af hvervetna,— menn sem héldu það föðurlandsást að gumaaf sínu landj hafaíframmi hótanir, en níða aHa aðra. Ræðu sína endaði Russell lávarður á þessa leið: “Herra forseti. Ég byrjaði með að tala um hinar tvær stóru deildir ensku- talandi þjóðarinnar — í Ameríku og á Englandi — sem vér, þér og ég, erum fulltrúar fyrir á þessum fundi. Og ég ætla að minnast á þessar deildir með fáum orðum í lok ræðu minnar. Hver er sá sem dregur efa á að þessar deildir hafi mikil og góð áhrif á mannkynið, — tryggi því heUsusamlegar framfarir og friðsæld? En víst er það, að eigi þessi áhrif að sýna sig eins og má, verða báð- % ar að vera samtaka, vinna saman í bróð- erni, hver i sínum sérstaka verkahring. Ef þær hafa mikil völd í höndum, er á- byrgð þeirra að sama skapi mikil. Ekkert fyrirtæki sem þær styTija getur algerlega mishepnast. Ekkert fjrir- tæki, sem þær andæfa, getur haft góðan byr. Framtíðin er að miklu leyti í þeirra höndum. Það er þeim gefið að ráða hvernig sagan verður á komandi öldum. Sorglegasta slj'sið sem hægt er að hugsa sér, er það, ef eitthvað skyldi koma fyrir, sem slitið gæti samvinnu og vinaband þeirra. Látum oss vona og biðja að það komi aldrei fyrir. Lát- um oss biðja að þær, jafnframt og hver um sig varðveitir heiður sinn og mann- orð, verndar þjóðarmerki sitt og heldur því á lofti, verndar land sitt og eignir og viðurkennir rétt annara manna, svo að hvor um sig uppfylli í hæsta máta allar mikilvægar kröfur einnar þjóðar, — látum oss biðja, að jafnframt og þær gera þetta, séu þær og verði ætið sam- taka í að vinna að framförum og frið- sæld hvervetna í heiminum”. Áheyrendurnir voru nær 5,000 tals- ins og um leið og Russell slepti síðasta orðinu, reis hver einn og einasti maður á fætur. Og samtímis laust upp fagn- aðarópi, sem haldið var uppi í fullar 15 minútur svo að aldrei varð hlé. — Þeg- ar þögn fékst, fluttu þeir Edw. J. Phelps frá Vermont og J. C. Carter frá New York þakklætis-ávarp til Russell’s lávarðar, og strax á eftir flutti E. F. Bullard, hershöfðingi í New York, svo- látandi uppástungu, er samþykt var umræðulaust: “Að lögfræðingafélag Bandaríkja er samþykt þeim skoðunum, er Russell lávarður svo ljóslega li rir lýst í ræðu sinni, og Að ræða hans sé nt nefndinni, sem hefir á hendi að rs .: - ika og yfir- vega International-lög álita og at- hugunar áhrærandi þa'> ; að heppilegt þj'ki að gera til efling öessu mikil- fenglega máli um Intei ...tional sátta- rétt”. Silfur-villan. Vinur vor, Stephán Eyjólfsson, seg- ir í síðasta blaði Hkr., að hann skilji ekki við hvað vér höfum átt, er vér nokkru áður sögðum á þá leið í blaðinu, að atkv.greiðslan á Chicago-þjóðfund- inum sýndi hvaða aðferð hefði verið viðhöfð heima í héraði, er fulltrúar voru kjörnir á fundinn. Mr. Eyjólfsson segist ekki skilja við hvað vér eigum með þessari kæru. Það sem vér eigum við er það, að hvernig sem á því stend- ur, hafa meðmælendur silfur-fríslátt- unnar augsýnilega viðhaft allar veiði- brellur til að draga sem flesta fiska úr sjó á veiðistöðvum demókrata, — með öðrum orðum, innan vebanda þess flokks. Það þarf ekki langt að leita til að sjá, að þetta lítur þannig út. Tök- um til dæmis nágranna-ríkin Norður- Dakota og Montana. Hvort um sig sendi sex fulltrúa á þjóðfund repúblíka og aðra sex á þjóðfund demókrata. Á þjóðfundi repúblíka greiddu þessir tólf menii atkv. með gull-verðmiðli einvörð- ungu og á móti frísláttu silfurs, en á þjóð- fundi demókrata gre'ddu þeir tólf menn sem þessi tvö ríki sendu, atkv. með frí- sláttu silfurs og ákveðnu verðgildi þess gegn 1. Nú er það vitanlegt, að í báðum þessum ríkjum eru f jölda margir guH-demókratar, en þeirra gætti ekki, komust hvergi að. Þetta sannar að að- ferðin heima í héraði hefir verið eitthvað einkennileg, ef til vill eitthvað áþekk þvi, er silfur-ítar á þjóðfundinum út- boluð réttkjörnum gull demókrötum frá Michigan, en settu í þeirra stað silfur- íta, svo að þeir væru vissir með að hafa § atkvæðanna á fundinum. Beinlínis þarf sú aðferð ekki að hafa verið við- höfð heima í héruðum, en það sýnir þá samt einhverja einkennilega aðferð, að í sama ríkinu skuli þannig veljast til repúbHka einungis guU-menn, en til de- mókrata einungis silfur-menn. Það hefði einhvern tíma verið sagt, að æði eins og þetta silfur æði, liti út fyrir að vera veiðibrella, til þess fyrst og fremst að sundra liði demókrata og gera þeim ómögulegt að ná völdum í þessari sókn, og í öðrulagi til þess, að koma á þá ó- orði í Norðurálfunni. Hvað snertir aðal-efnið í ritgerð vinar vors, S. E., þá förum vér ekki langt út í það mál í þetta sinn. Eins og svo ótal margir aðrir fer hann þar villur vegar og veit ekki af. Eins og þeim sem viltur er finnst honum hann fara rétta leið, en allir aðrir ranga. Silfur-náma eigendurnir eru sem sé búnir að komaþeirri meinloku svoræki- lega inn i höfuðið á fjölda fólks, að öllu böli fjöldans væfi aflétt, fengist fríslátta silfurs með fast ákveðnu nafn- verði silfurpeninganna. Af því þröngt er í búi ár eftir ár, af því samkepni fell- ir ár frá ári bændavarning allan, eins og í rauninni allan varning, þó verðhrun bóndavörunnar sé tilfinnanlegast, og af því auðmennirnir halda áfram að græða án nokkurs uppihalds, þó allir aðrir tapi eða standi í stað, — af þess- um ástæðum er fjöldinn svo mót- tækilegur fyrir kenningu silfur-náma eigendanna, þá, að alt böl sé bætt, fáist takmarkalaus mótun silfur-peninga. Fengist það, yrði peninga-magnið í landinu svo mikið, að allir hefðu vasana fulla og auðmennirnir með öllu sinu bolmagni gætu ekki klófest þá og hald- ið að vild sinni í járnskápum bankanna. En alt þetta er misskilningur, þó menn sjá það ekki nú. Það er ekki misskilningur að auðmennirnir, hvert heldur einstakir eða i félagi, séu að verða ríkari og ríkari, en þeir fleiri og fleiri sem verða fátækari og fátækari, eða, ef ekki virkilega þá samt við pamanburð- inn tiltölulega fátækari. En það er misskilningur að hugsa að endalaust flóðaf silfurpeningum með nafnverði helmingi hærra en virkilegt verð þeirra, geti unnið svig á þessu og jafnað leik- inn. Fyrst og fremst er það misskiln- ingur að veUíðan fjöldans sé aðal-lega undir því komin, að svo og svo miklir peningar séu í veltg. Það er miklu fremur komið undir bankafyrirkomu- lagi og þar af leiðandi meðhöndlun pen- inganna sem til eru. Það eru mörg ríki í Evrópu sem hafa mjpna en helm- ings peninga magn í veltu, að meðaltali á mann hvern, en Bandaríkin, og er þó óvíst alveg að velHðun alþýðu sé meiri í Bandaríkjunum en í þessum peninga- litlu ríkjum. Það þarf heldur ekki að fara út fj’rir Bandaríkin sjálf til að sýna að vellíðan er ekki komin undir peninga- magni í veltu. Þannig voru peningar í veltu í Bandaríkjunum: 1860 ..................$ 442,102,477 1872 .................. 738,809,549 1896................... 1,509,725,200 Peningamagnið í veltu hefir þannig stöðugt farið vaxandi, ár frá ári, eins og auðsætt er af þessum tölum. þó ekki séu tilgreind nema 3 árin. Af þessu sjá menn þá, að einmitt á því tímabili sem peningarnir í veltu voru lítið meira en helmingur á móti því sem nú er, ein- mitt þá var vellíðun í Bandarikjunum mest. Ekki heldur tjáir að framsetja þá mótbáru, að þó upphæðin í veltu nú sé meir en helmingi meiri en fyrir 24 árum síðan, þá sé fólksfjöldinn þeim mun meiri, að minni peningar komi á höfuð hvert nú en þá. Samkvæmt skýrslum Washington-stjórnar komu á höfuð hvert: 1860...................... $14,06 1872........................ 18,80 1896 ....................... 21,15 Það er svo vel sannað sem verður. að peningamagn í veltu í einu ákveðnu landi, er ónóg til framleiða fjör í iðnaði og verzlun. Reyndin sýnir, að séu peningar of miklir falla þeir í vevði rétt e'ins og hver annar varningur. Verðfall þeirra verður að eins meira eða minna eftir því hvemikiðtraust handhafar pen- inganna nafa á mætti og vflja hlutað- eigandi stjórnar að innleysa peningana með nafnverði. Bandaríkin sjálf hafa reynslu fyrir sér í því efni, þar sem eru, eða voru, stríðs-seðil-peninga*nir, sem gefnir voru út í innanríkis eða þræla- stríðinu. Um stund voru þeir peningar góðir og gildir, en þar kom samt, að fyrir einn gull-dollar mátti kaupa þús- und þessa seðilpeninga. í fljótu bragði Htur það glæsilega út ef, eins og sagt er, aðmeððOcentasllfur- dollurum viðteknum sem lögeyri í allar skuldir, fengju menn helmingi meira fyrir hveiti sitt og allan afrakstur bú- jarðarinnar og þyrftu þar af leiðandi helmingi minna af ákveðinni vöru til að mæta ákveðinni skuld. Setjimaðurnú svo, að þetta sé rétt áætlun um afleið- inguna, hjá silfur-ítum, þá gefur að skilja að hér er sýnd bara önnur hliðin, eða öllu heldur, ein hliðin, því þær eru margar á þessu máli. Það er augsýni- legt, að stígi varningur bænda í verði um helming, þá stígur annar varningur það öldungis eins. Það er þá líka jafn- augsýnilegt að virkflegtkaup daglauna- mannsins fellur um helming, enda þótt það á yfirborðinu kunni að sýnast stíga upp. Tveggja dollara kaup á dag yrði í raun réttri ekki nema eins dollars kaup. Það þarf ekki langt að leita til að sjá, að þetta er dagleg reynsla. I Mexico, nágranna-ríki Bandaríkjanna að sunn- an, er fríslátta silfurs í gildi og silfrið hinn eini verðmiðiU. Það er meira af silfri í hverjum einum Mexico-silfurdoll- ar, en í samskonar peningi Bandaríkja- stjórnar. Þó getur Bandaríkjamaður, hver sem viU, keypt Mexico-silfurdoUar fyrir 50 centa Bandaríkja silfurpening. Bandaríkjaþegni er þannig gefið að tvö- falda eign sína á augnahliki. Ef hann vill getur hann keypt $1,000 Mexico-silf- urdollara fyrir $500 Bandaríkja silfur- doUara og haft í höndum, auk helmingi fleiri dollara, talsvert meira af hreinu silfri. En græðir hann þá nokkuð á kaupunum? Hann græðir nafnið en heldur ekki annað. I Bandaríkjunum gengur Mexico-doUarinn á 50 cents, þrátt fyrir að hann hefir að geyma meir en helmingi meira af hreinu silfri. Og í Mexico gildir dollar þeirrar stjórnar í raun réttri ekki meira en 50 cents. Til að sann- færast um það þarf ekki annað en benda á verðið á einstöku vörutegund- um, þegar Mexico-dollar er framboðinn sem andvirði vörunnar. Smjör er þá 75 cent pundið; eitt bakarabrauð 12 cts; eitt pd. kaffi 60 cts; einn pottur mjólkr 16 cts; eitt pd. svínsflesk 20 cts; ódýr- asta kjöt 12 cts pundið; bómuUar-léreft ódýrast 10 cts yardið. Að sama skapi hafa laun öU stigið niður. Yinnukonur fá í kaup, að meðaltali, $4,00 um mán- uðinn; vinnumenn $8,00 um mánuðinn; skrifstofuþjónar og afhendingarmenn í búðum $35,00 til $50,00. Þetta eru laun- in goldin í Mexico-silfurdoUars, og eru þau því í raun réttri ekki nema helm- ingur fyrgreindra upphæða, ef miðað er við gangverð Mexico-peninganna utan þess ríkis. Alvega að sama hlutfalli hröpuðu verkalaunin í Bandaríkjunum, ef silfur verður gert að verðmiðli og al- veg að sama skapi hækkuðu i verði (um helming) aUar vörur sem menn þurfa að kaupa. Að svo hlyti að verða, er augsýnilegt þegar athugað er, að silfurpeningurinn eða silfur-ávísunin (ef seðilpeningur er boðinn) hefir ekki í sér nema helming nafnverðsins. Að Bandaríkja silfurdollarinn, þó efnis minni sé en sá í Mexco, gengur manna á milli og í flest stjórnargjöld með fullu ákvæðisverði, er því að þakka og því einu, að gullið er enn þá verðmiðill í Bandaríkjum, en ekki í Mexico. Það er einhverju öðru en silfurpen- inga eklu að kenna, ef þröng er og þörf á að gera einhverja stórkostlega bylt- ingu. Fyrst og frerast veldur silfrið sem verðmiðill landi og lýði melra tjón, en mögulegt er að gera sér grein fyr- ir. Þar bíða þá allir tjón nema eigend- ur silfurnámanna, sem selt geta þá 50 centa virði af silfri á dollar. Svo er og af stjórnarskýrslunum að sjá, að silfur urekla geti naumast átt sér stað, eða sé hún, þá sé það af því, að alþýða vilji alt aðra peninga heldur en silfur. Það sér maður ef maður athugar hve mikið silfur JBandaríkjastjórn hefir mótað í peninga á síðustu árum. Á fjögra ára tímabilinu, frá 1. Janúar 1873 til 31. Desember 1877 lét hún móta alls $8,031 238 af silfucpeningum, eða rúmlega $2 milj. á árí. En á síðustu 17 árunum, frá 1. Janúar 1878 til '31. Desember 1895 lét hún móta $129,289,916 virði af silfurpeningum. eða nærri 25J milj. doll. ars á ári hverju, Hafi handhafar þess- ara peninga ekki látið bræða því meira af þeim og brúka til smíða, hljóta þeir allir að vera í veltu enn og gera þeir silfurpeningar einir, sem mótaðir hafa verið á síðustu 17 árunum, að meðaltali sem næst $6,50 á mann hvern, sé íbúa- tal Bandaríkjanna nú áætlað 67 milj. Það sýnist þess vegna að silfureklan sé ímyndunarveiki, en að það sé eitthvað annað sem þrengir að og sem fiöldanum hefir enn ekki tekizt að sjá hvað er og því síður að fá gert við, Til fróðleiks setjum vér hér skýrslu er sýnir verð silfursins á ýmsu tímabiK, frá elztu tíð er menn muna : 1493 til 1520 gull-únz ígildi 13.3 silfrúnz 1521 “ 1544 11 11 11.2 .( 1545 “ 1580 t l “ 11.5 t< 1581 “ 1600 11 “ 11.9 11 1601 “ 1620 i t (■ ■ 13.0 “ 1621 “ 1680 “ 14 11 1681 “ 1740 i t , 11 15 ( ( 1741 “ 1780 t • (t 14.8 (t 1781 “ 1870 11 • t 15 tt 1871 “ 1873 tt “ 16 (( 1873 “ 1875 t i “ 16.5 t( 1876 11 “ 17.8 11 1877 « t 11 17.2 11 1878 “ .( 17.96 (t 1879 (t K 18.39 • l 1880 t t tl 18.05 t • 1881 11 t( 18.16 1882 t < t í' 18.19 11 1883 “ t ( 18.64 i t 1884 “ 11 18,57 (l 1885 (t t< 19.41 11 1886 t 1 t( 20.78 i ( 1887 t i (l 21.13 II 1888 1 • (t 21.99 11 1889 “ (( 22.09 11 1890 t< 1 t 19.76 ( t 1891 (t t l 20.92 • t 1892 “ “ 23.72 (1 1893 t( “ 26.49 i 1 1894 tt “ 32.81 ( ( Hvað það er sem veldur þessu sí- felda verðfalli silfursins á heimsmark- aðinum, látum vér ósagt. En þó má benda á tvent, sem líklega á ekki lítinn þát,tíþví. Fyrst það, að ár fráári vex gnægð silfursins í frummynd sinni. Það líður helzt aldrei dagur nú orðið svo, að ekki firinist silfurnáma eins- hversstaðar. Annað sem sjálfsagt á þátt sinn í verðfalHnu er það, að sam- tímis og silfur forðinn hefir dagsdag- lega aukizt, hafa menn fundið ný og ný verkfæri og vélar til að vinna málminn úr jörðu, eigendunum miklu kostnaðar- minna en áður. Fróðir menn í því efni segja, að þær málmvinnuvélar megi nú kaupa fyrir $27, sem fyrir fáum árum kostuðu $100. Fyrir fáum árum kost- aði $60—65 að draga málm úr einu tonni af grjóti, en nú fá menn það gert fyrir $10—12. Það liggur í augum uppi að þessi rýrnun kostnaðarins við málmtekjuna rýrir verð málmsins, ekki sízt þegar brunnur málmsins virð- ist helzt óuppáusanlegur. Þjáningar kvenfólks mundu færri vera, ef að ekki væru stingir og kvalir, og enn færri mundu vera þján- ingar karla og kvenna væri the Great South American Remedies í húsi hverju. Engin tegund gigtveikis eða tauga- veiklunar er svo þrálát að ekki linist hún fyrir hinu dásamlega lyfi South American Rheumatic Cure. Þannig segir Mrs. John Beaumont, Elora, Ont. ‘I 15 ár hefi ég þjáðst afgigtveiki ákafri og hefi ég tneð köflum orðið að liggja í rúminu. Ég leitaði allra nálægra lækna en ekkert dugði, og voru menn von- lausir um bata minn. En þá kom vin- ur minn einn mér til þess að reyna South American Rheumatic Cure. Eg tók nokkrar inntökur og fór þá að geta komizt á jætur, og þegar ég var búin með 4 flöskur var ég orðin heil heilsu. Og þegar litið er til þess, að kvalirnar voru svo miklar að ég þoldi enga hreyf- ingu í rúmiuu, þá er ekki að furða þó að ég kajli lækningu þessa hina dásam- legustu. Einhverjir hinir varasömustu sjúk- dómar eru nýrnasjúkdómar og það er fyrst á seinni árum að læknunum hefir tekizt að stemma stigu forir þessum voðakvillum. I þúsundatali hafa menn fengið lækningu af raeinum þessum við South American Kidney Cure, og er það sönnun fyrir því, að eigandi lyfsins sem læknar svo dásamlega, hefir ná- kvæmlega rannsakað sýki þessa, og lækningarnar sýna hvi'líkan dýrindis sannleika menn hafa fundið. er menn fundu meðal þetta upp. Tollgæzlu- maður, A. Williamson. frá Kincardine í Ont., alþektur borgari þar, gefur vott- orð m hinn raikla kraft lyfs þessa á þessa leið: ‘Ég get fastlega mælt með l.vfi þessu sem hinni mestu blessun öll- um þeim er þjást af sjúkdómum í blóð- inu og nýrunum. Það læknaði mig þegar ekkert annað dugði’. Hver er sá er eigi kenni í brjósti um magaveiklaða manninn? Hann er grindhoraður, þreytulegur, ólundarleg- ur, og tekur út kvalir miklar bæði á sál og Hkama. Og hversu margir eru efgi þeir. sem hafa öll þessi sjúkdóms- einkenni og vanhirða um að leita lækn- inga við þeim og eru því á óskiljanlega stuttura tíina orðnir herteknir af alls- konar líkamssjúkdómum. South Ame- rican Nervine bregst aldrei í slíkum til- fellum. Það linar sjúkdómirin undir- eins og haldi menn áfram með það, þá iæknar það raenn ætíð að fullu og öllu. ‘Eg tók út vcrulegar kvalir af melting- arleysi og raagaveiklun’, seijir W. F. Bolger frá Renfrew, Ont. 'Ég var tal- inn á að rejraa sern hina síðustu tilraun South American Nervine, og 2 flöskur af því bættu mér þjáningar þær, sem ekkert hafði áður getað linað’.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.