Heimskringla - 12.11.1896, Side 1

Heimskringla - 12.11.1896, Side 1
WINNIPEG, MAN., 12 NOVEMBER. 1896 NR. 46. X. ÁR. FRÉTTIR DAGBÓK. FIMTUDAG 29. OCT. Hungursneyð og hallœri á Labra- dorströndum einu sinni enn og eins og endrarnær, er það sprottið af aílaleysinu í sumar. Læknir nýkominn þaðan til Nýfandnalands segir ástandið hræði- legra en svo, að því verði með orðum lýst, Blað gamla Bismarks, “Hamburger Nachriohten”, hefir kveikt bál mikið á Þýzkalandi og enda víðar í Evrópu, og er ekkiséðhvað af því hlýzt. Blaðið opinheraði sem sé leyndardóm, sem kom mönnum hvervetna til að líta upp stór- um augura. En leyndardómurinn var þess efnis, að sérstakur sóknar og varn- ar samningur mill Þjóðverja og Bússa hafi verið í gildi frá 1886 til 1890; að Bismark einn hafi útvegað það banda- lag, en hafi ekki endurnýjað samningiun 1890 af því þá var uppkomin misklíðin sem endaði með því, að karl veik ur stjórnarráðinu. Duiferin lávarði var haldin veizla í Belfast á frlandi í gærkvöldi og sagði liann þar, að ellilasleiks og heyrnar- deyfu vegna tæki hann ekki framar þátt í stjórnmálum. —Hann hefir ný- lega sagt af sér ráðherrastöðunni á Frakklandi. Laurier var haldin veizla í Quebec í gærkvöldi og gaf hann í skyn í ræðu sinni að eitthvað þyrftí að gera fyrir þessa gömlu, frægu borg, svo að hún næði þvi stigi, sem hún ætti skilið í stór- borga-flokknum. Hann sagði og að skólamálið væri svo gott sem útkljáð. FÖSTUDAG 30. OKT. Fellibiljir valda eignatjóni miklu í Louisiana. — Ofstveður mikið um mið- bik Bandarikja, alt norður í Wisconsin, og olli bæði lífs- og eignatjóni. Eftir síðustu fregnum að dæma er soldán Tyrkja orðinn hræddur við stór- veldin, — liræddur um að alvara sé í hótunum þeirra og lofar nú öllu fögru; meðal annars lofar hann ábyrgðarfull- um ráðherrum. Hinir yngri menn allir í Tyrklandi viija ekki heyra þetta og hóta nú uppreist og að vísa soldáni frá, en setja annan verri. Ráðherrar stór- veldanna hafá nú telfl#*-«>íeraö stjórnum sínum og spurt hvað sé til ráðs. Póllendingur, Protousky að nafni, i Indíana-riki, ærðist út úr kosninga- áhyggjum og deilum og fyrirfór sór i gær. Nágrannar hans höfðu stritt hon- um af því að hann vildi kjósa McKin- le.y. Hann reit þessi orð á spjald, er fanst jafnsnemma og hann sjálfur, dauður: “John Protowsky skal með blóði sínu brejast fyrir McKiniey”. Nú er gert ráð fyrir að Venezuela- þrætan verði lögð fyrir International- nefnd, á sama hátt og Bæringssunds- þrætan um árið, til endilegs úrskurðar. Á síðastl. 7 mánuðum hefir stjórnin á Spáni aukið herafla sinn á Cuba svo nemur 165,551 mönnum. Hærra og hærra. Keisari Kín- verjanna liefir boðið Li Hung Chang að flytja til Peking og búa þar framvegis. Hann kveðst ekki mega vera án hans nokkurn einn dag. LAUGARDAG 81. OKT. Rússakeisari hefir að sögn í huga að kalla saman stórveldafund til að KOra eitthvað endilegt í Tyrkjamálinu, og með því augnamiði aðhonum verði gefið leyfi til að herja á þnrsann. Vilhjálmur Þýzkalandskoisari hefir fyrir löngu sýnt að liann*er til alls bú- inn. Nú situr hann við að semja leikrit með ungu, ónefndu skáldi, er forstöðu- maður konunglega leikhússins í Wies- baden kom á framfæri við hinn “við- förla” keisara. VKITT HÆSTtT VBRDLAUN A JIRIMSSVNINGUNN Dlt 8AKING POWDFH IÐ BEZT TILBÚNA óbiönduð vinberja Cream of Tartar powder. Ekkert álún, ammonia eða önnur óholl efni. 40 ára "eynslu. McKinley-menn höfðu skrúðgöngur margar og stórar í ýmsum stöðum, í dag, til að sýna fylgi sitt og afl. í New York voru 110—130,000 menn í göng- unni. — í dag er áætlun flokksforingj- anna þessi: Atkv. McKinleys alveg vís 311, atkv. Bryans vís 78, óviss 58. Þetta er álit McKinley-manna. Álit Bryans-manna er það, að Bryan eigi alveg vís 258 atkv., eða34 atkv. umfram nauðsynlega tölu til að hafa yfirburðina. Snjófall með ofsaveðri hefir staðið yfir síðan 28., f Wyoming, Colorado, Kansas, Nebraska, Iowa, Suður-Dakota Snjór liefir fallið viðar, en i þessum rikj- um hefir snjóburðurinn verið uppihalds- litill í 4 daga. MÁNUDAG, 2. NÓV. Sykurræktunarmenn allir í nýlend- um Breta á Vest-Indiaeyjum og í Gui- ana segj'i, að Frakkar og Þjóðverjar séu búnir að eyðileggja sykurræktun í þessum nýlendum og biðja nú um toll- verndun, eða þá það, að tilgjöf Þjóð- verja og Frakka sé afnumin. Stjórnir þeirra landa sem sé greiða sykurgerðar- mönnum svo og svo mikið fyrir hvert sykurpund, sem þeir selja í útlöndum. Þar af leiðandi selja þeir sykrið lægra verði en aðrir geta framleitt það fyrir. Það bætist nú á aðra neyð Labra- dormanna, að þorskur hefir fallið í Portúgal svo nemut 24—28 cents 100 pundin, en Portúgal er aðal fiskimark- aður Labrador- og Nýfundnalands- manna. Srórrigningar og ,flóð á Frakklandi og ítaliu. Tiðarfar í Evrópu á sinn máta eins óviðfeldið eins og það hefir verið vestan Atlantshafsins. Þýzkalandsstjórn talar mikið um að hefja málsókn gegn blaði Bismarcks fyrir uppljóstrun leyndarmála. Ef af því verður, er búizt við að margt fróð - legt komi í dagsljósið, en ekki alt sem happdrýgst fyrir Þýzkalandsstjórn. — Karl sjálfur kvað ekki vera kendur við þetta, en Herbert sonur hans og bíður liann alls óhræddur. — í stjórnarskr if- stofum Norðurálfu er helzt ekki um annað talað en þetta. ÞRIÐUDAG, 3. NÓV, Viðskifti Canada við útlönd á síð- astliðnu ári voru samtals «239,024,852 . Er það $15 milj. meiraen árið næsta á undan. Tekjuhalli Bandaríkjastjórnar í síð- astliðnum Októbevmánuði var samtals $7,655,458. — Á mánuðinum jókst þjóð- skuldin svo nam $7,195,000. í Ontario, einkum í Toronto, er fögnuður mikill yfir kolanámufundi í grend við Sudhury. Ont. En svo segja jarðfræðingar sambandsstjórnurinnar, að það muni ekki vera eiginleg kol, heldur það sem nefnd sé ‘ Anthraxolite, eitthvert brenniefni, sem tekið hafi myndbreyting í jörðunni. Þeir segja vandræðalaust að brenna því, en af því helmingur efnisins verði eftir sem aska muni það aldrei ná alþýðuhylli sem eldsneyti. Hungursneyð er sögð í mörgum héruðum á Indlandi vegna framhald- andi hita og þurka og þar af leiðandi uppskerubrests. Nú þegar er búið að flytja þangað svo þúsundum tonna skiftir af hveiti frá Ameriku, — af Kyrrahafsströndinni, norður Califor- niu og Oregon. MIÐVIKUDAG, 4. NÓV. Tvöhundruð samninga um póst- flutninga hefir hinn nýi póstmálastjóri Canada upphafið síðan hann tók við i sumar. Sem svar upp á spurningu, sagði Hanataux, utanríkisráðherra Frakka, í gær á þinginu, að stórveldin væru ein- huga og sammála i að því er snertir tyrkneska málið og að þau muni áður enlangt líður láta til sín taka. Laglegt vikustarf. Á seinustu 7 dögunum í Október voru tekjur C. P» R. félagsins $790,000, — nokkuð yfir 110 þúsunddollars á dag að meðaltali. Þrír jjræningjar rbðust á 26 verju- lausa menn skamt frá Minneapolis, sem voru á lieimleið með járnbrautarlest úr uppskeruvinnu, og rændu þá öllu fé mætu. Eftir að hafa rænt hvern einn létu þeir þá hlaupa út úr vagninum, sem var á fullri ferð, og ef hann neitaði að hlaupa fleygðu þeir honum út af lestinni. FIMTUDAG, 7. NÓV. í annari ferð sinni vestur yflr haf í vikunni sem leið, íór hið nýja skip Dominion-línunnar, 'Canada’, frá Liver pool til'Quebec á tæpum 6 sólarhring- um. Erþsðsemnæst ígildi ferðhröð- ntu skipanna sem ganga milli New York og Liverpool. I Pittsburgh, Pennsylvania, höfðu úrslit forsetakosninganna þau áhrif, að strax daginn eftir kosningarnar sendu tvö verkstæðisfélag út þann boðskap að taka skyldi til starfa undireins. Þar fá 5,600 menn atvinnu, en sem um fleiri mánuði hafa beðið aðgerðalausir. Því er á ný fleygt fyrir að fátt sé um vinskapmilli Bandaríkjastjórnar og umboðsmanna Spánarstjórnar á Cuba og sagt að innan skamms muni heyrast einhver nýmæli frá Washington áhrær- andi Cubamálið. Það er sagt að með tiltöiulega litl- um kostnaði megi þurka meginhluta landsins í Roseu County í Minnesota (rétt sunnan við Manitoba-landamærin). Verkfræðingar hafa ný lokið við mæl- ingu landsins og segja framskurð auð- veldan. Hin nýja bygð íslendinga frá Dakota er í þessu héraði. Yfir 40 þúsund vagnhlöss af hveiti voru flutt eil Duluth og nágrannabæja í síðastliðnum Október. Er það meira en nokkru sinni áður á sama tímabili. FÖSTUDAG 6. NOV. í gær viðurkendu Bryans-menn að McKinley virkilega væri kjörinn og í gær sendi Bryan andvígismanni sínum hamingjuósk sína í þessu orðum: “Sena- tor Jones hefir í þessu kunngert mér $ð fréttir úr héruðunum bendi á að þér séuð kjörnir og flýti ég mér því að færa yður heiliaósk mína. Vér höfum lagt málið undir dóm Bandaríkja þjóðar og hennar úrskurður er lagaboð”. Stjórnin á Havai-eyjum hefir gefið fyrverandi drottingu sinni, Liliouka- lani, fullt frelsi og borgaraleg réttindi. Hún liefir verið í haldi að undanförnu. Það er kunnugt orðið nú, að fyrir hálfum mánuði síðan stakk stjórn Breta uppá, að fulltrúum stórveldanna í Kon- stantinópel væri gefið vald til þess sam- eiginlega að búa til stjórnarbóta-frum- varp og sjá um að Tyrkir lögleiddu það. Rússar sögðu nei við þassari uppá- stungu og féll hún því í gegn. Bimetallista-félagið á Englandi fagnar yfir sigri McKinley’s. Þykir að nú só miklu meiri von til en áður, að saman gangi um alsherjar frisláttu silfurs. Allur f jöldi blaðanna í Evrópu læt- ur vel yfir kosninga-úrslitunum í Banda ríkjum. Fagna yfir sigrinum að því er gjaldeyrismálið snertir, en hryllir hálfi partinn viðhinni alkunnu tollmálastefnu McKinleys. LAUGARDAG 7. NÓV. Seglskip rakst á gufuskip á höfninni í St. Johns á Nýfundnalandi, í gær, og sökk. Fórust þar 13 menn af 23 á skip- inu. Bryan forsetaefni hefir gefið út á- varp til þjóðarinnar, þar sem hann þakkar þeim sem veittu silfurmálinu fylgi og sýnir fram á að sigurinn sé vís. Það sé ekki langt til ársins 1900, en að í millitíðinni muni margur maður sem nú fylgir gullmönnum, breyta skoðun sinni. Ofviðri mikið á stórvötnunum eystra og veldur talsverðum skipaskaða. Verkstæðiseigendur í Bandaríkjun- nm hvervetna eru nú kátari en um langan undanfarinn tfma. Þeir sem ekkert hafa gert um langan tíma eru nú að taka til starfa hver um annan þver- an. Kónsúll Bandaríkja í Cuba var lengi á eintali með forseta Bandaríkja í gær og ræddu þeir þá eingöngu um Cuba- málið. Forsetinn situr nú við að semja þingsetningarræðu sfna og hagnýtir þar þær upplýsingar sem hann fékk hjá konsúlnum áhrærandi Cuba. Áætlunin um flokkaskiftinguna í efri deild þjóðþings Bandarikja, eftir að kjörnir hafa verip nýir senators, er sú, að þar sitji 44 repúblíkar, 35 demókrat- ar og.óháðir 13. MÁNUDAG, 9. NÓV. Hertoginn af York, sonur prinzins af Wales, er væntanlegur til Canada næsta sumar ásamt frú sinni og fylgd- armönnum mörgum. Ef til vill fer liann til Ástralíu héðan og þaðan heim aftur um Indland og Suez. Bandaríkjamaður einn í London segir f blaðinu ‘St. J.araes Budget’, að McKinley hafi haft miðríkin og sumt af vesturríkjunum undan Bryan með því að lánfélögin sem héldu skuldabréfum bænda buðu að endurnýja þau um 5 ár gegn lágu afgjaldi, ef þeir kysuMc- Kiuley. Afríku-konungurinn Cecil Rhodes vill nú verða þingmaður íra á þingi Breta. Er því spáð að að honum kveði þar, ekki síður en í Afriku, ef hann kemst á þing. Carnegie-félagið stóra f Pittsburgh hefir ákveðið að verja $1J milj. til að auka yerkstæði sín, $3J til að byggja járnbraut norður að stórvötnunum og $1 milj. til að koma upp bókasafnl og lestrarsal f Homestead, Penn. Hann segir gróðrarár mikil fyrir hendi og lof- ar að gera sitt til að sii verði raunin. Tyrkja-þrætan. Nágrannaríki Tyrkja eru að sögn að búa sig í stríð, Gríkkir, Serbar og Búlgaríumenn og þykir það benda á að dómsdagur Tyrkja ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Tombola. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ : ♦ I | I : 3 £ o £ £ 4> X CA bl) O s o £ o cS E c 3 eö u a E 0> > o Z d C C • *n« bJO W O 3 s-< E E E Fimtudagskvöldið 19 þ. m. verður haldin Tombola og Skemtisamkoma á UNITY HALL, (á horninu á Pacific Ave. og Nena St.) ♦ ♦ l : : ! : ♦ Það hefir lengi og vel verið unnið að' þvf að koma á þessari tombolu, og hefir netndin, sem fyrir henni stend- ur, gert sér alt far um að hafa drætt- ina svo gdða, að allir megi vel við una og fái sem bezt virði peninga sinna ; enginn dráttur minna en 25 cts. virði og upp í FIMM DOLLARA. Programm : 1. “Instrumental Music.” 2. Solo: A. Crick. 3. Tala: B. L. Raldwinson. 4. Solo: Albert Jónsson. 5. Recitation: Ó. Eggertsson. 6. Solo: H. Halldórsson. 7. Stuttur leikur: Hlaupárið. 8. Violin Duet: Wm. Anderson og P. Dalmann. 9. Solo: ’ S. Anderson. 10. Solo: A. Crick. 11. Upplestur: S. J. Scheving. 12. Solo: S. Anderson. 13. “Instrumental music.” 3 5’ o Tojnbolan byrjar kl. 7), síðdcgis. Inngangur 25 cent. Einn dráttur ókeypis. [Sjá auglýsing í Lögbergi næst.] : : ♦ ♦ I ♦♦♦♦♦♦♦♦♦: ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ : ♦ : : : ♦ ♦ : ♦ : ♦ : ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ : ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ : ♦ ♦ : ♦ ♦ ♦ ♦ : : : ♦ ♦ : : ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ 3 & <-t- 10 C/1 3 o « 3 ST oq o 3 OK? c •o GK? ■o O O* 3 3 Cu n V fp rF > "-t# CL rF sé í nánd. Annað sem bendir á það, eru fregnir þess ofnis, að Bretar séu til- búnir að sleppa tilkallinu til Cyprus- eyjar, ef stórveldin þá vilji vera sam taka og taka til starfa án frekari undan- dráttar. í millitíðinni er soldán laf- hræddur og iofar öllum hugsanlegum umbótum. ÞRIÐJUDAG 10. NÓV. Kona á þingi. í Utah náði kona ein kjöri til þings um daginn, Mrs. Ernethe R. Labarth að nafni. Önnur kona, Martha H. Cannon náði kjöri til efri deildar þingsins. Nú er það fullyíst, að tilgátan um að Bretar sleppi Cypress-eyjunni er hugarburður einn. Salisbury tók af skarið í því efni og það greinilega í gær- kvöld, í ræðu um allsherjarmál, Vene- zuela þrætuna, o. fl., í Lord Mayors- gildinu mikla i London. Auðmannskona frá San Francisco, Mrs. Castle að nafni, var fyrir fáum dögum dæmd í þriggja mánaða fang- elsi i London, fyrir stórkostlegan þjófn- að úr búðum. Hún ætlaði að ærast. Bayard Bandaríkja-ráðherra skarst í leikinn og fékk því til leiðar komið, að hún var látin laus í dag. Hefði hún verið fátæk og stolið skildingsvirði af matvælum, þá hefði hún fengið að út- taka sina hegningu og enginn fárast um það. Spánarstjórn ákveður að senda 20,000 hermenn til Cuba frá þessum tíma til 15. Des. næstk. Á Cuba er nú Weyler sjálfur, og í fyrsta skifti dreginn fram á vígvöllinn. I Seattle, Wash., er unnið að því af kappi, að fá Bryan forsetaefni kjörinn efrideildar-þingmaun fyrir Washington- ríki. MIÐVIKUDAG, 11. NÓV. Venezuelaþrætan er þegar útkljáð. Það verða kjörnir 5 menn til að útkljá málið. Formaður þeirrar nefndar verð- ur Óskar Svíakonungur, en tvo menn kjósa Bretar og tvo Bandaríkjamenn. Verða það yfirdómarar víð hæsta rétt þeirra ríkja, sem tilnefna mennina. Lög eru gengin í gildi í Höfðaný- lendunni (Cape Colony) i Afríku, sem algerlega banna innflutning ávaxta og ávaxtatrjéa frá bæði Bandáríkjum og Cauada. Skriða hljóp á Northern Pacific- sporið í Montana vestarlega og vissi engin af fyrri en fólkslest hljóp á hana. Gufuvagninn brotnaði, vélastjórinn beið bana, kyndarinn meiddist og að sögn meiddust og biðu bana 8 eða 10 farþegjar. Blaðamaður frá Chicago varð úti vestur í Montana í vikunni sem leið. Skrá yfir raenn utan Winnipeg-bæjar, sem tekið hafa að sér að veita móttökn (og senda féhirði nefndarinnar hér í Winni- peg) peningasamskotum í hjálparsjóð handa þeim í Árness- og Rangarvalla- sýslum er biðu tjón af jarðskjálftunum sfðastl. Ágúst og September: S. A. Anderson, Ross P.O., Rosseau Co. Minneota. Job Sigurðsson, Ely P.O., Bottinau Co., N. Dak. P. J, Skjöld, Hallson, N. Dak. Thomas J. Knudson, 39 Warner Str., Glouchester, Mass. Halldór Halldórsson, Lundar, Man. Nikulás Snædal, Otto, Man. Jóhann Straumfjörð, Hekla, Man. J. S. Thorlacius, Theodore, Assa. Séra Fr. J. Bergman, Garðar N. Dak. ERV FAlVíiLY 5HO'JLD i;: \o’;j that la a vory rcmaiRable remedy, both fzx TtT- TSRNAL arid EXTERNAL use, and woa- dcrful in its quíck action to relievo distiosn. PAIN-KILLER Tl» roa (, C o n ý h fíiitls, Dlnrrlia'a, f>j>entcry, iraiui^, í ItOK iM, autl all Aiowel CompiaiuU. PAIN-XILLER HIckn«'M, filrk Mcadftchc, Pnm in Lack or mde« Kl»e»iiuaUsm anu Ncnralulu, PAIN-KILLER iwssí? MAI>E. Ií l.rjnfr.t spr.FDY and 1' I'M w.:r ' i'i : íi caaca of iiritiavti* CiUs, Li|>rai«s, ftcvcM* Burns, elc. P ATN-Tv TT T F P i* tbo well trloil ai' u i iwi-LHV trusted l'rioinl of the Klcrlinnic, Fnrmcr, l*la»*l«*.r. Sallor, amlln fact nll ditpsug wnntitiír n im ilicinc nlwRjg athand. aml safr Tu i:sk iuteruaily or exlcrnaily wlU» CortRinty of relief. )’*ew:»re of imitations. Ttko non* but the f»onu.u# **: . ».:<Y DW' t»n|d . voryvvhore ; 7-lc. l/ij; uofUe. * Vt» . » c. verður haldin föstudagskveldið 13. Nóv, í Martin Luther kyrkjunni (á Kate Str.) POGRAMM : Ræða : Manitoba, heimili fyrir íslend- inga. (Rei'. Dr. Brycé). Ræða : (Rev. Joseph ITogg). Instrumental Music. (Prof.J. McArthur) Söngflokkr frá Manitoba College syngur. Solo : (Mr. F. Henderson). Solo : (Miss S. Simpson). Ræða : Um trúboð Presbyteriana með- al íslendinga, (Mr. ,7. Jóhannsson). Það er einnig vonast eftir að Dr. King yfirkennari á Manitoba College, tali. Samkoman byrjar kl. 8 e.m. Aðgangur 25 cents. Ágætis veitingar ókeypis eftir prógrammið. J. BuaSOIl. Skrá yfir nöfn þeirra, sem gefið hafa peninga í sjóð til hjálpar því fólki í Árness- og Rangárvalla-sýslum á íslandi, er urðu fyrir tjóni af jarðskjálftum, í Ágúst og Septembermán., 1896: Áður auglýst $152.75 Jón Sigfússon, Clarkleigh, Man. 2.00 Ónefnd, Maryland St., Winnipeg 25 Sigurrós M. Guðlaugsdóttir, Wpg. 5.00 Sigríður J. Thorkelsson, Winnipeg 1.00 Gestur Jóhannsson, West Selkirk, hefir safnað $13.75, sem fylgir : Páll Símonarson Selkirk Ólafur Helgason “ Jón Ólafsson “ Mrs. M. Ólafsson “ JónasLeó “ Þorsteinn Þorkelsson “ Hjörtur Jóhannesson “ Markús Guðnason “ St. Oliver & Byron “ Capt. J. Bergmann “ Sohn Baldvinsson “ Mrs. Kr. Schaldemose “ Jónas J. Schaldemose “ S. Sölvason, Westbourne, hefir safnað $14,00, sem fylgir : Guðm. fsberg, Kinosota, Man. J. A. Magnússon, Westbourne J. Thomasson Guðm. Sturluson “ Páll Árnason “ Helgi Bjarnason “ Þiðrik Eyvindsson “ Mrs. G. Eyvindsson “ Einar Þiðnksson “ Eyvindur Tr. Þiðriksson “ Pétur, Þiðriksson “ Ingibjörg Þiðriksdóttir “ Halla F. Þiðriksdéttir “ Jón Þórðarson “ Þorgeir Símonarson “ Mrs. Anna Símonsson “ Sigríður Halldórsdóttir Elísabet Halldórsdóttir “ J. S. Crawford “ Pétur Einarsson “ Mrs. Halla Magnúsdóttir “ Magnús Pétursson “ Vilh. Pétursson “ Ingvar Ólafsson “ Rútur S. Sölvason “ Einar Mýrdal, Garðar, N. Dak., hefir safnað $32.55, sem fylgir : Yinur, Edinburgh, N. D. J. Lindal “ “ J. P. Peterson “ “ W. Adams “ “ Ónefndur “ “ G. E. Adams “ “ J. B. Jameson “ “ O. Dalby » “ “ Dr, Floten “ “ E. G. Brandson “ “ H. H. Ármann, Garðar “ B. Matthíasson “ “ Jón Matthíasson “ “ G. Eiuarsson “ “ Kr. Magnússon “ “ Ásm. Eiriksson “ “ Vinur “ “ C. Johnson “ " Sigm. Jónsson “ “ Einar Melsted “ “ B. Jónssoá “ “ J. J. Breiðfjörð “ “ Ónefndur “ “ F. Samson *• ' “ S. EyjölfsSon “ “ Jón Brandsson “ “ S. ísfeld Jón Bardal # “ “ G. Jónsson S. Jónásou Þórunn Jóharmesson “ “ .Tón Mýrdal “ “ Jón Sigmar “ “ Ch. Gíslason “ “ Einar Mýrdal “ “ $1,00 0,50 1,00 0,50 1,00 1,00 1,00 0,50 5,00 0,50 0,50 0,25 1,00 $0.25 50 50 1.00 50 25 1.00 1.00 10 10 10 10 10 50 2.00 1.00 25 25 50 1.00 1.00 50 50 50 50 $1.00 1.00 1.00 50 50 50 50 50 50 1.00 1.00 1.00 1.00 1.00 25 2.00 50 50 1.00 1.00 50 50 30 1.00 1.00 1.00 1.00 1.00 1.00 50 1.00 50 1.00 1.00 5.00 Samtals : $221.80 Winnipeg, 9. Nóv. 1896. H. S. Barðat,,

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.