Heimskringla - 21.01.1897, Blaðsíða 1

Heimskringla - 21.01.1897, Blaðsíða 1
Heimskringla. XI. ÁR. WINNIPEGr, MAN., 21. JANtJAR. 1897. NR. 4. FRÉTTIR. DAGBÓK. TIMTUDAG 14. JAN. Það þykir fullvíst orðið að gamli John Sherman. senator fyrir Ohio, verði utanríkisráðherra McKinleys. Er sagt að karl hafi þegar gefið kost á sér, svo að víst sé að hann verði næsti ráðherra- forseti í Bandarikjum. Bændur í New York-riki biðja um hærri toll á öllum aðfluttum varningi. Járnbrautir í Kina. Um járn- brautarlagning i Kínlandi er nú tíð- ræddaraí því gulumanna heimkynni en nokkuð annað. Er nú búið að mæla brautarstæðin fyrir stúfa hér og þar og stendur ekki á öðru til þess byrjað verði en útvegun peninganna. Hvernig það verður gert þykir óvíst, en talað um að stjórnin gefi út seðilpeninga mergð. Hamburg-Amerícan gufuskipafé- lagið hefir ákveðið að auka# stofnfé sitt svo nemi 15 milj. marka. Hreinn ágóði þess á síðastliðnu ári er sagður 8J milj. marjra. Hjálparsjóður Lord-mayorsins í London til nauðstadda fólksins á Ind- landi er eftir fárra daga söfnun orðinn 175 þúsundir dollars. Það er tekið til þess, að enn hefir enginn Canadamaður gefið neitt og spyrja sum blöðin nú : hvar sé allur áhugi Canadamanna nú, fyrir veldiseiningu Breta, — að nú ein- mitt gefist þeim tækifæri til að sýna að þeir séu samveldismenn meira en í orði kveðnu. Röntgen-geislinn segir eftir. Bóndi eiun í Towa kærði lækni einn fyrirhand- vömm við lækningu á brotnu beini. Læknirinn varðist svo vel sem mátti, en Röntgens-geislinn sýndi að bóndi sagði satt. Beinin voru ekki sáruð sam- an sem skyldi. FÖSTUDAG 15. JAN. Hon. Edward Blake, hinn Cana- diski stjórnmálamaður, sem nú situr á þingi Breta, hefir verið kjörinn fram- sögumaður i málinu á þingi um að biðja um stjórnarbætur á írlandi. að því er skatlaálögur snertir. Er það nú spá manna að innan fárra ára verði Blake orðinn aðal-forvígismaður þjóðiðanna irsku. Tveir sendimenn (?) Canadastjórnar, Joha Charlton og Edw. Earrar, eru nú í Washington í því skyni að þreifa fyrir sér áhrærandi toll-jafnaðarsamning við Canada. Áttu þeir í gær tal við for- mann þeirrar þingnefndar, er meðhöndl- ar öll þesskyns mál. New York ríkisþingið samþykti í gær lög sem vonað er að fyrirbyggi framhald einokunar félaga — trusts. Þingið samþykti samskonar lög í fyrra, en Morton ríkisstjóri synjaði þeim stað- festingar. Það er sagt að Wanderbilts-bræð- urnir og þeirra járnbrautarfélag sé að hugsa um að kaupa Union Pacific-braut ina og samvinnubrautir allar í því kerfi og mynda þannig óslitna braut og eign eins félags frá Boeton og New York til San Francisco. Frá Toronto kemur sú fregn að víst sé orðið að C. P. R. félagið takist í fang að byggja járnbraut í sumar um Hrafna hreiðurs-skarð til Rossland og áfram þaðan beinustu leið til Vancouver við Kyrrahafið. — Samtímis segir og mað- nr einn í Golden, Brit. Col., — þorpi vestan undir austasta fjallgarðinum, við C. P. R. brautina, að hann hafi tekið að sér að höggva járnbrautarbönd sem þurfi fyrir þessa braut. Cubamenn segja enn sem áður, að þeir líti ekki við sjálfsforræðis-boðunum sem Spánverjar og Bandaríkjastjórn séu að búa út. Þeir segjast annaðtveggja falla í strá eða slíta sig undan Spán- VEITT HÆSTU VBRBLAUN A HEIMSSÝNINGUNN DH BAKIING POHDIR IÐ BEZT TILBÚNA óblöhduð vínberja Cream of Tartar powder. Ekkert álún, ammonia eða önnur óholl efni. 40 ára r«ynslu. verjum alveg. — Bólusýkin er sagt að aukist hræðilega á eyjunni, í fulltrúadeild þjóðþings voru í gær samþykt lög, er ákveða að framvegis skuli stjórnin slá opnu sem heimilsrétt- arlandi öllu landi sem hún kaupir að Indiánaflokkum, Sem stendur er þann- ig til yfir 38 miljónir ekra sem nú fást ókepyis, að undanteknum venjulegum skrif stofugjöldum. LAUGARDAG 16. JAN. Stjórn Breta hefir ákveðið að senda 5 herskip til vesturstrandar Afríku og senda lið á land til að herja á svertingja höfðingjann, er um daginn lét drepa 10 eða 12 brezka þegna og svertingja-þjóna þeirra alla. Maceo dauður. Það er nú engi efi á því lengur, að Maceo féll í kviðu þeirri, sem sagt var frá snemma í Des- ember. Cubamenn skiþuðu nefnd manna til að rannsaka það mál alt og segir nú nefndin að víst sé orðið, að hann hafi verið svikinn í hendur Spánverjum, eins og sagt var í fyrstu. Og svikarinn var sá, sem í fyrstu var nafngreindur, einn af læknum Maceo’s, Zertuchia að nafni, — er aðrar sögur segja að hafi fengið 50 þús. dollars fyrir níðingsverkið. Þessi læknir hafði áður verið læknir Maximo Gomez sjálfs, en framkoma hans þótti Svo grunsamleg, að hann var tekinn og mál hans rannsakað. Úrslitin urðu þau að Gomez bauð að taka læknirinn og skjóta, en Maceo kendi í brjósti um hann, trúðiekki sögunum eða vitnunum og bjargaði lífi hans, með þeim skilyrð- um, að hann yrði læknir sinn og kæmi aldrei fyrir augu Gomez. Og svo laun- aði Zertuchia honum lífgjöfina þannig. Tillaga var borin upp á þjóðþingi Bandarikja í gær, þess efnis, að stjórnin verji 200 miljónum dollars til að kaupa eina Cuba að Spánverjum. Spence þingm. frá Mississippi er flutningsm. Cubamenn vinna nú hvern sigurinn á fætur öðrum. Megin her Gomez er nú óðum að nálgast Havana og eru borgarbúar nú hið fyrsta orðnir hræddir og teknir að flýja. Frumvarp til laga hefir verið borið fram á Dakota þingi, sem ákveður að hjónaskilnaður fáist ekki fyrr en kær- andinn hefir búið árlangt í ríkinu. Hjónaskiinaðar millan þykir ganga of liðugt sem stendur. MÁNUDAG, 18. JAN. Nokkrir auðmenn i Bandaríkjum hafa leigt nærri 2000 ekrur af steinolíu- námalandi í Ontarío og hafa ákveðið að stofna þar olíugerðarhús. Stjórn Kínaveldis hefir gefið ákveðnu félagi leyfi til að byggja járnbraut um Manchuria-héraðið, er tengjast skuli Síberíubraut [Rússa. Bæði Rússar og Kínverjar eru í félaginu, en engir aðrir Sem stendur eru Kínverjar alvarlega farnir að hugsa um járnbrautarbygg- ing, þar sem nú stendur til að bygðar verði brautir bæði suður og norður um landið. Fimtán börn brunnu til dauðs i munaðarleysingjastofnun í Dallas í Tex as á laugardagsnóttina var. Rússnesku keisarahjónin eru veik nú, og er sagt því að kenna að eitri hafi verið blandað í fæðuna. — Keisarainn- an verður flutt suður i Livadiuhöllina við Svartahafið. I Konstantínópel er búist við á- hlaupi þá og þegar og árás á heimili ráðherra hinna |ýmsu stórvelda. Enda soldán sjálfur er hræddur um þetta og hefir þegar fyrirskipað allar mögulegar varúðarreglur. Samkvæmt nýgerðum samningi Bandaríkjastjórnar og Canadastjórnar verður 90 daga vörður á nautgripum og öðrum lifandi peningi ekki þarflegur eftir að samningurinn gengur í gildi. Skoðunarmenn hvorrar stjórnar gera sig ánægða með vottorð hinna um að gripurinn sé heilbrygður. í London er nú talað um að skifta risaborg þeirri í 42 stjórnarumdæmi — að hvert umdæmi fyrir sig beri borgar- nafn og sérstaka stjórn á öllum sínum sérstöku málum. I stað einnar borgar- stjóinar yrðu þá 42 borgarstjórnir í London og þó 43, því sérstök stjórn á að vera yfir öllum hinum, er hafi um- sjón allra allsherjarmála. Um þetta er talað af þvíborgin þykir óviðráðanlega stór fyrir eina sameiginlega stjóru. ÞRIÐJUDAG 19. JAN. Svarti-dauðinn. Evrópa öll er orð- in hrædd við hann. Búist við að hann berist með pílagrímum til Mecca og þá má Norðurálfa gæta sfn. Eru nú allar þjóðir teknar að búa sig og fyrirskipa varúðarreglur. Svo er og Bandaríkja- BOÐSBREF. Úr því að Islendingar hér vestra hafa þörf á tveim mánaðarrit- um um trúmál — eins og reynslan sýnir að þeir hafa, — þá er ekki 6- liklegt að þeir geti líka melt eitt lítið mánaðarrit veraldlegs efnis, er flytti þeim ýmislegt til fróðleiks og ef til vill smávegis til skemt- unar um leið, einkum ef það gerði sér far um að vanda málið, svo að það verði með réttu nefnt íslenzka. Annars þykir óþarfi að fara að leiða rök að því, að þörf sé á slíku riti eða rúm fyrir það; því að til lítils kæmi snjallar röksemda- færslur um það, ef reynslan vildi þá ekki á eftir láta svo lítið að stað- festa þær. Er því óbrotnast að láta hana skera úr því. Ef nógu margir eru á því máli, að þetta sé tilraunar vert, þá gefst þeim nú kostr á að sýná það í verki, því að ég ætla að byrja að gefa út ÍSLENZKT MÁNAÐARRIT, 32 blaðsíður á mánuði í ekki minna broti en “Sameiningin” og “Dagsbrún” eru í, og selja árgang- inn á $1,00. Menn fengju með því móti að minsta kosti helmingi meira af veraldarorðinu, ep þeir nú fá af guðsorðinu, fyrir alveg sama verð. Þeir herrar Jón Ólafsson og Steingrímur Stefánsson, bók- vörzlumenn við Newberry-bóksafnið hér í bænum, ætla að hafa rit- stjórnina á hendi. Tilgangr ritsins á að vera, að víkka sjóndeild- arhring lesendanna og efla smekkvísi þeirra með því að flytja þeim fróðleik í alþýðlega rituðum greinum á hreinu og auðskildu máli og að öllu leyti í aðgengilegum og boðlegum búningi. Verðr því efnið meðal annars bæði frumsamdir og þýddir fræðiþættir og ágripslegar yflrlitsgreinir, og verðr íslenzkum bókmentum sérstakr gaumr geflnn. Ritið verðr að öllu leyti sniðið sem tímarit almenns efnis og verðr að því leyti enginn keppinautr vikublaðanna né kyrkjulegu mánaðarrit- anna í Winnipeg. En því vilja ritstjórarnir lofa, að reyna af megni að veita lesendum sínum ekki lakara andvirði að tiltölu fyrir dalinn, heldr en íslenzk blöð og tímarit hér vestra nú gera. Þeir sem vilja sr.yðja fyrirtækið með því að gerast áskrifendr, eru beðnir að gera það sem allra-fyrst undirskrifuðum útgefanda Stefáni Pétrssyni til kynna og verða þeir að Iofaþvf, að borga fyrsta árgang við móttöku fyrsta mánaðarheftis. Það verðr alls ekki byrj- að á ritinu nema því að eins að útgefandi sjái sér fært að enda ár- ganginn, og leggr því enginn neitt í sölumar með áskrift sinni, ef ritið kemur ekki út. Útgefandinn og ritstjóramir mælast til þess, að enginn skrifl sig fyrir ritinu, sem álítr að hann geri þeim meiri þægð en sjálfum sér með því. Reynist það ekki, að til séu svo sem 250—300 íslendingar hér vestra, sem þyki svo mikils umvert að slíkt verði út geflð, að þeir vilji kaupa það og borga, þá getum yið, sem höfum ætlað að gera tilraunina, vel stilt okkr um að verja ómaki og fyrirhöfn til þess. Því að ómakið og fyrirhöfnin er alt, sem við erum til með að leggja í sölurnar, en ekki viljum við þurfa að borga út peninga þar á ofan fyrir þá ánægju að gefa fólki tímarit að lesa. Að ending má þess geta, að tímaritið verðr sett og prentað hér í Chicago og verðr vandað að ytra frágangi og pappír góðr. Hver sem sjálfr vill kaupa rit þetta eða útvega því áskrifendr, er beðinn að senda áskrifendanöfnin til útgefandans fyrir lok Febrú- ar næstkomandi. Hver sem safnar 5 áskrifendum eða fleirum og sendir andvirðið til útgefanda innan mánaðar eftir móttöku fyrsta heftis, fær flmtung í sölulaun (þ. e. sendir borgun að eins fyrir fjóra fimtu hluti). Chicago, Ills., 7. Jan. 1897. Stefán Pétrsson, útgefandi, Ritstjórar: , 284 Grand Ave. Jón Ólafsson, ) Steingr. Stefansson. j Newberry Library. stjórn að gera. — Drepsóttin eykst held- ur en rýrnar í Rombay og stöðugt flýja menn burtu úr borginni. Er ætlað að 2 af hverjum 3 borgarbúum séu flúnir. Cubamenn sprengdu léttiskip Spán- verja, eitt af þeim sem notuð voru til strandvarna og vöruflutninga milli her- stöðvanna. Fórst þar skipstjórinn, yfirmenn hans allir og eitthvað af há- setum. En þeir sem undan komust voru sárir. Nú er sagt að McKinley muni bjóða Harrison, fyrverandi forseta, ráðherra- stöðuna á Englandi. C. P. R “líau”-skipin á Kyrrahafi, milli Vancouver, Yokohama og Hong Kong, verða íramvegis ekki verjulaus. Er nú verid að búa þau út með 6 fall- byssur hvert. Þrír bankar urðu gjaldþrota í gær í Bandaríkjum : tveir í Kentucky og einn í St. Paul, Minn. Brezkt herskip “Warren Hastings” fórst hinn 14. þ. m. austur af Afríku. Skipverjar allir, 1232 talsins, komust af. London-blaðið “Pall Mall Gazette” bendir kaþólíkum í Canada á, að gangi þeir of langt í að heimta pólitisk völd, geti þeir auðveldlega eyðilagt framtíð sína í ríkinu. í Washington eru menn farnir að óttast að sáttaréttarsamningurinn verði feldur í efri deild. Til að fá hann stað- festan þarf § atkvæðanna, en lítil von sögð að fáist helmingur þeirra hvað þá meira. Kaupmannafélagið i London serir ógerlegt að hagnýta Hudsonflóa sem skipaleið. MIÐVIKUDAG, 20. JAN. Nú er fullyrt að Frakkar séu til- búnir að gera sáttaréttarsamning við Bandaríkjastjórn áþekkan þeim brezk- ameríkanska, undireins og sá samning- ur er staðfestur. En svo óttast nú sum- ir að hin komandi stjórn repúblíka sé andvíg samningnum og að hann þess vegna verði ekki staðfestur. — Rikis- þing Sví kom saman í gær og í ávarpi sínu fór Oskar konungur hlýjum orð- um um samninginn og kvaðst með á- nægju taka boði þeirra stjórna og verða æðsti dómari í ákveðnum málum, ef á þyrfti að halda. Blöðin á Spáni segja nú að Banda- ríkjastjórn sé hætt við tilraunir allar að semja við Spánarstjórn fyrir hönd Cu- bamanna. Þing Breta kom saman í gær. í ræðu í lávarðadeildínni sagði Salisbury, að úti væri um stjórn Tyrkja, ef ekki kæmi bráðum allmiklar umbætur. Ófagurt æfintýri. (Þýtt af H. Setinmann.) Eg var eitt sinn boðinn til kvöld- verðar hjá nokkrum vinum mínum í París, og af því ekki var orðið mjög á- liðið þegar ég fór þaðan, og átti skamt heim, þá datt mér að koma við í klúbbn- um að gamni minu, því ég hélt að ég myndi máske sjá þar einhverja af kunn» ingjum minum. ina við hin mörgu spilaborð. Eftir að hafa staðið þar á að geta hálfan tíma kemur til mín ókunnur vel búinn mað- ur, og spyr mig að hvert ég vilji ekki “koma í slag” við sig. Þó maður þessi kæmi að vísu beldur vel fyrir i fyrstu, þá fanst mér þó strax hann hafa eitt- hvað það við sig, sem mér geðjaðist ekki sem bezt, svo ég neitaði boði hans. En hann lét ekki af að heldur, heldur á- málgaði þetta þar til ég lét undan. Hann spilaði bæði vel og rétt, og sýndi enga spilahrekki, nokkuð sem ég hálfpartinn bjóst þó við í fyrstu. En lukkan var stöðugt á móti honum, og á kortum klukkutima var hann búinn að tapa talsverðri upphæð. Þegar við svo bjuggum okkur til að hætta, og gera upp reikningana sagði hann: “Ég skulda þér 700 krónur; fylgdu mér heim og ég skal borga þér strax. Eg á heima skammt héðan”. Eg vildi auðvitað gjarnan fá mína peninga, svo ég fylgdi honum orðalaust og umhugsunarlaust. Hann gekk hratt gegnum margar götur, þar til hann staðnæmdist við dyr á húsi oinu sem stóð afsíðis frá öðrum húsum. Hann opnaði dvrnar og leiddi mig upp stiga og inn í hreinlegt herbergi. sem leit þó meir út fyrir að vera brúkað fyrir ein- hverskonar verkstæði en til íbúðar. Ég varð ekki lítið hissa og órólegur þegar ég sá hann loka dyrunum að innan á eftir okkur og stinga lyklinum í vasa sinn. Hann lagði strax merki til að mig furðaði á þessu, og sýndist mér eins og sigurbros leika um varir hans. Síðan setti hann fram tvo stóla sinn við hverja hlið á borðinu sem stóð á miðju gólfi og bað mig setjast. Ég datt fremur en settist niður á annan þeirra, en hann gekk að kommóðu er stóð þar í einu horni, tók spilabúnka upp úr einni skúffunni og lét á borðið. “Nú skulum við spila kvitt eða tvö- falt,” sagði hann kurteyslega en þó í skipandi tón. “Nei, það kæri ég mig ekkert um,” sagði ég. “Eg er óvanur við og hefi aldrei spilað upp á svoleiöis skilmála.” “O, ég er viss um að þú vilt gera mér svo litla þénustu,” svaraði hann glottandi, og fór að stokka spilin. Ég veit ekki hvað það var, en það var eitt- hvað í framkomu hans sem ég var eins og nauðbeygður til að liliða. Svo gof hann. Yið spiluðum og hann vann. “Þú hefir unnið, og við erum kvitt- ir,” sagði ég hálf ergilegur og stóð upp. "Ef þú vilt nú gera svo vel og opna dyrnar, svo ég geíi farið heim....” “Ha, ha!”hló hann með reiðisvip “Þú sleppur nú ekki svona létt. Til hvers heldurðu að ég hafi komið með þig hingað?” “Ekki í neinum illmannlegum til- gangi vona ég,” svaraði ég. Hann gekk fast upp að mér ogsagði: "Ég ætla að drepa þig.” Ég starði á hann orðlaus. Var hann brjálaður, eða var hann að reyna að hræðá mig að gamni sínu? “Þú ert að spauga við mig,” sagði ég, með vandvæða brosi. “Þvert á móti, ég hefi aldrei talað í meiri alvöru,” sagði hann, “og ég skal fullvissa þig um að ég segi satt og að mér er alvara”. og um leið dróg hann marghleypu upp úr vasa sínum, miðaði henni á höfuð mér og sagði: “Ég þarf nú ekki annað en gera ofurlítið átak með einum fingri til þess að þú liggir dauður við fætur mér, en ég skal gefa þér eitt tækifæri enn. Eg hefi gaman af að spila, og þú spilar vel. Yið skul- um spila einu sinni enn, og ef þú vinnur þá ertu frí, en ef þú tapar, drep ég þig. Nú hvað segirðu ?” Hvað átti ég að gera annað en að spila ? “Eg geng að því,” sagði ég. “Ja það hugsaði ég,” sagði hann. “Nú skulum við spila "interesting” spil. En ég ætla ekki að hafa það langt. Við drögum bara sitt spilið hvor — það hærra vinnur”. Hann stakk marghleypunni niður í vasa sinn aftur, og lagði spilin á borðið. Ég dróg eitt spil — það var hjarta ás. Hann dróg líka og dróg spaða ás. Hann stokkaði stra.x spilin aftur og lagði þau á borðið. “Nú er það mitt að draga fyrst,” sagði hann, og dróg laufa tvist. Ég sá að ég gat i a't fall ekki tapað í þetta sinn. Mér varð ögn léttara um hjartað og dróg en það var þá — hjarta tvistur. “í þriðja sinn afgorist það,” sagði hann, og á ásjónu hans lýsti sér hin djöfullegasta gleði af að sjá hvaða spenn andi áhrif þes-i leikur liafði á mig. Hann lét nú spilin á borðið í þriðja sinn. Nú átti ég að draga fyrst, og dróg laufa drottning. Hann dróg og það var spaOa kóngur og — ég hafði tapað. Með villimannlegu sLurorgi stökk hann á mig og henti mér flötum á gólf- Eftir að ég kom inn í klúbbinn stóð] ið, og hvernig sem ég braust um gat g stundarkorn og horfði á spilamensk- liann bundið mig með reipi áhöndum og fótum. Svo dróg hann mig út að öðr- um enda verelsisins, og batt mig þar i hring sem var fastur í vegnum. “Ef þú atlar að myrða mig. fantur- inn þinn,” sagði ég, “þá segðu mér það minsta fyrir hyaða orsök þú gerir það.” “Ertu máske búinn að gleyma því ?” sagði hann. “Það ert þú með öll- um þinum svikum sem varst orsök í því, að ég tapaði öllum eigum mínum> og stend eftir allslaus. Er það piáske ekki nógu fullkomin orsök? Ég hefi svarið að hefna mín, og nú er stundin komin.” Eg reyndi með öllu móti að sann- færa hann um að ég væri ekki sá maður sem hann ætti við, en það var alt á • rangurslaust. Hann hlustaði ekki á neitt er ég sagði því viðvíkjandi, og þeg- ar ég fór að kalla um hjálp, stakk hann klút í munn mér, svo ég kom ekki upp nokkru hljóði framar. “Þessi hérna afgerir það nú fljótara. en ég eiginlega kæri mig um,” sagði böðullinn í því hann tók marghleypuna upp úr vasanum, “þyí óg vil gefa þér tækifæri til að lesa allar bænir þinar áður en þú deyrð.” Að því búnu tók hann krukku ekki svo litla út úr skáp er stóð þar. setti hana á borðið og tók lokið af. “Púður,” sagði hann, og rak aðra höndina niður í hið svarta dupt. Svo gekk hann að skápnum aftur, tók þar út kertisstúf, stakk öðrum endahans ofan ; púðrið og kveikti á þeim efri. “Þetta er hreint ekki svo vitlaus hugmynd,” sagði hann. “Þetta Ijós log- ar hér um bil hálfan tíma, og á meðan getur þú lesið bænirnar og skemt þér við að horfa á hvernig ljósið færist ein- lægt neðar og neðar, nær og nær púðr- inu. Þegar ljósið nær þangað, er þér óhætt að segja farvel til þessa lifs. Ha, ha, ha I” Hlægjandi stökk hann svo út úr verelsinu, og smellir útidyrahurðarinn- ar tilkyntu mér að nú væri ég aleinn andspænis dauðanum. Ég reif og sleit í böndin sem héldu höndum minum og fótum, en alt til einskis. Stórir svitadropar steyptust um enni mér, og meir dauður eu lifandi vaktaði ég ljósið sem með hræðilegri hægð færðist neðar og neðar. Alt i einu heyrði ég einhvern undar- legan þyt eða hljóð utan við gluggann, og eins og druknandi maður sem grípur um hálmstrá, leit ég þangað í þeirri von að frelsið kynni að koma þaðan, þó ó- líkleet væri. En það var þá bara stórt fiðrildi, sem var að flögra og slá vængj- unum við gluggann. og algjörlega vou- laus og örmagnabeindiég augunum aft- ur að ljósinu. En litla dýrið við gluggann át.ti þó samt sem áður að verða til þess að hjálpa mér úr þessum örðugu kringumstæðum Ég hafði ekki tekið eftir því, að stykki var brotið úr einni gluggarúðunni, en fiðrildið, sem samkvæmt eðli sínu var að reyna að komast inn, að ljósinu, fann gatið og flaug litlu seinna inn í verelsið, og — beint í ljósið. Þetta varð mér til lífs, því ljósið sloknaði sem annars hefði eftir svo sem tvær mínútur kveikt í púðrinu. Þessi snögglega breyting á háska þeim, er ég var staddur í, hafði þau á- hrif á mig að ég féll í nokkurskonar yfirlið eða dá, og þegar ég kom til sjálfs- mín aftur var komið fram á dag, og orð- ið ljóst inni af dagsbirtunni. Með end- urnýjvðum kröftum fór ég nú að brjót- ast um í böndunum aftur, ogeftirnokkr ar atrennur losnaði hringurinn úr vegn- um, en sarat var ég ekki laus. Eg gat samt skriðið út að glugganum, og gat með því að slá höfðinu við glnggann, vakið eftirtekt fólks á mér. Litlu síðar var óg laus. í verelsinu fann ég umslag; á því var bæði hússnúmer og nafn strætis eins í einum útjaðri Parísarborgar. Skömmu síðar lagði ég af stað og fann strætið og húsið sem var heimulegt vit- skertrahús. Með þvi að spyrjast þar fyr- ir, frétti ég að þessi spilafélagi minn hefði átt þar heima en sloppið þaðan fyr- ir tveimur mánuðum, og öll fyrirspurn og leit honum viðvíkjandi hafði orðið árangurslaus. Mér var sagt að hann væri Englend- ingur að uppruna, en hefði búið lengi í París og eytt og spilað burt stórmiklu fé. Ut úr því hafði hann orðið hálf- geggjaður, og stóð á því fastar en fót unum, að einn eður annar hefði rænt hann öllum eigum hans, og hans eina rnarkmið var að koma fram hefnd fyrir þennan ímyndaöa órétt. Þessihugmynd hans hafði auðvitað ekkert við að styðj- ast, því það var engum öðrum en hon- um sjálfum að kenna, að hann var orð- inn öregi. En hann trúði þessu statt og stööugt og stóð í þeirri meining að hann myndi fyrr eða síðar finna þann, sem hefði ræut sig og gert sig að þurfa- manni. Nokkru eftir þetta frétti ég að hann hefði mætt dauða sínum við járnbraut- arslys á Þýzkalandi.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.