Heimskringla


Heimskringla - 04.03.1897, Qupperneq 1

Heimskringla - 04.03.1897, Qupperneq 1
NR. 10. XI. ÁR. WINNIPEG, MAN., 4 MARZ. 1897. FRÉTTIR. DAGBÓK. FIMTITDAG, 25. FEBR. Flóð í ám og vötnutn í Pennsylva- nia hafa valdið $1J milj. eignatjóni. Stórveldin kvað vera eiuhuga alveg i því, að Grikkir skuli ekki fá Krít. Grikkjum lízt það óréttlátt og segjast engar stjórnarbætur þíggja fyrir hönd eyjarskeggja, ef hinn tyrkneski fáni á að halda áfram að blakta á stöng yfir stjórnarsetri eyjarskeggja. Þar við sit- ur enn. Tyrkir herbúa sig af kappi og tala um að hefja hergöngu til Aþenu á hverri stundu. Aukaþing. Cleveland forseti hefir boðað efrideildarmenn þjóðþingsins á fund í þingsalnum kl. j2 á hádegi á fimtudaginn 4. Marz. Ráðherrar MoKinleys. Ráðaneyti hans er nú að sögn fullmyndað og eru þessir hinir útvöldu: Jehn Sherftan utanríkisráðherra (stjórnarformaður- inn), Lyman J. Gage fjármálastjóri, John D. Long sjómálastjóri, Russell A. Alger hermálastjóri, Joseph McKenna dómsmálastjóri, James Wilson ráðherra akuryrkjumálanna. John J. M’Cook innanríkisstjóri, James A. Gary póst- málastjóri. Ráðaneyti þetta er sann- nefnt‘miljónera-ráðaneyti’, enda búið að fá það nafn í upphafi, Að undan- teknum máske tveimur eru ráðherrarn- ir allir miljónaeigendur. FÖSTUDAG, 23. FEBR. Hvessir á þjóðþingi. I neðri deild þjóðþings var í gær borin fram álykt- uu þ«ss efnis, að Bandaríkjastjórn skuli nú tafarlaust bjóða Spánverjum stríð á hendur. Samtímis kom fram samskon- ar skoðun í efri deild í kappræðu út af ályktun um að Bandaríkjastjórn skuli heimta lausan ákveðinn mann, sem er í fangelsi á Cuba. Senatorarnir sögðu þar hver á fætur öðrum að þeir vildu strið og ekkert annað. Æsingar mikl- ar í Washington út af þessu. Rafmagnsvagn ‘ varð fyrir járn- f CKu’ago í gær og fói í spón. Biðu þar bana 3 menn og búist við að tveir eða þrír (aðrir deyi. Fleiri voru ekki í vagninum þegar slysið átti sér stað. Frumvarp um að lengja tímann úr 3 mánuðum í 1 ár, sem þeir yrðu að búa í rikinu, er vildu fá hjónaskilnað, var borið fram á Norður-Dakotaþingi fyrir.skömmu. I gær var það felt í efri deild með 14 gegn 13 atkv. Gullæð mikil fanst í gær í Skóga- vatni skamt frá Rat Portage fram af Sultananámunni nafnfrægu. Þar sem gullið fanst i vatnsbotninum er vatnið 40 feta djúpt. en svo stendur það ekki í vegi fyrir notkun þessarar nýfundnu námu, Londcn-blaðið ‘Chronicle’ er eitt eindregnasta fylgisblað Grikkja i Norð- urálfu. Það hvetur nú Grikki til að enda þetta þóf um Krít, með því að skora Tyrki á hólm og losa svo Evrópu við erkimorðingjann, sem sitji í hásæt- inu í Miklagarði. í gær átti fregnriti blaðs þessa tal við Grikkjakonung, er kvaðst vera meira en híssa á aðgerðum stórveldanna. Sagði óþolandi ef Krít- eyingar fengju ekki leyfi til að úr- skurða með atkvæðum sínum hverju rikinu þeir vildu helzt tilheyra: Grikk- landi eða T.Aklandi. Af því er ráðið að veittu stórveldin það og létu eyjar- skeggja eina nm atkvæðagreiðsluna, mundu Grikkir leggja árar í bát og gera sig ánægða moð úrslitin, enda nokkuð augljóst hvernig þau yrðu. LAUGARDAG, 27. FEBR. Frá Montreal kemur sú fregn, að svo mikill klofningur sé í liði Lauriers í Quebecfylki út af skólamálinu, að Lau- VEITT HÆSTU VKROUAUN A HBHMSSÝNINGUNN DR BANNi POWWR ID BEZT TILBÚNA éhlönduð vínberja Cream of Tartar powder. Ekkert álún, ammonia eða úunur óhol) efni. 40 ára ’-eynslu. rier sjái ekki önnur ráð en fara til Greenways á ný og biðja hann að gera enn meira en hann þegar hefir lofað að gera fyrir kaþólíka. Konsúll Bandaríkja á Cuba hótar að segja af sér, ef hann fái ekki herskip til að fylgja sér að máli. Hann kveðst ekki halda áfram í stöðu sinni. ef haidið verði áfram að syívirða og drepa Banda rikja þegna alt í kringum sig, og ef Bandarikjastjórn neiti að rétta sér hjálparhönd. Núer sagt að stórveldin séu farin að jagast út af Krítarmálinu, nð þau séu alls ekki sanihuga, er til kemur að kúga Grikki. Ráðherra Breta á Grikk- landi sat lengi á eintali með konunugi í gær og er því ætlað að Bretastjórn sé að hugsa um að gangaúrleik. Að hún gerði það er heldur ekki ólíklegt, ef hún í nokkru athugar vilja þjóðarinuar, því þjóðin á Bretlandi er nokkurnveginn eindregin með Grikkjum, C. P. R. félagið hefir formlega boð- ið sambandsstjórninni að byggja járn- braut frá Lethbridge í Alberta um Hrafnahreiðursskarð til Nelson í Brit- ishColumbia, 300 mílur vegar, ef stjórn in veitir því styrk sem nemur $10.000 á hverja mílu (3 milj. alls). Brautina lofar það að hafa fullgerða í Janúar- mánuði næstkomandi. Enn fremur býður félagið stjórninni að vera í ráði með að ákveða fiutningsgjald, leyfa öðr- um félögum að renna lestum eftir spor- inu o. s. frv. Montreal-blaðið “La Patrie,” mál- gagn Hon. Mr. Tarte (synir hans eiga það og stjórna því), segir bráðnauðsyn- legt að páfinn sendi til Canada sérstak- an ráðherra, er hafi á hendi að lesa klerkalýðnum lögin og dæma í þrætu- málum milli lýðs og klerka. MÁNUDAG 1. MARZ. Kríteyingar segjast ekki vilja nýta sjálfsforræði, ef ’þeir eigi að vera undir verndarvæng Tyrkja. Þó segja aðrar fréttir samtímis, að stórveldin vilji ekki annað þýðast. Er sagt að í dag (1. Marz) eigi að færa.bæði konungi Grikkja og Tyrkjasoldáni_bréf frá stórveldunnm sameiginlega, þar sem ákveðið er að eyjarskeggjar skuli nú þegar fá fult sjálfsforræði, en vera skjólstæðingar Tyrkja eins og áður. í því bréfi er og sagt að Grikkjum verði gefinn 4 daga frestur til að flytja alt sitt burtu af eyj- unni. Af þessum fregnum að dæma. nálgast þvi sú stund að Grikkir megi gera annað tveggja : Skora Tyrki á hólm eða beygja sig fyrir stórveldunum. 175 menn biðu bana á laugardaginn var í námum í Mexico. Þaðhafðikom- ið upp eldur niðri í námunni og byrgði ganginn upp úr henni. Cecil Rhodes, Afríku-konungurinn. viðurkendi í gær að hann bæri ábyrgð- ina af áhlaupinu á Transvaal í fyrra. Sagði það hefði orðið stórhagur fyrir hið Breska Suður-Afríkufélag, ef Suður- Afríka öll hefði fengist sameinuð undir eina stjórn. Það hefði verið tilgangur- inn og hann kvaðst vona að síðar kæm- ist það bandalag á. Sérstök þingnefnd hefir setið við að yfirheyra Rhodes um nokkra undanfarna daga. Skeyti frá Rómaborg segir að Leo páfi XIII. hafi skipað Monsignor Rudini Tedeschi umboðsmann sinn og æðsta dómara í kyrkjumálum í Canada. Rússar segjast tilbúnir að bola Grikkjum af Krítey og komaá fót hinni fyrirhuguðu sjálfstjórn eyjarskeggja undir vernd Tyrkja, þó Bretar og ítalir verði á móti er til kemur, og sem þeir óttast. ÞRIÐJUDAG 2. MARZ. Weyler, herstjóri á Cuba, hefir sagt af sér og er á förum af eyjunni. Ástæða er sú, að Spánarstjórn gaf Bandaríkja- þegni einum upp sakir, en sem Weyler áleit óþolandi alveg. Eldsumbrot eru sögð í Salta-vatni (Salt Lake) í Utah. Gufumökkur stend- ur hátt í loft upp og vatnið hverasýður í nágrenninu. Jarðskjálftavart hefir orðið á þessu svæði af og til í síðastfiðna 6 mánuði. Indlandshjálparsjóðurinn í Canada er nú orðinn sem næst $100,000. í Mani- toba er sjóðurinn á 11. þúsundinu. Hotel í Moosomin, Assa., brann til rústa aðfaranótt mánudagsins. Eigna- tjón $11,000. Hjón í Quebecfylki fóru í kynnisför til nágranna sinna á sunnudagskv. var eftir að hafa afklætt 3 börn sín, og læstu svo húsinu. Á meðan þau voru burtu brann húsið og börnin með. Samkvæmt áætlun sambandsstjórn- ar voru 5,125,436 íbúar í Canada í Jok Júníinánaðar 1896. Ekkert nýtt frá Krit nema það, að Grikkir hafa þar tekið annað virki og bæ með 3000 Tyrkjum í. Beiddu þá Tyrkir höfðingja sina ásjár og verndun- ar, en fengu afsvar. af því bolmagn skorti. Fóru þeir þá til Grikkja, sem undir eins fullvissuðu þá um, að þeim og eignum þeirra væri óhætt. MIÐVIKUDAG, 3. MARZ. Ómunalega mikil dýrð í Washing - l on á morgun (4. Marz) er McKinley yerður settur í hásætið. Hátiðahaldi ð á að vera glitmeira stærra og tilkomu - meira að öllu leyti en nokkru sinni áð- ur. Nú er uppvist orðið að kaþólsku byskuparnir í Quebecfylki hafa skrif- legt leforð allra ‘liberölu þingmannanna í sambandsþinginu um að fylgja kröfum klerkanna í skólamálinu og annað- tveggja greiða atkvæði gegn Laurier eða segja af sér. ef hann ekki nppfylli loforð sín í því efni, — útvegi kaþólík- um í Manitoba algerlega sérskilda skóla. Stórvoldabréfið til Grikkja og Tyrkja áhrærandi Kritarmálið var af- bent. þeim stjórnunum í gær. Er Grikkjum tilkynt að stórveldin séu einhuga í að veita Kríteyingum fullt sjálfsforræði nú þegar, en undir stjórn Tyrkja, að Grikkir verði að hafa sig burt af eynni innan sex daga, ella taki stórveldin til sinna ráða til að koma þeim burtu þaðan. Hvað gera Grikkir nú ? Fylkisþingið. Á þriðjudaginn 23. Febr. gerðist ekkert merkilegt á þingi, enda sat það tæpa klukkustund. Á miðvikudaginn 24. Febr. sat þingið aftur stutta stund, rúman hálf- tíma, en starf þess á þeim stutta tíma var þýðingarmikið. Þá voru sem sé lögð fram ýms fruvörp til laga og lesin í fyrsta skifti. Fyrst í þeim flokki er að telja skólalögin, eða bálk þann í skólalöguuum, sem breyia skai skm- kvæmt samningi þeirra Greenwayinga og Laurier-stjórnarinnar. Lagaflokkur þessi er í 12 aðalgreinum og eru sam- hljóða samningi nm þettta mál, er i lausri þýðingu birtist í Hkr. 26. Nóvem ber síðastl. (10. árg. nr. 48). Þá voru og framborin námalög fylkisins, sem eiga að verða; frumvarp til laga áhrær addi félagsbú (Partnership)jfrumvarp til laga áhrærandi lögregludómara; frum- varp til laga áhsærandi lögtak eignar fyrir skuldum; frumvarp til laga áhrær andi yfirréttarmál. Fjögur hin siðast- töldu frumvörp eru ýmist viðaukar við samskonar lög, eða breytingar á orðum eða greinum í þeim lögum. Á fimtudaginn 25. Febrúar var beð- ið um skýrslur frá ýmsum sveitum á- hrærandi haglélaábyrgð; þá var og beð- ið að skift yrði tveimur sveitum í tvö stjórnarumdæmi hvorri. Þá var og kunngert að farið yrði fram á að nefnd yrði skipuð til að rannsaka fjárhagsmál hinna ýmsu sveita i sambandi við skatt heimtu. Er nefndinni ætlað að athuga áhrifin á sveitirnar af : 1. að gefa afslátt af skatti greiddum fyrir ákveðin dag og að leggja auka- gjald á þá sem ekki þannig greiða ; 2. að láta skatt safnast saman ár eft- ir ár á óbygðð landi; 3. að innheimta skatt án þess skatt- heimtumuður sé settur; 4. að athuga hvaða áhrif samsafn ó- goldinna skatta hefir á einstaklingiun, sem þannig er hirðulaus; 5. að athuga áhrifin á fylkið af aug- lýsingum um landsölu fyrir ógoldnum skatti. Uppástungumaður að þessu er Mr. Thos. Dickie frá Avondale-kjördæmi. Á föst.udaginn 26. Febr. gerðíst ekk ert markvert ,á þingi, að undanteknu því að fram voru lagðir fylkisreikning- arnir. Frumvörpin sem fram voru komin voru yfirfarin í annað sinn og síðan vísað til lagabreytinganefndar- innar. Undantekningin þar er skóla- lagafrumvarpið. Þegar það var borið fram auglýsti dómsmálastjóri að stjórn- in leyfði engar breytingar á því frum- varpi, og enn fremur var þess getið, að það yrði yfirfarið í annað sinn á föstu- dag, en er þar konij bað dómsmólastjóri að hlaupið yrði yfir það. Var j að veitt og liggur það því fyrir eins og það var fram lagt. Það er sagt að þegar frum- varpið var brotið til mergjar, eins og gert var í ‘Nor’-Wester’, hafi próestant- ar orðið eins óánægðir með ákvæði þess eins og kaþólíkar er álíta j>að einskis- vert, og að stjórnin þess vegna hafi frestað umræðym um frumvarpið, enda búizt við að hún megi til að breyta ein- hverju í þvi. En þetta eru getgátur einar. Fylkisreikningarnir sýna, að alls voru tekjur stjórnarinnar á órinu $1, 090,236,31 og í sjóði við árslok 1895 voru $565,810,85. Gjöld öll á árinu voru sam- tais $973,012,59. í sjóði við árslok (31. D isember 1896) $674,219,27. Meðal út- gjylda er talin þingkostnaður allur $38, 590, en þar í eru talin rúm $5000, sem ganga tíl viðhalds fylkisbókasafninu og sem laun fyrir yfirskoðun reikninga, Kosningasóknin í fyrra er sagt að hafi koatað $30,085,79'. Til innflutnings- starfa var á árinu varið $16 492,19. Á mánudaginn 1. Marz gerðist ekk- ert merkilegt. J. B. Lauzon hinn nýi jiingmaður St. Bonifacemanna var þá leiddur til sætis á þingi. Umræður um fjárlögin áttu að byrja þá, en var frest- að til þriðjudags. Skólalögin nýju átti og að ræða, en var einnig frestað sam- kvæmt beiðni Camerons dómsmála- stjóra. — Nýtt frumvarp (breyting á skólalögunum) var borið fram. Inni- hald þess er að undir vissum kringum- stæðum hafi skólastjórnir í syeitum úti fyllra vald en þær hafa nú til að færa skólahús. Frá löndum. MINNEOTA, MINN., 22. FEBR.1897. (Frá fréttaritara Hkr.). Nýlega varð F. R. Johnson gjald- þrota og hefir jiað mikil og ill áhrif á marga íslenzka bændur, sem skifuðu uudir skuldabréf hans, Dauðsfall. Nýdáin er hér Arndís ^fciiidóttir Eiuavssonar frá Syðri-Brand Krossavík i Vopnafirði. Hún var ltona Jósefs Jónssonar frá Strandhöfn í Vopnafirði. Trjáplöntun, I verðlaun fyrir trjá- plöntun borgaði Minnesotaríki síðastl. ár $19,530,01, eða $2.50 á hverja ekru. Tíðarfar hefir nú um stnndir verið fremur umhleypingasamt og rosalegt, og má svo segja að hér sé nú snjókyngí mikið. Verzlun: Gripir stíga í verði; eftir spurn mikil; korntegundir allar saga í sama horfið. CYPRESS RIVER, MAN.,22. Febr.’97 Hinn 8. Febrúar lézt hér f bænum eftir 11 mánaða siúkdóms þjáningar Einar Ólafsson, Torfasonar, Gottskálks sonar. frá Fjöllum f Kelduhverfi í Þing- eyjarsýslu, 9 ára og 6 mánaða gamall, frábærlega efnilegur bæði til sálar og líkama, alt til j)ess hann tók veikina í Marz í fyrra, er þrátt fyrir allar mögu- legar lækna tilraunir varð hans bana- mein, og alt útlit á þvi að j)að hafi ver- ið tæring, er hann þjáðist af. — Jarðar- förin fór fram þann 9., er verzlunar- maður herra A. A. Young annaðist að öllu leyti með mesta sóma og heiðri, þó sárfátækir ættu í hlut og það ekki af bans þióðflokki. Það og margt annað gott þeim auðsýnt þakka honum hinir harmþrungnu foreldrar. WESTBOURNE, MAN., 25. Febr. ’97. Tíðin hefir verið æði höstug og ó- viðfeldin f vetur; frost og fannkoma oftast nær. Miklu meiri snjór á jörðu nú en í fyrra; búast menn þvf við miklu flóði hér í vor; er hér lítiðhm annað tal- að en það og svo hvert skuli flýja. Heilsufar. Kvef og ýms önnur ves öld hefir gengið hér í vetur, en erheldur að réna. Mrs. Sigríður ÓlafssOn, kona Ólafs Ólafssonar frá Vatnsenda á ís- landi, hefir verið mjög veik í allan vet ur af einhverri illkynjaðri veiki og er á mjög litlutíi batavegi enn. Snemma i þ. m. dó Tomasina Guð- rún, dóttir þeirra hjóna Bjarna Tomas- sonar og Önnu Jóhannsdóttir, 6J mán- aðar gömul. Jarðarförin fór fram f Westbourne 11. þ. m. 15, þ. m. giftu sig Mr. Böðvar Jóns- son og Guðrún Tomasdóttir bæði til heimilis í Westburne. Mjög er lítið um framfarir hér. Þó tóku nokkrir menn sig saman í haust og útveguðu sér barnakennara. Að sögn eru þeir ánægðir með kensluna. Að eins þeir sem voru i þessu félagi hafa notað skólann, Fiskiveiðar hafa tæplega verið í meðallagi; að sönnu hafa mefln fiskað allve), en markaðsverð frámunalega lágt; 3J cent pundiðf hvítfiski var byrj- að með, en sem ekki hélzt nema hálfan mánuð; hættu þá fiskikaupmenn að takahann um tima, en byrjuðu svo aft- ur að þrem vikum liðnum og borguðu þá 2J—2 ct. Nú eru þeir hættir að taka hann nema upp í netskuldir eitthvað lítilsháttar. Útlit þvf mjög dauft hjá mörgum, því allflestir lögðu töluvert í kostnað og surnir meira en þeir máttu. í. Ó. Nýtt livaðanæfa. Ferðaáætlun hins sameinaða gufu- skipafélags höfum vér hvergi getað feng- ið enn. Útdráttur sá er fylgir, er tek- inn úr “Stefni” : Thyra fer frá Kaupmannahöfn 14. Marz, 16. Maí, 18. Júli 11. Sept., Both- nia (frá Khöfn) 18. Júni. Um Lauru er ekki getið í þessum útdrætti. Eftir þessu að dæma má gera ráð fyri r að brottfarardagar frá Leith eða Granton til íslands verði : “Thyra” 18. Marz, 20. Maí, 22. Júlí, 15. Sept., og Bothnia 22. Júní. Spokane—Ivootenai. Northern Pacificfélagið hefir látið gera ágætan uppdrátt af þessu nafn- fræga námahóraði, sem nú laðar menn til sin í stórhópum frá öllum löndum. Upr)drátturinn er með litbreytingum sem þarf til að sýna dali og f jöll og ár og læki, því að svo miklu leyti sem verð- ur, sýnir sppdrátturinn landslagið. Án annarar frekari fyrirhafnar en þeirrar, að sitja við borð, geta menn á þessum uppdrætti séð allan svip landsinsí þessu öræfaflæmi og furðuvel komist i skiln- ing um hvernig þar muni að ferðast. Á bakinu á uppdrættinum er lýsing þessa héraðs, Rossland og annara staða. Uppdrátt Jieuna geta menn fengið bjá H. Swinford, Gen. Agent N, P. R.R., Winnipeg, eða hjá Chas. S. Fee, Gen. Pass. & Ticket Agent., St. Paul. Þeir sem senda eftir eða biðja um þenn- an uppdrátt, geri svo vel að segja um leið, að þeir hafi lesið um hann í Heims- kringlu. Stokkhólms-sýningin. I Stokkhólmi í Sviaríki er nú verið að efna til hinnar miklu “Novðurlanda- aýningar,” sem þar verður vígð 15. Maí í vor og sem stendur yfir til 1. Október. Thingvalla-gufuskipafélagiö auglýsir sýningu þessa rækilega og í því sam bandi Svíaríki alt sem “Túrista”-land. Félagið hefir lieiðrað oss með ágætlega gerðri litmynd af sýningarsviðinu, sem er á eyjarodda norðvestarlega i borginni Er mynd þessi sönn veggprýði í hvaða skrifstofu sem er og kunnum vér Thing- vallalínunni þakkir fyrir sendinguna. Island, hið nýja blað Þorsteins Gíslasonar í Reykjavík, byrjaði að koma út með ný- árinu, eins og lofað hafði vtrið. Það er óefað langstærsta blaðið sem út kemur á Islandi, 4 breiðir dálkar á síðu. Það nýstárlega við það blað eru áskriftar- skilmálarnir. Engin áskrift ef bindandi fyrir meira en þrjá mánuði, en undan- tekningarlaust allir verða að borga fyr- irfram fyrir þann ársfjórðung. Er það góð rogla og væri þakklætisvert ef ein- hverju slíku fyrirkomulagi yrði á komið hér megin hafsins. Annað uýstárlegt er það, að pójpafgreiðslumenn á íslandi eru skyldir til að taka á móti áskriftum og ársfjórðungsborguninni og fyrir þau aukastörf fær póststjórn landsins 8% af upplræðinni sem hún veitir móttöku. Lög um þetta efni hafa verið í gildi á Islandi síðan 1872, þó enginn hafi reynt að hagnýta þau fyrri en Þorsteinn Gisla- son. Verður fróðlegt að athuga hvern- ig þessi aðferð reynist. — í stjórnmál- um Islands tekur blaðið sér nýja stefnu, — mælir með nlgerðuin aðskilnaði Is- lands og Danmerknr. Það hefir verið dregið dár að Hkr. fyrir samskonar til- lögu, enda þótt fæstir sjái það svo hlægilega uppástungu. Sé hugmynd sú bara til að draga dár að. þá er þó samt svo koinið, að Hkr. er ekki lengur ein á bát til að henda gaman að. Vér getum ekki að því gert, að oss sýnist myndarlegra að hreyfa því máli. heldur en ár eftir ár að stagla um stjórnar- skrárbreytirmar, sem aldrei fást. Ef ekki er annað. gæti hugsast að þær breytingar fengjust fyrri. ef alment væri rætt og litað um a<"sk lnað, þó vitaskuld því að eins, að alþingi ein- hverntíma komist að niðurstöðu um hvað það vill og hvernig það vill fá þess- ari og hinni greininni breytt. Það hgg- ur máske landráðasekt við, en óskandi virðist oss, að aðskilnaðarmálið fái góð- an byr á landinu hvervetna. Nýtt mánaðarrit. Eftir því sem á mánuðinn líðr eru að smá-koma inn nöfn áskrifenda að inu nýja mána’ðarriti, sem boðað var til í Hkr. og Lögb. í f. m. Þó að allmargir lýsi áhuga sínum á að ritið geti komizt á og óski hlýtt að svo verði, er þó mjög tvísýnt enn að áskrifendatalan ætli að verða næg til þess, enda má vera, eins og sumir hafa í ljósi látið, að tíminn hafi verið alt ið styzta. Ekki einn ein- asti áskrifandi hefir þannig enn komið úr stærstu íslendingabygðinni, Nýja- íslandi. Þeir sem að ritinu s’anda, hafa því afráðið, að taka enn við nýjum á- skrifendum til loka Marzmánaðar. En jafnframt er þá mælzt til, að þeir, sem vilja hlynna að fyrirtækinu, reyni ad safna áskrifendum hver í sinni grend.og eru þeir, sem það gera, beðnir að senda mér nöfnin, sem fást, helzt í hver viku- lok. 20. Febr. 1897. Stefan PÉTUltSSON, 306 Grand Ave., Chicago. Til kaupenda Dagsbrúnar. Á ársfundi Unitarasafnaðarins sem haldinn var að kveldi hins 16. þ. m., var gerð samþykt í þá átt, að ekki skyldi fastákveðíð um útgáfu Dagsbrúnar fyr en eftir lok Marzmánaðar, og lá sú or- sök til þess, að blaðið er í meira en $100 skuld, jnest fyrir prentun, og þnr eð fé var ekki fyrir hendi til að lúka þessari skuld með, þá leizt fundinum ekki ger- legt að gera endilega ákvörðun viðvíkj- andi útkomu blaðsins í bráðina. Þá var og samþykt að auglýsa þess- ar gerðir fundarins, og skora á þá hina mörgu kaupendur Dagsbrúnar sem skulda, ýmist fyrir eitt eða tvö ár, að gera lúkningu skulda sinna sem fyrst, —fyrir lok Marzmánaðar. Það er von- andi að allir sem eru blaðinu velviljaðir, hlaupi nú undir bagga með því, og það nú þegar, því eins og sakir standa, er ekki hægt að byrja á að koma biaðinu út fyr en ofangreind skuld er goldin til fulls. í lok Marzmánaðar bjóst fundurinn við að saman yrði komið nægilegt fé til að greiða fram úr örðugleikunum, og að þá mætti byrja á útkomunni tafarlaust, Látið þetta rætast. Allar borganir sendist til Einars Olafssonar, P.O. Box 305, Winnipeg. Til kaupenda Heimskringlu. Þar eð 10. árgangur blaðsins er nú allur kominn út, er vonandi að kaupeud- ur, sem enu eiga ógoldið fyrir hann,sýni nú lit á að borga sem fyrst. Ú tistaud- andi skuldir blaðsins eru hátt á þriðja þúsund dollars og má slíkt kalla vanskil í meira lagi, og vanskil sem koma sér mjög illa fyrir fátæk blöð. Það eru nú tilmæli vor, að þeir sem eiga ógoldið fyrir síðasta árgang e?a fleiri árganga, sýni góðan hug sinn til blaðsins. ekki einungis með því að taka það, heldur með því að borga það h'ka. Til þess að geðjast kaupendum blaðs- ins eftir föngum, höfura vér afráðið að gera þeim eftirfylgjandi kosti : Hver kaupandi sem sendir oss $2,00, hvort heldur fyrir næstliðinn eða eldri árganga getur fengið hvort sem þeir vilja söguna •‘Kotungurinn’’ eða "Mikael Strogoff,’ meðan þær endast (af Strogoff eru til að eins um 40 eintök), báðar í kápu. Nýir kaupendur sem borga fyrirfram, fá Heimskringlu og Öldina ásamt þeim fjórum árgöngum sem þegar eru komnir út af Öldinni og hvort sem menn kjósa sér söguna Strogoff eða Kotunginn—alt fyrir $1.50, — Öldin sérstök (4 árgangar) fæst fyrir $1,25. Engin blöð send til íslands nema oorgað sé fyrir fram. Heimskringla P.P.C .

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.