Heimskringla - 01.04.1897, Side 1

Heimskringla - 01.04.1897, Side 1
% Heimskríngla. XI. ÁR. WINNIPEG, MAN., 1 ÁPRÍL. 1897. NR. 14. FRÉTTIR. DAGBÓK. FIMTUDAG, 25. MARZ. Sambandsþing Canada kom saman í dag og var að sagt venju fremur mik- ið um dýrðir við það teekifæri. Sagt er að stjórnin hafi 50 atkv. fleiri en andvíg ismenn hennar í þinginu. Aukakosn- ingar hafa farið fram í 8 kjördæmum síðan í sumar og í 7 þeirra vann Lau- rier-stjórnin. í gær úrskurðaði hæstiróttur Cana- da aö ógildar væru kosningar í kjör- dæmunum: Winnipeg, Macdonald, West-Assiniboia, Lunenburg og Beau- harnois. í bréfi til Torónto-manna, dags. 22. þ. m., lofar Blair, samgöngumálastjóri í Canada, að hafa skipaskurði alla milli stórvatnanna og Montreal með 14 feta vatnsdýpi að 2 árum liðnum. Ekkert nýtt frá Grikklandi, þ. e., ekkert sérlegt. Helztu fréttirnar um þau mál í svipinn eru þessefnis, að al- þýða á Bretlandi, Frakklandi og Ítaiíu muni svo verka á þær stjórnir, að þær rjúfi heldur liandalag stórveldanna, en kúga Grikki með því að loka höfnum þeirra. Snarpur jarðskjálftakippur kom í Montreal í gærmorgun. Skaða gerði hann litinn, en nokkuð gott. Dað varð sem sé piltur einn sjúkur svo hræddur að hann stökk á fætur og eftir á verk- aði óttinn svo á hann, að veikin smá hvarf og er hann nú sem næst albata orðinn. Stórhríð, ofsaveðnr og grófur fann- burður í allan gærdag í Illinois, Wis- consin og Iowa. IChicago fóll 8 þuml. djúpur snjór um daginn, en bráðnaði um það bil jafnótt og hann féll. Þar var vindhraðinn 52 mílur á klukku- stund. FÖSTUDAG, 26. MARZj Kríteyingar liáðu strið allmikið við Tyrki í “gær og unnu frægan sigur. Þykir það þýðingarmikið og órækur . vottur þess, að eyjarskeggjar kæri sig iitið, en fari sínu fram, þó stórveldin natí lokað hofnunum. Indlands-hjálparsjóðurinn sem blað ið Montreal ‘Star’ hefir safnað er nú orðinn full $50,000. Lawrencefljótið er íslaust orðið fyr- ir austan Quebec. Siglingar’eru byrjað ar á Ontariovatni almennt, enþaðer fullri viku fyrr en venjulega er. Bretastjórn hefir að sögn ákveðið að taka engan þáf t i að loka höfnunum áGrikklandi, en er þó að nafninu til i bandalagi stórveldanna. • ^uirniss-gufuskipafélagið, sem læt- urebij) sín ganga milli Liverpool og Boston, ætlar í sumar að hafs skip í förum milli Liverpool og Montreal. Stórkaupmenn i Bandaríkjum keppa nú meir en nokkru sinni áður við að fiytja vörur til ríkjanna og borga toll- inn. Þeir vilja ekki kauca strax eftir að tollurinn er hækkaður. LAUGARDAG, 27. MARZ. Bandalagið að rofna ? Það er sagt nú, að þegar Bretar hafi neitað að hjálpa stórveldunum til að loka höfnum á Grikklandi hafi Þjóðverjar farið að hugsa um málið og þeir nú hafi kunngert stórveldunum að þeir ætli sér að ganga úr flokki, úr því Bretar hafi gert það. — Ein hin síðasta tillaga stór- veldanna er það, að kúga bæði Tyrki og Grikkja til að þoka dálítið frá landa- mærunum og halda svo beinni spildu á milli þeirra, sem hvoruguir megi stíga fæti á, á meðan stórveldin þæfa um Krítarmáhð. I gær vær var Salisbury staddur í Paris og átti þá tal við Hana- toux utanríkisstjóra JFrakka um þetta mál. Fylgir það og sögunni að þeim hafi komið saman um að loka höfnun- nm á Grikklandi, ef Grikkir neita að þoka. Og samtímis fréttir frá Aþenu segja enga von til að Grikkir þoki. — í kvöld (laugardag) leggur Konstanth.- us krónprins af stað alfarinn norður í Þessalíu. Prinsessan kona hans fer toeð honum alla leið til herstöðva Grikkja nyrðra. Larissa, og dvelur þar Hokkra daga. Fer hún til að sjá hvaða nmbúnaður hefir verið gerður til að þjúkra særðummönnum. Allharður jarðskjálfti aftur í Mont- real aðfaranótt hins 27, Marz. Varð Vart við hristinginn hér og þar í Que- ^c-fylki, austan til í Ontario og í norð- frhluta New York-ríki. Ríkisstjórnin'í Minnesotp, hefir á- kveðið að fjoTga ríkisþingmönnúm sVo, nemur 11 alls. Efri deildarþingmönn-. um verður f jölgað um 6 —verða í þeirri deild 60; í neðri deild bætast við 5, — verða þar 119. Sem stendur hafa efrideildarþiúg- menn Bandaríkja þjóðþings lítið að gera og ræða því sem aftekur um hvort heppilegra verði að leyfa alþýðu að kjósa sig eða halda uppteknum hætti. Fádæma ofsaveður á Kyrrahafs- ströndinni í gær. Hefti umferð á Pu- getfirði og olli eignatjóni í Tacoma, Wash. og Portland, Oregon. C. P. R. fólagið hefir ákveðið að bj'ggja innan skamms járnbraut frá Wabigoon — hinum nýja námabæ, 100 mílur austur frá Rat Portage — suður að Rainy-vatni. MÁNUDAG 29. NÓV. Ráðherrar stórveldanna í Konstant- ínópel höfðu fund í gær (sunnudag) og sömdu bróf til Grikkja þar sem skorað er á þá að víkja frá landamærunum. Samskonar bréf var sent til soldáns með sömu áskorun. Fylgir það bréfunum, að ef önnur hvor stjórn neiti.verði helztu höfnum hennar lokað tafarlaust. Sam- tímis kemur sú fregn austan yfir hafið, að þessi tillaga sé í fyrstu frá Grikkjum sjálfum og að ástæðan sé sú, að Tyrkir hafi orðið fyrri til að ná haldi á vegum öllum um fjallaskörðin á landamærun- um og að í þeim skörðum séu þeir helzt óvinnandi. Grikkjum hafi því komið í hug að spana stórveldin til þess arna og í þeim tilgangi að gera snögt áhlaup sjálíir og ná skörðunum undir eins og Tyrkir eru burt þaðan. Rússar hafa 200,000 menn vígbúna í suðausturhéruð- um Rússlands, og skipastól á Svartahafi við hendina dag og nótt til að flytja her- menn hvert sem vera vill. Þeir búast við illhrifum í grend við Konstantinópel nú á degi hverjum. Monsignor Merry del Val, fulltrúi páfans í Canada, kom til New York í gær. Páfa-málin í N orður-Ameríku ættu nú að hafa góðan byr framvegis, þar sem “hinn heilagi faðir” nú hefir sinn fulltrúann I hverju ríki, Banda- ríkjum og Canada. I dag verður lagt fyrir sambands- þing Canada frumvarp til laga þess efn is, að sambandsstjórnin skuli hætta að búa út eórst*Va kjorskíá, nn að farið skuli eftir kjörskrá hinna ýmsu fylkja í sambandinu. Það er líkt á komið með Spánverj- um og Tyrkjum að því leyti, að hvorug- ir hafa efni á að greiða hermönnum sín- um ákveðin laun. Hermenn Spánverja á Cuba eiga nú inni 7 mánaða laun og hóta nú að bíða ekki lengur, en ganga úr þjónustu stjórnarinnar,—með öðrum orðum hóta að gera sérstaka uppreist gegn stjórninni. Fellibylur olli lífs og eignatjóni í Texas í gær. ÞRIÐJUDAG, 30. MARZ. Fregn frá Ottawa segir að Macin- tosh governor yfir Norðvesturhéruðun- um sé búinn að segja af sér og að Sir Henri Joly de Lothbiniere verði eftir- maður hans. Sir Henri er 68 ára gam- all, — er mikilhæfur maður og hefir lagt sig fram alla æfi að sameina þjóð- flokkana eystra og eyða öllu þjóðflokka stríði. Þjóðþiugsmenn Bandaríkja tala nú um að láta toll-lögin nýju—Dingley- lögin— öðlast lagagildi áður en þau eru samþykt og staðfest. Þ. e.: þeir vilja leggja þann tollá varninginn nú þegar, semjákveðinn er í toll-lagafrumvarpinu Hafa þeir leitað upplýsinga um þettu hjá lögfróðum mönnum, sem kvað segja það gerlegt. I neðri deild sambandsþings Cana- da sitja nú 119 'liberalar’, 80 conserva- tivar, 3 óháðir conservatívar, 5 patrón- ar. I 5 kjördeildum hafa kosningar ver- ið dæmdar ógildar og ekki búið að kjósa aftur, i þessum: Winnipeg og Macdanald í Manitoba, Champlain í Qubec, Colchester í Nova Scotia og á Prince Edward eyju. — í efri deild er nú hvert sæti skipað, i fyrsta skifti í 10 ár. Þingmenn í þeirri deild þess vegna nú 81. Frumvarp til laga var borið fram á þjóðþingi Bandaríkja í gær, um að veita Havai lýðveldinu inngöngu í Bandaríkjasambandið og veita því full ríkisréttindi. Ríkið á að heita Havai- ríki>=*State of Havai. MIÐVIKUDAG, 31. MABZ. Smáorusta átti sér stað nú rótt ný- lega i Macedoniuog féllu þar 12menn af Tyrkjum, þar á meðal þýzkur fyrirliði, og um 20 særðust, Nokkrir menn grískjr höfðu farið >flr landamærin, en hörfuðu til baka eftir þessa skrárnu. Eftirmaður Maceos á Cuba, Ru's Riviera að nafni, er nú fangaður og í haldi hjá Spánverjum. Hafði særzt í smáorustu og var þar tekin af Spán- verjum. Grikkir skora á stórveldin að opna aftur tafarlaust hafnir allar á Krít. Segja líf eyjarskeggja liggja við. Fellibylur varð 150 manns að bana í Oklahama í gær og lagði í rústir þorp með 1500 íbúum. — Flóðið sama í Mis- sissippi, Utlit nú að fljótið sogi burt öll- um ilóðgörðum. Eignatjón nú orðið ó- metanlegt. / Islendinga-dagrinn. Svar til ritstj. “Heimskringlu.” Eftir Jón Ólafsson. Ghieago, 27. Marz, 1897. Herra ritstjóri. — í svari yðar til mín í síðasta bl. um íslendinga- daginn, ræðið þér þrjú atriði: 1. Hvernig Islendingadags- hald sé tilkomið og hversu þið átt- menningar hugsið ykkr að breyta því. 2. Þýðing 2. Ágústs sem merk- isdags. 3. Setning alþingis ins forna, íslands-fundar og upphaf vestrfara frá Islandi. Ég skal nú, ef þér leyfið, minn- ast á þetta hvað um sig, þó svo, að ég tek 1. atriðið fyrst til umræðu, 2. atriðið síðast, en ið 3. í miðið. Fyrsta atriðið, hvort það hafi verið með nokkru “valdboði” að Is- lendingadags-hald komst- hér fyrst á, og hvort það kenni nokkurs valdboðs, að þið áttii menn ótilkvaddir takið að ykkr að velja fyrir oss alla Vest- ur-fslendinga nýjan dag, það hefir í sjálfu sér minsta þýðing fyrir málið. Skal ég því sem styzt um það ræða. Fyrsti ^slendinga-dagp var hald- inn hér í álfu sjálfan þjóðhátíðardag- inn 2. Ágúst 1874 i Milwaukee, WiS., og var ég þar hvatamaðr að og hélt þar aðalræðuna (séra Jón Bjarnason prédikaði fyrst I kvrkju). Síðan ból- aði ekki á neinu í þá átt fyrri en ég koin vestr 1890. Þá kom ég því til Ieiðar að ritstjórar blaðanna (þér og ég, Einar Hjórleifsson og Gestur Pálsson) ásamt forsetum eða fulltrú- um allra íslenzlcra félaga, er þá vóru í Winnipeg, tóku sig fram uní að boða til íslendingadags-halds, er fram fór 2. Ágúsi það ár. Við tókum oss ekkert vald til að velja öðrum dag, erv hvöttum að eins landa á öðrum stöðum til að halda daginn. I þessu lá ekkert valdboð. Úr þvi að þér nú skýrið fiyá, að almennr fundr ianda I Winnipeg eigi að ákveðadaginn þar, þá er heldr ekki hér um neitt vald- boð að tala fyrir Winnipeg. Hitt kann að virðast kynlegri ákvörðun1) að Islendingar hér vestra utan Winnipeg, megi ekki fá kost á að greiða sín atkvæði um málið, fyrri en Winnipeg er búin að sýna, hvað þar verður ofan á (til leiðbeiningar og fyrirmyndar fyrir oss alla hina?) En ég fev ekki lengra út í það. Winnipeg-landar hafa stöðugt til þessa, hvert sinn sem þeir liafa átt kost á að ráða þessu máli til lykta & almennum fundi, haldið fast við 2. Ágúst, og ég vona þeir geri það enn. Þá vík ég að setningardegi al- þingis ins forna. Þér segið, að mér skjátli f þvf, er ég segi, að þið átt- menningamir hafið ekki vitað, hvern dag það var sett. En einmitt svar yðar sýnir, að mér hefir ekki skjútlað þar. Það er nefnilega auðséð á svari yðar, að þér skiljið ekki ið fornatíma- tal né muninn og tilsvörunina milli þess og ins nýja stýls. Þér segið, að dagrinn, sem til var tekinn af ykkr, sé samkvæmt inu gamla tfmatali. Ætlizt þið þá til, að halda daginn nú samkvænit t/amla st.ýl ? Þá þurfið þér að vita, hve nær 11, og 17. Júní eftir gamla stýl fellr í ár. En það er mér nær að halda að þér vitið ekki. Það ræð i'-g af þvf, að þér haldið, að sömu mánaðardjigarnir, sem mörkuðú 9, viku sumars 9.30, nlarki þessa sumar- viku enn í dag. En það gera þeir ekki, hvorki eftir nýja né gamlastýl. Gamli stýll hafði nefnilega árið of stutt, og því munar honum æ lengra og lenga frá réttu lagi. Rússar fylgja enn í dag gamla stýl, og munar nú timareikningi þeirra 12 dögum frá vorum. Jafndægra bil er að eðli sínu fast og óraskanlegt timabil á hverju ári, og svo er það og að voru tímatali (20. Marz og 22. Sept.) En eftir garnla stýl var þetta (og er, þar sem hoaum er enn fylgt) sffelt að breytast svo að jafndægra-dagarnir eru sifelt að færast fjær 20. Marz og 23. Sepfember. Nú var það svo, að forfeðr vorir bundu aldrei þingsetn- ingarda r sinn við mánaðardag, heldr við vikudag og sumarvikutal. Þeir bundu' '.•/'« samkomudaginn við þann fimtuda er orðið gæti í fyrsta lagi 11. og ' síðasta lagi 17. Jfiní. Eftir þeirra ttmatali bar hann að vísu þá upp á þetta dagabil, en þeirra tíma- tal vai gamli stýll, og samkvæmt gamla stýl er nú þetta mánaðardaga- tal ekki lengr óbreytt, þótt menn vildi fylgja því. Það er algerðr misskii.óngr, að merkidagar fiestir sem til voru áðr en Gregoríusar- tfmatalið náði gildi, haldist “óbreytt” enn, ef þér með þessu óbreyttir eigið við, að þeir sé nfi taldir sama mán- aðardaga, sem þá var talið. Jóns- messa tr ekki eftir nýja stýl 4- Júlí, heldur 24. Júní, og þannig er hún á- valt talin. Ef við göngum út frá jafndægradögunum, sem eru óbreyti- leg tím.unót á hverju ári, þá falla sumarvíkur alveg á sama tíma, frá þeim miðað, nú sem þær hafa rétti- lega ge 't um allan aldr. Þær eru einmitt leyfar af voru forna tíraatali. Það eru mánaðardaga dagsetning- arnar, sem féllu öðruvísi í gamla stýl en nú, og það sem hefir vilt yðr, er það, acf Maurer og aðrir fleiri menn (t. d. Guðbr. Vigf.) geta þess, hvaða mánaðardag eftir gamla stýl hinir og þessir viðburðir hafi átt sér stað. Sumardagr fyrsti var og er hreyfan- legr nv rkisdagur, en aldrei munuð þcir fln ta hann f almanaki voru, ef þé".L, *.J ð’e'.tft hano, á þeim mán- aðardögum, sem mörkuðu hreyfing hans eftir gamla stýl. Ekki veit ég, hvaðan þér hafið það, að Kjalarnesþing hafi verið “héraðsþing og ekkert annað.” Ekki er Guðbrandur Vigfússon á því máli. Hann segir: “Fyrir árið 930 var alls-Jierjar-'þmg háð á Kjalarnesi, en þaðan þar það flutt til Öxarár og þá nefnt Alþingi.” Þetta staðfestir og Hænsaþórissaga (14. kap.), er hún segir: “en þingit var þá undir Ár- mannsfelli,” þ. e. 1% var búið að flytja þingið til Öxarár. Ari fróði segir um þing það, er Þorsteinn Ing- ólfsson stofnaði, að ýmsir aðrir höfð- ifigjar hafi að því horfið með honum. Mérer nú spurn : hvernig geta höfð- ingjar háð þing með sér og gert menn á því seka með dómi, nema einhver lög og stjórn sé í landi. Þetta var þá gert á Kjalarnesþingi, og var ljós vottr þess, að lög og stjórn vóru þar þá til. Var það konungsveldi nor- rænt ? Var það annað fitlent vald, er þar var skipað ? Ef ekki, var það þá ekki fyrsta upphaf íslenzkrar þjóðstjómar ? Ekki veit ög heldr á hverju þér byggið það, að sennilegt sé að Garð- ar Svafarson hafi fundið ísland á undan Naddaði. Ari segir, að Garð- ar híifi farið “at leita Snœlattds at ráði móður sinnar framsýnnar.” Hvernig gat hann farið að “leita Snælands”, ef landið var eigi áðr fundið og nefnt því nafni ? Eða er Ari ótrfiari um þetta atriði en önnur? En þótt það hefði Garðar verið, þí eru engar líkur komnar fyrir því, að hann hafi til Islands komið í Júnf.ísa mun leysa í Danmörku venjulega f Marz-byrjun, og fiesta vetr er sjór þar ófrosinn. Garðar gat þvf lagt þaðan fit í Marz-byrjun og komið til íslands f Marz eða Apríl. Hann gat og farið síðar og komíð til íslands í Marz, Apríl, Maí, .Tfiní, Júlf eðaenda Agúst og þá siglt umhverfis land og reist hús fyrir vetrnætr. Eg hefi aldrei sagt það óhugsandi, að fsland væri fundið í Jfiní, en ég segi, að enginn geti komið með inar minstu líkur fyrir, að það hafi fremur verið í þeim mánuði en öðram vormánuði eða sumarmánuðum Það eruð þið sem hafið fullyrt, að líkur væri til þessa, og á ykkr hvílir því að sýna fram á þær líkur. En eftir yður sögn eru þær þessar: “Það er engan veginn víst, að Naddaðr hafi fyrst fundið landið”; “þá má alt eins aitia að Garðar hafi fundið það”; og það sýnist “engan veginn óliklegt11 að hann hafi getað náð til íslands í Júnní. — Á þennan hátt má færa líkur að mörgu. T. d.: Það er engan veginn víst, að Garðar hafi fundið ísland á undan Naddaði, og það má alt eins ætla, að einhver norskur víkingr, sem hafi heitið Beési, hafi siglt þangað fgrst. Og með þvf að aldrei leggr hafnir á vesturströnd Noregs, má ætla að hann hafi lagt í haf þaðan 17. Marz, og með því að Landnáma telr þaðan viku sigling til Islands, er engan veginn ólí/clegt að hann hafi náð þangað á hálfum mán- uði, og er þá vel í lagt, og hafi því komið til Islands 1. Apríl. Nfi liefi ég fært líkur til að Bessi víkingr hafi fyrstr fundið fsland 1. Apríl og hlaupið Apríl þar á land, og þannig verið fyrstr maður, sem hljóp Apríl á íslandi. Og ég fæ ekki betr séð, en að þessar líkur hafi jafnmikið vísindalegt gildi, eins og “líkur” yðar fyrir fyrsta íslandsfundi í Júní. Ef yðr þykir það svo dýrlegt minningar.að fimm íslendingar komu til Bandaríkjanna í Jfiní 1870, því fáið þér þá ekki hjá þeim vitneskju um hvaða dag þeir stigu hér fæti á land, og stingið svo upp á að gera þann dag að hátíðisdegi. Þá þyrftuð þið áttmenningar ekki að vera að vandræðast með hreyfanlega hátíð né lenda f hafvillum í “gamla stýl ” En vitanlega er þá ekkert vit í að kalla þann dag fslendingadag, heldr Vestr-íslendinga-dag eða Vestrfara- dag, því það getið þið þó víst ekki ætlazt til, að in islenzJca þjóð í heild sinni fari að dýrka þann dag. Þá kemr ið síðasta umtalsefnið: 2. Ágúst. Þar þykir mér nfi fyrst kasta tólfunum. ívr segið að íslendingar álíti stjórnarskrána “óhafandi og einskis nýta”. Eg skal öruggr f'ull- yrða það, að enginn sá alþingismaðr er enn f'æddr á íslandi eða mun nokkru sinni þar til vera, sem hefir þetta álit. Enginn maðr með allan mjalla, sem nokkuð þekkir til stjóra- arskipunar íslands nú og fyr, getr látið sér slíkan barnaskap í hug koma, þvf sfðr um munn fara. Að á stjórn arskrá fslands sé stórgallar, það er annáð mál; að hún sé fjarri því að vera landinu svo hagkvæm, sem hún ætti að vera, og veiti engan veginn landsmönnum svo fullt sjálfsforræði sem rétt og eðlilegast væri, það skal ég fúslega játa. En hafið þér hug- mynd um réttleysásástandið, sem áðr var ? Þér kallið stjórnarskrá íslands “stjórnarskrárræfil, sem tæplega einn einasti íslendingr vill nýta.” Hefir nokkr farið fram á, að hfin yrði fir lögum numin ? Nefnið einn einasta íslending, sem er með fullu ráði, sem vilji heldr vera án stjórnarskrárinnar en að hafa hana eins og hún er. Gætið að þvf, að livað margt sem áfátt er á íslandi og hve æskilegt sem væri, að framfarir væru þar meiri, þá hefir þó þjóðin tekið meiri fram- forum á þeim 23 árum, sem stjórnar- skráin hefir nú I gildi verið, heldr en á nokkrum tveim öldum áðr. Þó að ísland fengi að smfða sér sjálft allar þær umbætr, er það ós*kar á stjórnarskrá sinni og fengi þá frjáls- legustu stjórnarskrá, sem það mundi kjósa, þá væri sporið frá þeirri ófull- komnu stjórnarskrá, sem nú er í gildi, til þessarara nýju og fullkomnu, smátt spor að tiltölu í samanburði við það stóra risafet, sem þjóðréttindi og sjálfsforræði íslands sté 1874. “Þeir sem hér vaxa upp, vita hvað sjálfræði þýðir,” ritið þér, og þetta ritið þér í Winnipeg í Manitoba í Canada! Vitið þér þá eigi, að ís- land hefir frjdlslegri stjórnarskrá eli Manitoba eðr nokkurt annað fylki í Canada? Hitt er annað mál, að stjórna rframJcvæmdinni sé oftari hverju frjálslegar hagað í Canada en á Islandi. Vitið þér ckki, að Breta- þing liefir að lögum fullan rétt til að gefa lög fyrir hvert fylki í Canada, ef það vill því beita? Vitið þér ekki, að brezka stjórnin getr skipað Domi- nion-stjórninni að neyða lögum upp á t. d. Manitoba, ef Manitoba vill ekki sjálf hlýða því að breyta lðgum sín- um eins og fyrir hana er lagt ? Hafið þér gleymt skólamálinu ? Vitið þér hinsvegar, að rikisþing Dana getr engin lög gefið um neitt mál, sem er íslands sérstakt málefni ? Vitið þér, :ið stjórnin getr ekki skipað fslandi eða neytt það til, að búa til eða sam- þykkja nein lög, sem íslandi sjálfu eru óljfif? Vitið þér, herra ritstjóri, að það er miklu meira vert fyrir hverja þjóð, að hafa hyggindi til að koma á hjá sér fastri frjálslegri stjórnvenju, en að hafa lrjálslega stjórnarskrá á papp- ír? Vitið þér, að England hefir alls enga ritaða stjórnarskrá, þótt það sé frjálsasta land í heimi að mörgu leyti? Vitið þér að Danir hafa miklu frjáls- legri stjórnarskrá en íslendingar, en búa þó nú við meira ófrelsi og ósjálf- ræði í sínum eigin máium ? Víst er það mein, hve tregt og seint íslendingum gjengr að fá fram- gengt endrbótum á s'fjórnarskrá sinni en margtalt meira mein er það, að þeir eru enn, sem von er til, mikil börn í framsýni og stjórnkænsku, svo að ofiftil festa er hjá þeim í viðleitn- inni til, að liðka stjórnarframkvwmd- ina í frjálslegt horf. En hverra framfara sem fslandi verðr héðan af auðið, hvort heldr í •jálslegri stjórnarframkvæmd eða í lagfæring á pappírsstjón.arskrá sinni, þá hljóta þær allar að byggjast á þeim sjálfsforræðis-grundvelli, sem er órjúfanlega lagðr með inni ófull- komnu stjórnarskrá frá 1874. Stjórnarskráin 1874 hjó með öllu af oss yfirráð Dana í vorum sérstöku málum. Iöggjöf vorer alveg í hönd- um aJþingis og konungs. Konungur hefir þar jafnrétti við alþingi, en , enga vfirhönd vfir því, og það er meira en nokkur brezkr þegn í Can- ada getr sagt um sína stjórn. Ég veit það ettt, að síðan ísland gekk undir konungsvald, hcfir eng- inn viðburðr orðið í sögu þess, er hafi neitt sviplíka þýðing fyrir landið eða geti verið slíkt fagnaðarefni fyr- ir það, eins og sjálfstjórnarréttr sá, sem það fékk með stjórnarskránni 1874; og hve mikils aukins frelsis sem það kann að verða aðnjótandi hér eftir, er torvelt að hugsa sc’t nokkra þá breyting á hag þess, er jafnmikilvæga þýðing fái tiltíilulega hvað þá heldr meiri. Og þessi verðr þó jafnan grundvöllrinn héðan af. Eitt er loksins markvert. Þér minnizt ekkert á það, hvernig á því stendr, að þær bygðir landa hér, sera hafa haldið minningardag einhvern annan dag en 2. Ágúst, hafa flestar valið til þess tfma, sem stendr nær 2. Ágfist, heldr en fimtudeginum ykkar áttmerininga, i miðjum Jfiní. Og svo er enn eitt. Þetta er mál sem eigi er auðið að útkljá með nein- um atkvæðagreiðslum á þann veg, að neinir menn verði við þau úrslit bundnir, ef þeim er það óljfift. Winnipeg getr haldið daginn eftir sínum ákvæðum, Argyle eftir sínum, Minneota eftir sínum o. s. frv., en engir geta bundið hendr annara. Þetta er þcss leiðis mál, að hver bygð verðr að ráða sér. Það er að eins með tíma og tíð, að venja kann að geta helgað og fest einn sameigileg- an dag; en með samþyktum verðr það örðugt. íslendingadagshald hefir farið vonum fremr vel til þessa. Ég sé engin merki þess, að þjóðminningar- dagr vor sé að verða að engu. Þrai t á móti virðist sem menn sé farnir að halda sér minningardag í fleiri bvgð- um nú en áðr, þótt ekki hafl allirenn valið sama dag. Varið yðr, að þessi tilraun ykkar verði ekki til sundr- ungar fremr en sameiningar. Ég þykist sjá, hvað á baki hennar býr ; ef ég sé það rétt, þá veit ég að fáa mun yðra meira en yðr, herra rit- stjóri, ef afleiðingarnar verða þær sem ég óttast.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.