Heimskringla - 15.04.1897, Síða 4

Heimskringla - 15.04.1897, Síða 4
HEIMSKRINGLA 15 APRÍL 1897. Winnipeg. Það er talið víst að tveir Manitoba menn fái heiðursnafnbætur i vor í minn ingu um 60 ára stjórnarafmæli Victoríu drottningar, — þeir T. W. Taylor yfir- dómari og Hon. Thomas Greenway. Landmælingamenn lögðu af stað héðan úr bænum fyrir síðustu helgi, til að mæla land í Swan River-héraðinu og víðar norð-vestur frá Dauphin-héraðinu. —Flóð meðfram Dauphin-brautinni hefir ollað tjóni nokkru að undanförnu og tafið lestagang á brautinni. Hr. Andrés J. Skagfeld kom til bæj- arins snögga ferð í vikunni sem leið. Er hann nú fluttur til Selkirk frá Geysir og hefir selt bújörð sína við fljótið hr. Tómasi Björnsyni. Er hann helzt að hugsa um að kaupa land annaðhvort á milli Winnipeg og Selkirk, eða einhvers- staðar í grend við»Selkirk. Hra. Sigurður Thorarensen, sem að undanförnu hefir verið aðstaðar ritstjóri “Lögbergs”, hefir tekið að sér skóla- •kenslu i Vestfold skóla í Grunnavatns- bygð og leggur af stað þangað þessa daganna. Samskotin tfl hjálpar fólki á Ind- landi, sem send hafa verið Patterson fylkisstjóra, urðu samtals $18,391,04. Auk þessa hafa margir í fylkinu sent samskot austur, ýmist til blaða eða samskotanefndarinnar í Ottawa. Það er því áætlað að Manitobamenn hafi gefið yfir $20,000 alls. íslands-blöð bárust oss á þriðjudag. Stórtíðindi engin í þeim. Tíð góð á Suðurlandi og afli talsverður. Meðal annara blaða kom Sunnanfari (Febr. og Marz), er flytur myndir af tveimur bændum: Hallgrími Jónssyni bónda á Akranesi og Jóni Hjörleifssyui bónda undir Eyjafjöllum. Þá flytur og blaðið mynd og æfiágrip Konráðs Gislasonar. Hr. Guðmundur S. Nordal, sonur Sigurðar Nordals póstmeistara að Geys- ir, hefir leigt stóra bújörð i Headingley, við Assiniboine ána um 12—13 mílur frá Winnipeg og er alfluttur þangað. Ligg- ur land hans samhliða ábýlisjörð hr. A. F. Reykdals, sem einnig er nýfluttur vestur þangað. Stephan kaupmaður Sigurðsson að Hnausum kom til bæjarins snöggva ferð um síðustu helgi. Gufubatur þeirra bræðra, í Selkirk, er nú tilbúinn til að hleypa honum af stokkunum. Byrðing- urlnn er fullgerður og vélarnar komnar upp, en eftir að fullgera yfirbyggingu á þilfarinu m. fl., en fullgerður verður báturinn sjálfsagt að öllu leyti áður en is leysir af Winnipegvatni. Erþað Gimli-bryggjan f Það er enn ekki komin nein heildleg skýrsla um f játr veitingar áætlaðar á næsta f járlmgs- ári, en í fréttamolnm þeim sertt blöðin hafa fært, er sagt, að í áætlana skránni sé $8,500 veiting fyrir bryggjur við Winnipegvatn. — Það er ástæða iil að ímynda sér að þar sé hugsað til bryggju á Gimli, en svo þurfa nú víðar bryggjur, ef menn fara að reka náma- vinnu við vatnið. Hr. Stephan Oddleifsson frá Geysir, Man., kom til bæjarins snögga ferð á laugardaginn. Tíðindalaust sagði hann úr bygð sinni að öðru en því, að nú eru Geysirbúar búnir að höggva hris og skóg af fljót.sbökkunum og vona nú að sú trjáviðarflækja hindri ekki framrás vatnsins. Annars eru menn þar ekki eins hræddir um flóð nú, nema ef rign- ingar miklar skyldu koma. -Snjórinn fer svo hægt, að þó hann sé óvanalega mikill, gætir snjóvatnsins mjög litið. í ' ‘Open Court” (Apríl heftinu) er fróðleg ritgerð um bæjarstjórn í Chicago eftir Lyman, J. Gage, hinn nýja fjár- málastjóra Bandaríkja. í sama hefti er ritgerð um Chicago fyrir 76 árum síðan, eftir kristniboða. Þar er og fróðleg rit- gerð með myndum, um leynidómstóla og pintíngartilfæri kyrkjunnar á fyrri öldum, eftir ritstjóra tímaritsins Dr. Paul Carus. — Tímarit þetta kostar $1 um árið og fæst hjá Open Court Publ. Co., Chicago. Conservativar hér í bænum hafa af- ráðið að taka engan þátt í dominion- aukakosningunum sem hér fara fram ÍDnan fárradaga. Sjá skkert unnið við það undir kringumstæðunum, enda út- litið ekki sem bezt, af því talið var sjálf- sagt, á fundinum þegar þetta var af- ráðið, að bíndindismenn og verka- mannafélögin væru að sameina sig í þeim tilgangi að etja út manni gegn Jameson. En að hafa þrjá menn í sókn- inni þótti ekki álitlegt. íslenzkur hornleikara flokkur er að komast upp hér í bænum, undir for- Btöðu hra. H. Lárussonar. I félagi þessu eru nú 12 menn, sem æfa sig nú af kappi og una að geta skemt mönnum á opin- berura mannfundum í sumar. Það er sannarlega tími tilkomin, að Islending- ar hér í bænum eigi sinn sérstaka horn- leikara flokk og þessvegna óskandi að þessir félagsmenn hafi kringumstæður tilaðlialda saman og balda áfram sem hornleikara félag. ALGrENGT. Skemtisamkoma hins ísl. leikfimis- félags á fimtudagskvöldið var, var vel sótt — húsið að heita mátti troðfult. Auk almennra íþrótta og sem æfðar voru á samkomu félagsins í fyrra, kom nú fram hr. Jón Guðlaugsson og lék á slökum vír, eða “línu,” og sýndi aðauki snildarlegar íþróttir, er hann beygði sig og sveigði alla vega og fór yfir höfuð að tala með líkamann eins og væri hann gerður úr teigleðri en ekki holdi og bein- um. Af upplestri eða listlestri var það bezt “stykkið” er J. K. Johnson flutti, —lýsing á fornri “Chariot race” úr sög- unni "Ben Hur.” Það var snildarlega fram borið, en heldur ótt bar hann á með köflum. — Þegar á alt er litið var sam- koman þó tæplega eins góð og sú í fyrra. Holdsveikislæknirinn frá Tracadie, New Brunswick, lagði af stað heímleið- is á sunnudaginn 11. Apríl með holds- veiku íslendingana þrjá — konu og 2 menn einhleypa. Var þeim fengin sér- stakur vagn, sem enginn fær að hafa umgang um á leiðinni, nema læknirinn og þjónustufólk, og verða þeir í þeim vagni alla leið austur. Dr. Smith brá sér tilSelkirk og skoðaði þar íslenzkan mann, sem menn héldu að væri holds- veikur, en sagði að þar væri ekki um neinn slíkan sjúkdóm að gera. Til þess þó að vera viss tók hann með sér blóð- vessa úr sjúklingnum, sem hann rann- sakar síðar. í sambandi við þetta má geta þess að í ‘Tribune’ hefir birzt bréf frá manni vestur í landi — í sænskri ný lendu —, sem þykist hafa lesið skýrslur Dr. Ehlers, og sem vill að íslendingum sé bönnuð landganga, er þeir koma af íslandi, þangað til búið sé að skoða hvern einstakling og víst orðið að eng- in holdsveiki sé í hópnum. Séra M. J. Skaptason kom heim á laugardaginn var úr ferðsinni um Nýja ísland. Að loknum preststörfum i ný- lendunni brá hann sér til gull-landsins fyrir austan vatnið og festi sér námalóð í grend við svonefnt ‘Split Rock’ (klofna klett), austur af Mikley. Þegar hann fór úr Nýja-íslandi voru þeir feðgar Kjartan Stefánsson og Stefán Jónsson í Mikley að fara af stað til Hole River og ætluðu að koma upp greiðasöluhúsi við ána eða í grend við hana, enda er það nauðsynlegt, því eins og nú er geta guU- leitendur hvergi fengið keyptan greiða og helstekki skýli yfirhöfuðið. Annars eru horfur á að ekki verði þurð á greiða- söluhúsum, verzlunarhúsum o. s. frv. í þessu nýfundna gulllandi, þegar ís leys- ir af vatninu, því hérlendir menn marg- ir eru að sögn tilbúnir að byggja undir eins og þeir geta fengið byggingaefni flutt á staðinn. Á meðan séra Magnús var í Nýja-íslandi hitti hann náma- fræðing, sem kom að norðan og sem var að leita að gullnámum fyrir sjö sérskyld námafélög. Hræðileg lijartveiki. Dauðanum bandað frá með hinu maka- lausa lyfi Dr. Agnews Cure for the Heart. Saga Mrs. Woodhouse frá Wellscroft, Ont., tekur flestu fram. Þegar hjartveiki er komin á hátt stig er nauðsynlegt að fá meðal sem læknar fljótt, annars getur alt verið ónýtt. Mrs. Woodhouse frá Wellcroft, Ont., segir : Kaldur sviti stóð í hnöppum á andlitinu á, mér, sem kom til af ákafri hjartveiki. Eg fann oft til þess að dauðinn hlyti að vera nærri. Mér batnaði af engu með- ali þangað til ég fékk Dr. Agnews Cure for the Heart. Á þrjátíu minútum voru kvalirnar horfnar og þegar ég var búin með lítið meira en eina flösku, var veik- inni lokið. Nú finn ég ekkert tU hennar. Margír þingmenn 1 neðtl inálstofunni hafa þjáðst af Catarrh. Fimmtíu þeirra hafa læknað sig með Dr. Ag- news Catarrhal Powder. Þetta með- al segir sjálft söguna—það læknar. Mr. W.H. Benet, þingmaður fyTÍr East Simcoe, og fjörutíu og níu aðrir þing- menn í neðri málstofunni, hafa sjálfir skýrt frá því bréflega, að þeir hafi haft mikið gagn af Dr. Agnews Catarrhal Powder. Það sem þetta meðal hefir gert fyrir þessa þingmenn, gerir það einnig fyrir fjölda manna af öUum stéttum víðsverar um Canada. Ef maður hefir kvef í höfðinu, linar það þrautirnar á hálfum tíma og að mjöe stuttum tíma liðnum er maður alveg Jaus við þennan ófögnuð. Það er þægilegt að brúka það og hefir engin skemmandi áhrií. DTAmtHaSA, DYSENTERT, andall BOWEE COMPEAINTS. A Sure, Bafe, Qulck Curo for these troublca ifl 'Pðíin-KiUevj (raRRT dattb’.) Esed laternally and Extemally.. Two Sizea, SBc. and BOc. bottles. b> 4> 4> s3 Slæmt ástand á meðal margra þásunda manna í Canada. Blóðið er slæmt, og veikinda efni í því. Paines Celery Compound er hið mikla voP-hreinsunar- meðal. ER BLÓÐIÐ í ÞER ÓHREINT OG EITRAÐ ? Það er óhreint ef þú hefir útbrot eða bólur, sár eða heimakomu. Af því þú hefir þessa kvilla máttu vera viss um að blóðið er stöðugt að flytja eitruð efni út um líkamann. Til þess þú sért hreinn. heilbrigður og hraustur, verður þú að bróka Paines Celery Compound. Hin styrkjandi á- hrif þess sýna sig undireins. Það er ó- viðjafnanlegt til heilsubótar. Það er líklegt. að engin taugameð- öl, bitterar, SarsapariUa eða pillur, geti upprætt sjúkdómsefnin, sem í þér eru og sem þér er svo mikill háski af. Til þess að þú hafir rautt og hreint blóð, gott útlit og góða meltingu, þarftu að hafa Paines Celery Compound, sem hef- ir gert svo mörg furðuverk að undan- förnu. Gáið að eftirstælingum, sem alt af eru boðnar fyrir Paines Celery Com- pound. Þessar eftirstælingar eru seldar i stað hins rétta meðals, af því það er meiri ábati í að selja þau. Heimtaða 'Paines’, sem læknar. FUNDUR fyrir íslendinga í Winnipeg á lang- ardagskvöldið kemur kl. 8 í Unity Hall. Og fyriríslend. í WEST SELKIRK næstkomandi þriðjudagskvöld kL 8. Á laugardagskveldið kemur (17 þ. m.) klukkan 8. bjóða þeir félagar Mr. S. B. Jónson og Rev. M. J. Skaptason, ís- lendingum til samfundar í samkomu- húsi Unitara hér í bænum, til þess að kynna mönnum árangurin af starfi sínu viðvíkjandi hinni nýju sláttuvél þeirra félaga. Meðal annars verða þar lagðir fram til sýnis uppdrættir allir að vélinni, með öllum nauðsynlegum útskýringum um bygging vélarinnar og hennar sér- staka gildi. Og jafnframt verður álits manna leitað um það, hvort auðið sé að tryggja íslendingum hér i landi ríflegan skerf af arði fyrirtækisins. Allir velkomnir. Samskonar fund búast þeir félagar við að halda meðal Islendinga i West Selkirk næstkomandi þriðjudagskvöld kl. 8. Þegar þór þnrfið að fá yður föt eða eitthvað það er fatnaði tilheyrir, þá viljum vér ráða yður til að koma við í nyrðri búð þeirra Hoover and Town og skoða hinar ágætu vörur þeirra og spyrja um verðið. Hr. Kristján Benediktsson vinnur í þúðinni, og er honum ánægja að geta gettð Is- lendingum betri kaup en þeir geta fengið annarsstaðar í bænum. Kom- ið inn og skoðið vörurnar. Hoover iiml Towd, 680 Main Str. Næstudyr fyrirsunnanClifton Ilouse Eldsabyrgd Vér vonum að Islendingar komi til okkar þegar þeir þurfa að sotja hús, innanhúsmuni og verzlunar- vörur í eldsábyrgð. Vér höfum sterk og áreiðaniep félög, og ger- um vel við þá sem skifta við oss. Carruthers & Brock, 4J>» iTIaln St. Fádæma kjörkaup. Gott og ódýrt hús og lot til sölu í Glenboro, stærð t4pí20, og stórt cldhús áfast við, stærð 10X20, hofir verið brúk- að fyrir “Boardinghouse”. Ailir inisan stokks munir fást með, ef æskt er eftir, —Gott fjós fyigir og með í söluuni og ýmislegt fleira, Lysthafondur snúi sér persónulega eða bréflega til undirskrif- aðs. Glenboro, 12. Apríi 1897. Gísli Jónsson- FRETTIR. DAGBÓK. FIMTUDAG, 8. APRÍL. Bandaríkjastjórn hefir veitt $200 þús. til styrktar fólki sem beðið befir eignatjón við flóðið í Mississíppi og Rauðá. Yfirlæknir á vitskértraspítala í London á Englandi segist geta sannað með óhrekjandi skilríkjum að hinn nafn frægi fræðimaður og stjórnmálagarpur Bacon lávarður sé höfundur meistara- ritsmíðisins alls sem tileinkað er Willí- am Shakespeare; — er það sama kenn- ingin er Ignatius Donnelly hefir haldið fram allra manna öflugast í Norður- Ameríku. Svertingjar í grend við Transvaal og Delegoa-flóa hafa hafiðalmenna upp- reist gegn Portúgisumog stjórn þeirra. Sambandsþings aukakosningar fóru fram í gær í Champlain-kjördæmi í Quebec-fylki og unnu cönservatívar. Félag i Ontario vill fá styrk hjá Ontariostjórn til að byggja járnbraut frá Sault Ste. Marie, Ont., norður að James-vík á Hudsonsflóa. Segir hægt að fullgera brautina á 3 árum. Fielding fjármálastjóri Lauriers til- kynnir á þinginu, að verði Dingley-lög- in viðtekin á þjóðþingi Bandaríkja, ætli Canadastjórn að leggja toll á harð- koi öll sem keypt eru i Bandaríkjum og flutt til Canada. Bæjarstjórnarkosningar fóru fram viða í Bandaríkjum í fyrradag (þriðju- dag 6. Apríl) og höfðu demókratar víða yfirhöndina. Af því ráða menn að þjóðin sé nú farin að hallast meir að þeirra kenningu aftur, FÖSTUDAG, 9. APRÍL. Áætlunarskrá sambandsstjórnar yf- ir gjöld sín á næsta fjárhagsári var lögð fyrir sambandsþing í gær. Gjöldin að öllu samanlögðu eru áætluð $44,607, 238, en það er $223,000 minna en áætl- unin í fyrra fyrir yfirstandandi fjár- hagsár. Meðal annars sýnir gjalda- áætlun þessi, að framvegis ætlar sljórn in ekki að borga nema 3% vöxtu af fé alþýðu I stjórnarsparibönkunum. Með þeirri niðurfærslu ráðgerir stjórnin að að rýra gjöld sín á árinu svo nemur $170,500. Bryan forsetaefni meiddisj, í gær í Florida. Hafði verið að flytja ræðu á 30 feta háum palli. Á eftir ræöunni flyktust svo margir utan um hann, að pallurinn brotnaði og hrundu þá allir mennirnir til jarðar með trjáviðarbrot- unum. Mr. Bryan var meðvitundar- lausumstund, en hvergi beinbrotinn, þó hann meiddist talsvert á höfði og út limum. Flóðið í Rauðárdalnum er nú orðið meira en það um vorið 1882 umhverfis Grand Forks og Fargo. Áin byrjaði að flóa upp á aðal verzlunarstrætið í GraDd Forks i gær — Third Str., en þangað hefir flóð aldrei náð áður. Öntariostjórnin afræður að veita $3000 fyrir hverja mílu i Port Arthur og Rainy River brautina, af þeim 160— 170 mílum, sem eftir er að byggja. — Ef Manitobastjórn svo vill nálgast nú þess vegna sá tími, að Manitobamenn fái aðra járnbraut héðan austur að stór- vötnum. Kínakeisari hefir gefið samþykki sitt til að stofnaður verði í Peking banki með $5 milj. doll. höfuðstól. Kína stjórn hefir og ákveðið að auka herflota sinn að mun; kanpa 4brynskip, 2 hrað- fara iéttiskip og marga sprengibáta. Meðal fregna frá Ottawa, sem stund- um eru nokkuð ósennilegar um þing- tímann, er ein þess efnis, að sambands- stjórnin hafi nú sett 230 menn í senu á eftirlaunalistann. LAUGARDAG, 10. APRÍL. Um 1500 griskirhermenn fóru í gær morgun yfir landamærin og tóku til að herjá á Tyrki. Stóð orusta af og til all- ah daginn, en fregnir af úrslitunum ó- greinilegar, enda er þetta ein sú or- usta, sem hlutaðeigandi stjórnir gátu okki að gert og létu svo afskiftalausa. —Mikilvægasta fregnin að austan er í seinni tíð þess efnis, að Rússar hafi samþykt að leyfa Kríteyingum að greiða atkvæði um það, hvort þeir vilja heldnr sjálfstjórn undir Tyrkjum eða, sameining við Grikki. Það hafa verið Rússar, Austurríkismenn og Þjóðverj- ar, sem hafa andæft þeirri uppástungu, en sé það satt að Rússar hafi nú slakað til, þá sýnist ‘björninn unnin” og strið ef til vill fyrirbygt. A þingi Breta í gær kunngerði Cham- berlain útríkjastjóri, að Canadastjórn hefði fullgert samning við Peterson, Tait & Co. í Newcastle on-Tyne, um að koma upp hraðskreiðum gufuskipum til ferða milli Canada og Englands, en að stjórn Breta hefði ekki enn staðfest þann samning, GrafhvolfU. S. Grants, sem New- York búar hafa komið upp sem minnis- merki í Riverside grafreitnum þar i borginni, verður vigt og leifar Grants fluttar þangað á þriðjudaginn 27. þ. m. Er svo ætlast til að i skrúðgöngunni út að grafreitnum verði 50,000 hermenn, sinn flokkurinn úr hverju ríki í sam- bandinu. Að auki verða ogað sjálf- sögðu tugir þúsunda af borgurum í göngunni. MÁNUDAG, 12. APRÍL. Ekkert stórvægilegt að frétta frá Grikklandi, en að áliti hinna ýmsu fregnrita bjóða Grikkir Tyrkjum stríð á hendur í dag eða á morgun. En svo sannar það ekkert, því eins og gefur að skilja er mikið af þeim freguum sem þeir senda bara tilgátur fréttaritaranna sjálfra. Konstantinus krónprinz og her- stjóri Grikkja í Þessalíu nyrðra aug- lýsti á laugardag að það hefði verið sér óvitandi að grískir hermenn hefðu vað- ið með ófriði yfir landamærin á föstu- dag og mundi hann gera sitt til að slíkt kæmi ekki fyrir aftur. — í Aþenu og Konstantinópel er svo litið á þetta á- hlaup á föstudaginn, að því er sagt er, að það sé eiginlega byrjun stríðsins og að það muni nú halda áfram uppihalds- laust. Fagna Aþenumenn yfir því. að það voru Grikkir sem máttu betur í þesu áhlaupi þykir góðs viti, Uppreistin á Philippine-eyjunum eystra er sögð um það hjöðnuð niður. Núna rétt fyrir helgina höfðu yfir 10000 uppreistarmenn á eyjunum gefizt upp. Flóðið í Mississippi syðra rénar ekki enn. Hvað tjónið nemur miklu af völdum þess í suðurríkjunum er óvist enn, en það er sagt vist aðflóðið hafi nú þegar eyðilagt $50 milj. virði af væntan legri bómullaruppskeru í suðurríkjun- um.—f Rauðárdalnum alt frá Pembina til Fargo og enda lengra suður, eru stórir flákar af landi í kafi.. í Fargo er eignatjónið metið $300,000, en þar tekið fyrir vöxt árinnar og hið versta því af- staðið. í Grand Forks flóiráin yfir all- an suður og austur hluta bæjarins. En þar tók fyrir vöxt á laugardaginn og í gær fór flóðið að réna. Félag með $2 milj. höfuðstól er komið á laggirnar í Minnesota, til að koma upp sykurgerðarhúsum, — fá bændur til að rækta sykurbetur og búa til sykur úr þeim. Japanstjórn líst ekki á viðskifti Bandarikjastjórnar og Havaieyjarstjórn ar og hefir nú sent tvö brynskip af stað til eyjanna og bannað allan útfiutning Japaníta til Havai-eyja. ÞRIÐJUDAG, 13. APRÍL. Stjórn Prakka ætlar að verja 200 milj. franka til herskipasmíða og lofar að gera þó enn betur siðar i því efni. J. J. Hill, forseti Great Northern- járnbrautarfélagsins er að gera aðra til- raun til að ná haldi á Northern Pacific- brautinni. Hann gerði samskonar til- raun fyrír 2 árum, en tókstekki. Annað félagá Bretlandi er komið fram með boð um að koma upp gufu- skipum, er gangi milli Liverpool og Middle-Milford í Nova Scotia á 4 dög- um. Býður Canadastjórn $200,000 sem tryggingu fyrir að það efni loforð sín. Hellir mikill er fundinn undir þorp- inu Clistalia í Ohio. Hellismunninn er þröngur og fanst fyrir tilviljun fyrir fá- um dögum. Er hann nokkurn spöl frá bænum, en hellinn liggur innundir bæ- inn, en hvað langt, það vita menn ekki enn, <- Drewry’s Celebrated Bock Beer. Þegar Bock-öl keraur á markaðinn er auðsætt að vorveður og hiti er í nánd. Það er fyr- irrennari hitatíðarinnar, þegar raenn alment acskja eftir léttn, svalandi öli með gullnum blæ. Bock-öl or gert úr “amber”-malti, sem er búið til sérstaklega fyrir þessa öltegund, og er hið ágætasta meðal til að bæta og hreinsa blóðið. Til heimabrúks seljum vérþetta öl íhálf- merkur flöskum. ein kolla í hverri, sem er hentugasta og bezta stærðin til að geyma í heimahúsum. Gerðu betur ef þú getur. Það sem er í Blue Store verður að fara Merki: Blá stjarna 434 lainSt Vorföt fyrir karlmenn, Alullarföt fyrir karlmenn, með allskonar litum móleit, 7A og stykkjótt $9,50 virði.fyrir 1 ° Alullarföt fyrir karlmenn, tnjög vönduð, $13,50 virði, Ver seljum þau............ $8,50 Fín karlmannaföt. Þessi föt eru búin til eftir nýjustu tízku og vönduðað®-io ka ölium frágangi. Ættu að 't'l")0'-' kosta 16—18. Vérseljumþau Föt úr skozku vaðmáli, Þess föt eru öll með beztafrá- eangi og efnið í þeim er alull ®-i q r.A ættu að kosta $25,00. Vér ^,-lo)'J'/ seljum þau á.......... Barnaföt Stærð 22—26, ættu að kosta © -i no $2,00. Vér seljum þau á.... Drengjaföt úr fallegu svörtu vaðmáli, sterk og endingargóð, $8,00 $4,50 virði. Vér seljum þau 4.... Buxur! Buxur! Buxur! Hvergi i heimi eins ódýrar. Karlmannabuxur................$1,00 Skoðið karlmannabuxurnar fyrir $1,25 Og ekki síður þær sem kosta $1,50 Enginn getur selt jafngóðar btlxur og vér fyrir.............. $2,00 Karlmanna “FEDORA” hattar svartir, mórauðir og gráir, með lægsta verði. THE BLUE STORE. bláMstjarna. 434 Main SL A. Chevrier. KfortliBniPaciíicRy. Getur selt þér farbréf VESTUR, til Kootenay (einasta lina). Victoria Vancouver, Seattle.Tacoma, ogPortland er í sambandi við brautir sem liggja þvert yfir landið, póstskip og sérstök skemtiferðaskip til Alaska. Fljótasta leið og bestir vagnar til San Francisco og annara staða í California. Sérstakt gjald fyrir “túrista” alt árið. SUÐUR, s Bestu brautir til Minneapolis, St. Paul Chicago, St. Louis etc. Hin eina braut sem hefir borðvagna og Pullmanvagna. AUSTUR, Lægsta fargjald til allra staða í Austur- Canada og Austur-Bandaríkja, gegnum St. Paul og Chicago eða vatnaleið gegn- um Duluth. Greið ferð og engin við- staða ef þess er krafist. Tækifæri til að skoða stórborgirnar á le'ðinni ef menn vilja það heldur. Lestagangur til Dul- uth í sambandi við N. W. T. félagið, Anchor línuna og N. S. S. félagið. TIL EVROPIT, Káetuplás og farbréf með öllum gufu- skipalfnum sem fara frá Montreal, Bost- on. New York og P/'iladelphia til staða í Evrópu, Suður-Afríku og Australíu. Skrifið eftir upplýsingum eða finnið l!hn». fS. Fee, General Passenger Agent, St. PauL _ eða II. Swinford General Agent Winnipeg Winnipeg Office Cor Main & Water St. “BJARKI,” ritstjóri Þorsteinn Ereingsson, langbesta blaðið sem gefið er út á Is- landi. Kemur út i hverri viku. Kostar að eins $1.00 um árið. Útsölumenn fá góð sölulaun. Skrifið til M. PÉTURSSONAR, P.O. Box 805, Winnipeg. Krnnnwiek Ilotel, á horninu á Maine og Rupert St, Winnipeg. Hvergi í bænum betri viðurgerningur fyrir $1 á dag. Bestu vín og vindlar. Fríflutn- ingur að og frá járnbrautarstöðvum. McLaren Bro’s, eigendur. / Islenzkir mjólkursalar. S. M. Barré, smjör og ostagerðar- maður, hefir í hyggju að setja upp smjör- gerðarhús í nánd við skrifstofu sína á horninu á King og Alexander St., ef hann getur fengið næga mjólk hjá mjólkursölumönnum í bænum til að byrja fyrirtækið. Hann mælist til þess að allir sem hafa mjólk i aflögum, eða eru líklegir til að hafa meira heldur en teir þurfa að brúka yfir sumarið, finn sig að máli þessu viðvlkjandi. Þetta ætti »ð koma sér vel fyrir ís- londinga ekki síður en aðra.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.