Heimskringla - 22.04.1897, Blaðsíða 2

Heimskringla - 22.04.1897, Blaðsíða 2
HEIMSKRINGLA22 APRÍL 1S97. Heimskringla PUBLISHED BY The Hcimskringla Prtg. k Pub!. Co. •• •• Verð blaðsins í Canda og Bandar.: $2 um árið [fyrirfram borgað] Sent til Islands [fyrirfram borgað af kaupendum bl. hér] $ 1. •••• Uppsögn ógild að lögum tíema kaupandi sé skuldlaus við blaðið. •••• Peningar sendist í P. O. Money Order, Registered Letter eða Ex- press Money Order. Bankaávis- anir á aðra banka en í Winnipeg að eins teknar með afföllum. • • •• EGGERTJOHANNSSON BDITOR. EINAR OLAFSSON BUSINESS MANAGER. • • •• Office : Comer Ross Ave & Nena Str. P <>. Box 305. Mississippi-flóðið. Það hefir verið tíðrætt um flóðið í Mississippi í vor og margar uppástung-. ur komið fram um það, hvernig þurfi og hvernig megi fyrirbyggja það.Helzta tillagan í því efni, eða sú, er almenn- astri hylli nær, er þess efnis, að ofarlega (norðarlega) með fljótinu þurfi að mynda dældir með fram því og hringgirða með grjótbálkum. Þegar flóð kemur í fljót- ið fyllist hver þessidæld á fætur annari og standa þær svo bakkafullar til þess vatnið lækkar í fljótinu. Auk þessa er talað um að gera skurði mikla út frá fljótinu hér og þar, er lokað sé á öllum tímum árs nema þegar ofsaflóð er í fljót- inu. Þegar svo dældirnar upp með fljótinu ekki freynast nægilegar til að halda fljótinu í skefjum, er hugmyndin að kippa lokunum úr skurðardyrunum og láta flóðið falla eftir þeim og í aðrar ár eða vatnsfarvegi, eða i dældir sem ætlaðar eru til að veita ákveðnum mælí vatns móttöku. Þetta þykir álitlegasta tillagan en þó jafnframt viðurkent að liér sé um svo ægilegt stórvirki að ræða að óvíst sé aðjþjóðþing verði viljugt til að veita þá ógna fjárupphæð sem þarf til þeiira umbóta. En svo er þá samt undireins sýnt fram á, að stjórnin hljóti að gera eitthvað, þvi eignatjónið sem fljótið veldur á hverju vori í suðurríkj- unum öllum er feykilega mikið, þó út- yfir taki nú, þar sem búizt er við að land það sem nú er í kafi þorni ekki fyrr en í Júní, og að uppskera á öllu því svæði sé þess vegna svo gott 'sem eyðilögð á yfirstandandi ári. Skýrslur um tjónið af völdum þessa flóðs eru enn ekki framkomnar. Það var að vísu sagt nú nýlega að tapið á bómullaruppskeru einni mundi nema 50 milj, dollars, en þaðnær engri átt, eins og líka sést greinilega af skýrslu nýútkominni frá Bandaríkjastjórn. Su skýrsla nær til 6, Apríl og sýnir, aðjí suðurríkjumséu þá undir vatni 15,800 ferhyrningsmílur af landi; að bújarða fjöldi á því svæði sé 38,500; að búenda- f jöldi á því svæði sé 379,685: að verð fasteignanna sé $05 milj.; að verð húsa og akuryrkjuáhalda m. fl. sé$76imilj.; og að framleiðsla jarðar á því svæði á síðastl. ári hafi verið samtals 17.200,000 dollars virði. Að Louisianaríki undanteknu hefir flóðið staðið í stað síðan, en í Louisiana hefir það síðan margfaldað tjónið sem þá var orðið: Flóðaldan mesta er nú fyrst að nálgast Mississippi-mynnið og þá fyrst byrja skemdirnar fyrir alvöru í Louisiana, er það tekur til að brjóta einn flóðgarðinn á fætur öðrum og falla í stórstraumum út um láglendið alt bæði fyrir ofan og neðan New Orleans. Læknandi boðskapur. Heldur að gikt sé afkvæmi þess illa, en ■ fullvissar að South American Rheu- matic Cure sé himneskur hjálari. Henry Humpreys, East London gefur óbeðins þetta vottorð : “Eg fékk mjög slæmt gigtartak í vinstri fótinn svo ég bar ekki af mér og gat hvorki hvilst um daga eða nætur. Eg reyndi ótal meðul en þau gerðu mér ekkert meira gagn en vatni væri helt á önd, mér var ráðlagt að reyna South American Rheumatic Cure, og gerði ég það. Eftir að hafa brúkað það stuttan tíma, var ég orðinn alheill og hefi ekki kent mér meins síðan Það er hið áreiðanlegasta meðal og erég mjög glaður að boða yfir þetta land þá blessun er það færir. Fæst hjá öllum lyfsölum. Islands-fréttir. EFTIR “ÍSLAND.” Reykjavík 13. Febr. Miltisbrandur hefir enn drepið nokkra hesta austur í Flóanum. En í Kjósinui gengur lungnayeiki í fé. » Hinn 14. Jan. fórst fiskibátur á upr-- siglingu á Álftafirði. Formaðurinn, Sigurður bóndi Jónsson í Súðavík og einn af hásetum hans, Páll Guðmunds- sbn frá Hlíð, drukknuðu, en tveim af hásetunum var bjargað af öðrum bát. Svo er sagt úr Dýrafirði, að á sjálfa jólanótt næstl. fór Gísli Hjálmarsson húsmaður á Næfranesi þar í firðinum í sauðahús bónda þar, dró þaðan út eina kind og skar til jólanna. Hafði hann nýskorið kind frá sjálfum sér, en selt þann skfokk á laun við kerlingu sína til Þingeyrar fyrir brennivin og annað, er hann þóttist við þurfa til glaðningar um hátíðirnar. Vildi hann nú bæta búi sínu þetta og greip þá til þessa óyndis- úrræðis. Hefir hann nú játað glæpinn fyrir Hannesi sýslum. Hafstein. Ábyrgðarfélag þilskipa við Faxaflóa hélt aðalfund sinn hér í bænum 1. þ. m. Tala félagsmanna er nú 27, en skipatal" an 21, eru 9 í 1. fl. og 12 í 2. fl. Oll eru skipin virt á 122,090 kr., en vátrygð fyr- ir 80,679,59. Fastasjóður félagsins er 3,826,25, en séreign kr. 4,573,89. Sex lagafrumvörpum siðasta alþing- is hefir nú verið neitað staðfestingar, og lítur nú út fyrir, að Rumpur ráðgjafi ætli ekki að gefa fyrirrennara sínum mikið eftir. Þessi frumvörp eru : Um borgaralegt hjónaband, — s^ofnun lagaskóla, — breytingá prestskosningarlögunum, — eftirlaun, — afnám dómsvalds hæstaréttar. — kjörrétt kvenna. Það sem leiðinlegast er og hefir ver- ið við niðurskurð dönsku stjórnarinnar á lagafrumvörpum alþingis er að vita, að þau séu skorin niður af manni, sem ekkert vit hefir á hvort þau séu góð eða vond, sem engin skilyrði hefir til að rnynda sér nokkra sjálfstæða hugmynd um, hvort þau stefni til bóta eða ekki. Úr Stöðvarfirði eystra er sagt 5. Jan. að bráðapestin liafi verið þar skæðari en nokkru sinni áður ; hefir hún drepið þar á sumum bæjum frá 10—20 fjár. Leikhúsið nýja á Akureyri var vígt 3. Jan. Þá var leikinn nýr leikur eftir séra Matthías. Þessi eru nýjustu mannalát: Krist- ín Guðmundsdóttir í Rvíx, fyrrum gift Eyþóri kaupm. Felixsyni, d. 6. þ. m. Ráðhildur Jónsdóttir á Kalmannstjörn í Höfnum, d. 30. f. m. Guðrún Gísla- dóttir frá Elliðavatni, d. 31. f.m. Sig- urður Sigurðsson bóndi á Litlugröf í Borgarhreppi, d. 2. f. m. Ingimundur Teitsson á Gemlufellií Dýrafirði, 1. Jan. Þessi vika hefir verið snjóavika og lagði fannadúk mjallhvítan yfir alla jörð svo langt sem auga eygir. En þykkur var hann ekki né fastofinn, og á síðari hluta vikunnar hefir veður snúist til þýðu og koma fljótlega upp þúfur, holt og hólar. í dag, að morgni, svartaþoka. Drengur einn hér úr bænum, tólf ára gamall, er nýlega orðinn uppvis að því að hafa leikið á nokkra af bæjar- mönnum. Frá úrsmið einum hefir hann stolið tveimur úrum; annað kveðst hann hafa selt manni austan úr sveit- um fyrir 2 kr. 50 au., en hitt náðist af honum áður en hann kæmi því i pen- inga. Hann hefir og komist yfir 9 kr. hjá einum kaupmanni hér, og af manni, sem býr í sama húsi og hann, hefir hann oft tekið peninga; hefir komið inn til hans áður hann vaknaði á morgnana, tekið peningabudduna úr vasa hans og dæmt sér dálítinn skatt af því sem i henni var í hvert sinn. Þegar þar var lítið lét hann sér líka nægja með lítið, en væri þar mikið, þá hækkaði hann skattinn, tók þó hæst 3 kr. í einu. Pen- ingunum eyddi hann svo á veitinga- stöðum. 20. Febr. Þá er að minnast á eitt, sem telja má til framfara í Reykiavík á síðustu ár- um, en það er “Leikfimisfélag Reykja- vikur” (R. G. C.). Það var stofnað haustið ’95 af James Ferguson frá Glas- gow, sem þá stýrði prentvélum ísafold- ar. Hann er sagður leikfimisgarpur hinn mesti og var lífið og sálin í félag. inu meðan hans naut, en hann fór héð- an heim til Skotlands í sumar sem leið. Nú hafa lærisveinar hans nokkrir haldið áfram æfingunum, sem þeir voru byrj- aðir á undir handleiðslu hans og héldu þeir kvöldskemtun á miðvikudagskvöld- ið í leikhúsinu nýja og sýndu þar ýmsar líkamsæfingar. Þeir sem tóku þátt í þeim voru 5, Sigurður Þorláksson póst- þjónn, Bergþór Bergþórsson prentari, Kristinn Ziemsen verzlunarmaður, Jón Sigurðsson fangavarðar og Adam Barc- lay Sigmundsson prentsmiðjustjóra, all- ir ungir monn um tvítugt eða þar fyrir innan. Þeir sýndu margskonar líkams- æfingar og gerðu það vel og miklu betur en vonir stóðu til þar sem þeir höfðu verið kennaralausir í vetur og ekki haft annað við að styðjast en tilsögnina sem hr. J. Ferguson veitti þeim veturinn áð- ur og sem auðvitað ekki gat verið nema byrjun. Segja þeir sem horfðu á sams- konar æfingar hjá þeim í fyrra, að þeim hafi farið mikið frara. Um 90 kr. fengu þeir inn um kvöldið, 50 kr. af þvi fóru í kostnað, bæði í húsaleigu og svo til fata- kaupa og annars er við þarf til æfing- anna, en 40 kr. leggja þeir í sjóð til að bæta áhöld sín. í sumar vilja þeir koma á gang kappróðrum og knattleikjum og ættu Reykvíkingar alment að ^tyrkja þær tilraunir þeirra, t. d. með því að kaupa 2—4 kappróðrarbáta. Þeir eru ekki svo dýrir. Piltarnir hafa vel gert að halda félaginu véðlýði Ogúr því þessi vísir er nú kominn hér á til reglulegra leikfimisæfinga, væri ekki nema rétt gert af bæjarmönnum að styðja að því, að honum geti farið sem mest fram. Bæjarstjórnin hefir léð leikfimishús barnaskólans ókeypis i vetur til æfing- anna.—Formaður félagsins er nú Krist- inn Ziemsen. Dáin er hér í bænum, 14. þ.m., frú Ragnheiður Christiansen, ekkja Krist- iansen, Kristjánssonar amtmanns norð- lendinga, f. í Rvík 22. Nóv. 1824. 27. Febr. Yeður hefir verið gott undanfarna viku, oftast hlýindi eins og á vordegi væri; á föstudagsnóttina fölvaði og kom sleðafæri, en nú er notaður hver dagur, þegar snjó festir á jörð, til að aka grjóti niður í bæinn. Nýtt blað er enn stofnað í Reykja vík ; það er mánaðarblað gefið út af Stór-Stúku íslands til eflingar bindindi og heitir “GOOD-TEMPLAR.” Rit- stjóri er Ólafur Rósenkranz leikfimis- kennari lærða skólans. Eldra blað Templaranna “íslenzki Good Templar” hætti að koma út fyrir nokkrum árum og var í hans stað stofnað “Heimilis- blaðið.’’ 6. Marz. Nú eru vermenn hvaðanæfa að halda suður á nesin til fiskiveiða. Síðast í fyrra mánuði er afli sagður á Miðnesi og í Höfnum. Fengust alt að 30 í hlut. — Nú er líka verið að ýta þilskipunum á flot. Þeim fjölgar nú daglega á Reykja- víkurhöfninni. Nýju skipi, er heitir Elín, sem Helgi kaupmaður Helgason hefir smíðað í vetur. var hrundið á flot í fyrradag. Það er þriðja þilskipið, sem hann hefir smíðað á þremur síðustu ár" um. Uppi í sveitunum eru menn nú í óða önn að baða sauðfé. Það er gert eftir skipun frá amtmanni. Sýslunafndir hafa skipað 3—5 baðstjóra í hverjum hreppi. Á Vatnsnesi vildi það slys til nýlega að maður misti skot úr byssu og hljóp það í hönd honum. Það er sagður mik" ill áverki. í föstudagsbylnum 19. f. m.. varð maður úti nálægt Keflavík. Hann var á heimleið þaðan og hafði verið að vitja læknis. , Prestskosning fór«fram í Hraun- gerði 23. f.m. Kosinn var séra Ókfur Sæmundsson með öllum atkv. T?. V 1 Landsbankinn hefir nú keypt Bessa- staði á Álftanesi fyrir 12,000 kr. Banka- stjórinn vill að þar verði reistur holds- veikisspítalinn. Veður hefir verið inndælt undanfar- andi viku, hreint og bjart. Létt föl hef- ir legið yfir jörðu. Oftast logn og glaða- sólskin um daga, en kvöldin kjr og svöl Á þessum dögum ríða menn útog reyna gæðingana. í jarðræktarfélagi Reykjavkur hafa árið sem leið verið unnin 1600 ( agsverk; sléttaðar 10 dagsláttur, vallargarðar hlaðnir úr grjóti 629 faðmar of lokræsi gerð 218 faðmar. Félagsmenn voru við árslok 101. Þá átti félagið i sji'ði 219 kr. 43 au. auk áhalda og geymsluslúrs.— Á undanförnum 6 árum ) félaíið unnið full 13.000 dagsverk. i lega2200áári aðmeðaltali. 80 dar itur hefir það gert að túnum en 21 . maturtagörð- um. i. Iferz. Skipunin um sa 1 jártödin hefir sumstaðar mætt talsr '>utr mótþróa af bændum. Hefir e •> raeir borið á þessu norðanlands en h syð-a Eink- um eru það Þingeyinga «lufa þver- skallast við skipaninni og er pa) undar- legt, þar sem upplýsing liinia nýrri tíma á að hafa "uppljómað”þá meir en annað fólk í þessu landi. Antmaður Norðlendinga liefir átt í hörðun rimm- um við þá og er óvanalegt að sjá það hér á landi, að yfirvöldin g'ípi sjálf pennann til að fræða almsniing um gagn og gildi fyrirskipana sinm eins og hann hefir gert í þessu máli. Aukapóstur sá sem fer frá Akureyri að þönglabakka, Ólafur Þoisteinsson, hrapaði 15. Febr. ásamt hest: niður af 20 faðma háu bjargi utanvií Garðsvík, þar sem Faxafall heitir á Svalbarðs- strönd. Bæði maður og heitur fengu VKITT UÆSTU VBRÐLAUN A IIElMIfÝNrNGUNN DR BANNG P0WDÍB IÐ BEZT TILBÚJA óblönduð vínberja Cream of Tartar powder. Ekkert álún, aímonia eða önnur óholl efni. 40 ára ’-eynslu banaen póstflutningur skemdist nokkuð Þarna kvað vera hinn versti tröllaveg- ur, þótt póstleið sé. Geir kaupm. Zoega hefir keypt tvær fiskiskútur ytra. Önnur þeirra. “Edin- burgh,” keypt í Hull, kom hingað á miðvikudaginn eftir 9 daga ferð þaðan. Hún er 83 smálestir. Hin heitir “Liv- erpool” og er litlu stærri, Þriðju skút- una keypti hann fyrir Th. Thorsteinsson Jón skipstjóri Jónsson í Melshúsum hafði einnig keypt væna skútu, og aðra Sturla Jónsson kaupmaður. Á Horni í Auðkúluhreppi kviknaði í bænum að kvöldi dags 5. des. f. á. Bóndinn þar, Jón Þórðarson, var við útiverk og konan við mjaltir og hjá henni tvö elztu börnin og urðu menn því ekki eldsins varir fyr en baðstofan stóð í björtu báli. Varð því með mestu naumindum bjargað geymsluskemmu, sem stóð rétt við baðstofuna, því snjó- veður var og niðamyrkur. Stöðugt góðviðri undanfarna viku. Sjór og loft er orðið vorlegt, en jörðin mjallhvít. Það er þunt föl sem yfir henni liggur og að eins til prýðis. I gær var bjart og hlýtt sólskin, nærri því eins og á sumardegi væri. pmnmnmtmwmmmnmmwmmmitmwmtmmtK | Vort “jeg” og annara augu. 1 S- Vort. eigið elskulega "ég” er eins atkvæðamikið nú og fyrir 50 ^ árum. En vér höfum æ minni og minnni ástæðu til að guma af sjálf- um oss, — það gera aðrir sem nægir. Og vér erum fúsir til að sýna Sl ost gegnum annara gleraugu. Þanuig lízt S. F, Bóyce, lyfsala í stór og smákaupum, í Duluth, Minn., á oss, eftir 25 ára atliugnn : “Ég y— hefi selt Ayer’s Sarsaparilla í meir en 25 ár, bæði í stórkaupum og smá- ~^ kaupum, og hefi aldrei heyrt nema hrós um það lyf. Hefi ekki fengið ^2 eina einustu kvörtun. Það er skoðun mín að Ayers-- Sarsaparilla sé —^ hiðbezta bjóðhreinsunarlyf, sem almenningi hefir verið beðið.” — Það ^ er góður vitnisburður þetta. frá manni, sem hefir selt flöskur af Ayer’s yT- Sarsaparilla í þúsund tuga tali. En svo er það einnig bergmál af al- ^ menningsálitinu hvar sem er, — ekkert nemu liroH um Ayer’n SnrMiipxrilIa. « » Efast nokknr um það ? Sendið þá eftir “Curebook.” Hún deyðir efann oð læknar efasama menn. ^ Adressa: J. C. Ayer Co., Lowell, Mass. rumíMmmmmmmuuiMmmuimmiM Eftir Austra. Seyðisfirði. 18. Febrúar, I gærkvóld andaðist í Húsey i Tungu Jón Jónsson, er lengi bjó í Hlíðarhús- um í Jökulsárhlíð, faðir þeirra Jóns al- þingismanns á Sleðbrjót og Guðmundar hreppstjóra í Húsey. Hann var 65 ára gamall, fæddur 22. Júlí 1831, Faðir hans var Jón, sonur Bjarna bónda Ei- ríkssonar á. Ekru, er margt fólk er frá komið í Tungu og víðar, en móðir Guð- rún Björnsdóttir. Vilhjálmssonar,Arna- sonar smiðs í Húsey Sigurðssonar...... Jón sál. var drengur góður. tryggur og vinfastur, bjartagóður og hjálpfús, gleðimaður og gestrisinn. Hann var hraustmenni og fjörmaður, ötull og harðirjörr. Hann var all lengi við sveit arstjórn í Hlíð og vann að því starfi með áhuga, Tíðarfar hefir verið nokkuð óstillt, en oftast þó blíðviðri, og þ. 15. þ, m. var hér 11 stiga hiti á R. Snjór er þvi lítill í Fjörðunum, en nokkru meiri upp á Héraði, en þó jarðir góðar. Spítalinn. Nokkrar konur hér í kaupstaðnum hafa með síðasta pósti sent út áskorun um að gefa til Bazars og Tombólu, jer halda á hér um mán- aðamótin Júní og Júlí næstk., til á- góða fyrir spítala Austfirðinga, Fjölmennur fundur var haidinn hér á Vestdalseyri 16. þ. m., eftir ósk 2 sendimanna, þeirra Tobíasar Finnboga- sonar úr Reyðarfirði og Ingvars Pálma sonar úr Norðfirði, til að koma á föst- um samtökum um ráðningu sjómanna og meiri samhljóðun, en verið hefirmilli fjarðanna, innbyrðis. Lýstu Seyðfirð- ingar sig samþykka í flestum aðalatrið- um því, er gerzt hafði á samskonar fundum í Reyðarfirði og Norðfirði. Eftir Bjarka. Seyðisfirði, 5. Marz. Sama einmuna blíða. Hér má segja að meir hafi verið sumar en vetur alla stund síðan í Októbermánuði, þó hrina hafi komið dag og dag og hversu i- skyggilegt sem útlit hefir verið, þá verður nú góðviðri úr því öllu. Hér er nú oftast hiti og þó frjósi á milli er það okki nema tvö til fjögur stig. Annað sorgarslysið til. Ún bréfi úr Héraði : Það var rétt og vel gert að skýra frá Sigurjóns slysinu, því þar riður á að sannindin komi í ljós hvar sem þau eru. Og nú kom annað fyrir litlu betra, ef þær fregnir eru sannar, sem borizt hafa af láti Guðmundar bónda Hallasonar á Hreimsstöðum. Hann var, að sögu, að fylgja tveimur nágrönnuin sínum sem komu úr kaup- stað og var þá mjög ölvaður, að sagt er svo augljóst vai, að maðurinn væri ekki einfær, en var þó slept einum heim leiðis. Á þeirri leið varð hann úti og vesalings ekkjan fann hann sjálf, fékk sér mannhjálp til að aka líkinu heim, og blessuð börnin komu á móti henni. Svona er mér sögð sagan, en ég þori ekki að ábyrgjast að rétt sé. Guðmund- ur var í betra lagi gáfaður og eflaust einn hinn mentaðasti bóndi Héraðsins. Hugsjónin ljós og sjálfstæð. Hann var allvel máli farinn, góðgjarn og glað- lyndur, stiltur og jafnlyndur. Hefði ei féskortur og óhappadís vínsins lamað svo mjög framkvæmdir hans, hefði hann eflaust verið einn nýtasti bóndi hér um sveitír. — Hann lætur eftir sig ekkju og 5 börn eða 6. 12. Marz. Vesta kom hingað í fyrradag og á nýr skipstj. Svenson að nafni. Hingað kom með henni frá Höfn Ernst lyfsali og nokkrir menn komu sunnan af fjörð- um. Vetur harður ytra. Helgi Jónsson náttúrufræðingur fór með Vestu til Leith eftir að hafa lokið prófi við háskólann með sóma. Eftir Þjóðvíljanum unga. Isafirði. 9. Febrúar. Tíðarfar. Hér hefir haldizt öndveg istíð, síðan síðasta blað vort kom út. Aflabrögð hafa verið prýðisgóð í Bolungarvík undanfarna daga. og all- góður afli einnig annarsstaða í Djúpinu hjá þeim, er beitu hafa haft. 16. Febr. Nýtt hvalveiðafélag. Eftir þvi sem skýrt er frá í dönskum blöðum hef- ir i vetur verið stofnað hvalveiðafélag í Khöfn, er nefnist: “Hið islenzka hval- veiðafélag”, og ætlar að reka hvalaveið- ar hér við land. Við félag þetta eru ýras stærri verzlunarhús í Khöfn riðin, og er hlutaféð, sem þegar er fengið, ná- Iiægt 300,000^ eða 12 hlutir á 24 þús. kr. hver. Aðal-framkvæmdarstjóri félags- ins er hr. B. G, Ásgeirsson kaupmaður og er fullyrt að hvalastöðin verði hér inni í firðinum á Skipeyrinni. sem Ás- geirsverzlunin hefir ný skeð keypt mest an part af, áður en hljóðbært varð um félagsstofnun þessa, og mega þá bæjar- búar hér á ísafirði heldur en ekki hlakka til lyktarinnav og þrifanna, sem fylgja þessari atvinnu, svona bétt við kaupstaðinn. Eftir Stefnir. Akureyri. 11. Janúar. Strokkur dauður. Úr bréfi úr Bysk upstungu, 6. Nóv. f. á.: Nú þarf eng- inn að fara jafnnær frá Geysi, síðan eft ir jarðskjúlftana í suraar. Gýs hann oft á dag, en þar á móti er Strokkur dauður úr öllum æðum og kólnaður svo að ég deif hendinni í hann seinast er ég fór hjá honum; hann er nú fullur á barma. Nýr hver er kominn fyrir ofan Geysi, mikill og ljótur og gýs í sífellu 1—2 fet, og allir hafa þeir Haukadals- hverar verið espir og æfir síðan alt til þessa, hversulengi sem það helzt. Hver- inn hjá Reykholti hér í Tungunum hef- ir verið að gjósa síðan, hér um bil 12 fet, og myndi víst giósa betur ef hann væri ekki fyltur af grjóti. Segir sagan að liann hafi verið goshver, áður en skólapiltar frá Skálholti hafi fylt hann með grjóti fyrir þá sök, að hann hafi drepið sauð er þeir áttu til göngu þar i holtinu. Væri gaman að rejrna að ná úr honum grjótinu, en það er ekki auð- gert. 13. Febr. Látinn er hér í bænum Mngnús Benediktsson fyrrum verzlunarmaður. 59 ára gamall..... Veðrátta. Góðviðrið hélzt fram að þorrakomu, en á laugardaginn l'. i þorra brast á með norðanbyl og nokk- urri snjókomu. hafa síðan verið allhörð frost með hríðarköstum að öðru hverju en eigi sniókomu. Sjúkrahússforstaðan á Akureyri er veitt frá 14. Maí næstkomandi frútHall- dóru Vigfúsdóttur frá Bieiðabólsstað. 88 stúlkur eru á kvennaskólanum á Akureyri. Forstöðukona Ingibjörg Torfadóttir frá Ólafsdal. Jarðskjálftasamskot í Ej:jpfirði oið in kr. 1935,19. Eftir Þjóðólfi. Reykjavík, 12: Fébrúar. Fréttaþráður til íslands, John Mitchell, enski málafærslumaðurinn, er hefir verið hér tvívegis, i þeim erindum að koma á fréttaþráðarlagningu til Is- lands, þykist nú hafa nokkrar vonir um framgang þess máls. Auðmenn í Lun- dúnum hafa áskilið sér 180,000 kr, styrk á ári til að byrja á fyrirtækinu, en það fé vantar enn. Nú hefir Mitchell verið í Höfn til að túlka roálið fyrir dönsku stjórninni, hver sem árangurinn verður af þeim málaleitunum. Óskiljanlegt er að stjórnin sinni þessu ekki að einhveru leyti, og vilji ekkert af mörkum leggja úr ríkissjóði til að hrinda því áleíðis. Það er enginu efi á því, að alþing að sínu leyti mun gera það. sem í þess valdi stendur til að styðja að því, og þótt kraftarnir séu ekki míklir hjá oss. þá er ræða er um svo stórkostlegt fyr- irtæki, þá ættum vér þó að get.x látið eitthvað af hendi rakna, eins og alþing þegar hefir tjáð sig fúst til. Séður þjófur. Nýrnaveiki kemur að manni óafvitandi, þá kvefj þarnæst blóðsamdráttur og bólga, og lbks hinn dauðlegi ‘brights’ sjúkdómur. So.American Kidney Cure á að eins við nýrna- veiki. Það linar þrautirnar á sex og_ læknar alveg ef það er rétt brúkað. Bregst, aldrei. Mr. James.McBrine frá Jamestown.Ont. segir : “Ég hefi þá skoðun að South American Kidney Chre hafi bjargað lífi minu. Eg var syo farinn að það þurfti að teku frá mér þvagið með verkfærum” Mr. A. Williamson, tollþjónn í Kincard- ine, Ont., segir: “Eg get mælt með þessu meðall sem inu langbezta af þeirri tegund fyrir alla sem þjást af nýrna- veiki og veiklun í biöðrunni.” 19. Marz. Vesta. Fárs-tjóri eimskipaútgerð- arinnar íslénzkui, D. Thomsen, hefir r komið því til leiðar við hið sameinaða . gufuskipafélag, að Corfitzson skipstjóra . á Yestu hefir verið vikið frá stöðu sinni . og heitir sá Oi I. Svensson (sænskur), er við tekur í stað hans..... Gufubátaferðir. Hr. Thor E. Tuli- nins stórkaupmaður í Kaupmannahöfn tekur að sér, eins og í fyrra, gufubáts- ferðirnar fyrir Norður- og Austurlandi, og birtist áætlun skipsins (Bremnæs)' hér i blaðinu. Samkvæmt henni verða ferðirnar 6; milli Hornafjarðaróss og Siglufjarðar, á timabilinu frá 1. MaLtilS 24. Sept., op" auk þess 3 aukaferðir til R.víkur og 1 til Sauðárkróks. Hr. Tulinius hefir nýlega keypt nýtt gufuskip 'Hjáhnar’, 330 smálestir; og erþess getiðí ‘Söfartstidende’, að það' eigi að verða til Islandsferða, er ísafold skilur svo, að það muni jafnvel eiga að koma í stað Bremnæs. En það er flest- um kunnugt, að hr. Tulinius hefií ein- mitt mörg gufuskip í förum til íslands (Austfjarða) árlega, og til slikra. milli- ferða mt» skip þetla ætlað. Nú er Faxaflóagufubáturinn vænt- anlegur frá M«ndal síðast í næsta mán- uði. Hann hefir 3 farþegarúm og get- ur tekiðum 200 farþega. Á hann að hefja ferðir sínar hér um flóann 6, Maí. Hann heitir nú ‘Reykjavík’, (en áður ‘Tö.nsberg’). Lausn frá embætti [hefir Benedikt. Sveinsson sýsluinaður sótt um, og mun hann flytja hingað suður. Lvíið sem lækiiar. Hið mikla heilsustyi-kjandi vormeðal. Paines Celery Compoundfyr- ir menn, konur og börn. Eftirfylgjandi vottorð gefur Miss Blake, 303 Hughson St., Hamilton : “Svo árum skifti þjáðist ég mikil- lega og var altafundir læknisumsjón og sögðu þeir að veikleiki rainn væri að snúast í tæriingu. Af framhaldandi meðalabrúkun versnaði mér meir og meir og gáfu þeir upp alla von um bata. En rétt í því ástandi, máttfarin, lystar- laus og meltingarlítil og án þess að festa nokkurn rólegan blund, byrjaði ég að brúka Paines Celery Compound. Er ég hafði brúkað eina flösku fann óg strax mikinn bata. f alt hefi ég brúkað 7 eða 8 flöskur og er nú s©.m nýr kvennmaður, nýt lífsins og er að öllu leyti eins og ég óska helzt að vera. Margfaldar þakkir eigið þér því skilið fyrir þetta mikla lyf. ick-Atlu'. raee-Artac, Idatic I’atni, Neura’.slc Pains, Puia in tho Sido, etc. Promptly Kelieved and Cured by fhe “D. & L.” Menthol Plaster Havirijr u*nd yor.r D. 4 I* Menthol Pla*ter fi.r si»vero jn.inln tho bnuk and lumbapo, I unhesitatiii“ly reuotnravnd satne as asafo, flure and raníd mnedy: In fnrt., theyaotllka raaj'io.—A. Lapuinte, Eiizabelbtowu, Ont. PpIcc JWc. DAVIS & LAWRENCR CO., Ltd. Proprietors, Montreal. Fain-Ki (rs^r.T davis’.) / ■' • medjrin cvory case and cvcry kiu 1 of jjowel Complaint is P.ai<i*fáiller. This aíru r-'iont'ntid it can’tbo inado too or too emphatic. It is a simplo, caío cnd quick curo for Crampr:, Cough, Klioumatlsm, Colic, Colds, Ncurulgia, Diarrliœa, Croup, T«M>thaclio. TWO SIZES, 25c. and BOc.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.