Heimskringla - 22.04.1897, Blaðsíða 4

Heimskringla - 22.04.1897, Blaðsíða 4
HEIMSKRINGLA 22 APRÍL 1897. Winnipeg. Rauðá heldur áfram að vaxa, en fer þó hægt. Yfirborð hennar er nú rúm lega 12 fetum lægra en Main Str. Hr. Ingimundur Ólafsson frá West' bourne, Man., kom til bæjarins á föstu dagskvöldið var. í för með honum var hr. Guðm. Guðbrandsson. Almennur pólitiskur fundur verður haldinn í North-West Hall í kvöld, und ir stjórn bindindismanna og verka- manna og þingmannsefnis þeirra, E. L Taylors. Hr. Jón Stefánsson á Gimli var á ferð hér í bænum fyrir helgina, Kom með Jónasi Skúlasyni, sem var að skrifa sig fyrir landi vestur af Gimli, er hann hefir búið á um tíma, en sem nú lá við borð að yrði tekið af honum, ef hann ekki skrifaði sig fyrir þvi tafarlaust Þó ilt væri að fara lagði hann þó af stað og bar sigur úr býtum. Góðviðrið sem verið hafði alla síð- ustu viku endaði snögglega aðfaranótt páskadagsins. Á laugardaginn var mið- sumarhiti og stórfeldar þrumur og steypiregn um kvöldið, alt til kl. 10. En á páskadagsmorguninn var komið norð- vestan rok með fannburði svo gránaði rót, og hörkufrosti. Hélzt ofsinn allan daginn og fram á nótt. Eauðá er nú orðin lj mila á breidd suður við landamærin og í Emerson er vatnið snmstaðar alt að 10 feta djúpt á strætunum. Mörg hús hafa skekst á grunni og skerq^t og meðal þekrra er í- búðarhús hr. Bjarna Sölvasonar, er lengi hefir búið í Emerson. Flóð mikið er og vestur um sléttuna, meðfram báð- um járnbrautunum vestan Rauðár og eins víst að umferð verði heft þegar minst varir. Tvö blöð af “ísland” bárust oss hinn 19. þ. m., dagsett 20. og 27. Marz. Segir þar að á Stokkseyri hafi farist skip með 9 mönnum á hinn 20. Marz. — Afli góður á suðurlandi.— Jörð alauð. —Dr. Valtýr Guðmundsson hefir verið kvadd- ur til að gera rannsóknarferð til Græn- lands, ásamt Daniel Brun, er í fyrra fór um ísland. Eiga að skoða fornar tóftir á Grænlandi, “Ekki alt gull sem glóir”. Atvinnu lausir menn og allslausir, sem glapzt höfðu á gullfréttunum frá Rat Portage eru nú farnir að flýja fótgangandi og með stuldi á járnbrautarlestum. Og frá Rossland í B. C. er oss ritað 14. þ. m., að þar séu2 —3000 menn atvinnu- lausir, að alt af bætist við, en vorið fá- dæma kalt, svo að þann dag sé um 4—6 feta djúpur snjórí fjöllunum umhverfis. Hra. S- J. Jóhannesson biður oss að láta þess getið, að séu einhverjir hér í bænum, sem hafa keypt ljóðmæli hans í kápu, en sem æskja eftir að fá þau bundin, þá býðst hann til að skifta við þá, svo framarlega sem eintak þeirra i kápunni er "óklikkað” og óskemt, þar eð hann hefir komizt að samningi við bókbindaraun um að binda meira en í fyrstu var um samið fyrht ákveðið verð. Þeir sem kynnu að vilja hafa skifti eru beðnir að gefa sig fram tafarlaust. Úr Árnesbygðer oss ritað 14. þ.m., að snjóvatnið hverfi ofan í jörðina jafn- harðan, og að ef ekki rigni þvi meira, muni minna vatn á jörðu i vor en venja sé, sem sé að þakka þyi að jörð hafi að mestu verið þýð undir hinnm mikla snjó. Ný-íslendingar hugsa gott tii með gul’námurnar fyrir handan vatnið ýmsir að festa sér námulóðir og sumir að flytja austuryfir í bráð. Meðal þeirra eru nefndir þeir feðgar Kjartann Stefánsson og Stefán Jónsson, er áður hefir ’verið getið um hér í blaðinu. Kvað Stefán vera ráðinn sem járnsmið- ur, til að herða og laga steinklöppur, af hérlendum mönnum, en Kjartann ætlar að hafa greiðasölu á hendi. Þó segir bréfritinn að mest fagni INý-íslending- ar ef sönn reynist fregninum kolafund- inn vestanmegin vatnsins. Eru þau að sögn fundin í hæð vestur af Eisher Bay og í beinni linu um 40 mílur norðvestur frá Islendingafljóti. — Samahæðin ligg- ur um Gimlisveit vestanverða og er ekki óhugsandi að menn fari nú að grafa í þá hæð hér og þar í þeirri von að finna kol, Vér höfum átt tal við menn, er álíta að kol séu til i hæðum vestur af Árnesbygð. Rauðá braut af sér ísinn hér undan bænum á laugardaginn 10. Apríl, en burt komst hann ekki fyrri en á þriðju- daginn hinn 13. Þangað til voru bara auðir flákar hér og þar, sumstaðar alt að 300 faðma á lengd og þvert yfir ána en íshrðngl bakkanna á milli annarstað- ar. Suður með ánni hér og þar sat ís fastur í flekum landa á milli og hlaðinn upp í garða, er ekki brotnuðu fyrri en miðvikudagsmorgun, en þá fyrir alvöru byrjaði áin að vaxa. Með ísnum að sunnan kom flóðalda, sem þeytti upp vatninu þangað til áin var að heita mátti bakkafull undan bænum, en þeg ar hún stóð hæzt um daginn, var þó yf irborð vatnsins fullum 13 fetum lægra en yfirborð Aðalstrætisins undan Port age Ave. Um kvöldið kom telefónskeyt frá Selkirk er sagði að áin væri þá óðum að ryðja sig og á fimtudaginn var hún íslaus orðin á því svæði. —Emerson er að mestu undir vatni og öll sléttan grendinni og svo er um Pembina, N. D (2 mílur suðvestur frá Emerson).í Grand Forks er áin óðum að lækka,—var hinn 14. þ. m. fullum 3 fetum lægri en þegar hún stóð hæst.— Hér í bænum búast menn við að Rauðá haldi áfram að vaxa af og til alt fram yfir næstu helgi og máske fram um mánaðarlok, en mikið má hún vaxa enn ef flóð á að verða hér bænum- Gasgerðarfélagið vill fá einkaleyfi á gasgerð hér.í bænum í 25 ár enn, en lof- ar að færa niður ljósagas um þriðjung, —úr $3 og i $2 þúsund fetin, og $1,80 ef borgað er fyrirfram. Gas til hitunar og matreiðslu býður það á $l,50þúsundfet. Fái það leyfið býðst það til að leggja 10 mílur af gaspípum um bæinn í sumar og auka að mun við gasgerðarvélar sínar og áhðld. Bæjarstjórnin kom saman á aukafundi til að ræða um þetta mál í vikunni sem leið, en þar var ekkert gert endilegt. “ Bjarki.” Með íslandspósti í vikunni sem leið fékk ég 6 ný blöð af Bjarka, nr. 5—10, og auk þess nægilegt af blaðinu frá byrj un, til að fullnægja öllum pöntunum, er ég hefi fengið. Ég hefi nú sent blaðið út til allra kaupenda. En ef einhverjar misfellur hafa orðið á eða gleymst að senda einhverjum, vilég biðja þá sem fyrir þvi kynnu að verða, að láta mig vita það tafarlaust. — Eg hefi nú fáein eintök óseld af blaðinu frá byrjun. M. PÉTURSSON. Eins og tilstóð var Grand leikhúsið nýja vígt á fimtudagskvöldið 15. þ. m. þó ekki væri það þá að öllu leyti fullgert Leikhúsið er litið kyili—sæti fyrir 900 á- horfendur — en laglegt og bygt sam- kyæmt nýjasta sniði áleikhúsum. Leik- sviðið niðri á grunnmúr, aðal-áhorf- enda.sa.lur þar fram af, en tvö gallerí að auki hvort upp af öðru. Upp af leik- sviðinu rís sérstök bygging hærri en húsið sjálft og upp þangað eru öll leik- tjöld dregin þegar búið er að brúka þau en öðrum hleypt niður að þörfum. Islendinga-dagurinn. Eins og auglýst hafði verið var hald- inn fundur hér í bænum að kvöldi hins 14. þ. m. til að ræða urn þá tillögu, að viðtaka þingsetningardag hins forna al þingis sem þjóðminningardag, þar eð sýnt þætti, að útsveitamenn gætu ekki eða vildu ekki taka 2. Ágúst til hátíða- halds. Fundarsalurinn var troðfullur, sem var vottur þess, að hér var um á- hugamál að ræða. Eftir allmiklar um- ræður með og mót, bar Magnús Paulson fram þá breytingartillögu, að viðtekinn yrði sem þjóðminningaadagur 17. Júní ár hvert, og skýrði þá tillögu þannig, að þann dag mánaðar hefði alþingi komið saman við Öxará, í fyrsta skifti, árið 930 Með breytingaruppástungunni greiddu atkvæði 89 manns, en á móti 119. Með tillögunni að viðtekinn væri fimtudag- urinn er fellur 11.—17. Júni (báðir dag- ar meðtaldir) greiddu atkv., en á móti . Þá var gengið til atkvæða um að íslendingadagur skyldí haldinn 2. Ágústeins og að undanförnu, og voru 129 manns með þeirri tillögu, en hvað margir voru á móti er óvíst, þvi sam- tímis tók fólk að streyma burt úr fund- arsalnum og varð engri reglu á komið. Fundurinn var róstusamari en svo, að hann geti talist tslendingum til sóma. Það var tekið fram i fyrir ræðumönn- um, blístrað, baulað og ýmisleg ólæti höfð í frammi, eins og verst á pólitisk- um deilufundi, og það sem óálitlegast er, er það, að það voru ekki alt gapa- fengnir unglingar sem létu illa. Það gerðu einnig menn, sem hefðu átt að vita miklu betur hvað sæmandi er. Þessi eru þá úrslitin og höfum vér ekkert um það að segja. Þar sem Dak- ota-menn, Utah-menn og að síðustu Winnipeg-menn hafa hafnað tillögunni um að viðtaka þingsetningardaginn, þá virðist það benda á, að menn séu elsk- ari að 2. Ágúst en svo, að þeir geti slept honum. Eins og vér höfum áður sýnt fram á, er það skoðun vor, að þingsetn- ingardagurinn sé alt eins merkur dagur i sögu íslands, en líti almenningur öðru visi á það, skulum vér ekki kvarta yfir því. Það eina sem vér vildum og vilj- um enn, er það, að allar bygðir íslend- inga, sem á annað borð vilja hafa þjóð- minningardag, haldi þann dag á einum og sama degi. Vér getum sem sagt ekki betur séð, en að það sé í meira lagi á- lappalegt, að hafa 2, 8 eða fleiri þjóð- minningardaga á einu ári. Yandað skip verður að allra dómi gufubátur sá, er þeir bræður Stephan og Jóhannps Sig- urðssynir eru að lúka við smíði á í Sel • kirk, Trjáviður allur í byrðingnum er British Columbia fura og betra efni telja menn að ekki sé til i skip. Vélin er að allra dómi ein hin fallegasta og sterk- asta á Winnipeg-vatni hefir 129 hesta afl, frá vélasmiðju James Perkins í Tor- onto. Að sama skapi og efni alt er vandað, er og smiðin vönduð. Yfir- smiðurinn, James Robarge, frá Bay City, Mich., er nafnkunnur skipasmiður —lærði það verk til fullnaðar á skipa- smíðisverkstöðinni sem framleitt hefir meðal annara skipa,hin ferðmiklu gufu- skip “American línunnar.” Hinir smið- irnir flestir voru Islendingar, er munu fá góðan vitnisburð hjá yfirsmiðnum fyrir dugnað og vandvirkni. W. E. Simpson vélfræðingur var yfirmaður við að setja saman vélina og komahenni fyrir. Hvað mörg tons báturinn ber, höf- um vér ekki heyrt, en í honum er frysti- hólf er tekur 35 til 40 tons. Stærð hans er : Lengd, að yfirmáli, 105 fet; breidd 18J fet; hæð upp að þilfari 9 fet. Þegar hann er hlaðinn ristir bann 6 fet. Á bátnum aftanverðum er upphækkað þil- far (lyfting) 24 feta langt. Á honum framanverðum og aftur undir hið upp- hækkaða þilfar er yfirbygging 6J fet á hæð, er klæðir bátinn allan út á borð- stokka. Ofan á þeirri bygging er káet- an, eða farþegjarúm, borðsalur o. s.frv., 14 feta breitt og nær frá stýrimannshús- inu að framan aftur að hinu upphækk- aða þilfari. Er búizt við að í þessu far- þegjarúmi verði rúm fyrir 40 farþegja. Undir hinu upphækkaða þilfari eru her- bergi skipverja og þar einnig er mat- reiðsluskálinn og gengur lyftivél frá honum upp i borðsalinn. ^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦E£ ♦ X Hin makalausustn ÍKJORKAUP ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ : ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ í tvœr vikur. ♦♦♦♦ ♦ Um tvær næstu vikur gefum ♦ vér hatt og hálsbindi með hverj- ♦ um alfatnaði sem keyptur er J hjá oss. Hattarnir eru með nýj- ♦ asta lagi, $1,00—$2,50eftirþví ♦ hve dýr föt eru keypt. Fötin X seljum vér eins ódýrt ognokkr- ♦ ir aðrir, suo þér sparið yður ai- ♦ gerlega það sem þér fáið gefins X með þeim. — Komið inn og tal- ♦ ið við Kristján Benediktsson ♦ sem vinnur í búðinni. X 1 Iloover & Towiu ♦ ■ n, 7 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ 680 Main Str. Næstu dyr fyrir sunnan ' Clifton House. ^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦j^ SÍON S-FRÉTTIR. Spanish Fork, Utah. 7. April. Tíðarfarið hefir verið hálf umhleyp- ingasamt í vetur, sérstaklega síðan um nýár. Engin veruleg vorhlýindi kom- in enn. Bændavinna ekki byrjuð þeg- ar þetta er skrifað (7. Apríl). Heilsufar með lakara móti í vetur; mislingar og ýmsir aðrir smá kvillar hafa gengið hér í nær allan vetur. — Manndauði lítill. 67. árs kyrkjuþing Mormóna stend- ur nú yfir í Salt Lake City. Engin tíð- indi þaðan. 27. Febr. síðastl. lézt að heimili sínu hérí bænum Rannveig Jónsdóttir, þriðja kona Þórðar sál. Diðrikssonar. Dauðamein hennar lifrarveiki. Hún var jarðsett hinn 29. s. m. Á meðal landa hafa þessi gift sig í vetur: Elías Jones og Helga Gísladótt- ir Einarssonar frá Hrífunesi; Jeremías Davís og Guðbjörg ( Guðmundsdóttir Guðmundssonar úr 'Parish’; Árni Helgason og Seselja Vigfúsdóttir; Einar Pálsson og Magnea Sigriður Ágústa Magnúsdóttir Einarssonar frá Sauða- gerði við Reykjavík; Einar Vigfússon og Jónína Guðrún Þórarinsdóttir Mor- móna-missíónera. sem seinast var send- til íslands; Julian Whitemore og Maria Guðmundsdóttir frá ‘Parish’. Fjarska mikla hátíð stendur til að halda hér i Utah á næsta surnri, sem nefnist 'Pioneer Jubilee’ í minningu þess, að liðin eru 50 ár siðan að spá- maðurinn Brigham Young kom fyrst til Salt Lake dalsins, en það var 24. Júlí 1847. Hátíðin á að byrja þann 20. Júlí og endar þann 24. Um $100,000 hefir verið safnað saman til hátíðar- haldsins, og verður hún haldin i Salt Lake City, því það er staðurinn sem fyrsta tjald var reist á í Salt Lake-dal 1847 af þeim 181 sáluin sem fyrst komu þangað með B. Young. Nú er ibúatal- an í Salt Lake City 60 000, en 300,000 í allri Utah. Öllum governorum og öllum þing- mönnum og öllum Senators úr hinum vestlægu fylkjum og hans hátign ,for- seta Banaaríkjanna verður boðið að taka þátt í þesari miklu þjóðhátíð hinna síðustu daga heilögu, fyrir utan alla aðia, sem búast máviðaðverði þar. Til kjósendanna í Winnipeg. Þar eð margir kjósendur í Winnipeg hafa beðið mig að vera í kjöri sem óháð þingmanns efni, Og þareð mér hefir verið sent svo- hljóðandi útnefningaskjal : "Vér undirritaðir kjósendur í Winnipeg kjördæmi útnefnum hér með Edmund Landor Taylor, lögfræðing, til heimilis í Winnipeg, til að sækja um þingmannsstööu á sambandsþingi Canada, sem fulltrúi þessa kjördæmis. Thos. Ryan, Wm. J. Hodgins, Rev. Joseph Hogg, Geo. F. Stephens. Rev. Cecil C. Owen, Ald. J. F. Mitchell Chas. Raitt, Albert T. Davidson, AndrewStu- art, R. D. Rorson, Frederick H. Davidson, Angus Sutherland, T. J. White, Andrew Dykes, W. R. Taylor.E A. Burbank Dr. Wm. J Neilson, Geo. Parr, W. Kinch. S- F. Olafson, W. A. Pierce, Geo. H. Rogers, Rev.J. Stuart J. C. Sproule, W. D. Bayley, B. Cunn- ingham, F. A. Dixon, og nokkur hund- ruð fleiri. Þá hefi ég afráðið að taka þessari útnefningu og skal, ef ég næ kjöri fram- fylgja þessum málum: 1. Algerðu vinsölubanni. Mér verð- ur umhugað um alla löggjöf sem miðar til að fyrirbyggja vínsöluna. 2. Ég vil á allan hátt styðja mál sem verkalýðnum eru hagkvæm, og alla þá löggjöf sem veitir verkalýðnum þeirra viðurkenda rétt. 3. Ég er mótfallinn löggjöf sem gefur blátt áfram spekulöntum hald á arðberandi eign þjóðarinnar, en vil að sú eign sé geymd þeim sem vilja hag- nýta þá eign, verkalýðnum til gagns og þjóðinni í heild til góðs. 4. Ég er hlyntur því að leitað sé. sem nánastra verzlunar samninga við Breta- veldi og útríki þess og mun mæla með að alvarleg tilraun sé gerð til að hrinda því áfram, en ekki að gengið sé eftir Bandaríkjunum í því efni. 5. Nái ég kjöri sem fulltrúi á þingi skal ég sem óháður þinginaður fylgja öllum málum sem Canadaríki í heild sinni er til hagnaðar, með sérstöku til- liti til þess sem Manitoba er hagkvæmt. E. L. Taylor. Winnipeg 19. Apríl 18997. Kryplingur æfilangt. ÞAÐ SÖGÐU LÆKNARNIR UM RICHARD B. COLLINS. Hann var mánuðum saman í sjúkrahús um í Toronto, án þess honum batnaði nokkuð. Pink Pills lækn- aði hann þegar útséð var um að önnur meðöl dygðu. Tekið eftir blaðinu Echo, Wiarton, Ont. Blaðið Echo segir eftirfylgjandi sögu, og bætir því við, að það só engin furða þó útbreiðsla þess meðals, sem þannig reynist aukist að mun, því nytsemi með alsins er stórvægileg. * ‘Eg, Richard B. Collins, geri hér með eftirfylgjandi skýrslu, sem ég get sannað með mörgum vottorðum. Ég fór fyrst að finna til meina mínna fyrir 5 árum. Ég var um það leyti að vinna við fiskiveiðar og var votur að heita mátti alla tíma bæði sumar og vetur. Mér sló niður og lá ég í rúminu nærri 3 mánuði. Þetta var í fyrsta sinni sem ég hafði fengið þannig lagað aðsvif og þegar mér skánaði fór óg aftur að vinna og vann frá því í Fdbrúar þangað til í Janúar árið eftir, að ég fékð annað að- svif. Læknarnir kölluðu þetta gigt, og þegar þeir voru búnir að reyna ým- islegt við mig þangað til í Maí að þeir urðu þess vísari, að sýkin var mjaðma- íslendingadags samþykt Argyle-manna. Eftirfylgjandi grein hefir oss verið send frá Argyle til birtingar í Hkr.: “Islendingar í Argyle komu saman á fundi hinn 13. Apríl, til þess að ræða um fslendingadagsmálið. Fundurinn var vel sóttur og voru fundarmenn ein- huga um það, að hafa 17. Júní árlogan þjóðminningardag. Eftirfylgjandi nppá- stunga um þetta efni var í einu hljóði samþykt : “Oss sem hér erum samankomnir á fundi, virðist það æskilegt og vel við eigandi, að íslendingar í Vesturhoimi á- kveði einhvern dag ársins sem almennan þjóðminningardag og að þeir komi sam- an þann dag, sér til skemtunar og þjóð- legrar eflingar. Og þar eð vér þekkjum engan dag, sem fyrir islenzka þjóð hefir jafn almenna og merka þýðingu og 17. Júní, þingsetningardagr fyrstaalþingis Þingvöllum við Öxará árið 930, þá er allsherjarríki var { fyrstu stofnað á ís- landi, þá ályktum vér, að vorum hluta að ákveða. að sá dagur verði framvegis almennur þjóðminningardagur vor. En beri 17. Júni upp á sunnudag, þá sé þjóðminningardagurinn haldinn næsta dag á eftir.” Fundurinn ákvaö að hafa útbúnað til samkomu í Argyle næstk. 17. Júní og kaus 15 manna nefnd til forgöngu í því efni.” gigt sögðu þeir mér að fara á sjúkra- húsið. Ég fór til Torouto og var í sjúkra- húsinu 5 vikur og fór síðan heim enitu betri en ég hafði komið þangað. Mér batnaði ekki heima og mátti sama vor- ið aftur fara á sjúkrahúsið og dvaldi ég þar 3 mánuði, en fór alt af versnandi Mér var sagt að þar væri ekki hægt að lækna mig, og þegar ég fór gat ég að vísu gengið við hækju. Þessu 'næst fór ég heim og leið þá ekki á löngu áður en ég fór aftur í rúmið. í þessu ástandi var ég þangað til í Janúar næsta ár, að kunningjar mlnir ráðlögðu mér að reyna Dr. Williams Pink Pills. Ég fór að ráðum þeirra, og áður en ég var bú- inn með 5 öskjur var mér farið að skána og þegar ég var búinn með eina tylft af þeim var ég orðinn svo góður að óg gat gengið staflaus og hefi óg alarei brúkað þær síðan. Ég gat nú farið að vinna ýmsa létta vinnu með köflum, og í Janúar (1897) í vetur fór ég að vinna í skógi og fann ekkert til í mjöðmunum, nema ég þreytti mig um of. Hin síð- ustu árin hefi ég eytt til meðala $300 og hefi reynt alt sem álitið var að væri til gagns. þó ekkert dygði mér þangað til óg fékk Dr. Williams Pink Pills. Þeim á ég að þakka heilsu mína, því læknarn ir gáfu mér enga von um að fá heilsuna aftur. Ég get bæt.t því við, að áður en ég fór aðj|brúka Pink Pills var ég marga nótt svo, að ég hugði að ég mundi ekki lifa til Jmorguns”. Gigt, mjaðmagigt, taugagigt, riða, limafallssýki, höfuðverkur. taugaveikl- un o, s. frv., eiga rót sína að rekja til blóðsins. Kirtlaveiki langvarandi heima koma o. s. frv,, læknast fljótt og vel með Pink Pills. Þær gera líkamann hraustan og heilbrygðann og útlitið fallegti Þær eru seldar hiá öllum lyf- sölum og fást með pósti frá Dr, Wiili- ams Medicine Co., Brockville, Ont.. fyrir 50 cents askjan, eða 6 öskjur fyrir $2,50. Takið ekki eftirstælingar. Gerðu betur ef þú getur. Það sem er í Blue Storc verður að fara Merki: Blá stjarna 434 MainSt. Vorföt fyrir karlmenn, dökk og grá á lit og $7,50 virði. Vér seljum þau. $3,90 Alullarföt fyrir karlmenn, með allskonar litum móleit, 7rt og stykkjótt $9,50 virðijyrir ‘0 Alullarföt fyrir karlmenn, mjög vöhduð, $13,50 virði, ©o ka Vér seljum þau....... Ipo,DU F ín karlmannaföt. Þessi föt eru búin til eftir nýjustu tízku og vönduðað®-io cn öllum frágangi. Ættu að kosta 16—Í8. Vérseljumþau Föt úr skozku vaðmáli. Þess föt eru öll með beztafrá- gangi og efnið í þeim er alull <6-1 0 rn ættu að kosta $25,00. Vér seljum þau á......... Barnaföt Stærð 22—26, ættu að kosta $2,00. Vér seljum þau á.... Drengjaföt úr fallegu svörtu vaðmáli, sterk og endingargóð, $8,00 virði. Vér seljum þau á.... Buxur! Buxur! Buxur! Hvérgi i heimi eins ódýrar. Karlmannabuxur...........$1,00 Skoðið karlmannabuxurnar fyrir $1,25 Og ekki síður þær sem kosta $1,50 Enginn getur selt jafngóðar buxur og vér fyrir.......... $2,00 Karlmanna “FEDORA” hattar svartir, mórauðir og gráir, með lægsta verði. THE BLUE STORE. blá^stjarna. 434 Main St. A. Chevrier. $1,00 $4,50 NortliernPacjflcRy. Getar selt Jiér farbréf VESTUR, til Kootenay (einasta h'na). Victoria Vancouver, Seattle,Tacoma, ogPortland er í sambandi við brautir sem liggja þvert yfir landið, póstskip og sérstök skemtiferðaskip til Alaska. Fljótasta leið og bestir vagnar til San Francisco og annara staða í California. Sérstakt gjald fyrir “túrista” alt árið. u Snnnanfari,” Fræðiblað með myndum. Kemur út £ Reykjavík einu sinni á hverjum mánuði. Eina íslenzka ritið er stöð ugt flytur myndir af nafnkunnum I% lendingum. Ritstjdri 0g eigandi Þotsteinn Gíst.ason. Blaðið kostar í Ameríku, fyrirfram borgað, einn dollar úrgangurinn. Eldsabyrgd Vér vonum að íslendingar komi til okkar þegar þeir þurfa að setja hús, innanhúsmuni og verzlunar- vörur í eldsábyrgð. Vér höfum sterk og áreiðanieg félög, og ger- um vel við þá sem skifta við oss. Carruthers & Brock, 453 iNain St. J. F. MITCHELL, Photographer. Photographic Studio 211 Rupert St. Telephone 511 Winnipeg, - - - Man. SUÐTTR, Bestu brautir til Minneapolis, St. Paul Chicago, St. Louis etc. Hin eina braut sem hefir borðvagna og Pullmanvagna. AUSTUR, Lægsta fargjald til allra staða í Austur- Canada og Austur-Bandaríkja, gegnum St. Paul og Chipago eða vatnaleið gegn- um Duluth. Greið ferð og engin við- staða ef þess er krafist. Tækifæri til að skoða stórborgirnar á le:ðinni ef menn vilja það heldur. Lestagangur til Dul- uth í sambandi við N. VV. T. félagið, Anchor línuna og N. S. S. félagið. TIL EVROPU, Káetuplás og farbréf með öllum gufu- skipahnum sem fara frá Montreal, Bosb- on. New Yorkog Pnjladelphia til staða í Evrópu, Suður-Afríku og Australíu. Skrifið eftir upplýsingum eða finnið C’lias. S. JFee, General Passenger Agent. St. Paul. n , , _ eða If. Swinford General Agent Winnipeg WinnipegOffice Cor Main & Water St. “BJARKI,” ritstjóri Þorsteinn Erlingsson, langbesta blaðið sem gefið er út á Is- landi. Kemur út i hverri viku. Kostar að eins $1.00 um árið. Útsölumenn fá góð sölulaun. Skrifið til „ . „ M. PÉTURSSONAR, P.O. Box 305, Winnipej?. * -=*#*### # “BICYCLES” Eg hefi samið um kaup á nokkrum reiðhjólum (Bicycles), sem em álitin ein af (>eim ALLRA BEZTU, sem búin eru til. Þau ódýr- ari eru áreiðanlega betri en nokkur önnur, sem ég þekki fyrir þá pen- inga. Karlraanna-hjól eru $40, $55, $75, og $100. Kvenn-hjól $55 og $75. Nokkur afsláttur ef alt hjólverðið er borgað út í hönd. Hjólin eru til sýnis f búð Mr. A. Friðrikssonar, og á skrifstofu Lögbergs. Komið og skoðið þau. B. T. BJORNSON. *«»#»<---------- »»»»»* RrniiNwick llotcl, á horninu á Maine og Rupert St, Winnipeg. Hvergi í bænum betri viðurgerningur fyrir $1 4 dag. Bestu vín og vindlar. Fríflutn- ingur að og frá járnbrautarstöðvum. McLaren Bro1*, eigendur. íslenzkir mjólkursalar. S. M. Barré, smjör og ostacerðar- maður, hefir í hyggju að setja upp smjör- gerðarhús í nánd við skrifstofu sina á horninu á King og Alexander St., ef hann getur fengið næga mjólk hjá mjólkursölumönnum í bænum til að byrja fyrirtækið. Hann mælist til þess að allir sem hafa mjólk f aflögum, eða eru líklegir til að hafa meira heldur en þeir þurfa að brúka yfir sumarið, finn sig að máli þessu viðvíkjaudi. Þetta ætti að koina sér vel fyrir ís- lendinga ekki síður en aðra.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.