Heimskringla - 10.03.1898, Page 1

Heimskringla - 10.03.1898, Page 1
XII. ÁR FRÉTTIR. ' Canada. Lyman Dart, 17 ára íiarnall piltur, sem hafði verið dæmdnr til að herigjast 3. Marz, í Truro, Nova Sootia, var fund- inn sýkn saka og slept úr fangélsi. Aberdeen lávarður skrifaði sjáifur undir skipun þessu viðvíkjandi, og dómarinn sem áður hafði dæmt piltirm, studdi mjög vel að lausn hans. Fréttir koma frá Nanimo, British Columbia, að gufuskipið Oregon hafi komið þangað 28. Febrúar frá Skag- way og Dyea með fjölda af farþegjum, sem eftir stutta veru i gulllandinu eru nú á ferðinni heim til sín aftur, flestir félausir, en allir sammála um, að það sé ekki "alt gull sem gióir”. Áður en skipið fór frá Skagway höfðu 17 manns dáið þar á 24 klukkustundum, og lækn- ir nokkur, Dr. O. B. Estees, frá Asto- ria. Wrash..*sem var einn farþeginn, á- lítur að dauðsföllin muni bráðlega skifta hundruðum, í Febrúarmánuöi var selt til Eng- lands frá Cánada 1916 nautgripir fyrir £32,822 1670 kindur “ 2,027 140 hestar “ 316 1.482,600 pund af reyktu svínakjöti fyrir £23,917. 222,800 pd. af reyktum svíns- lærum fyrir £4.545. 191,000 pund af smjöri fyrir £8,212. í alt um 71.839 pund sterling eða um $349.137. Þetta er meir en lítil upphæð fyrir einn mán- uð, og ætti hún að bæta töluvert i búi hjá bændunum sem hafa framleitt þess- ar verzlunarvörur. W. C. McDonald í Montreal er ný- búinn að gefa McGill háskólanum þar $15,500. Áður hefir hann gefið sem nemur $1,500,000 til sömu stofnuuar. C. P. R. telegraffélagið hefir ákveð- ið að leggja telegrafvír úr kopar frá Montreal til Vancouver á næsta sumri. svo þeir hafi óslitinn þráð frá hafi til hafs. Eins og stendur verða allar hrað- fréttir milli þessara staða að endurtak- ast hér í Winnipeg. Er það töluvert seinlegra og aukafyrirhöfn. Yfirdómarinn í JBritish Columbia, Hon. Theodore Davie, andaðist á mánu- dagsmorguninn var. Banamein hans var hjartveiki. Það er sagt um Hon. Mr. Davie, að hann hafi verið einna öt- ulastur allra opinberra starfsmanna þar og því mikil eftirsjón að honum. Ómögulegt er að segja enn þá með neinni vissu, livað mikinn meirihlata stjórnin muni hafa í Ontarioþinginu. Eftir síðustu fréttum að dæma skyldi maður ætla að Liberalar verði 2 eða 3 fleiri en Konservativar. En þá eru ein- ir tyeir sem eru óháðir báðum flokkutuj og er ekki gott að segja að hvorri hlið- inni þeir hallast. Itamlarikin. Sakadólgur einn sem situr i fanga- húsinu í Sing-Sing í New York rikinu, drap konu sína, er komið hafði til að heimsækja hann. Þegar hún kom inn til hans. tók hann á móti henni með mestu blíðu, en þegar stundin var kom- in sem þau áttu að skilja, stakk hann hana með hníf i háls'nn vinstrameginn, og það svo íljótt og fimlega, að varð- maðurinn. sem var nærstaddur, gat ekki hamlað þessu grimdarverki. Eng- in önnur ástæða er gefin fyrir glæpnum en sú, að ákærur kouuunar höfðu sent þeunan náungs/í betrunarhúsið. Efrideildar þingmaður, Canmm. kom með frumvarp fyrir þingið í Was- hington þess efnis, að veita $50.000,000 til þess að auka og eodurbæta heraflann bæði á sjó og landi, og svo til þess að kaupa nægileét af alskonar skotfærum. Mr. Cannon irat þess mn leið til skýr- ingar, að ekkert lán þyrfti stjórnin að taka til þess að veita þessa upphæð, þar eð fjártnálaráðherrann hefði sktrt sér frá. að í fjárhirzlunni væru um 230 milj.. sem væru á reiðum liöndum til hvers sem vera vildi. Senor Gnllon, utanriki sráðh. Spánar lét nýlega i ljósi við sendiherra Banda- ríkjanna á Spáni, Woodford, að stjórn- in óskaði eftir að General Lee, konsúll Bandaríkjanna í Cúba yrði endurkall- aður og að Bandaríkjamenn sendu matarforöa til styrkt.ar Cúbaínönnum á kaupskipum, en ekki á herskipum, cins og ákveðið var. Sendiherra Wood- ford sendi hraðskeyti þess efnis til stjórnarinuar i Washington. og neitaði hún að verða við beiðní Spánverja und- ir núverandi kringumstæðum. Hinn alræmdi Adolph L. Leutgert, sem fyrir skömmu síðan var dæmdur til æfilangs fangelsis fyrir að myrða honu sina, var á laugardaginn fluttur í fangahúsið í Joliet, 111, WINNIPEG, MANITOBA. 10. MARZ 1898. NR 22 A þriðjudaginn var loksins búið að j^firheyra öll vitnin, og lögmennirnir búnir að ljúka máli sínu fyrir báða málsaðila. í sakamálinu á móti Sheriff Martin J og aðstoðarmönnum hans, i Wickesbarre, Penn., fyrir að hafa skot- ið námamennina hjá Lattimer í haust er leið. Eins og log gera ráð fyrir á varpaði dómarinn sjálfur kviðdómend- ur. Fanst öllum er til hans heyrðu, að hann vera u S of hlyntur Shenff Mar- tin og hans Ifylgifiskum. tltloml. Sagt er að Spánarstjórn sé búin að kaupa tvö herskip frá Brasilíu, sem voru í smiðum á Englandi. Eigi vita menn hvaðan gjaldeyrinn kemur, þar eð stjórnin sjálf er á hausnum, en bú- ist er við að Frakkar láni féð. Spánn vildi einnig eignast 3 önnur herskip, sem eru i smíðum á Englandi fyrir Chili. en nú litur út fyrir að Bandarík- in hafi orðið fljótari til. Ef að frásögn- in er rétt, þá bætast þar 3 góð skip við flota Bandaríkjanna. Ófriðarhorfurnar aukast alt af á milli þessara tveggja ríkja og búast þau í ákafa; auka herlið og skipaflota sinn, hraða viðgerðum á skipum og skotgörðum sínum, margfalda fram- leiðslu á öllum þeim verkstæðum, sem að einhverju leyti standa í sambandi við herútbúuað þeirra, og í stuttu máli. ganga svo aö verki, að áhorfendurnir mættu ætla, að það þýddi eitthvað meira en tóm látalæti. Bandaríkjastjórn ætlar að sögn að gera eyjarnar Dry Tortugas að herstöð. Meinar það að þar hefir st.jórnin annað Gíbraltar í Mexicoflóanum. Tortngas- eyjarnar eru lítið lengra frá Havana, heldur en Key West á Floridaskagan- um, en mikið betur lagaðar fyrir her- stöð. Fjarlægð þeirra frá Havana, höfuðstað Cúba, er að eins 90 mílur. Kyrrahafsfloti Bandaríkjanna held- ur sig fram með ströndum Kína. Þeir verða því viðbúnir, ef i ófrið lendir, að taka Philippuseyjarnar, sem eru eign Spánverja, og liggja þar skamt undan landi. Frétt frá Þýzkalandi segir, að stjórnin só búin að banna öllum út- londum námsmönnum aðgang að vél- gerðardeildinni í gagnfræðisháskólanum í Berlín. Það lætur illa í eyrum útlendra nemenda, sem náttúrlegt er. Þeir bú- ast líka jafnvel við að bráðlega muni koma skipun, sem útiloki þá frá öllum samskonar stofnunum á Þýzkalandi. Frjálslyndari blöðin þ ir taka all hart i strenginn á móti þessu, og láta í ljósi von sina um að aðrar þjóðir muni gjalda þeim í likutn mæli. Stjórnar- blöðin þar á móti hrósa þessum gerðum stjórnarinnir sem öðrum skipuDum hennar. Fréttir frá Havana segja. að upp- reistarmönnum hafi enn einu sinni heppnast að ná sér vopnum og vistum, sem voru flutt nærri því inn á höfnina í Matanzas, á skipinu Dauntless. Varn- iugurinn var verndaður af 400 riddur- um úr uppreistarliðinu. Árás var gerð á það af 800 spánskum hermönnuin, en í staðinn fyrir að ganga í bardaga við þá. höfðu Cúhamenn sig undan með hægð, og björguðu þannig sjálfum sér og vistum sínum. • Vegna yfirvofandi ófriðar rnilli Spánar og Bandaríkjanna hefir nú Go- mez, yfirhershöfðingi uppreistarmauna á Cúba, sent tnann til Washington með fullkoinnar skýrslur yfir ástandið á Cúba. hernaðaraðferð þeirra, liðsfjölda, og, i stuttu máli, alt sem lýtur að frels- isbaráttu þeirra. Þetta gerir hershöfð- inginn til þess að hann geti því betur starfað í samrærai við flota Bandaríkj- anna ef til ófriðar kemur. Einnig lætur liann í ljósi vilja sinn með það að einhver Bandaríkja hershöfðingi yrði .fenginn til þess að taka að sór heist jórn þá sem hann nú hefir á hendi. Hann efast ekki um að fyrsta verk Bandaríkjatnanua yröi að frelsa Cúba- menn undan oki Spánverja, og vill hann því feginn leggja alt í sölurnar. Nú er fullyrt að .Rússar sóu búnir að leigja hafnirnar Port Arthur og Ta Lien Van af Kínverjum, unj 99 ára tima- bil. Eiunig eru þeir að auka herflota sinn í Kyrrabafinu. Hafa sent þangað 13 nýja Torpedobáta. Svo ætla þeir að halda þar 8 hraðskreiðum herskipum sern áður hafa verið í Svartahafinu. Þeir vilja eigi þurfa að eiga neitt undir Bretum, með að koma fiota sínum í gegnum Suezskurðiun, ef til ófriðar kæmi ut af Kínamálum. Japanítar eru óðir og uppvægir út af þessum aðförum Rússa, og hóta öllu illu ef Rússar slaki ekki til. Bretar eru líka mjög óánægð- ir yfir þessu, en fara ait stiltara. Winnipeg•. Miss Margrét Bergsveinsdóttir, 535 Elgin Ave., á bréf á skrifstofu Hkr. Kaupmaður Stefán Sigurðsson frá Hnausum, Nýja Islandi, var hór á ferö í bænum seinnipart fyrri viku. Á skrifstofu Hkr. eiga þessir bréf: Mr. Lárus Guðinundsson og Mr. J. Gillis. Bæði bréfin eru frá íslandi. Hra, S. B. Benediktson frá Selkirk heimsótti oss á laugardaginn var. Hann dvelur nokkra daga i bænum. Páll Magnússon verzlunarmaður i Selkirk var hér á ferð í verzlunarerind- um um helgina. Fór heimleiðís á mánudaginn. Núna um helgina fengum vér skeyti frá séra Þórhalla Bjarnarsyni um að Kyrkjublaðið sé hætt að koma út. “Friður sé með moldum þess”. Lesið auglýsinguna frá Mr. Fleury í þessu blaði Hkr. Hann er nú búinn að fá inn vorvörur sínar. og Islending- ar gerðu vel í að lita yfir þær áður en þeir kaupa "annarstaðar. ‘Tjaldbúðarsöfnuður heldur sína ‘síð- ustu vetrarsamkomu” í Tjaldbúðinni annaðkvöld kl. 8. Prógrammið er langt og bústið og búist við góðri skemtun. Sjá augl. á öðrum stað í blaðinu. Hra. J. H. Johnson frá Mountain, N. Dak,, er alfluttur liingað til bæjar- ins. Kom með konu sina i vikunni sem loið. Fyrst um sirin býr hann að 156 Kate Str. Hra. Johnson er ágætur járnsmiður, og býst við að stunda þá iðn sína hér. Hinn nýi konsúll Bandarikjanna, Mr. Graham, frá Indiana, kom hingað þann 3. þ, m, Hann dvelur hjá vinum sínum hér í bænum nokkra daga áður en hann tekur við störfúm sinum. Mr. Dnffie, fyrverandi konsúll, flytur með fjölskyldu sinni til Arkansas, þar sem hann átti áður heima. Good Templar stúkurnar Hekla og Skuld halda ‘ Gold Medal Contest” næsta mánudagskvöld á North West Hall. Þeir sem keppa þar um medali- una verða vel undirbúnir, og er því bú- ist við töluverðu kappi. Þar að auki verður góður söngur, solos, quartette, hljóðfærasláttur o. s. frv., og er þvi vonandi að samkoman verði vel sótt. —Aðgangur að eins 10 cents. Islendingar í Pembina County ættu að lesa auglýsinguna frá R, Branchaud í Cavalier, N, Dak., sem kemur í Jiessu blaði. Hann er vel þektur af inörgum Islendingum sem hinn áreiðanlegasti og bezti drengur. Það er því enginn efi á því að það er hagræði fyrir þá að verzla við hann fremur en einhvern lítt þekt,- arin náunga. Hann ábyrgist líka alt sem hann selur ykkur. Landi vor, hra. Jón Stefánsson frá Hallson, N. Dak., hefir verið ráðinn af Mr. Fleury í Winnipeg Clothing House til þess að vinna i búðinni. Á hann sórstaklega að annast afgreiðslu þeirra mörgu Islendinga. sem verzla við Mr. Fleury. Vér getum gefið ósvikin meðmæli ökkar með Mr. Stefánson: hann er okk- ur kunnur sein áreiðanlegur og góður drengur. Snemma á laugardagsmorguninn var varð maöur nokkur að nafni Alfred Blackall undir járnbrautarvagni ’nér í bænum hjá C. P. R félaginu og beið hann dauða af, JMaður þessi hafði þann sérstaka starfa á hendi hjá félaginu að gera við járnbrautarvagna. Þennan morgun var hann við þann starfa sinn með öðrum manni. Tók hann þá eftir því að á næsta spori stóð vagn, sem þurfti lítilfjörlega viðgerð. Brá hann sér því þangað og bjóst tíl að afljúka verki sínu, en hann varð að fara inn- undir vagninn áður en hann gæti það. Meðan á því stóð koin einn af gufuvögn um þeim. sem sífelt eru á ferð fram og aftur við að flytja vagnana af einu spori á annað. með langa lest af tómum vögnum, og rak þá á vagninn sem Blackall var undir. Afleiðingin varð sú, að vagnhjólin fóru yfir fætur hans og tóku þær því nær af, og einnig brotn- uðu nokkur rif í hægri síðu hans og hægri handleggurinn var allur marinn í sundur. Maðurinn lifði í tvær klukku- stundir, en var alt af meðvitundarlans. Jakob bókbindaii er nýfluttur að 121 McDonalds 8t. Utanáskrift til hra. Einars Ólafs- sonar verður eftirleiðis: 789 Notre Daine Ave. West, Winnipeg, Man. Nr. 20 af þessum árg. Hkr. verður kejflt á skrifstofu Heimskringlu. Þeir sem vilja selja, eru beðuir að senda blaöið sem allra fyrst. Það er von á Booth, yfirmanni Sáluhjálparhersins, til bæjarins á mið- vikudagiun kemur. Búist er við að hann dvelji hér tvo eða þrjá daga. Nýlega fluttu sig frá Selkirk vestur til Seattle, Wash., tvær fjölskyldur is- leuzkar: Hans Hansson með konu og börn; nafn hinnar fjölskyldunnar vit- um vér ekki. Frá því Hkr. koúi út siðast hélst sama veðurbliðan; þíða á hverjum degi, en dálitið frost á nóttum, þar til á þriðjudagsmorgun, að það snerist i norður með fannkomu og hvassviðri. Þegar blaðið fer í pressu er s«ma íiorðan f júkið. Hvítabandsdeildin íslenzka heldur opinn skemtifund, miðvikudaginn 16. Marz,, kl. 8 e. h , í Unity Hall. Pró- grammið verður liuft eins gott og föng eru á. Ollum er boðið að koma. 8am- skot verða tekin, þvi félagið hefir tölu- verðan kostnað að bera, en er ungt enn þá og því fátækt af centunum. Fimtudaginn 3. þ. m. komu hingað til bæjarins Mr. S.igurður Ej’jólfsson og Miss Kristín Anna Danielsdóttir, frá Vestfold, Man. Um kvöldið sama dag voru þau gefin saman í hjónaband af séra, Hafsteini Péturssyni. Daginn eft ir fóru nýgiftu hjónin heim til sin. — Hkr. óskar hjónunum til lukku. Á sunnudagskvöldiðkemur, kl. 8 30 verður haldin minningarmessa út af dauða Miss Willard í Grac Church hér í bænum. Allir meðlimir W. C. T. U. og öllum meðlimum bindindisfélaga og yfir höfuð öllum er boðið að koma og vera við þessa minningarmessu. Kyrkj- an verður prýdd með ýmsu skrauti, þar á meðal verða flögg allra þjóða sem hægt er að fá liér í bæoum o. s. frv. Hin velkunnu heiðurshjón, herra G. P. Thordarson (bakari) og kona hans urðu fyrir þeirri sorg, 3. þ. m., að missa elztu dóttur sina, Guðrúnu Agústu, 6J ára að aldri. Dauðamein hennar var garnahólga, og hafði hún legið sjúk í viku áður en hún dó. Hún var einkar elskulegt og efnilegt barn og augasteinn foreldranna, og má því geta nærri hve söknuður þeirra er sár. — Jarðarförin fór fram á laugardaginn var. Nú eru þeir herrar Jóh. Pálsson og H. Bardal byrjitðir á húsbúnaðarverzl- un sinni í búðinni á horninu á King og James St., þar sem hr. Teitur Thomas verzlaði áður. Hyer sem kemur inn í búð þeirra félaga getur sannfærst um það, að þeir selja góða og ósvikna muni fj-rir mjög sanngjarnt verð. Hkr. er mjög ánægð yfir að sjá þá korana í ná- grennið, og óskar þeim um leið vaxandi verzlunar og velgengis. Þrír kj-nblendingar réðust á skóla- pilt frá Wesley College á laugardags- kvöldið var. Hann var á heimleið eftii Portage Ave., þegar beir lögðu að hon- um. Eftir allsnarpan hardaga hafði hann sig frá þeim, en bar þó töluverðar menjar eftir orustuna, Það ýiröist alt af vera að ankast ó- regla á strætum bæjarins, einkanlega seint á kvöldin. Stafar það etíaust af fæð lögregluþjónanna. Mr. R. JSeemann, bankastjóri frá London, var hér á ferð í vikupni sem leið. Hann er sagður mjög ötull mað- ur og fjáður vel. á liann meðal annars 81.000 ekrur af landi hér með fram Ma- nitoba & North Western járnbrautjnni Hann hefir í hyggju að byggja þessi lönd dugandi mönnum, sem uenna að vinna og vilja reyna gæfuna við akur- yrkju. Kveðst hanu muni leggja hverj- um einum til, eftir þörfum, grípi. ak- uryrkjuverkfæri og útsæði. Fyrir þetta borgar svo leignliðinn með viss- um hluta ágóöans, þegar búskapurinn gengur vel. En verði bóndi fj-rir upp- skerubrestí eða öðrum áföllum, áskilur Mr. Seeman sér enga borgun fyrir það eða þau ár. Þessir leiguliðar verða undir urasjón innflutningastjórans hér í fylkinu, og á hann að hafa heimild til að reka burt af Iðndunum alla letingja og slóða og legja þau öðrum, sem bctur eru til þess falln- ir að gera þessar bújarðir arðberandi. Þjófurinn Carl Ericson, sem tvi- vegis braust inn og gerði fjárnám í búð hra. Stefáns Jónssonar á Ro-s Ave. hér i bænum, var á föstudaginn 4. þ, m. dæmdur i 9 mánaða fangelsi. Yfirdóm- arinn, Thomas Tavlor, sem dæmdi hann, sagðist hlífa honum við harðari sekt i þetta sinn, þar eð það væri fj-rsta brot hans. en varaði hann um leið við því, að komast ekki oftar undir manna hendur, því þá fengi hann lengri visti betrunarhúsinu. — Ericson hafði stolið yfir $600 virði af vörum, og þegar haun náðist var hann _að reyna að §elja sumt af þeim. Á laugardaginn kemur lleggja af stað héðan úr bænum þrír Islendingar til “gulllandsins góða” (Klondike). Það errt þeir Sölvi Sölvason, Jón Jónsson Hörðdal og Jón Valdimarsson. Þeir fara héðan með C. P. R. brautinni til Vancouver og þaðan sem leið liggur norður sjóveg; siðan fara þeir yfir hið svonefnda White Pass og svo niður Yukonfljótið, Þeir hafa með sér vista- forða til eins árs, að minsta kosti, Þeir eru allir ötulir menn, hraustir og heilsu góðir. og mun þar ekki auðfarið er þeir láta undan síga. Vér óskum þeira alls velfarnaðar og að þeir sæki auð og gæfu til undralandsins mikla. vissað þá um að hann væri jafngóð- ur eftlr kaldabaðið, þá j-fiigáfu þeir hann og héldu hver heiin til sin ánægð- ir j-fir að hafa getað orðið til þess að bjarga manntetrinu. Bæjarstjóri Andrews hefir feDgið á- skorun frá sveitarráðsforiiianninum í Woodlands um að gangast fyrir hjálp að svo miklu leyti semhægt væri handa þeim af íbúum Woodlands, sem mistu nærri allar eigur sínar í hinum mikla sléttueldi siðastliðið haust. Flest af þessu fólki hefir verið til húsa hjá ná- búum sínum yfir veturinn, en vill nú komast á sínar eigin jarðir aftur. — Stjórnin ætlar að lána þeim við í bygg- ingar, og svo verður þeim hjálpað um húsbúnað og fleira þessháttar. En það sem það vanhagar mest um eru verk- færi af ýmsum tegundum. Þeir hafa ekki svo mikið sem hamar, til að smiða með hús sin. The Mutual Reserve Fund Life Association auglýsir í þessu blaði Hkr. sautjándu árs skýrslu sína. Hún virð- ist bera það með sér að félagið sé á traustum fótum. jafnvel þó það hafi ekki árið sem leið gefið út lifsábj-rgðir fyrir eins hárri upphæð, eins og árið áður. I sambandi við það er það að- gætandi, að þetta ár hefir félagið ein- ungis tekið til greina í skýrsln sinni þær lífsábyrgðir, sem voru um áramót- in komnar fullgerðar inn í bækur fé- lagsins á aðalskrifstofu þess, en slept úr öllum þeim sem voru í höndum umboðs manna þess víðsvegar um heim, sem nema fleiri miljónum. og sem ætíð áður hafa verið taldar með í ársskýrslum fé- lagsins. TÆRING LÆKNUÐ. Gömlum lækni nokkrum, sem var hættur við vanaleg læknisstörf sín, var útvegað af kristniboðara í Aust-Indíum forskrift fyrir samsetning á jurtameðali, sem læknaði tæring, Broncliites, Ca- tarrh, Asthma og öll veikindi, sem koma frá hálsi eða lungum, einnig alla taugaveiklun. Eftir að hann hafði sann ! færstum hinnmikla lækningakraft þess I þá áleit hann það skyldu sína að láta | þá sem þjást af þessum sjúkdómum í vita af þessu meðali, býðst hann því til í að senda hverjum sem hafa vill ókeypis Ijorskrift þessa á þýzku, frönsku eða j ensku, með fullum skýringum hvernig I það eigi að brúkast. Þegar þið skrifið, þá sendið eitt frímerki og getið þess að auglýsingin var i Heimskringlu. Utanáskriftin er : W. A. Neyes, 820 Pewers Block, IÍochester, N. Y. s kemmth amkoma Seinasta og bezta samkoman á vetr- inum verður haldin í Tjaldhúðinni fiistudagskvlildið 11. Marz, kl. 8. e.m. Bezti hljóðfærasláttur, ágætis söngur, enskur prestur með ræðu, og alt eftir þessu. Komið þið öll, konur og menn, piltar og stúlkur, það mun enginn iðrast eftir því. Á mánudagskvöldið var voru þeir landar vorir Jón Stefánsson og Grímur Olafsson á ferð suður hjá Aðalstrætis- brunni á Assiniboineánni. Ætlaði Jón heim t}l sín í Fort Rouge, en Grímur bjóst til að snúa til baka heimleiðis, þar eð hann einungis hifði verið að fylgja kunningja sínum á leið. Slóst þar í för með Grími Guðm. Sigfússon, sem var á norðurleið. Skildi þar með þeim félög- um á brúnni og héldu hvorir í áttina heimleiðis. En ekki höfðu þeir Grímur og Guðm. lengi gengið, er eitthvert undarlegt hljóð barst þrim til eyrna. Gátu þeir ekki í fj-rstu áttað sig á hvers konar hljóð það væri. eðá hvaðan það kæmi. en datt brátt i hug að einhver mundi í nauðum staddur þar nálægt' á ánni. Hröðuðu þeir því ferðinni sem mest þeir máttu ofan að á; jheyrðu þeir þá glögt. hvaðan hljóðin komu, og eftir fáein augnablik sáu þeir hvar maður var að brölra í vök á ánni. og æpti hann enn'gríðarlegar um hjálp, er hann sá mennina nálgast sig. Tókst þeim loks að ná karlt upp úr með aðstoð Jóns, er einnig hafði heyrt hljóðin og snúið til baka. Yar verk það ekki svo létt sem sýndist í fyrstu, því ísinn þar sem karl datt ofan í var örþunnur alt í kring. sem orsakast mun af heitum gufu- og vatnsstraum sem þeytist útyfir hann úr pípum. sem liggja frá Hudson Bay- millunni, er stendur þará árbakkanum. IIm það levti. sein þeir voru liúnir að draga karlinn upp úr vökinni. var þar kominn raúgur og margmenni utan um þá. Eftir að karl hafði sagt þeim að hann væri vökumaður á millunni og hefði ætlað aö sækja sér vatn, þegai hann datt ofan í, og eftir að hafa marg- þakkað þeiin fj-rir handtakið og full- PROGRAH: 1. Söngur... .Söngtiokkur safnaðarins 2. llpplestur.........St. Þórðarson 3. Brassband Instrumental Musie , H. Lárusson o.fl. 4. Oákveðið......................L. Guðmundsson 5. Solo.....................S. Ross 6. Ræða...............Rev. Gordon 7. Solo.......... Miss E. Kjernesreð 8. Kritik um hausask.fræði. J.Einarss. 9. Music......... H. Lávusson o.tí. 10. Kappræða......Ólafur Ólafsson og A. Anderson. 11. Solo.....................S. Ross 12. Upplestur..........Sigfús Pálsson 13. Reeitation....Runólfur Fjeldsteð 14. Music..........H. Lárusson o.fl. 15. Upplestur. <.. .Sigurður Magnússon 16. Söngur........Söngfl. safnaðarins Inngangur fyrir fullorðna 25c. en fyrir hörn 15c. Winnipeíf-markaðurinn. Gott, heimagert smjör 12 —1 4c. ‘Factory’’ ostur ......... 10 —10£“ Egg, tyl tin ............. 16 —19 “ Endur (parið) ............. 15 —30“ Gæsir, viltar.hver . ... .. 30 —50“ Svinafeiti, 20 pd. fata... $1.70 Nautakét.................. 3 —4J‘ Kindakét.................. 6 —7 “ Svinaket.................. t> —7 *• Kálfakét.................. 5 —7 “ Lambakét ................. 7 —8 “ Nautahúðir, pundið ....... 7—7J “ Fersk sauðskinn ............... 40—75“ Hestahúðir................ 75—1.75 Ull', pundið (óþvegin).... 8—10“ Tólg ..................... 2J 3J“ Jarðepli................... 35—4o “ Naut, á fæti, pundið ..... 8J—3J“ Hej’ (tonnið).................... $6 .00 Eldiviður (faðmur) : Tamarae............. $4.25—4,50 Pin<*............... 4.00—4,25- Poplar................. 3,00—3,25 ########################## # # # # # # m D. W. FLEURY, 564 Maiit Síreet’ Beint á móti Brunswick Hotel. Ilann hefir nú iengið f húð sína mikið af nýjumopmjög falle^um karlmanna og drenpjatötnm, eirmigr höttum og húfum og flestu öðru sem karlmenn þarfnast fyrir vorið. Komið og I'tið ytir jjft vörurnar. Oss er anægja að sína yður þær þú þór kaupið ekkert # # # # # y.; 13. W. N. B. Hr. Jún Stefánsson vinnur í húðinni og þætti mjög vænt um að sjá landa sína koma við, og skoða vörnrnar. # # # # # # # # # # # # # #########################*

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.