Heimskringla - 12.05.1898, Qupperneq 1
Nk 31
xn. ár
Heimskringla.
WINNIPEGr, MANITOBA, 12. MAI 1898.
\
STRÍÐID.
Kú loksins er fengin áreiðanleg
vissa um hinn fræga sígur sem Banda-
rikjaflotinn vann á höfninni í Manila í
Philippineeyjunum fyrra sunnudag. —
Areiðanlegar gkýrgluy frá Dewey, flpta,’
Stjóra Bandat'íkjanna, kómu ekki fyr
en á laugardag, til Washington. Or-
sakaðist það af því, að hafþráðurinn
sem liggur frá Manila til meginlands
Kína, hafði verið skorinn í sundur. í
skeyti sínu til stjórnaríunar gerir De-
wey ekki mikið úr þessu frægðarverki
sinu;hann að eins lýsir viðureign þeirra
við Spánverja með eins fáum orðum og
mögulegter. En fréttaritarar þeir sem
með flotanum voru, og horfðu á leik-
inn, hafa gefið nákvæma lýsing af hreif
ingum hvers einasta skips í báðum
flotunum. En vitaskuld ber þeim sam-
an við Dewey sjálfann um alt það sem
hann milltist á í skýrslu sinni til stjórn
arinnar,
Eftir því sem þessar fréttir segja,
hefir Dewey haldið skipum sinum hik-
laust inn í Manila-flóann, undireíns og
hann !kom að eyjnnum, sem var á að-
faranótt sunnudagsins. Fékk hann
þar enga aðra mótspyrnu en fáein skot
frá skotvirki Spánverja, sem átti að
verja þennan inngang til aðal hafnar-
innar, Þegar skipin voru öll komin
inn úr sundinu, biðu þau þar dagsbirt-
unnar, og um kl.' 5 á sunnudagsmorg
uninn sáu h'rorir aðra. Spánverjar
lágu þar með öll sín skip, óhultir í öll-
um sínum styrkleika og undir verndar-
væng fallbyssukjaftanna, sem mændu
út á höfnina úr landvirkjunum. Þeir
byrjuðu líka strax skothríð á hin fáu
skip Bandamanna, en undireins og hún
byrjaði færðu Bandaríkjaskipin sig nær
óvinunum, án þess þó að svara með
einu einasta skoti, þangað til þauvoru
í hér um bil 2 mílna fjarlægð, þá sýnd-
ist sem einn eldstraumur standa út frá
hliðinni á hverju einasta þeirra. Þegar
þau höfðu þannig heilsað Spánverjum,
sneru þau sér við og sendu þeim aðra
kveðju frá hinni hliðinni; þetta gerðu
þau sexsinnum; stóðu þá í björtu báli
8 skip Spánverja og 2 höfðu sprungið í
lcft upp. Þegar þessu var lokið, lagði
Dewey skipum sínnm frá aftur, og lét
hann alla menn sína borða morgunverð
eins rólega eins og þó þeir hefðu að eins
verið að skjóta til marks að gamni sínu
Eftir máltíðina og eftir að hafa ráðfært
sig við undirmenn sína, gerði Dewey
aðra atrennu að fjandmönnum sinum.
Skildist hann þá ekki fyr við en öll hin
stærri skip Spánvorja voru eyðilögð,
eða höfðu beiðzt griða, og hanu hafði
eyðilagt virki þeirra á landi.
Fullyrt er að'i þessum bardaga hafi
faflið af Spánverjum 600 menn og um
400 meira og minna særðir, af þeim eru
margir i umsjón Bandaríkjamanna, er
veita þeim alla þá hjálp og aðhjúkrun,
sem þeir bezt geta í té látið.
Þó undarlegt megi virðast þá misti
Dewey ekki einn einasta mann, sex
særðust lítið eitt, og ekkert skip hans
skemdist það sem talizt gat. Hann var
því jafn reiðubúinn til þess að mæta
hvaða óvin sem var þegar bardaginn
var á enda, eins og þegar hann byfjaði,
en var þó á fáum klukkustundum bú-
inn að eyðileggja tvö öflug landvígi og
sjóflota meira en hehuingi stærri að töl-
unni til, heldur en 'nans eigin.
Spánverjar sýndu sig í þessum bar-
daga, eins og hvar annarstaðar. reglu-
fega mannhunda. F.itt af skipum þeirra
sem var orðið mjög illa á sig komið eft-
ir skothríðina, lét vinda upp friðarfán-
aun (hvítur fáni); samstundis var bát-
Ur sendur með nokkra menn frá einu
skipí Bandamanna til þess að taka við
stjórn áhinu yfirunna skipi, en þegar
Þessi litli bátur var kominn langt á leið,
miðuðu Spánverjar fallbyssum sínum á
i'aun og sendu honum nokkurskot, með
Þeim tilgangi auðvitað að drepa alla þá
eem í bátnum voru; en þeim tókst ekki
að hitta hann, og áður en þeir höfðu
tima til þess að senda aðra kúlnahríð
aó honum, leiftruðu eldblossarnir úr
fallbyssunum á hverju einasta skipi í
Bandaríkjaflotanum, og á sama augna-
bliki sundraðist hið spánska skip algjörj
lega og sökk siðan með um 150 manns
af skipshöfninni. , w
Það er engin furða, þó landsmenn
Deweys þakki honum af hjarta fyrir
þessa drengilegu framkomu sína, og
það er engin furða þó Evrópuþjóðirnar
standi nú alveg forviða og horfi á þau
stórundur sem hér hafa skeð, því meiri
updur í augúm þeirra, af þvi álitið var
að Bandaríkín ættu ekki nýtandi skip
né vopn, og sízt af öllu nokkurt drengi-
legthjarta, sem berðist fyrir föður eða
fósturlandið sitt, En nú líta þeir nokk-
uð öðruvísi á málið. Þeir viðurkenna
nú, að þessi sigur Daweys sé einhver
sá merkilegasti sem sögur fari af, og að
Dewey sjálfur hafi sýnt þá snild í und-
irbúningnum undir þenna bardaga, að
hann hljóti að eignast sæti með hinum
allra fremstu sjóhetjum heimsins.
ungis sé þessi staður auðugur af gulli,
heldur einnig héraðið í kring. Þeir bú-
ast jafnvel við annari Klondike þarna.
Stjórnin í Washington hefir fengið
tilkynning frá þremur helztu fjölskyld-
unum í Manila um að þær biðji um
þegnréttindi Bandarikjanna, og að þær
vilji algerlega losna við yfirráð Spán-
verja. *
Kpna pin &ð nafni Mrs, I, P, Roe
er nýdáín i Montreal, og þar eð hún
hafði átt töluverðar eignir, lét hún eftir
sig erfðaskrá. Erfðaskrá þessi ákveður
að hinn eftirlifandi maður hennar skuli
hafa sína lifstíð til framfærslu sér rent-
urnar af 12 hlutum af stofnfé banka
eins í Montreal, en við dauða hans
skuli féð ganga til St. Paul evangelisku
kyrkjunnar; þar eftir ákveður erfða-
skráin að hundur konunnar, ef hann
lifi lengur en hún, skuli sér til viður-
VICE-ADMIRAL GEORGE DEWEY,
Coi.imauding the U. S. Squadron at the Phálippine Islands.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Bandaríkjastjórnin hefir fastákveð-
ið að hagnýta sér það af herskipum
Spánverja, sem þeir söktu sjálfir í höfn
inni við Manila; það er álitið að hægt
sé með lítilli fyrirhöfn að fleyta þeim
aftur, og þar sem mörg af smærri skip-
unum voru af stáli, þá yrðu þau góð
viðbót við flota Bandaríkjanna í Kyrra-
hafinu. Stjórnin ætlar að senda nokk-
ur skip með vopn og vistir og nokkur
þúsund hermanna til Manila, og á þeim
skipum verða sendir kafarar til þess að
skoða spánsku skipin, og einnig allur
nauðsynlegur útbúnaður til þess að
tíeyta þeim.
Sakamaður einn að nafni McGuire,
dæmdur til æfilangs fangelsis, og sem
nú situr í fangelsinu í Kingston, Ont.,
hefir ný lokið við oliumynd af upp-
stigning Krists; hún er átta fet á hæð
og fjögur fet á breidd. Myndin er sögð
að vera framúrskarandi snildarverk;
sagt er og að McGuire ætli að gefa
myndina kaþólskri kapellu, sem tilheyr-
ir fangahúsinu, og sem áður hafði átt
mynd líka þessari. en sem tapaðist í
eldsvoða fyrir nokkru síðan.
Verkstæði Truro Condensed Milk &
Caninng félagsins í Halifax brann í vik-
unni sem leið, Skaði um $55,000. —
Ábyrgð $35,000.
Gestgjafahús í Moose Jaw, sem til-
heyrði C. P. R. félaginu, brann á föstu
daginn. Húsið var mjög nærri járn-
brautarsporinu, og er talið víst að í
því hafi kviknað af neistum frá gufu-
katli. Töluvert af innanhússmuuum
varð bjargað. Samt er skaðinn mikill
og mjög tilflnnanlegur, einkaniega af
því að þetta hús var það bezta í bæn-
uin.
Ákaflegur fellibylur, sem fór yfir
25 rnílua breítt svæði í Arkansas ríkinu
á fimtudaginn. gerði stórkostlegan
skaða á lífi og eignum,
Fregn frá Vancouver segir, aðgull
hafi fundizt í stórum og auðugum lög-
um skamt frá Harrison Lake í British
Columbia, Þeir sem hafa farið þangað
ti\ að rannsaka það, segja að ekki eiu-
væris hafa rentuna af 4 hlutum í þess-
um sama banka. En við dauða hunds-
ins gengur féð til áðurnefndrar kyrkju.
Áreiðanlegar fréttir frá Spáni segja
að herskip Spánverja, sem sagt var að
væru útbúin að öllu leyti til stríðs,
liggi enn þá inn á höfnum, og geti ekki
lagt af stað vegna skotfæraleysis, en
talið víst að stjórnin eigi hart með að
bæta úr því vegna fjárskorts.
Sama frétt segir að stórkostlegt
upphlaup eigi sér nú stað út um alt
land. Hefir stjórnin víða mátt til með
að kalla út stórskotalið, fyrir utan
riddara og fótgöngulið, til þess að bæla
niður uppreistina; hafa víða orðið blóð
ugir bardagar millum hermannanna og
lýðsins; í einum stað náðu uppreistar-
mennirnir einni fallbyssunni af liðinu.
— Mörgum afhermönnunum þykir hálf
leiðinlegt, sem von er að þurfa að berj-
ast á móti sinni eigin þjóð, og oft og
einatt helzt þar sem þeir eiga skyld-
menni og vini; líka hafa margir þeirra
snúist í lið með alþýðunni. Æsingar
virðast vera orðnar svo miklar að þjóð-
in sýnist ekki vilja annað en algerða
stjómarbyltingu, og að því styðja af
fremsta megni Karlungar, sem umfram
alt vilja sja Don Carlos í hásæti Spánar.
Brezka gufuskipið McLand. á leið-
inni frá Sidney í Ástralíu tilNew Castle
á Englandi, er sagt að hafi farist með
68 manns, sjómönnum og farþegjum.
í síðastliðnum Aprílmánuði er sagt
að ríkisskuld Spánar hafi aukist um
12,244,391 peseta.
Franskt auðmannafélag sem kallar
sig Anglo French Telegraph Co.. raeð
höfuðstól sem nemur $500,000, ætlar að
leggja hafþráð frá Vancouver til Dyea,
Skagway og Wrangel. Það er byrjað
nú þegar að velja og mæla.út leiðina.
Miss Helen Gould í New York sendi
Bandaríkjastjórn að gjöf bankaávísun
upp á $100,000. sem brúka á til stríðs-
kostnaðar. Forseti McKinley þáði gjöf-
ina þakklátlega í nafni þjóöarinnar.
Voðaleg upphlaup eiga sér stað á
Italiu um þessar mundir, fieiri hundruð
manna drepin, og mörg hóruð algerlega
undir herlögum.
Hinn alkunni sarabandsþingmaður,
Mr. Dalton McCarthy, meiddist voða-
lega í Toronto á sunnudaginn. Öku-
maður hans var að keyra hann til Union
járnbrautarstöðvanna, og ætlaði hann
að taka lestina þaðan til Ottawa, en á
leiðinni þangað fældust hestarnir og
misti ökumaður algerlega vald á þeim.
Kerran veltist um koll við strætishorn
eitt og köstuðust báðir mennirnir langt
frá niður á steinhart strætið. Ökumað-
ur meiddist nokkuð, en Mr McCarthy
mjög mikið. Var hann tekinn upp með-
vitundarlaus og fluttur heim til sín, og
telja læknar tvísýni á lífi hans.
Stórkostlegur eldur í Duluth, Minn,
í vikunni sem leið. Fleiri hundruð
manna heimilislausir.ogeignatjón metið
á $2,000,000.
Álitleg upphæð. — Á langardaginn
var borgaði umboðsmaður Kínverja í
Lundúuum japanska sendiherranum
þar $55 millíónir. Eru þetta herkostn-
aðarbætur þær er Japanítar kröfðust
eftir að þeir sigruðu Kínverja í stríð-
inu fyrir 2 árum síðan.
Þrjár amiríkanskar missionara-kon-
ur voru myrtar og étnar af svertingjum
í Afríku fyrir fáum dögum síðan.
R. H. Forsman, einn af tollþjónum
Bandarikjanna, tók til fanga canadisk-
an mann einn, að nafni Dawes. sem
hefir haldið til sunnarlega í Manitoba.
Hann er ákærður fyrir að hafa flutt
8000 bush. af hveiti inn í Bandaríkin
án þess að borga tollaf þeim, sem hefði
numið $2000. Málið kemur fyrir i Far
go í þessari viku, en óvíst þykir hvern-
ig það fer, þar ekkert vitni fékst til
þess að fara suður, og það jafnvel þó
Mr. Forsman biði þeim 810 á dag og
borga allan kostnað þeirra.
Gestgjafahús og C. P. R. brautar-
stöðin í Sicamour í British Columbia,
brann i vikunni sem leið. Engu af hús-
mununum varð bjargað. Ekki var nein
eldsábvrgð á gestgjafahúsinu. Kona
ein sem hélt þar til, hafði $3000 í pening-
um fijá sér sem alt tapaðist. Náma-
maður eínn var þar líka með töluvertaf
peningum og fór það alt í eldinn.
Það lítur út fyrir að Spánverjar geri
sig ánægða með að geta hreitt allra
handa óþokka orðum að Bandaríkja-
mönnum og Englendingum, í staðinn
fyrir allar ófarirnar sem þeir hafa beðið
fyi’ir þessum þjóðum. Til dæmis um
hve þeir eru heimskir og illgjarnir í
ræðum og ritum, má þess geta, að mjög
sjaldan minnast þeir á Eng'endinga nú
orðið nerna að kalla þá um leið : “Ilina
ensku hunda.” eða eitthvað þess konar.
Bandamenn nefna þeir vanalega:
“Yankee svín.” Eitt blað þeirra segir
meðal annars : “Þegar vér erum búnir
að vinna stríðið, sem enginn minnsti efi
er á að verði, þá munum við orna okkur
við glæðurnar frá rústum Washington-
borgar, og New York jöfnum við að
jörð niður, svo að enginn geti ímyndað
sér að þar hafi nokkurn tíraa staðið
stórborg. Og á herðar þessara Yankees
leggjum við svo afskaplegt stríðsajald,
að þeir verði fegnir að selja konur sinar
og dætur sjálfum sér til lausnar.”
General Woodford, sendiherra
Bandaríkjanna á Spáni, kom til New
York á suunndaginn með gufuskipinu
La Touraine. Hann hólt samdægurs
áleiðis til Washíngton.
Sagt er að stjórnin í Ottawa sé að
hugsa um að leggja fyrir þingið frum-
varp til laga, sem myndi sérstakt “Ter-
ritory” úr Yukon-landinu. Þar mynd-
uðust um leið æðimörg embætti. sem
stjórnin gæti vel fært sér í nyt, með
þvi að skipa vildarmönnum sínum þar
sæti.
Ákaflegflóð eiga sér stað í Arkan-
sas fylkinu. Fram með Arkansas fljót-
inu eru mlargir bæir algjörlega í kafi
og fjöldi af húsum flotið burt. Þús-
undir manna hafa tapað aleigu sinni i
þessum flóðum.
Prinz Henry frá Þýzkalandi, bróð-
ir Vilhjálms keisara ogyfirmaður þýzka
flotans á Kyrrahafinu, kom til Kiao
Chou í Kína á föstudaginn. Var hon-
um tekið þar með mestu virtum.
Báðar deildjr þingsins í Washing-
ton samþyktu mótmælalaust þakkar-
ávarp til aðmíráls Dewey og manna
hans, fyrir hina drengilegu framkomu
þeirrai bardaganum við Manila. Einn-
ig samþykti þingið að veita Dewey
vandað sverð i heiðursskyni.en offisór-
um og mönnum hans heiðurs medalíur;
veitti þingiö $10,000 til þessa fyrir-
tækis.
Sagt er að Spínarstjórn hafi beðið
alla Spánverja á Phílíppine-eyjunum að
verjast fyrir Dewey fram í dauðann.
Fréttir frá Yukoulandiuu færa enn
eina slysasöguna. Sagan segir að stór
hópur af mönnum hafi verið á ferð með
sleða sina og annan útbúnað eftir ísn-
um á á nokkuri skamt frá Cratervatni,
ftj|fcj!fcj<fc.j|fcjifcjifcj|fe.jifcj|fcjifcj|fcj|fcj»fejifej|fcjifcj|fcj|fc.jlfcjifc.Bfe.il!tejlh.j>fc
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Furn
s
\
MILLINERY.
522 Main Street
WINNIPEG, MAN.
WUæW'Rr'V'>!r'>»l«"»Rf>ir
£
*
*
ft
%
*
fr
I
4
•
sem er á milli Lindeman og Long-vatn-
anna, þegar ísinn brast alt i einu undir
fótum þeirra og féllu þar 22 menn, með
allan flutniug sinn, ofan í ískalt straum
vatnið, og þeyttust með geysihraða út-
undir isinn áður en nokkurri hjálp varð
viðkomið, Ekki nafngreinir fréttin
neina af þeim sem fórust.
Á laugardaginn var kviknaði í ákaf
lega stóru og vönduðu fjósi í Belleville,
Ont.; um 20 hross og nautpeningur
voru þar inni, og brann það alfc saman
á svipstundu. Frá þessum sama eldi-
kviknaði í vönduðu ibúðarhúsi, sem
einnig brann til rústa. — Álitið að
tjónið muni nema $10,000,
McKinley forseti sendi Commodore
Dewey þakklæti sitt í nafni þjóðarinnar
undir eins og hann fékk áreiðanlega
frétt ura hina frægu framkomu hans
hjá Manilla. Einnig gerði forsetinn
hann að Aðmirál, sem viðurkenning
fyrir hreysti hans.
Blöðin eru full á hverjum degi af
frásögum um smábardaga, sem eigi sér
stað milli Spánverja og Bandaríkjanna,
suð-austur í hafi, en ómögulegt er að
élíta þær fréttir áreiðanlegar, því aðal
floti Bandaríkjanna, sem var meðfram
ströndum Cuba, er nú kominn austur á
leið til Porto Rico, og þarf ekki að bú-
astyið neinum fréttum af honum fyr
en Sampson flotastjóri er búinn að sigra
Spánska flotann, sem búist er við nú á
hverjum degi.
Bandaríkjastjórn er nýbúin að finna
upp ráð til þess að hægt verði að þekkja
alla þá hermenn sem kunna að falla í
bardaga. Þeir eiga að bera á keðju ut-
an um hálsinn litla plötulúr aluminum.
Á þessa plötu verður grafið númer það
sem maðurinn er þektur undir á inn-
skriftarlista stjórnarinnar; einnig fanga
mark og númer þeirrar herdeildar sem
hann er í, og tilgreint hvort það sé í
gönguliði, riddaraliði eða stórskotaliði.
I þrælastríðinu voru þúsundir manna
jarðaðir þess að nokkrir hefðu hug-
mynd um hverjir það væru eða hvaðan
þeir hefðu komið, og var því algerlega
ómögulegt ; fj’ris sky<dfólk herraanna
þeirra sem fóllu að fá nokkra vitneskju
um hvar þeir hefðu fallið, eða hvar þeir
voru jarðaðir. Orsakaði það mikil leið-
indi, og fiestar af gröfum hinna föllnu
hetja úr þrælastríöinu báru eigi aðra
grafskrift, en hið eina orð: ó þektu r.
Til þess að koma I veg fyrir þetta, hefir
nú stjórnin ákvarðað að gera þessa til-
raun sem hér er skýrt frá.
Það þarf 72,000 ton af pappír til
þess að búa til póstspjöldin, sem brúk-
uð eru á Englandi árlega.
Frétt frá Manila segir að Spánverj-
ar þar hafi myrt admíral Montijo, þann
sem beið ósigurinn fyrir Dewey. Ef
fregnin er sönn, þá lýsir hún betur en
margt annað villumanna eðli Spánverja.
Allar líkur eru til þess að drottn-
ingin á Spáni reyni að mynda nýtt
ráðaneyti. Það er ótvíræður vilji fjölda
þingmanna og annaqp. .helztu manna
ríkisins.
Nú er staðhæit að floti Spánar.sem
var hjá Cape de Verd eyjunum, sé kom-
inn heim til Spánar aftur. Hafi ekki
þorað að bíða fundar við Sampson og
fiota hans. Ef svo er, þá tekur Samp-
son Porto Rico fyrirhafnarlitið. En ó-
þægilegra yrði fyrir Bandaríkin að
þurfa að sækja Spánverja heim, sem
þeir þó líklega mega gera, til þess að
enda ófriðinn. Það lítur ekki út fyrir
að Spánverjar ætli að þora að mæta
Bandamönnum nema heima við sínar
eigin strendur.
Fregnbréf.
SINCLAIR, MAN., 7. MAÍ 189&
Nú er hveitisáning um það lokið.
Islendingar hafa sáð í fleiri ekrur og bú-
ið betur undir en áður hefir hér verið.
Hveitiverð $1.00 bushelið, og ungir naut-
gripir að líku hlutfalli í háu verði.
C. P. R. Superintendent er hér á
ferð þessa dagana til að líta eftir hinu
fyrirhugað járnbrautarstæði frá Reston
áleiðis til Moose Mountain. Fullyrt er
að 30 milur eigi að byggjast í sumar eða
ef til vill alla leið til Cannington Manor
og svo þaðan vestur fyrir sunnan fjöll
að ári komandi.
Mikið gengur hér á með að taka
löud á svæðinu þar sem álitiðer að járn-
brautin verði lögð ; er ekki ólíklegt að
sumir sem ánefndu sér hér “Homested”
fyrir 5—ö árum, fari nú að yðra að þeir
hættu við landnámið, og það er annars
leiðinlegt, að sjá ýmsa annara þjóða
menn “rifa upp land'ð," en íslendingar
viða, sem betur væru á land komnir,
sitja hjá og ekkert fá.
Einn íslendingur hór, hr. Kristján
J.Mattieson, var svo “vogaöur” að fara
til Klondyke. Óskandi væri að hann
kæmi aftur með byrðar gulls.
Hr. Albert Guðmundsson varð fyr-
ir því slysi fyrir nokkruin vikum síðan
að detta ofan af vagni og meiða sig mjög
í öðru bnónu. Er það mjög tilfinnan-
legt fyrir hann. einkum um þennan
tíma árs.
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦g^
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
f
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
I
7»
Vorid er komid
Og grundirnar groa.
0<í vðrabyrgðirnar hjá Stefáni Jónssyni /þetta vor eru þær
vönduðustu og beztu sem hann hetir nokkurntínia haít að bjóða
viðskiitavinum sínum, og jatntramt hitinr odyriifetu. Þér mun-
uð sanntærast um að svo er, þegar þér skoðið vörubvrgðirnar og
og spyrjið um verðið. Dragið ekki of lengi að koma. Yður er ó-
hætt að trúa auglýsing frá Stefáni Jónssyni. En það er samt réttara
fyrir ykkurað koraa sjálf og spyrja um prísana svo þt'r sannfærist.
Það verður gert alt sem með sanngirni er hægt að búast við, til að
gera ycur viðdvölina í búðinni sem ánægjulegasta. Stefán Jónsson
óskar eftir viðskiftum yðar allra.
Nýlendubúar sem komið til Winnipeg,— eí þér þurfið að íá
yður fatnað eða fataefni, af hvaða tegund seru er, þá komið til ihín
og vitið hvort þér fáið ekki eins góð kaup hji mér og nokkrum öðr-
um í borginni. Reynslan er ólýgnust.
Iværa þökk fyrir undanfarandi viðskifti, og jafnframt ósk um
framhald á þeim eftirleiðis.
Með vinsemd og beztu óskum.
STEFAN JONSSON.
Norð-austur horn Ross Ave. og Isabel Str.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
$
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦£?