Heimskringla - 24.11.1898, Page 4
HMMS&fiJífOlA, 24. NOVEMBER 1898.
Hurra Fyrir Vetrinum!
Húrra fyrir yfirhöfnunum, hlýju fötunum,
húfunum. vetlingunum, nærfötuiium, og
öllu sem hjálpar til aö halda manni hlýjum.
Hér er búðin sem er troðfull upp undir loft
af allskonar karlmanna og drengjafatnadi.
Altsaman það bezta í landinu, og það sem
mest á ríður : með undur lágu vsrdi.
The Commonwealth,
HOOVEE <Sc CO-
CORNER MAIN STR. & CITY IIALL SQUARE.
Winnipeg.
Munið eftir spítalasamkomunni.
Það er siðferðisleg skylda yðar að
Styrkja hana.
'Þjóðviljinn ungi’ er beðinn að taka
upp eftirmælin sem voru i síðasta hlaði,
út af andláti Önnu Petrínu Halldórs-
dóttur.
Séra Hafsteinn Pétursson lá rúm-
fastur í hálsbólguveiki í fyrri vikunni,
en er nú aftur kominn tilheilsu, og pré-
dikaði í Tjaldbúðinni á sunnud. var.
12. þ. m, gaf séra Hafsteinn Péturs
son saman í hjónaband Mr. Eggert
Andrésson og Mrs. Ouðbjörgu Jóhann-
esdóttur, bæði til heimilishér í bænum.
Nú er tíðin óðum að kólna; í fyrra-
dag var frostið hér 15 stig fyrir neðan
zero. Fannkoma allmikil var hér á
sunnudaginn, er því snjór talsverður
og sleðafæri gott.
Mr. Lowe, landmælingamaður, hefir
verið kvaddur af Dominionstjórninni til
að endurmæla bæjarstæðið á Gimli, og
er hann fyrir skömmu byrjaður á því
verki.
Talsverð veikindi hafa gengið hér í
loænum um þe«sar taundir ; einkum er
það hálsbólga sem þjáir fplk og hafa
nokkur böm dáið úr henni í þessum
xnánuði,
Mr. George Patterson hefir verið
skipaður aðstoðar lögsóknari fylkisins í
stað Mr. McLean sem flutti til British
Columbia, eins og getið var um í síðasta
blaði.
Free Press segir að 3 fslendingar
frá N. Dak. hafi verið hér ^síðastl. viku
áleiðis norðúr að Mauitobavatni í landa-
leit fyrir sig og aðra þar syðra. Þykir
landrými orðið lítið í Dakota.
LEIÐRÉTTING: Vér gátum þess
í síðasta blaði, að Repúblikar hefðu
unnið sigur í kosningunum i Nebraska
ríkinu, en nú er auðsætt að svo er ekki,
Demókratar og Independents náðu öll-
um embættum ríkisins og kusufjóra af
sex sambandsþingmönnunum. Mörg
hinna stækari Repúblík og gullblaða
höfðu geipað mikið yfir úrslitunnm í
Nebraska, en nú mega þau draga inn
hornin. Það er ekki hætt við að með-
an mikilmennið Bryan er á iífi að hans
eigin heimaríki gangi í greipar fjand-
mannanna.
Oss láðist að geta þess, að ekkjan
Inga Þorláksson, sem í síðustu 2 bl.
Hkr. hefir haft viðurkenning tií Mutual
Reserve félagsins, á heima að Mountain
N, Dak, og hefir ritað þessa viðurkenn-
12. Okt. síðastl.
Royal Crown sápufélagið hér í bæn-
um hefir keypt eignir Standard sápufé-
lagsins í Vancouver og ætlar að setja
upp nýtt Royal Crown sápugerðarverk-
stæði þar, á stærð við það sem hér er í
bænum.*
Mrs. Svafa J. Kjærnested fór héðan
úr bænum 16. þ. m., með einkadóttur
þeirra hjóna, í kynnisför til foreldra
sinna, Mr. og Mrs. Jón Jónsson Strong,
sem búa í Red Deer nýlendunni í Al-
berta. Mrs. Kjærnested býst við að
dvelja þar i vetur.
Þess er getið i blöðunum, að í sam-
bandi við næstu bæjarstjórnarkosning-
ar verði kjósendum hér í bænum gefinn
kostur á að greiða atkvæði um tvenn
ný aukalög fyrir bæinn. Önnur eru um
það að taka $50,000 lán til þess að koma
hér upp rafljósastofnun, svo að bærinn
geti átt sín eigin ljós, en þurfí ekki að
kaupa þan af neinu féiagi. Þessi stofn-
un á að geta framleitt 200—250 ljós dag
lega, sem hvort um sig gefi eins mikla
birtu eins og 5000 kertaljós mundu gefa.
Hin lögin eru um það, að taka tif láns
peninga til þess að korna upp sorp-
brennslustofnun svo að sorp bæjarins
geti orðið brent jafnótt og það er tekið
af götunum og bakstrætunum.
Borgarstjóri Andrews kom heim úr
Englandsferð sinni í hinni vikunni og
lét vel yfir útivistinni. En ekki er enn
vitanlegt að hann hafi getað afiokið er-
indi því sem hann var sendur til að inna
af hendi, nfl. að selja skuldabréf bæjar-
ins fyrir nægilegri upphæð til að byggja
vatnsverk fyrir bæinn. Mr. Apdrews
mætti talsverðri mótspyrnu í Englandi
og sum af fjármálablöðunum þar, svo
sem “Financial Times,” kváðu það
mjög leitt að Winnipeg hefði ekki átt
kost á að senda þangað mann með svo-
lítið meiri hæfileikum heldur en borgar-
stjórann og eins hitt, að úr því bærinn
átti ekki kost á hæfari manni, þá hefði
átt að gefa honum meira vald til að
semja um peningalán fyrir bæjarins
hönd o. s. frv. I frístundum sínum hefir
borgarstjórinn litið eftir og kynt sér
bæjarstjórnarfyrirkomulagið á Eng-
landi og álítur hann að margt sé i því
sem vel mætti taaa upp hér. Það er
sagt að Mr. Andrews gefi kost á sér fyr-
ir borgarstjóra fyrir næsta ár, og er
alið líklegt að hann verði kosinn án
gagnsóknar.
Verktrúr maður getur fengið vinnu
nú þegar fyrir allan veturínn við að
hirða gripi. Helzt óskað eftir manni
sem kann að mjólka kýr. Góð kjör boð-
in. Menn snúi sér til
K. Valgarðssonar,
236 McGee Str.
Rétt sem stendur hefi ég fyrjrliggj-
andi talsvert upplag af $9 prjónavélum
(og $2 auka-Cylenders). Bregðið nú við
strax og sendið mér pantanir og fulla
borgun með, fyrir svo margar sem yður
vantar, áður en þær fara.
S. B. Jónsson.
869 Notre Dame Ave., Winnipeg, Man,
Til að minka hinar miklu vörubyrgð-
ir mínar, gef ég í næstu tuttugu daga
'20% af hverju dollars virði á eftirfylgj-
andi varningi: karlmanna og drengja
yfirhöfnum. alskonar fatnaði og fata-
efnum, ýmsum ljómandi fallegum kjóla
dúkum fyrir veturinn, ásamt ótal
fleiru, sem alt er með niðursettu verði
fyrir peninga.
Munið líka eftir jólavarninirnum
hjá S. Jónssyni. Þið getið vissulega
fengið eins fallega og ódýra hluti þar
eins og hjá‘nokkrum öðrum. Engin
búð í ves'urbænum sýnir annað eins,
Komið og sjáið. Það kostar ekkert.
Kaupið sjálfum ykkur i hag, þar sem
þið fáið beztar vörur fyrir lægsta verð.
Staðurinner á norðausturhorni Ross
Ave. og Isabel St. hjá
Stefáni Jónssyni.
Herra Sigurður Anderson hér í bæn-
um, einn i fremstu röð islenzkra hug-
vitsmanna vestanhafs, hefir nú fengið
einkaleyfi í Canada. Belgíu og Frakk-
landi til þess að smiða og selja blómstand
þann er hann fann upp í fyrra og sem
hann hafði hér á fylkissýningunni i
Winnipeg siðastl. sumar. — Enn fremur
hefir hr. Anderson fundið upp og gert
sýnishorn af tnjúsleða, sem má knýja á-
fram hvort heidur með hand- gufu- eða
raf-afli. Sýnishorn þetta hafði hann á
sýningunni miklu i Toronto í September
í haust og fékk þar mikið hrós fyrir
hagleik þann og hugvit er hann hefir
sýnt i því að gera vél þessa. Hún var
skoðuð þar af fjölda manna á hverjum
degi, og sá sem hafði hana til sýnis, lét
hið bes'a yfir því að hún mundi seljast
við báu verði. Svo er hann hrifinn af
vél þessari, aðhann óskar að þurfa ekki
að senda hana frá sér fyrst um sinn því
að fjöldi fólks sæki daglega um að mega
skoða hana. Hr. Anderson hefir nú
gefið leyfi til þess að sýnishornið megi
vera þar i Toronto að svo stöddu. En
svo hefir hann og ákveðið að búa tii
einn sleða hér í Winnipeg, í fullri stærð,
og með tilheyrandi vél til að knýja hann
áfram með gufuafii. Aætlaður kostnað-
ur er um 7oO—800 dollars. En af því
að hr. Anderson er bláfátækur maður,
þá hefir hann ákveðið að leita styrktar
meðal íslendinga—landa sinna—til að
standast kostnaðinn við tilbúning vél-
arinnar. Nokkrir menn hafa þegar tjáð
sig fúsa til að styrkja þetta fyrirtæki
með fjárframlögum. Skilmálarnir eru
að þeir peningar sem þannig eru veittir
endurborgast með 100% ágóða strax og
hann fær kaupanda að uppfindingunni.
I næsjA blaði vonnm vér að geta gefið
lesendam vorum nákvæma lýsingu af
þessari vél hr. Andersons.
Lesendum vorum er bent á að lesa
suglýsingu Northern Pacific félagsins
á öðrum stað hér í blaðinu. Félag
þetta selur nú farseðla héðan til Mont-
real og til baka fyrir að eins $10. og frá
Montreal til austari staða fyrir hálft
vanalegt verð. Þeir sem vildu bregða
sér austur um jólln, ættu að finna H.
Svinford, aðalumboðsmann félagsins,
að máli. Hann gefur allar nauðsynleg
ar upplýsingar.
Hann Stefán Jónsson, kaupmaður
á norðausturhorninu á Ross Ave. og
Isabel St., auglýsir vörur sinar í þessu
blaði Heimskringlu. Meun ættu að
taka eftir þessari auclýsingu því hann
lofar 20% af hverju dollarsvirði í karla
og kvenna fatnaði, sem keypt er hjá
honum fyrir nýár. Stefán er einn af
þeim mönnum sem vanir eru að standa
við það sem þeir segja, og því ættu all-
ir sem þurfa að halda á hlýjum fatnaði
að sæta boði hans.
Kæru löndur og landar.—Það hefir ekki
borið jafnmikið á ungu piltunum i þá
átt að skemta fólkinu hér í haust, eins
og ungu stúlkunum. En til að bæta
úr þessu, hafa nokkrir þeirra áformað
að halda grímudans 29. þ. m., eins og
auglýst er hér i blaðinu. Snúið ykkur
tii trumbuslagarans sem gefur ykkur
allar nauðsynlegar upplýsingar. Yið
ábyrgjumst ykkur góða skemtun.
—Forstöðunefndin.
Embættismanna kosningar fóru fram
i stúkunni Heklu þann 28. Okt. síðastl.
Þessir hlutu embætti:
Æ. T. P. J. Thomson; V. T: Mrs.
Merrell; G. U. T. T. Thomas; Jlitari
Kr. Asgeir Benediktsson: Aðstoðarrit.
J. K, Steinberg. Fjármr. B- M. Long;
Gjaldk, Mrs. Runólfsson; Kap. Jóh.
Jónsdóttir; Drótts. Miss M. Finney;
Aðstoðard. Miss J. Friðriksdótt.ir;
Innv. V. Anderson; Útv. Elis Thomson
Stúkan taldi 179 góða og gilda með
limi.
$1(1.00 föt, hvergi betrí en hjá
Commou wciiltli.
Hin mikla afsláttarsala í deildaðúð
inni Cheapside 578 og 580 Main St., er
vér gátum um i síðasta blaði, stendur
nú sem hæst og heldur áfram fram að
lokum þessa mánaðar. Skófatniður
fyrir karlmenn, konur og börn, kjóla-
efni, kvenn-jakkar, nærföt, húfur. karl
manna- og drengjaföt o, s. frv, seljum
við umstangslaust með hinu undra lága
verði, sem auglýst hefir verið. Heim-
sækið Mr. C. B. Julius á meðan úr
mestu er að velja. Ef þið þurfið margt
að kaupa, þá er hér tækifærið til að
spara marga dollara.
CHEAPSIDE.
GEO. B. RODGERS 4 CO.
578 og 580 Main Str.
“ Valið,”
Skáldsaga eftir Snæ Snæland, verð
50 cents í kápu, er til sölu hér í bæn-
um hjá K. Ásg. Benediktssyni, 350
Spence St., Magnúsi Péturssyni, skrif
stofu Heimskringlu. Albert .Tónssyni,
skrifstofu Lögbergs og fl. Útsölumenn
í öðrum bæjum og héruðum verða aug-
lýstirí næsta blaði.
Enginn selur betri drengjaföt en
(lommonwealtli.
program
Fyrir samkomu til hjálpar
almenna sjúkrahúsinu í Winniþeg,
í gömlu Wesley kyrkjunni,
Miðuikudaginn 30. Nóv. ’98.
1. Instrumental Music...........
Nokkrir ungir menn.
2. Nokkurorðum sjúkrahúsið.......
Forsetí sarakomunnar, M. Paulson
3. Duet.... Misses Herman & Hördal
4. Recitation. .. .... Miss G. Freeman
5. Solo Mrs. W, H. Paulson
6. Piano Solo .. ..: Miss Th Herman
7. Ræða .. Séra H. Pétursson
8. Solo
9. Ræða .. Mr. W, H. Paulson
10. Instrumental Music Nokkrir ungir menn
11. Recitation...
12. Cornet Solo.. .... Mr. H. Lárusson
God save the Queen.
Mortgage Sale
of Valuable City Property.
Under and by virtue of the’ Power
of Sale contained in a certain mortgage
which will be produced at thejtime of
sale, there will be offered for sale by
PUBLIC AOCTION
by John Campbell Currie, Auctioneer,
athisauction rooms |No. 260(Portage
Avenue inji the City of Winnipeg on
Thursday the First Iday of December
1898 at the hour of twelve o'clock noon
the following land in the City of Winni-
peg—being a portion of Lot Number
Nine (9) o' the Parish of St. John ac-
cording to the Dominion Government
Survey. which said portion is composed
ofLotNumber One hundred and four-
teen (114) as shown upon plan filed in
the Winnipeg Land Titles Office as No.
113.
The vendor is informed that on the
said land there is a one story frame
bnilding foimerly used as a printing
Office.
Twenty per cent of the purchase
Money to be paid at the time of sale.
The above Land will be offered for
sale subject to a i eserve bid.
Further particulars and terms and
conditions of sale tnade known on day
of sale or on application to
ALEX. HAGGART
Vendor’s Solicitor.
398 Main Street, V'innijeg
Dated 9th day of November 1898.
Byrjar kl. 8 e h.
Inngangur 25 cts.
Sólskin að síðustu !'
The BLUE STORE,
435 Maln Street.
Nerki: Blá Stjarna
Ætíð hin ódýrast.
Sólskin að siðustu segjum vér, eftir hin skaðlegu votviðri i landinu. Það
er ekki til neins að neita því, að það hefir algerlega eyðilagt fatnaðar og grá-
vöruverzlunina í Manitoba á þessu hausti. Og þessvegna verðum vér að segja
fólki, að vér höfum þrisvar sinnum of miklar vörubyrgðir í búð vorri. Vér
verðum að koma þessum vörum í peninga og það nú strax. Eftirfylgjandi
verðlisti mun sýna yður að oss er full alvara.
Karlmanna Tweed Buxur $7.50 virði nú á $4.75
“ góður slitfatnaður 8.50 II U 5.00
“ Nýmóðins alfatnaðr 9.50 <( u 6.00
. “ Aalullarfatnaður 13.50 U u 8.50
“ Skozk vaðmálsföt 16.50 u (l 10.50
“ Léttar yfirhafnir 9.00 u u 5.00
“ Lóttar skrautkápur 15.00 u u 9.00
Karlmannabuxur af öllum mögulegam tegundum, frá $1.00
og þar yfir ; allar fyrír lielming vanaverðs.
Drengjabuxur frá 50c. til $2.75; allar fyrir minna en
helming vanaverðs.
Drengjaföt fín og þykk.......$6.50 virði nú á $4.00
“ sterk úr alull......... 5.50 “ “ 3.50
“ 2.50
“ 90 cts.
úr gráu vaðmáli.... 4.00
Sailor-föt......... 1.75
Drengja Stutttreyjur í þúsundatali.
Drengja Yíirhafnir í þúsunnatali
Grávara ! Grávara ! Grávara !
Kvenna selskinnsyfirhafnir $30—$35 virði, nú á $20—$22.50
“ Bulgariu lambskinns-yfirhafnir $38 virði, nú á $27
“ Tasmaniu Coonskinns-yfirhafnir $35.50 virði, nú á $25
“ ágætar Coonskinns-yfirhafnir $48.50 virði, nú á $37.50
Karlmanna Coonskinns-yfirhafnir $25—45 virði, nú á $18—$35
“ Victorian Va.laby yfirhafnir $16.50—28 virði,nú $12—20
Karlmanna Badger yfirhafnir og svartar skrautyfirhafnir á $10
Ágætir Geitaskinns og Buffalo-feldir við mjög lágu verði.
434 IIIAISi 8TU,, WISAII’EG
A. CHEVRIER
— 66 —
-slætti og opnum augum, því að hann varð þess
vísari, sem mundi hafa gert Sam. Preston hinn
kátasta.
Seinna nokkuð, rétt í dögunina. þogar allir
spánsku hermennirnir voru steinsofandi nema
einn, reið hópur manna þegjandi inn að veitinga-
húsinu, fór þar af baki og þuklaði sig fram til
dyranna.
Þegar alt var undirbúið án þess að nokkur
hefði talað eitt einasta orð, þá hratt foringi
þeirra hurðinni upp.
Varðmaðurinn rak upp hjóð mikið, en það
var hans hið síðasta. Félagar hans reyndu að
Stökkva á fætur, en þá riðu að þeim hinar háska-
legu Machete-sveðjur oghnigu þeir á bak aftur
ogrisu aldrei upp aftur. Á sama augnablikí
voru skorin böndÍD sem héldu þeim Preston og
Chiquito, og voru þeir þá ekkí bandingjar leng-
úr. Allan þenna tíma horfði kúbanska konan á
þetta með mestu ró og stillingu og sást henni
hvergi bregða. Setti hún rólega á borðið flösk-
umar og glösin, eins og hún vissi að bráðlega
mundi eftir þeim spurt.
Með fáeinum orðumskýrðu þeir málavöxtu.
Gestir þessir nýkomnu voru lítill flokkur upp-
reistarmanna undir forustu Ponciaus Calistos.
Höfðu þeir aðsetur sitt í fjöllunum þar nálægt,
fáeinar milur í burtu, og hafði gamla konan sent
drenginn sinn að láta foringja þeirra vita af því,
að spánsku hermennirnir væru hjásér. einsmikið
vegna þess, að hún ætlaði sér að ná í vopnin
þeirra, eins og að bjarga þessum tveimur band-
ingjum, sem hún ekki þekti. En þegar Chiquito
— 71 —
aftur með mannskaða miklum, í þeirri svipan
fóru Spánveriar undan að halda og tóku með sér
lik hins fallna kappa, ogþóað Cúbamenn iéð-
ust á þá aftur og aftur þá voru þeir i hvert
skifti hraktir á bak aftur roeð kúluhríðinni, og
loksins linti skothríðinni og orust.au var búin.
En Preston hafði þekt þar Gornez foringj-
ann í seinasta vonlausa áhlaupinu, til þess að ná
aftur líki Martis, og vissi hann nú að Cúba-upp-
reistin var rétt að byrja,
8. KAFLI.
Gamli, hrausti hermaðuriun
“Eigum við að fara til þeirra núna?” spurði
Chiquito eftir stundarþögn, og hafði Preston
ekki ir.ælt orð af munni.
“Nei”. sagðihann. “Það er betra að fara
ekki til þeirra strax, meðan sorgin er bráðust eft
ir Marti og ^meðan þeir eru að hjúkra hinum
særðu”.
Hann sneri við í áttina til staðar þess sem
þeir höfðu um sig búið, en í því heyrði hann
kúlu hvína hjá höfði sér og heyrðist byssuhvell-
ur neðan af sléttunni,
“Fleygðu þér niður, Chiquito, fleygðu þér
niður”, hrópaði hann. “Vinir þínir kunna að
skjóta okkur áður en þeir vita hverjir við erum,
Þeir vita að enginn þeirra manna er hér uppi,
og halda því að við séum úr flokki óvina þeirra”.
Þeir keyrðu hestana sporum cg þutu úr
— 70 —
velli lagður, þá féllu þrir eða fjórir spánskir her-
menn fyrir hvern hinna.
En Cúbipnenn voru miklu liðfærri og illa
vopnaðir, höfðu margir þeirra engin skotvopn,
og svo fór að þessi hrausti riddaraflokkur hjaðn-
aði niður og féll að velli sem grasið fellur fyrir
ljánum, þar til að einn stóð uppi.
Vinir hans voru að berjast annarsstaðar á
vellinum og sáu hvað hann ’var illa staddur —
einn þarna umkringdar af hundrað óvinum—,
og reyndu þeir að komast til hans og veita hon-
um lið. En í sömu andránni geystust Spánverj-
ar fram þangað líka,
Oi í þessu sást hinn hrausti riddari fórna
upp höndunum og steypast af baki. En þegar
Cúbamenn vissu að hann var fallinn, þá börð-
ust þeir sem óðir væru, til þess að ná líkí hans,
“Ó, hver er hann ? hver er hann ?” hrópaði
Chjquito. * Hann var hraustur. Ó, hve hraust-
lega barðist hann ekki aleinn þarna. Líttu á
hvernig þeirberjast um að ná líkinu. Var hann
foringi þeirra? Hver var hann, senor ?”
“Það var hann Jose Marti, Chiquito. Ég
þekti hann vel”, sagði Preston fullur sorgar,
“Dauði hans er hið mesta tjón fyrir málefni
Cúba”.
“Hans verður hefnt. Líttu á þarna?”
Og Chiquito benti með hendinni á skóginn
hinumeginn við uppreistarmennina. og sá ’þá
Preston annan flokk riddara hendast á móti ó-
vinunum, en þegar þeir komu þar sem barist
var, þá voru Spánverjar búnir að fylkja aftur
og létu gjósa á þá rifflakúlurnar og htöktu þá
- 67 —
sýndi skýrteini sín og hún varð þess vísari að
hún hefði fielsað frænda hins fræga Manuel
Gatcia, þá sagðist hún undireins hafa þekt hann
og réði sér ekki fyrir gleði.
Daginn þenna voru þeir báðir gestir upp-
reistarforingjans, sem bjargaði þeim, og kom
hann þeim svo áleiðis, að hættan varð minni á
ferðinni en áður. Sendi Calixto með þeim boð
til margra uppreistarforingja og sagði þeim að
þeir mundu framvegis fá leiðbeiningu eftir því
sem lengra kæmi,
Lagði hann niður fyrir þeim ferðina og bætti
korti við það sem Garcia hafði fengið Preston
og sagði þeim hvernig og hvenær þeir skyldu
ferðast til þess að geta hitt upprsistarmenn þá
sem nú var alstaðar farið að úa og grúa af í
Santa Clara fylkinu. Þeir voru óðum að færast
nær og nær suðurpunkti uppreistarinnar —þeim
hluta Cúba, sem fjalllendastur er, þar sem upp-
reistarforingjarnir vissn að þeir gátu viðnám
veitt og varist árum saman, ef að á þyrfti að
halda.
Bandaríkjamaðurinn hefði getað verið þar
allan tíman næstu sex vikurnar, ef að hann hefð
viljað, og heimsótt einn uppreistarflokkinn á eft-
ir öðrum, en það var tílgangur hansað halda á-
fram og finna fyrst þá hershöfðingjana Gomes
og Maceo.
Vikuna eftir bar ekkert nýtt til tíðinda ann-
að en það.að rekast á uppreistarílokka og kveðja
þá aftur. Hröðuðu þeir ferð sinni áleiðis og kom
ust tíðindalaust i gegnum fylkið Puerta Prin-
cipe — inn í og mikið yfir fylkið Santiago de