Heimskringla - 27.04.1899, Side 4
HBIESKRINGLA, 27. APRIL I«09.
Winnipeg.
Hr. G. Friðriksson frá Molson,Man.
var hér á ferð fyrir siðustu helgi.
Stefán kaupm. Oliver frá Selkirk
var hér á ferð í vikunni. Hann segir
Rauðá nú auða alt niður i ésa.
Suinardagurinn fyrsti heilsaði oss
með krapahríð og köldum vindi. En
næsta dag tók snjóinn upp, ognáer
komin vorblíða.
Á sunnudaginn kemur, kl. 11. f, m,
fer fram ferming í Tjaldbúðinni. Við
guðsþjónustuna um kvóldið kl. 7 fer
{rgm altarisganga.
Á laugardaginn var komu 9 fólks-
flutningsvagnar til Selkirk, hlaðnir með
Galiciu-innflytjendur, og er sagt að enn
fleira af þeim þokkapiltum sé á leiðinni.
Hr. Sigurður Helgason frá Milton,
N. D., kom hingað til bæjarins í kynnis-
för fyrir fáum dögum, og með honum
kona hans og börn þeirra. Þau* fóru
heimleiðis aftur i fyrradag.
Það er mál manna, að almennar
fylkiskosningar muni fara fre m um 21.
Júlí í sumar En lágt er það látið fara
enn þá. Allir Conservativar ættu að
búa sig undir þetta og sjá um að eiga
atkvæði og vera viðbúnir að greiða það
hvenær sem kallið kemur.
Allir íslenzkir piltar, sem mundu
líklegir til að taka þátt i Itasr-Iiull
leik á komanda sumri, eru beðnir að
mæta á Unity Hall (á horninu á Pacific
Ave. og Nena Str.) miðvikudagskvöldið
næstkomandi (3. Maí), kl. 8.
Frank W. Frederickson.
Þessir unnu Royal Crown Soap
saumavélarnar i vikunni »em endaði 22.
þ. m.: Mrs. Lenton, Room 10, Higgins
Block, Winnipeg; Mrs.Lutt, Cross Lake
Man. ; Mrs. John F. Mowat, Prince
Albert. Royal Crown Soap félagið held-
ur áfram að gefa 3 saumavélar á hverri
viku fyrst um sinn.
Royal Crown Soap félagið hefir tíl
sýnis mjög fögur listaverk, eftirstæling
af myndum eftii beztu málara heims-
ins; þessar myndir: “The Madonna of
the Charo”, eftir Iiafhael; “Ecce Ho-
mo',’ eftir Giude Reni; “The Immacu-
late Conception”, eftir Murilln; “Christ
healing the sick”, eftir A. Dietrich, og
margar aðrar fagrar myndir, er Royal
Crown Soap fólagið sýnir á verkstæði
sínu á King St. hér í bænum. Hver
sem vill getur fengið myndir þessar
fyrir sápuumbúðir, og fyrir litla borg-
un fást þær settar á gler og laglega
keðjuumgerð, og eru þá hin mesta stofu
prýði.
Gleymið enki “Gleym mér eí” sam-
komunni á Alberr Hall í kvöld.
Sigurbjörg Helgadóttír, yfirsetu-
kona, er nú flutt að 661 Paciflc Ave.
ftarnakerra er til sölu á sér-
staklega lágu verði.—Ritstjóri vísar á
saljanda.
Aukalög þau um lýsing Winnipeg-
bæjar, sem bæjarbúar greiddu atkvæði
um fyrir nokkrum vikum, hafa náð
gildi. Atkvæðin hafa nú öll verið talin
og sýna þau, að lögin hafa náð gildi með
25 atkv. fleiri en nauðsynlegt var.
Sorglegt slys varð hér á laugardags-
kvöldið var. Nokkur smábörn voru að
leika sér á William Stræti og varð eitt
þeirra fyrir strætisvagninum, sem sló
barnið um koll og meiddi það svo mikið
á hðfðinu, að það dó fljótlega. Það
var stúlkubarn á 5. ári, að nafni Bea-
trice Hanbury.
Mr, J. A. Davis, sá sem hefír um-
sjón á tilbúningi fylkiskjörlistanna fyr-
ir mið-Winnipeg, biður oss að geta þess,
að skrifstofa hans er á 1. lofti að 436
Main Str., og að hann er að hitta þar
frá kl. 9—12 og 1—4 á hverjum virkum
degi og á hverju kvöldi frá kl. 7J—8J.
Hann biður kjósendur að gefa sig fram
í tíma. því öllu verkinu þarf að vera
lokið ekki síðar en 10. Maí næstkom.
Bergmálið dags. 17. þ. m. getur þess
að íbúðarhús hr. Nikulásar Össurarson-
ar i Árnesbygð í Nýja íslandi, hafi
brunnið til kaldra kola um hánótt og
litlu sem engu af húsmunum orðið
bjargað. Einhver eldsábyrgð var á hús-
inu. Er þetta hinn tilfinnanlegasti skaði
fyrir þau hjóu, og ættu nýlendubúar að
veita þeim skjóta og trausta hjálp til að
koma upp húsi aftur.
Tombólan og skemtanirnar, sem
•iga að fara fram í Unity Hall, 4. Maí,
verða eflaust vel sóttar. Hlutirnir á
þessari tombólu eru sagðir ágætir yfir-
leitt og sumir mikils virði. Yér mæl-
um með því að fólk eyði centunu m sín-
um þar. Prógramið, að þvi er snertir
söng og upplestur, er gott. Dáleiðslan
verður látiu fara fram og búist er við
sérlega góðri skemtun í því stykki. All-
ir ættu að koraa.
Læknarnir Patterson og English
hafa ritað í ensku blöðin nmkvörtun um
það, að yfir 40 manns, sem voru á
sjúkrahúsinu hér í Winnipeg, hafi veikst
þar af “Diptheria” á síðastl. 6 mánuð-
um. Er petta mjög alvarlegt mál, að
menn skuli veikjast þannig hrönnum
saman í hættulegum sjúkdómum, eftir
að þeir eru teknir inn á sjúkrahúsið.
Eflaust verðr gerð gangskör að því að
ráða hót á þessu, og hefir jafnvel verið
talað um að loka spítalanum um tima
og gjörhreinsa hann frá grunni til þaks.
Union menn!
FLEURY •*
hefir Hoover’s utanhafnar strigabuxur, búnar til undir
umsjón verkamannafélagsins. Komið og kaupið þær.
13. W. KLEURY,
564 llain Strcet. Andspænis Brunswick Hotel.
Rafmagnsljósafélagið hefir nú boðið
bæjarstjórninni að Iýsa Winm'iiegbæmeo
123 ljósum fyrir 25c. hvert ljós um sól-
arhringinn, en fyrir hvert Ijós yfir þá
tölu 29c. á sólarhringinn. Þetta er
nokkur tilslökun frá félagsins hálfu
og sýnir það bezt, að ljósin hafa verið
of dýr að undanförnu. Það er líklegt
að bæjarstjórnin sjái sóma sinn í því, að
koma upp rafmagnsstofnun á eigin
reikning, úr því kjósendurnir hafa veitt
henni fé til þess.
Þeir félagar Þorsteinn Borgfjörð og
H. Norman—sem undanfarin ár hefir
verið bakari hjá Mr.J. Spiers hér í bæn-
um—eru nýbúnir að kaupa efni i bak-
araofn, ásamt öllum tilheyrandi áhöld-
um, er þeir hafa flutt til West Selkirk ;
ætla þeir að stunda þar bakaraiðn og
brauðverzlun, og búast við að byrja
skömmu eftir næstu mánaðamót. Vér
óskum þeim til lukku með fyrirtækið.
Það er engin hætta á því að þeir ávinni
sér ekki hylli viðskiftamanna sinna.
Guðmundur Ólafsson og Vilhjálmur
Grímsson.fráGrafton, N.D., komuhing-
að til bæjarins nýlega. Þeir sagja tals-
verðan burtfararhug í mörgum þar
syðra. Landþrengsli eru orðin þar tals-
verð og lítið útlit fyrir að uppvaxandi
kynslóðin muni geta náð sér þar bú-
festu. Fundur hafði verið haldinn á
Mountain þann 10. þ. m., til þess að
ræða um landskoðunarferð norður til
Canada. Voru tveir menn kosnir til
þeirrar farar, og var hr. Herraann
Hjálmarsson frá Garðar annar þeirra,
en ver köfum ekki frétt hver hinn var.
Ekki vitum vér idii hvar í Canada þess-
ir menn eiga að skoða lönd, en líklegt
þykir oss að förinni sé heitið til Daup-
hin höraðsins og Swan River dalsins.
Útsölumenn Stjiirnuimar sem
enn hafa ekki gert mér greinileg skil,
eru hér með vinsamlega beðnir að gera
svo vel að greiða mér andvirði þess
sem selst hefir, að sölulaunum frádregn-
um sem allra fyrst; og jafnframt að
senda mér til baka það sem óselt kann
að vera af ritinu.
Virðingarfylst,
S. B. JÓNSSON.
869 Notre Dame Ave, Winnipeg, Man.
Á laugardagskvöldið var komu til
bæjarins þeir herrar kafteinn B. Ander-
son, Jóhann Stefánsson og Ingvar Ól-
afsson, allir frá Winnipegoosis. Þeir fé-
lagar Jóhann og Ingvar hafa haft fiski-
stöð þar norðurfrá í vetur, en hættu
veiðinni 20. Marz og höfðu þá aflað um
140,000 pund (76 tons) af alskyns fiski,
og «r það kallað gott verk fyrir þá 5
menn sem að því unnu í 3J mánuð. All-
ur þessi afli seldist með góðu verði fyrir
peninga út í hönd, á næstu vagnstöð,
um 16.mílur frá verstöð þeirra. Hvít-
fiskur* seldist fyrir 4 til 7Jc. pundið,
pikkur 2Jc. og pækur lc. pundið. Þeir
félagar fóru snögga ferð til Nýia íslands
en fara svo aftur vestur eftir 3 vikur.
Þeir hafa þar ekki einasta fiskiveiðar,
heldur einnig gripahjörð, sem þeir hafa
keypt þar, og hugsa þeir til að stunda
þar jöfnum höndum griparækt og veiði-
skap. Kapt. Anderson hafði greiðasölu
þar vestra og stundaði fiskiveiði jafn-
framt. Hann kveðst hafa haft um $1000
yfir veturinn upp úr greiðasölunni og
veiðinni ; en frá þessu má draga kostn-
aðinn, alt að $500.
Veturinn var góður þar norðurfrá
og snjólitill. Gripir hafa gengið þar úti
siðan um 8. April. Mikill innflutning-
ur hefir verið inn í liéraðið, en það eru
að eins.hveitilöndin sem ennþá hafa ver-
ið tekin. Griparæktarlöndin eru ennþá
ótekin, og eru það þó hin beztu lönd er
þeir grannar hafa séð. Þeir félagar láta
mjög vel yfir framtíðarhorfunum þar
nyrðra, og óska að sem flestir Islending-
ar, sem hugsa sér að stunda griparækt
eða veiðiskap, gætu sem fyrst náð sér
búfestu þar. Þeir segja atvinnu þar
næga og kaup gott við járnbrautar-
byggingu, viðarsögun og fiskiveiðar.
Grein sú um Swan Riverdalinn, sem
vér birtum í síðustu Heimskringlu,
segja þeir að sé nákvæmlega rétt lýsing
á landinu þar vestra. Mr. Paul Woods
hefir seltsaltnáma nokkurn, 2J milu frá
bænum Winnipegoosis, til enskra auð-
manna fyrir $6000, og er búist við að
sá námi verði unninn strax á þessu
sumri. Þeir segja að fiskur gangi þar
upp í allar ár og læki, svo langt upp í
land sem dýpt vatnsins leyfir flskinum
að fljóta, og getur maður veitt þá með
heykvíslum, ef ekki eru önnur veiðar-
færi fyrir henái. Hr. Anderson segir,
að hann hafi sjálfur stungið 35 fiska á
einni klukkustund í fyrrasumar, í litl-
um læk nær 2 mílur frá vatni.
Þeim félögum er mjög ant um, að
landar vorir í Selkirk og öðrum stöðum,
sem hugsa til að flytja út á land, vildu
koma sér saman um að senda menn í
skoðunarferð þangað vestur hið allra
fyrsta.
Tombola <*
Samkoma
—verður haldin á—
UNITY HALL,
[á horninu á Pacific Ave. og Nena St.]
Fimtudaginn 4. Maí.
Klukkan 8 e. h.
1. Tombola.
2. Ræða : B. L. Baldwinson.
5. Cornet Solo : H. Lárusson.
4. Dáleiðsla.
5. Solo : J. G. Johnson.
6. Samtal : J. K. Steinberg og H.
Runólfsson.
7. Solo : S. Anderson.
8. Upplestur : E. Ólafsson.
9. Cornet Solo : H. Lárusson.
Inngangur 25c-
og einn dráttur ókeypis.
Maccabees
Fjelagid.
Tilboð um inngöngu í
Maccabee-félagið.
Mr...............
Vér erum að mynda stúku af Macca-
bees félaginu. Þér hafið fengið með-
mæli sem æskilegur félagsmaður, og
skal það vera oss stór ánægja að fá inn-
tökubeiðni frá yður,
Vér skulum veita yður $1000 lífsé-
byrgð í félagí voru. undirlögum þess.
Skal upphæð sú borguð til erfingja yð-
ar að yður látnum. Þér borgið 90 cts.
á mánuði að yðar aldri, 37 ára. Undir
þessu ábyrgðarskýrteini eigið þér heimt
ingu á að fá $100 á hverju ári, þar til
þúsundið er uppborgað, hvenær sem
þér fyrir einhverja tilviljun verðið al-
gerlega ófær til þess að vinna yður
björg, og um leið eruð þér undanþegin
allri borgun til félagsins. Eða ef þér
náið 70 ára aldri, þá fáið þér $100 ár-
lega borgun úr félagssjóði um 10 ára
timabil næstkomandi.
Það kostar yður nú að eins $7,25 að
gerast meðlimur í þessu félagi; og við
inngönguna borgið þér yðar fyrsta
mánaðargjald, 90 cents. og sömu upp-
hæð mánaðarlega þar eftir.
í von um að fáyðar inntökubeiðni
f félagið, er ég
yðar með virðingu.
í umboði aðalstjórnarinnar
HERRA RITSTJÓRI:
Samkvæmt óskum ýmsra manna,
sem láta sér ant um að vita um fyrir-
komulag Maccabeesfélagsins, óska ég
éftir að þér birtið f blaði yðar, það sem
hér fer á eftir, svo að lesendum blaðs
yðar gefist kostur á að kynna sér fyrir-
komulag félagsins og þau hlunnindi er
fylgja því að vera í félaginu. Eins er
ég viss um, að ef þér athugið fyrirkomu
lag þess vandlega, þá munuð þér verða
fús til þess að mæla með þvf í blaðinu.
Fyrst er þess að gæta, að það er
hagnaðarfélag, og tekur þá eina i með-
limatölu sína, sem eru líkamlega og
siðferðislega hraustir, Hagnaður við
það að vera í félaginu er eftir hvers
eins vilja og þörfum.
Þeir sem óska eftir lífsábyrgð, geta
fengið hana fyrir þær mánaðarborgan-
ir, sem eftirfylgjandi tafla sýnir :
Aldur $500 $1000 $1500 $2000 $2500 $8000
18—25 ára 30 60 90 1.20 1.50 1.80
25—30 ‘‘ 35 701.05 1.40 1.75 2.10
30—35 “ 40 801.20 1.60 2.00 2.40
35—40 “ 45 901.35 1.80 2.25 2.70
40—45 " 501 1.001.50 2.00 2.50 3.00
4í—48 “ 601 .201.80 2.40 3.00 3.60
48-51 “ 701.40 2.10 2.80 3.60 4.20
Ef einhver meðlimur félagslns verð-
ur algerlega ófær til að vinna fyrir sér
sökum meiðsla eða ólæknandi veikinda,
þá hættir hann strax að borga sín mán-
aðargjöld til félagsins, en fær úr félags-
sjóði einn tfunda part af lífsábyrgð
sinni árlega, þar til hann hefir fengið
útborgaða aila lífsábyrgðar upphæðina.
En deyi hann áður en öll upphæðin er
borguð, þá fá erfingjar hans afganginn
aðhonum látnum. En deyi hann án
þess að hafa dregið nokkuð úr félags-
sjóði, ; þá er öll lífsábyrgðarupphæðin
borguð til erfingjanna.
Sjúkrastyrkur vor fæst að eins frá
hástúkunni, og getur hver meðlimur,
sem vill, fengið það með þvf að borga
mánaðarlega f félagssjóð þær upphæðir,
sem hér eru tilgreindar:
Þeir sem eru Þeir sem eru
18—25 ára 40c. 40—45 ára 60c.
25 -30 45 45—50 “ 70
30—35 “ 50 50—51 “ 80
35—40 “ 55
Tvöfaldur sjúkrastyrkur fæst, með
þvi að borga tvöfalt mánaðar sjúkra-
gjald. Sjúkrastyrkurinn er fráskilinn
Iffsábyrgðinni, ef meðala og læknishjálp
ar þarf við, þá fæst það samkvæmt
aukalögum þeirrar stúku f félaginu.
Félagvort hefir 347,160 meðlimi og
sjóður þess er nú vfir $800.970. Þessi
upphæð hefir verið sett á vöxtu í rikis-
skuldabréfum. og hefir það fé ávaxtast
þar siðan í Júlí 1895. Meðalaldur með-
limanna í þessu félagi er innan við 35
ár, svo að það má heita ungra manna
félag.
Iðgjöld félagsins hafa reynzt nægi-
lega há f síðastl 19 ár, og stjórnendur
félagsins hafa sannfæringu fyrir því,
að þau séu nægileg til að mæta öllum
útgjöldum f framtíðinni.
Virðingarfylst.
G. T. Snow.
Stúku-stofnari í Manitobat
Welland Vale!
Eru beztu hjol sem buin eru til i Canada.
KEÐJULAUSIR,
PERFCT,
GARDEN CITY,
DOMINION.
Verð frá
$35.00
og yfir.
Áður en þér kaupið reiðhjðl á sumrinu ’99, þá gerið svo vel að líta
á hjólin okkar. Þau hafa allra nýustu “Twin Roller” keðju, “Internal
Expanders”, færanleg handföng, “Crank liangers”-ístöð í einn stykki og
sjálf-ábomings ása. Eftir að hafa skoðað hjólin okkar nákvæmlega,
munuð þið sannfærast um að við erum á undan öðrum hvað snertir til-
búning reiðhjóla í öllu Canadaríki.
Umboðsmenn í Winnipeg
TURNBULL & MACMANUS,
5ílO Hlclleriiiott Ave.
Umboðsmaður í Vesturlandinu
Walter Jackson,
P. 0. Box 715 Winnipeg.
The Welland Vale ManufacturingCo.
St. Catlierines, Ont.
Bæði smásala og heildsala. Alt nýjar og ágætar vörur. Alklæðnaðir
fyrir karlmenn og unglinga. Hálsbindi, kragar, skirtur, vetlingar, húfur
hattar og margt og margt fleira. Það er enginn kaupmaður í Winnipeg
sem getur boðið betri kaup en vér. Komið og skoðið vörumar.
J- GENSER, eig'andi.
— 94 —
hún væri þar kominn, en hann þaggaði niður í
henni með bendingu.
'Það er að vísu satt, að ég skil ekki í þessu
til hlýtar’, mælti hann. ‘En Dubravnik er bezti
vinur minn, og mun hann segja mér alt um það,
sem ég vil vita. En keisarinn hefir skipað mér
að dvelja i höll sinni nokkra d!<ga, og vil ég þvf
biðja yður að skoða hér alt sem væri það yðar
eigið’.
‘Tuttugu og fjórir klukkutimar nægja, prins’,
mælti ég. ‘ Að þeim tíma liðnum getur prinsess-
an fariðóhult heim til sin aftur’.
‘Gott og vel. Ég má ekki tefja lengur, en
verð að hraða mér til hallarinnar. Eg vænti
eftir að sjá þigþar, Dubravnik’. Umleiðog
hann mælti þessi síðustu orð, var augnaráð hans
til rnín svo undarlegt, að mér tíaug í huga, hvort
ég hefði ekki þegar treyst—eða öllu heldur of-
boðið—þessum dánumanni um skör fram, með
því að flytja prinsessuna þangað.
Olga tók einnig eftir augnaráði hans, og
skyldi það á sama veg og ég. Þegar prinsinn
var farinn, tók hún i hönd mér og mælti:
‘Ert þú alveg viss um að þú sjálfur sért nú
óhultur. Dubravnik ? Segðu mér það í einlægni
og dullaust’.
‘Já, ég er alveg sannfærður um, að við er-
um bæði óhult. Hræðstuhvergi’.
Svo tók ég báðar hendur hennar og kysti
þær aftur og aftur. En hún tilti sér á tá og
kysti mig á ennið.
Svo skyldi ég við hana eftir litla stund.
Það var ekki orðið mjög framorðið dags, en
— 99 —
en þá, sem eru uppvísir morðingjar, eða bíða
að eins eftir tækifæri til að fremj 1 morð?’
'Nei’, svaraði hann þurlega.
'Sér þú ekki hve gersamlega ómögulegt
það er fyrir ykkur. Níhilista, að ná því tak-
marki, sem þið þykist stefna að, með meinsær-
um og manndrápum ? Þú va/st einn af þessum
möunum, sem sátu fyrir mér og ætluðu að drepa
mig, þegar ég kæmi út frá systur þinni. Seg
mér nú, hver var hin fyrstn hugsun þín, þegar
menn mínir grípu þig ? Hélst þú að systir þín
hefði svikið ykkur í greipar mér ?’
‘Já’,
‘Léstu það ekki í ljósi upphátt ?’
Hann draup höfði á bringu með skömmustu
svip, og svaraði :
‘Jú, ég gerði það’.
‘Og er ekki þetta einmitt það sem félags-
bræður þínir trúa nú ? Heldurðu að systir þín
geti veiið óhult um líf sitt heima í sínu eigin
húsi í kvöld ?’
‘Nei, hún væri það ekki’.
‘En eigi að siður kallar þú þessa menn vini
þína, — þessa morðingja, sem roundu umhujs-
unarlawst drepa hana við fyrsta tækifæri! Og
þú sjálfur hefir hjálpað til þessa með hinum á-
stæðulausu og svívirðilegu ákærum þíuum!
Skammastu þin ekki, Ivan Echeveria! Þú ert
fyrirlitlegur !’
Það komu krampadrættir í andlitið á hon-
um, en hann þagði.
‘Varst það þú sem skaust kúlunni, sem iá
svo nærri að dræpi mig?’ spurði ég.
- 98 —
Þegar hann sá að við gáfum honum engan
gaum, en héldum áfram, eins og ekkert væri um
að vera, þagnaði hann aftur, og vissi ég þá, að
þessi siðferðislega lexía var að festa rætur i sálu
hans. Það var ásetningur minn að frelsa bróð-
ir Olgu, og ég vissi að mér mundi takast það.
Þegar búið var að lesa upp þessa nafnaskrá,
skipaði ég fyrir um hverjir skyldu handteknir
þá um nóttina, og hverjum skyldi hlífa, með því
skilyrði, að þeir færu burt af Rússlandi tafar-
laust. Svo lét ég þá alla á burtu fara, og stóð
loks einn eftir í herberginu hjá Ivan.
‘Jæja kunningi’, mælti ég í iskulda róm.
‘Hvernig lýst þér á alt þetta ?’
‘Ég býst við, að á þessari nóttu endi öll okk-
ar viöleitni, þartil næsta kynslóð vex upp og sér
alla þá rangsleitni, sem rússneska þjóðin styn-
ur undir. Þið getið troðið undir fótum og drep-
ið Níhilistana sem nú eru, en ykkur Jtekst aldrei
að eyðileggja rótina. Hún vex aftur og blómg-
ast, eins og-----”.
‘Eins og hver önnur eiturplanta. Ég býst
raunar við því. en sá gróður sem nú er, verður
skorinn niður í nótt. En þú spyrð ekki að, hvað
muni verða geit við sjálfan þig’.
‘Hví skyldi ég spyrja um pað? Eg veit það
ofur vel’.
‘Ég er hræddur um að þú vitir það ekki’.
•Þú, sem getur fengið af þér að sendasystir
mína til Síberiu, — ég vil engin orðaskifti við
þig hafa, — ég fyrirlít þig’.
‘Hefi ég beitt harðyðgi eða grimd við aðra
— 95 —
á þessum tima árs er mjög skamt á milli myrk-
urs, og var núþegar orðið mjög sknggsýnt úti.
Ég lmfði ærinn starfa að vinna áður en næsti
dagur rynni, því nú var tíminn kominn fyrír
Bneðrafelagiðþagvuelska, að láta alvariega til sín
taka. Ég vissi það, að starfið sem ég hafði lofað
keisaranum að inna af hendi, var því nær íull-
komnað. — Dráttarnetið var tilbúið og tími til-
kominn að kasta því.
12. KAFLI.
Prins Micael reiður.
Enginn maður í öllu Rússlandi. nema ég-
einn, þekti til hlýtar öll leyndarmál Brœðrafé-
lagsins þagmœls/ca,
Ég hafði þegar i byrjun búist víð einmitt þvi
sem nú vará daginn komið, sem sé því, að reka
myndi að því, að ég yrði algerlega að treysta á
trúmensku undirmanna roinna; ég vissi að líf
mitt gæti orðið undir því komið, að ég af eigin
reynslu gæti treyst þessum mönnum í hvívetna.
Það litla sem áður hefir verið s.,gt um þetta
efni, gefur að ein* óljósa hugmynd um það, hve
meistaralega vel mér tókst að mynda þennan
undirmanna flokk. Hinar ýmsu deildir höfðu
hver sinn yfirmt nn út af fyrir sig, og voru þeir
allir transtir og trúfastir, svo að enginn skapað-
ur hlutur hefði getað sveigt þá hársbreidd frá
skyldu sinni. Þeir hefðu fyr látið lífið, en a4
reynast mér ótrúir.