Heimskringla - 25.05.1899, Page 1
XIII. ÁR
WTNNIPEGr, MANITOBA 25. MAI 1899.
NR. 33
Skagafjörður.
Eftir
Stephan G. Stephansson.
I.
Frosti' inn kaldi klauf hér fyr
Klakameitlum brúnir fjalla,
Hóf í fang sítt hamrastallíf,
Braut upp feldar fjarðardyr.
Stuðluð hjörg, sem stóðu kyr,
Steiptar lét í raðir fal'.a.
Opna hefur hamraþró
Höggvið, eftir skemstu leiðum :
Sunnan langt af hæstu heiðum
Þráðbeint norður, niðrað sjó.
Göng þau eru’ ei grunn né mjó,
Grafin vítt með fleti hreiðum.
Þar fékk errinn Ægir starf,
Armi fjarðar seildist bláum
Ii*n með fjallahlíðum háum,
Slétti hotn og brimi svarf.
Greip í ár við ós, og hvarf
Útaf malarkömbum gráum.
Hefilsköflutn skelti á
Skiphól inn af Borgarsandi.
Þar sem enn á þurru landi
Spónatörin sum má sjá.
Enn við Nesið unnir gljá
Upp að fjalladyra brandi.
Þegar ÍJIés in haga mund
Hafði iokið sínu smiði:
« Fjörður þessi er fjarðarprýði,”
Mælti Sól, um morgunstund.
" Hér að skina’ og græða grund
Gleður mig, er rís úr víði.”
Geislabrjóstið blítt og ótt
Breiddi yfir sand og móa;
Við að láta landið gróa
Lagði saman dag og nótt.—
Enn um vornótt vökurótt
Vermir engjar, tún og flóa.
Einskis staðar eins og þar
Er svo nótt til yndis varið,
Að hún getur komið, farið,
Án þess þú þess verðir var.
—Nætoreyðum æfinnar
Eirði’ ei Vor við norðurhjarið.
II.
Komstu skáld, í Skagafjörð
Þegar iyng er leyst úr klaka-
Laut, og yfir túnum vaka
Börnin glöð, á gróðurvörð ?
Lömbin hoppa’ nm holtabörð,
Heiðalóur úti kvaka.
Flissa’ á brotum bláar ár,
Bæjir dotta’ i grænum túnum,
Vökuljósum lyftir brúnum
Fjallaskagi skúrablár
Beggja megin, himinhár,
Hérað vefur örmum snúnum.
Björt er sveit og sést til als,
Sólin ríður vaðið bláa
Tindastóls frá hnjúknum háa
Yfrað hyrnu Höfðafjals.
Eyjar, haf og hæðir dals
Hyllir upp við norðrið gljáa.
Kannast þú við hversu gljár,
Ungra meyja er úti vaka
Augað bláa, vökuspaka,
Andlit fölt og fléttað hár ?
Þegar yfir enni’ og brár
Óttugeislar höndum taka.
Öll sú fegurð unaðshljóð,
Hálf er draumur þinn og þeirra;
Þó er líka nokkuð meira :
Önnur helftin hold og blóð,
Sveipað inn í sólarglóð,
Sveitafegurð, vor og fleira.
Lastu inn í unglings hug,
Er um nætur geymir hjarðar
Fram um heiði’ og hlíðir fjarðar,
Eða’ í hvamm við áarbug ?
Von hans tekur vængjaflug—
Vorhug sí zt um hindrun varðar.
Þá er von það virðist létt:
Verða stór og hátt að stefna,
Hefna als sem á að hefna,
Sigra, vinna sérhvern rétt—
Bíddu ei æska eftir frétt
Um það : hvað sé hægt að efna !
III.
Afturför menn segjast sjá
Sem af tímans eyðing leiði—
Þetta’ ev land á þroskaskeiði,
Sveit sem vöxt i vændum á.
Hrjóstrin eru ei elligrá
Æfimörk á visnum meiði.
Þó hún virðist beinaber,
Bráðum gildna vöðvar mjóir—
Melur senn í grasi glóir
Þegar fvltur aldur er.
Hlíðabrjóstin hefjast, sér
Hrósa akrar.gróðurfrjóir.
Heill sé þi r sem ætlað er
^ rkja betri daga Ijóðin.
Hróið landið, þroskuð þjóðin
'' yllra efni færir þér.
^yrigur ei tóma von, sem vér,
Morspá langa’ og trúaróðinn.
IV.
Komstu, skáld, í krappann þar ?
Þegar Vetur veðrin snerpir,
Vindinn æsir, frostið skerpir,
Jökull sezt í sólarfar,
Frostsins tak á túni’ og mar
Tilfinningarleysið herpir.
Manstu eftir aðsókn hans ?
Lokar hríðahömrum fjörðinn,
Hleður uppí fjallaskörðin,
Byrgir myrkva bygðir lands.
Eins og leyfi einkis manns
Undankomu loft né jörðin.
Hvergi skýli, hjálp né hlíf—
Þá er feigð og fall, að verjast,
Fjörlausn ein, að sœkja, berjast
Einvíg djarft um dauða’ og líf—
Skyldi ei sál þess sigurstýf
Sem af slíkum kröftum herjast ?
Heima móður hjartaslög
Hristir ofsinn eins og bæinn—
Yfir gluggann leggur snæinn,
Felur Ijós í fannalög—
Vefur örmum ungan mög.
Eina huggun skaðadaginn.
Skelfist veðrin voðaleg.
Þrek sitt lætur þetta herða:
Þar sem feður úti verða
Skulu synir varða veg!
Landsins hjarta á, sem eg,
Æskutrú að vissu gerða.
V.
Namstu bylsins Bjarkamál ?
Þegar hopa’ úr haugum draugar,
Hristir allar lanzins taugar
Hlákustormsins stóra sál.
Þiðna hjörn, sem brædd við bál,
Bláa jaka straumur laugar.
Sprengir sundur, spentar fast,
Spangabrynjur jökulfjalla,
Vekur reit og rinda alla
Heitum anda’ og kveður hvast;
Brýtur isa, heimtar hast
Hól og dal úr fleti mjalla.
Veiztu hvaðan kjark hann fær ?
Kraftur vors og sóiskinsdaga
Til að leysa hlíð og haga
Magn hans er, þó felist fjær—
Líkur stormastyrkur slær
Strengi yngstu landsins Braga !
VI.
Sveitin glaða, gegnum þig
Heilsa’ eg fósturfoldu minni!
Fjörður, sem í kjöltu þinni
Fyrstu gullum gladdir mig.
Sem ég ei á æfistig
Alveg týndi nokkru sinni.
Man ég forna feðratrú,
Þá, að andar heygðra hala
Hyrfu’ í fjöllin sinna dala,
Kæmu þaðan þá og nú.
Mér finst vænleg vonin sú
Viðlík fögnuð himinsala.
Getur, fagii Fjörðurinn !
Minna beztu kvæða kraftur
Hvorfið heim í faðm þinn aftur
Þegar munnur þagnar minn ;
Komið aftur eitthvert sinn
Yngri, stærri, endurgkaftur ?
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Forstöðunefnd tríkissýningarinnar
í Kansas hefir boðið Col. Fiunston og
félögumhans.sem syntu yfir ána áLuzon
á Filippineyjunuin um dagiun á mót'
skothríð óviuanna, og tóku varnarvirki
þeirra hjá Calumpit, ef þeir $1,000.00
vilji koma og sýna þessa hieysti sína í
Arkansas meðan á sýningunni stendur
i næstkomandi Október. Það er gert
ráð fyrir að búa til vígi á Arkansasár-
bakkanum, sem hermennirnir svo eiga
að taka eftir að hafa áður synt yfir
ána. Þetta mundi verða góð skemtuu
fyrir áhorfendurna og gróðabragð fyrir
sýningarnefndina.
Hveitimillufélögin i West Superior
i.Wiscorisin ríkinu, hafa "myndað félags
skap, með yfir 1 millíón dollars höfuð-
stól, til þess að halda mjöli sinu í
sem mögulegu hæsíu verði.
Verkamarina óeiröir í Little Rock,
Arkansas, hafa ent með bardaua og
manndrápum. Kolamenn þar höfðu
gert verkfall, og voru þá fengnir nokkr-
ir svertingjar frá Illinois til að fylla
s öðu verkfallsmanna. Þetta líkaði
þeim illa. og skutu á svertingjana, 3
þeirra féllu, en nokkrir særðust.
Victoria drottning hefir fengið
augnaveiki, og er uppskurður á hægra
auganu talinn nauðsynlegnr til aðaf-
stýra algerðu sjónle/si.
Voðalegur fellibylur æddi yfir Ohio
ríkið 16. þ. m. og gerði mikinn skaða á
stórum partií ríkinu, í bæjum hrundu
hús og fjöldi manna meiddist og nokkr-
ir biðu bana; bátar og smáskip á ám
og vötnum hvolfdust, og töpuðu þar
margir meun lífi. Skólahús hrundu og
börn meiddust og dóu i ýmsum bæjum.
Lord Stafford. einn af þingmönn-
um í lávarðadeildinni á Englaudi, varð
undir járnbrautarlest 16. þ. m. og beið
bana samstundis.
Það ollir talsverðum æsingum í
Lnndúnum, að 7 brezkir þegnar hafa
verið teknir fastir i Johannesburg i
Afríku, og kærðir um landráð. Menn
þessir eru brezkir hermenn. og er sagt
aðskjölhafi fundist á þeim, er sanni
þá seka.
Það varð bardagi á Dauðsmanns-
eyjunui í Vancouver þann 15. þ. m. Mr.
Ludgate, timburkonungurinn mikli frá
Bandaríkjunum, sem með einhverjum
brögðum hafði fengið leyfi frá Laurier-
stjórninni til þess að höggva timbur á
eynni. kom þangað með nokkra menn
að morgni þessa dags og lét þá hefja
skógarhöggið. Lögregluþjónar voru
þá sendir þangað til að stöðva verkið.
Ludgate varð æfur við og sló annan
manninn, en varð samt tekinn og sett-
ur i járn. Joseph Martin lét varpa
houum í fangelsi, og hótaði að senda
herflokk til að skjóta menn hans, ef
þeir ekki hættu vinnu. Kvað hann
eyjuna vera eign bæjarins, og er nú
mál risið út af þessu.
Ibúðarhús fylkisstjórans í Victoria
B. C..brgnn til ösku að morgni hins
18. þ. m.
Aguinaldo,foringi uppre'starmanna
á Filippineyjunum, hefir sent nefnd
manna til herforingja Bandamanna, til
þess að leita sætta og semja um frið.
Það er talið áreiðanlegt að uppreistin
sé þegar á enda.
3000 bréfberar í Paris hafa gert
verkfall, af því þingið neitaði að sam-
þykkja lagafrumvarp er leyfði stjórn
inni að hækka laun þeirra.
Þær fréttir koma frá 8t. Péturs-
borg, að ákaflega ríkir gullnámar hafi
fundist í landeign Rússa nálægt landa-
mærum Kínaveldis. Bandamenn og
Frakkar hafa myndað hlutafólag og
fengið leyfi til að vinna í námum þess-
um.
Rússar hafa gert kröfur til Kína-
stjórnar um leyfi til að byggja braut
frá Manckuria til Pekin. Þessari
beiðni neitaði stjórnin, en Rússar kváð-
ust þá mundu láta kué fylgja kviði, og
myndi Kíriaveldi bíða tjón af þrjósku
sinni. Lét þá Kina undan og veitti
brautarbyggingarleyfið, Er þetta að-
al sporið til þess að gefa Rússum nær
því ótakmarkað vald þar í landi, og er
svo að sjá að Bretar geti lítið aðgert,
þótt þeim liki aðferð Rússa miður en
vel.
Þann 18. þ. m. átti alríkjafriðar-
nefnd Rússakeisara að koma saman í
Hague á Hollandi. Nefnd þessi á að
ræða um friðarmál, og ef hægt er, að
komast að samningum er lúti að því
að koma í veg fyrir stríð rnilli þjóð-
anna út af ágreiningsmálum þeirra.
Það verða aðallega 10 mál, setu fundur
þessi tekur til umræðu:
1. Samningur um að auka ekki 'her-
afla til lands eða sjávar, eða fjártillög
til herútbúnaðar eða kostnaðar, fyrir
vist ákveðið tímabil.
2. Tilraun til þess að fiuna ráð til
þess að minka heraflann og herkostnað
í framtíðinni.
3. Bann gegn því að nota nokkur
ný skotvopn eða sprengiefni, eða önn-
ur hernaðarfæri fullkomnari, en þau
sem nú tíðkast.
4. Takiiiörkun á notkun hinna kröft
ugustu og áhrifamestu sprengiefna, er
nú tíðkast, og forboð uin að kasta
nokkrunt sprengiefnum frá loftbátuin
eða á annan hátt.
5. Bann gegn notkun neðansjávar-
sprengivéla (submarir.e torpedos), eða
annara slíkra áhalda.
6. Samningar um að byggja ekki
herskip með stálbrjótum (rams).
7. Að fylgja í sjóhernaði þeim lög-
um, sem saml>ykt voru á Geneva fund-
inum.
8. Um friðhelgi skipa, sem vinna að
björgun þeirra, sem sigrast hafa í sjó-
orustu.
9. Endurskoðun hernaðarlaganna,
sem samþykt voru í Brussel 1874.
10. Viðurkenning þeirrar grundvall-
arstefnu, að þær þjóðir sem vilja sæta
þeim kostum geti útkljáð ágreiningi-
mál sin með gerðardómi.
Þetta eru þau mál, sem Rússakeis-
ari vill að séu rædd af fulltrúum þjóð
anna og útkljáð á þann hátt sem þeim
getur komið samaii um. Það mun
mega telja víst, að árangurinn af fundi
þessum verði enginn; að þjóðirnar
komi sér ekki saman um nokkurt veru-
legt atriði; enda eru sum þeirra þannig
löguð, að óþarfi er að ræða þau. Það
þarf ekki alþjóðlegan friðarfund til pess
að samþykkja að þær þjóðir, sem vilja
geti útkljáð mál sín með gerðardómi,
því þær hafa þann rétt, eins og nú er.
1. og 2. atriði farafram á að minka her-
útbúnað og þar af leiðundi kostnað, er
jafnan fylgirslíkum útbúnaði, en eng-
ar líkur eru til þess, að allir verði á eitt
sáttir í því efni. 3. 4. 5. o, 6. atriði
fara fram á. að takmarka notkun hern-
aðarfæra. Þao mun óhætt að fullyrða,
að svo lengi sem ekki er algerlega bj-rgt
fyrir möguleika til hernaðar. þá mun;
þióðirnar nota þau öfl, sem þær hafa
ráð á, til þess að stýðja sig að málum.
Eu það má hafa umræður um þessi at-
riði, og eru Sum þeirra gott kappræðu-
efni. 7. 8. og 9. atriði, um alþjóða
hernaðarlög, eða um lítilfjörlegar breyt
ingar á þeim, gera hvorki til né frá.
Ef að fundurinn getur ekki komist að
neinni niðurstöðu um að koma á al-
þjóða friði, og til þess eru engin likindi,
þá munar minstu undir hvaða lögum
bai ist er. Enda er óvíst að þær breyt-
ingar sem kynnu að verða gerðar i
þessa átt, verði nokkur umbót á því
fyrirkomulagi sem nú er.
Rétt nú þegar fulltrúar þjóðanna
sitja á fundi á Hollandi, til þess að
reyna aö koma á alþjóðafriði, þá eru
Bandamenn að auka verkstæði sitt á
Rock Island, svo að þar verð framveg-
is hægt að búa til 2500 skotriffla á hverj
um deni. Þeir búast auðsjáanlega ekki
við miklum árangri af hollenska friðar-
fundinum.
Ungra manna felag eitt i Lundún-
um, sem heitir ‘‘Bachelors Club”, er í
erjum út af spilamensku, 93 háttstand-
andi menn í félaginu; vilja láta hætta
allri spilamensku í klúbbnum: segja
hana vera óholla fyrir heilsu, siðferði
og efnahag fólagsmanna. En 119 fé-
lagsrnenn vilja láta halda spilum áiram.
— Það eru auðsjáanlega þeir sem hafa
unnið. en hinir tapað.
UmlðOBicycle verkstæði í Banda-
rikjunum hafa sameinað eignir sínar
og starfsemi undir eina aðalstjórn. Með
þes?ari sameiningu erbúist við að hægt
verði aö minka svo kostnað við auglýs-
ingar umferðarsölumanna, að ágóðinn
af tilbúningi hjólanna geti orðið meiri
hér eftir, en að undanförnu.
Professor Commons, ’einn af fræg-
ustu háskólakt-nnurum í Ameríku, hefir
verið visað frá kennarastöðunni við
S.yraouse háskólann, af því hann var
ófáanlegur til þess að kenna þar póli-
tiska hagfræði, sem umráðendur skól-
ans — sem allir eru millíónerar—vildu
láta kenna þar.
Kolanámamenn í Belgíu hafa gert
verkfall. með þeim afleiðingum, að
járnverkstæði ríkisins hafa orðið að
hætta vinnu vegna kolaleysis.
Sú saga berst frá Vancouver, að
Kinverjar þar séu að gera stórkostleg
og yfirgripsmikil samtök til þess að
styðja Kang Yu-Wei. stjórnmála og
umbótamanninn kínverska, sem fj'rir
nokkrum vikum varð að flýja land sitt
vogna skoðana sinna iá stjórnmálum.
Það er sagt að fimm millíónir Kitiverja
í Canada, Bandaríkjunum og Astralíu,
séu í þessum samtökum, og að höfuð-
stóll sá sem þeir hafa til þess að vinna
verkið, sé nú orðinn $60,000 000. og að
af þeirri upphæð séu $57,000,000 í Ca-
nada. Kang ber sjálfur kostnaðinn við
þessa félagsmyndun og leggur á öll ráð
Þetta mikla félag «tekur að sér að á
vaxta peninga þeirra Kíaverja, sem
vilja stunda verzlun eða iðnað í Astra-
líu, eða Bandaríkjunum. Hugmyndin
er að koma á fót þeira umbótum í Kina
sem Kang hefir barist fyrir í mörg
undanfarin ár.
Fundur með ] eim Kruger gamla.
forseta Orange fríríkisins í Afríku, og
sendiherra Breta, hefir verið ákveðinn
30. þ. in.. til þess að ræða um sam-
band Breta við lýðveidi Krugevs. Fund-
ur þessi er afleiðing af landráða tilraun-
um. er brezkir þegnar gerðu nýlega í
ríki Krugers.
Marion Brown. sá er skaut og drap
lögretduþjón Towey í London, Ont. í
fyrra, var hengdnr þar í bæuum 17.
þessa mánaðar.
Bandamenn hafa náð annari höfuð-
borg frá uppreistarmönnum á Philipine-
eyjnnum. Sanisidroer nafn þessa hæj-
ar og féll hann í hendur herdeildarinnar
frá Oregon undir forustuGen. LaEtou’s.
Skólakennari í Derby, Conn. neyddi
8 vetra gan,lan di eng til þess að gleypa
hálfa teskeið af rauðum pipar fyrir það
að dre.igurinn hafði haft hljóðskraf við
annan pilt í skólanum rneðan stóð á
kenslu. Barnið var flutt á sjúkrahús
nær dauða en lífi. Varirnar, tungan og
allur munnurinn og kok barnsins brend-
ist og bólgnuði svo að óvíst er er hann
haldi lífi.—Kennarinn þyrfti að fá mak-
leg málagjöld,
Það er talið víst að allir sjálfboðar
sem nú eru í Philipine-eyjunum, verði
komnir þaðan áleiðis til Bandaríkjauna
innan tveggja máuaða.
Sjómálaráðgjafi Laurier stjórnar-
innar sagði á Ottawa þingi í síðustu
viku að sendiförin til Hudson’s flóans, í
íyrra, hefði kostað ríkið $40,141.00* og
að stjórnin hefði ekki í huga að hugsa
frekar um það mál að svo stöddu.—Svo
fór um sjóferö þá.
Níu ára götnlum pilti var stolið úr
bænóm Hatnilton, Ontario, fyrir 2 vik-
ura. hann fannst nýlega í St. Louis í
Bandaríkjunum, hafði hann sloppid úr
höndum þeirra sem tóku hann, og
komst ii,n til St.. Louis. Þjófarnir en
ófundnir.
Mr. Angus A. McKenzie frá Kin-
cardine, Ontario, hefir nýlega ritað
móður sinni bréf frá Klondike. Hann
segiv: “Eg hef ætíð haft gott álit á
Canadamönnum, en nú finn ég Canada-
Stjórnarþjónana í Yukon þá nýðings-
legustu og svívirðilegustu þjófa og ræn-
ingja sem hugsast getur”. Þetta er
karlmannlega og hreinskilnislega sagt.
Það eina sem að þvi má íinna, er, að það
er satt.
Mr. R. C. Clnte, sem var settur til
að rannsaka Crow’s Nest-brautarmálið
i haust er leið, hetír rétt nýlega sent
skýrslu sína til stjórnarinnar, og er
hún ófögur með pörtum, í næsta blaði
flytjum vér útdrátt úr skýrslu þessari.
§pring
Stock
Vér ftöfurn nú fengið mestu fyrni af vor-
vörum, svo sem gólfteppum, olíudúkum
gluggatjöldum o. s> frv.
Axiiiijister, liidilorniiiiNter
og Velvet gólfteppi beint fr Lovdon.
UiiioiiN og Wool’s beint frá
verksmiðjunni
Gólfteppi sniðin og lögð niður ó-
keypis. Komið og skoðið þesnar vörur.
574 Main St*-.
Telefón 1176.
Frétt frá Yukon segir að 21. Apríl
hafi allur aðalparturinn af Dawson
City brunnið til öskn, og er skaðinn
metinn 4 rollionii Dollats. Litlu síðar
varð annar eldur sem eyðilagði það sem
eftir var af bænum, og var skaðinn af
þeim eldi metinn á eina milión dollars.
bæjarbúar standa ráðþrota og ekkert
getur orðið gert fyr en skipgengt er á
ánni—um 1. Júlín. k. Öll matbjörg
brarin. Húsaviður er mjög ’lítill og
svo dýr að hann má heita ókaupandi.
Óvandaðar húshurðir kosta frá 35 til 75
Dollars. óvandaðar skrár $8.00 og alt
annað með tilsvarandi verði.
DR. J. J. WHITE,
Tannlæknir,
| dregur og gerir við tennur eftir nýjustu
| aöferð ár als sársnuka, og ábyrgist alt
: verk þóknanlega af hendi leyst.
i Horuið á Main og Market St. Winnipeg.
Þurfið þér að kaupa Orgel ?
Ef svo, þá kaupið hin beztu.
The Doherty og Uxbridge Orgel
----hafa verið smíðuð í 25 ár-
''•^^"^Verd $60.00 og yfir
Vór höfum í búð vorri miklar byrgðir af oreelum. ‘*EVANS
” ^J^-BRIDGE”, ‘ WESER BROS” og öðrnm orgelum.
Mestu kjörkaup á litlum brúkuðum orgelum og pianoes. Frá $25
og þar yfir. Vægir borgunarskilmálar.
Ritið oss eftir verðlista og myndabók, eða komið sjálfir og skoðið
orgelin.
H. B. MARCY,
Tel«plioii«
470 nAIN STR.
I* <>. Ilox 573
Bicycles.
Þér ættuð að koma og sjá Thistlc og Fnlton hjólin. Þau eru áreiðan-
lega einhver þau fallegustu sem nokkurn tíma hafa verið flutt inn til Winni-
peg. Þau eru einhver þau léttustu, en þó sterkustu hjól sem búin eru til í
Bandaríkjunum. — Featlierstone hjólin (sömu sem í fyrra voru kölluð
“Duke” og “Duchess”) reyndust ágætlega í fyrra. Það er óhætt að renna
þeira á hvað sem er, þau eru næstum óbrjótandi, og þarf því ekkert að kosta
upp á þau í aðgerð. — Mlondike hjólin eru mjög góð fyrir jafumikla pen-
inga. Þér gætuð ekki fengið betri kaup þótt þér senduð eftir hjóli sjálfir til
Stórborganna i Bandaríkjunum eða Canada. Verð að eins $28.50 fyrir borgun.
út í hönd.
B. T. Björnson.
Corner King & Market Streets.
H. Bjarnason, Glenboro, umboðsmaður fyrir Argylebygð.
WELLAND VALE BICYCLES
Eru beztu hjol sem buin eru til i Canada.
$35-oo
KEÐJULAUSIR, PERFCT,
GARDEN CITY, DOMINION.
og yfir.
Áður en þér kaupið reiðhjöl á sumrinu ’99, þá gerið svo vel að líta
á hjólin okkar. Þau hafa allra nýustu “Twin Roller” keðju, “Internal
Expanders”, færanleg handföng, “Crank hangers’-fstöð í einu stykki og
sjálf-ábornings ása. Eftir að hafa skoðað hjólin okkar nákvæmlega,
munuð þið sannfærast um að við erum á undan öðrum hvað snertir til-
búning reiðhjóla í Tillu Canadariki.
Umlxiðsmenn í Winnipeg
TURNBULL & MACMANUS*
Umboðsmaðm-í Vestur-Cft'iHda 310 Mellermott Ave.
Walter Jackson,
P. O. Box 715 Winuipeg.
THE WELLAND VALE MANUF. CO.
St. Catlierines, önt.