Heimskringla - 01.06.1899, Side 4

Heimskringla - 01.06.1899, Side 4
HEIESKRINGLA, 1. JÚNÍ 1899. Frjettir fyrir folkid! Eigendnr “Cheapside” búðanna, kunngera hér með vinum og viðskiftamönnum sínum, að vegna þess að leigumáli þeirra er nú um það útrunninn þá búast þeir við að verða að flytja úr þessum velþektu “Cheapside”-búðum, og bjóða þeir þess vegna fólkinu allarvörur, um §40,000 virði, með stórum afslætti. Yörurnar samanstanda af álnavöru, karlmanna og drengjafatnaði—sömuleiðis karlmanna nærfatnað, skyrtum, flibbum hálsbindum, sokkum, böttum höuskum og stígvéla og skófatnaði. Sala þessi er nú byrjuð og þeir sem koma fyrst hafa úr mestu að velja. Tefjið ekki.—Hundruð manna og kvenna sækja nú búðirnar daglega, rífa út vörurnar fyrir hálívirði og senda svo kunningja sína til að sækja meira. — Mr. C. B. Julius vinnur í búðum vorum og hefir fult umboð vort til þess að sinna þörfum Islendinga og sjá um að þeir fái þau mestu kjörkaup sem hægt er að gefa, á öllum vörum er þeir kaupa. RODGERS BROTHERS & COMPANY, 578 og 580 Main Str. Winnipeg. Galiciu-morðingjarnir Czuby og Guezczak voiu hengdir á laugard. var. <«ott fæði, húsnæði og þjónusta fæst keypt að 538 Ross Ave. Friðrik Th. Svarfdal. Hr. Halldór Valdason frá Brandon flutti sig og fjölskyldu sína hingað til bæjarins fyrir skömmu síðan. Árni Freemann, Ingimundur Jóns- son og Björn Jónsson, allir frá Vestfold P.O, voru hér í bænum í fyrradag. Nýjar kartöflur fást á markaðinum hér í bænum fyrir $5.00 bushelið eða 3 pund fyrir 25c. Ekki er bitinn gefinn. Nýlega hefir verið stofnaður barna- skóli að Tindastól í Alberta-nýlendunni og er hr. Jón Kjærnested kennari þar. Á sunnudaginn var gaf séra Haf steinn Pétursson saman í hjónaband að 539RossAve,, hr. Zofanias Þorkelsson og Mrs. Jóhönnu Maríu Friðriksdóttir. Herra Bjarni Magnússon hefir leg- ið hættulega veikur í lungnabólgu í rúmar 2 vikur. Hann er nú á batavegi og mun vera úr allri hættu Dr. Ólafur Björnsson hefir stundað hann. Trésmiðaverkfallið hér í Winnipeg er nú loks á enda. Báðir málspartar hafa komið sér saman um að leggja á- greiningsatriðin í gjörðardóm þriggja óvilhallra manna og hlýta úrskurði þeirra. « Fellibylur snerti bæinn Melita í sið- ustu viku og gerði nokkrar skemdir á húsum. Er þetta að því leyti merki- legt, að slíkir fellibyljir eru mjög sjald- gæfir í Canada. í>að eru mörg ár síðan slíkur bylur hefir komið hér í Canada. Oss barst svo mikið af auglýsingum í þetta blað, að vér urðum að rýma í burtu neðanmálssögunni. Kaupendur eru beðnir aö forláta þetta; í næsta blaði minka auglýsingarnar aftur og þá kemur sagan. Þar sem í siðasta blaði var getið um sendinefndina frá Dakota sem nú eru í landaskoðun hér í Canada, þá láðist að nefna einn sendimanninn, Kristján Jónsson á Hensel. Hann kom tveim dögum síðar en hínir hingað til bæjarins en varð þeim svo samferða héðan vestur til Edmonton. Mr. ísaac Campbell, sá sem búist er við að sæki um ríkisþingmensku fyrir Winnipegbæ undir merkjum Laurier- stjórnarinnar, sagði á almennum fundi 25. þ. m., að hann hefði yissu fyrir því, að Ottawastjórnin ætli að einhyerju leyti að sinna óskum bæjarbúa með að- gjörð á St. Andrews strengjunum á þessu þingi. —Kosningar í nánd ! Mr. Wm. White, forstöðumaður C. P. R. félagsins nér í bænum hefir til- kynt það blaðamönnum hér, að C. P.R. félagið ætli bráðlega að láta byggja stórt og vandað hótel hér í Winnipeg Ekki vildi hann segjahvar í bænum það ætti að verða,\en lét líklega yfir því. að undirstaðan mundi verða bygð í sumar og húsið svo klárað að Sri. I siðustu viku komu hingað til bæj- arins þeir Sveinb. Sigurðsson, Bessi Tómasson, Kristján Vigfússon, ísleifur Guðjónsson og Jón Jónsson Þistilfjörð allir frá Shoal Lake nýlendunni. Voru þeir að fljtja hr. Bessa Tómassou, ein- hvern bezt metna bónda þar, hingað til bæjarins, og er hann að flytja sig alfar- inn norður til Mikleyjar. — Fréttir úr nýlendunui sögðu þeir þær helztar, að vatnið stendur nú hærra á löndum bænda en nokkru sinni áður. Þeir eru farnir að sannfærast um það þar ytra, að það þarf meira en margsvikin loforð fylkisstjórnarinnar á nndan hverjum kosning'um til þess að ræsa fram vatn iö og þurka upp votlendið, svo þeir geti haldist við á heimilum sínum. Eiríkur Guðmundsson og Björn Jónsson frá Lundar, og Jón Hannes- son frá Vestfold,- voru hér í bænum í gærdag. The Morning Telegram kom út í gærmorgun í stærra broti en áður, um 56 dálka blað, fult af fiéttum og fróð- legum ritgerðum. Kjörlistinn fyrir Mountain kjör- dæmið er nú prentaður, og hafa “Gritt- ar” laumað inn í hann 100 nöfnum síð- an kl. 12, á miðnætti, 16. Maí síðastl.; þar af 34 íslenzkum. “Grittar” mega vera rólegir yfir þvi, að það verður lit- ið nákvæmlega eftir þeim nöfnum í tæka tíð fyrir kosningarnar. Fyrirlestur sá um stríðið á Cuba sem hr- Jón Gíslason í Selkirk auglýsti í síðasta blaði, verður. eins og þar er auglýst, haldin 7. næsta mán. Þessari samkomu var frestað til þess að koma ekki í bága við Forestersamkomuna, sem haldin var i gærkveldi. Menn ættn að fjölmenna á þessa samkomu hr. Jóns Gíslasonar. Þessir Ný-íslendingar voru hér á ferð um helgina : Stefán Sigurðsson og Jósep Skaptason frá Hnausum, Krist- ján Pálsson frá Gimli, Valdimar Jóns- son, P. C- Jónasson, Stefán Guðnason Jón Gunnarsson og Bergþór Kjartans- son. Ennfremur Mrs. Anna Nordal frá Hnausa, og verður hún um kyrt hér í bænum um tíma. Hr. Einar Gíslason, bókbindari, hefir tekið að sér útsölu á Bjarka fyrir mína hönd, og bið ég alla kaupendur blaðsins, sem hafa skift við mig, að snúa sér til hans framvegis því viðvíkj- andi. Utanáskrift hans er : Room 12 Rorie Block, Winnipeg. Magnús Pétursson. Meinleg prentvilla hefirorðið í kvæð- inu : “Ekki að lúffa” í 81. tölubl. Hkr. í fyrsta erindi. öðru vísuorði, hefir ei prentast fyrir er og á upphaf vísunnar að vera svona : Ei lúffa, sem hundur, mín hugdjarfa Þjóð, Er heimskir og ósvífnir dónar Þér vanheiður sýna á vestrænni slóð. Við undirskrifaðir höfum fundið hvað það er ósæmilegt að halda áfram þeim óvana sem átt hefir sér stað, með að opna búðir okkar og pósthús á helgi- dögum, hvenær sem æskt hefir verið. Við höfum þvi komið okkur saman um þábreytingu f framtíðinni, aðopnaekki til viðskifta á helgidögum fyrir kl. 2 e. h. Eftir þann tíma erum við viljugir til að opna ef þörf gerist, án þess þó að við skuldbindum okkur til að gera það, nema eftir kringumstæðum. E. H. Bergmann, Garðar, N.D póstafgreiðslumaður. Elis Thorwaldson. Mountain.N.D póstafgreiðslumaður. Thompson & Wing, Mountain, per M. Stefánsson. P. J. Skjöld, Hallson, N. D. Póstafgreiðslumaður. S. Thorwaldson, Akra N. D. Póstafgreiðslumaður. pLEURY HEFIJR MEÐAL ANNARS : Baðmullar nærföt 25c. og yfír Balbriggan “ 50c. “ Merinoullar “ 50c “ Ullar-nærföt “ $1.00 “ Hálsbindi fyrir alla 5c. “ Cashmer-sokkar 25c. “ Hvítar skyrtur 50c. “ Mislitar skyrtur 50c. “ Prjónapeysur 25c. “ 4 Hjólreiðahúfur 25c. “ Hjólreiðafatnaðgr $3.00 “ Takið eftir stráhöttunum hjá oss alla næstu viku. D. W. Fieury, 5<»4 Jluin Sti't'et. Andspænis Brunswick Hotel. Herra Magnús (Egilsson) Brandson ! frá Chicago, kom hingað snögga ferð á mánudaginn var í kynnisför til föður síns og syskina hér í bænum. Hann er vélfræðingur eg vinnnr fyrir “Fraser & ' Chalmers” mikla námavélafélagið þar. , Mr. Brandson er mjög efnilegur maður ! og hefir af sjálfsdáðum rutt sér góða | braut í þessu landi. Hann fer heimleið- is aftur á morgun. Blaðið St. Paul "Globe”, dags. 16. Maí, skýrir frá því, að hr. Christian H. Richter, sem íslendingar hér í bæ þekkja síðan hann hafði hér heimili fyrir nokkr um árum, hafi nýlega gengið að eiga ungfrú Theresu A. Lavin, frá Long Prairie, Minn. Stúlka þessi er mentuð vel, af góðum þýzkum ættum og vel fjáð. Um 50 manns voru í veizlunni og lætur blaðið mikið af því, hve alt hafi verið ríkmannlegt og skemmtilegt. Hin ungu hjón búa i St. Paul. Vér óskum þeim til lukku og langra lífdaga. Þeir herrar Jón Hannesson og Guðm. Andrésson gera allskonar “Silver Plating” á borðbúnaði, sem farinn er að láta ásjá. Vér höfum séð handa- verk þeirra, og getum borið vitni um að þeir leysa þetta verk mjög vel af hendi. Hlutirijir líta út rétt eins og nýir eftir að þeir hafa “forsilfrað” þá. Þeir gera alt undur ódýrt. íslendingar ættu að fara með gömlu skeiðarnar sín- ar og gafflana til þeirra og láta þá gera þá skínandi eins og skærasta silfur. Þá er að hitta að 179 Lombard Street. Vér höfum verið beðnir að geta þess að sjúkranefndin í Good-Templarstúk- unni Heklu samanstendur af: Ingvar Búason, Pétur Thompson, Guðmundur Johnson, Miss Kristín Anderson, Miss Guðrún Jóhannsdóttir og Mrs Sigur- björg Helgadóttir. Nefndin heldur fundi sína á hverju fimtudagskveldi á skrifstofu Mr. Guðmundar Johnson á horninu á Ross og Isabel St. Stúkan biður þá, sem hafa einhver mál að flytja fyrir nefndinni, að koma fram með þau á fundum hennar á fimtudags- kvöldum. Enn fremur óskar stúkan að þeir sem enn þá ekki hafa svarað spurning- um hennar í sambandi við bindindis- málið, vildu gera það sem allra fyrst. Enn þá hafa að eins 14 af 38 mönnum svarað, purningabréfum, sem þeim voru send. Viðurkenning. Herra ritstjóri :— Viljið þér gjöra svo vel og lofa blaði yðar, Heimskringlu, að flytja fyrir mig innilegt þakk’æti til hinnar “Óháðu Reglu Skógarmanna” (Independent Order of Foresters), fyrir ágæta og greiða borgun á lífsábyrgð mannsins míns sáluga, að upphæð $1000. Hann dó, eins og áður hefir verið frá skýrt. 11. þ. m., en ávísun á peningana fékk ég þann 26. þ. m., eftir að eins 15 daga. í sambandi við þetta finn ég ástæðu til að þakka stúkunni Isafold, sera gerði sér far um að flýta fyrir þessu, og eins fyrir alla hluttekning og velvild, sem ýmsir meðlimir stúkunnar hafa sýnt mér. Winnipeg, 29, Maí 1899. Mrs. Anna Gíslason. Lítil athugasemd. Herra ritstj Eg vil biðja yður að ljá eftirfylgj- andi línum rúm í blaði yðar. í 29. nr. Hkr. er dálítill útdráttur úr fylkisreikningunum fyrir árið 1898, og við tölulið 2913 stendur: S. Friðfinsson o.fl., vegagerð við íslendirigafljót$53,00. Þetta er ekki rétt. E« vann að þess- ari vegagerð og voru mér ekki borgaðir $53,00, heldur að eins $30.00 (skrifa og segi þrjátíu). Meiri peningar hafa ekki komiö i míria vasa eða manna þeirra, sem unnu þetta verk uydir minni upa- sjá. Eg hlýtaögera þessa athugasetnd, einkuin gagnvart þeim n önnurn, sem únnu hjá mér. því rétt erbezt., os kem- ur í veg fvrir misskilning. Geysir P O., Man., 15. Maí 1899. S. Fribkinnsson. Free Press getur þess í gærmorgun að það slys hafi viljað til í Selkirk, í fyrradag, að Walter Sigurðsson hafi handleggsbrotnað þar við sögunar- myllu. Herra Jónas Brynjólfsson lagði af stað, að líkindum alfarinn héðan, vest- ur til Cooteney námahéraðsins á sunnu- daginn. Bjóst hann við að reyna lukkuna þar, fyrst um sinn að minsta kosti. Concert og Social. hefir kvennfélag Tjaldbúðarsafnaðar fimtudaginn 8. þ. m. í Tjaldbúðinni. Gott prógram verður auglýst í næsta blaði. Á samkomunni koma fram menn, sem aldrei hafa komið þar fram fyrr.I Peningum þeim sem inn kunna að koma á samkomunni, ver kvennfélagið til þess að hjálpa söfnuði sínum áfram. i kvöld! Eins og áður hefir verið auglýst, verður ókeypis skemtisamkoma haldin í Unity Hall í kvöld. Verður þar til skemtunar: ræðuhöld, upplestur og söngur. Ágætur enskur söngmaður syngur þar tvær solos. Einnig verður þar Tombola, og gefst mönnum þar kostur á að eignast marga ágæta muni fyrir lítið sem ekki neitt. Allir eru boðnir og velkomnir. Inngangur og skemtanirnar — alveg okeypis. — Samkoman byrjar kl. 8 í kvöld. Uppynging. Vinsæl uppgötvun er það sem J. R. Haisley og A. C. Wiener, j rófessór- ar við læknaskólann í Chicago, hafa gert, og haldiO leyndu fyrir almenningi þar til fyrir fáum dögum, að þeir kunngerðu það fyrirheiminum, að þeir hefðu fvndið upp nýtt og áðar óþekt ráð til þess að yngja upp gamalmenni á tveimur mánuðum. Þessi uppyng- ing karla og kve nna er gerð með því, að sprauta innundir húð þeirra kyrtla- safa úr ungum dýrum; helst geítum. Uppgötvun þessi var gerð fyrir ári síðan, en hefir ekki veriö gerð opinber fyr en nú, af því að prófessorarnir hafa verið önnrim kafnir að gera tilraunir bæði á mönnum og hundum. Dr, Hai- ley sprautaði nokkru af safa þessum í 14 vetra gamlan hund, og varð hann eins fjörugur eins og hvolpur innan tveggja mánaV. TiÞaunir hafa og verið gerðar á gömlum mörinum og konum, 1 neö líkum afleiðingutn og á hundinum. RoyalOrownSoap $65.00 Nevv William Drop Mead saumavje!ar. Gefnar f'yrir sápubréf. 3 vélar gefnar á nverri viku fyrir ROYAL CROWN sápubréf og “Coupons.” Biðjið matvfjrusala yðar um ROYAL .CIiOWN “Coupon” með hverjum 5 stykkjum af ROYAL CROWN sápu með bréfum á.' Fyrsta vélin var gefln mánu- daginn 16. Janúar. Engum sem vinnur á sápugerð- arverkstæðinu verður leyft að keppa um þessar vélar. DR. J. J. WHITE, Tannlæknir, dregur og gerir við tennur eftir nýjustu aðferð ár als sársauka, og ábyrgist alt verk þóknanlega af hendi leyst. Hornið á Mainog MarketSt. Winnipeg. Woodiie Restaurant Stærsta Billiard Hall í Norð vestrlandinu. Fjögur “Pool”-borð og tvö “Billiard”- borð. Allskonar vín og vindlar. I.ciinoii & Hebb, Eigendur. H. W. í\. Chambre, landsölu- og eldsábyrgðar- umboðsmaður 373 Main St., Winnipeg'. Mjög ódýrar bæjarlóðir á Sherbrook St. 50+Í32 fet. Verð að eins $200. Peningar lánaðir móti veði í bæjarlóð- um og bújörðum. Lán sem veitt eru á hús í smíðum eru borguð út smátt, eft- ir því sem meira er unnið að smíðinu. Eldsábyrgð. Hús til leigu Bicycles. Þér ættuð að koma og sjá Thistle og Fnlton hjólin. Þau eru áreiðan- lega einhver þau fallegustu sem nokkurn tíma hafa verið flutt inn til Winni- peg. Þau eru einhver þau léttustu, en þó sterkustu hjól sem búin eru til i Bandaríkjunum. — Fentlierstone hjólin (sömu sem í f.yrra voru kölluð “Duke” og “Duchess”) reyndust ágætlega í fyrra. Það er óhætt að renna þeim^ á hvað sem er, þau eru næstum óbrjótandi, og þarf því ekkert að kosta upp á þauí aðgerð. — KlondiKe hjólin eru mjög góð fyrir jafnmikla pen- inga. Þér gætuð ekki fengið betri kaup þótt þér senduð eftir hjóli sjálfir til Stórborganna í Bandaríkjunum eða Canada. Verð að eins $28.50 fyrir borgun út í hönd. B. T. Bjornson. Corner King & Market Streets. H. Bjarnason, Glenboro, umboðsmaður fyrir Argylebygð. WELLAND VALE BICYCLES Eru beztu hjol sem buin eru til i Canada. KEÐJULAUSIR, PERFCT, GARDEN CITY, DOMINION. h>35'00 Og yfir. Áðar en þér kaupið reiðhjól á sumrinu ’99, þá gerið svo vel að Iita á hjólin okkar. Þau hafa allra nýustu “Twin Roller” keðju, “Internal Expanders”, færanlcg handföng, “Crank hangers”-ístöð í einu stykki og sjálf-ábornings ása. Eftir að hafa skoðað hjólin okkar nákvæmlega, munuð þið sannfærast um að við erum á undan öðrum hvað snertir til- búnjng reiðhjóla I öllu Canadaríki. Umboðsmenn í Winnipeg TURNBULL & MACMANUS* Umboðsmaður í Vestur-Canada 210 IlcDermott Ave. Walter Jackson, P. O. Box 715 VVinnipeg. THE WELLAND VALE MANUF. CO. St. Catberlnes, Ont. Ef þér yiljið fá yður ágætan alfntnað þá komið til vor. Vér búum tilallan- fatnaðinn sjálfir og getupn þi í Abyrgst að hann fari vel o t só úr góðu efni. Takið eftir þesmin verðlista : Vaðmáls alfatnnðuv frá $3.50. Nhv.v Blue alfatnaður frá Í6.50. Svört. ullarföt f>á 6 50. Vér höfum nríklar hyr^öir að vclja úr með hvnða sniði sem þér óskið. J GENSER, eigandi. McCLARY’S FAMOUS PRAiRIE- Þetta er sú bezta eldnstó í lamlinu, hún bakar Pyramid af brauðum”með' jafnlitlum eldlviö og aðrai stór baka að ems fáein brauð. Hetír sérstök þæg- indisvo sera hitamæli í bökunarhólfinu er sýnir hitann áieiðanlega, bökunar- ofn úr stáli meö fódruðu eldgrjóti, liakar með þriðjungi minni eldivið en nokk- ur önnur stó. Hreint luft geugur um ofninn ott gerir brauðm holl og ljúfeng. Kaupið McCláry’s eldstó ef þér viljið beztu stá. Ef§ kai pmaður yðar hefir hana ekki þá ritið oss. The McClary Mfg. Co. WINNIPEG, MAN.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.