Heimskringla - 06.07.1899, Side 2
heimsrrinola 6. júlí i»5»y.
Verð blaðsins í Canada or Bandar. $1.50
am árið (fyrirfram borgað). Sent til
íslands (fyrirfrain borgað af kaupend-
am blaðsins hér) $1.00.
Peningar seudist í P. O. Money Order
Registered Letter eðaExpress Money
Order. Banbaávísanir á aðra banka en í
Winnipeg að eins teknar með affollum
B. L. Kaldn inNnii,
Utgefandi.
gef'a íslendingum og öðrum enn
eina sönnun fyrir því hve undur
skírlíflr Liberalar eru í kosningum
og hve mikla óbeit þeir hafa á þvf
að nota peninga til atkvæðakaupa;
eða hitt þó heldur.
Það voru góð samtök meðal
þessara manna. Sumir höfðu það
er
Office : 547 Main Street.
P O- BOX 305-
"Viðbjóðsleg kosninga
svik í West Elgin.
Þau stórkostiegrustu kosninga
svik, sem enn þá hafa komið upp í
Canada, voru framin af Liberal
flokknum I West Elgin kjördæminu
í Ontario. Mr. McNish, umsæk^
andi fyrir Liberalflokkinn, var af
kjörstjóra sagður kosinn fulltrúi fyr
kjördæmið. En Conservatívar vissu
að ekki var alt með feldu við þá
kosningn, og skutu því úrskurði
kjörstjóra fyrir dómstólana. Það
vorn fyrir hendi nægar sannanir
fyrir því, að atkvæði voru keypt þar
í hundraðatali og $100 borgað fyrir
sum þeirra af Liberölum. Það sóru
nokkrir menn það fyrir rétti, að
þeim hefði veric borgað $100 seðlar
fyrir atkvæði sín, en gátu þess jafn
framt, að þeir hefðu þá haldið að
það væri að eins $1 seðlar, en það
sem lakast var, var það, að sjálfur
umsækjandinn, McNish, var meðsek-
ur í þessum glæp, og borgaði sjálfur
fyrir sum af atkvæðunura lianda sér
Þetta var auðvitað fangelsissök fyrir
manninn, ef hann léti málið ganga
til dóms, án þess að segja af sér
Hann tók því það ráð að rita synda-
játningu sína og flokks síns í 7 lið-
um og sendi hana til form inns Con-
servatívaflokksins- I þessari játn-
ingu segir hann meðal annrrs :
1. Mikill fjöldi manna var sér
staklega sendur inn í þetta kjördæmi
af mönnum, 6em unnu fyrir Liberal-
flokkinn, með þeim ásetningi að þeir
tækju þát: í kosningunni með Mc-
'oru hðfð þar um hönd af sumum
af þessum mönnum til þess að vinna
kosninguna.
2. Ýmsir af þessum mönnum
unnu ólöglega sem kjörstjórar við
ko3ningarnar, og að minsta kosti í
þremur tilfellum unnu þeir undir
nöfnum þektra manna þar í kjör-
dæminu.
3. í mörgum kjðrdeildum kjör-
dæmisins voru sviksamleg brögð
höfð í frammi í sambandi við af-
hendingu atkvæðakassanna og tölu
atkvæðanna.
4. Pað var mikill fjöldi manna
sendir inn í kjördæmið með þeim á-
kveðna ásetningi, að þeir skyldu
greið i atkvæði undir nafni annara
manna. Þessir menn unnu verk
sitt með til tilhjálp stjórnarþjónanna.
5. Tala atkvæðanna eins og
kjörstjóri sagði þau vei a, voru langt
um fleiri en öll lögmæt atkvæði, er
g 'cidd voru með McNish.
6. Mikill fjöldi þeirra atkvæða
sem greidd voru fyrir McDierinid
(umsækjanda Conservatlvía) voru á
æinhvern sviksamlegan hátt skemd
svo, að úrslit kosninganna virtust
öðruvísi en þau voru.
7. Það eru gildar ástæður til að
ætla að það megi sanna þær sakar-
giltir á umboðsmenn McNish, að
þeir hafl hylmt í húsum sinum
marga af þeim aðsendu mönnum, er
borguðu stórar peniuga upphæðir til
manna, til þess að fá þá til að greiða
atkvæði með McNish.
Svona er þá syndajátning þess
manns, sem kjörstjóri sagði að hefði
unnið kosninguna, en sern ekki var
ko3Ínn, þrátt fyrir öli keypt atkvæð
og þrátt fyrir það, að mikill fjöldi
manna voru iátnir greiða atkvæði,
sem engan rétt höfðu til þess.
Að McNish ritaði nafn sitt undir
slika jitningu um Ieið og hann gaf
upp þingsætið, er full sönnun þess
að hann heftr verið í nauðum stadd-
ur. En þetta voru skilmálarnir, er
honum voru settir til þes3 að kom-
ast hjá í'angelsisv'ist fyrir svikin.
Þó ^ún sé ekki Iöng þessa játn-
ing, þá er húu þó næg til þes3 að
verk, að snuðra upp mannrolur,
hægt væri að kaupa, fyrir hundrað
dollars hvern; aðrir voru faldir I
vissum húsum, með peningaskrín
ur, til þess að borga $100 seðla þeim
ræflum, sem teymdir voru til að
Þiggja mútufé, og seija drengskap
sinn.
Aðrir voru notaðir til þess að
fara inn að kosningaborðinu og
sverja það, að þeir hétu vissum
nöfnum og hefðu ré t til að greiða
atkvæði, og greiddu þau svo með
stjórninni. En þegar hinir réttu
kjósendur gáfu sig fram síðar um
daginn, fengu þeir ekki að greiða
atkvæði; var þeim sagt að það vær
búið að greiða þau undir þeirra
nöfnum, og svo var ekki meira um
það. Enn aðrir höfðu það verk, að
gerast kj'irstjórar undir fölskum
nöfnum, til þess að þeir gætu unnið
hlutverk sitt vel og dyggilega
það, að ónýta atkvæði Conservatíva,
þeírra, sem þeir gátu ekki hindrað
frá að kjósa og til að oftelja atkvæði
8tjórnarsinnans.
Þessi heiðarlegi mannflokkur er
sá hinn sami, sem vann við kosning
arnar í West Huron og South Ont.
Það eru Liberalar í húð og hár með
öllum þeim einkennum, sem tilheyra
þeim flokki. Margir pessara manna
eru nú flúnir og flnnast hvergi. En
v^ra má að þeir komi fram í næstu
fylkiskosningum í Manitoba, til að
vinna fyrir Greenway. Það er hvort
sem er “fé fóstra líkt“.
‘Sækjast sér um líkir‘.
Blaðið Colonist í Vancouver, B. C.,
flutti nýleica greinarkorn um fylkis
stjórnina þar, og se«ir það meðal ann
Nish, og ýmisleg sviksamleg brögð ars' Astand fylki.-ins er orðið mjö,c al-
varlej?t o<; fer daRlega vaxandi. Vinna
er hætt i námum Víða í fylkinu og
verzhin á námalóðum er í rénun. Náma
lóðir, sem búið er að vinna í. lækka
nú dardega i verði en stjórnin, bún
stendur aðgerðalaus og horfir á eyði-
leg.aingutia.
Langt sé það frá þessu blaði að
ýkja að nokkru leyti hið aumlega á-
stand. Það skyldi gleðja oss stórmikið
ef það væri betra en það er. En það er
sú mesta fásinna að neita að viður-
kenna ástandið einsog það er, og að
þ 'ð fer nú daidega versnandi. Ekkert
er gert til þess að ráða frara úr vand-
ræðunnm. Ekkert stjórnarblað segir
eitt orð nm þetta, þó þau viti af mörg
hundruð mönnum vinnulausum og
námalóðum fylkisins sí-lækkandi í
verði. Blað fjármálaráðgjafaris ræðir
ura útlenda pólitík og blað dómsmála
ráðgjafans ræðir um verðlaunaslags-
mál. En hverju öðru geta menn búist
við frá blöðum sundurlindra ráðgjafa.
Starfsemi fylkisins er að fara í hund-
ana meðan Cotton og Martin berjast
um völdin. Hvorugur þeirra hefir
þrek til þess að segja satt, af ótta fyrir
því, að þeir kunni a tapa atkvæðum
við það hjá vissum flokkum manna í
Vancouver. Auðvirðilegra stjórnarfar
hefir aldrei þeks* hér í fylkinu. Vér
höfum gott fylki, íen það fær ekki að
njóta sín vegna óstjórnar og vanhugs-
aðra laga. Ástæðan er auðsæ. Þeir
Cottcn og Martin láta sig engu skifta
um hag fylkisbúa, ef þeir að eins geta
haldið völdum.
Til þess að geta komið Martin frá
embætti, þá lætur Cotton alt hlaupa á
reiðanum, til stórskaða fyrir þá ereiga
hlut að raáli, en á hinn bóginn er Mar-
tin reiðubúinn að kollvatpa fylkinu al-
gerlega, ef hann að eins getur komið
Cotton fyrir kattarnef. Öll stjórnar-
klíkan ætti að rekast ftá völdum, því
þeir bera allir jafnt Abyrgð á þeim
shaða, sem nú I>egar er otðin.
Unnið á móti bind
indi í Quebec.
Það hefir lengi legið grunur á þvi
að Laurier, Tarte og aðrir franskir ráð
herrar í Ottawastjórninni hafi haft út
sendara um alt Quebecfylki, til þess að
vinna á móti bindindismálinu í undir
búningnum við atkvæðagreiðsluna um
það uiál í Septembsr siðastl., og víst
um það, að það var eina fylkið í ríkinu
sem hafði fleirtölu atkvæða móti vfn
banninu. En það var ekki fyr en við
uinræður ísenatinu um daginn, að það
kom reikning8léga i Ijós, hve undur vel
hafði verið unnið jmeð vínnautnarhlið-
inni.
Eftirfylgjandi tafla sýriir hvernig
sumar kjördeildir greiddu atkvæð: móti
bindindismálinu :
atkv. á kjörskrá atkv. greidd
L’ Hslet 82 77
Maisonneuve 141 139
Megantic 97 97
Stjanes MontCNoIO 92 88
M <( „ 57 101 98
ii 11 „62 151 148
Port Neuf 83 80
Chicautinni 11 10
Gaspe 40 37
Beauharnois 118 119
Qnebec Centre 101 103
Quebec West 115 116
Tafla þessi sýðir, að vel hefir veri
unnið inóti bindindinn þar eystra, þar
sem í þessum kjördeildura nAlega öll
atkvæði, sem á kjörlista voru, komu
fram við kosninguna, og í sumum kjör
deildum komu—eins og taflan sýnir—
fleiri atkv. fram, en til voru kjósendur
til að greiða þau. Það er lítil furða, þó
að hægt sé að vinna við kosningar, þeg-
ar svona rækilega er unníð. Þetta ætt
að minsta kostí að vera i.óg til þess að
keuna bindindismönnum enn þá bet.ur
en nokkru sinni áður að treysta ekki
um of glæsilegum lofoiðum. Quebec
f.ylkisbúar fylgja vel forkólfum síuuiri.
DH. J. J. WHITE,
Tannlæknir,
drogur og gerir við tennureftir nýjustu
aðferð ár als sárs 'uka. <>g ábyrgist alt
verk þóknanlega af hendi leyst.
Hornið á Main og Market St. Winnipeg.
ísland frjálst.
Eitt cr það sem íslendingum mun
lengi hugðarmál: Það er frelsi Is
lands. Á því hvílir sómi vor ogvel
ferð, og fyrir þvi stríðum vér, þótt
oss greini á um útbúnað og stefnu
En þegar stórstraumar viðburðanna
o g felligarðar félagshreyflnganna
ætla að kasta oss á blindsker, þá er
ekki um aðra stefnu að tala, en
móti straumi o(j vimli. Og skori
mannfélagið oss á hólm og æfðir
vígagarpar segi við einhvern okkar:
Þú skalt reyna afl og vitsmuni við
oss, ella heita hvers manns níðingur,”
)á hirðum vór ekki um liðsmun, en
eynum hvað vér getum. Svo er og
stjórnarstríði fslands farið.
Nú er tíminn ; nú er tækifærið til
að sýna h vort við viljum heldur heita
þý en frjálsir menn.
ÍSLANDI ER BOÐIN BEITA.
Landsmönnum er boðin bjórkolla fyr
ir frumrétt sinn; þeim er boðinn
embættlingur fyrir sjálfstjórn ; þeim
er boðið að gefast upp skilmálalaust.
Hvað heflr ísland með ráðgjafa í
Kaupmannahöfn að gera ? Það á þar
helzt til marga ráðgefendur nú. Geta
Islendingar ekki átt um mál sín við
konung sjálfan og við Landshöfð-
ingja, fulltrúa hans ? Eða þurfa ís-
lendingar, gamlir Iýðstjórnarmenn,
að sækja ráð til Dana, sem sjálf-
ir eru f pólitiskum ógöngum ? Ráð-
gjafatilraunin hefir geflzt misjafnlega
erlendis. Stærstu og frjálsustu ný-
lendur heimsins, Canada og Ásiralía,
hafa engan ráðgjafa f rfkisráði
Breta. Þær láta sér nægja að hafa
sinn umboðsmanninn hver í Lundún-
um, eins og öðrum höfuðborgum. —
Ætti Island að þurfa sérstakan ráð-
gjafa fremur en þær ? Ónei. Þessi
ráðgjafamynd er bara sökkill við far-
ið, sem á að festa ísland við Dan-
mörku.
TILBOÐIÐ ER ÓHEILT
þvf, ef Danir vildu af heilura hug
viðurkenna réttindi íslands, þá hel'ði
þeir fyrir löngu síðan gefið þvf sjálf-
st.jórn. En vilji þeir ekki viðnrkenna
sérréttindi Islands frekar, (eins og
brcf r&ðgjafans danska til dr. Valtýs
sýnir), svo er þetta ráðgjafafrumvarp
humbug. Það er agn til að fleka
ísland. Því næði frumvarpið laga-
gildi og sendi Island fulltrúa sinn &
ráðstefnu Dana, sem danskan ráða-
naut, svo yrði Island um leið dönsk
þinghá, þ. e. danskt kjördæmi, háð
grundvallarlögum Danraerkur, sem
alls ekki viðurkenna sérréttindi fs
lands. Þar með væri frelsisbaráttu
íslendinga lokið, og heillár aldar
verk ónýtt.
Æskjum við þeirra málalykta ?
Viljum við heldur vera ' öðrum háð
og skuldbundin, en frjáls ? Er okk-
ur sama þótt frændfólk okkar sé
rænt eignum og umráðum sinna eig-
in landa og ýmsir flæmdir í útlegð ?
Skiljum við ekki lengur hvað sjálfs
forræði íslands þýðir ? Eða er oss
sigið svo blóð fyrir augu, að vér hirð-
um ekki framar hvort vér verðum
ánauðugir ogeinskis metnir eða sjálf-
stæð þjóð ?
GETUR ÍSLAND EKKI VERIÐ
FRJÁLST ?
Er oss íslendingum ekki viðreisn-
ar von ? Þá hefir oss illa förlast
þróttur undir umsjá Dana og aga
kyrkjunnar. Því á meðan Island
var að mestu heiðið, hélt það sóma
sínum og frelsi um nærri fjögur
hundruð ár; nú er það selstöð .út-
lendra, er segjast leggja þvf 60,000
króna styrk á ári,—endurgjald kalla
þeir það 'ekki—og íbúatala landsins
er vart § þeirra er var í fornöld, né
\ hennar, þótt Vestur íslendingar séu
meðtaldir. Það er satt, oss hefir
förlast undir verndarvængjum Dana,
og vér stöndum ekki vel að vígi.
En eigi að sfður er oss viðreisnar von
ísland þarf ekki altaf að vera selstöð,
né íslendingar þegnar útlendra.—
ísland á til þ<rr auðlindir er geta
framfiert tíu sinnum, já, hundrað
sinnum flcira fólJc cn þar býr nú
og vér œttlerarnW getum hvið svo
um, að ckki Hði margir tugir ára
áður þ«ð verði frjálst. Við þegnar
og flæmingjar, einar 75 til 90 þús
undir, öll fátæk og fákunriandi, við
getum byrjað að endurreisa félags
skipun, efnahag og uppfræðslu okk
ar á meðal, svo við verðum sjálfstæð
ef við eruin heilhuga og samtaka
Já, cf. I n er ekki tortrygni, sund
urlyndi og þrákelkni búin að festa
alt, of djúpar rætur í félagslífi Islend
inga, til þess að þeir geti orðið sam
huga og samtaka í noklmi? Nei
Þessi alræmdu lundkenni okkar
hverfa um leið og við byrjnm fyrir
alvöru að íhuga, hvcrnig við getum
slitið ánauðar og fátæktar fjöturinn
sem bindur okkur við hraun Islands
og við útjaðrana erlendis. Þvi um
leið og vér íhugum, að vér eigutn öll
fyrir sömu réttindum að stríða, sjá-
um að véreigum fyrir satnciginlcg-
um hagsmunum að vinna, og ásetj
um oss að neyta vorra beztu krafta
til að verða öðrum óháð, svo hverfur
tortrygnin og sundurlyndið og þrá-
kelknin, en tiltrú, samlyndi og vel-
vild koma í þeirra stað. Skammirn-
ar og eymdin hverfa í húmið við
kyrkjugarða og spítala, en velvild
og hagspeki bera þann ávöxt, að
ekki þarf lengi að rýna eftir því,
hvaða erindi við höfum átt í heiminn.
Við getum verið frjáls, af því við
höfum sérstakt verk að vinna
VIÐ ERUM EINING.
Jú, falleg eining erum við, tvístr-
aðir/eins og sauðir og félausir eins
og rakkar. Og samt erum við ein-
ing, þjóðareining: því vér berum
allir sömu einkenni, vér niælum á
sama máli, eigum sama æskudraum
g höfum eitt æflverk að vinna. Vér
erum sérstakur, einrænilegur hópur
í mannfélaginu, en helzt til fáliða,
svo fáliða. að við megum einskis
kraftar missa, og vér stríðum, nauð-
ugir viljugir, fyrir tilveru vorri sem
jjóðflokkur. Saga Islendinga er ein
löng Grettisssga. Við verjum eyna
ennþá—verjum hreysið.
Það er líkt um Islendinga eins og
unglingana er sögurnar segja að hafl
legið í öskustó um mörg ár, og orðið
að fara úr föðurgarði til að verða
nýtir menn. Við höfum fyrir löngu
siðan yfirgefið ættland og frændur
og komið ferðlúin til Rögnvaldar
konungs rlka, og æskt að ganga í
hirð hans. En hann hefir skipað oss
bekk hinn óæðra frain við hallar-
dyrogbeðið oss vinna þrautir nokkr-
ar. Þá fyrstu að rvðja skógarmörk,
sem enginn annar treystist til að
ryðja, og reisa þar liú ; þá aðra, að
binda úlfinn Angurboða, er grandað
hefir svo mörgum hlrðmönnum kon-
ungs ; og þá þriðju, að vinna orminn
Álfrán og ná fé því er hann gevmir.
Að þessum kostum höfum vér geng-
ið og fyrsta þrautin er unnin. Vér
höruin bygt Markland. Fjöfnrinn á
úlfinn er í smiðum og orminn iðbjarta
getum vér fundið. Vér eigum þrjá
kjörgripi að föðurleifð : —óskastein
mjalldriflnn, sá gefur oss fæðu, klæði
og skýli; armbaug sleginn segulloga,
hann gefur oss afl og vísar oss veg;
og hulinshjálm, sveiptan sigurrúnum
og feiknstöfum, liann veitir oss sigur.
En enn þá eigum yér sæti með veg-
farendum og hirðmenn kýma að
brautíngjagervum vorum. En vér
köstum þeim ekki fyrri en hraunið
er orðið að akri, úlfurinn bundinn og
“Aldeyfir” veginn, en Rögnvaldur
skipar oss öndvegi. Vér höldum
strikinu jiar til sigurinn er unninn.
EN SVO ER AÐ SÆTTAST.
Við hverja ? Þá sem verja okkur
veg ? Veltum heldur steininum frá.
Okkur er boðið að sættast við bræð-
ur, sem hafa rænt okkurarfl og halda
okkur sem þjónum. Ónei. Við
treystum ekki glepsandi vargi né flá-
ráðum óvini. Uppá hvaða skilmála
eigum við annars að sættastr Þá, að
ræninginn haldi því sem hann hefir ?
Þá, að Danir eigi ísland og hafl öll
umráð yfir því framvegis? Það
væru sættír og það á sögulegum
grundvelli. Landnáma segir um þá
Ingólf eitthvað á þessa leið : ‘ Ok
sættust þeir at þat, at Ingólfr skyldi
láta af hendi lönd sín ok fara ór
landi.” Eiga fslendingar að fara að
dæmi Ingólfs? Þeim er boðið að af-
sala sér öllum rétti til sjálfsforræðis,
og að biðja drotna sína að eiga alt
land og umráð. Svona bæn er sagt
að fái áheyrn. Þessi afsölun á að
fylp-ja lagafrumvarpi um, að stjórnin
í Danmörku taki sér til aðstoðar
aukaráðsmann frá íslandi, (sem þá
sækir sjálft ráð til Dana), til þess að
hún þurfl ekki eins mikið á Alþingi
að halda. Svona, segja sáttamenn,
á að fara að því að blíðka Dani, til
þess að samkomulag komist á. Svona
eiga Islendingar að gefa Dönum það
sem þeir hafa rænt, af því Danirneita
að gefa það til baka, nema í smáölm-
usum. Og til þess að fá ölmusurnar,
verða fslendingar að venja sig á að
biðja, því 75 þúsundir geta ekki var-
ið rétt sinn, segja þeir, gegn 3 milí-
ónum. Eins og höfðatalan geri rangt
rétt eða rétt rangt! Eins og íslend-
ingar geti nokkurntíma mistrétt sinn
ti! sjálfstjórnar, nema þeir af frjáls-
urn vilja afsali sér honum. Nei,
það er ekki sorgarspil þetta,—það er
bara “kómidfa” : Að sættast.
Hdborn hitnnarvel
Þannig löguð sætt væri þjóðar-
skömm, fyrir Dani jafnt og fslend-
inga. Því hún sýndi að fslendingar
væru orðnir kærulausir bjánar, ogað
Danir notuðu sér eymd þeirra. Þar
með væri frelsi fslands jarðseit, og
ríki Dana liengdur mylnusteinn um
háls. Séum vér þá óvinir fslandsog
Danmerkur, svo sættumst fölskum
sáttum; en séum vér það ekki, svo
sættumst ekki fyr en þessir bræður
vorir breyta við oss eins og göfugum
bræðrum sæmir. Verjum oss. Krefj
umst þess að mega standa bræðrum
vorum við hlið, sem jafningjar, ekki
sem skjólstæðingar þeirra og þegnar
þegnanna. Virðum sjálfaoss ogaðra
sem vitiborna og stöðuglynda menn.
STRÍÐUM, VINNUM
vorri þjóð. Ó að vér værum þjóð !
Reynum að verða þjóð ! Ekki með
þvf að ögra dönum né hóta þeim að-
skilnaði. Það fer óþarfl. Því síður
með því að sýna konungiJDanmerkur
lítilsvirðing,—hann heflr oft sýnt að
hann ann íslandi frelsis og vildi
gjarnan hjálpa nauðstöddum—heldur
með því að cfla svo félagsskap
cfnahag og uppfrœðslu vor A mcð-
al, að Dðnum sJciljist það að rér
hvorlci viljum né þurfum að vcra
slcjólstœðingar þcirra og þcgnar
regnanna,- viljumengin bönd önn-
ur en velvildar og jafnréttis.
Vinnum þá af af alhuga og sam-
liuga að eigin raálum. Sýnum að vér
séum enn sama fólkið og bygði hraun
Islands í fornöld og að við höfum
lært nokkuð í einverunni. Brjótumst
í gegn, höggvum okkur braut. —
Frændþjóðirnar biða þess að við reis-
utn okkur úr duftinu, og sjálf finn-
um við enn þrótt til að sigra, og vit-
um að við höfuin sérstakt verk að
vinna, það, að sýna hvað vtlcnd-
ingarnir gctn-l
Strfðum og vinnutn svo ísland
verði frjálst og æskudraumar þess
rætist.
liitað í París lf Júnf 1899.
FrImann B. Andersox.
Er sú bezta viðarbrennsluvél sem til er.
Ciare Brothers
<fc co.
Eldstór, hitunarvélar og hitaleiðarar
180 Market St Win^iipejj
Ódörasti staðurinn í bænum.
Cash Coupons.
$3.00 í peningum gefnir fyrir alls ekki
neitt. Th. Thorkelsson, 539 Ross Ave,
G. Johnson. corner Ross & Isabel Str.,
og Th. Goodman, 539 Ellis Áve, hafa
þessar Couj o is og gefa viðskiftamönn-
um sínum þær fyrir hvert lOcenta virði
sem keyj t er í búðum þeirra og borgað
ut í hönd. Coupon bækur fást í þessum
búðum, eða hjá
The Buyers and Merchants
Benefit Association,
Room N Ryan Blk. 490 Main Street
H. I/V. A. Chambre,
landsölu- og eldsábyrgðar-
umboðsmaður
373 Main St., Winnipeg.
Mjög ódýrar bæjarlóðir á Sherbrook St.
50+132 fet. Verð að eins $200.
Peningar lánaðir móti veði í bæjarlóð-
um og bújörðum. • Lán sera veitt eru á
hús í smfðura eru borguð út smátt, eft-
ir því sem meira er unnið að smíðinu.
Eldsábyrgð. Hús til leigu
Army and Navy
Heildsala og smásala á
tóbaki og vindlum.
Vér liöfum þær bezt.u tóbaks cg viridla-
byrgðir sein til eru í þessum bæ. og selj-
um þær ódýrara eu aðrir. Enda gerum
vér meiri verzlun en nokkur annar.
Vér óskurn eftii viðskift'un yfar.
f. BíöWfl & Co.
541 Main Str.
á horninu á James St
Canadian Pacific
RAfLWAY-
EF ÞIJ
hefir í hyggju að eyða
vetrinum í hlýrra lofts-
lagi, þá skrifaðu ossog
spyrðr. um farnjald til
California,
Hawaii-eyjanna,
Japan,
Bermuda og
Vest-Indía eyjanna,
eða heim til gamla landsins
Niðursett far.
Snúið ykkur til næsta C. i!. R. um -
boðsmanns. eða skrifið til
Robert Kerr,
Traffic Manager,
Winnipro, Man,
rn Pacific R’y
Samadags tímatafla frá Winniþeg.
MAIN LÍn¥!
Morris, Emerson. St.Paul, Chicago,
Toronto. Montreal, Spokane, Tacoma,
Victoria. San Francisco.
Ferdaglega......... l,00p. m,
Kemur „ ........... 1,50 p.m.
PORTAGE BRANCH.
Portage la Prairie and inte-
rmediat.s points ......
Fer dagl. nema & sunnud. 4,54 p. m.
__Kemur dl. „ „ „ io,45 a. m.'
MORRIS BRANDOFkBRANCH.~~~
Morris, Roland, Miame. Baldr,
Belmont. Wawanesa, Brandon
einnig Souris River Branch,
Belmont t.il Elp-ín......
Lv. Mon.. Wed., Fri..10,55a.m.
Ar. Tu<»8. Tur . Sat. 8.55 p.m.
CHAS. S. FEE. H. SWiNFORD,
G. P. A. T. A.,St.Paul. General Agent#
Portago Ave., Winnipeg.