Heimskringla - 31.08.1899, Blaðsíða 1
Heimskringia.
XIII. ÁR
WTNNIPEGr, MANITOBA 31. ÁGtJST 1899.
NR. 47
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Senator Teraple frá, Frederickton,
N. B., andadist þann 25. þ. m.
Maccabees-félagið hélt nýlega Pic-
nicíSt. Joseph, Michigan. Var þar
margt fólk saman koraið. Hafði félag-
ið auglýst að það setlaði að yeita frí
giftingarleyfi öllum þeira sem yildu
giftast opinberlega þar á samkomunni.
40 brúðhjón létu sér þetta að kenningu
verða, fengu þarna giftingarleyfisbréf
ókeypis og voru gift úti á bersvseði að
viðstöddum miklum mannfjölda.
J. B. Charleston, umsjónarmaður
yfir lagningu telegrafþráðarins til Daw-
son City, segir, að 15. Sept. næstkom-
andi verði sá hær tengdur við allan hinn
mentaða heim með fréttaþræði. 600
mílur af þræði hafa þannig verið lagð-
ar á 5J mánuði, eða sem næst 110 mil-
ur á mánuði, og er það vel gert í landi,
sem er eins hrjóstugt yfirferðar eins og
Yukonhéraðið er sagt að vera.
Joseph Martin hefir haft þau áhrif
að koma B. C. stjórninni í minni hluta.
Það var honum að þakka, að Semlin-
stjórnin nú komst að vöidum og það
verður honum að kenna, ef hún tapar
völdum.
Óvanalegir þurkar ganga í Ontario-
fylkinu, einkanlega í Brant, South Ox-
ford og Norfolk. Ár og lækir hafa hart
nær þornað; skógartré hafa skrælnað
og jarðvegurinn er svo þur. að kornteg-
undir geta ekkisprottið; grasið skræln-
aráengjunum. Skógareldar hafa og
gert afartjón á stóru svæði. Bændur
eru ráðalausir með vatn handa fólki og
gripum. Einn bóndi, sem hefir upp-
Sprettulind á landi sínu, græðir stórfé
á þvíað selja nábúum sínum vatn.
Ófriðarskýið í Suður-Afríku er alt
af að sortna. Gamli Kruger og stjórn
hans er að safna að sér ógrynni af skot-
vopnum og öllum mögulegu.*n tegund-
um vopna, og eru að þvi leyti orðnir
hættulega vel útbúnir. Herliðinu hefir
verið safnað samanávissa staði, þar
sem það geti gert Englendingum sem
mestan skaða, og um leið veitt þeim
mest viðnám, ef til orustu kemur. Þjóð-
verjar og Hollendingar eru i anda með
Kruger, en veita honum ekki lið opin-
berlega. Á hinn bóginn eru Bretar
ekki aðgerðalausir. Senda þeir stöð-
ugt þangað straum af skipum, hlöðn-
um með hermönnum, hestum, vopnum
og vistum. Ekkert er tilsparað að
hafa alla útgerð sem bczta og undir-
búning sem fullkomnastan. Hér við
situr enn sem komið er.
Ellistyrks frumvarp er nú fyrir
þinginu í Victoria í Ástralíu. Það fer
fram á að veita £18 árlegan ellistyrk
hverjum þeim sem nær 65 ára aldri, og
í tilfellum, þar sem maður verður fatl-
aður svo hann verður ófær til vinnu, þá
fær hann þennan styrk, þó hann hafi
ekki náð aldurstakmarkinu. Sama er
að segja um þá menn, sem hafa óholla
vinnu. Þeir þurfa ekki að verða 65
ára til þess að öðlast þennan ellistyrk.
Frumvarp þetta fer fram á að ná sam-
an með erfðaskatti öllu því fé sem út-
heimtist til að borga ellistyrkinn.
Allanlínuskipið “Parisian” heflr ný-
lega farið þá fljótustu ferð yfir Atlants-
hafið, sem nokkru sinni hefir faiin
verið til Montreal eða New York. Skip-
ið fór frá Movell á írlandi til Faure
Point við St. Lawrence-flóann á 5 sól-
arhringum, 10 kl. stundum og 49 mín-
útum. Skip þetta hefir nýlega verið
bætt að ýmsu leyti og nýjar vélar hafa
verið settar í þaö miklu betri en þær,
sem það áður hafði.
Svertingjar í Bandaríkjunum eru
orðnir leiðir á þessum sífeldu henging-
um, sem svertingjar verða fyrir svoað
segja vikulega í sumum suðurfylkjun-
um, mjög oft fyrir að eins imyndaðar
sakir. Nú vilja þeir láta gera lög sem
geri stjórn Bandaríkjanna ábj-rgðar-
fulla fyrir öllum slíkum manndrápum
og ofbeldisverknaði, sem framin er á
þegnum Bandaríkjanna án þess að þeir
sem fyrir slíku vorða, liafi áður verið
dæmdir sekir af dómstólunum um glæpi
þá sem þeim er hegntfyrir.
Frumvarp þetta er á þessa leið :
Hvenær sem nokkur flokkur manna
kerour saman í nokkru ííki eða héraði
í Bandatíhjunum, með þeim tilgangi
að taka af lífi nokkra persónu, sem hef-
ir verið sökuð um glæipi, án þess að sá
glæpur hafi verið sahnaður á löglegan
hátt fyrir dómstólum Bandaríkjanna,
eða sem fremja nokkurn glæpsamlegan
verknað, svo sem að hengja (linch),
brenna, skera, skaða eða á ólögleg-
an hátt taka af lífi nokkurn þann sem
sakborinn hefir verið, þá skal slíkur
verknaður teljast glæpur móti Banda-
ríkjastjórninni, og hver sem hefir ver-
ið frumkvöðull að, eða verið nálægur
og hjálpað til að fremja slíkan glæp, þá
skal sá hafa mál sitt prófað fyrir dóm-
stólum Bandaríkjanna, og ef sá hinn
sami reynist sekur, skal honum hegnt
með Iífláti. Og það er enn fremur á-
kveðið, að stjórn Bandarikjanna skuli
hafa rétt til þess að skerast í leikinn í
öllum ríkjum og héruðum Bandaríkj-
anna, þar sem menn safnast saman til
þess að hengja nokkurn marn. Hver
sem hótar, eða á annan hátt hræðir eða
ógnar nokkru vitni, sem hefir verið
stefnt tii þess að bera vitni í nokkru
hengingarmáli, skal, ef hann verður
sannur að sök, sektast um $1000, eða
dæmast í 8 ára fangelsi, eða hvor-
tveggja.
Brezka stjórnin hefir pantað 14
milíónir rifflakulur frá skotfærafélagi i
Birmingham á Englandi. Þær verða
sendar tafarlaust til Öuður-Afriku.
Allmikið uppþot er á ýmsum stöð-
um á Rússlandi yfir því, að mikill
fjöldi af ómentuðum verkalið hefir feng
ið þá grillu, að heimsendir sé í nánd.
Þeir sem vinna í verkstæðum í borgun-
um yfirgefa vinnu sina i stórhópum og
flytja sig út á landsbygðina til þess að
búa sig þar undir dauðann. Svo mikil
brögð eru að þessu, að vinnuveitendur
hafa orðið að leita hjálpar hjá lögregl-
unni til þess að halda mönnum við
vinnu, svo að þeir þyrftu ekki að loka
verkstæðum sínum og eyðileggja með
því atvinnuveg sinn og þessara mann-
ræfla.
Dewe.y admiral hefir í samtali við
fréttaritara New York World, í Naples,
sagt skoðun sína á stríði Bandamanna
við Fihppeyjabúa. Hann álíturaðbar-
daginn við Canila hafi gert útum styrj
öldina og að síðan hafi alt gengið
Bandamönnnm í vil. Hann segir enn
fremur: "Ég hefi Filippseyjamálið nú
meir i huga mínum en nokkur annar
Bandamaður, vegna þess að ég er ná-
kvæmlega kunnugur eyjabúum. og þeir
vita að ég er þeim vinveittur, því síð-
asta uppreist þeirra er afleiðing af
stjórnleysi þvi sem svo lengi hefia rikt
þar í eyjunum. En uppreistarmenn
verða að sætta sig við að hlýða lögum,
þó þeir hafi vanist hirðuleysi fram að
þessum tíma. Eg trúi þvi samt sem
áður, að Filippseyjamálið verði bráðlega
leitt til lykta. Filipseyjamenn eru hæf
ir til að stjórna sér sjálfir. Þeir hafa
alla hæfileika til þess. Það er að eins
tíma spursmál. En eina ráðið til þess
að leiða uppreistina til lvkta og koma
á friði í eyjunum, er að veita íbóum
þeirra sjálfstjóin. Það mundi verða
fullkominn gerðardómur í mörgum
þrætumálum og mundi gera Filipseyja-
menn ánægða. Þeir fengju þá það sem
þeir álíta að þeir eici heimtingu á að fá
og sem þeir eru verðugir að fá.
Eg hefi aldrei haldið með ofbeldi
gagnvart Filippseyjamönnum. Eyjarn-
ar eru á þessari stundu í ófriði og hafn-
ir þeirra lokaðar af herskipum Banda-
nianne. Það ætti að binda enda á
þetta ástand. Ég vildi að eyjarbú-
um yrði fyrst veitt sjálfstjórn og síðan
mætti svo tala um innlimun þeirra í
Bamlarikin. Þetta er mín skoðun, Of-
beldi ætti að aftakast tafarlaust, að
raínu áiiti. Þá er sjálfstjórn eyjabúa
sú réttlátasta og viturlegasta aðferð til
að binda enda á ófriðinn”.
Mr. Wilson, ritari akuryrkjumála-
deildarinnar i Washington, hefir verið
að gera áætlun um þessa árs uppskeru.
Telst honum svo til, að það verði 100
milíónum hush. minna hveiti í ár i
Bandaríkjunum, en i fyrra. Þá fram-
leiddu þau 675 milíónir bush. En á
hinn bóginn heldur Wilson því fram að
mais uppskeran verði miklu meiri nú
en þá. í fyrra var hún als 1600 milión-
ir bush., en nú verði hún 1300 milíónir
bush. aðeins í 4 ríkjum : Kansas, Ne-
braska, Iowa oglllinois.
Fréttir frá Vancouver segja, að það
eigi að lengja White Pass & Yukon-
brautina frá Bennets til White HOrSe
Rapids. Vegalengdin er 98 mílur. Er
búist við, að braut þessi verði fullgerð
innau 8 mánaða frá þessum tfraa, og
að 1800 manna hafi vinnn við að bygga
hana.
Bandaríkja hermenn á Cuba hafa
drepið nokkra Cubamenn þar, í stað
þess að borga þeim herpjónustukaup.
22. þ. m. átti að borga Cubahermönn-
um af Bandaríkjafé, og 5000 eyjar-
skeggjar komu til að krefjast borgunar
en að eins 580 þeirra voru á borgunar-
listanum. Þetta gramdist hinum og
létu þeir svo ófriðlega að Bandamenn
skutu á þá, drápu 5, en særðu 13.
Tveir Finnar eru hér í landi í þeim
erindagerðum að velja nýlendusvæði
fyrir nokkur þúsund Finna, sem búist
er við að flytji hingað á næsta sumri.
Hafa þeir Jhelzt augastað á Alberta eða
British Columbia, og ætla að skoða þau
fylki nákvæmlega áður en þeir snúa
heim aftur.
Otis herstjóri hefir sett i hreyfingu
á Filipj seyjunum lög, sem banna inn-
flutning Kínverja i eyjarnar. Þau eru
sniðin eftir lögum Bandaríkjanna um
sama efni.
Hundur í Dawson City færði hvolp-
um sínum mannshönd til að eta. Haid-
ið er að hún muni vera af Birt Scott, er
druknaði þar í ánni nýlega. Scott átti
verðmikla námalóð á Bonanza-læknum,
og hafa skyldmenui hans lofað $1000
hverjum þeim sem findi líkið.
Hermálaritari Bandaríkjanna í Was-
hington segist ætla að senda 20 her-
sveitir til Filippseyjanna svo snemma,
að þær verði komnar þangað fyrir jól.
Forsetinn hefir ákveðið að senda þang-
að nægan liðsafla til þess að binda
skjótan enda á ófriðinn. ef annars sé
mögulegt að gera það. Um leið er þess
getið, að uppreistarmenn láti hægtund
an siga þar eystra og að engin sönnun
sé fyrir því að Bandamenn verði færir
um að bæla eyjarskeggja á næstu 2 ár-
um, að minsta kosti.
Maður fór nýlega frá London á
Englandi til Dawson City á l7 dögum.
Er þetta sú fljótasta ferð sem enn þá
hefir verið farin milli þessara staða.
Frá Denver, Colorado, er sagt að
hin svonefndu “Armyormor” séu orðn-
ir'svo áleitnir, að þeir fylli sum bænda-
húsin svo að fólkið nej-ðist til að flýja
úr þeim. Þessi pæst hefir aldrei fyr
orðið svo skæð og nú i sumar. Sumir
bændur vörðust þeim lengi með því að
sópa þeim íhrúgum af veggjum og
gólfum í húsum sínum. En það fór
svo að þeir entust ekki til að halda
húsum sinum hreinum og hafa nú orð-
ið að yfirgefa þau. Nú eru þeir að
svæla maðkana burtu með brennisteini
og Þykir líkiegt að það ráð dugi.
Indverska pestin (Bubonic Plague)
er komin til Rússlands í Evrópu. 20
menn hafa dáið í þorpinu Kolobohoffha
í ^suðaustur Rússlandi. Evrópu-stór-
veldin eru tekin til að gera alvarlegar
ráðstafanir til þess að sporna við þvi,
að þessi hættulega veiki nái að útbreið-
ast í Evrópu.
Til íslenzkra kjósenda.
Ritstjóri HeimskrÍBgiu,
Winnipeg, Man.
r
Herra:—Eg hefl frétt að sú saga
sé borin út meðal Í3lenzkra kjósenda
í Gimlikjördæmi, að Conservátivi
flokknrinn ætli sér, ef hann kemsttil
valda hér í fylkinu við næstu kosn-
ingar, að svifta atkvæðisrétti alla þá
útlendinga sem ekki geta lesið ensku.
r
Eg álít sanngjarnt gagnvart hin-
um íslenzku borgurum sem búa í
Gimlikjördæmi og annarstaðar hér j
fylkinu, að ég riti yður þetta bréf og
segi hreinskilnislega álit mitt og fyr-
irætlan 1 þessu máli, sem er á þessa
leið.
Það er ekkert atriði í stefnuskrá
Conservativa, sem gengur í þá átt
sem ofangreind frétt talar um, eins
og hver og einn getur sannfærst um
ef hann les stefnuskrána, sem þegar
hefii verið prentuð í blöðunum. Þessi
frétt er ef til vill þannig til orðin, að
ég hefi sagt á ýmsum fundum sem
ég hefl haldið, að ég sé persónulega
sterklega meðmæltur því, að atkvæð-
isréttur þeirra Galiciumanna og
Doukhobors, sem nýlega hafa flutt til
jessa lands, sé bundinn einhverju
mentaskilyrði. Og vissulega mun ég,
ef ég verð stjórnarfonnaður hér ;
fylkinu, nota öll mín áhrif til þessað
fá grein um þetta efni setta inn í
kosningalög þau,sein flokkurinn hef-
ir lofað að bera fram á fyrsta þingi
eftir að hann kemst til valda.
Þessi breyting heflr anðvitað
engin áhrif á nokkurn þann, sem nú
þegar hefir öðlast atkvæðisrctt, og er
á engan hátt beint að íslendingum,
Frökkum, Þjóðverjum, Svíum, Dön-
um eða Norðmönnum, eða nokkrum
öðrum mönnum sem koma frá þeim
löndum, sem hafa og skilja ábyrgðar-
fulla þingbundna stjórn. Þetta á-
kvæði miðar að eins að því, að úti-
loka stórhópa af slavneskum mönn-
um, sem hingað hafa komið á síðustu
árum og sem vegna fjölda þeirra, eru
orðnir hættulegir fyrir vorar frjálsu
þjóðfélagsstofnanir (free Institutions
of the Country), með því að ákveða,
að þeir fái ekki atkvæðisrétt þar til
þeir[skilja enska tungu nægil.til þess,
að geta lesið stjórnarskrá vora á því
máli. Þetta tryggir hagsmuni vora
um stundarsakir að minsta kosti, því
þegar þeir eru búnir að læra nóg í
ensku til þess að geta uppfylt þetta
skilyrði, þá hijóta þeir að hafa búið
hér í landi í nokkur ár, og hafa að
líkindum á þeim tíma fengið nokkra
hugmynd um þýðingu frjálsra þjóð-
félagsstofnana og um þingbundna
stjórn.
Ég óska að þér vilduð prenta
þetta bréf í blaði yðar, því mér er
ant um að skoðun mín og tilgangur
sé rétt skilinn af öllum og sérstaklega
at þeim sem búa í íslenzku bygðun-
um í Gimlikjördæmi, þar sem sú
saga sem ég hefi nefnt hefir verið út-
breidd af andstæðingum vorum.
Eg bið velvirðingar á því, að
taka svo mikið rúm upp í blaði yðar
og er
yðar einlægur
Hugh J. Macdonald.
* * * * * *
* * *
Bréf það sem hér að framan er
prentað, þarf í rauninni engra skýr-
inga við. Eins og það ber með sér
og eins og sjá má á illkvitnisgrein-
inni í síðasta Lögb. (“Vér og útlend-
i..garnir”), þá hafa liberölu leiðtog-
arnir íslenzku gripið það örþrifaráð,
að útbreiða meðal íslendinga þá lyga-
sögu, að Conservativiílokkurinn ætli
að svifta alla útlendinga atkvæðis-
rétti, sem ekki lesa og skilja enska
tungu. Og þeir hafa enda verið svo
óskammfeilnir, að segja að þetta sé í
stefnuskrá Conservativa. En auðvit-
að eru þetta tilhæfulaus ósannindi,
eins og hver maður getur sannfærst
um með því að lesa stefnuskrána.
í þessu bréfl tekur Mr. Macdon-
ald það skýrt og skorinort fram, hver
sé hans persónulega skoðun á þessu
máli, og hverju hann vilji fá til leið-
ar komið í því sambandi, ef hann nái
völdum. Ilann tekur það skýrt og
skorinort fram, að með þessu sé að-
eins átt við menn af slavneskum þjóð-
flokkum (Galiciumenn og Doukho-
bors o. fl.), af því að þetta fólk heflr
aldrei lifað undir frjálsu fyrirkomu-
lagi eða þingbundinni stjórn og vita
því ekki hvað slíkt þýðir. Af slík-
um skríl er allri þjóðfólagsskipun
vorri hin mesta hætta búin. Þessir
menn hafa enga eða mjög ófullkomna
hugmynd um frjáls lög eða siðierði,
eins og þegar heflr sýnt sig, þar sem
t.d. í vetur sem leið einn manna þess
ara seldi öðrum manni konuna sína,
hér í Wpg, og af því að konan vildi
ekki láta kasta sér mann frá manni
og neitaði að fara til kaupandans, þá
klagaði hann hér fyrir lögreglurétti,
eins og hann hefði lögmætt mái að
flytja, þegar í sannleika báðir menn-
irnir voru sekir um alvarlegan glæp.
Þessir menn höfðu auðsjáanlega enga
hugmynd um siðferði eða mannrétt-
indi. Það virðist því ekki ranglátt,
þótt einhver takmörk séu sett við þvi
að veita slíkum mönnum rétt til að
taka þátt í stjórnmálum landsins, þar
til þeir hafa öðlast meiri og betri
þekkingu. Allir vita að Indíánar
hafa ekki atkvæðisrétt hér í landi,
fyr en þeir hafa fullnægt vissum
þekkingarskilyrðum og sýnt sig hæfa
til að taka þátt í landsmálum.
Hinsvegar er það kunnugt um
heim allan, að Skandínavisku þjóð-
irnar og íslendingar hafa um marg-
ar kynslóðir alist upp undir þing-
bundnu stjórnarfyrirkomulagi og
þessvegna er engin ástæða til að setja
þeim nein slík skilvrði,einsog hinum,
sem aldrei hafa þekt neitt slíkt og
sem þessutan eru á svo lágu siðferðis-
stigi, að það er fyrir náð yfirvald-
anna að þeir eru látnir ganga lausir.
Islendingar þurfa því alls ekki
að óttast þessa flugu. Hún er bara
vanskðpuð eiturnaðra frá lygafakto-
ríinu á fjósloftinu á Elgin Ave.
Ritstj.
TINDASTÓLL, ALTA., 21. ÁGÚST’99.
Tíðarfar svo votviðrasamt, að elztu
landnemar hér muna ekki aðrar eins
rigningar. Allar engjar eru yfirflotnar
með vatni og öll gömul tjarnarstæði,
sem verið hafa að undanförnu ágæt-
is engjar, eru nú stórar tjarnir, sem
ekki hafa verið þar áður. En nú er
þar stararengi og stendur að eins brodd
urinn lítið eitt upp úr vatninu. Harð-
velli er ágætlega sprottið. Heyskapur
gongur seint. Menn eru altaf að von-
ast eftir þurki. en hann er ekki komin
enn, og útlit fyrir meira regn.
Innflutningur í þessa íslenzku bj-gð
hefir verið með mesta móti þetta sum-
ar, þó ekki nema tvær fslenzar fjöl-
skyldur. Nú nýlega komu sex karl-
menn frá Nebraska, sem allir tóku
hér lönd inn í miðri bygð, og 4 eða 5
Skotar og Englendingar er settust að
fram með Red Deer ánni.
Af löndum er það helzt að segja, að
þeir héldu 2. A gúst hátíðlegann, sem
Islendingadag, en ég kom þar ekki, en
hej-rt hefi ég sagt að hátíðarhaldið hafi
verið með þvi bezta sem nokkru sinni
hefir sést hér í bygð.
Framfarir mega það teljast að laná
ar i suður- og vesturparti bygðarinnar
hafa komið á fót hlutafélagi með eitt-
hvað á ellefta hundrað dollara höfuð-
stól, til að kaupa út bæði smjörgerðar-
og ostagerðarverkstæðin, sem þeir herr
ar áttu. H. Jónasson (annað óstagerð-
arverkstæði er áttu) Benediktson Bros,
og koma því undir umsjón Dominion-
stjórnarinnar. Byrjaði stjórnin að láta
vinna á smjörgerðarverkstæði H. Jon-
sons, að mig minnir, 8. Júlí. Mest
smjör. sem smjörgerðarmaðurinn hefir
búið til á einni viku, eru 1092 pund.
En ekki veit ég fyrir víst frá hvað
mörgum bændum smjör þetta var; lík-
lega um 20 bændum. Smjörgerðar-
maður þessí, herra D. Morkeberg, er
danskur að ætt og útlærður smjör- og
ostagerðarmaður- Hefir veriðlengi á
ýmsum stöðum hér i landi; er hið mesta
lipurmenni, og þykir honum mikii
mjólkhjájafn fáum bændum, og alt
segir hanD gangi vel. Hann er eins cg
allir aðrir verkamenn stjórnarinnar á
smjörgerðarverkstæðum með fram Cal-
gary < g Edmonton-brautinni agent
fyrir The De Laval Separator Co. í
New York. Telja þeir mönnum trú
um, að þessar skilvindur séu þær beztu
sem hægt sé að fá, og No. 1 selja þeir
á rúma $100. Hann er nú búinn að
selja 3 skilvindur til landa, og nú rétt
nýlega flutti hann 5 skilvindur heim til
sin. sem hann segist hafa sölu fjrir.
J. B.
é
é
m
é
é
é
é
é
Betri og stórkostlegri en áður.
Verkamannadagurinn 1899!
Mánudagmn 4. September nœstkomandi.
s
SUenitniiiriiar fai-a fram í
YNINGAR
G
ARDINUM
í sambandi við •‘Jockey Club” samkomuna.
Liíándi skáktafl, Gengið á vír, Trapeze-Leikfimi.
nrn PlflDI E hjólreiðakappi Canada, sýnir list sýna
ULUi nlUULL, á hjóli í garðinum (riding against time).
Skrudgangan byrjar kl. io ardegis.
Inngangur í gaiðinn 25c.; börn innan 14 ára lOc
Aðgangur að Grand Stand 25c fyrir karlmenn, konur og börn frítt.
Music og Dans. Komid og skemtid ykkur a Labor Day.
R. Underwood,
Formaður.
Wm. Smaii,
Sec'y-Manager.