Heimskringla - 07.09.1899, Blaðsíða 1

Heimskringla - 07.09.1899, Blaðsíða 1
XIII. ÁR NR. 48 Meiri peninga þarf Heimskringla að fá nú strax. Þessi árg. blaðsins er bráðum á enda liðinn, og hafði átt að borgast fyrir fram. En margir eiga enn þá ógold- ið andvirði blaðsins. Vér mælumst til þess, að allir þeir sem enn þá hafa ekki borgað, geri það nú fyrir lok þessa mánaðar. Frjettir. Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. William J. Bryan, sá er síðast sótti um forsetaembættið í Bandarikj- unum, en náði ekki kosningu, vegna stefnu hans í silfurmálinu, sagði ný- lega í ræðu : “Mér virðist útlitið um sigur De- mokrataflokksins við næstu kosningar vera svo góðar, að þær hafa aldrei áður verið betri. Vér erum sameinaðir og öflugri að því er snertir hin ýmsu flokks mál, sem rædd voru í kosningunum 1896 og í uýrri málefnum flokksins, erum vér stööugt að eflast. Chicago stefnuskráin verður eflaust samþvkt breytingarlaust á næsta árs flokksfundi, og mér er næst að halda að enginn mótspyrna komi fram gagn- vart henni á fundinum. Tvö stærstu af hinum nýrri málefnum, sem eru á dagskrá þjóðarinnar, er fyrst: einveldi, annað, Filippseyjamálið. Það hefir verið stungið upp á mörg- um meðulum til þess að eyðileggja ein- okunarfélögin. Einna aðgengflegast þeirra allra virðist mér vera það, að skylda hvert slíkt félag til ad útvega leyfi frá sambandsstjórninní til þess að mega hafa starf3við sitt utan takmarka þess ríkia, sem það er löggilt í. Það má gera slík lög svo öflug, að þau kreisti vatn út úr kletti og fyrirb.yggi samtök félagaí sömu atvinnugrein. Þessi þjóð verður að velja um lýð- valdsstjó.-n eða keisarastjórn. Það er okki hsegt að verja keisarastjórnar- stefnu með nokkru móti. Frá hags- munalegu sjónarmiði skoðað mundi hún þýða aukin útgjöld fyrir alþýðu, og hagnað að eins fyrir anðmennina, sem mundu stofna félagsskap til þess að vinna að framförum Filippseyjanna. Ekki heldur getur það orðið varið á trúarlegum grundvelli. Harðstjórn á Filippseyjunum er ekki samsvai'andi lýðstjórn í Bandaríkjunum. Þessi þjóð getur ekki staðist. ef helmingur borgar- anna er frjáls, en hinn helmingurinn ó- frjáls. Fréttaskuldir blaða. Þetta spurs- mál hefir verið fyrir enskum dómstól' um um nokkurn undanfarin tíina. — Spursmálið hefir verið um það, hvort það væri löglegt fyrir eitt blað að prenta upp úr öðru blaði útlendar frétt ir eða eftirtektaverðar ræður, sem það blað hefir borgað fyrir. Nú hefir einn af Englands dómurnm ákveðið að slík endurprentun sé ólögleg. Drottningin í Kina gerði út sendi- menn til þess að reyna aðkomaá sam- þyktum meðal fólksins i hinúm ýmsu fylkjum ríkisins, að henni verði fram- vegis veitt launaviðbót svo nemi 1J milíón taels á ári. En fólkið neitaði. Þýzkur maður að nafni Schinnber- ger, ferðaðist nýlega yfir þvera Síberiu og reið á úlföldum um 1000 milur af leiðinni. Hann lét þá skoðun í ljósi að Síberíubrautin mundi, þegar hún Væri fullgerð, verða meira til hagnaðar Bretaveldi. en Rússlandi, og sagði að S J A I Ð ! Til þess að selja alt sem enn er óselx af okkar mikiu byrgðum af Muselin Rluggatjöldum, þá seljum við nú alt sem enn er óselt af þeim, fyrir að eins helming vanaverðs. Allar aðrar vörur seldar *neð samsvarandi atslætti $3.00 gardínur fyrir $1.50. $1.50 gaidínur fyrir 75 c. 574 Main St'\ Telefón 1176 þá mætti búast við þjóðlegum stórtið- indum, þegar braut sú væri fullgerð. Eldur mikill varð í Yokohama 1 Ja- pan að kveldi þess 12. f. m. Heil ferh. mila af þéttbygðasta parti borgarinnar brann til ösku. Skaðinn er 86,000,000. 16 manna létu þar lífið. Eftir brunann tóku menn sig saman og börðu og mis- þyrmdu manni þeim sem eldurinn kviknaði fyrst hjá, og varð það honum að bana. Stórgjafir í peningum streyma nú til þeirra, sem fyrir skaða urðu, og þykir líklegt að hið brunna svæði verði fljótlega bygt upp aftur. Stórar koparnámur hafa fundist Canada megin landamæranna og ná frá White Horse Rapids í Yukon-ánni alla leið að Dalton-veginum- Koparbelti þetta er yfir 50 mílur ’á lengd, frá 38 til 53 pr. ct., það erhreinn kopar og svoer mikið af honum þarna að hann virðist vera óþrjótandi. 4000 ekrur hafa verið mældar út í lóðir. Á einum stað ijast 150,000 tons af kopar, sem er $60 virði hvert con. í þessu belti er einnig tals- vertafgulli og silfri, Námur þessar verða unnar með rafmagnsvélum. Blöðin á Þýzkalandi ráða Kruger gamla til að gera samninga við Eng- lendinga, og koma þannig í veg fyrir stríð í Suður-Afríku. McKinley forseti hefir sent ávarp til Cubamanna, og segir það skyldu Bandaríkjanna að hjálpa þeim til að koma þingbundinni og frjálsri sjálf- stjórn á hjá sér á Cuba. Hann kveðst hafa sett hæfa menn af þeirra eigin þjóðflokki til þess að taka manntal á eyjunni, og biður eyjarbúr að veita mönnum þeim alla þá hjálp og upplýs- ingar, sem nauðsynlegar eru til þess að verk þeirra geti orðið sem fullkomnast og bezt af hendi leyst. Vinnulausir verkamenn í Póllandi láta ófriðlega; brjóta og brecna verk- smiðjur og verzlunarhús. Rvissastjórn hefir sent út herlið og látið handtaka 600 af þessum óeirðarseggjum. Hermálaritari Bandaríkjanna Root hefir skipað svo fyrir, aðallar tilraur ir með skotvopn og sprengiefni skuli fram vegis gerðar leynilega, svo að Evrópu- þjóðirnar fengi enga vitneskju um þessi hernaðarfæri Bandarikjanna. Mr.Root var nýlega að Sandy Hook, til þess að vera þar við tilraunir með nýtt sprengi efni, sem nefnt er “Theorite”, og þar gerðu hann þessa skipun sína um þess ar leynilegu tilraunir. Maður að nafni Bergeron hefir gert opinbera kvörtún um það að hann hafi verið beðinn að borga $300 til þess að ná i stöðu í lögregluliðinu í Montreal. Hann hafði sent' beiðni um að gerast lögregluþjónn og var vísað til manns, sem sagði að hann skyldi sjá hvað hægt væri að gera fyrir hann' og sagði um leið: ''Þú verður anðvitað að vigta 300pund. Við segjum ekki að þú verð- ir að borga $300. Við köllurn það að vigta 300 pund”. Bergeron tók $300 að láni og setti þá í Vnle Marie bankann, til þess að geyma þá þar þangað til hann fengi stöðuna og þyrfti að vigta 300 pund. Fáum dögum síðar varð bankinn gjaldþrota. Bergerori tapar peningunum og fær því ekki stöðuna. —Svona hafa þeir það i Montreal. Nú er lögreglustjórnin á Frakk- landi tekin upp á að leita á hverjum manni, sem kemur til þess að hlusta á Dreyfus-prófið í Rennes. Er þetta gert i tilefni af því, að ýms hótunarbréf hafa borizt lögreglunni um að skjóta Droyfus og Labori lögmann bans, og ýmsa aðra, sem vinna fyrir hinn ákærða. Maður að nafni Trevithich, frá Cai- ro á Egyptalandi, er nú að ferðast um Canada. Hann kom hingað til að fræð ast um járnbrautagerð og allan útbún- að hér því viðvikjandi. Ætlar hann að koma sama skipulagi á brautagerð á Egyptalandi eftir því sem hér tíðkast. Er auðséð af þessu, að hinn mentaði heimur hefir Jmikið álit á járnbrauta fyrirkomulaginu í Canada. Maður dó úr hixta í NeW Yorkrík- inu á mánudaginn. Hann fékk hixta á sunnadaginn, sem læknar gátu með engu móti stöðvað. Eftir rúman sólar hring dó maðurinn af þreytu. Kona O' 3 börn mistu lífið í hús- bruna nálægt Letellier hér í fylkinuj29. f. m. Núnýskeð er horfinn W. J. S. Gor- don, sem hafði á hendi að telja peninga í Molson-bankanum í MontreaL Hann er ákærður fyrir að hafa falsað banka- nótur og dregið $3,900 út úr sparisjóðs- deild bankans, sem Bnndaríkjam. átti. Vinir og vandamenn Gordons hafa boð- isc eð jaina þessa upphæð við bankann, en yfirmenn bankaris neita, og er hans nú leitað alstaðar. Einn af þeim fáu. Það er ekki á hverju strái, að menn hitta fyrir presta með heil- hrig'ðri skynsemi eða nægilegri hrein- skilni til að segja hispurslaust sann- færing sína á trúmálum. En svona maður heflr þö nýlega komið fram í hænum St. Amathre í Quhecfylki. Það er ungur prestur Grath að nafni. Hann sagði það skýlaust í einni stól- ræðu sinni, að hiblían væri ekki inn- blásin og að engum manni hefði nokkurntíma verið veitt sú gáfa að vera óskeikull. Hann kvað söguna um Adam og Evu og Jónas og hval- inn vera heilaspuna og ekki byggj- ast á nokkrum sanninda grundvelli. Bihlían væri að eins sýnishorn af hókmentum Gyðinga og að sama skapi innblásin og rit þeirra Shake- speares og Brownings. Og að eins í Ijósi þessara sanninda yrði maður að skilja ritninguna. Ferð út á vatn. Um 30 leiðandi menn hér í bæn- um ferðuðust nýlega í einum nóp norður á Winnipegvatn og komu við á ýmsum stöðum meðfram vatninu beggja megin. Þeir eru nú kommr heim aftur og láta vel yflr ferðinni. Eftir að hafa lesið skýrslu þeirra um þessa ferð, kemst maður ósjálfrátt að þeirri niðurstöðu, að þeir hafl áður en þeir fóru að heiman haft mjög óljósa hugmynd um landið í kring um vatn- ið eða atvinnuvegi þá sem reknir eru þar nyrðra. Ferðamennirnir komu fyrst við f Fort Alexander, austan- megin vatnsins, og segja þeir að þar sé gnægð af góðu timhri og gott hú- skaparland, að þar muni rísa upp ýmiskonar iðnaðarstofnanir strax og búið sé að gera svo við strengina í Rauðá, að skipaferðir hingað til bæj- arins, geti orðið greiðari en nú. Næst héldu þeir norður til Grand Rapids, en komu við á ýmsum stöðum þar á milli. Allve) er iátið af landinu og atvinnuvegum þar nyrðra og af auð- æfunum sem þar séu, ef svæði þessu væri nokkur veruleg rækt sýnd, og þykir ferðamönnunum það leitt, að Winnipegbúar skuli ekki hafa geflð því meiri gaum. Fiskifólögin þar senda út úr landinu árlega um 3 milíónir punda af fiski, en það eru 100 járnbrautarvagnhlöss. Þessutan er allur sá fiskur sem seldur er á heimamarkaðinum, og nemur það afarmikilli upphæð. Það þykir þéim mesta ómynd að vatnið skuli ekki hafa verið mælt og vitar og bryggj- ur gerðar víða meðfram því, annar- staðar en í Gimlisveit, sem þeir segja að bátar eigi sjaldan erindi til. Þetta þurfi strax að brýna sterklega fyrir stjórninni. Síðast í skýrslunni er það tekið framjað nauðsynlegt sé að mynda strax öfluga nefnd til að halda þessum málum stöðugt vakandi hjá þingi og þjóð : viðgerð á strengjun- um í Rauðá, mæling Winnipegvatns, bvgging vita og bryggja, og hafn- bætur meðfram vatninu. Þetta séu einhver hin mestu nauðsynjamál fyr- ir Manitobafylki. Skýrsla þessi er að því leyti góð, að hún fer fram á að gerðar séu um- bætur á vatnavegum hér í fylkinu, sem menn hafa fyrir löngu séð og játað að væru nauðsvnlegar og til hinna mestu hagsbóta fyrir fylkiðog einkum fyrir Winnipegbúa og alla þá sem búa meðfram Rauðá og Winni- pegvatni. En manni verður ósjálf- rátt að hugsa, að þessir ferðamenn hafl séð ofsjónum yfir því sem gert hefir verið í Gimlisveit að bryggju og vitasmíði, og óþarfi var það af þeim að fara að geta þess sérstaklega að skip þau sem um vatnið fara, hefðu þangað sjaldan erindi Það var skaði að enginr. dugandi íslend- ingur var í þessum ferðamannahóp ; því hefði hann verið þar, þá heíði hann getað komið í veg fyrir það, að Gimlibygð væri lítilsvirt með ástæðu- lausu slúðri, eins og gert heflr verið með þess". Og þótt vér viljum eng- an vegin halda því fram, að þetta hafi þau áhrif að tefja fyrir þeim um- bótum í nýlendunni, sem væntanlegt er að verði gerðar af almanna fé, þi er þó svo mikið víst, að slílct miðar ekki til þess að hraða sramkvæmd- um. Islendingar í Gimlisveit verða að líta í kringum sig í þessu máli og láta ekki draga úr höndum sér það sem þeir hafa nú þegar full loforð fyrir, svo sem bryggjuna á Gimli. Oss getur greint á í öðrum málum, en vér megum ekki vera tvískiftir þegar um þau mál er að ræða sem geta orðið oss til sameiginlegs hagn- aðar sem þjóðflokks. Þar eigum vér allir að fylgjast að sem einn maður. Frá löndum. SPANISH FORK, UTAH, 1. SEPT 99. Frá fréttaritara Hkr. Herra ritstj. Héðan er yfir höfuð að tala mjög lítið að frétta. Tiðin hefir verið góð í alt sumar. Heilsufar bærilegt. Upp- skeruhorfur í góðu meðallagi. Atvinna og verzlun með bezta móti. Pólitisk- ar hreyfingar mjög litlar enn sem kom- ið er, en vonandi að þær byrji bráðum, og lifnar þá væntanlega í skákinni. Hjá löndum vorum ber litið til tíðinda. Þeim líður öllum bærilega, Þeir héldu íslendingadagshátið að vanda 2. Agúst, og tókst það prýði- lega. Mr. E. C. Christinson var for- seti dagsins og nefndarinnar, og leysti hann þann starfa vel af hendi. Skemt- anir voru miklar og margbreyttar, eins og vanalega gerist við slík tækifæri. Séra R Runólfsson mælti fyrir minni Islands, -E C. Christinson fyrir minni Ameríku, G. E. Bjvrnason fyrir minni Utah, Halldór B. Johnson fyrir minni Islendinga í Utah og E. H. Johnson fyri' minni Vestur-íslendinga, og þótti þeim öllum vel segjast, eins og við var að búast, því flestir þeirra eru orðlagð- ir ræðusnillingar, Ný kvæði voru engin flutt, en mikið var sungið af eld- fjörugura þjóðhátíðarsöngum m. fl., er menn höfðu sér til skemtunar, auk dansins, til kl. 2 nm morguninn, að for- seti sagði samkomunni slitið, og allir skunduðu heim til sín. mikið vel á- nægð:r með skemtanir og bátiðarhald- ið um daginn. Nokkrir landar frá Scofield veittu oss þá ánægju að vera viðstaddir, og tókum vér sérstaklega eftir þessum: Hon. J. P. Johnson, J. P. í Scofield, Þorbjörn Mi.gnússon skósmiður og .Tón Heinson, o. fl. Ræður þær sem haldn- ar voru um daginn, tel ég vist að verði birtar If íslenzku blöðunum áðar en langt um liður. Tilraun til að gera hroðalegt níð- ingsverk hér nýlega verið gerð hér í Zi- on. Maður að nnfni John C. Smith, gamall tukthúslimur, sem verið hefir í fangelsi um 20 ár, 10 ár i Salt Lake City og önnur 10 í Montana, sendi ný- lega 2 kassa fulla af sprengiefni, eld- spitum og fleiru rusli frá Eureka til Salt Lake City, til tveggja manna þar. að nafni O. W. Powers. gamals dómara o annars, sem Dow heitir, og sem er fangavörður við ríkisfangelsið. Eureka er námabær, og kemur þaðan daglega mikið af flutningi. som sendur er í allar á'ttir. Litu kassar þessir út eins og smákassar, sem sendir eru oft frá nám- um til prófs á málmbræðsluhús nálægt Salt LakeCíty, en voru svo útbúnir, aö þeir hefðu bæði drepið mennina, sem þeir voru sendir til, og margafleiri, ef viðstaddir hefðu verið, en til allrar lukku varð þaðekki, því Powers fekk grun um að eitthvað væri bogið við kassa þessa. Þegar hanu var að taka umbúðirnar af kassanu.n, tók hann eftir fáeinnm kornum af púðii, sem slæðst höfðu út um rifu. Skoðaði hann það litið eitt og sendi síðan efiir lög- regluþjóní. Kom það þá upp að Ex- pressfélagið hefði fengið tvo kasia sams konar, sem vigtuðu 5 og 9 pund, ea var ekki búið að skilahinum. Kassar þess ir voru svo settir í vatn í 3 kl. tíma, og síðan opnaðir, kom þá í ljós hve háska- legt var irr ihald þeirra. Smith þes.-ú hefir nú náðst og verið settur i faugelsi, og biður þar laga og dóms Hann hefir samt ekkei t með- gengið eun, en alt bandir til þess að hann sé sekur, því bæði þekti agentinn hann fyrir sama manninn, sem sendi kassana, og svo hafði Smith oft áður heitast við þessa menu: dómarann fyr- ir að hafa dæmt hann. og fangavörðinn fyrir að hafa gætt hans í fangelsinu á meðan hann var þar. Verði þessi sök sönnuð á hendur Sinith, sem lítill efi er á, fær hann aö nýu að g'Sta í fangelsi um 43 ára tíma. TINDASTÓLL, ALTA., 28. ÁGÚST’99 Versta ótíð hefir gengið hér að undanförnu. Stöðugar rigningar og dimmviðri, svo ált er komið á flot í vatni, og brýr eyðilagðar á ám og lækj- úm. Má heita að ekki sé fært yfirferð- ar fyrir menn eða skejnur. Red Deer- áin hefir ver verið alveg ófær, svo ekki var hægt að ná seinasta pósti (21. þ. m.), og er enn mjög óvíst hvenær að yfir hann verður komist. Horfir til stór vandræða með heyskapinn. TJm þetta leyti hafa mena vanalega verið að enda við heyskap, en nú má heita, að enginn maður sé búinn að ná heim strái. Það litla sem náðst hefir saman af heyi, er meir og minna skemt af bleytu. Mnna menn hér ekki eftir öðru eins óþurkasumri. Þó eitthvað stytti upp og þorni um, er ekki hægt að slá, því alt er á kafi í vatni, nema rétt hæsta sléttan, en vanalegar engjar óslá andi vegna vætu. Heiðrikt veður í dag. I gær snjó- aðí á fjöllurn, en nú standa há og tign- arleg, eins og ísjakar upp úr hafinu. J. K. Bodsrit. Suburban Park Railway Company. SÉRSTAKLEGA LÖGGILT AF MAFITOBAÞINGINU 1899. Med $10,000 höfutístol,—10.00 hver hlutur. Forset :— HUGH ARM3TRONG, fiskikaupmaður, Portage La Prairie. V araforseti :—J. G. HARGRAVE, kaupmaður, Winnipeg. Féhirðir :—GEO. LEARY, kornkaupmaður, Winnipeg. Ritari :—SOLOMON McDONALD, rafmagnsfræðingur, Winnipeg. Félagið hefir viðskifti við Bank of Hamilton. Bráðabyrgðar-stjórriarnefnd : T. W. Taylor, Hugh Armstrong, S. McDonald, Gco. Leary, Jos. Lacomte, J. G. Haryrave, C. Chamberlin, W. D. Douglas. Stjórnarnefndin býður hér með almenningi til kaups 4000 tíu dollara hluti í ofangreindu félagi, fyrir $5.00 hvern hlut, og leyfir sér um leið að skýra tilgang félagsins. fyrirkomulag þess og hagnaðarvonir. 1. Að fráskildu brautarlagningarleyfinu, þá hefir félagið einnig ýms önnur mikilsverð einkaleyfi, svo sem til þess að leggja fréttaþræði og málþræði að verzla með eldivið, hreyfiafl ng Ijór, byggja kornblöður og hafa á hendi vatnaflutninga á fólki og vörum. 2. Félagið hefir leyfi til að eiga og stjórna almennum skemtigarði. Og þar eð íbúatalan hér fer svo óðum vaxandí, þá virðist stofnendum félagsins heppilegt að nota þetta leyfi nú strax, og það er til þess að koma.þessu i framkvæmd, að þessi hlutabréf eru nú boðin til kaups fyrir hálfvirði. 3. Félagið hefir leigt 100 ekrur af landi í þorpinu St. Norbert, iim 9 mílur suður frá Winnipeg, á bökkum La Salle og Rauðá. Þetta er með feg- urstu stöðum í fylkinu og er þakið stórum eikar, ask og álmtrjám, alt fram á árbakkana. Þessi staður er að öllu leyti ágætlega lagaður fyrir skeintigarð. 4 Land þetta hefir verið leigt til 30 ára f vrir $100 árlega leigu. Samning- urinn getur orðið endo nýjaður þegar sá.tíml er útrnnninn, með vax- andi rentu eftir verðhækkun landsins. 5. Samningar hafa verið gerðir við N. P. og M. R. járnbrautarfélagið að lækka fargjald frá Winriipeg til St. Norbert, úr 70c. niður í 25c. fyrir báðar leiðir. Aðgangur að garðinum innifalinn í þessu, Af því fær járn- brautarfélagið 15c., en garðfélagið 10c., og er áætlað að félagið hafi af þessu $10.000 árlegar tekjur, því brautirnar muni flytja þangað 100,000 farþegja á ári. 6. Þessar áætlanir eru álitnar sanngjarnar af þeirri ástæðu.að skemtitíma- bilið frá 24. Maf til 24. Sept. er lengra en vanalega gerist i austurfylkj unum, þar sem opinberum skemtigörðum er lokað 1. Sept. En sá máa- uður er arðsamasti mánuðurinn fyrir oss hér. 7. Ferðir verða daglegar, að sunnudögum meðtöldum. Fariðhéðan kl. 8 að morgni og komið aftur kl. 9 ; farið svo aftur kl. 2 e. h. og svo reglu- legar ferðir á hverjnm klukkutíma úr því til kl. 11 að kveldi. Tíðari ferðir þegar þörf gerist. 8. Félagið ætlar að byggja “Water Toboggan Shute” fyrir $6,000. Á slíku vei kfæri græddi félag eitt i Boston á síðastl. ári, $16,427.48. að öllum kostnaði frádregnum. Winnipeg, sem hefir, 1/10 af íbúatölu Boston og er óðum að vaxa, ætti að gefa $5,000 árlegan arð af þessu fyrirtæki. 9. Félagið ætlar einuig að bygt ja smájárnbraut, er hafi llf þuml.úil milli teinanna. Hún á að hafa 10 fólksflutningsvagna sem hver taki 2 menn. Dráttarvelin verður lítil að sama skapi. Þetta verður mlnsta járnbraut í heitni. Hún getur gefið af sér $15 á klukkutíma.' Það er áætlað að hagnaöur við þessa brant verði $2000. I Omaha var hann $30.000 s.l. ár. 10. Einnig er áformað að koraa hér upp “Japanese Maze.” Það er alveg ný o*r áður óþekt skemtun. sem í fyrra var sýnt í Bandaríkjunum og reynd- ist afbragðs gróðafyi irtæki. Þetta kostar um $2000, og eftir fólksfjölda hér, ætti þaö að gefa af sér að mínsta kosti $2000 árlegan arð, 11. Capr. Paul Boyntons síðasta gróðabragð, er að syna vatnsföll. Útbún- aður við það kostar um $3000. Með því má sýna mjög náttúrlega t. d. Mississippi, Rhine, Hudson-ána, St. Laurence-tíjótið o. s. frv. 60 far- þegjar eru látnir lenda á hverjum 4 mínútum. Ágóðinn af þessu í Bost- on á siðastliðnu ári, var $30,000. Hér ætti ágóðinn að verða um $3000 á ári. 12. Önnur einkaleyfi og aðdráttarfæri, svo sem sala 4 vindlum, aldinum o.fl. er ætlast til að gefi af sér alls um $4000 á ári. ÞeHa er álitin nægileg upphæð til að borga öll laun og annan kostnað við garðinn. 13. Ljósagei'ðarstofnun kostar um $1300. 14. Félngið æt ar að verja $4700 til húsabygginga í garðinum. 15. Félagið ætlar einnig að leggja einnar mílu kappreiðabraut, sem, vegna jarðlagsins þar, verður eflaust með beztu brautum í fylkinu. 16. Útgjöld og inntektir verða því, eftir áætlaninni á þessa leið : ÚTGJÖLD. ' INNTEKTIR, “Toboggan Shute”.....$6,000 Smá-járnbraut........ 1,500 “Japanese Maz«”...... 2.000 Vatnasýuingin........ 3 000 Rafmagnljósa-stofnun .. 1,800 Byggingar............ 4,700 Vinnukostnaður........ 4,000 Allur kostnaður.......$22.500 ........................$5,000 ........................ 2,000 ........................ 2,000 .................... ... 3 000 Járnbrautargróði .......10,000 Ymsar tekjur............ 4 000 Tekjur alls.............$26,000 Þetta sýnir hreinan gróða $3,5C0, eða 15% úf innstæðufé, eftir að allur kostnaður er borgaður. Stjórnarnefi din er sannfærð um, að eftir fyrsta árið verði hægt að borya hluthöfuni áilega 50% af stofnfó þeirra. Stjórnarnefndin býður þessvegna að selja almenningi fjögur þúsund $10 hluti fyrir $5 hvern hlut, uppborgaða og álögufrýja. 20% borgist við móttöku hlutabréfanna, en eftirstöðvai nar borgist mánaðarlega með 50c. á mánuðifyrir hvern hlut, þar til hlutirnir eru borgrðir að fullu. Hluthafabækur eru til á sknfítofum þessum : Geo. Leary, Gnin Exchange. Wpeg. J. G. Haksrave, 328 Main St., Wpg. J. Lbcomte, 366 Main St.. Witmipeg. Dixox & Todd, 375 Main St„ Winnipeg. McDonai.d Bros, 463 Main St. Wpeg. Crotty & Cross, 515 Maia St. Wpeg. Wm. Brown & Co., 511 Mah. St.. W, g. Hbimskringla, 547 Main St., Wpeg.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.