Heimskringla - 26.10.1899, Side 1

Heimskringla - 26.10.1899, Side 1
XIV. ÁR NR. 3 Heimskrsngia. WINNIPEGr, MANITOBA 26. OKTÓBER 1899. sH. Opening Sale. Best snidin föt i Canada. Fatnaður vor heflr sérkenni, leika, bæði að sniði og áterð- sem engin annar búðarfatnaður heflr. Efnið sem notað er í hverja spjör, er vandlega valið á beztu klæðaverksmiðjum heimsins. Allur vor fatnaður er tilbúinn af skröddurum, á- gætlega fóðraður og saumaður svo vel, að vér ábyrgjumst að ekki rifni. Sérstaklega lágt verð á öllum vörum á fimtudag, föstudag og laugaidag í þessari viku. Aliur fatnaður hjá okkur er svo vandaður, að hvergi annar- staðargefurslíktaðlíta. Keyn- $1.00 skyrturnar okkar. ! Við höfum þær á 9 mismunandi stærðum. Vér höfum miklar byrgðir af ágætum skófatnaði. Þér faið peninga yðar aftur ef yðar líka ekki vörurnar. Stewart & Hyndman, " 58(> & 588 Hain 8treet- W W W W W W •*<> TWT >»>- W -»<- W W W -»í* W -áf 1 Frjettir. Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. Admírál Dewey hefir lofað að koma til Chicago 15. næsta mánaðar og aft- ur 1. Desember. Nefnd hefir þegar verið kosin til að fagna honum með tveggja daga viðhöfn og veizlum. Það er og mælt að honum muni þá verða gefin borðbúnaður úr skíru gulli. Fertugasta og sjötta herdeildin, frá Massachusetts, á leiðinni til Manila, var kyrsett í Cincinnaty, og 50 her- menn dregnir fyrir herrétt fyrir drykku skap. Við rannsóknina kom það i ljós, að herdeildin var vel útbúinn með Whiskey, og að hún hafði aukið byrgð- ir sínar af því á leiðinni, þar sem það Var fáanlegt. Col. Hegel lét halda strangt próf í málinu og hefna þeim er sekir voru. Skólastjórnin i Hamilton, Ont. , hefir samþykt að opna kveldskóla þar í bænum með byrjun næsta mánaðar, og verða þeir kostaðir af skólasjóði bæjar- ins. Kappsiglingin milli skipanna Col- umbia og Shamrock endaði þannig, að Columbia, skip Bandamanna. vann 3 kappsiglingarnar, en Shamrock, skip Englendinga, enga. Þannig haida Bandamenn enn þá silfurbikar þeim hinum mikla, sem Bretar ,hafa verið að keppa um i síðastl. 48 ár. Bendir þetta til þess að Bandamenn séu bæði betri siglingamenn og skipasmiðir heldr en Bietar. Þó er viðurkent að Sham- rock sé bezta skipið, sem Bretar hafa enn þá sent tíl að keppa um bikarinn. Hermálastjóri Breta hefir gefið sam þykki sitt til þess að þeir 1000 hermenn sem Canada ætlar að senda til Suður- Afríku, skufi mynda eina sérstakaher- deild og hafa sinn eigin canadiska yfir- mann. Col. Otter Jfrá Toronto verður yfirmaður þessarar herdeildar. Oeo. E. ’Tucker & Sons félagið í Hamiiton, Ont., sem búa til hið nafn- fræga T & B reyktóbak, hafa boðist til að lofa,hverjum sinna vinnumanna, er vilja að fara í Transvaal hernaðinn. Félagið lofar að horga þeim 50 cents á dag meðan þeir séu i burtu, og kaupa $1000 lífsábyrgð fyrir þá og borga ið- gjöldin af þeim á meðan mennirnir eru að heiman, og veita þeim svo atvinnu strax og þeir koma heim aftur. General Otis hefir sent til Washing- ton beiðni um að sér verði sendir tafar- laust 20 herlæknar og 30 hjúkrunarkon- ur. Það er og sagt að þegar allir þeir hermenn sem nú hafa verið kallaðir til herþjónustu á Filippeyjunum, séu þangað komnir, þá hafi Bandamenn þar 63,872 hermenn á landi, auk 1500 manna, sem ekki bera vopn. Auk þeSs eru þar 45 skip með 4,997 hermönnum og 1184 sjómönnum. Bóndi nokkur nálægt Minneapolis skaut konu sína og 3 syui og síðast sjálfan sig, í jvikunni sem leið. Oll skotin di ápu samstundis. Engin veit orsök til þessa glæps; en haldið er að maðurinn hafi orðið snögglega brjálað- ur. Mikið er um húsabyggingar í Nel- son, B. C., um þessar mundir, og eru laun múrara þar $6 á dag. Mr. Tarte er orðinn mjög óvinsæll í Ontariofylki. Líking af honum var brend á götunum í Toronto og King- ston í síðustu viku Er það talið hið mesta óvirðingarmerki. sem hægt er að sýna nokkrum stjórnmálamanni i Canada. Elias Foxton frá Bellville skar sig ^MJÖG STÓR Flaniielettes Teppi Hvít og grá að lit 75C. parið. Einnig hvít ullateppi ágæt, 7 pund að þyngd $2.75 > 574 Mttin 8f»*. Telefón 1176. á háls í síðustu viku. Hann var 70 ára gamall og orðinn saddur lífdaga. Mr. Hardy, stjórnarformaðurinn í Ontario, hefir sagt af sér þingmensku og þar með stjórnarformenskunni. I bréfi til kjósenda sinna segir hann að heilsubilun banni sér að standa lengur i opinberri þjónustu, og að hér eftir ætli hann að eyða æfinni i kyrð og næði. Hon. G. W. Ross hefir verið settur stjórnarformaður í stað Mr. Hardy. North Waterloo kjördæmið i Ont. er nú þingmannslaust. Mr. Briet- haupt,Liberal- þingmaðurinn,var dæmd ur úr sætinu fyrir atkvæðakaup og önnur kosningasvik. Bell Telefone-félagið hefir beðið Ottawastjórnina um leyti til að mega hækka yerðið á notkun talþráða félags- ins í Toronto. Félagið heldur því fram að það hafi stórkostlega tapað á tal- þráðunum i þeim bæ, með því verði er það nú selji árleg notkunarleyfi þess. 1895 á tap félagsins að hafa verið$79- 877, eða sem næst $17 á hvern mann, sem kaupir ársleyfi af félaginu til að nota þræðina. En á hinn bóginn er það sannað, að í þessum reikningi hefir félagið talið sér 15% tap í því að þurfa að gera ýmsar breytingar á leiðsln þráðanna um borgina, sem væri það frá dregið, mundi sýna gróða, en ekki tapi. Félagið setur $36,67 fyrir hvert ársleyfi fyrir notkun þráðanna, og vill fá leyfi til aó hækka það. Verðið á neyzluvatni í Toronto hef- ir verið sett niður um helming við það sem það kostaði áður. Þessi verð- lækkun nemur 140,000 dollars á ári. Pappírsgerðar-verksmiðjurnar í Bandarikjunum ihafa gert einokunar- samband og er samanlagður höfuðstóll þeirra $50,000,000. Prentara verkfallinu í Toronto er lokið. Þeir heimtuðu $14 kaup á viku, en sættuðt upp á $13,50 vikukaup. Molsonsbankinn hefir gefið út, skýrslu yfir starfjsitt á síðasta ári, og sýnir hún að bankinn hefir grætt $289,888,l'.2. Það er sem næst 14J pc. á útborgaðann höfuðstól bankans. D.uninionstjórnin hefir gert samn- inga við Demster gufuskipafélagið um að flytja póstbré.f og sendingar milli Canada og Englands á komanda ári. Bóndi nokkur að nafni Gro, nálægt Altona, skaut á séra Ott og syni hans 2 á föstudaginn var. Hélt hann þá vera fugla. Einn feðganna beið bana, en all ir nokkuð særðir. Frá Albany kemur sú frétt, að 20 bókhaldarar, sem unnu við bækur heil- brigðisdeildanna í Michiganríkinu, hafi dáið úr tæringu, sem þeir hafi fengið úr bókunum. Bækurnar voru skoðaðar af læknum, og fanst það þá að þær voru fi llar af''bacilli” þeim er mynda tæringarsýkina. Þykir frétt þessí mjög merkileg að því leyti, að hún sýnir hvernig tæringarveikin berst út meðal fólks. Orsökin til þess að bækurnar höfðu frumagnir þessa sjúkdóms, er haldin sú, að einn af bókhöldurunum sem ritaði í þær hafi Jverið tæringar- veikur, en hann hafði þann sið að bleyta fingurgómana á tungunni þegar hann var að flettahlöðum bókanna. Herfréttir eru helztar þær, að Brezka þingið kom saman í síðustu Viku til að veita stjórninni fé til þess að standast kostnaðinn við stríðið í Suður-Afríku. Það er talið vist að ó- friðurinn muni standa yfir í allan vet- ur, og að kostnaðurinn muni verða um £40.000,000 (nm $200.000.000. Bretar firu önnum kafnir að senda menn og vistir til Transvaal. Um 70 skip eru nú í Jförum. 6 gufuskip eiga að fara daglega fiá Englandi fra 21. þ. m. með menn og herbúnað þar til 70,000 her- menc, verði komnir til Afríku. Það er búist við að það þurfi nokkra mánuði til að koma öllu þessu liði og herbún- aði og vistum suður, því bæði er sjó- ferðin afarlöng og yfir 100 mílur að fara eftir á land er komið, og er nosk- uð af þeirri leið mjög ógreið yfirferðar. Enskir stjórnmálamenn viðurkenna að það sé við raman reip að draga þar sem Búarnir eru, sem með hjálparmönnum sinum frá Orange Free State, hafi um 50,000 vopnfærra manna. General Sir Redvers Buller verður aðalherforingi Breta. Hann hefir lengi dvalið í Afríku og er landi og þjóð þar kunnugri en nokkur annar brezKur herforingi. Er hann sagður mjög óvinveittur Búunum og liklegur lil að lita kné fylgja lcviði í viðureigninni við ] á. Með 70,000 æf?- um hermönnuin að baki sér ætii hann að geta unnið si^ur. Bretar feldu 900 Búa nálægt Glen- co í Afríku á föstudaginn og laugar- daginn og náðu 17 fallbyssum. Gener- al Seymor var særður hættulega i bar- daganum og 10 hershöfðingjar féllu af Bretum og margir aðrir særðust. Alls féllu af Bretum um 250 manns. Dag- inn eftir var annar bardagi háður við Elandslaagte og var sá hinn mannskæð- asti. Fóll þar einn af yfirhershöfðingj- um Búanna og fjöldi annara liðsmanna þeirra. Tölu vert mannfall varð og af Bretum. Náðu Bretar þar miklum hergögnum, svo sem tjöldum, vopnum hestum og fallbyssum ásamt öðrum skotfærum. Er sagt að Búar hafi haft í bardaganum um 11000 manna. Ann- ars eru fréttirnar um mannfallið mjög á reiki og óáreiðanlegar, því þær eru jafnaðarlega sendar áður en hægt er að fá rétta tölu á föllnum á særðum. En á hinn bóginn er það víst að háðir hafa verið tveir stórbardagar og mannfall því orðið töluvert á báðar hliðar. Enda stóð Glenco bardagínn yfir i 8 klukku- stundir, en hinn síðari allan daginn. eða til kl. 6,30 að kveldi. Mr. Borassa, einn af helztu þing- mönnum Lauriers frá Quebecfylki hef- ir sagt af sór þingmensku, út af því að Laurier hetír látið tilleiðast að senda canadiska herdeild til að hjálpa Bretum í Transvaal. Þetta atriði er íjós vott- ur þess, að það eru til ekki all-fáir menn í Qubee-fylki. sem enga löugnn hafa til að láta Canada leggja nokkurn skerf til þess að hjálpa Bietum í viður- eign þeirra við Suður-Afríkubúa, og þessi tilfinning hlýtur að vera allsterk, þar sem hún knýr einn af allra öflug ugustu fylgjendum Lauriers frá Que bec til þess að yfirgefa flokk hans á þinginu. Það er lítill efi á því, að þó þessi herdeildar sending sé höfðsem á- stæða fyrir fráhvarfi Mr. Borassa frá Liberalflokknum, þá ern óefað eínhverj ar aðrar og dýpri til fráhvarfs hans frá flokknum. Má vera að honum finnist Mr, Laurier hafi farist í þessu máli eins og öðrum, að hann hafi breytt i því þvert á mótisínni eigin sannfæringu og ákveðnum loforðum til flokksmanna sinna. Mr. Borossa kveður Laurier hafalýst yfir því að hann væri mót- fillinn því að senda Canada hermenn úr landi burt til þess að taka þátt í þessum ófriði, og að hann hafi látið undan vilja almennings í þessu máli, eins og hann kom fram í blöðunuru. Þykir þetta vera veikleika merki og þess vegna hefir hann nú snúið bakinu víð flokksforingja sínum, Staða Mr. Lauriers er »lt annað en öfundsverð. Blöðin og mennirnir sem fylgdu honum í blindnri trú við síðustu kosningar, eru smátt og smátt við ljós betri þekk ingar á honum og stjórnaraðferð hans, að snúa við honum bakinu. Það er ó- hugsandi að hjá því geti farið að þetta ha^ ill áhrif fyrir Liberalflokkinn við næstu kesningar. Kaft. Dreyfus, sem svo mikið hefir verið talað um í öllum blöðum, hefir nú látið það boð útganga, að h»nn ætli til Egyptalands, til þess að eyða þar æfiuni- Kveðst hann ófús til þess að nafn sitt sé notað af pólitisku flokkun- um á Frakklandi til þess að Vekja ó eirðir. Hann óskar því að franska þjóðin gleymi sér, sem ailra fyrst. I Egyptalandi kveðst hann ætla að stunda iðu sína sem Englendingur og leggja þar að auki alla stund á að menta börn sín. Tvö börn 4 ára gömul, i Godderick, Ont, náðu í eldspítur og kveiktu í gluggatjöldum hússins. Annað slapp en hitt brann til ólífis. Foreldrarnir voru ekki heima. “Sér grefur g. öf þó grafi.” Eftir að hafa lesið athugasemd Mr. H. Halldórssonar. sera kom útíðl.tölu- blaði Hkr., finst mér að þessi orð hér að ofan eiga séistaalega vel við afstöðu hans og aðfarir i Islendingadagsmáli þessarar bygðar. Ég neyðist til að móttnæla atbugnsemdnm hans með fá- um orðum. Það er ekki svo að þessi grein Mr. Halldórssonar sé nokkur at- hugasemd við íréttagreiu Mr. Reykdals. Mr. Halldórsson kemur að eius meö nokkra útúrsnúninga, en meiri hluti greinar hans gengur út á að svívirða húsnefndina og okkur skólakennarana, og þar við bætist, að utumæli hanshvað okkur stiertir eru ósannindi ein. Að því leyti setn máleft ið snei tir mig, þá eru upptök þess þannig : Á skólasamkomu þeirri, er við Mr. Gutt- orrasson héldum 8. Júlí, yar minst á það við okkur skólakennarana, að hald- in yrði samkoma 2. Ágúst og vissi ég ] á ekki annað en það yrði kallaður íslend- ingadagur. Bað húsnefndin mig að halda þar ræðu og gaf ég heldur vilyrði fyrir því. Mr. Halldórsson segir að ég hafi neitaðað tala, nema það væri kall- aður þjóðminningardagur. Þetta er ó- satt. Ég setti ekki neina þvílíka skil- mála, og á nefndin heiðurinn af þvi að koma upp með íslendingadagsuppá- stunguna, svo glósur Mr. Halldórssonar falla sjálfkrafa. Næst ber svo Mr. Halldórsson á móti þvf, að hann hafi boðað fundinn góða til að ræða mál þetta. Ég get borið því vitni, að Mr. Reykdal segir sannleikann í þessu máli. Ég var stadd- ur á Lundar P' O. þegar fundarboðið var ritað, og sagði hann mér þá að hann boðaði þeunan fund í því skyni, að ræða málið á friðsamlegan hátt. Þar að auki stóð í fundarboðinu : ' ‘Áriðandi mál verðnr rætt á fundinum.” Þvínæst kemur aðalmergur greinar- innar, það er að segja framkoma okkar skólakennaranna. Um það farast hon- um orð á þessa leið : ‘‘Auðvitað munu skólakennararnir hafa talað vel og kann ske fleiri. eins og vant er þegar verið er að baktalr einn mann og ekki þarf að gera það formlega e-'a rökstyðja það sem sagt er. Þá er tungan ekki ónýt þeim breisku.”..Þrír skólakennarar komu fram á prógraminu, Mr. A. And- erson. forseti, Miss B. Thorkelsson og ég. Ég viðurkenni það, og svo veit ég að allir sem voru á samkomunni gera (nema ef vera skyldi þessi eini heiðvirði maður, sem Mr. Halldórsson talar um) að það var ekkert það í ávarpi Mr. And- ersons, sem skerti að nokkru mannorð Mr. Halldórssonar eða nokkurs annars Mr. Halldórsson ætti að íhuga betur orð sín, áður en hann ber svona sakar- giftir á sér langtum heiðarlegri mann. Sama er að segja um framkomu Miss Thorkelsons. Hún mintist ekki á Mr. Halldórsson, enda var efnið í kvæði þvi er hún bar fram, ekkert honunr viðkom andi. Hvað mér sjálfum viðvíkur, þá skýrskota ég því óhræddur til allra sem þar voru, hvort ræða mín hafi gengið út á þi ð sem Mr, Halldórsson gefur í skyn, og sama er að segja um efni hertn- ar, sem hann gerir svo illkvitnislega til- gátu um. En hvernig getur hann sagt nokkuð um þetta mál, þar sem hann var ekki á samkomunni ? Hann ma hafa fyrir sir slúður þessa heiðvirðai?) manns ; en ég skal gefa honum tæki- færi, og skora ég nú á Mr. Halldórsson að sanna þessa sakargift á hendur okk- itr kennurunum, ef í honum er nokkur æVleg tilfinning. Mr.Halldórsson má æðrast svo sem hantt vill út. af því, að við skólakennar- arnir skyldum ekki ganga í lið með hon- um, að sverta húsnefndina fyrir íslend ingadagsáformið. Hans eigin ofstæki varð honum að fótakefli. Eftir að hann varð að viðurkenna það á fundinutn, frammi fyrir um 40 manns, að bann hefði þjófkent nefndina fyrir aðgerðir hennar í þessu máli, þá var engin von að nokkur maður, sem hefir nokkra sómatilfinning, vildi ganga í lið með honum. Ekki er smáræði í fangtekist, að þjófkenna 4 heiðursmenn, sem hver maður hér í bygð, nema Mr. Halldóis- sou einn, virðir sem ærlega menn i alla staði. Þetta athæfi hefir steypt Mr. Halldórssyni í djúp fyrirlitningarinnar og er ófyrirsjáanlegt að hann eigi þaðan afturkvæmt. Hver myndi fylgja slík um að málum ? Mary Hill, 10. Okt. 1899. Þ. ÞORVALDSSON. NY VERZLUN. Hr. Júlíus Davíðsson, ungur landi vor sem kom frá Islandi í sumar, er að flytja sig út í íslenzku nýlenduna á vesturströnd Manitobavatns, um 20 mílur norður fi á Westbourne. Hanner bróðir Bjarna bóuda Davíðssonar, þar í nýlendunní. Júlíus ætlar að byrja verzlun þar nyrðra,með því að nýlendu- búum þykir langt að sækja allar nauð synjar sinar til Westbourne. Fer haun með vörur sínar héðan í dag og vonar að geta byrjað verzlun snemma í næstu vikn. Hann óskar eftir viðskiftum ís lendinga þar vestra. Willlaiu Tliornton, ----bakari---- á Notre Dame Ave., býður að selja ís- letidingum ágætt brauð af ýmsum teg- undum, þyngri að vigt eu önnur bæjar- brauð, 22 brauð l'yrir $t 00. — Til hægð- urauka geta íslendingar pantað brauð- in hjá Þorsteini Þorkelssyni, verzlunar- inarini á Ross Ave., sem selur þeim tikket fyrir þau móti peningum. En ég flyt þau heinr til fólks. Wm. Thornton. Lesið það sem hér fer á eftir Það borgar sig. Ég Þorsteinn Þorkelsson, grocer.að 539 Ross Ave., kunugeri hér með ný- lendumönnum það að ég óska eftir að fá keypt 5000 |itiml nf mnijtfri. Év borga fyrir það hæzta marVaðsverð, í vörum og peningum út í hönd. Eins ov nú stendnr er búð min svo full af allskonar nauðsynjavörum, að ég hefi ekki húsrúm fyrir jólavörur þær sein ég hefi pantað ausr.an frá Toronto og Montreal, og neyðist ég því til að selja allar þær vörur sem ég hefi nú i búð minni. með lítið meira en innkaups- verði, fyrir peninga út í hönd. , Þrtta boð stendur tíl mánaðarloka. Ég mæl- ist til þess að bændiit úr nýlendunum komi viðí búð ininni og sannfæri sjálfa sig um það, að ég hefi allar þær vöru- tegundir, sem þeir þarfnast, svo sem ofnpípur með innkaupsverði, þjalir, skóflur, skjólur, katla, luktir. og vasa- hnífa í hundraðatali, af öllnm te^undum fyrir laugtum minna en innkaupsveið. Sömuleiðis hefi ég mikið af allskonar “granite” rnatarílátum. viðarsagir, ull- arkamba, leirtau. Alt með lægsta sölu- verði. :l,Svo hefi ég þetta áður óþekta en ágæta kaffi, setn ég sel 10 til 11 pund fyrir$1.00. En 12 pund af því kaffi, sem mennJJengu að eÍLS 8 pund af áður en ég byrjaði verzlun. Gleymið ekki að koma með smjörið eða senda það til mín sem fyrst. Yðar þénustuskyldugur Þorsteinn Þork elsson, 539 Ross Ave. C. A. HOLBROOK & CO. DEPARTMENTAL STORE, CAVALIER- NORTH DAKOTA Mikil kjorkaupasala afilSkofatnadi. Hér með bjóðum vér allar skófatnaðarbyrgðir vorar,—3250 pör—með 20 prósent afslætti, þar til 4. Nóvember næstkomandi. $3.00 Skor fyrir^'einungis $2.40 2.50 2.00 1.50 1.00 2.00 1.60 1.20 8oc. Vér gefum einnig hin beztu kjörkaup á nœr- fatnaði, ntanyfirfatnaði og allri matvöru. Yfirskór eru miklu dýrari nú en þeir voru í fyrrahaust. En vér bjóðum 1200 pör af þeim fyrir sama verð og í fyrra. Vér viljum kaupa handprjónaða sokka, en engar smáar stærðir verða keyptar. .A.Holbrook&Go. CAVAUER, N DAK-

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.