Heimskringla - 26.10.1899, Blaðsíða 2
HKIMSKKINGLA 26. OKT 1899.
Reiniskringla,
Verð blaðsins í Canada og Bandar. $1.50
um á.rið (fyrirfram borp;að). Sent til
íslands (fyrirfram borgað af kaupenle
um blaðsins hér) $1.00.
Peningar sendist í P. O. Money Order
Registered Letter eða Express Money
Order. Bankaávísanir & aðra banka en í
Winnipeg að eins teknar með afíöllum
It. I,. Raldwinson,
Útgefandi.
Office . 547 Main Street.
P O- BOX 305-
Skörp ræða
Þegar vélasmiðirnir hjá C. P. R. fé-
laginu gerðu verkfallið hér fyrir fá-
um dögum síðan, þá sendi aðalfélag
vélasmiða í Ameríku hingað mann
einn, Stewart Reid að nafni, til að
líta eftir hag verkfallsmanna og
reyna að fá kröfum þeirra framgengt.
Þessi Mr. Reid er maður ötull mjög
og hinn skarpasti ræðumaður. A
hann öefað mikinn þátt í því, að
verkfallsmönnum tókst að knésetja
C.P.R. félagið í þetta skifti og neyða
það til að þanga að öllum þeim kröf-
um og skilyrðum, er þeir fóru fram
á f bjrjun. Mr. Reid hélt skarpa
ræðu á opinberum.fundi sem haldinn
var í Selkirk Hall hér í bænum, að
afstöðnu verkfallinu, og birtum vér
hér stuttan útdrátt úr þessari ræðu.
Hann kvaðst ekki ætla að tala um
hið nýafstaðna verkfall annað en ad
segja, að hann vonaði að C.P.R félag-
ið hefði fengið þá lexíu, sem því yrði
minnisstæð um næsta fjórðung aldar.
En hann ætlaði einkum að tala um
myndun ver.kamannafélaga frá byrj-
un og fram á þessa daga.
í fornöld bygðu þrælar stórhallir
fyrir eigendur sína og létu þá lifa
eins og konunga á vinnu sinni, en
sjálfir urðu þeir að hniprast saman í
hinum auðvirðilegustu hreysum, rétt
eins og hinir verst komnu daglauna-
slavar nfi ásdögum. Jafnvel á elztu
tímum höfðu þrælarnir þekking á því
að hafa félagssamband, og létta á
þann hátt hver annars byrði og hjálpa
þeim sem veikastir voru, því þeir
höfðu á þeim tímum typtunarmeist-
ara yflr sér, rétt eins og vinnuveit-
endur vorir hafa umsjónarmenn yfir
oss nfi á dögnm. Þrælarnir í Babi-
lon mynduðu félagssamband, til að
sporna við ofríki hinna rómversku
auðkýfinga. Þegar Kristur kom til
sögunnar, var það hans fyrsta verk,
að leysa úr ánauð hina fátæku og
undirokuðu. En hann var sakaður
um uppreist móti lands lögum og
rétti og kallaður skaðráður allri
mannabygð. En hvers vegna? Vegna
þess að hann ■j.'dðist að afhjfipa fari-
seana hræsnisblæu þeirra, og flutti
þann boðskap sem vér í dag köllum
jafnaðarstefnu (Socialism).
Næst talaði ræðumaðurinn um
verkamanaafélög á síðari tímum og
sýndi hvernig þau hefðu myndast á
Englandi og hverjum framfórum þau
hefðu náð þar. Hann mintist á iðn-
aðarmannafélögin þar i landi á fyrri
tímum, og sýndi að meðlimir sllkra
félaga hefðu þá verið svo ofsóttir,
að þeir hefðu orðið að fara ýmsa
leynistigu til þess að komast á sam
komustaðina og lesa þar upp sam-
bandslög sín, og hefðu þeir orðið að
grafa þau í jörðu á milli þess er þau
voru lesin á fundunum, og gjalda
varhuga við, að ekki kvisaðist um
félagsskap þeirra. Því á þeim tfm-
um var slíkt talinn svo mikill glæp-
ur gagnvart ríkinu, að ef brezka
stjórnin fékk hendur í hári fyrirlið-
anna, þá lét hfin taka þá fasta og líf-
láta þá opinberlega. Þeir voru hengd-
ir sen örgustu glæpamenn, í því
skyni, að það skyldi vera öðrum til
viðvörunar. Þe^sir líflátnu menn
voru meðlimir sama félagsins.sem nú
gengurundir nafninu “Amalgamated
Society of Engineers.” En hver varð
svo afleiðingin af þessari barbarisku
kúgun ? Engin önnur en sú, að rétt-
lætistilflnning þjóðarinnar var svo
greinilega vakin, að þúsundir manna
gengu samstundis í félagið til þess
meira en fylla skarð hinna líflátnu og
félagið varð von bráðar svo öllugt,
að það knúði í tjórnina til að veita
8ér löggilding og viðurkenna sig sem
lðglegt verkamannafélag. Eins var
það í Atlanta í Georgia fyrir ekki
allmörgum árum, að 7 vélasmiðir
unnu þar í einni verksmiðju. Þeir
höfðu margoft farið til verkveitenda
sinna, sinn í hvoru lagi, og beðið um
kauphækkun, og var þeim öllum vel
tekið. Þeim var klappað á bakið og
sagt, að sapikepnin væri svo mikil,
að ekki væri unt að hækka kaupið,
enda væri verksmiðjunni haldið við
aðein3 til að gefa þeim atvinnu. En
hvenær sem góðæri kæini, þá skildi
verða hugsað til þeirra,
Svo var það einn dag, að einn þess-
ara manna sagði við hina : “Við höf-
um nú hver í sínu lagi margoft beðið
um Iaunahækkun. En alt heflrorðið
árangurslaust. Við skulum því fara
allir í sameiningu og heimta að kröf-
um okkar sé gaumur geflnn.” Þeir
réðu svo þetta með sér og lögðu af
stað. Dyrunum á skrifstofunni var
lokað og þeim var neitað viðtals. En
þeir lömdu á hurðina þar til dyrnar
voru opnaðar. Húsbóndinn var hinn
reiðasti, en mennirnir fengu samt
kröfum sínum framgengt eftir aðeins
tveggja klukkustunda bið. Þetta
var upphaf ameríkanska vélasmiða-
félagsins. í fyrstu var það álitið, að
vélasmiðir væru til aðeins í Banda-
ríkjunum, en síðar opnuðust augu
manna fyrir því, að það voru einnig
góðir vélasmiðir til í Canada og New
Mexico. Brátt varð félagsskapur
þessara manna svo víðtækur, að hanu
náði yflr bæði ríkin. Nú eru í félag-
inu 450 deildir og hafa þær samtals
35,000 meðlimi.
Hinn nýafstaðni vottur um styrk-
leika þessa félagsskapar er sönnun
fyrir því, hve afaráríðandi það er
fyrir menn að halda saman, þó þeir
séu sinn í hvoru landi eða ríki.
Margir halda að félagssamhand
meðal verkamanna sé gert til þess
eingöngu, að koma á verkföllum, og
að þau séu skaðleg. Það er satt, að
verkfðll eru skaðleg og til þeirra er
aldrei tekið fyr en öll önnur ráð eru
þrotin. Enda reyna þau mest á
man: dóra og þolgæði verkamann-
anna sjálfra. Hann kvaðst hafa séð
hermenn Bandaríkjanna skjóta á
fylkingar vélasmiða og fella þá til
jarðar, fyrir þá einu ástæðu, að þeir
kusu að hafa sjálfstæða hugsun og
framfylgja skoðunum sínum. En
hermennirnir framfylgdu skipunum
auðvaldsins og stjórnarinnar, sem
æflnlega fylgjast að málum, til að
kúga og svelta verkalýðinn.
Félagssambönd verkamannanna
mynda verkföll, en það eru félags-
samtök auðmannanua, sem gera
verkföllin óhjákvæmileg, þegar verk-
veitendur neita sanngjörnum kröfum
þeirra manna, sera þræla til að auðga
þá. Auðmenn segja að það sé rangt
af verkamönnum að mynda vernd-
arfélög, eu sjálfir eru þeir önnum
kafnir að mynda einokunarfélög, til
þess að margfalda sem mest auðæfi
sfn. Fyrir 3 mánuðum voru 53 ein-
okunarfélög í Bandaríkjunum, með
samlagt 1000 millión dollara höfuð-
stól. Þetta sýnir að þeim þykir fé-
lagssamband ekki ranglátt fyrir sjálfa
sig. Þeir mega ekki álíta vinnu-
Iýðinn svo heimskan, að hann hafi
ekki vit á því, að félagsskapur er að
minsta kosti eins nauðsynlegur fyrir
þá, eins og hann er fyrir auðmenn-
ina. Það var sá tími. að verð á nauð-
synjum manna var í samræmi við
kaupgjaldið. En síðan einokunar-
sambandið komst á fastan fót, heflr
samkepnin verið kæfð, svo að menn
eru nú neyddir til að borga hærra
verð fyrir nauðsynjar slnar, en gjald-
þol verkamanna leyfir.
Eina ráðið fyrir verkamenn er því(
að mynda svo traustan félagsskap,
að hægt sé að halda uppi sanngjörnu
kaupgjaldi. “Sameinaðir stöndum
vér, sundraðir föllum vér.”
Um uppfræðslu barna.
Sir John Gorst, enskur stjórnmála-
rnaður, hélt nýlega ræðu um samband
foreldra við alþýðuskólana. Hann
hélt með því að kenslu á barnaskól-
um væri hagað á sama hátt alstaðar
I landinu. En hann áleit það jafn-
framt varða mestu, að foreldrar létu
sér ant um að hafa eftirlit með börn-
um sínum og námi þeirra á skólun-
um. Það eru alt of margir foreldrar
sem álíta allri bvrgðinni lvftaf herð-
um sér, þegar börnin fara að ganga
á skóla, með því að öll ábyrgðín á
uppfræðslu barnanna, hvíli eftir það
á kennurunum eingöngu. Enginn
neitar því að kennararnir hafa all-
mikla ábyrgð I þessu efni. En þó
engan vegin alla ábyrgðina, því að I
raun og veru er kennarinn að eins
umboðsmaður foreldranna, til þess að
kenna börnunum samkvæmt fyrir-
mælum mentamálastjórnarinnar, þær
námsgreinir sem ákveðnar eru. En
á foreldrunum hvílir jafnan sú skylda
að sjá um það, að kennararnir gegni
skyldu sinni I þessu efni svo sem vera
ber, og að styðja að því með ráði og
dáð I heimahúsum, að börnin hafl
sem bezt not af náminu. Þessi skylda
foreldranna er þeim mun þyngri og
ábyrgð þeirra stærri, sem kennararn-
ir eru oft og tíðum ýmist skeytingar-
litlir við skylduverk sín, eðaað þeim
er ofþyngt með því að þeir hafa fleiri
börn til kennslu I einu, en þeim er
unt að sinna, svo vel sé, og eftir því
sem börnin eru tornæmari, og skiln-
ingssljófari, því meira ríður á að við
þau sé lögð sem allra bezt rækt. Það
þarf að þessu leyti að vera samvinna
með foreldrunum og kennurunum.
Bæði er það börnunum sjálfum fyrir
beztu, og svo er það ánægjulegast
bæði fyrir kennara og foreldra, með
því að þá er mest trygging fengin
fyrir því, að börnin taki öllum þeim
framförum, sem hæflleikar þeirra
gera mögulegt að þau geti tekið við
námið. Þetta er einkum gert bæði
með því, að foreldrar komi stundum
á skólana í kenslutímum og heyri og
sjái hvað fram fer, og með því að
finna smámsaman kennarana að máli
og ræða við þá um börnin og kensl-
una. En þó mest af öllu með því að
hjálpa bömunum áfram I lexíunum
utanskóla.
Þanniger það I Brooklyn I Banda-
ríkjunum. Þar eru 7 foreldra og
kennarafélög og mæta meðlimifnir
einu sinni I hverjum mánuði I skóla-
húsunum til þess að ræða um upp-
fræðslumál og gefa hver öðrum góð-
ar bendingar I þá átt. Einkum læra
kennararnir með þessu móti aðþekkja
eðli barnanna, betur en þeim mundi
annars auðið verða, en slíkt er mjög
áríðandi.
Þetta uppfræðslumál er svo afar
þýðingaimikið, að það er vel þess
vert, að á það sé minst I blöðunum
við og við og foreldrunum bent á
skildur þeirra I þessu efni, ekki að
eins gagnvart börnum sínum, heldur
einnig gagnvart sjálfum sér og því
borgaralegu félagi sem þau lifa I.
Reynslan er ólýgnust.
Bæjarstjórnin heflr látið prenta
samanburðarskýrslu yflr að asphalt-
leggja McDermott stræti beggja meg-
in við Main Str. Asphaltlagningin
fyrir vestan Main Str. var gerð af
Kellybræðrum, contractors, en lagn-
ingin fyrir austan Main St. lét bæj-
arstjórnin gera með daglaunavinnu.
Skýrslan er þannig:
Kelly bræður, Contractors :
4009.5/9 ferhyrnings yards á
$2.75 hvert yard " $21,026.28
1517 lengdarfet af steinstétt
(curb) á $1.30 fetið 1,972.10
86 fet af bogmynduðum stein-
stéttum á $1.50 fetið 129.00
Umsjón með verkinu 142.50
Aukaverk 496.66
ÚtmælinK og innheimtulaun 825.99
i. A13u8 kostnaður, med 5 ára
ábyrgð á verkinu $14,592 53
Contract-verð á hverju fer-
hyrnings yarði er $3.60.
Verkið unnið með daglaunavinnu :
725 yards á $1.95......... $1,427.83
85.30 lengdarfet af stein-
stéttum á $1.03......... 87 62
Aukakostnaður................. 29.57
Fyrir verkfæralán og áætlað-
ur viðgerðakostnaður I 5 ár 145.04
Útmæling og innheimtulaun 101.40
Allur kostnaður........... $1,791,46
Daglaunavinnuverð á hvert
ferhyrnings yard er $2.50
Þessi skýrsla er eftirtektaverð bæði
fyrir verkamenn I bænum og gjald-
þegna yflr höfuð. Hér er það ómót-
mælanlega sannað, að daglaunavinn-
an er bænum alt að þriðjungi ódýr-
ari heldur en contractvinnan. Og
lað er óefað, að verk það sem unnið
er með daglaunavinnu, er að minsta
kosti eins vandað og vel af hendi
leyst, eins og contract-verkið. Þeir
menn, sem hingað til hafa efast um
að það væri hagnaður fyrir bæinn að
láta vinna verk sín með daglauna-
vinnu, I stað þess að fá þau I hendur
contractors, ættu að hafa þessa skýrslu
I minni framvegis. Hún ætti að
lækna missýningar þeirra. Það er
sennilegt, að bæjarstjórnin láti fram-
vegis vinna öll opinber verk með
daglaunavinnu, og láta þannig gjald-
þegnana njóta þess ágóða, sem ann-
ars rennur I vasa contractaranna.
Fráhvörf blaða.
Það eru fá hlöð í Canada um þess
ar mundir, sem ekki lýsa hinni megn-
ustu fvrirlitningu sinni fyrir öllum
þeim svíkabrögðum, sem Liberalar hafa
viðhaft I öllum þeim kosningura, sem
fram hafa farið í Ontario í síðastl. 2 ár.
Það hefir þegar verið sannað, ýmist
fyrir rannsóknarnefnd þingsins I Otta-
wa eða fyrir dómstólunum, að kosning-
arnar í North Waterloo, West Elgin,
West Huron, Brockville og South Ön-
tario, hafi verið unnar af Liberölum
með algerlega dæmalausum og áður ó-
þektum svikúm og mútum, fyrir til-
verknað hinnar alræmdu “þreskivélar”
Liberala I Ontario, og svo er óánægjan
orðin sterk út af þessum aðförum Li-
beralflokksins, að ýms af þeim blöðum
sem unnu öfiugast að því að koma þeim
til valda. hafa nú ekki einasta hætt við
að mæla þeim nokkra bót, heldur hafa
þau yfirgeflð Liberaltíokkinn sum með
eigin yfirlýsingu I þá átt, og önnur,
með því að snúast á móti stefnu þeirra,
án þess þó að segja beint út, að þau
væru hætt að vera Liberöl. Vér skul-
um hér nefna þau helztn og áhrifa-
mestu af blöðum þessum; þau eru :
The Frederickton
The Buckingham
The Ontario
The Huntington
The Weekly
The Brantford
The Kingston
The Winnipeg
La Tribune of Ste
Gleaner;
Independent;
Reformer;
Gleaner;
Sun;
Expositor;
Whig;
Tribune.
Hyasinth;
Þeir sem hafa nokkra hugmynd
um þau áhrif, sem slík blöð og hér eru
talin, hafa á almennings álitið, geta
getið því nærri, hve mikið tap það sé
fyrir Liberalflokkinn að missa stuðn-
ing þeirra og áhrif við kosningar, En
þetta verður svo að vera. Þetta eru
alt heiðarleg, útbreidd og vinsæl blöð
og vinsældirnar aukast eftir því sem
lesendurnir sjá að þau eru samvizku-
samari í landsmálum, og fráhverf þvi
að halda uppi varnarskildi fyrir því sem
þau sjá eins og allir aðrir hljóta að sjá
að er glæpsamleg stjórnaraðferð. En
svo er þá sú huggun fyrir flokkinn að
enn þá hafa ekki nær því öll blöð yfir-
gefið hann, enda sum af þeim sem ald-
rei hafa með einu orði lýst óánægju
sinni yfir kosningaaðferð Liberala.
Eitt af blöðum þessum er Lögberg.
Það sést ekki annað en að það sé hjart-
anlega ánægt með sakirnar eins og.þær
standa nú. Því er um að gera 'að Li-
beralar haldi völdum, hvort sem það
er með frjálsum eða stolnum atkvæð-
um. Það er með atkvæðin eins og doll
arana, að þeim Liberölu verður jafn-
gottafþví sem er stolið, eins oghinu,
og þakka guði að það fæst.
Verksmiðjur
væntanlegar.
Stórkostlegar verkf-míðjustofnanir
eru væntanlegar hér á landi fyrir for-
göngu hr. Odds V. Sigurðssonar frá
Lundúnum.
Acetylen gas heitir efni. sem nú er
að ryðja sér til rúms til lýsingar. Það
er buið til úr samanbræddum kolum og
kalki. Einkum mun það notað í Vest-
urheimi. enda mest nýbreytni-vonin
þaðan. A Englandi er það og töluvert
notað, farið að lýsa með því stórhýsi
þar. Eftirspurnin er enn miklu meiri
en framleiðslan, og þar afleiðandi er
efnið enn ; dýrara en það væntanlega
verður síðar. Samt sem áður er það
15% ódýrara en venjuleg kolagtas.
Ljós þetta þykir einkar þægilegt,
langdkast dagsljósi af öllu tilbúnu ljósi.
Og fyrirtaks handhægter það, svo hand
hægt, að ekki má að eins nota það á
hverjum kotbæ npp til fjalla, heldur og
jafnvel hafa það með sér á ferðalögum.
í Vesturheimi er t. d. mjög algengt að
hafa það á hjólhestum, og þá ferðast
menn í skæru ljósi um [niðdimmar næt-
ur.
Framan af gekk nokkuð örðugt
með að nota þetta efni til Jjósmatar.
Það er ekki eldfimt fyr en það kemur í
vatn. En þá vildi koma af því sterk og
vond lykt.
Svo vftr það að landi vor, hr. Odd-
ur V. Sigurðsson, fann upp vél til að
vinna efnið úr kola- og kalkblöndunni,
alls ólíka þeim vélum, eráðurhöfðu
verið notaðar. Og aðalkostur hennar
er sá, að hún útrýmir lyktinni með
öllu. Hugvitsmaður þessi er 27 ára
V etrar-yfirhafnir.
Eyðileggið ekki heilsu yðar með því,
að vanrækja að kaupa yður yfirhafnir.
Vér höfum nú fengið stórmiklar byrgð-
ir af ágætum vetrarfrtnaði, sem oss er
ánægja að sýna yður. Verðið er frá $5
til $16, og hinar sérstöku treyjur okkar
kosta $7.50, og betri treyjur fyrir jafn-
lágt verð, fást vissulega ekki I Winnipeg.
556
Main Street
Deegan’s
PALACE CLOTHING STORE
-^^^^►-^450 Main Street.
Vér höfum fengið stórmiklar byrgðir af vetrarfatnaði, svo sem
YFIRTREYJUM,
ULL A R-NÆRFATNA ÐT,
OGr DÚKSKYRTUM,
sem vér seljum með ótrúlega lágu verði. Búðin er troðfull af
allskonar karlmannsfatnaði og yflrhöfnum, og bjóðum vér ís-
lendingum að koma og skoða þet a alt.
Hr. Kristján G. Kristjánsson vinnur í búð-
inni og lætur sér ant um að leiðbeina yður.
PALACE CLOTHING STORE,
450 Iflaiii Mtreet.
Gætið
OS
styrkið
þess að þetta vörumerki sé á vindlakassamim,
Onion-made Chrars.
sersc:
CM
atvinnu-
stofun
vora
Eftirfylgjandi eru nöfnin á þeim vindlum, sem búnir eru
til af Winnipeg Union Cigar Factory.
Up aml ITp. Rlne Rilthon.
The Winnipeg Fern I.eaf.
Nevado. The Cnban Itelles.
Yerkamenn ættu æfinlega að biðja um þessa vindla.
J. BRICKliIN, eigandi, Cor. Main og Rupert St.
Búnir til af karlmönnnm en ekki af börnum.
Prjonavjelar,
hinar beztu sem enn eru búnar til í
heiminum. Vér höfum einnig lak-
ari og ódýrari vélar, en ráðum samt
engum til að kaupa þær. Betri
vólarnar ábyrgjumst vér í 20 ár,
þótt þær séu brúkaðar 365 daga &
ári hverju og 24 klukkutíma á dag.
Þeir Islendingar sem vilja kaupa
þessar vélar, geta snúið sér til okk-
ar, eða til umboðsmanns okkar,
IIr. lí. SveinsKonar,
195 Princess St., Winnipeg.
Þetta er mynd af hinni
ágætu “Davis” saumavél
Só ég ekki viðstaddur til nð leiðbeina
fólki sem vantar þessar vélar, þá geta
menn'snúið sér til hr. Eyjólfs Eyjólfs-
sonar, 522 Notre Dame Ave.
G. SVEINSSON.
ALK. cfe GEO. HALL,
SÍ07 Alexamlei* Ave., Wimiipcg
Selja meðal annars :
Davis Sadmavjelak, Prjónavjelar og Þvottavjelar.
Vér seljum meðal annars
Tlie tlreat West Life
AsHurance Company.
Aðalskrifstofa í Winnipeg, Manitoba.
Uppborgaður höfuðstóll - - $100,000.00
Varasjóður - $428,465.55
Tlie—— —
Great West Life Assurance Go.
Tlic Kreat IVest Ufe félagið selur
lífsábyrgðir með öllum nýustu og beztu
hlunnindum sem fylgt geta lífsábyrgð-
um. Og þar eð þetta félag hefir aðal-'
skrifstofur sínar hér, og ávaxtar alt fé
sitt hér í Vesturlandinu, þar sem háar
rentur eru borgaðar, þá getur það aflað
méiri inntekta fyrir félagsmenn sína,
heldur en nokkurt austurfylkja félag
getur gert.