Heimskringla - 30.11.1899, Side 1

Heimskringla - 30.11.1899, Side 1
Heimsknngia. XIV. ÁR WINNIPEG, MANITOBA 30. NÓVEMBER 1899. NR. 8 Gimli-kjördæmið. Til kjósenda í Gimli-kjördœmi: Fyrir ýtrekuð tilmæli fjölmargra kjósenda í kjördæmi yðar, leyfi ég mór hér með að tilkynna yður.að óg hefi fikveðið að bjóða mig fram sem fulltrúa fyrir Gimli-kjördæmi á fylkisþinginu í Manitoba, við næstu almennar fylkiskosningar, sem eiga að fara fram í Gimli-kjördæminu þann 14. Desember næstkomandi. Yður er kunnugt að óg sæki Um kosningu þessa undir merkjum Liberal Conservative-flokksins og sem staðningsmaður Hon. Hugh J. Macdonalds. Mörgum af yður eru einnig kunnar skoðanir mínar og stefna f ýmsum opinberum málum sem varða hagsmuni þessa fylkis. En vegna þess að kringumstæður mínar hafa ekki leyft mór að finna yður alla að mfili og vegna þess, að tíminn til kosninga er mú orðinn svo naumur að mér verður algerlega ómögulegt að ferðast um svo víðlent kjördæmi á einum þremur vikum, þá nota ég þessa aðferð til þess að láta yður vita: 1. Að ég er andvígur járnbraut- arstefnu núverandi stjórnar í því að hún hefir bakað fylkinu afarmikla skulda- og skatla-byrði með peninga- framlögum sínum til einstakra manna og fólaga,án þess að hafa séð fyrir því, að fylkisbúar fengju til- svarandi lækkun á flutningi á af- urðum bænda og annarri framleiðslu. 2. Ég held því fram að járn- brautir eigi að vera eign hins opin- bera og að hagnaðurinn af starfi þeirra eigi að renna í fylkissjóð, en ekki í vasa einstakra manna. En að á meðan þetta ekki fæst, þá só styrk- veiting af opinberu fé til járnbrauta, háð þeim skilyrðum, er tryggi fylkinu þann hagnað í lækkun á far- gjaldi og vdruflutningsgjaldi, er sam- svari styrkveitingunni. 3. Ég er meðmæltur því, að fylkið fáí takmörk* sín aukin norður að Hudsonsflóa og að fylkið byggi járnbraut, þangað á eigin kostnað. 4. Ég er meðmæltur því, að fylkisstjórnin heimti af ríkisstjórn- inni full umráð yfir öllum opinber- um löndum innan takmarka sinna. 5. Ég er meðmæltur því, að fylkið heimti yflrráð yfir fiskiveið- um í öilum ám og vötnum innan takmarka sinna. 6. Ég er meðmæltur því, að fylkisstjórnin setji þær lagaskorður við tilbúning og sölu áfengis, sem grundvallarleg réttindi þess frekast leyfa, samkvæmt yfirlýstum vilja fleirtölu kjósendanna við tvennar kosningar. 7. Ég er meðmæltur því, að kosningalögin séu þannig endurbætt að eðlilegum mannréttindum sé ekki hallað og að hinn sanni viiji kjós- endanna fái ráðið úrslitum við kosningar. 8. Ég er meðmæltur því, að þýðingarmikil lagaákvæði séu lögð undir dóm kjósendánna til endi- legra úrslita. Með því móti nýtur þjóðin síns eðlilega réttar, við samning þeirra laga sem hún á að búa undir og hlýða. 9. Ég er meðmæltur frjálsri og flokkadráttarlausri tilhögun á menta- málum fylkisins, grundvallaðri á Því höfuðatriði, að aðgangur alþýðu til mentastofnana landsins, hinna hærri sem hinna lægri, sé gerður greiður og ódýr og mentunin sem notadrýgst fyrir framtíðarvelferð einstakhngsins. 10. Eg er meðmæltur því, að öll sanngjörn varúð ogsparsemi sé við höfð í meðferð á fylkisfé, og að til- lit sé tekið til þess að íylkið fái fult verðmæti útgjaldanna. H. Ég er meðmæltur því, að þörf sólátin ráða í úthlutun fylkísfjárins til sveitafélaga' og umbótum þjóð vega, með framræslu og brúm. 12. Ég er meðmæltur því, að inn- flutningur i þetta fylki sé efldur eftir því sem efnahagur fylkisins leyfir það, og að áherzlan sé lögð á að velja þá helzt, sem líklegastir eru til að verða nýtir borgarar. 13. í kjörréttarmálinu er ég sam- þykkur Conservative-stefnunni, að takmarka atkvæðarétt óupplýstra manna af slavneskum þjóðflokkum við ákveðin mentaskilyrði.—Con- servative-flokknum dettur ekki í hug að takmarka atkvæði Islendinga, hvorki þeirra sem hér eru fyrir, né þeirra sem hér eftir kunna að koma hingað til landsins. Að endingu skal ég taka það fram að verði mér s/nd sú tiltrú kjósenda, að ég nái kosningu á kjör- degi, þá skal það verða mín helg- asta skylda að vinna af alefli að sameieinlegum hagsmunum yðar á þinginu. Samkvæmt þessu leyfi ég mér að mælast til þess að þér veitið mór traust og öruggt fylgi við þessa kosningu og greiðið atkvæði yðar með mér og Conseavative-flokknum á kjördegi. B. L. Baldwinson. Winnipeg 25. Nóv. 189 9. Mr. A. J Andrews j borgarstjóri Winuipegbæjar, sækir um fylkisþingsetu fyrir mið-Winni- peg kjördæmið við þessar kosnining- ar, undir merkjum Conservativa- flokksins, eins og hann auglýsir í á- varpi til kjósendanna, sem prentað er á öðrum stað hér í blaðinu. Vér viljum alvarlega hvetja Islendinga til að veita Mr. Andrews eindregið fylgi, þvf hann á það allra manna bezt skilið. Ástæðurnar til þess eru ekki svo mjög þær, að hann er Con- servative, eins og hitt, að hann hefir margfaldlega sýnt það, að hann er einlægur og áhrifamikill vinur verka manna. 011 hans framkoma í bæjar- málum á undanförnum árum, bæði á meðan hann sat í bæjarráðinu sem óbreyttur bæjarfulltrúi, og einkum þó síðan hann varð borgarstjóri, hefir sýnt það og sannað, að honum er ant um hag verkamanna og vill að hver og einn fái sómasamlega borgun fyr- ir unnið verk. I ræðum sínum á bæjarráðsfundum hefir hann jafnan dregið taum verkamanna cg hlynt B. L. Baldwinson, Hugli John. Þess mun tæplega gerast þörf, að fjölyrða um kosningu Hugh Johns í suður-Winnipeg, því vér erum vissir um að allur fjöldi íslendinga þar fylgja honum örugglega. Vér fylgj- um ekki Hugh John aðeins fyrir það, að hann er leiðtogi Conservativa flokksins, þótt sú ástæða væri í sjálfu sér fullgild. En vér mælum með honum fyiir það, að hanner gæddur þeim hæfileikum og mannkostum, að hann verðskuldar bæði tiltrú og virð- ing almennings. Stefna hans í stjórn- málum er berlega tekin fram í stefnu- skrá Conservativa flokksins, sem vór prentum hér í blaðinu og höfum áð ur útskýrt. Mr. Hugh John Macdonald er allra manna kunnugastur stjórnmálum landsins, þar eð hann hefir verið svo að segja vakinn og sofinn í þeim síð- an hann var barn í föðurhúsum. Þetta út af fyrir sig gerir hann hæf- an stjórnarformann. En svoerhann einnig prýðilega vel gáfaður og ment aður og einn með hinuni færustu mælskumönnum þessa lands. Mr. Macdonald er mjög vinsæll af alþýðu enda er hann hvers manns hugljúfi. Væri ekki Mr. Macdonald sjálfur af- bragðsmaður, þá hefði hann ekki fengið það úrval af þingmannaefnum sem hann hefir nú, til að fylla flokk sinn. En síðan hann tók við forustu flokksins fyrir 3 árum, hefir afl hans og flokksins aukist svo stórkostlega að undrum sætir. Nú á degi hverj- um eru menn, sem í síðastliðin 20 ár hafa fylgt liberalflokknum, að snúast í lið með Mr. Macdonald, og það leik- ur ekki lengur nokkur eti á því, að Conservativar vinna þessar kosning- ar. Alls þessa vegna vonum vér að íslendingar í suður-TVinnipeg greiði atkvæði með Mr. Macdonald. Vér erum sannfærðir um að þeir sjá ald- rei eftir því- af alefli að öllu því sem gæti miðað þeim til hags. Þetta veit hver einasti verkamaður hér í bænum. Þessvegna er það líka, að verkamannablaðið “The Voice” fylgir Mr. Andrews eindregið við þessar kosningar, og oss er sagt að veikamannafélögin séu mjög ákveðin í að veita honum ein- dregið fylgi. Enda er nú enginn efi talinn á því, að hann muni ná kosn- ingu með miklum meirihluta. Verkamenn hafa ekki gleymt því, að það var Andrews, sem ásamt með bæjarráðsfulltrúa Horace Wilson scfm nú sækir um borgarstjórastöðuna, gátu áunnið það fyrir 2 árum, að bæjarstjórnin samþykti að borga verkamönnum sínum I7|c. um kl,- tímann, þegarþeir fengu að eins 12Jc. og sumstaðar ekki nema lOc. um tímann hjá öðrum vinnuveitendum (contractors). Vér munum það, að menn unnu þá í skurði suður á Young St. og höfðu aðeins 90c. fyrir 9 tíma vinnu á dag. Þá var það að þeir Andrews og Wilson tóku sig til að fá kaupið hækkað upp í $1.75 á dag, og gerðu það. Síðar korn Mr. Andrews því til leiðar, að sem mest af bæjarvirihu er nú gert með dag- launavinnu og með hærra dagkaupi en áður var. Það er óhætt að full- yrða, að Mr. Andrews hefir með dugnaði sínum og hlýjum hug til verkalýðsins, fært mörg þúsund doll- ara í vasa verkamanna á síðastl. 2 áruro. Það er því siðferðisleg skylda allra verkamanna, og allra manna sem eru verkalýðnum hlyntir, að styðja Andrews af alefli við þessar kosningar, bæði með því að greiða honum atkvæði og fá aðra til þess. Fjárinálaráðgjafi McMilian er nú bú- inn að vera þingmaður fyrir mið- Winnipegí 8árogáöllum þeim tíma er oss ekki kunnugt um að hann hafi gert nokkurn skapaðan hlut fyiir kjöi dæmið. Og þó hann, sem ráð- gjati í stjórninni, hafi átt sinn þátt í að sökkva fylkinu I hálfa þriðju mil- íón dollara skuld, þá getuin vér ekki séð að það séu nein sérstök meðmæli með honum. En á hinn bóginn hefir Mr. Andrews sýnt það ómótmælan- lega, að hann er hagsýnn maður og framúrskarandi duglegur og fram- kvæmdasamur. Islenzkir verkamenn! Vér treyst- um því að þið látið ekki leiðast til ganga á móti þeim sem ykkur hafa reynst bezt. Mr. Andrews ætti að fá atkvæði hvers einasta verkamanns í mið-Winnipeg. A. J. Andrbws. Dr. Neilson Hann er umsækjandi í norður- Winnipeg undir merkjum Conserva- tiva. Dr. Neilson er maðar gáfaður og hálærður. Hann heldur prófess- orsstöðu við læknaskólann hér S Winnipeg, og er vel þektur og mjög vel látinn maður. Hann er enginn sérlegur mælskumaður, en hugsar Ijóst og skýrt. Hann hefir lagt mikla stund á að lesa hagfræði, og er það mikill kostur við hvern stjórnmála- mann, að hann hafi góða þekkingu á þeim málum, með þvS að störf þing- manna, til þess að getaorðið almenn- ngi að góðum notum, verða að byggj- ast að miklu leyti á hagfræðislegum grundvelli: Di'. Neilson er einl.vinur verkalýðsins, og það má treysta hon- um til að halda taum þeirra á þingi. Það er efalaust að hann nær kosn- ingu með miklum meirihluta at- kvæða. Oss er sagt að Islendingar í norður-Winnipeg fylgi Dr. Neilson eindregið, og er það vel farið. w. J Neilson, M D J. T. Gordon. gripakaupmaðurinn mikli, semíund- anfarin 16 ár hefir stundað þá verzl- nn hér í fylkinu, og er allra manna bezt þektur og vimælastur, sækir nú um þings<-tu undir merkjum Con- servativa í Mountain kjördæmi, mótl Mr. Greenway- Það hefir enginn efi leikið á því, að Mr. Gordon mundi verða sigursæll í þessu kjördæmi. 0g svo viss var Mr. Greenway sjálf- urum þetta, að hann lét breyta þessu kjördæmi ir.eð lögum á síðasta þingi, eins og vér höfuin áður skýrt frá hér í blaðlnu En þrátt fyrir það, þó að um 150 Conservative atkvæði væru þannig færð út úr Mountain kjördæmi og inn í Manitou kjördæmið, — þrátt fyrir þetta klækjabragð, þá er eng- inn efi á því, að Mr. Gordon vinnur þar ji ægan sigur. Islendingar í Ar- gylenýlendunni, sem flestir eru í þessu kjördæmi, hafa að undanförnu nálega eindregið fylgt Greenway við kosningar, en riú er oss sagt að ali- margir þeirra séu þeirrar skoðunat r ð það sé kominn tími tll að skifta um stjíiru, óg mun i þvi fylgja Mf. Gordou við þessa kosningu. Vér drögum engan efa á það að Mr. Gordon, með sínum miklu hæfileik- um, muni fá svo mikið fylsi að hann vinni kosninguna, og vér vit- um að hann gerir kjósendum sínum mikinn | sóma sem fulltrúi þeirra á þingi. Mr, Gordon er vinur bænda og verkamanna yfir höíuð ög mun líta eftir hagsmunum þeirra á þinginu af fremsta megni, Vér treystum því að landar vorir í þessu kjördæmi sýni honum þá tiltrú sem hæfileikar hans, vel- vilji til bænda og áhugi fyrir fram- förum fylkisins verðskulda og gefi hanum á kjördegi nægan atkvæða- fjölda til þess að gera kosningu hans alveg vissa. J. T. Gordon. Skýring, Vér höfum feníið áreiðenlegar fregnír um það, að sumir Liberölu atkvæðasmalarnir hér í Mið-Winnipeg, reyni að telja íslendingum trú um það, að ef Mr. Andrews nái ekki kosningu á fylkisþing, þá haldi hann áfram að vera borgarstjóri hér. Ollu heimsku- legri grýlu en þetta. er tæplega hægt að hugsa sér. I fyrsta lagi vita það allir, að útnefningar til borgarsljóra og bæjarfulltrúa fara fram 5. Desember næstkomandi, tveimur dögum áður en fylkiskosningar fara fram, og væri það því lögum gagnstætt og algerlega ó- mögulegt að Mr. Andrews gæti verið þar í vali, þar sem hann er á sama tíma i vali til fylkisþings. Þetta ætti að vera og er hverjum heilvita manni full- ljóst. Og svo er langt síðan að Mr. Andrews lýsti því yfir opinberlega, að undir engum krinpurastæðurn gæfi hann kost á sér fyrir borgasrtjóra við þessar í hönd farandi bæjarkosningar. Þetta ætti að vera riæg skýring, og Islendingar meiga reiðasigá, að hún er alveg sönn. En þessi aðferð veslings smalanna bendir óneitanlega á það, að þeir hafa komist að þeirri niðurstöðu, að Mr. Andrews er svo vinsæll á meðal ís lanzkra verkamanna, að það er þýð- ingarlaust fyrir þá að reyna til að Ijúga lýtum á hann. Svo fundu þeir upp þetta göfugaf!) bragð, að reyna að narra Islendinga tilað vreiða atkvæði á móti Mr. Andrews við fylkiskosning- una, í þeirri trú. að hann verði þá endurkosinn sem borgarstjóri! Di nkknandi maðnr grípur æfinlega í há.mstráið. ef ekki er annað fyrir hendi. og svo er með þessa “Liberölu” sniala. “Melo=drama” i einum þætti Leiksviðið : Prentstofa Lögðergs (á fjósloftinu) (Magnús Paolson og Ólafur Thor- geirsson standa út í dimmu horni, báðir í þungum þönkum.) Ól. Thorg.: “Og svo er annað. Þessi b.. hraðpressa er orðin alveg ónýt. Það verður að beita einhverj- um brögðum til að fá aðra nýja.” M. Paulson: “J—a—á en það er ekki til neins að tala um neitt slíkt nú. Það er meir en tvísýnt um hvernig þessar kosningar fara. Við höfum ekki eins gott tangarhald á fólkinu eins og áður var. Ef að Greenway gamli vinnur, þá verða engin vandræði að íá hraðpressu, eða hvað annað sem okkur kann að vanhaga um. En ef að déskotans Conservatiyunum tekst að velta honurn úr völdum, þá býst ég við að við vetðum að baslast af án þess að fá nýja pressu. En ég má til að fara og líta eftir smölunutn.” (Magnús fer út. Tjaldið fellur.) Dr. W. S. Mclnnis, sem sækir um þingmensku í Brandon, fyrir hönd Con83rvatíva, er gáfumaðnr, !æiður og hinn bezti drengur. Á móti honum sækir Mr. C. Adams, sem einusinni átti heima í Brandon, en er nú búsettur austur í Toronto, Ont, Hann hefir set- iðhér á fylkisþinginu áður og lítið að honum kveðið. Það ætti að vera svo mikið nýtra drengja Yal i Bin don, að þeir ættu ekki að þurfa að sækja þing- manhsefni í önnur fylki, Vér vonum að íslendingar í Brardon fylgi Mr. Mc- Innis við þessar kosningar. Hann er óefað hið bezta þingmannsefni. / Islenzkir kjósendur, Þar eð ég hefi afráðið að bjóða mig fram sem skólanefndarmaður fyrir 4, kjördeild við í hönd farandi bæjar- kosningar, þá vil ég vinsamlegast mæl- ast til þess. að þér veitið mér atkvæði yðar og fylgi Ég held því fram og mun leggja alt Rapp á að fá því framgengt, verði og kosinn, að allar kenslubækur við barnaskólana bér ættu að vera ókeypis, eða með öðrum orðum, að foreldrar eða umsjónarmenn barnanna ættu ekki að þurfa aö borga fyrir þær. Þetta á sér st msum borgum hér í Canacla, og sé ég enga ástæðu til að hið sama ætti ekki að gilda hér. Einnig held ég því fram og hefi þegar stuðlað til að koma því máli í hreyfingu, að hér ættu að vera ókeypis kvöldskólar fyrir konur og karla yfir 16 ára að aldri, þar sem kend séu undirstöðuatriði almennrar mentunar, svo sem skrift. reikningur, landafræði, saga og tungumál, einkum enska. Ég skal taka það fram, að ég hefi stuðning og fylgi enska verkamannafé- lagsins hér í bænum, sem ég hefi til- heyrt um all langan tíma. Yðar meðvirðingu. JACOB BYE. Mayors-kosning. fslenzkir kjósendur. Ég leyfi mér hér með virðing- arfyllst að mælast til þess, að þér veitið mér atkvæði yðar og stuðn- ing, sem borgarstjora fyrir Win- nipeg, við í liöndfarandi bæjar- kosningar.—Ég hefi nú setið full 5 ár í bæjarstjórninni, og vona ég að framkoma mínþar hafi verið þannig, að kjósendur, og einkum verka- meDn, geti borið fult traust til mín. Virðingarfyllst Horace Wilson. Mayors-kosning. Til íslenzkra kjósenda. Atkvæða yðar og áhrifa er virðingarfyllst óskað til handa T. G. Mathers, sem sækir um borgarstjórastöðuna við í hönd farandi kosningar. IILLIiI SGOTT, forseti vei kamannafélagsins, býður sig fram sem skóla- nefndarmann fyrir 5. kjordeild, Yeitið athvgli úvarpi frá honum sem kemur í nœsta blaði. Atkvæða yðar og álirifa er óskað til handa JCHN flPPLETON sem bæjarráðsmanns fyrir 4. kjördeiid. /

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.