Heimskringla - 22.03.1900, Page 4
HEIMSKRINGLA, 22. MARZ 1900.
Stœkkun Heimskringlu.
Stjórnarnefnd Heimskringlu hefir
ikveðið að stækka blaðið að mun frá
þessum tíma. Hún viður'iennir að
vegna þess hve auglýsingar berast óð-
fluga að blaðinu, þá sé lesmálið, eins
og nú stendur, tiltölulega minna i þvi,
en æskilegt væri, og kaupendur eiga
sanngjarna heimtingu á að sé. Þess
vegna hefir nefndin ákveðið að sögunni
skuli framvegis kipt út úr blaðinu og
16 blaðsíður af henni sérprentaðar skuli
•endar út með þvi aðrahvora viku.
Það er sama sem 8 síður á viku. En
þessi stækkun nemur 72 þuml. eða sem
næst 4 dálkum af lesmáli á viku, með
því að 16 síður jafngilda 144 þumlung-
um dálkslengdar. í þetta sinni sá
nefndin sér ekki fært að gera öðruvísi
stækkun. En vonar jafnframt að þetta
verði kaupendum þóknanlegt, með því
að verðið á blaðinu verður ekki aukið.
Það verður eins og nú er, að eins $1,50
á ári.
*6
Winnipeg.
Manitobaþingið á að koma saman
þ. m.
2 byggingalóðir á Logan Ave. sunn-
anverðu, no. 14 og 15 í blokk 42 gegnt
nýja bæjar vatnsverkinu, til sölu. Verð
$100. TJppiýsingar á skrifstofu Heims-
kringlu.
Þeir herrar Kristján Vigfússon,
frá Vestfold og Jakob Jónsson og
Sveinbjörn Sigurðsson frá Markland,
komu hingað til bæjarins um helgina og
fóru heimleiðis aftur í gær.
Hra. Eyjólfur Olson brá sér til
Nýja-íslands á þriðjudaginn var. Bjóst
hann við að verða að heiman um viku
tíma.
Björn B. Olson á Gimli hefir fengið
smjörgerðarvél sem er ólík öðrum skil-
vindum að því að hún aðskilur rjóm-
ann og strokkar smjörið úr mjólkinni á
saraa tíma. En undanrenningin er
sögð að halda eftir öllum næringarefn-
um nema fitunni. Menn geta séð vél
þessa vinna hjá Olson.
Bæjarfulltrúi, R. Ross Sutherland.
biður Heimskringlu að geta þess við Is-
lendinga að þeim sé velkomið að finna
sig að máli í sambandi við alt það sem
þeir vilja fá hjá bæjarráðinu. Mr.
Sutherland kveðst viljugur að gera fyr-
ir íslendinga ókeypis alt það sem hann
geti áorkað þeim til hagsmuna í bæjar-
málum. Skrifsfofa hans er í Mclntyre
Block Main St.
í fyrradag fanst maður liggjandi á
St. Norbert veginum, 5 juílur frá Win-
nipeg. Það hafði hálffent yfir hann. og
var hann að sjálfsögðu dauður. Byssa
og gönguprik lágu við hlið hans og var
auðséð að maðurinn hafði skotið sig í
höfuðið, og svo var hann skemdur í
andliti að hann var vart þekkjanlegur.
Á klæðabúnaði virtist hann vera út-
lendingur, ef til vill Galiciumaður.
Fáeinir dollarar fundust í vösum hans.
Ekki er enn þá kunnugt hver maður
þessi muni veia.
Enn er tækifœri
að fá sérstðk kjörkaup hjá Stefáni Jónssyni á niðursettu vörunum; þær
eru samt óðum að minka. Þeir sem hafa keypt þær, hafa virkilega álit-
ið það sinn gróða. Einnig er altaf að koma inn sumarvarningur af öll-
um mögulegum tegundum fyrir fólkið, drengjafatnaður, karlmannafatn-
aður með ágætu sniði (sem kallað er “Fitt Reform”), Reynið að finna S,
Jónsson þegar þið þurfið að fá ykkur fallegt (Suit of Clothes), líka fyrir
litlu drengina, S. Jónsson óskar að sem flestir komi. Hann er ætíð
reiðubúinn að gera það bezta sem hægt er fyrir sína viðskiftavini.
S. J0HNS0N.
N. E. nORÍT ROSS AVE. 00 ISABELL ST.
Hra. Hafliði Goodman, frá Glen-
boro, kom til bæjarins í fyrradag til
lækninga við hálsmeini, læknar segja
hann geti komist heim aftur eftir viku.
Stúkan “Skuld” heldur útbreiðslu-
fund á North LFest Hall miðvikudag-
inn 28. þ. m, kl. 8 síðdegis. Þar verður
fólki skemt með margskonarsöng, hljóA-
færaslætti ræðum, upplestrum og fl.
Aðgangur ókeypis fyrir alla.
Vikingar unnu.
Munið eftir rafmagnsbeltunum
góðu; þau lækna gigt, hðfuðverk,
meltingarleysi, tannpínu og taugasjúk-
dómaalla. Þau fást á skrifstofu Hkr.
Kosta$l 25; send til ísiands $1,50.
Herra Jörundur Ólafsson kom til
bæjarins fyr r helgina, vestan frá Win
nipegoses, þar sem hann hefir stundað
fiskiveiðar i vetur. Hann ætlar að |
dvelja í bænum um tíma.
Hra. Andrés F. Reykdal frá Head-
ingly var hér í bænum í síðustu viku í
lögsóknarerindum mót C.P.R’ fél. Um
80 ekrur af landi hans brunnu í Október
síðastl. af neistum frá gufuvélum fél.
Mr. Reykdal hefir gert $700kröfu
hendur fél. og vonast til að geta komist
að samningum við það um borgun
kröfunni eða að minsta kosti á parti af
henni. Nokkrirfleiri af nábúum Reyk-
dals urðu lyrir skaða á löndum sinum á
likan hátt og af sömu orsek, og hafa
þefr einnig lagt inn skaðabótakröfu til
félagsins.
Víkingar unnu sigur á I. A. C.
Hockey-félaginu í Mclntyre skauta
skálanum á fimtudagskvöldið var. Vík
ingar eiga nú bikarinu sem barist var
um og eru nú Hockey Champions ísl
í Manitoba.
Vilhjálmur Pétursson, frá West-
bourne. kom hingað i siðustu viku að
leita sér lækninga við blóðtæringar-
sjúkdómi, sem hefir þjáð hann um
nokkra undanfarna mánuði Dr. Ólafur
Stephensen hefir tekið að sér að stunda
hann meðan hann er i bænum.
Salvation Army félagið ætlar að
byggja virðulega byggingu á horninu á
King og Rupert Sts. hér í bænum á
næsta sumri. Húsið á að kosta $12,000
vera tvíloftað, 80 fet á hvern veg. Turn
verður á þvi horni hússins sem snýr að
ctrætunum. Aðal-salur hússins á að
rúma 1000 manna. Uppdrættir allir
eru fullgerðir og tilboð um að byggja
húsið gefin út, þau eiga að opnast af
þar til gerðri nefnd þann 24. . m. og
má þá búast við að bráðlega verði tekið
til starfa við bygginguna eftir þann
tíma.J
Skýrsla y r þær umbætur sem
gerðar voru hér á strætunum i síðastl.
2 ár, er nýútkomin, 1898 kostuðu þær
bæinn $150.450 en siðasta ár kostuðu
þær $384,250—$534,700. í þessu er ó
talinn allur kostnaður við vatnsverkið
og lýsingaráhöld. að eins talin umbót á
sjálfum strætunum.
Séra Magnús Skaptason kom til
bæjarins á fimtudaginn var. Hann
hélt tafarlaust til Selkirk og þaðan til
Nýja Islands og er væntaniegur aftur
31. þ. m. og messar þá væntanlega
næsta dag, 1. ápríl. Séra Magnús læt-
ur vel af hag landa i bygðarlagi sinu,
segir þar veðurbliðu og þegar hann fór
þaðan var þar or ðið nálega snjólaust.
Listers Alexandria og Melette skil
vindurnar eru á ný auglýstar í blaði
voru. Það er óþarfi fyrir Heimskringlu
að mæla með þeim; sífelt vaxandi sala
þeirra er bezta sönnunin um gæði
þeirra, auk ess sem þær eru odýrari
en aðrar vélar, gera þær sama gagn
Þetta vita þeir sem reynsluna hafa og
þess vegna alægjast menn helzt eftir
þeim.
Stórkostleg sendinefnd kom til bæj
arins á föstudaginn var, til að biðja
fylkisstjórnina um styrkveiting til
Northern Pacific félagsins. til að fram-
lengja brautir sínar hér í fylkinu, vest
ur og suðvestur, Mr. Macdonald svar-
aði nefndinni mjög alúðlega og kvaðst
mundi taka beiðni hennar til greina, og
sér þætti trúlegt að hann gæti samið
svo viðN. P. R. fél. að óskir þeirra
gætu orðið uppfyltar á komandi sumri.
Þeir herrar Jóhann Stefánsson og
Ingvar Ólafsson frá Winnipegoses
komu til bæjarins á fimtudaginn var.
Þeir láta vel af liðan landa vorra þar
Vestra og segja nú vera um 100 íslend
inga í Wlnnipegosesbæ. þar með tald-
ar 5 fjölskyldur sem komu þangað frá
Norður-Dakota á síðastl. sumri. I<and-
ar vorir stunda þar daglaunavinnu í
bænum þegar þeir eru ekki við fískveið-
ar. Annars hefir fiskveiðin reynst þar
með bezta móti í vetur, hún er stunduð
norður í vatni, á annað hundrað mílur
frá bænum, og fiskinum svo ekið frá
veiðistöðinni vestur að enda Swan
Riverbrautarinnar, um 60 milur, og
þar sett á járnbrautarvagna og ekið til
markaða. Hvftfiskur var i sæmilegu
verði, fyrst 5c. pundið og síðar, frá 10.
febrúar, féll hann niður í 3Jc. hvert pd.
En þó sögðu þeir féíagar að veiðin hefði
borgað sig vel, auðvitað gengi mönnum
misjafnlega vel í því sem öðru, en með-
altalið mundi þó verða $100 gróði um
hvern vetrarmánuð, að frádregnum öll
um kostnaði. Sumir g°rðu enda mikiu
betnr, fengu alt að $250 um mánuðinn
og er það ágætur arður. Það er sem
næst launum landshöfðingjans yfir ís-
landi. Þeir félagar gerðu sér ekki von
um að svona vel gengi á hveiju ári
framvegís, Töldu þeir víst að veiðin
fari minkandi eftir þvf sem lengur
væri fiskað og fleiri stunda þá atvinnu
En þrátt fyrir það mundi veiðin reyn-
ast lífvæniegnr atvinnuvegur fyrir fjölda
manna framvegis.
Bankrupt Stock félags auglýsingin
í þessu blaði verður þess virði að menn
lesi hana með eftirtekt. Vörurnar sem
þar eru auglýstar, eru svo ódýrar að
það er blátt áfram skaði fyrir verzlun
bæjarins að þær skuli vera boðnar með
svo lágn verði. Vér þorum að stáð-
hæfa, að margt af þeim er nú boðið
langt fyrir neðan verksmiðjuverð, og
það er ósanngjarut gagnvart öðrum
verzlunarmönnurn. En á hinn bóg-
inn er það hagur fyrir þá sem nú hafa
skildingaráð til þess að ná í kjörkaup-
Ég Thorst. Thorkelson Grocer að
539 Ross Ave , geri kunnugt, að í bréfi
sem ég hef nýlega fengið frá Ontario
standa þessi orð: ‘ Eg hef iesið auglýs-
ingu þína í Heimskringlu 15. þ. m., og
þykir mér furðu sæta hvað billega þú
selur”. En hvað skildi moga segla um
sauðar-harigikjötið sem nú er í búðinni
1250 pund fyrir að eius 10 cents pundið
fyrir periinga út i hönd. Þeir sem
fyrstir koma fá bezta úrvalið. En alt
kostar jafnt, lOc. pundið. Einnig hefa
ég miklar byrgðir af svínakjöti meó
lágu verði eins og auglýst var í síðasta
blaði. Fólk í Manitoba ætti sannar-
lega ekki að veigra sér við að kaupa
vörur mínar úr því að menn í Ontario
sjá sér hag i að skifba við mig.
Th. Thorkelson.
Á fimtudagskvöldið 15. þ. m. þreyttu
Víkingar I suðurbænum kappleik við ís-
lenzka leikfimisfélagið, sem skamstaf-
að á ensku er I.A.C., og lyktaði svo, að
Víkingar unnu eftir barða baráttu og
langa, með 3 mörkum (goals) á móti 2.
Leikir þessir hafa vakið talsverða
hluttöku hjá meðhaldsmönnum begcja
klúbbanna. Var því margmenni saman
komið til að horfa á þennan síðasta leik
og hvetja leikendurna til drengilegrar
framgöngu. I fyrri leikjunum höfðu fé-
lögin verið mjög jöfn og var gert heyr-
um kunnugt, að nú mundi hver gera
sitt ýtrasta, enda kom þaðfram. Leik-
urinn fór að öllu leyti mjög vel fram og
munu þessir klúbbar. hvað leikfimi
snertir, ekki standa mikið á baki sumra
betri ensku “hockey”-félaga hér í bæn-
um.
Eins og til stóð var byrjað þegar
klukkan var rúmlega hálf niu. Fyrri
hálftímann gekk leikurinn heldur I.A C.
í vil. Hvorugir tóku mjög nærri sér ;
það leit út fyrir að hvor hlið fyrir sig
hefði beig af hinni. Leit oft út fyrir að
I. A. C. myndu vinna mark, en vegna
þess hve markvörður Júlíus varðist vel,
þá varð ekki af því. Fúsi Byron og
Jón Swanson gerðu skarpar atrennur
þeir tóku oft soppinn (puck) af miðjurn
isnum og hlupu af stað i áttina til marks
þeirra Víkinga. Hvað eftir annað voru
þeir stöðvaðir af þeim varðmönnum
Víkinga, Páli og Hannesi. Einnig stóð
Sigurður Johnson karlmannlega fyrir
árásum þeirra. Samt tókst Byron að
komast tvisvar fram hjá þeim báðum,
og leit út fyrir að hann mundi hæfa
markið en í bæði skiftin náði Magnús
Jónsson honum og forðaði marki Vík-
inga úr hættu. Lauk svo fyrri helm-
ingnum að hvorug hliðin náði marki.
Nú hvíldu báðar hliðar sig i 10 mín-
útur. Eftir að leikurinn var hafinn að
nýju, varð Byron, með mjög skörpum
leik, fyrstur til að vinna merki fyrir I.
A. C- Um lpíð og soppurinn flaug yfir
merkið, lustu aðstandendur I.A.C. upp
svo miklu fagnaðarópi, að skálinu nötr-
aði allur og skalf. Við þetta vöknuðu
Víkingar og tóku þeir svo alvarlega til
starfa, að eftir 2 mínútur skaut Gunn-
lögur Auderson soppnum og hæfði mark
I.A.C. Gleðióp fylgismanna Víkinga
var nú ekki minnaen hið fyrra. Fóru
kappleikendurnir nú ekki að draga af
sér og mátti 'engi ekki í milli sjá hvorir
betur mundu hafa. Byron gerði marg-
ar skarpar atrennur, en oftast náðu
aðrir soppinum frá honurn. S. Swanson
og B. Ólafsson vörðust ágætlega árás'
urn frá sækjendum Víkinga. En þrátt
fyrir það náði M. Jónsson í soppinn
þegar hann var nálægt marki I.A.C. og
skaut honum í gegn. Varð nú ákaflegt
gleðióp meðal fylgismanna Vikinga.
Stóðu nú vinningar 2 á móti 1 Víking-
um í vil. Það sem eftir var t.ímans var
snörp viðureign af beggja hálfu. Tím-
inn leið smámsaman. að eins 5 mínútur
eftir og Vikingar ennþá á undan; 2
mínútur------1 mínúta, og engin breyt-
ing á vinningum. En altaf harðnaði
orustan. Allir töldu nú víst að Vfking-
ar mundu bera sigur af hólmi. En bið-
un við, þegar að eins voru 10 sekúndur
eftir af hinum tiltekna tíma, lyfti varð-
maður Swanson soppinum frá miðjum
isnum og skaut honum í gegnum rnark
Víkinga Lesendur verða að fmynda
sér fagnaðarlætin í fólkinu. Um leið
var tímina liðinn og stóðu nú báðir
flokkar jafnir að vinningum. En for-
ingjar flokkanna komu sér bráttsaman
um að reyna til fullnustu þangað til
önnurhvor hliðin inni mark. Víkingar
hafa eflaust minst nafna sinna í fornöld
þvi úr þessu báru þeir hærra hlut i við-
skiftunum. Magnús Jónsson og Ólafur
Ólafsson gerðu á mis skörp og drengileg
áhiaup, er varðmenn I.A.C. gátu illa
staðist. Eftir 15 mínútna harða viður-
eign skaut Óli í g gnum mark I.A.C.
og var þar með sigur Vikinga fullkom
inn.
Ekki var soppurinn fyr kominn yfir
markið, en fjöldi fólks þusti úr öllum
Verjendur
áttum fram á isinn með fagnaðarlátum
yfir úrslitunum.
I. A.C. báru ósigur sinn eins og sann-
ir íþróttamenn og foringi og forseti
klúbbs þeirra árnuðu Víkingum heilla.
Leikendur voru þessir :
I. A. €.: 4
S. B. Jonson, markvörður.
B. Ólafsson )
(foringi) V Verjendur.
S. Swanson )
F. Byron J
J. Swanson j c, , . ,
J.G. Snædal $ Sækjendur.
M.J.Peterson J
ViK íiignr :
F. J. Ólafsson, markvörður.
Hannes Thompson
Paul Johnstone
Magnús Jónsson
(foringi)
Olafur Olafsson J- Sækjendur.
G. Anderson j
S. Johnson J
Dánarlregn.
Þann 14, þ. m. andaðist á almenna
sjúkrahúsinu hér í bænum, Geirlaag
Guðmundsdóttir, frá Selkirk, Man.
Hún hafði um nokkur undanfarin ár
þjáðst af lifrarsjúkdómi, er loks varð
henni að bana. — Geirlaug sál. var 53
ára gömul, ættuð af Skagaströnd í
Húnavatnssýslu; fluttist út hingað fyr.
ir 12 árum síöan og settist að i Selkirk
og bjó þar til dauðadags.—Geirlaug sál,
var góðgerðasöm og vönduð kona og
ástrík móðir. — Henni varð tveggja
dætra auðið; er sú eldri gift Þorvaldi
Sigvaldasyni i Selkirk, en hin er 12 ára
að aldri,—Útför hennar fór fram '9. þ
m. frá heimili hinnar látnu, i Selkirk,
undir umsjón Mr, Arinbj, Bardals héð-
an úr bænum.
*******#*****#tt*tt#tt#tt#«#«*
I DREWRY’S *
■>»**
e
->**r
vrr
ttfc.
0
0
0
0
0
0
0
0
0
nafnfræga hreinsaða öl
“i’reyðir eins og kampavín.”
Þett er óáfengur og svalandi sælgætis-
drykkur og einnig hið velþekta
Canadiska Pilsener Lager-öl.
Ágætlega smekkgott og sáínandi i bikarnum.
náClr r drykkir er seldir í pelaflöskum og sérstaklega ætl-
aðir til neyzlu i heimahúsum. — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. Fæst
hjá öllum vín eða ölsölum eða með því að panta það beint frá
REDWOOD BREWERY.
EDWAKÐ L DREWRY
Manntacínrer & Iniporter, WIJSll’EG.
00000000000000000000000000
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
FUNDARBOÐ.
Hér með auglýsist að fundur verður
haldinn i samkomuhúsinu á Brú, i
Argylebyggð, á mánudaginn hinn 2
April næstkomandi, kl. 2 eftir miðjan
dag, til þess að ræða um íslendinga-
dagsmál.
Æskilegt er að fundur þess verði
rækilega sóktur.
Glenboro, 13. Marz 1900,
Fr. Friðriksson.
Björn Jónsson.
LJÓÐMÆLI.
Ný útkomið er ljóðmælasafn eftir
Kristinn Btefdnsson og er til sölu hjá
höf. að 789 Notre Dame Ave. West, og
hjá H. S, Bardal að 557 Elgin Ave.
Winnipeg. Kostar í kápu 60 cts.
I.O.F.
— STUKAN “ÍSAFOLD”
Nr. 1048, heldur fundi 4.
þriðjudag hvers mánaðar.
Embættismenn stúkunnar eru :
í jC.P—Stefán Sveinsson, 553Ross Ave.
P.C R—S.Sigurjónsson, 609Ross Ave.
V.C.R—W. Paulson,
R.S.—J Einarsson, 44 Winnipeg Ave.
F.S.—S. W. Melsted 643 Ross Ave
Treas.—Gísli Olafsson, 171 King St.
Phys. —Dr.Ó.Stephensen .563 Ross Ave
Allir meðlimir hafa fríalæknishjálp.
Viltu borga $5.00 fyrir góðan
Islenzkan spunarokk ?
Ekki likan þeim sem hér að ofan er
sýndur, heldur íslenzkan rokk. Ef svo,
þá gerið umboðsmönnum vorum aðvart
og vér skulum panta 1000 rokka frá
Noregi og senda yður þá og borga sjálfir
Uutniugsgjaldið. Rokkarnir eru gerðir
úr hörðum við, að undanteknum hjól-
hringnum. Þeir eru mjög snotrir og
snældan fóðruð innan með hlýi, á hinn
haganlegasta hátt.
Mustads ullarkambar
eru betri en danskir J. L. kambar af því
þeir eru blikklagðir, svo að þeir rífna
ekki. Þeir eru gerðir úr grenivið og
þessvegna léttari. Þeir eru betri fyrir
amerikanska ull. sem er grófgerðari en
íslenzka ullin. Krefjist því að fá Must-
ads No. 22, 25, 27 eða 30. Vér sendum
yður þá með pósti, eða umboðsmenn
vorir. Þeir kosta $1.00.
Stólkambar.
Tilbúnir af Mustads, grófir eða fínir.
Kosta $1.25.
Gólfteppa veflarskeiðar.
Með 8, 9, 10, 11, 12, 13 eða 14 reirum á
þumlungnum. Kosta hver $2.50.
Spólurokkar.
Betri en nokkur spunarokkur til þess
brúks. Kosta hver $2.00.
endingarbetra en það annars mundi
verða. Það hefir verið notað af fiski-
mönnum á Norðurlðndum i hundruð ára,
Ein askja kostar, eftir stærð, 10c., 25c.,
50c. og $1.00, hvort heldur fyrir skó eða
aktýgi._______________________t
Smokine.
Það er efni sem reykir og verndar kjöt
af öllum tegundum, fisk og fugla. Það
er borið á kjötið eða fískinn með busta,
og efrir eina viku er það orðið reykt og
tilbúið til neyzlu. Með þvi að reykja
matvæli á þennan hátt, þarf hvorki að
hafa þau nálægt hita, né heldur þar sem
flugur eða ormar komast að þeim. Ekki
minka þau og innþorna og léttast, eins
og þegar reykt er við eld. Þetta efni er
heldur ekki nýtt. Það hefir verið notað
í Noregi í nokkrar aldir. Pottflaskan
nrtgir til að reykja 200 pund. Verðið er
75c. og að auki 25c. fyrir burðargjald.
Notkunarreglur fylgja hverri flösku.
Svensk sagarblöð,
3Jfet og 4 fet á lengd. Þér hafið eflaust
heyrt getið um svenskt stál. Þessi blöð
eru búin til úr þvi og eru samkynja
þeim sem brúkuð eru á Islandi. Grina-
irnar getið þér sjálfir smiðað, eins og
þér gerðuð heiraa. 3J löng sagarblðð
kosta 75c. og 4 feta $1.00. Send með
pósti gegn fyrirframborgun.
Phoenix litir.
Þeir eru búnir til i Þýzkalandi. og vér
höfum þekt þá í Noregi. Svíaríki. Dan
mörku og FinnlanJi, og voru þeir í
miklu áliti þar. Verzlun vor sendir vör-
ur um allan heim og litirnir hafa verið
brúkaðir i siðastl. 40 ár. Ver dbyrgjumst
að þessir litir eru góðir. Það eru 30 litir
til að lita ull, léreft, silki eða baðmull
Krefjist að fá Phoenix litina. þvi ís
lenzkar litunarreL'lur eru á hverjum
pakka, og þér getið ekki misskilið þær
Litirnir eru seldir hjá öllum undirrituð
ura kaupmönnum. Kosta lOc. pakkinn
eða 8 fyrir 25c. eða sendir með pósti
gegn fyrirfrarn borgun.
Norskur hleypir,
til osta og búðíngagerðar o.fl. Tilbúinn
úr kálfsiðrum, selt í flöskum á 25c., 45c.,
75c. og $1 25.
Norskur smjörlitur.
seldur m*-ð sama verði og hleypirinn.
Fleury
er drengur góður, farið þess vegna til
hans og kaupið að honum: Vor-yfir-
hafnir, sumar-atfatnaði. hattjeða húfu,
skyrtu eða hvað annað sem lýtur að
karlmannafatnaði,
504 illaiii Strcef,
Gagnvart Brunswick Hotel.
Borthens þorskalýsi.
Þér þekkið vissulega norska þorsgalýs-
ið, en þér vitið ekki hversvegna það er
hið bezfca lýsi. Við strendur fslarids og
Noregs vex viss tegund af sjóþangi.sem
oorskarnir éta, orr hefir það þau áhrif á
ifur fiskanna, að hún fær í sig viss á-
kveðin heilbrigðisefni, sem læknar segja
hin beztu fituefni sem nokkurntíma haf»
þekst. Lýsið er ágætt við ðllum lungna
sjúkdómum. Það eru ýmsar aðferðir
við hreinsun lifrarinnar. Mr. Borthens
hreinsunaraðferð er sú bezta sem enn
hefir verið uppfundin. Lvsi hanser því
hið bezta sem hægt er að fá. Ennfrem
ur ber þess að gæta. að Borthens þorska-
lýsi er einungis búið til úr lifur úr þeirn
fiskum. sem veiddir eru í net og eru með
fullu fjöri. Sá fiskur sem veiddur er á
linu, veikist eins fljótt og öngullinn
snertir hann. Þar af leiðir, að lýsi sem
brætt er úr lifur úr færafiski. er óholt
og veikir en læknar ekki. Krefjist þess
vegna að fá Borthens lýsi. Verðið nr ■
ein mörk fyrir $1.00, pelinn 50c. Skrifið
oss eða urnboðsmönnum vorum og fáið
hið bezta og hollasta þorskalýsi.
Áhöld tll bökunar í heima-
húsum.
NORSK VOFLUJAHN, mótuð í lfk-
ingu við 5 hjörtu. Mótin eru sterk,
þung og endingargóð. Þau baka jafn-
ar og góðar vöflur og kosta $1.25.
N0R8K BRAUÐKEFLI, fyrir flat-
brauð Kosta 75c.
ROSAJARN. Baka þunnar, fínar og
ágætarkökur. Verð 60c.
DÖNSK EPLASKIFUJARN, notuð
einnig á Islandi. Kosta 50c.
• OOROJARN. Baka þunnar “wafers”-
kökur, ekki vöflur. Kosta $1.35.
LUMMÚJARN. Baka eina luramu f
einu. Þær eru vafðar upp áður en
þær eru bornar á borð og eru ágætar,
Kosta $1.25.
8PRUTSJARN. Þau eru notuð við
ýmsa kökugerð, og til að móta srajör
og brjóstsykur ogtil að troða út langa
(Sausage). Þeim fylgja 8 stjörnumót
oe 1 trekt. Send með pósti. Verð$1.00
Eftirfylgjandi menn selja ofantaldar
vörur:
HansT. Ellknson,
J. B. Buck,
Hanson & Co.,
Syverud Bros,
Bidlake & Kinchin,
Geo. W. Marshall,
Adams Bros..
C. A. Holbrook & Co.
S. Tiiorwaldson, Akra “
P. J. Skjöld, Hallson *‘
Elis Thorwaldson. Mountain “
Oli Gilbertson. Towner “
Thomas & Oiinstad, WillowCity “
T. R. Shaw, Pembina “
Thos. L. Price, “ “
Holdahl & Foss, Roseau, Minn.
Gislason Bros. Minneota “
Oliver & Byron, West Selkirk, Man.
‘•IGURDSON Bros . Hnausa “
Thorwaldson & Co., Icel River “
B. B. Olson, Gimli “
G. Tiiorsteinsson, “ “
Gisli Jónsson. Wild Oak “
”AL LDÓR Eyjólfsson. Saltcoats. Assa
ÁRNII I'RmRiKssoN. 6M Ross Ave. Wpg.
rí*1' JC,l"lt,£í‘IjSsoN. 439 Ross Ave. “
ÍU' ®°2,dman, Ellice Ave. “
Pétur Thompson, Water St. “
m Gallonquist, Logan Ave. “
T Nelson & Co., 321 Main St. »
G. Sohnson, S. W. Cor. Ross & Isabel.
Biðjið ofanskrifaða menn um þessar
vörur, eða ritið beint til aðal-verzlunar-
stöðvanna
Alfred Anderson
Milton, N.D.
Edinburgh “
ii n
Osnabrock “
C» li
Crystal “
Cavalier “
Heymann Bloch’s heilsusalt.
Vel þekt um alla Évrópu og á íslandi
fyrir heilnæm áhrif í öllum magasjúk
dómum. Það læknar alla magaveiki og
styrkir meltingarfærin. Það hefir með-
mæli beztu lækna á Norðurlöndum. og
er aðal lækningalyf í Noregi, Svíaríki
Danmörku og Finnlandi. Það er selt
hérlendis í ferhyrndum pökkum. með
rauðprentuðum neyzlureslum. Verðið
er 25c. Sent, með pósti ef viðskifta-
kaupmenn yðar hafa það ekki.
Whale Amber
er önnur framleiðsla Norðurlanda. Það
er búið til úr beztuefnum hvalfiskjarins
Það mýkir og svertir og gerir vatnshelt
og endingargott alt leður. skó, stígvél,
aktýgi og hesthófa, og stiður að fágun
leðursins með hvaða blanksvertu sem
það er fágað. Ein askja af þessu efni
verndar leðrið og gerir það margfalt
cte
Western Importers,
1310 Washington Ave. So.
MINNEAPOLIS, MlNN.
Eða til..
Gunnars Sveinssonar,
Umboðsmanns fyrir Canada.
195 Princess Str., Wirinipeg, Man.
Nói dansaði á brókinni.
Það var ekki sama vínið sem Nói
dansaði blindfullur á brókinni af, sem
'U J Bawlf. IFholesale & Reatale vin-
sali á Princess Street Selur.
Hann selur gott vín. sterkt vín,
dauft vín, ódýrt- og dýrt vín, og vindl-
arnir alveg'fyrirtak.
W. J. BAWLF.
fcirnin Kxeliniige Itnilding,
PRINCESS ST. WINNIPEG.