Heimskringla - 17.05.1900, Blaðsíða 1

Heimskringla - 17.05.1900, Blaðsíða 1
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦(p j Eldastór íyrir $8.50 | Isskápar tyrir 8.50 ♦ ♦ ♦ Steinolíueldastór $5.00 og yfir X Trading Stamps. Casli Coupons. ♦ ANDERSON & THOflAS, + jARNVdH.USAI.Ali 538 Main St. ^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦í ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ■♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦n^ Screen Doors, Screen Windows, Vírnet til aö búa til ur sumarhurðir og glugga; Vírnet til fugiagiröinga. Tradmg. Stamps, Cash Coupons ANDERSON & THOMAS, Jarnvörusajlak 538 Main St. )♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦( XIV. ÁR WINNIPEG, MANITOBA 17. MAI 1900. Nr. 32. PENINQAR LANADIR. Hægar mánaðar afborganir. Vér erum umboðsmenn fyrir hið bezta og ríkasta lánfélag sem bækistöðu hefir í Winnípeg. EIGNAST Laglegt og vel vandað einloftað hús (Cottage) á Alexander Ávenue ? Það er úr timbri, á steingrunni og kostar $1200. TAKID VATRYGQINQ— {..Tl[g PnoEf,IX OP london”. Það er hið elzta og bezta vátryggingafélag í heimi. Nares, Robinson & Black, Bank of HamDtoii tJimiiln-rs. The Home Life Association of Canada. Aðalskrifstofa í Toronto. “Höfuðstóll—ein millíón dollars." 1 all trygging í höndum sambandsstjérnarinnar. Lifsábyrgðarskýrteiui Home Life félagsins gilda hrar i heimi sem er. Eng- in höft eru lögð á skírteinishafa hvnð snertir ferðalög. bústað eða atvinnu. Þau eru ömótmælanleg eftir eitt ár frá dagsetningu. . Skírteinin hafa ÁBYRGST VERÐGILDI í uppborgaðri lífsábyrgð pen- ingum og lánsgildi, eftir þrjú ár. ’ Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess hjá W. H. WHITE, ARNI EGGERTSSON, MANAGBR. GENERAL AGENT. Mclntyre Block, Winnipeg. P.O Box 845. Frjettir. Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. 6000 Bandaríkjahermenn, sem voru í hernaði iá Filipseyjunum, eru nú að lögsækja New York-stjórnina fyrir aukaborgun. Þeir hafa fengið John C. Judge, frægan lögfræðing í Brook- lyn, til þess að sækja mál þetta fyrir sína hönd, og átti það að koma fyrir rétti Albany. Mr. Judge segir, að New York-Stjórnin sé skyidug til að borga hverjum hermanni $1,25 fyrir hvern dag, sem þeir hafa verið í her- þjónustunni, auk þeirrar borgunar, er þeir fá frá Washingtonstjórninni, en yfirmönnum hærri daglaun, eftir stöðu þeirra í hernum Þessir 5000 hermenu sem Judge er að vinna fyrir, eiga allir heima í New York riki, og þess vegna sækja þeir ríkisstjórnina að lögum. — Mr. Judge segir að hver þessara manna hafi unnið í 240 daga—8 mánuði, og er því krafa hans fyrir þeirra hönd 81J milíón. Ef hann vinnur þetta mál, þá kveðst hann ætla að sækja mál fyr- ir aðra hermenn, sem í striðinu hafa verið, og telur hann svo til. að öll upp hæðin sem allir hermennirnir eiga heimtingu á að fá, nemi $5,000,000. Ný sprengikúla hefir verið fundin upp í Bandarikjunum; er hún talin betri en nokkuð annað, sem áður hefar verið uppgötvað af þeírri tegund, og svo aflmikil, að engar bryndrekaverjur séu til, sem hún ekki sprengi hæglega. Nýkomin bréf frá Suður-Afríku bera þá frétt, að ósigur Breta við Koorn Spruit, fyrir nokkrum vikum. hafi verið eingöngu að kenna Roberts hershöfðingja. Col. Broadwood var búinn að segja Roberts, að Búar hefðu mikinn liðsafnað alt í kringum herdeild ir sínar, en Roberts gaf þessu engan gaum, og skipaði Broadwood að halda liðinu að vissnm stöðvum; kvað fátt *■ ‘ 9: ■-« r*..; ve.?'a á leið har.s. Afleiðingin af þessu var sú, að Búar umkringdu lið Breta, bar sem það var á ferðinni samkvæmt skipunum Ro- berts; mistu Bretar þar marga failna, særða og fangaða. Á sama tíma, sem bréf þessi bár- ust til Englands, komu fréttir um sigra Breta-hersins hvar sem hann fer yfir landið. Síðustu fréttir segja Breta nú vera norðan við Vaal-ána, en það er um 70 milur norður af Bloeinfontein og um 180 mílur suður frá Pretoria. Bret- ar hafa nýlega tekið Smaldel og Four- teen Streems, sem hvortveggjavoru á- litin öflug vígi Búanna. Búar eru nú á undanhaldi norðurtil Kroonstad-hæð- anna og munu þar ætla að veita Bret- um viðnám eftir föngum. — Hunter herforingi, sá sem fyrstur kom her sínum norðuryfir Vaal-ána, gerir ráð fyrir að geta ru t sér braut norður til Mafeking og leyst borgina úr herkví Búanna, enda er þar þörf á bráðri hjálp, með því að Bretar þar hafa að eins tveggja vikna matarforða, þó að sparljga sé á haldið. Það sem mest stendur fyrir framsókn Breta er það, að Búar eyðileggja allar brýr á ám, sem þeir fara yfir og skemma járnbrautir, þar sem þeir halda að Bretar fari um. Nýlega fundu Bretar stóra pakka af dynamite á hverjum 100 yards, grafna undir járnbraut, sem Breta var von með lestir sinar. Bretar láta rannsaka nákvæmlega hvert fet af Iandi áður en þeir halda herliðinu áfram, því að Bú- ar hafa víða skilið eftir sprengiefni þar sem þeir búast við að Bretar fari um. —Þess er getið í hraðskeyti frá Mafe king, að28. Apríl kostaði hveitipundið $10 og þriggjapela flaska af Whiskey $100. Búar eru nú að bua um sig í Zei- ríkinu. Hafa þeir þar gnægðir af vist- um og vopnum og ætla þar að láta fyr- irberást yflr veturinn. Yfir 12000 innflytjendur hafa tekið sér bólfestu í Manitoba og Norðvestur- landinu síðan á nýári. 6,689 bændur tóku sér heimilisréttarlönd á síðasta ári, og þar að auki keyptu inntíytjend- ur þá 45 502 ekrur af landi. Á sama ári komu hiugað til Canada 33,203 menn frá útlöndum. 30,000 þeirra komu til Manitoba. 16,000 Galiciu- menn hafa komið hingað á síðastl. 3 árum og að auki 7,400 Dohkhobors. Alt þetta fólk hefir sezt að í Manitoba og Norðvesturhéruðunum, Gullskatturinn í Yukon á síðastl. ári nam $575,812. Sú upphæð gekk í ríkissjóð. firetar hafa tekið Kroonstad. Sá staður er miðjavega milli Bloemfontain og Pretoria. Það er nú álitið að stríð- ið sé nær þyí útkljáð. Búar láta hver- vetna síga undan ásókn herdeilda Breta og margir þeirra hafa lagt niður vopn sín og haldið til heimila sinna. En gamli Kruger stappar í þá stálinu og kveðst halda ófriðnum áfram til þess ítrasta. Gen. Roberts hefir sýnt mikla herkænsku í síðustu nokkrar vikur og er það álit blaða- og hermálamanna á Englandi og Þýzkalandi, að búar hafi enga ástæðu til að berjasilengur. Það er nú útséð með öllu um að þeir geti haldið sínu fyrir Bretum. Menn furð- ar á þvi, að Búar skyldu ekki veita inn- reið Breta í Kroonstad neina mótspyrnu, þykir það ljós sönnun þess, að þeir séu búnir að missa móðinn. Breta stjórn hefir látið.þess getið að friðarsamning- ar verði gerðir með því eina móti, að Transvaal gerist brezk nýlenda og sé að öllu leyti undir yfirráðum Breta, sem setja herstjórn þar í landi til að byrja með. Kruger verðnr að gefa eftir í öll- um atriðum og ganga að þeim kostum sem Bretar ákveða að setja honum. Sanford fatafélagið í Hamilton hefir fengið pöntun frá hermáíastjórn Breta um 30,000 alfatnaði handa hermönnum í Suður-Afríku. Þessir fatnaðir eiga að vera fullgerðir innan 4 mánaða og send- ast til stjórnarinnar ekki færri en 2,000 fatnaðir á viku. Það er í orði á Englandi að málm- peningasláttustöð verði komið á fót í Canada innan skams tíma. Stór eldur kom upp í bænum Fukin á vesturströnd Japan, þann 18. Apríl, nær 2,000 hús af öllum stærðum brunnu til ösku, 16 manna brunnu til ólífis og lOsærðust. Skaðinn metinn $2J milj. Gufuskip byrjuðu að ganga eftir Yukon ánni, alla leið til Dawson, þann 8. þ. m. Maður í Ottawa var nýlega dæmd- ur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að liafa stolið 5 centum frá nágranna sínum. Hull-Ottawa hjálparsjóðurinn er nú orðinn 750,000 doll. og fer daglega vaxandi. Smádrengur í Ottawa varð nýlega undir rafmagnsvagni og beið bráðan bana Móðir hans horfði á slysið, en gat ekki að gert. Stórkostlegt járnbrautarslys varð í Philadelphia um síðustu helgi og biðu margir bana. Slysið orsakaðist af því að vökumaður á brautinni hafði sofn- að og vanrækti verk sitt. Tveir menn í Quebec hafa framið morð og eiga að hengjast6, Júli næst- komandi. Bretar búast við að losa Mafeking úr umsáti Búanna í þessari viku. Capt. Dreyfus kom til Parisar á sunuudagskvöldið var. Stjórnin Jþar óttaðist að óeirðir mundu stafa af komu hans og bað hann því að hafa sig burt úr borginni svo fljótt sem hann gæti lokíð erindi sínu þar. I síðustu viku skautll ára gamall piltur í Ontario föður sinn til bana með skammbyssu, af því þeim varð sundurorða út af smáatriði. Pilturinn hafðilesið nokkrar ódýrar “Detective”- sögur, og til þess að líkjast hetjum þeim sem þar er lýst," hafði hann keypt sér skammbyssu og bar hana ætíð á sér. Fyrsta skotið lét hann ríða í höf uð föður sínum. Líkast þykir að pilt- urinn sleppi við hegningu sökum bernsku sinnar, en blöðin hafa tekið málið til meðferðar og fara all hörðum orðum um þanu part bókmentanna, er hafi þau áhrif á liuga ungra pilta, að gera þá að glæpamönnum, svo að segja Strax og þeir skríða úr vöggunni, Hnefaleikararnir Jeffries og Cor- bett börðust í New York á föstudags- kvöldið var, og vann Jeffries í 23. at- rennu. Jeffries er kallaður beztur hnefaleikari í heimi, Aldraður íri. John MacConan í Clay County, Florida, segist vera sá elzti maður, sem nú sé á eftirlaunalist- anum í Bandaríkjunum, og munu það ekki veia neinar ýkjur, þvíeftir skjöl- um í Washington er Nonui 121 árs gamall. Hann er fæddur á írlandi 1779, og flutti til Bandaríkjanna ]804 1863 bauðhann sig fram 1 þrælastríð- iuu, þá81 ára, og barðist undir merkj- um Norðanmanna þar til stríðið var á enda. Karl erenn við góða heilsu. Stríðið á Filipseyjum Herraritstj. Heimskringlu. Kæri vin:— Áður ea ég verð við bón þinni að rita þér eitthvað um Philippine eyjarn- ar, þá er nauðsynlegt að ég geri nokkr- ar skýríngar. Ég óttast að þetta bréf verði ekki i góðu samræmi við það bréf mitt, sem birtist í síðasta árs jólanúm- eri blaðs þíns. Ég bið engrar afsökun- ar á því, að segja að ég hafi breytt skoð- un mínni á Philippine-eyjum síðan það bréf var ritað. Þjóðirnar eru oft dæmd- ar ranglega og Philippin-eyjabúar hafa, ef til vill, fengið sinn fulla skerf af slíkum vanhugsuðum dómum. En eftir að hafa umgengist þá um nokkurn tima, hef ég sannfærst um, að sú þjóð hefir bæði góð og ill einkenni, á líkan hátt og aðrir þjóðflokkar. Sú spurning, sem við erum oftast beðnir að leisa úr, er: “Hver var orsök til uppreistarinnar a Filips eyjum?” og í stuttu máli mundi ég svara því, að. það hafi verið undandráttur Banda- ríkjastjórnarinnar í því, að veita eyja- búum nokkra ákveðna vissu um það, hvers þeir ættu að vænta. Uppreistin byrjaði af því að Merritt hershöfðingi neitaði að hafa íund með Aguinaldo, eftir að Bandamenn höfðu tekið ManiJla og varð almenn þegar Otis gaf út fyrsta valdboð sitt þann 4. Júli 1898. Þar sem hann gaf eyjaskeggjum til kynna að Bandaríkin hefðu slegið eignarrétti sinum á eyjarnar, án þess bann um leið lofaði þeim nokkrum sköpuðum hlut. En hægasta aðferðin til þess að komast að rótum uppreistarinnar er sú, að hyggja aftur í tímann þegar Adu iral Dewey var í Hong Kong. Hann fékk þangað hraðskeyti frá Col. General Pratt í Singapore, sem tilkynti honum að Aguinaldo væri fús til að koma til Hong Kong og semja við Dewey um samvinnu uppreistarmanna við Banda- menn, hjá Manilla, ef hann óskaði þess. Dewey sendi strax hraðskeyti að segja Aguinaldo að koma eins fljótt og hann gæti. Dewey varð að fara frá Hong Kong áður en Aguinaldo komst þangað. En Aguinaldo hélt á eftir hon- um á einu herskipi Dewey’s (McCoul- lock) þann 19. Maí og tók strax að fylkja liði sínu, og fyrir 13. Ágúst 1898, hafði hann tekið allar herstöðvar Spáverja á Filipseyjum, að undanteknum Manila og Uoilo. Friðarnefndin segir í skýrslu sinni að engir samvinnu samningar hafi virið gerðir við Aguinaldo, eða neina af mönnum hans, og að engin loforð um frjálsræði eða sjálfstjórn eyjauua hafi nokkurn tíma verið gefin nokkrum þeirra. Ef þetta er satt, þá er nokkur ósamkvæmni i eftirfarandi sambandi Banda- og Filipseyjamann. Uppreístarmö.inum var ekki ein- göngu leyft að taka herfangi hergagna- búriðí Cavite, heldur einnig að taka vopn og skotfæri úr hinum sokknu spönsku herskipum. Dewey kvaðst ekki hafa veitt uppreistarmönnum vopn eða skotfæri, Hafi hann ekki gert það, þá leið hann þeim að taka það, sem er mjög það sama og þó þeim hefði þetta verið gefið. Þegar fyrsti hópur Bandaríkja her- manna kom til Manila, þá voru upp- reistarmenn, sem voru í Cavite, beðnir að fara þaðan og lofa Bandarikjamönn- um að setjast i herbúðir þeirra. Upp- reistarmenn urðu samstundis við þess- ari beiðni og héliu liði sínu til Para- amarque og fylktu því þar og umhverfis Manila. Á meðan við dvöldum í Camp Dewey, höfðum við talsverð kynni af Filipseyjahermönnunum. Við höíðum þá að eius fengið lítinn smekk af hern- aðar útivist og höfðum óskeikula trú á eigin mætti, en fyrirlitum að vissu leyti þessa óhreinu og tötrum klæddu uppreistarmenn, sera sumir voru í ein- kennisbúningi en flestir í algengum fataræflum. Stjórn þeirra var ill, þeir virtust, koma og fara eftir eigin vild, án þess að þeiru væru nokkrar skorður settar. Þeir voru mjög vin- gjarnlegir við okkur hvenær sem þeir mættu okkur og sögðu þá vanalega á sínu máli “Amerikanar og Filipeying- ar eru góðir vinir”, Þeir gerðu enga tilraun til að dyljast þess að þeir von- uðu eftir fullkomnu stjórnfrelsi. Ekki heldur drógu Bandaríkjameun neitt úr vonum þeirra í þessu efni, og jafnvel þo að ákvörðun hernaðarins væri ekki su, að frelsa eyjaskeggja, þá voga ég að segja, að eftir að við komum þangað til eyjanna, þá voru menn okkar, und- antekningarlítíð, sannfærðir um það, að Filipseyjum mundi verða veitt sjálf stjórn. Þar^ 13. Ágúst lét, Gen. Merritt það boð út ganga frá Manilaborg, að við skildum halda uppreistarmönnum út úr borginni. Þetta var fyrsta árás- in, sem gerð var á þá af hendi Ame- ríkumanna. Það var búist við áhlaupi þá Uott og okkur var haldið við víg- isgrafargerð fram að miðnætti. Þeir höfðu komið inn í útjaðra borgarinnar og tekið ser aðsetur í opinberum bygg- ingum. Næsta dag kom Aguinaldo inn í borgina með öllum sínum foringj- um, en Merritt neita i honnm viðtals og litlu siðar var hann beðinn að taka lið sitt alt ut ur borginni og gerði hann það samstundis. Frá þeim tíma hófust þessar löngu og leiðinlegu biðar og verðir og sifelt vopnabrak milli útvarð- auna. Hatrlð milli beggja herflokk- anna jókst og varð ötíugra og grimmara eftir því sem leið á tímann, þar til 4. Febrúar, að fjandskapurinn varðákveð- inn og einbeittur. Það er víst almenn skoðun hér í Bandaríkjunum, að eyjabúar séu or- sök í byrjan þessa ófriðar, má vera að þetta sé svö, en það er hérumbil víst að hann var eigi fyrirfram ákvarðaður. Nálega hver maður er að meira eða minna leyti kunnuger uppruna ófriðar- ins. Nebraska herdeildin hafði stöðvar sínar hér um bil 5 mílur út frá bænum, í grend við uppreistarherinn, um nokk- urn undanfarinn tima höfðu verið sí- feldar ádeilur um vissar útvarðastöðv- ar, segja sumir að Nebraskamenn hafi viljað færa útvörðinn fjær borginni, en aörir halda þvi fram að uppreistarmenn hafi viljað þoka honum nær henni. Þetta lyktaði með því að einn af Neb- raskamönnum skaut um kvöldið upp- reistarundirforingja og 3 af mönnum hans, þetta gerðist kl. 8 45 að kvöldi. Skothrið hófst þegar frá báðum hliðum og innan hálfrar stundar var skothriðin orðin almenn með fram 'allri fylkingu Nebraskamanna. Það er iiaft eftir Admiral Dewey, að hefði Gen. IKood haft herstjórnarvöld þar á eyjunum, þá hefði uppreistin aldrei komið fyrir, eða hefði hún skeð, þá liefði hún ekki varað lengur en 6 vikur. Það er óhætt að staðhæfa það, að allar þorri Banda ríkja sjáliboðanna höfðu og hafa enn þá þá skoðun, að Otis og nokkrir af félög- um hans hafi komið þessum ófriði af stað af ósettu ráði, sérhver athöfnhans og sérhver yfirlýsing, sem hann gaf út, bera þess vott að hann var ekki að reyna að forðast ófrið. Það vildi svo til að ég var vel kunnugur hraðskeytasendl- inum sem hafði umsjón yfir telegraph- þræðinum milli Gen. Otis og Col. Stut.zenburg, yfirmanni Nebraska deild- arinnar, og hann sagði mér að Gen. Otis hefði sagt Col. Stutzenburg, ekki með beinum orðum, heldur hefði það verið andi og efni hraðskeytanna, að því fyrri sem hann kæmi ófriðnum af stað, þess betra væri það, og Col. Stut- zenburg var rétti maðurinn til þoss að koma stríðinu af stað, því hann var sér ætíð úti um ófrið. Eftir bardagann um kvöldið þann 4. Febr., gerði Aguinaldo út sendinefnd til Gen. Otis, til að láta hann vita að ef hann vildi hætta að berjast. Þá gæti hann fengið það millibilssvæði,(Neutral ground) sem hann vildi kjósa, milli ó- vina herflokkanna, þar til Bandaríkin væru búin ao ákveða hvað þeir ætluðu að gera við eyjarnar. Um leið lét hann í ljósi hrygð sína yfir þvi, að þessi bar- dagi hefði komið fyrir og lofaði að það skyldi ekki koma fy.ir aftur. Otis sendi honum svo látandi svar: “Ófrið- urinn hefir byrjað og honum skal verða haldið áfram til þrautar”. Annað þýðingarmikið atriði, sem að minni hyggju studdi að því að koma þessu stríði af stað, var þar, að flokkur af Bandaríkja hermönnum voru settir víðsvegar um Filipseyjarnar, eftir að stríðið við Spán var endað. Bréf eru til á prenti, frá Aguinaldo til Gen. Otis, þar sem hann er beðinn að gera Filips- eyjabúum grein fyrir því, hvers vegna hann safni herliði á eyjarnar á þenna hátt, því að annars væri hætt við að eyjaskeggjar mísskildu þýðingu þess og gæti ollað óeirAum. Ekki er það kunn- ugt að Otis svTaraði þessu neinu og þannig var haldið áfram með þessa vanhelgu stefnu, sem verið hefði talin vansæmandi, jafnvel á siðleysis árum miðaldanna. Bardaginn, sem stóð yfir þann 4,, 5,6. og 7. Febr., var hinn harðasti, Skipafloti Dewey’s skaut miskunarlaust á varnargarða uppreistarmanna og olli þeim voðalegu tjóni. Á bak við borg- ina og úr skotfæri herskipanna voru Utah og 3. stérstotadeiidirnar og gerðu þær Filipeyingam jafnmikinn skaða. Uppreistarmenn þoldu ekki þessa árás Bandamanna, þeir gátu ekki hafst við milli þessara tveggja elda og flýðu i stjórnleysi og skildu eftir á vígvellinum marga dauða og dauðsærða menn. Ekki ein einasta herkænskuhreyfing hefir verið gerð i öllu þessu stríði, hver ein- asti bardagi var unninn með áhlaupi, eins og Bandamanna hermönnum er títt. Ef álitið var nauðsynlegt að viuna víggrafir óvinanna þá var Banda- mönnum otað upp að þoim, án nokkurs tiilits til þess hve mörg mannslif það kostaði, eða öðrum atleiðingum. Hundr- uð af unguui Ameríku horinönnum, eins hugdjörfum og þjóðhollum eins og nokkru sinni hafa barist undir nokkru flaggi, hafa lagt lífið i sölurnar, þegar hæglega mátti komast hjá því mauntjóni. Frltt og frjóvsamt land hefir verið lagt í eyði með eldi og sverði og á meðal rústauna af áður friðsælum heimkyunum liugprúöra drengja eru nú blóðstorkuar leifar af hinum hug- rökku veréndum heimila sinna. Það hefir oft verið sagt, og er enn þá sagt, að ef eyjamönnum hefði verið leyfð innganga í Manila þann 13. Ágúst þá hefðu þeir drepið hvert einasta hvítt mannsbarn í borginni. Þessi hugar- burður gæti hafa verið fyrirgefanlegur á þeim tíma, sem Manila borg féll, en þaðerals engiu afsðkun til nú fyrir slíkri ímyndun. Hvar sem uppreistar- menn hafa tekið borgir, hafa þeir sam- stundis sett ó stofn sjálfst.jórn með lög- reglu og dómsvaldi. Skólar voru settir á fót og friður og eining riktu raeðal íbúanna Meðferðin á vorum mönnum, sem hafa fallið i hendur þeirra, sannar að þeir eru engir villimenn. Fyrst var það borið út, að þeir myrtu alla fanga sem þeir næðu úr vorum hóp og að þeir gerðu það með krossfestingu, En nú vill svo til, að einmitt þeir sömu menn, sem sagt var að þeir hefðu krossfest, hafa veri > seDdir heim til herbúða Banda- manna ekki í skiftum fyrir aðra fanga, heldur af einskærri mannúð og af fús- um og frjálsum vilja. Það er eftirtektavert að í Seft. síð- astl., þegar uppreistarmenn skiluðu okkur parti aí Ameríku föngunum, sem þeir höfu á valdi sinu, þá neituðu sum- ir leirra að láta skila sr til napr[a. manna og berjast nú með uppreistar- mönnum. Eg þákki eitt dæmi þar sem uppreistarmenn náðu særðum Ameríku hermanni. Þeir gátu ekki læknað hann og sendu svo einn of mönnum sínuin undir friðarflaggi til Gen. McArthur með þau skilaboð aðef hann vildi senda, spítalavagn eftir þessum særða her- manni þó skyldu þeir sjá am að hann kæmist óhultur ferða sinna til herbúða Bandamanna. Þetta og annað eins ber ekki vott um siðleysi eða villi- mensku Filipseyjamanna, og þetta er að eins eitt dæmi af mörgam slíkum sem nefna mætti. Því verður ekki neitað að það hafi komið fyrir að menn hafi verið myrtir á vígvellinum, en slikt eru undantekningar í hernaði og er ekki gert, með samþykki yfirmann- anna. Svo er og þess að gæta, að slík tilfelli eru ekki einhliða, þau koma fyr- ir í herdeildum beggja málspartanna og vilja jafnvel til í heruaði mentuðustu Þjóða. Það mætti nefna mörg slík til- felli hjá mentuðum herflokKum, sem mundi vanvirða jafnvel herdeildir sið- lausra þjóða. Eins og ég sagði áður, þá er stjórn- seminni í her uppreistarmanna mjög á- bótavant, þeir eru rifnir og tættir, ganga skólausir og hafa lítið annað til fæðu en hrísgrjón og aldin, ef til vill hatði þriðjungur þeirra engin önnur vopn en hnífa eða stingi. Það er ómögu- legt að ger nokkra áætlun um það, hve margir þeirra fóru í bardagann alger- lega vopnlausir. Baudamenn nóðu sjaldan vopnum frá uppreistarmönnum nema þeir gætu umkringt heilan her- fiokk. Ég hef séð skrá yfir hermanna- flokka uppreistarmanua þar sem að eins fimti hver uiaður hafði riflil, það voru mest “Mauser”eða “Remingtou”, hvortveggja spanskir riflar, sem Jæu' höfðu náð af Spáuverjum. Hínufyr- nefndi er gott vopn, en sá siðari líkist mest Ameríkanska "Springiield”-riflin- um, en er að eins dálitið lakari. Það var siður uppreistannanna í hernaðin- um, að þegar einhver úr liði þeirra, sem bar rifíil, feli, þá var hann samstundis fenginn vopnlausum félaga, sem svo hélt áfram bardaganum, Þeir sem voru vopnlausir, unnu að þvi að flytja þá drepuu og særðu af vfgvellinum. (Níðurlag á 4 bls.)

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.