Heimskringla - 05.07.1900, Síða 1
t //7/7 /J/7/7 Flugur op “Mosqu- v
* UUfUUU ilos» fangaðar hór á {
hverjum degi. Fáiö yöur hurðir ♦
og giugga úr vírneti. Viðhöfum ♦
þaö á ýmsu veröi og meö allskou-
ar litum,
Trading Stamps. Cash Coupons.
ANDERSON & THOflAS,
Jarnvörusalar 538 Main St
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦t
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«
% Hammocks. ^
♦ legra í hitunum
♦ en aö hvila sig í “tíauimook”
♦ Keyuið þaö einu síduí. Vér höf-
♦ um þa a mismunandi verði.
♦
♦
♦
♦
Trading Stamps. Cash Coupons
ANDERSON & THOMAS,
♦ J ARNVÖRUSALAR 538 MAIN ST.
!§)♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
XIV. ÁR.
WTNNIPEGr, MANITOBA 5. JtJLl 1900.
Nr. 39.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Sagt er að Kinverjar sæki hart
fram á móti ítússum nælægt Nien-
Chwang. Þeir eyðileggja járnbrautir
og alt sem tilheyrir þeim, og drepa
Rússa hvar sem þeir ná í þá. Þeir hafa
einnig sprengt upp kolanámur fyrir
Rússum.
Chaffeo heitir hershöfðingi sá, er
Bandaríkin sendu til Kina, og aðstoðar-
foringi hans Harper. Chaffee er yfir-
foringi yfir öllu herliði frá Bandaríkjum,
Sem er og flutt verður til Kína.
Stjórnin í Japan hefir ákveðið að
veita 25 miljónir dollara til herkostnað-
ar í Kína.
Sagt er að allur útlendur kennilýð-
ur hafi verið fluttur í burtu úr Pekin.
undir vernd og varðveislu Kína.
Canadiska ríðandi skotlíðið (moun-
ted Rifles) hefir fengið mikið lof og
þakkir fyrir, að það náði 2 fallbyssum
frá Búum. Þessar byssur voru svo
nefndar 12 pd, byssur (þær flytja 12 þd.
kúlur), Sumar fréttir segja að Canada-
menn hafi fundið þær eftir Búa, en
ekki tekið þær af þeim, meðan þeir voru
á vígvellinum. Lávarður Roberts tel-
þetta eitt af afreksverkum heimanna
sinna.
Fregn frá Suður-Afríku segir að
Búar fjölgi liði sínu að mun, og búast
fast um til orustu, á meðan Roberts lá-
varður sitji í makindum og ró. Menn
eru hálf kvíðafullirfyrir afieiðingunum.
Enn fremur er sagt að búum hafi
hepnast að ryðja sér braut gegnum her-
deildir Rundles, og séu því slopnir suð-
ur á bóginn lengra en góðu hófi gegnir,
Það er haldið að eftirlitsleysi Breta ná-
lægt Kroonstad hafi verið orsök til
þess, aðflokkuraf Basutum, sem var
við járnbrautar vinnu, varð fyrir á-
hlaupi af búum. Féllu 20 Basútar en
200 voru teknir til fanga, Sagt er að
þessi smáatburður hafi haft stór áhrif á
innfædda menn þar, og eigi séð fyrir
endann á þeim afleiðingum.
Stjórnar tilskipun var 'tilkynt í
Pretoria Gazette 26. f. m. á þá léið, að
engum Búaliða sé leyft að búa innan
takmarkanna 6 mílur ofan við Pretoriá
og 12 mílur norðan við, nema hann hafi
passa, sem ekki er einasta gefinn þeim
sem gengið hafa á vald Breta og svarið
þeim hollustueið, heldurog öllum, sem
gera hið sama hér á öftir, og láta af
hendi vopn sín. (Dýrt er drottins orðið!)
Skeyti frá Jamestown, St. Helena,
27. Júní: Sareli Eloff, sem tekinn var
við Mafeking af Bretum, steig hér á
land í dag. Gamli Krugir er afi Eloff.
Með honum voru 11 foringjar og 98 liðs-
menn, mest franskir. Allir þessir fang-
ar voru hreinir og litu snyrtilega .út.
Þeir voru tafarlaust fluttir í St. Ed-
warct fangahúsið. Flestir búa fangar í
Deadwood (dauðaskógur) eru við all-
góða heilsu.
Sveitaforingi Dorward (enskur)kom
fyrstur sjóliðsforingja Seymour til
hjálpar. Seymour komst aldrei til
Pekín. Hann komst vel miðja vega, en
varð þá aö hörfa til baka, að næturþeli,
En um morguninn var hann umkringd-
ur af ógrinni af kínverskura herdeild
um. Hann barðist síðan í 15 daga við
Kína, sem höfðu marga hermenn um
hvern einn liðsmann Seymours flota-
forineja, er varðist af dæmafárri
hreysti alt í gegn, Lið hans hafði að
eins 10 daga vistir, svo það varð að
draga við sig fæði, ofan á aðrar þrautir
og þjáningar. Sá staðUr sem Seymour
varðist lengst á er fáar milur frá bæn
um Lafa. Flotaforingi Seymour gerði
margoft tilraun r að “heliografa” (láta
vita með ljósmenkjum) til “samband-,-
þjóðamanna”, hvernig hann væri stadd-
ur, en það lánaðist ekki. 312 liðsmenn
særðust, en 62 féllu, og er það ekki
mikið í jafnlangri viðureign, og eins
miklum liðsmun.
Sú frétt kemur fiá Shanghai að
baron von Ketteler og þjqnustulið hans
hafi verið brytjað í stykki á strætunum
í Pekin. Baron von Ket eler var þýzk-
ur sendiherra. Hann var riðandi með
fylgdarliði sínu eftír stræti, þegar Box-
erar réðust á hann, og hjuggu hann í
smá stykki ásamt fylgdarliði hans.
Þýzka sendiherra höllin og sex aðrar
Stórbyggingar voru siðan brendar til
ösku. Heimamenn í þeim byggingum
■ voru ýmist höggnir í stykki eða hent
hfandi inn i bálið.
Staðhæfing um sannindi þessarar
fregnar er frá erlendum sendiherrum.
Hafa þessi voðaverk orsakað liinni
mestu skelfingu.og ofboð meðaí erlendra
erindsreka, og álíta þeir að erlendar
þjóðir hljóti að ségja stjórninni í Kína
stríð á hendur. Sendiherrarnir hafa
litla eða enga von um, að nokkur út-
lendingur komist lífs'af, sem er í Pekin.
I Rainy Lake héraðinu í Ont. láta
Indíánar mjög ófriðlega. Segir gamall
landnemi þar, að Indíánar hefji ófrið.
Um 3,000 Indíánar í tveimur flokkum
hafa safnast saman við Rainy River.
Námafólk í Koochiching-héraðinu hefir
flutt sig yfir ána til Fort Frances, og
leitað sér þar verndar. Lika hefir fólk
verið flutt þaðan með skipum til Rat
Portage, og von á miklu fleira. lndí-
áni einn, sunnan úr ríkjum, gefur sig
út fyrir að vera spámaður. Hann seg-
ir að hvirfilbylur komi á milli þess 1.
og 8. þ. m., sem gersópi hvítum mönn-
um burtu úr landinu. Þó Indíánar
þessir hafi ekki gert nein hryðjuverk
enn, þá eru þeir mjög æstir og eirðar-
lausir.
Á laugardaginn var fjarskalegur
eldsvoði í hafnkvíjunum í New York.
Um tvö hundruð menn mistu lífið. 3
gufuskip brunnu, og byggingar^og vöru-
hús brunnn til ösku. Skaðinn er met-
inn upp á $10 til $15 milliónir. Annar
eins stórbruni, sem þessl hefir aldrei
komið fyrir áður í New Y®rk.
Botha yfirhershöfðingi Búa, er nú
sagður í meiri vígamóð og viðbÚDaði
en nokkru sinni áður- Skorar hann á
Búa, og aðra nýlendumenn, að ganga
nú í lið með sér, og berjast fyrir frelsi
sínu. Aldrei gefist betra tækifæri en
nú þegar alt og allir séu í óðaönn og
uppnámi í Kína. Kvað lið streyma til
hans dagsdaglega. Mælt er að þeir séu
að sameina lið sitt Botha og DeWet.
Hon. Israel Tarte, ráðgjafi opin-
berra verka, sem nú er að flakka um
Frakkland, og hefir verið margorður og
hávær gegn enskum þegnréttindum,
hefir nú séð það eitt snjallast að segja
af sér ráðgjafastöðunni. Mun það lítt
harmað af almenningi, en þar missir
Sir Wilfrid Laurier einn af sínum ráð-
kænustu, en ráðríkustu fylgisveinum.—
“Svo fór með sjóferð þá”.
Nýlega fór fregnrití á fund gamla
Krugers í Machadodrop, og spurði
hvort það væri satt, að hann bæðist
friðar. Kruger svaraði: Forseti og
fólkið í Transvaal æskir hjartanlega
eftir friði, en með tveimur skilyrðum,
nefnil, fyrst, að fá alveg óháð lýðveldis-
stjórnar fyrirkomulag. og uppgjöf saka
og frið við alla nýlendumenn í Suður-
Afriku, sem með oss hafa barizt. Fáum
við ekki þessar kröfur uppfyltar, ætl-
um við að berjast meðan nokkur blóð-
dropi er til í Búaþjóðinni.
Sendiboðar, sem koma frá Pekin,
útmála ástandið og aðfarirnar þar
mjög hryllilega. Þeir segja til dæmis
að höfuðin af sumum þjónum erlendra
sendiherra séu sett upp á stangir, og
siðan beri Kínar þær um götur bæjar-
ins og hrópi í sífellu: “Drepið djöflana1!
og þar fram eftir götunum.
Fyrirskipan hefir verið gefin af
prins Tuan, að sögn fregnboðanna, er
skipar að láta engan útlending komast
lifs af. Oll fréttasambönd á milli út-
lendinga í Pekin og útlends hjálparliðs,
eru eyðilögð og vöktuð sem sjáaldur
augans, af Kinverjum.
Núersagtað 800 menn hafi mist
lífið 1 skipakvíabrunanum í New York.
Sá partur sam brann og eyðilagðist af
skipakvíunum, nefnist North German
Lloyd, af þvi að eimskipa stóll “North
German-Lloyd Steamship Co.” hafði
þar baggastöðvar sínar. Einatt er lík-
um að skola upp í fjöruna, Eru þau
meira og minna brend og afskræmd, og
flest með öllu móti óþekkjanleg.
Mr. Siftou, innanríkismálaráðgjafi,
er nú kominn heim til sín aftur, úr
Norðurálfu flökkuferð sinni, ásamt kon-
unni. Mr. Sifton fór til .Vienna undir
því yfirskyni að leita sér lækninga við
heyrnarlasleik, og kveðst hafa fengið
bót meina sinna að nokkru leyti. Síð-
an amlaði hann til París og glápti þar
á sýninguna um hríð. Þar hittust þeir
Tarte og hann, og svölluðu og svölkuðu
þeir þar saman um stund. Sífton segir
að Tarte sé óðum að koma til. Meðan
Sifton var að flakka um Norðurálfuna,
lézt hann vera að líta eftir innflutn-
ingi svona i og með. Segir hann að
vel líti út með innnutniug hingað, eink-
í® PENINQAR LANADIR. Hægar mánaðar afborganir.
(m V7ér erum umboðsmenn fyrir hið bezta og ríkasta lánfélag
" sem bækistöðu hefir í Winnípeg.
VILTU EIQNAST Laglegt og vel vandað einloftað hús
(Cottage) á Alexander Avenue ? Það er úr timbri, á
steingrunni og kostar $1200.
TAKID VATRYQQINQ— ; -thb Phoenix of London”.
Það er hið elzta og bezta vátryggingafélag í heimi.
Nares, Robinson & Black,
Itank of Hamilton Chnmbers.
The Home Life Associatíon
of Canada.
Aðalskrifstofa í Toronto.
'Höfuðstóll—ein millíón dollars.'
Pall trygging í höndum sambandsstjórnarinnar.
Lífsábyrgðarskýrteiui Home Life félagsins gilda hvar í heimi sem er. Eng-
in höft eru lögð á skírteinishafa hvað snertir ferðalög. bústað eöa atvinnu. Þau
eru ömótmælanleg eftir eitt ár frá dagsetningu.
Skírteinin hafa ABYRGST YERÐGILDI í uppborgaðri lífsóbyrgð, pen-
ingum og lánsgildi, eftir þrjú ár.
Leitið upplýsinga um félagið og ábyrgðarfyrirkomulag þess hjá
W. H. WHITE, ARNI EQQERTS50N,
um frá Wales, Skotlandi, írlandi og víð-
ar að, En útflutningur frá Englandi
stefni nú aðmestu leytitil Suður-Afríku.
Skýrslur frá Þjóðverjalandi, Danmörk,
Svíariki og Norvegi, segja að allmargir
muni flytja þaðan af landi burt.
Þeir sem allra mest þykjast vita
segja að Bryan noiti að sækja um for-
setastöðuna í Bandaríkjunum í haust,
ef flokkur hans hafi ekki gull og- silfur-
mintamálið á stefnnskrá sinni, Það er
sagt að hann sé sannfærður um að gull-
og silfur-mintamálið, sé afarstórt fram-
tiðarspursmál, og mannkyninu til um-
bóta og heílla, og þvi er hann fastráð-
inn að fylgja því fram með oddi og egg.
Honum þykir það svona miklu varda,
að hann þekkir ekkert stefnuatriði hjá
fiokki sínum nógu veglegt handa sér að
berjast fyrir, ef gull- og siltur-minta-
málið er ekki sett efst og fíemst á gunn-
fána flokksins.
Morðmál Elízabetar Austur-
ríkisdrottningar.
Ef til vill verður ekkilangt þar til að
ljóst verður hver tilgangurinn var með
að drepa Elízabetu Austurrikisdrottn-'
ingu. Fyrsta sporið til bess er ný-
fundið suður i Argentine-lýðveldinu.
Þegar morðinginn Lucchene, sem var
ítalskur Anarkisti, stakk keisarafrúna
til bana, voru allar hugsanlegar til-
raunir gerðar, bæði af stjórn^nní í
Sviss og Austurríki, til þess að komast
fyrir hvaða tilgangur lægi til grund-
vallur fyrir níðingsverkinu, en alt það
stjá var árangurslaust. En rétt nú
kemur fyrir atburður, sem ollir því, að
óþekt skjöl koma alt í einu fram á sjón-
arsviðið. Skjöl þessi virðast sýna og
sanna ljóslega, að brottrýming Elíza-
betar drottningar hafl verið gerð sam-
kvæmt ákvörðunum fjölmenns sam-
særis. Hún var myrt 10. Sept 1898.
Litlu eftir að morðið var framið,
komu 2 menn i Vila-nýlenduna, sem
myndaðis.t fyrir fáum árum í fylkinu
Santa Fé í Argentina. Nefndu þeir sig
Pietro Riccardo og F. Bloise. Þeir
byrjuðu tafarlaust verzlun, er bar nafn
ið: Francisco Bloise Co. Þeir höfðu
nægilegt fé til að setja á fót álitlega
verzlun, og virtust vera drífandi verzl-
unarmenn. Þeir urðu fljótt vel þektir,
ekki einungis i Vila, heldur einnig í
San Francisco, sem þar er nálægt. Þeir
voru mjög fámálrgir um sína fyrri
daga, og engin vissi hvar þeir höfðu
verið, né hvaðan komið að, *
Smát.t og smátt fór að kvísast ým-.
islrgt smávegis um þá. Eitt af þvi
var það, að bréf frá Evrópu, sem þeir
fengu, voru ekki send beint til þeirra,
heldur til annara manna í Argentinu,
sem skiluðu þeim með hylmingu. Ann-
að er það atriði, að þeir hafi siglt frá
Marseilles, rétt eftir að drottningin var
drepin. Og svo voru óljósar staðhæf
ingar um þ^.ð, að þeir hefðu skift um
nöfn. Casimo Dellerba kallaðist Bloise.
Um þetta varð all-tíðrætt í nýleudunni.
og komst til eyrna fregnrita “Journal
de Geneve”, sem er eitt með merkustu
blöðum í Sviss. Fregnritinn gerði strax
rannsóknirí málinu, en þegar hann var.
að byria rannsóknina og lítið á veg
kominn, hvarf verzlunarfélagið Franc-
isco Bloise Co. skyndilega úr sögunni.
Þeir félagar, Riccard og Bloise, höfðu
grætt á tá og fingri. Fyrir utan félag-
það, sem þeir áttu i vörum og útistand-
andi hjá viðskiftamönnum, höfðu þeir
lagt inn á banka 36,000 mörk. Einn
góðan veðurdag fær Riccard tilboð frá
stórkaupmanni í Argentina um að taka
ágæta stöðuhjá sér. Hann ræddi þetta
við félaga sinn, og lagði síðan af stað
að finna stórkaupraanninn. Hann var
ekki fyr farinn en Bloise tók alla pen-
ingana úr bankanum og stakk öllum
áríðandi skjölum í tösku sína og hvarf
í skyndi. Þegar Riccard kom heim
aftnr og vissi um atferli félaga síus,
stóðst hann ekki mátið, og skaut sig.
I skjölum þeira sem yfirvöldin náðu
í eftir hann, var bréf eitt ritað af hon-
um sjálfum heima á Italíu, og segir
hann þar, að óumflýanlegt sé fyrir sig
og félaga sinn að flýja, vegna sam-
bands sem þeir séu í við mann þann er
myrti drottninguna. Fleiri bréf benda
áþetta sama, að þeir hafi verið sam-
glæpamenn morðingjans. Nú eru mörg
þúsund lögregluþjónar að leita að
Bloise, eða sem réttu nafni heitir Cosi-
mo Dellerba.
Frá löpdum
MINNEOTA, MINN. 20. Júni 1900.
(Frá'fréttaritar Hkr.).
Tíðarfar þurt og fremur kalt, alt
útlit fyrir að hér verði að mestu leyti
uppskerubrestur, að eins smá blettir
hér og þar í ökrum, sem tækir verða.—
Fjöldi verkamanna iðjulausir.
Framfarir: FráMinn. háskóla eru
nýútskrifaðir þeir bræður Halldór og
Björn synir Bjarnar Gíslasonar, Hall-
dór hefir stundað fjölfræði, en hefir i
hyggju að ganga gegnum lögfræðinga-
deild skólans á næsta vetri. Björn hef-
ir stundað lögfræði og er nú ásamt ein-
um af skólabræðrum sinum, sestur að í
Lake Benton Lincoln Co.. (Þegar mað-
ur sér Björn, vekjast ósjálfrátt upp i
huga mans, ímyndaðar endusminning-
ar um hinar fornu hetjur íslands, hann
er yflr 6 fet á hæð og þrekinn, herða-
breiður og brjóstamikill, skolbrúnn á
hár en ljós á hörund, og að öllu leýti
hinn herriRnnlegasti á velli.) Björn
faðir þeirra bræðra er sonur Gísla
Nikulássonar er bjó að Breiðavaði og
Dalhúsum í Eiðaþinghá; Björn er þrí
giftur, fyrsta kona hans var Ólöf dóttir
Eyjólfs bónda í Hjarðarhaga á Jökul-
dal, önnur kona hans Sígurbjörg dóttir
Jóns bónda á Grímsstöðum á Hóls-
fjöllum, þriðja kona hans Aðálbjörg
dóttir Jóns á Giímsstöðum, systír Sig-
urbjargar. Eftir fyrstn konu sína á
honn tvö börn á lífi, Eyjólf og Kristinu,
sem bæðí eru hér gift eg búandi; með
siðustu konu sinni á hann hér á lífi 5
sonu og eina dóttur (Ólöfu er stundað
hefir söngfræði í Chicago og er þaðan
ný útskrifuð), Á íslandi bjó Björn
fyrst í Veturhúsum í Jökuldalsheiði svo
á Gdmsstöðum á Hólsfjöllum og síðast
á Hauksstöðum í Vesturárdal innaf
Vopnafirði. Fyrir dugnað í búskap
sæmdi Kristján konungur Dana og ísl.
hann ‘-dannibrOgs”-ordunni?; áiið 1879
flutti hann af Islandí og hingað og
keyfti hér land af Eiriki Bergmann, og
hér hefir hann síðan búið með hinni
sömu elju og dugnaði er hann ætíð
sýndi á íslandi Björn er vel meðal-
maður, þreklega vaxinn, nokkuð rið-
vaxinn, var dökkur á hár, en nú hvít-
ur af hærum, fjörmaður mikill og
glímumaður góður, kátur í lund og
gestrisinu mjög, Öllum börnum sinum
hefir hann komið til mans, enda eru
þau vel gefra til sálar - og líkama t. d.
eru þeir bræður allir um og yfir 6 fet á
hæð, og mætti með sanni segja um
þann fiokk, er sagt var um Hrút Herj-
úlfsson og sonu hans A, þingvöllum.
Sveinn Björnsson frá Selstöðum við
Seyðisfjörð er nýútskrifaður af kenu-
araskólanum í St. Cloud, S B. er flug-
gáfaður maður. Einnig hefir útskrif-
ast frá kennaradeildinni í Gustafs Ad-
olisskólanum, María stefánsdóttir, dótt-
ir Stefáns Sigurðssonar frá Ljósavatni.
Guunar Björnsson, ritstjóri Min-
neóta J/ascot er nú þar nyrðra hjá ykk-
ur, hann virðist að vera sérlega gott
efni i blaðamann, en þó er stór galli á
honum nú, sem stendur, því hann fylg-
ir hér að málum McKinley og Mark
Hanua, en þá telum vér vera skaðsam-
legasta ipenn.
Listaverk, Kristján Ch. Schram
smíðaði skírnarfont handa kirkjunni i
Lincoln Co. og er það efalaust að sá
■‘fontur” er listaverk. Kristján, séra
Björp og Pétur Vigfússon gáfu kirkj
unni “fontinn,’.
HNAUSA 26. Júní 1890.
(Frá fréttarara Hkr.)
8. þ. m. dó Jón Aruason,. gamall
maður, í Geysir-bygð, tengdafaðir Al-
berts Sigursteinssonar, bónda þar.—12.
MANAGER. GENERAL AGENT.
Hclntyre Blwck, Winnipeg. F.O Box 245.
ÞAÐ ER SANNREYNT
að fólk ber traust til vor öðrum fremur.
ÁSTÆÐAN ER StJ,
að vér skiftum vel og áreiðanlega við alla.
Vorir $1,50 geitaskinnsskór fyrir kvenfólk eru hinir beztu á markaðinum
með eða án tábands. Rúnir til af hinum nafnfræga “LINTON”
Vér höfum eftir dálítið af ágætum barnaskóm fyrir 50c. og upp.
EB ÞÁ KARLMANNASKÓRNIR !
Vér höfum þá ágæta, bæði gula og brúna að lit, fyrir $2.25. Þeir endast
heilt ár. Vér gefun. Trading Stamps,
E- KIVIGHT <5R: CO
351 inain Street.
þ! m. brann til kaldra kola íbúðarhús
Jónatans bónda Jónassonar, Ánes P.O.
og varð mjög litlu bjargað; konan,
Ingibjörg að nafni, stórskemdist en er
á batavegi, eftir bruna sem hún fékk
um alt andlitið, og Jónas, sonur bónd-
ans brann talsvert á höndum; þau voru
að reyna að bjarga munum úr húsinu.
Húsið var nokkuð vátrygt. — Utlit er
dauft með grasvöxt og allan jarðará-
vöxt vegna hinna sterku hita og hins
sífelda þurks, sem hefir gengið i alt vor.
I gærkveldi kom regn, sem mikið lagar,
en meira má ef duga skal til þess að
meðal ár verði með grassprettu og jarð
arávöxt.—íslendingadagur er ákveðinn
hjá okkur Hnausa og Geysir-búum 2.
Ágúst i sumar.
Dánarfregn.
Með linum þtssum vil ég tilkynna
fjarstöddum vinum og venzlafólki
dauðsfall konunnar Guðrúnar Eiríks-
dóttir, að Hekla P. O., J/an., um leið
og ég leyfi mér að geta helztu æfiat-
riða hennar.
Guðrún sál. var fæddað Fossseli i
Helgastaðasókn í Suður-Þingeyjarsýslu
17. Júní 1825. Faðir hennar var Eirík
ur Halldórsson, sem lengi bjó að Með-
alheimi á Svalbarðsströnd; var ætt sú
mannmörg og kynsæl og mesta dugíi-
aðar og siðferðisfólk. Móðir Guðrúnar
sál. var Guðrún Halldórsdóttir, en ætt
hennar er mér ókunn. Guðrún sál ólzt
upp lijá móður sinui og stjúpa, sem
gekk henni í föðurstað og veitti henni
ástúðlega alúð og umönnun þar-til hún
dó. Þá vaí Guðrún á tvítugasta ári
og fór þá út i vist. Þegar hún var 28
ára gömul giftist hún eftirlifandi manni
sínum, Sigurði Erlendssvni, 24. Okt.
1855 og lifðu þau saman í hjónabandi 47
ár. Þeim varð 8 barna auðið, tveggja
sona og6 dætia; synir þeirraeru liinir
alkunnu dugnaðar og framkvæmdar-
menuj Stefán og Jóhannes, kaupmenn
að Hnausum í Nýja íslandi, Stefán er
giftur Valgerði systur Jóns'bónda
Jónssonar að Grund i Mikley, í Nýja
íslandi.en Jóhanneser giftur Þorbjörgu
dóttir Jóns á Grund og Sigríðar konu
hans. Þau hjón ðru ættuð úr Mýra-
sýslu. Dælur.Guðrúnar sál. eru Ragn-
heiður, búsett á Svalbarðsströud; hún
er ekkja eftir 2 ektamaka: Metúsalem
og Jóhifnnes GiimssoD, er báðir drukkn
uðu í sjó. Jakobína, búsett í Selkirk,
gift kaft. Jóhannesi Helgasypi, prests
að JVIelum i Borgarfirði. Sigríður, gift
Albert Sigurbjai narsyni, ættuðum úr
Mývatnssveit. Þau hjón búa í Dakota.
Sigrún, gift James Foote, íAlberta^
Canada. Kristjana, gift Bergþór Þórð
arsyni, ættuðum úr Mýrasýslu. Þau
búa að Söndum í Mikley í Nýia Islandi.
Pálína liét ein, hún dó á unga aldri.
Þau Sigurður og Guðrún bjuggu
mörg ár á Islandi, en fluttu til Ameriku
fyrir 24 árum með öll börp sín og sett
ust að i Mikley, þar sem nú heitir að
Skógum, og bjuggu þar jafnan siðan,
og ólu börn sin þar upp. Enn einn son
átti Sigurður, Sigfús að nafni; þann
stjúpson tók Guðrún sál. ársgamlan og
reyndist honum sem ástrik móðir. Sig-
fús er nú gift'ur Sigurlaugu Jónsdóttir
ættaðri úr Suður-Þingeyjarsýslu.
Þau Sigurður og Guðrún sál. brugðu
búi síðastl. ?or og flutti hún þá til
tengdusonar Jsins Bergþórs og Kristínar
dóttur sinnar. Hún var orðin lasburða
af elli og lúa. Banalegu sína tók hún
24. Mai og andaðist 5 dögum síðar, 29.
s. m., hartnær 75 ára gömul. í bana-
legunni vár hún stunduð svo sem bezt
mátti verða af eftirlifandi manni henn-
ar og börnum, Jóhannesiog Kristjönu.
Andlátið vai ð hægt og rólegt. Hún dó
í svefni. Guðrún sál. elskaði mann
sinn til hinstu stundar og leitaðist jafn-
an við að þóknast vilja hans í öllum
hlutum. Hún var elskurík og um-
hyggjusöm móðir og bar alc mótíæti
með dæmafárri stillingu og- þolgæði.
Fámálug var hún alla æfi og trygglynd
mjög og vinföst, en ekki allra vinur.
Hún var frí við h ræsni og smjaður, en
elskaði einarðlegt hreinlyndi umfram
flest annað. Hún hélt fast við barna-
trú sína, sem hún var fermduppá, og
þráði á síðustu æfi árunum að losast
við jarðnesku böndin og fá hvíld og
frið og alsælu þá, sem drottinn hefir
heitið sínum útvöldu í hinu æðralífi.—
EftirlifaDdi maður Guðrúnar sál., börn
hennar og tengdafólk og vinir geyma
minningu hennar með virðingu og
og söknuði. — Jarðarförin fór fram 31.
Mai í grafreit Mikleyjarkyrkju að við-
stöddu mörgu fólki.
Hecla, Man., 26. Júni 1900.
Vinur hinnar látnu.
BLINDA
Fyrirbygd og Lœknud.
Blindir
sjá
Daufir
heyra
MED HINNI EINU AUGNA
OG CATARRH LÆKNINGU
ACTINA undur nítjándu aldar-
innar, því. mev pví að brúka það sjá
blindir og daufir heyra og Catharrh er
óhugsanlegur. Actina er áreiðanlegt
meðal við Cataracts, Pterýgiums, Gran-
ulated augnalokun, Glaucoma, Amau-
rosis, Myopia, Presbyopia, sviða og
veiklun í augunum. af hverju sem það
stafar. Engin skepna nema maðrinn
brúkar gleraugu, gleraugu þurfa ekki
úti og sjaldnast til að sjá á bók. Gler-
augu úti við óþörf. Actina læknar
líka taugagigt höfuðverk, kvef. sár-
indi í hálsinum, bronchitis og veikluð
lungu. Actina er ekki tekin í nefið né
borin á hörundið, eu það er vasa-raf-
m v.ns “Battery” með ölium útbúnaði,
sem bægt er áð brúka allstaðar á öllum
tirnum af ungum og gömlum. Eitt
værkfæri læknar heila fjölskyldu af öll-
um ofantöldum sjúkdómum
PROF. WILSON’S MAGNETO-
CONSERVATIVE AFPLIANCES
lækna máttleysi, gigt. og allskonar
kroniska sjúkdóma, Utbúnaðr þessi er
læknum jafn-óskiljanlegr eins og undra-
áhrif Actina-vélarinnar.
EIGULEG BÓk gefins ef um er
beðið, sem inniheldur ritgjörð um bygg-
ing mannlegs líkama, sjúkdóma hans
og lækning, og fjölda af leiðbeiningum
og vottorðum.
Vantar umboðsrnenn. — Skrifið oss
um tilboð.
NEW VÖRK & LONDON ELECTRIC ASS’N
Dept. 23, K>vsas City, Mo.
Karl K. Albert,
Department 10 Gen'l Agent.
Office :
268 McDermot Ave, Winnipeg.