Heimskringla - 05.07.1900, Side 4

Heimskringla - 05.07.1900, Side 4
HEÍMSKRINGLA, 5, JÚLÍ 1900. Winnipe^. Séra Bjarní Þórarinsson prédikar á Norð West Hall á sunnudaginn kemur, kl. 7 siðdegis. Séra Búnólfur Marteinssan og Miss Ingunn Bardal voru gefin saman í hjóna- band á laugardaginn var, 80. f.m. Heimskringla óskar þeim til hamingju Þetta hefir bæzt við i þjóðræknis- sjóðinn síðan í síðustu viku: Sveinn Sigurðsson, Winnipeg.... 50 Markús Guðnason, Selkirk...... 50 Sjóðurinn því als nú $264.80. TTnitarasöfnuðurinn í iHnnipeg hefir samið við prestaskólastúdent hra. Bögnvald Pétursson, um að messa hér ltyrkju safnaðarins. i skólafriinu, nú am 2 næstu mánuði. Verður því fyrst um sinn messað þar á hverjum sunnu- degi, kl. 7 e. h. Dálítið ljóðakver er nýkomið út, eftir Gest Jóhannsson. Það er þrentað iprentsmiðju "Freyju” í Selkirk. Vér höfum ekki haft tíma að athuga kverið enn, en vér segjum að það sé eigi leir- burður, né þráður úr annara ull spunn- inn, eins og of oft sést hér. Dr. Magnús B. Halldórsson og Miss Ólöf M. Skaptason, dóttir séra Magnúsar Skaptasonar, voru gefin sam an í hjónaband í Pine Cíty, Minnesota, þann 28. Júní síðastl. Heimili þeirra verður framvegis að Hensil, N. Dak. Heimskringla óskar þessum ungu brúðhjónum alirar hamingju og fram- tíðarheilla. Síðan seinasta blað kom út hefir tíðarfarið breyzt dálítið. í stað þurk- anna og hítanna, sem hér hafa gengið í alt vor og sumar, hefir rignt töluvert xnikið síðustu viku, og verið kalsaveð- Ur, Regnfallið hefir verið svo mikið síðustu daga, að grasTÖxtur ætti að geta orðið í meðallagi yfirleitt, þó all framorðið sé orðið. En litlar vonir eru um meðal hveitiuppskeru, þó getur hveitispretta mikið lagast enn þá, að sögn manna er þekkja til. Dominion-dagurinn, sem ákveðinn er 1. Júli ár hvert, var nú haldinn á mánudag nn var, vegna þess að sá 1. yar á sunnudag. Þessi Dominiondag- ur er haldinn í minningu um þann at- burð, ,þá fylkin í Canada mynduðu og gengu í samband sin á millum, Fylkja- sambandið komst á 1867, svo nú var það þritugasta og þriðja minningar- hátíðin er haldin .var í Canada á mánu- daginn var. Framan af á mánudaginn var hálfblautt og forugt, en eftir miðj- an dag birti og skein sól síðari part dagsins. Fólk mun hafa skemt sér vel á mánudaginn, ‘‘jC þeim degi mun hinn alvaldi með skegghníf, leigðnm fyrir handan fljót, fyrir hönd AssyTÍukonungs af- raka hárið af höfðinu og fótunum, og efnnig burtnema skeggið”, Esias 7. kap. 20. v. Þessi merkilegi spámómur Esi- asar álíta biblíufróðir menn að sé að rætast, einmitt nú á vornm dögum, þegar Stefán Scheving rakar öll mögu- leg andlit, fyrir lOc hvert, og efar eng- inn að hann gæti einnig raxað fótleggi manna, ef fólk væri nú loðfætt eins og það gerðist á dögum Jehova. Staðurinn er: 206 Rupert St. . Winnipeg. “Sport”nefnd íslendingadagsins hér i ár, lætur þess hér með getið, að það eru öll líkindi til þess, að verðlaun fyr- ir alskonar íþróttir á íslendingadegin- um í ár, verði enn þá betri en nokkru sinni áður. Ungu mennirnir hér ættu að æfa sig vel fyrir þessa íþróttaleiki, svo þeir geti farið myndarlega úr hendi, Það eru öll líkindi til að allmargir knárra drengja frá Dakota komihingað norðug 2. Ágúst, til að keppa við iþróttamennina hér. Á þriðjudagskvöldið var, voru á- heyrendapallarnir troðfullir, i þinghús- inur Fólk var forvitið að hlusta á, hvað nefnd opinberra reikninga hefði að segja í fréttum. Mr. B. Rogers var formaður nefndarinnar. og allir vissu, að hann. myndi Verða áheyr.'legur og skilmerkilegur í ræðu sinni. Fólkið fór heldur ekki i geitarhús að leita ullar. Mr. Bogers flutti skorinorða og skil- merkilega ræðu, og sýndi ljóslega fram á hvernig fráviknastjórnin hefði farið glapsamlega með almennings fé. Hann talaði 1 klukkutíma og 15 mínútur, og áheyrendurnir, og stjórnarflokkur hans dáðust að ræðu hans, eins og ætið er er gert. Næsthonum talaði Mr. Myers og reyndi að flytja varnir fyrir sinn flokk, en svo var hann ruglaður i reikn- ingum, að þeir Hon.“Macdonald og Hon Campbell urðu hvað ofan í annað að leiðrétta vitleysur hans og ranghermi. Þar næst talaði Mr. B.L. Baldwinson. lýsti ræða hans þekkingu á málinu, og var sköruglega flutt. Þá gerði gamli Greenway tillögu um að umræðum vær frestað í máhnu. (Vildi ekki heyra meira né fleira, um verk sin, að sinni). Þars skorað hefir verið á mig að kalla til safnaðarfundai í Tjaldbúðinni, af nokkrum meðlímum þess safnaðar, leyfi ég mór hér með að kalla til fundar á mánudagskvöldið kemur, 9. þ. m. Þar kemur til umræðu ályktun forseta frá síðasta fundi, svo það verður sjálf- sagt fróðlegt aö heyra fólkið tala. Fund- urinn verður að eins fyrir safnaðar með- limi. J. Gottskalksson. forseti. * DBAKE STANDI8H. Skáldsagan sem staðið hefir i Hkr. um undnfarna mánuði nálega 400 blað- síður að stærð, er nú iunheft í kápu og verður send þeim kaupendum blaðsins sem byrjuðu að kanpa það eftir að sagan byrjaði að koma út í blaðinu. Yér vildum biðja þá sem eiga heimt- ingu á þessari sögu að gera oss aðvart um það með póstspjaldi hið allra fyrsta og láta oss vita hvenær þeír byrjuðu að kaupa blaðið. Einnig gefum vér nýj- um kaupendum, sem borga fyrirfram, þessa sögu meðan hún endist, og þeir sem vilja kaupa hana geta fengið hana gegn fyrirfram borgun, verð 35c. EINKALEYFI. Hér með auglýsist að þeir sem vilja kaupa einkaleyfl til að selja veitingar í sýningargarðinum á Is- lendingadaginn 2. Ágúst í sumar verða að senda tilboð sín í lokuðum umslögum til undirskriíaðs fyrir 20. Júlí næstkomandi. Þeir sem vilja fá einkaieyfl til að hafa “Canerack” Kniferack” “Dolls & Balls” eða annað þess hátt- ar, verða einnig að senda tilboð um það fyrir 20. Júli næstk. í umboði nefndarinnar Jóseph B. Bkaptason ritari P. O. Box 305 Winnipeg. Elns og vér höfum áðurgetið um, verður sýningiu hér í ár 23.-28 Júlí. Það er óefað, að sýningarnefndin gerir alt, sem í hennar valdi stendur til þess, að sýningin verði sem bezt og mikil- fenglegust í alla staði. Hún hefir látið auka talsvert við byggingar í sýningar garðinum, eg einkum hafa áhorfenda- pallarnir verið stækkaðir að stórum mun. Svo er og verið að byggja sér- stakan sýningarskála fyrir sýnismuni frá British Columbia. Á meðal skemt- ana sem verða á sýningunni, ’má geta þess, að þar verða sýndar eftirlíkingar af ýmsum orustum í Suður-Afríku. Eins og áður hefir verið, verður stór- kostlega niður sett fargjald hingað með öllum járnhrautum, sýningarvikuna. —TIL SÖLU hús, aftur og fram um allan bæinn. Sum ódýr, og skilmálar yfirleitt góðir. Listhafendur snúi sér til Kr. Ásg. Benediktssonar. 350 Toronto Street, —JÖBP meri tapaðist 8. Júní, á milli Shoal Lake og Álftavatnsnýlendunnar, hún er blind á hægra auga, hvit neðan við hófskegg á öðrum afturfæti, með þykt en dálítið skelt tagl. Finnandi beðinn að koma henni til unpirskrif- aðs mót sanngjörnum fundalarunum. E Thorkelsson. 777 Portage Ave, Winnipeg Man. Kostar ekki cent. Kvenna eða karlmanna fílabeins- skeftur vasahnifur; karla eða kvenna ljómandi fallegt "Locket”, og fjöldi annara ágætra muna. sem vér ekki get- um talið hér upp, verða gefnir burtu með hverri 1 dollars pöntun af okkar á- gæta kaffi “BaMng Powder”, engi- fer eða Sukkulade etc. Betri og meiri verðlann verða gefin með stærri pöntun um, frá $2, $3, $4 eða $5. Reynið eina pöntun, með pósti. Það verður ekki sú siðasta. Great Pacific Tea Co. 1464 St. Catherine St. Montreal, Que. 1 / Islands-fréttir. Keykjavík 23. Mai 1900. Héðan helzcu fréttir nú sem stend- ur veikindin. Landfarsóttin.—influenz- an læðist um bygðir og ból, og leggur nálega alla í rúmið, og suma í gröfina. Af merkum mönuum látnum má nefna Hannes bónda Pótursson á Skíðastöð- um, valinkunnan sómamann, rúmlega fertugan að aldri. Hinn 28. Febr. síðasl. lézt að heim- ili sinu, Bót í Hróarstungu, Björg Hildibrandsdóttir, ljósmóðir, á áttræð- isaldri. Hún var fædd á ekkjufelli í Fellum, ólst upp á Bakka í Norðfirði, en fluttist norður á Akureyri með Pétri amtmanni Havsteen. 1. Júni 1900. Séra Stefán P. Stephensen fyrrum prófastur í Vatnsfirði er sagður látinn, rúmlega sjötugur að aldri, Einnig er nýdáin Elín Elizabet Björnsdóttir (síð- ast prests á Stokkseyri Jónssonar) kona séra Esjólfs Jónssonar í Árnesi og móðir séra Eyjólfs Kolbeins á Staðar- bakka og sýstkyna hans, góð kona og merk, en hafði lengi verið heilsuveik. Hún var fyr gifc Þorsteini Guðmunds- Syni “Málara” bróðir Lýðs hreppstjóra í Hlíð í Eystrihrepp og þeirra bræðra. Nýr tannlæknir er væntalegur hingað til bæjarins nú með "Laura” frá Höfn 5. þ. m. Það er cand. phil. Steenbback 8t»fánsson (frá Grundar- firði), sem úndanförnu hefir dvalið hjá bróður sínum Stefáni lækni í Aars á Jótlandi norðanverðu. Veitt prestaköll. Mosfell í Gríms- nesi er veitt af landshöfðingja séra Gísla Jónssyni í Meðallandsþingum, Bsyni- vellir séra Halldóri Jónssyni aðstoðar- presti þar í brauðinu og Saurbær á Hvalfjarðarströnd séra Einari Thorla- cius 1 Fellsmúla, alt eftir kosningu safnaðanna. Tjón af ofviðrinu um næstl. mán- aðamót hefir að því er frétt er utan af landi eigi orðið voðalegt neinstaðar. Af fiskiskipunum hóðan vantar þó eitt: “Falkeu” (eign G. Zoega kaupm.); það hefir ekkert spurzt til þess síðan fyrir ofviðrið, og er því miður hætt við, áð það hafi farizt. Á því voru als 16 menn. 5. Júní 1900. . Druknun. Á föstudagínn var, 1. þ. m. druknaði í ál hjá Eliðavatni Ólafur Sveinar.Haukur Benediktsson hóndi á Vatnsenda, sonur Benedikts heit. Sveinssonar sýslumans, á 28. ald- urs ári.—Hafði Ólafur heit. þennan dag átt að vera við úttekt á Eliðavatni og var á ferð þangað frá Reykjavík í þvi.skyni, Embættisveiting. Kristján E Kristj- ánsson læknir er skipaður héraðslækn- ir á Seyðisfirði 23. f. m. og Sigurður Sigurðsson læknir(á Hrappstöðum) hér- aðslæknir í Dalasýslu s. d. Dáin er hér í bænum Björg Þórðar- dóttir (frá Kjarna Pálssonar) systir séra Benedikst síðast Prests í Selárdal og þeira mörgu systkina. en tengdamóðir Markúsar F. Bjarnasonar skólastjóra 87 ára gömul. Fjársala í haust. Þau fagnaðar- tíðindi getur Þjóðólfur nú orðið fyrstur til að flytja sveitabændum og öðrum •fjáreigendum hér á landi, að nú má telja víst, að Bretar kaupi hér allmargt fé í haust gegn borgun út í hönd. Fyr- ir milligöngu þeirra Copland’s og Berries stórkaupmanna í Leith, alal- eigenda hinnar góðkunnu verzlunar "Edinborgar” hér í bænum, hafa auðug- ir, enskir f járkaupmen, Parker & Fraser í Liverpqol-Birkenhead ákveðið, að kaupa hér fé á fæti í haust, og hafa í því skyni sent hingað nú með “Lauru” umboðsmann sinn, Alexander Ponton, er fyrir mörgnm árum var umboðs- maður Slimons við f járkaup hér á landi, og er því töluvert kunngugur hér frá fornu fari. (Eftir Þjólfi). AKUBEYBI, 25. Apríl. Veðrátta hefir verið stilt meiri hluta mánaðarins en frost að öðru hverju all- mikíl og hefir ísinn fyrst fyrir fáum dögum leyst hér af höfninni. Hey- birgðir manna og skepnuhöld eru nú í góðu lagi alstaðar, sem-til spyrst. Inflúenzan er að klykkja út hér í bænum, hafa margir legið viku og lengur, fáeinir hafa þó sloppið alveg, 8 menn hafa dáið í bænum. Aðulbjörg Einarsdóttir systir Magnúsar Einars- sonar organista. Sigurður Jónsson, aldraður maður kendur við Naust, og ungur kvennmaður, systir konu Guð- mundar læknis. Siglingar hingað á fjörðinn hafa verið allmiklar í þessum mánuði, og »***•«*•*•**•***»««*»»#**« 1 DREWRY’S I * I * 9 9 * # # # JÉ* # # m # nafnfræga hreinsaða öl “Freyðir eins og kampavín.” Þett er óáfengur og svalandi sælgætis- drykkur og einnig hið velþekta Canadiska Pilsener Lager-öl. Ágætlega smekkgott og sáínandi í bikarnum AáClr þ°o«ir drykkir er seldir i pelaflöskum og sérstaklega ætl- Fæst jéSc aðir til neyzlu í heimahúsum. — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. hjá öllum vín eða ölsölum eða með því að panta það beint frá * # # # # REDWOOD BREWERY. EDWARÐ L- DEEWRY- Slannfactnrer & Importer, B i>\l ########################## OKKAR MIKLA---- FATA=SALA HELDUR ENN AFRAM Vvið höfum ennþá finlega og endingargóða Tweed alfatnaði íyrir................. $10.50 12 svarta worsted stutttreyju- alfatnaði (square cut)... $10.50 Þessa viku gefum við einnig helmingi meiri “Trading Stamps” með öllum drengjafötum Drengjabuxur á 25 og 50 cents. DEEGAN’5 556 Main Str. 10 dusin hvitar skyrtur 25C. hver. vörur komnar til flestra kaupmanna og miklar til sumra. Fiskiléysið á Eyjaflrði er enn þá hið sama, ekkert úr sjó að hafa, nema nokkur hrognkelsaveiði út við Svarf- aðardal, er því mjög þröngt i búi hjá mörgum þegar sjórinn bregzt svona. Aflaleysi er og að frétta alstaðar af Austurlandi. Undarlegt tiltæki var framið i Ljósavatnskirkjugarði eigi als fyrir löngu. Hin góðkunna sómakona, Þur- íður frá Baldursheimi við Mývatn, móðir hinna svo nefndu Baldursheims- systkina var af einum syni sínum graf- in þar upp eftir að hafa hvílt þar um 2 ár, og flutt fram i Bárðardal í kistu sinni og eftir einhverja dvöl þar flutt að Skútustöðum og holað þar ofan i kirkjugarðinn í viðurvist fjölda fólks úr Mývatnssveit. Þetta kvað vera í annað sinn í manna minnum, að hinar jarðnesku leifar góðkunnra heiðurs- manna hafa verið rifnar upp á Ljósa- vatni og fiuttar burt; verður því ekki neitað, að slíkar dauðramanna kross- messur eru hálfóviðkunnanlegar, og ó- sjálfrátt vekja þá spurningu hjá manni, hvort börn eða barnabörn hafa nokk- urn rétt*til að vera að þeyta ættfeðr- um sínum eða ættmæðrum milli leg- staða, og hvort sá dauði hefir eigi rétt- arkröfu til að fá að hvílai friði þar sem einu sinni er búið að hola þeim niður. frézt hefir að amtmaður muni skipa málsókn út af þessu tiltæki. Þann 17. þ. m. andaðist að heimili sínu Skriðu í Hörgárdal óðalsbóndi Jón Jónsson rúml. 70 ára, eftir stutta sjúk- dómslegu. Akureyri 19. Maí 1900. Arnór Eigilson ljósmyndasmiður andaðisthér í bænum 4. þ. m. 44 ára, var hann mjög vel látinn og ágætlega að sér í iðn sinni, flutt.ist hann hingað í fyrra vor, og hafði mikla aðsókn sem ljósmyndari síðastl. sumar. Tvær góðkunnar merkiskonur A níræðisaldri hafa nýlega látist eystra, þær Msrgrét Hálfdánardóttir á Odd- stöðum á Sléttu, móðir Árna kaup- manns Péturssonar og þeirra systkina, hyrjaði hún ung búskap á Oddstöðum með manni sínum Pétri Jakobssyni frá Breiðumýri, og bjó þar síðan, og Ingi- björg Sigurðardóttir í Dölum í Hjalta- staðaþinghá, atgjerfiskona mikil. Síldarafli töluverðu/ á pollinum síð- ustu daga. Fiskiskipin sum hafa komið með' eóðan afla (Júlíus, Jón, Gestur, Talis- mann) með 9—17 þúsund hvert. Sum hákarlaskipin hafa og komið með afla. Fiskiaust enn á Eyjafirði. Akureyri 6. Júní 1900. Nýlega er dáin hér í bænum öldr- uð kona Guðrún Jónsdóttir, nærri sextug, móðir Guðmundar Finnboga- sonar fagurfræðings, Ásgeirs bakara og þeirra systkina. (Eftir Stefni). J^OMINION TRADING STAJTP FJELAGID er á undan öllum öðrum samtíðafélögum í sinni grein. Það hefir 3.1 útibú í Canada, þar sem eigulegir hlutir eru gefnir fyrir útfyltar Trading Stamp bækur. Eítir samkomulagi við “Manufacturers” gefur félagið ýmsar nauðsynjar og skrautmuni fyrir “Trading Stamps” á lægra verði en mögulegt er að bjóða undir venjulegum kringumstæðum. Það er af þessum ástæðum, að vér böfum náð vinsældum almennings. Og svo mikils ern gjafir vorar metnar, að andstæðingar vorir eru farnir að safna Bláum Trading Stamps til þess að geta fengið fáeina eigulega hluti og haft þá til sýnis. ÆTID BEZT KJORKAUP ÞAR KEM ÞETTA MERKI HANGIK Blue Trading Stamp Collectors... ŒTID BEZT KJORKAUP ÞAR SEM ÞETTA MERKI HANGIR '"píNIÐ ekki ávísunum yðar, þar eð þær koma í góðar þarfir f samkepninni um 300 gjafir sem verða gefnar 100 manns, það ey að segja þeim sem hafa safnað flestum BLUE TRADING 5TAJTPS bókum á árinu 1900. Allar sögur um það, að hætt verði að gefa þessa bláu stampa, eru gjörsamlega ósannar, og þeir sem bera þær út, eru ósannindamenn. M I

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.