Heimskringla - 30.08.1900, Blaðsíða 4

Heimskringla - 30.08.1900, Blaðsíða 4
HE1M5KRINGLA, 30. AGXJST 1900. Uakid eftir! Þar eð óg hef keypt verzlun J. G. Dalman s, á horniru á King St. & James Ave., hér í bænum, og verzla þar fram- vegis með alskonar NÝJA OG GAMLA INNANHÚSMUNI, svo sein: Borðogstóla, rúmstæði, l,Bed Springs”, dvnur og alskonar rúm- fatnad, kommóður, “Sideboards”, þvottaborð (Wash Stands), hitunar- ofna, matreiðslustór, rörpípur, glasvöru og glertau, og margt og margt annað, sem yrði oflangt að telja hér upp, þá vona eg, að þeir landar mínir, sem þarfnast einhvers innanhúss, komi til mm áður en kaupa annarsstaðar. AÍt ódýrt fjrir borgun út í liönd. Gamlir munir keyptir, eða teknir í skiftum fyrir nýja muni. K. 5. Thordarson. - 181 King St. & Jaraes Ave. ♦ \ * ) Winnipe^ Hra. Ktistian Benidiktsson, frá Point Boberts, sem fór í kynnisför til íslands í Febrúar síðastliðnum, kom til baka hingað á íslendingadaginn. Hann hefir verið veikur síðan hann kom vest- ur, en er nú kominn til heilsu aftur og fij-ggur á heimferð til Kyrrahafsins í þessari viku. Ekki leist honum vel á landbúnað eða verzlun á íslandi, og kvað hann heimkomuna hafa orðið sór vonbrygði. Mikill vesturfarahugur er nú í fólki á ísl. ef ekki skorti fargjöld. Hra. Sigfús Sigurðsson, frá Mikley, var hér á ferð f síðustu viku með konu sina, þau voru á leið til Norður-Dakota í kj-nnisför til systur Sigfúsar, sem býr nálægt Mountain. Jóhann Grímúlfsson og Jakob Guð- jónsson, frá Hecla P. O., voru hér í bænum í síðastl. viku, þeir hafa unnið við fiskveiðar norður á vatni í sumar og láta vel yfir vistinni þar. Mr. F. T. Griffin hefir verið settur | aðal-"Land Commissioner fyrir C. P- R. fél. í stað Mr. L. A. Hamilton, sem [ nú er á eyjunni Cúba._ Mr. Griflin hefir \urið mörg ár í þjónustu félagsins og gegnt stöðu sinni svo óaðfinnanlega vel að haun verðskuldar þetta nýja og ábyrgðarmikla embætti. Hra. Sigurður Magnússon, frá Rat Portage, kom til bæjarins í fyrri viku. Sigurður er formaður áGufubát á Dan- markvatni í Rainy River héraðinu, um öOmílur frá Rat Portaga. Sigurður segir að gullnámarnir í Rainy River héraðinu líti vel út og að fjöldi fólks hafi atvinnu við gullgröft, segir hann að við suma námana vinni á annað hundrað manna. Sultana- og Mikado námurnar segir hann að séu auðugastar þar í grend. Sultananáman var í fyrra seld nýju félagi fyrir hálfa millj. dollara. ,í Tslendingar fóru með Sigurði austur á fó tudagínn i fyrri viku, þeir ætla að vinua í námunum. Það er álit Sigurð- ar að nokkrir duglegir menn gætu fengið þar atvinnu árið um kring með sæmilegu kaupi. Minsta kaup sem þar ci borgað er »1.75 á dag fyrír ofanjarð- ái vínnu, en fyrir neðanjarðarvíunu og pprengingar er kaupið frá »2,50 til »5 Cmj á dag, sumar ög Vetur. Félag það sém tíigurður vinnur fýrir hetir 15 námalóð- ir Við Seine River, að eins 2 mílur frá suðaustur járnbrautinni, rett norðan við Minnesota landamerkin. Félagið hefir þar nokkra náma í undirbúningi undir gröft þann sem félagið ætlar að láta gera þar að ári. Þetta mikla náma- félag heitir "Anglo Canadian Gold Estate” og ráðsmaður þess í Canada er Allan Sullivan Box 23G Rat Portage. Sigurður hefir sömu utanáskrift. Hafst. Sigurðsson i Keewatin er orð- inn umsjónarmaður á Lake og the Wopds hveitimylnunni miklu í Kee- watin. Allir landar þar í bænum eiga íbúðarhús sín og líður mæta vel, þeir hafa allir sæmilega atvinnu. 3 íslenzk liörn hafa dáið þar í bænum á síðastl. 4 vikum, þau dóu úr hinni vanalegu s nnarhita veiki. ing þessa árs, og að næsta ár muni skattur félagsins til fylkisinsekki verða undir 75—80 þúsund dollars. Á sunnudaginn kemur, 2. næsta mánaðar, verður guðsþjónusta haldin í Unitarakyrkjunni. Umræðuefni: “He- resy”, Byrjar kl. 7. e. m. Fylkisstjórnín auglýsir í þessu blaði Hkr. útdrátt úr dýra og fugla friðun- arlögunumfrá siðasta þingi. Vér bend- um íslendingum á að lesa þá auglýs- ingu og gera sér kunnugt hvern tima ársins hver fugla- og dýrategund er friðuð. Það er nauðsynlegt að kynna sér ákvæði laganna, svoað menn geti forðast brot gegn þeim og þvi fylgj- andi hegningu. Fylkisstjórnin hefir gert samninga við Kelly-bræður um að byggja viðbót við heyrnar- og málleysingjaskólann hér í bænum. Þeir höfðu gert lægsta tilboð að vinna verkið. Hra. Guðm. P. Paulson frá Giml; er orðinn verkstjóri við sögunarmillu Mr. Hookers í West Selkirk. Hann æskir að landar vorir þar í bænum, sem þurfa að íá sér bygginga- eða annan við, vilau finna sig að máli áður en þeir kaupa annarstaðar. Það getur verið hagur fyrir þá. Nýkomið er hingað vestur 3. hefti Eimreiðarinnar þessa árgangs, og Bó.ka safn alþýðu. Rita þessara verður nán- ar getið síðar í Hkr. Eftir að hætt var að safna í Þjóð ræknissjóðinn bárust honum gjafír frá eftirfj’lgjandi: Jóh. Magnússon, Árnes P. O., 25c. Stefán Jónsson “ “ 30 Jónas Magnússon tt t( 25 Rebekka Stefánsd. it 11 25 Sigurður Olafsson (t 11 50 Isleifur Helgason it t. 50 Guðm, Sturluson Wild Oak 1 00 Samtals $3,05 Herra J. M. Courtney, féhirðir Þjóðræknissjóðsins í Ottawa, hefir með bréfi nýlega meðteknu vottað íslend ingum innilegt þakklæti fyrir gjafir þeirra í sjóðinn. Segir Mr. Courtney að Merchant bankinn hafi sent sér $277,70 gjöf frá Islendingum og mælist til þess að sér verði send nöfn þeirra allra, svo þau verði auglýsti bæklingi, sete áformað sé að prenta meö nöfnum alíra gefenda. Nöfnin voru rend. Mrs MargrétSkaptason, frá Hnaus- um, kom til bæjarins í síðustu viku í kynnisför til vina hér. Hún fór heim- leiðis um síðustu helgi. Fjórir bæjarbúar voru sektaðir 15. þ. m. fyrir að keyra hesta sína vinstra- megin á götum bæjarins. Landar vorir ættu að varast það. J. E. Anderson, frá Peguis P. O , kom til bæjarins fyrra laugardag. Hann segir uppskeruhorfui rýrar í sinni bygð en heybyrgðir A’erði í meðallagi mep því að þar er talsvert votlendi Heilbrigði segir hann góða og almeuna vellíðe.n. Danskur maður að nafni Anderson hefir verið hér í fangelsi í síðastl. 6 mán. fyrir þjöfnao, betrunarvinnutími hans var uppi á mánudaginn í siðustu viku, og var honum þá slept. En sama kvöld- ið og um nóttina eftir stal hann úr 2 húsum hér í bænum og vann sér með því 10 ára vist í fangahúsinu. Brennivargar kveiktu eld f 3 hus- um hér í bænum á sunnudaginn var. Skaðinn metinn um »3000. Það vildi »vo til að eitthvað af sýningamunum Manitobastjórnarinnar, sem áttu að sendast á sýningarnar í Toronto og Cal- gary, voru geymdir uppi á lofti í einu af þessum húsum og brunnu þeir allir. Hon. J. A Davidson gerir áætlun um að fylkið fái »35,000 í skattgreiðslu frá C. P. R félaginu fyrir síðari helm- 3,707 innflytjendur komu til bæjar- ins í síðastliðnum mánuði.(Júlí). Það voru 227 Englendingar, 1,151 Galiciu- menn, 507 Islendingar og 350 frá Banda- ríkjunum, hinir voru frá ýmsum lðnd- um. Nokkuð á níunda hundrað ís- lendingar hafa komið hingað vestur í sumar og von á fleiri, svo að als er bú ist við að um 1000 manna komi á árinu frá íslandi. 2 menn hafa beðið bana af sólslagi í bæþessumí síðastl. viku. Annar var umsjónarmaður Brooksidegrafreitsins; hitt var bóndi sem heima átti hér ná- lægt bænum. Engir aðrir hafa látið líf ið af völdum sdlarbitans hér á þessu sumri. Hra. Jón Sigurgeirsson frá Hekla P. O og Miss Sigurlín Hallbórsdóttír 'frá samastað, vóru gefin saman í hjóna- af séra Bjarna Þórarinssyni 16. þ. m. Þau lögðu af stað heimleiðis daginn eftir. Hkr. óskar þessum ungu hjón- um til heilla og góðs gengis. C. P. R féiagið fékk gull medalíu á Parisarsýningunni fyrir sýningarmuni þá, sem það hafði þar. Einnig fékk það silfurmedaíu fyrir sýnishorn af svefnvagni. Akuryrkjudeildin í Ottawa fær hæstu verðlaun fyrir sýnineu á landsaforðum. Formaður fyrirmynd arbúanna í Canada fær gull medalíu. Stjórnirnar í Manitoba, Ontario og Nova Scotia fá hæstu verðlaun fyrir sýning á afurðum frá þeim fylkjum. Sömuleiðis fær Quebecfylki hæstu verð- laun. En Prince Edward eyja, New Brunswick og Norðvesturheruðin fá hvert um sig gullmedalíur fyrir afurðir er hvert þessara fylkja hafði á sýning- unni. Ýms fleiri verðlaun voru gefin þessum fylkjum fyrir sýningarmuni. Canada hefir fengið hæstu viðurkenn- ingu á þessari sýningu. Maður að nafni Donnelly kom hér á spítalann í þessari yiku og lét sauma saman skurð mikinn á hélsinum. Hann hafði verið í stælum við annan mann út af gripum og hafði sá skorið Donne- ley á háls. Eftir að skurðnrinn var saumaður saman fór maðurinn heim til sín, en neitaði að segja hver hefði veitt honum áveJkann. Ákaft þrumuveður með rigningu æddi yfir Manitoba á sunnudagskvöld- ið var og gerði talsverðan skaða á ýms- um stöðum. Orsök taugaveikinnar. Þegar það fór að kvisast fyrir nokkrum vikum, að taugaveikin væri að ná talsverðri fótfestuhér í fylkinu þá fól heilbr.gðisráð fylkisius Dr. Bell það verk á hendur að raunsaka heil- brigðisástandið í fylkinu og gefa skýrslu um það. Dr, Beil hefir nú lokið starfa sínum og er útdráttur úr skýrslu hans á þessa leið: Það er vafalaust að óhreinindi drykkjarvatns uppsprettum eru oft or- sök taugaveikinnar. En að það sé að- al orsök hennar.er að minsta kostimjög efasamt. Skolþpollar, salerni og sorp- haugar hafa miklu nán ra samband við taugaveikina en fólk i lment ætlar. Frumagnir sýkinnar berast berast með alskonar flugum úr þessum sorphaug- um o. s. frv. í fæðu fólksins, en þar sem skolp er grafið í jörð og sorpi er brent, þar þrífst ekki sýkin að neinum mun. Frumagnir sýkinnar þrífast bezt í mjólk og það er áríðandi að ílát séu iðulega þvegin úr sjóðandi vatni og að flugum só ekki leyft að komast að mjólkinni. í mörgum íveruhúsum eru sorphaugar or skolpilát látin vera of nálægt eldhúsiuu og það er mjög líklegt að frá þessum óhreinindum berist frum- agnir sýkinnar á fótum flugna, í fæðu fólksins. Enda er veiki þessi vanalega skæðust í Ágúst, Seft. og Okt., þegar flugurnar eru mestar, Það er og hugs- ánlegt að frumagnir þessar Íifi í salern- um allan ársins hring, Tilgangur þess- aaar skýrslu er ekki sá að gera lítið úr hreinlæti hvað drykkjarvatn og annað snertir, heldur sá, að benda á hættuna, sem að þessum tima hefir verið gengið fram hjá athugunarlaust. Að koma sem fyrst öllum óhreinindum neðan jarðar eða brenna þau. Næst fylgja varúðarreglur í átta liðum, mest um það hvernig eigi að halda hreinum sal ernum og sorpgörðum m. fl. Þessi útdráttur úr skýrslu læknis- ins er auðvitað mjög samaudreginn, en aðalmeiningin er að frumagnir tauga- veikiunar kvikni og hafist við í skolpi, sorphaugum, kömrum og öðrum óhrein- um stöðum, og að þær berist með flug- um í fæðu fólksins og inn í likami þess, og að hreinlæti sé eina óbrigðula varn- armeðalið gegn útbreiðslu sýkinnar. Séra Bjarni Þórarinsson messaði i Selkirk á sunnudaginn var, að morgni og kvöldinu. Svo var mikil aðsóknin um morguninn, að húsið rúmaði ekki alt fólkið og urðu menn að hverfa frá. Þeir sem urðu fyrir þvf, hugsuðu sér að tapa þó ekki af kvöldmessunni, sem ætti að fara fram kl. 7 Fólkid fór að þyrpast að staðnum strax eftir kl. 6 til þess að ei ga vfst að fá 'sæti, og löngu fyrir kl. 7 var húsiðorðið fult, en marg- ir sem yoru á lei ; til messunnar þegar þrumuveðrinu laust á, sneru rakleiðis heim aftur. Það er talið áreiðanlegt að ef veður hefði verið þurt það kvöld, þá hefði aðsóknin til að hlusta á ræðu séra Bjarna verið svo mikil að ekki fleiri eu helmii.gur fólksins hefði rúm- ast í húsinu. * m m m m m m m m m m m m m m m m t m s 9 m m m m m m m m m m m DREWRY’S nafnfræga hreinsaða öl “Freyðir einsog kampavín.” Þett er óáfengur og svalandi sælgætis- drykkur og einnig hið velþekta Canadiska ^ilsener Lager-öl. Ágætlega smekkgott og sáínandi 1 bikarnum ■DÚOir þ“osir drykkir er seldir í pelaflöskum og sérstaklega ætl- aðir til neyzlu í heimahúsum. — 3 dúsin flöskur fyrir $2.00. Fæst hjá öllum vín eða ölsölum eða með því að panta það beint frá REDWOOD BREWERY. EDWARD L- DllEWRY- mannfactTtrei' & Importer, WlMilFEG *•*»****•»***»«»•***#•*«*§ Fáein orð hafa fallið úr upphafi á ræðu J. J. Samson, sem birtist 45. tölubl þ. árg. Hkr. les: . .hlutverk að tala fyrir minni Vesturheims.. Sex húsbrunar urðu hér á miðviku dagsnóttina. 3 hús brunnu á Stephen Street og á Ross Ave. kvíknaði í húsi, en á Portage Ave. varð mesturskaðinn. Þar brunnu nokkrar búðir og er sá skaði metinn á $100,000. Það er áreið- anlegt. að þessir eldar eru kveiktir af einhverjum brennuvörðum, en lögregl- an hcfir enn þá ekki getað náð í þá. Eitt af húsunum, sem brunnu á Point Douglas, vareign herra Jóh. Sigtryggs- sonar og var fjölskylda hans í pví, en það fólk komst óskemt úr eldinum ,og húsið varð varið algerðum bruna. Búðirnar, sem brunnu á Pcrtage Ave. voru setnar afMcLeod & Holiday, Mr, Convey og Mckenzie & Co. Þeir fyr- nefndu urðu fyrir mestum skaða. Safnaðaríandur á að haldast í Tjaldbúðinni á föstudags- kvöldið 31. þ. m. kl. 8 e. m. Þaðliggur mjög mikilsvarðandi málefni fyrir fundinum, svo það er óskað eftir að all- ir þeir sem nokkuðer ant um söfnuðinn og málefni hans sæki þenna fund. J. Gottskálksson forseti. Rafmagnsbeltin nafnfrægu eru til sölu á skrifstofu Hkr. Þau lækna liðagigt og alla aðra gigt, tannpinu, kirtlaveiki og allskonar verk og sárindi og kvalir ; svefnleysi, melt- ingarleysi, hægðaleysi, lifrarveiki,hjart- veiki, bakverk, nýrnaveiki, inagaveik. höfuðverk, kvefveiki, andarteppu.tauga sjúkdóma og allskonar kvennsjúkdóma. Beltinendast æfilangt og fara aldrei úr l,agi. Þau kosta í Canada $1.25, send til íslands $1.50. Tvær manneskjur ættu ekki að brúka sama beltið. VTér send- um þau kostnaðarlaust til kaupenda gegn fyrirframborgun. Heilir þurfa ekki læknis við. en hlutir, sem úr lagi fara, þurfa end- urbóta, þess vegna er tekið á móti klukkiim, úrum og saumavélum til lagfæringar á Maryland St. 482. TAKIÐ EFTIR! Ég gef yður 8 pd. af sveskjum á 25c 4 laxbauka á 25c, Rassberry eða straw- berry Jam 7 pd. fötur á 35c. Alt mitt Grocery er fádæma ódýrt næstu daga. J. Joselevich, 303 Jarvis St. AUKA-FUNDUR. íslenzkur raálaflutningsmaður Thomas H. Johnson Barbister, solicitor etc. Room 7 Nanton Block, 430 Main Street, W'innipeg Manitoba. TELEPHONE 1220 - - P. O. BOX 750. Það er engin góð mat- vara eins ódýr og eng- in ódýr vara eins góð sem sú, er vér bjóðum yður í búð vorri daglega og viku eftir viku, það eru kostaboð á öllum brauðtegundum i samanburði við það sem öunur bakarí bjóða, því varan er g ó ð . .W J. Boyd, 370 og 579 Main Str. W. W. COLEMAN, B. A. SOLICITOR ETC.. Winnipeg aml Stoncwall. 308 McIntyre Block. Takið þetta geíins. Vér gefum ljómandi fallega og að því skapi verðmæta hluti, með okkar á- gæta tei. af hvaða verði sem ei: kalfl, Cocoa, súkkulaði, pipar, sennips, engi- fer o. fl. Sendið okkur $3 eða $5 með pósti fyrir einhverja, eða allar, af þess- um upptöldu vörum, og gefið okkur tækifæri til að velja fyrir ykkur prís- ana. Sendið frímerki fyrir gjafalist- ann. Okkur vantar alstaðar agenta- borgum kaup og sölulaun. GREAT PACIFC TEA CO. 1464 St. Catherine St. Montreal, Que. föölne Restaurant Stærsta Billiard Hall í Norð vestrlandinu. Fjögur "Pool”-borð og tvö “Billiard”- borð. Allskonar vín og vindlár. Lennon & Hebb, Eigendur. OLI SIMONSON MÆLIR MEÐ SÍNU NÝJA Skanöinavían Hotel. 718 jUain Str Fæði $1.00 á dag. Loyal Geysir Lodge, 7119,1.O.Ö.F., M.U. heldur aukafund á North West Hall á mánudagskvöldið þann 26. þ m. Á- riðandi að allii sæki fundinn, hann byrjar kl. 8 e. m. Árni Eggertsson P.S. Kennara vantar við Baidurskóla, fyrir það fyrsta frá 20. Seft. til 20. Des. 1900. — Umsæk- endur tiltaki hvaða kaup þeir viljahafa, geti um hvaða mentastig þeir hafi og æfingu sem kenuari.—Tilboðum verður veitt móttaka af undirrituðum til 11. Seft næstkoiuandi, til kl. 4 e. m. Hnausa 13. Ágúst 1900. 0. G, Akraness ritari. Liiton ltraud . Im*rnntion»l HEFIR ojSÆjgji; KAUPIÐ ÞETTA EKKERT MERKI ANNAÐ imaitTinc*) Auglýsing. Hér með lej’fi ég mér undtrskrifuð að bjóða þjónustu mína til hjáveru og hjúkrunar, þeim sem parfnast kynnu, svo sem sængurkonum sjúklingum og öðrum. Heimili mitt er Ross Ave. 778. VIGDÍS JOHNSSON. Victoria Eniployment Knrenu Foulds Block, Room No. 2 Corner Main & Market St. Vér þörfnumst eÍDmltt núna vinnu- kona, stúlkur til að bera á borð “Din- ing rcom girls”. uppistúlkur “Chamber- Maids” og einnig stúlkur til að vinna í familíuhúsum og fleira, gott kaup. A ctina Ekkert meðala- sull. Varnar blindu Endurlífgar sjónina. Vér höfum gert rnarear sterkar staðhæfingar um “Actina” og vér erum jafnan við því búnir að standa við þær Uinl8ára tímabil hefir “Actiaa” verið undur verald- arinnar, og læknað veik og veikluð augu, “Catar”, andar teppu, kvef, lungnaveiki o. fl. o. fl. Það gefur áreiðanlega og vissa hjálp. “Actina”, óviðjafnanlegt vasa,-rafmagns “Batterji” og er jafn þénanlegt fyrir unga sem gamla, og brúkun þess er algerlega tempruð eftir þörfum þess sem brúkar. Það er engin þörf að brúka meðöl, “Actina” er einhlýt. Ef þú líður, þá er það þess virði fyrir þig að rannsaka þessst makalausu lækninga-aðferð. — "Actina” og Prof. Wilson’s rafmagns conservative- undirfatnaður verður sérstaklega til sýnis á iðnaðarsýning- unni frá 22. til 28.yJúlí. Fríar ráðleggingar gefnar hvenær sem vera vill, Karl K. Albert, 268 McDermott Ave. WINNIPEQ, HAN. Kostar ekki cent. Davidson’s ágæta, steinda jámvara, hið allra farflegasta til heimilisbrúkun- ar, gefið, kostnaðarlaust. með $2 pönt- un «f tei, kafli. Bnking Powder, sinnep, engifer og öðru.kryddi m. fl. Vana- söjuverð 25, 30, 35 og 40 cents pundið, Sendið okkursmáar pantanir til reynslu og fáið ykkur góða prísa og lista yfir það sem við höfum til að gefa fólkina. — Okkur vantar agenta alstaðar um landið. Vér borgum bæði kaup og sölulaun. Sendið fríraerki fyrir verð- og premíu-lista. GREAT PACIFIC TEA CO. 1464 S:. Catherine St. Montreal, Que. E, KNIQHT & Co, biðja yður vinsamlega að lita inn í búðarglugga þeirra. Ef þér hafið of- miklar annir að deginum til, þá komið að kvöldinu, þá er búðin vel upp- lýst og kjörkaupin á skófatnaði því öllum sjáanleg. Enginn annar staður i Winnipeg hentugri og vöruverðið sanngjarat. Okkar ágætu verkamanna skór seljast fljótt á $1.15, sumir selja þá fyrir $1.50, Konurnar ættu að koma við i búð vorri, ef þær eru ekki nú þegar búnar að því. E' KIVIGHT c Gegnt Portage Ave. 351 main Street.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.