Heimskringla - 22.11.1900, Qupperneq 3
HEIMSKRINGLA 22: NÓVEMBER 1900.
•*kólatillag og 5% íi þeim $1,225,0°0
*em Greenwastjóinin batt fylkið til
xð borgaaf skuldum M. & N. W. Ry.
félagsins, allan kostnað við opinðer
verk og fl. Þegar vér komum til
valda settum vér oss það markmið
að auka inntektirnar og þess vegna
lögðum vér skatta é jirnbrautir,
banka, Insurance félðg, líinfélög,
strætabrautir, Telegraph og Tele.
phone félög, gasfélög og express fé
lög. Ei’tir alt þefta, þá verður samt
lítilfjörleg sjóðþurð. Þess vegna
báðum vér sveitafélögin að standast
part af dómkostnaði fylkisins. Þessi
upphæð nemur í?17,370. Þessi
skattur nemur 16 cents á hvern sect
ion-fjórðung. Það er áform stjórnar-
innar í náiægri framtíð að létta þess-
um skatti af sveitunum svo að fylk-
isbúar fái að njóta allra þeirra hlynn-
inaa sem sparsöm og ráðvönd stjórn
getur látið þeim í té, án þess þeir
þurfl að bera nokkurn beinan skatt
af stjórnarkosnaðinum. Annað eða
tneira get ég ekki í þetta sinn sagt
um fjármálastefnuna En cg mælist
til þess að íbúarnir í Manitoba veiti
mér sanngjarnt tækifæsi til þess að
koma í framkvæmd þeim góðu á-
formum sem fylkisstjórnin hefir til
þess að bæta hag fylkisbúaaf fremsta
megni.
Tilkynning.
Markv'erðar uppgötvanir,
Heiðraða ritstjórn og útgefendur
“Heimskringlu” í Winnipeg.
Heiðruðu herrar: —
Ég mælist til þess að þér ljáið
línum þessum rúm í blaði yðar.
Hér með tilkvni ég undir-
skrifaður, að ég hefl nú í höndum
niér óyggjandi sannanir tyrir eftir-
fjdgjandi atriðum •
1. Að rafurmagns hitun getur
orðið tvöfalt til þrefalt ódýrari enn
kolahitun er nú á íslandi og hvar
sem líkt tilhagar, nefni!., að kol eru
dýrari en vatnsmegn yflrgnæfandi
og ódýrt sem hreifiafl, svo að lands-
menn gæti með rafurmagnshitun
sparað sér fult helmingþess fjár sem
þeir verja nú fyrir eldunaráhöld og
eldsneyti.
2. Að rafurmagnsgeislan þ. e.:
þráðlaus rafritan (wireless tele-
graphy) er nú orðin svo fullkomin
að mögulegt er að senda ralskeyti
yfir600 mílur vegar (enskar), þ. e.
talsvert lengra svæði en aðskilur Is-
land og Orkneyjar. Og er ritanin
fljótari og fult eins viss eins og með
hafsímum, en áhöldin miklu (ef ekki
margfalt) ódyrari enn ritsímar þ. e.
hafsímar,eru.
3. Þyki stjórn íslands og almenn-
'ingi það nokkurs vert að vita frekar
hm atriði þessi og vilji nota aðferð
mína til að eignast þessi áhöld, svo
gota þeir sem vilja gefið sig fram og
skrifað sig fyrir bæklingi um þetta
mál, er ég hefi í hyggju að láta
prenta, svo framt nógu margir kaup
ondur fáist til að borga prentkostnað
og ritstörf. Bæklingurinn yrði um
rafmagnshitun, rafritun og raf-
iðnað í borgum og tii sveita. Stærð
100 bls. í 8 blaða-broti. Verð $1,
einn dollar eintakið. Kaupeenda
fjöldi má ekki vera minni enn 500
(fimm hundruð).
Ég get þess einnig, að þetta er
árangurinn af níu ára erfiði, þ. e.
síðan ég fyrst steig inn í rafmagns-
smiðju, og fór að stunda raffræði af
alvöru og hins vegar er engum
einstökum manni, efnalausum, mögu
legt að koma neinu verulegu í verk,
nema hann njóti hylli og aðstoð-
ar dugandi inanna. Þess vegna býð-
ég yður Vestur-íslendingum þetta
ritsmíði til kaups, eins og fyrsta og
vænsta fiskinn, sem ég hefi dregið úr
sjó. Og sendi það til prentsmiðj-
unnar svo fljótt sem mér býðst sæmi-
leg borgun fyrir það,—ekki minna
enn $250 (tvö hundruð og tímmtíu
dollarar).
Lánist þetta fyrirtæki, svo get
ég líklega sent Vestur-fslendingum
kjarnmeiri og bragðbetri sálarfræði
héðan frá bókhlöðnm livrópu, heldur
enn prestar og pólitiskir fjármenn
bera á borð fyrir þá. — Ég treysti
því að þessir 15,000 Vestur-íslend
ingar kaupi eítt þúsund eintök og
itð gamlir góð-kunningjar skrifl
*ig fyrstir á listann, er svo sendist
Heimskringlu, ef hún vill prenta—
annars til mín. Og svo vona ég að
ritstjórn og útgefendur Heimskr
láti mig vita hvort þeim sýnist til-
vinnandi að prenta ofan greindan
bækling.
Menn munu skilja að mér er
þetta talsvert áhugamál, ekki ein'
ungis sjálfs míns vegna sem atvinnu,
heldur vegna íslands og allra ís-
lendinga, því svo framarlega sem
auðkýfingar ekki kaupa þessa upp-
fynding og sprengja svo verð áhald-
anna upp úr öllu hófi, svo er hér
fundinn vegur til að spara íslandi
hartnær millíón króna útlát til rit-
síma flækjunnar --þeirra V. einnar,
en rafurmagns-hitunin opnar nýjan
atvinnuveg og nýjar auðlindir, alveg
ótæmandi, hvar sem vatnsmagn er
mikið, og dýrmætari enn nokkrir
kolanámar eru. Þessar sannanir
hefl ég sjálfur uppgrafið hér í hyl-
dýpi fátæktar og fyrirlitningar. Ég
hef graflð þæð upp úr fræðibókum í
ýmsum bókblöðum, eins og gim-
steina, því þessháttar þekking er
ekki fleigt út fyrir ekkert, og ég býð
yður þær til kaups fyrir lægsta dag-
launa prís, yður, sem eins og ég,
vitið hvað það kostar að ryðja sér
nýjar brautir til velmegnnar og
frelsis og viljið ekki veikja, né
hindra nokkurs framför.
V irðingarfyillst.
Frimann B. Anderson.
Ritað að 50 Rue Masarine,
18. Október 1900.
ATHUGASEMD.
Ofanritað er öllu fremur vinnu-
framboð, enn liðsbón. Ég býð hér
nytsaman hlut og vona að menn í-
hugi orð mín vel, því sðkum áfalls
er ég varð fyrir í vetur sem leið, þar
sem ég vann við sýningarskála
Svía;—ég féll í óveðri ofan af bygg
ingunni og lamaðist talsvert;—þá er
ég nú ekki lengur fær til stritvinnu,
og aðra hef ég ekki, svo teljandi sé.
Því ef égþyki “hámentaður” meðal
fslendinga, þá þvki ég ekki nógu
lærður hér til að vera prófessor við
neinn borgarskólann og Frakkar
eiga nóg af “áburðarhestum” sjálfir,
En ég er svona fáfróður, vegna þess
að ég stjaldraðí við um 4 ár í Win-
nipeg.En ég hinkraði þarvið vegna
þess ég vildi hjálpa yður nýbyggjur
unum til að brúa yflr það sex alda
djúp, sem aðskilur alþýðu Islands
frá nútíðar menningu heimsins. Og
ég bygði fyrsta stöpul brúarinnar,
þegar ég stofnaði Heims-kringlu—
(ekki Heimsk-ringlu); annann hafið
þér bygt með því að reisa yður bú.
—Nú verðum viðaðbyggia brúar-
bogann yfir hafið—og sú brú er ofin
sem bifröst úr sólarljóma.
Að elta vísindin félaus og vina-
laus, er eins og að hlaupa eftlr hrað
lest- það getur enginn, því vísindun-
uin fleygir svo fram árlega—að mað-
ur verður æ meir og meir á eftir—í
flokki vinnudýra.
Eini vegurinn er þá að ryðja
sér skemmri veg, brúa höf og
höggvagöng gegnum fjöllin.
• Að því hefi ég unnið nú um full
níu ár, égmá ségja 12. Eg hef graf
ið miggegnum fjallið og kalla til
ykkar: Hérna er stytzt yfir hafið.
Hér verður brúin að byggjast Raf-
ritunin er brúin, bygð af loga; raf-
hitunin eru göngin, höggvinn af
Mjölni þ. e.: eldingunni.—
Eruð þið til að byrja. Sendið
mér svar með geisla. Ég vona að
einhverjir fornkunningjar af 14000
til 15000 Vestur.íslendingum styðji
með að verki, svo dugi.
Taki alþýða vel undir þessi til-
mæli, svo ætti þess ekki að verða
langt að bíða, að hún ætti á heimil-
um sínum fjölfræð ,safn Heims-
kringlu—með hnöttinn þar inniial-
inn—og þar með gæti trygt sér til-
veru íslenzkunnar og íslenzkra hug-
sjóna I sinni nýju álfu.
Það er lffsspursmág lyrir oss að
eignast þekking ekki síður en efni,
því annars verðum vér sviknir út af
því sem við eigum; og þótt land-
rými sé mikið vestra, verður það
ekki ætíð. En I borgum verður
maður að hafa mikla verklega þekk
ing og æflng, annars er hann út-
taugaður og drepinn eins og vinnu-
dýr.
Ég rita af eigin reynslu, því ég
hefi orðið fyrir því, og þó kann ég
nú nokkurnveginn 7 tungumál, en
Ovanaleg kjórkaup
“EASTERN CLOTHING HOUSE”
570 Onin Street.
Vér erum að hætta við smásölu og'retlum héreftir að stunda hoildsölu
verzlun I karlmannafatnaði. Og þess vegna seljum’vér nú allar vörurn-
ar í búð vorri, 570 Main St. með óvanalegu kjörverði þar til alt er út selt.
Allir sem þurfa karlmannafatnað ættu að koma sem fyrst og komast
eftir verði á vörunum áðuren þeir kaupa annarstaðar fyrir hærra verð,
“Eastern Glothing House“
570 Main Street.
I oodlime Rsstaiirant’bað er engin góð mat-
stwmtn. Riiimrð TTnii ' vara eins ódýr og eng-
in ódýr vara eins góð
sem sú, er vér hjóðum yður í búð vorri
daglega og viku eftir viku, það em
kostaboð á ðllum hrauðtegundum f
samanburði við það sem önnur bakari
bjóða, því varan er g ó ð .
.W J. Boyd,
370 og 579 Main Str.
Norð vestrlandinu.
Fjögur “Pool”-borð og tvö “Biliiard”-
borð. Allskonar vin og vindlar.
Lennon & Hebb,
Eigendur.
OLI SIMONSON
MÆLIR MEÐ 8fN0 NÝJA
Stanflinavian Hotel.
718 fljti 11 str.
Fæði $1.00 á dag.
I^OBINSON &©o
Allir íslendingar þekkja Robinsons klæðasöludúðina á Main 8t. og
margar konnr kaupa þar kjólatau sitt og alt annað er að klæðnaði lýtur.
Vér höfum meiri, fjölbreyttari og ódýrari vörur en aðrar búðir í
Winnipeg. þess vegna seljum vér meira en nokkurannar kaupmaður hér.
Vér bjóðum öllum ísl. kouum að ko aa í búð vora og skoða vörurnar,
sjón er sögu ríkari. Kvennkjólaefni úr-öllum dúkefnum svo sem:
Friezes, Tweeds, Coverts, Whipcords, Beavers og Plait. verðið er $10.00
Hvert kjólefni er vel virði þess se n upp or sett. Kvenntreyjur úr beztu
dúkum með niðursettu verði nú $4.50 Barna yfirhafnir úr hlýjum og
voðfeldum efnum með niðursettu verði. Kyennhattar af öllum tegund-
um, með nýjasta lagi og fagurlesra skreyttir. Vér höfum alt er að
kvennbúnadi lýtur, vér gefum 30 Tfiill i ng StanipH með hverju
dollarsvirði af nýjum kjólefnum sem keypt eru. Allar konur ættu að
koma i búðina.
ROBIHSOI & Co. 400-402 lain Street
íslendingar,
Takið eftir ! Verzlun undirskrif-
aðs er nú vel byrg af öllum nauðsynja-
vörum með afargóðu verði; og eigi nóg
með það, heldur verður fyrst um sinn
gefin 10% afsláttur á vörum, sem eru
keyptar og borgaða- út í hönd. íslenzk-
ur maður vinnnr í búðinni, sem mun
gera sér alt far um að afgreiða landa
síua svo fijótt og vel sem unt er.
Crystal, 22. September 1900.
Samuel F. Waldo.
Áklögun
hinna mælskustu málleysingja.
Þér sem óneytanlega ger’ð alt, sem
þér getið í því að láta sjálfa yður, kon-
ur og börn, koma vel fyrir sjónir, vitan-
lega af góðum og gildum ástæðum,
ferst nokkuð annan veg við oss vesa-
lings Bækur yðar, sem þér, margir
hverjir, komið fram við eins og virkil,
hundtyrkjar, að vér eigi tölurn um hið
sjálfsagða að ver 'a til við yður nær sem
vera skal, en láta oss ganga rifnar og
tættar, limlestar og skitnar í hönd frá
hendi, enda týndar og táðaru pp sumar
af oss. Þessu höfnm vér öllu tekið með
þögn og þolinmæði, er engin tök hafa
verið á að fá bót á því. En þar sem nú
við hendina er hægt að fá mein þessi
bætt, vonum vér þér eigi látið lengur
dragast að vér fáum gegnum gengið
Endnrnýjungar- og Hreinsunareld
Einars Qíslasonar,
bókbindara,
að 525 Elgin Ave.
LyonsJhoo Co."
590 Tlain 8treet.
Þeir selja beztu og ódýr-
ustu morgunskó ^slippers).
Hvergi í borginni hægt að
fá betri, hvar sem leitað er.
Nortlieru Pacific R’y
Samadags tímatafia frá Winniþeg.
MAIN LINE:
Morris, Emerson, St.Paul, Chicago,
Toronto. Montreal, Spokane, Tacoma,
Victoria, San Francisco.
Ferdaglega........ 1,45 p.m
Kemur u .......... 1,30 p. m.
PORTACtE BRANCH.
Portage la Prairie and inte-
rmediats points ......
Fer dagl. nema á^unnud. 4,30 p. m.
Kemur dl. „ u u 11.59 a. m.
MORRIS BRANDOF BRANCH.
Morris, Roland, Miame, Baldr,
Belmont, Wawanesa, Brandon
einnig Souris River Branch,
Belmont til Elgin.......
Lv. Mon., Wed., Fri.10,45 a.m
Ar. Tu»s, Tur., Sat. 4.30p.m.
CHAS. S. FEE, H. SWINFORD,
P. & T. A. St.Paul, Agen
Depot Building. Water 3t
MANITOBA
and
Northwestern R’y.
Time Card, Jan. lst, 1900.
in>d Eb’d
WinnipegLv.Tues.Thurs.Sat. Winnipeg Ar. Mon. Wed Fri. 1115
20 45
Portage la Prairie Lv. Tues.
Thurs. Sat 13 25
Portg la Prairie Mon. TFed. Fr. GladstoneLv.Tues. Thur.Sat. 1505 1835
Gladstone Lv.Mon. TTed. Fri. Neepawa Lv. Tues. Thur. Sat 16 03 1815
Neepawa L v. Mon. TFed. Fri. 15 55
Minnedosa Lv.Tues.Thur.Sat. 1700
Minnedosa Mon. TFed. Fri. 15 15
Rapid City Ar. Tues. Thurs 1820
Rapid City Lv. Wed. Fri- 1315
Birtle 1915
Birtle . Ly. Tues Thurs. 19 30
Birtle Lv. Mon. TFed. Fri. 12 30
Binscarth. Lv. Tues. Thurs. 20 50
Binscarte.. 20 34
Binscarth. 1125
Binscarth.. 1105
Russell.... .. Ar. Tues. Thur, 2140
Russell ... 940
Yorkton... . Arr. Tues. Thur. 120
Yorkton .. 23 30
Y orkton . . 8 30
Yorkton .. .. .Lv. TFed. Fri. 700
TV. R. BAKER, A. McDONALD,
General Manager. Asst. Gen.Pas. Agt
Undarleg fæðing.
Stundum hefir það borið við að föðurlaus börn hafa fæðst, en móður-
laus aldrei. En nú hefir Tlr. E. J. Bawlf, 195 Príncess Str
á þessu síðastliðna ári, getið af sér móðurlausan dilk, — sína stóru
kola-, eldiviðar- og gripafóður verzlun, sem nú er að vaxa yfir höfuð
allra annara verzlana af sömu tegund hér í bænum, og orsakirnar
eru hans iága verð, góða viðmót og Áreiðanlegu viðskifti. Komið
og kaupið, þá munuð þér ánægðir verða.
95
Princess Street.
f. J BAWLF.
ALEXANDRA RJOMA-SKILVINDUR
eru þær beztu og sterkustu.
Alexandra rjómaskilvindan er sú bezta ódýrasta og
uaraniegasta skilvindra sem hægt er að fá. Fæst
nú sem stendur með alveg dæmalausum kostum
hvað viðkemur borgunarskilmálum sérstaklega. Ef
þið annars ætlið að kaupa, þá gerið það nú, ekki
er seinna vænna.
Vér erum að búa oss undir að selja enn þá meira af
þeim á næsta ári. Vér afgreiðum fljótt og skilvís-
lega allar pantanir, sem umboðsmaður yor Mr.
(innnHi' Svcinwon tekur á móti, eða sendar
eru beint til vor.
R. A. LISTER & C°- LTD
232 KING ST WINNIPEG-
HANITOBa.
Kynnið yður kosti þess áður en þér ákveðið að taka yður bólfestu
annarstaðar.
Ibúatalan i Manitoba er nú............................. 250,000
Tala bænda í Manitoba er................................. 35,000
Hveitiuppskeran í Manitoba l889 var bushels............. 7,201,519
“ “ 1894 “ “ 17,172.883
“ ‘ “ 1899 “ “ 27,922,230
Tala búpenings í Manitoba er nú: Hestar................... 102,700
Nautgripir................ 230,075
Sauðfé..................... 35,000
Svin....................... 70,000
Afurðir af kúabúum í Mauitoba 1899 voru................... $470,559
Tilkostnaður við byggingar bænda í Manitoba 1899 var..... $1,402,300
Framföi in i Manitoba er auðsæ af fólksfjölguninni, af auknum
afurðum lan isins, af auknum járnbrautum, af fjölgun skólanna, af vax-
andi verzlun, af vexti borga og bæja, og af vaxaadi velliðan
almennings.
í siðastliðin 20 ár hefir ræktað land aukist úr ekrum............. 50,000
Upp i ekrur........................................................2,500,000
og þó er síðastnefnd tala að eins einn tíundi hluti af ræktanlegu landi
í fylkinu .
Manitoba er hentugt svæði til aðseturs fyrir innflyténdur, þar er
enn þá mesta gnægð af ágætum ókeypis heimilisréttarlöndum og mörg
uppvaxandi blómleg þorþ og bæir, þar sem gott er til atvinnu fyrir
karla og konur.
í Manitoba eru ágætir frískólar fyrir æskulýðinn.
I Manitoba eru mikil og fisksæl veiðivötn sem aldrei bregðast.
T.bYOJMS
400 Miiin St. - Wimiipeg Man.
skil 12. Ég hefl þekking á eðlis-
fræði, efnafræði og verkfræði. Eg
hef unnið á verkstofura, en hér
verður útlendingurinn að vera færari
enn innlendir—eða lifa upp á eigin
fó. Það nota líka margir sér, jafn-
vel frá Englandi og Ameríku, vegna
hinna ágætu vísindastofnana og bók-
hlaðna, er þeir svo rannsaka eins 0g
gullhámur og senda löndum sínum.
Bregðist mér ekki í þetta sinn.
Það verður ekki affarabetra fyrir
Vestur-Islendinga að ég verði hér
til og afvelta sem höfuðsóttar kind.
Því ekki eigið þið aðra til er geta
neitt verkbetur Við getum þvíað eins
sigrað þ. e. komist vel af, að við veit
um hver öðrum lið. Það borgar
sig.
Ritað að 4 Rue La Place,
30. Októbev 1900.
FrimAnn B. Anderson.
Sögur og kvæði,
eftir
Sig.Júl. Jó/ianihesKon með mynd er ný-
útkomin (I. hefti) og kosta að eins 25
cents. Aðalútsölu hefir Mr. J. G.
Gunnarsson, 500 Elgin Ave., Winnipeg,
en auk þess fæst hún hjá ýmsum öðrum
svo sem Mr. B. L. Baldwinson ritstj.
Hkr., Mr. J. P. ísdal. Mr.j’Andrési
Johnson, 358 Pacific Ave. o. fl. Bókin
er 98 bls. að stærð í 16 blaða broti. Sök-
um þess ad ég varð að fara i burtu um
það leyti, sem bókin kom út, getur skeð
að þeir hafi enn ekki allir fengið hana,
er höfðu skrifað sig fyrir henni; bið ég
þvi vinsamiega afsökunar og óska eftir
að þeir geri svo vel að snúa sér til Mr.
J. G. Gunnarssonar. Þess skal getið,
að síðasta kvæðinu í bókinni fylgdiat-
hugasemd, en hún hafði gleymst.
Kvæðið heitir “Hilda Blake",] eu aðeins
byrjun af því birtist í þessu hefti;
næsta hefti, sem kemur út innan árs;
að öllu forfallalausu, byrjar með fram-
haldi af því.
Sig. Júl. Jó/iannesson.
w. W. COLEMAN, B. A.
SOLICITOR ETC..
Winulpcg iiml Stonewall.
308 McIntvrk Block.
I bæjunum TTinnipeg, Brandon, Selkirk og fleiri bæjum mun nú
vera vfir 5,000 íslendingar, og í sjö aðal-nýlendum þeirra í Manitoba,
eru rúmlega aðrar 5,000 raanna. Þess utan eru f Norðvesturhéruðunum
og British Columbia um 2,000 íslendingar.
Yfir ÍO inillioy ír ekrur af landi í Manitoba, sem enn þá
hafa ekki verið ræktaðar, eru til sölu, og kosta frá $2.50 til $6.00 hver
ekra, eftir gæðum. Þetta land fæst með vægum kaupskilmálum.
Þjóðeignarlönd í öllum pörtum fylkisins, og járnbrautarlönd með
fram Manitoba og North TFestern járnbrautinni eru til sölu.
Skrifið eftir nýustu upplýsingum, kortum o. s. frv. alt ókeypis, til;
JOHN A. I»AYII»SO\.
Minister of Agriculture and Immigration, »"tiÆ
WINNIPEG, MANITOBA.
OKKAR MIKLA----
FATA = SíiI A heldur
1 /A. 1 /A C’dL/A ENN AFRAM
Vvið höfurn ennþá fínlega og endingargóða
Tweed alfatnaði tyrir..................
$10.50
12 svarta worsted stutttreyju-
alfatnaði (square cut)...
$10.50
Þessa viku gefum við einnig helmingi meiri
“Trading Stamps” með öllum drengjafötum
Drengjabuxur á 25 og 50 cents.
10 dusin hvitar skyrtnr
25C. hver.
DEEQAN’5
556Main Str.