Heimskringla - 30.05.1901, Qupperneq 1
e-
*
IleiniMkringln er gef-
in ut hvern fimtudag af:
H imskringla News and
Publishing Co., að 547 Main
St., Winnipeg, Man. Kost-
ar um árið $1.50. Borgað
fyrirfram.
008,0
Jní9ffOav
Nýír kaupendur fá i f
kaupbætir sðgu Drake f
Standish eða Lajla og jóla- a
blað Hkr. 49oO. Verð 35 og f
25 cents, ef seldar, sendar f
til íslands fyrir 5 cents á
XV. ÁR
WINNIPEG, MANITOBA .-10. MAÍ 1901.
Nr. 34.
Frjettir.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
I^avarðadeildin í |brezka þinginu
samþykti lagafrumvarp um að leyfa að
byggja rafmagnsbraut milii Manchest-
er og Liverpool á Englandi. Vega
lengdin er 37 mílur, og eiga vagnarnir
að fara það á 20 mínútum. Hver vagn
heflr í sér s'na eigin hreyfivél og ganga
þeir á brautinni hver i sinu lagi, en
ekki i lestum, eins og vanalegt er.
Sporið verður tvðfalt og ganga vagnar
eftir þeim báðar leiðir á hverjum 10
minútum. Þessi járnbraut verður sú
fyrsta í heimi með þessari gerð.
Draga Servíu drotting er talin vit-
stola. Hún reyndi að fyrirfara sér fyr-
ir stuttum tíma. Ráðgjafar konungs
hafa ráðið honum til að fá skilnað frá
henni, en konungur brást reiður við
þeirri uppástungu; kvaðst mundi halda
trygð við konu sína, hvað sem á dag-
ana drifi.
Lord Raglau, aðstoðarritarí í h er;
máladeild Breta, sagði í ræðu, er hann
flutti í London í síðastl. viku, að Bret-
ar hefðu tvær aðferðir til þess að fá
menn í hernað; önnur væri að þiggja
frjáls framboð Ijhermanna, en hin að
neyða þá í herþjónustu. Fyrri aðferð-
in hefði þegar verið reynd og álitin 6-
nóg, þess vegna mættu Bretar ekki
kippa sér upp við það þó stjórnin tæki
að nota síðari aðferðina.
Fréttir úrðllum pörtum Manitoba
segia uppskeruhorfur aldrei hafa verið
betii hór í fylkinu en á þessu vori. Sán-
ing allra korntegunda má nú heita
lokið.
3 kappsiglingaskip voru að reyna
stg við strendur Englands í síðustu
viku. Edward konungur var á einu
þeirra. Snöggnr vindbylur þeyttist yfir
og ðópaði seglum og möstrum af skipi
þvf sem konungur var á, en engií_ af
þeim sem um borð voru meiddust.
Konungur var hinn rólegasti og kvaðss
mundi verða með í förinn;, er skip það
reyndi sig í næsta sinn.
Hræðilegar sögur fara af þvi hvern-
ig farið sé með pólitska- og aðra fanga
í fangelsunum í Colunbia-lýðveldinu
Er mönnum varpað þar í fangelsi án
dóms og laga og í mörgum tilfellum án
allra saka; jafnvel drengjum 10—12 ára
er haugað þangað fyrir minstu misgerð
ir. Svo eru fangahúsin full að fang
arnir verða að sofa til skiftis, því ekki
er rúm fyrir alla að liggja í einu. Hús-
in eru full af alls konar óþrifnaði og
pestræmir sjúkdómar stráfeila fang-
anga. Vatnsskortur og loftleysi verð-
ur öðrum að bana-
William Vicker, í Swan River, er
grunaður um að hafa drepið nýfætt
barn sitt á eitri og orsakað dauða móð-
urinnar á einhvern háit. en óvíst er að
það geti orðið sannað.
Voðalegar verkamanna æsingar
urðu i Obnchoff í Rússlandi 2a. þ. m.
Hálft fjórða þúsund vinuulausra verka
manna grýttu lögregluliðið þar í borg-
inni og meiddu marga þeirra. Her-
deild var kölluð út og skaut hún á
verkamennina; drap nokkra og særði
aðra. 120 voru handteknir.
Maður að nafDÍ Goodman Jenti ný-
lðga af þýzki skip' í New York. Toll-
þjónana grunaði að hann hefði meiri
tollskyldan farangttr meðferðis en hann
gaf uppskátt, svo þeir fóru með hann
til baka um borð á skipið og leituðn á
honum. Fundu þeir þ.i fína gullkeðju
nær milu langa, [vafða utanum mitti
mannsins, og aðra gullbeðju í vasa
hans. Þeir gerðu keðjur þessar upp-
tækar i nafni Bandaríkjastjórnar og
sepdu þær til virðingardeildarinnar.
Þi jú fjölkvænismál hafa komið upp
í Toronto í síðastl. v.ku. Lögreglan
hefir tekið þau til meðferðar.
Bresci, Anarkistinn, sem myrti
Humbert ítaliukonung, hefir framið
sjálfsmorð í fangelsinu. Lífið þar var
o:ðið honum óbœrilegt.
Vöruflutningslest á Grand Trunk
brautinni nálægt St. Hyacinthe, Que-
beck, fór útaf sporinu og eyðilögðust
þar afieilega 5 vagnar og sá 6. skemd-
ist mikið. Menn allir komust af ó-
skemdir. Tap félagsins metíð 830,000.
Gustave Meyer, yngsti stjörnufræð
ingur i Ameríku, hefir sent hraðskeyti
til McKinley forseta Bandarikjanna i
um að tilraun verði gerð til að lífláta
hann í næsta mánuði (Júní) og að hann
skuli vera var um sig. Þykist Meyer
lesa þetta af gangi himinhnattanna.
Enn fremur segir hann að Mrs McKin-
ley muni lifa þar til næstk. Marz eða
Aprip, að minsta kosti. En það telur
hann víst að hún fái sjúkleík mikinn á
þessu tímabili.
Mr. Edison kveðst hafa fundið upp
rafmagnsgeymsluvél, sem endist til að
knýja vagn áfram á ! 125]mílna langri
braut, án þess að endurnýja rafmagnið
í vélinni eða stöðva vagninn. Beztu
vélar gátu áður knúið vagna áfram 50
mflur án þess að endurnýja rafmagnið
i þeim.
Konaein i Toronto stéfndi nýlega
vinnuveitanda sinum fyrir að hafa
dregið af vinnulaunum sínum án or
saka. Hún kveðst vinna við að sauma
drengja buxur og fá að eins 25c. fyrir
hver 12 pör, eða sem næst 2 cent fyrir
hverjar buxur Hún kvaðst ómögu-
lega geta saumað meira en 8 tylftir
buxna á viku hversu mikið sem hún
keptist við vinnuna, og því væru viku-
laun sin aldrei yfir$2. en nú hefði hús-
bóndi hennar fundið að því að verkið
hefði ekki verið nægilega vel gert og
þess vegna hefði hann dregið 60 cents
af tveggja dollara vikukaupinn. Dóm-
arínn kvaðst ekki geta að gert í þessu
mali, og þættl sér þó ilt að svo væri,
þvi að vinnuveitandinn væri hegnÍDg
arverður fyrir meðferðina á saumakon-
um sínum.
Mabou-koianámarnir i Nova Scotia
voru seldir i siðastl. viku fyrir 8200,000
Ke.upendur voru canadiskir og Banda
ríkja auðmenn, sem ætla sér að láta
vinna þá af kappi og með miklum
mannafla.
Stórveldin hafa komið sér saman
um að kalla her sinn burtn úr Kína
Að eius ætla þau hvert um sig, Þýzka-
land, Frakklaud, Englar.d, Rússland
og Japan, að skilja eftir 300 manna,
Ítalía og Austurríki 200 menn hvert og
Bandaríkin 150 manna, tilþessað líta
eftir hígsmunum siuum þar eystra.
Sayt er að kínversk herdeild, hafi
nýlega drepið 60 Boxara-uppreistar-
menn. Boxarar flýðu er þeir urðu fyr-
ir svo miklu mannfalli, en þá tók þýzk
herdeild við og drap 100 af þeim sem
eftir voru, Það er talið líklegt að þetta
verði svo eftirminnileg lexía fyrir Box-
erana að þeir láti framvegis kristna
menn í friði.
Kona nokkur í Tacoma, Wash.
bauð 13 ára gömlum syni sínum að
ganga út með sér. Er þau höfðu geng-
ið nokkra stund. skaut hún drenginn
til bana, og endaði eigið lif sitt með þvi
að drekka katbólsýru, sem hún hafði
með sér.
880,000 var nýlega stolið úr póst
flutningi í Kansas City. Haldið að
einhver af þjónum póststjórnarinnar
hafi náð f þessa skildinga.
Kona ein i bænum Bonheur, Ont.,
viltfst út í skógi fyrir 3 vikum. Hún
var 14 sólarhringa að villast, náði í
enga fæðu, en fann nóg vatn til að
halda i sér lífinu. Einn af lögreglu-
þjónum fylkisins fann hana að lokum
liggjandi upp við tré og þá svo aðfram
komna af hungri og þreytu, að liún
gat ekki staðið. Hún hrestist bráðlega
er hún fékk fæðu o.í hvíld, og vonað að
hún verði albata innan skams tíma.
Pan-American-sýningin f Buffalo
var formlega opnuð á mánudaginn 20.
þ. m. Þann dag sóttu hana yfir 100
þúsund sýningargestir.
J. C. Vass og N orman Luxton
lögðu af stað frá Victoria, B. C.. A
mánudaginn 20. þ. m. í litlum eu vel
útbúnum seglbát suður í suðurhöf.
Þeir félagar ætla þaðan til Ástraliu,
þaðau til Suður-Afríku og svo til Eng
lands. Engir menn hafa áður tekist
svo langa ferð á hendur a jafnlítilli
kænu.
Lögreglustjórunum i Brandon og
ITinuipeg hefir verið tilkynt að allmik-
ill þjófahópur væri að leggja af stað til
Manitoba til þess að leita sér fengs á
hinum ýmsu sýningum, sem hér á að
halda i fylkinu í suroai. Fylkisbúum
er ráðið til þesfs að hafa strangar gæt-
ur á þessum piltum. — Það verður á-
reiðanlega gert hér i Winnipeg, að
minsta kosti.
í ráði er að ný “Uniou” vagnstöð
verði bygð í Port Arthur í sumar, sem
svo verði brúkuð af C. P. R., C, N. R.
og Sl- Joe Ry. félögunum.
Stúlka ein i Crystal City hér i fylk-
inu varð skyndilega vt ik af þvi að
drekka sambland af vatni, ediki og
soda áðar en þessi efni höfðu haft tima
til að samlaga sig og brúsa. Hún dó
eftir 6 stunda kvalafullar þjánÍDgar.
Járnbrautarbrú sú yfir Orangeána,
sem Búar syðilögðu fyrir 14 mánuðum,
er endurbygð af Bretum, og nú dagiega
notuð fyrir lestir þeirra. Hún er 1486
fet á lcngd. Ekki vita Bretar vel um
verustað De Wets, en halda hann vera
í Bothaskarði með 4000 menn og nægar
byrgðir af vopnum og vistum.
Yms af hinum stærri og hraðskreið-
ari gufuskipum, sem fara yfir Atlants-
haf kvarta um að þau hafi orðiö vör
við vatn8Ósuð viðarskip sem marrií kati
í hafinu og berist til og frá með haf-
straumunum. Segja skipstjórar að
hinn roesti háski sé búinn öllum veg-
farendum ánæturlagi af þessum skipa-
leifum. Bandaríkjastjórnin er beðin
að senda fallbyssubát til að leita þau
uppi og eyðileggja þau, svo þau verði
ekki að tjóni.
peningana sveik út úr sparisjóðnuni
áJAkureyri, heíir í héraði vepið
dæmdur í 18 mánaða fangelsi, en
eftir að honurn var birtur dómurinn
strauk hann úr gæzlu frá hreppstjór-
anum (á Kjarna), og toru menn
sendir í ýmsar áttir að leita hans, en
ekki var hann fundinn, er siðast
fréttist.
Hat’íshroði nokkur rak inn á
Húnaflóa snemma í fyrra mánuði en
avarf flótt aftur. Fylgdu honum
höpp nokkur. Efcir því 6em Þjóð-
ólfl er skrifað af Skagaströnd 19. f.
m. náðust þar um 100 smáhveli,
hnísur og höfrungar.
30. Apríl. Embættispróf í heim-
speki (magistereonferense) við há-
skólann haía tveir iandar tekið 12.
þ. m.: Agúst Bjarnason (Hákonarson
heit. kaupm. írá Bíldudal) og Guð-
mundur FinnlogasoD, báðir með
lofseinkunn-
Maður í Montreal keypti nýlega
gajnla mynd málaða á fjöl fyrir 85,00
Síðar tkomst það upp að mynd þessi
muni vera frá 16. eða 17. öld, og hefir
nú eigandanum boðist $1000 fyrir
myndina.
Presbyteríanar í Ameríku héldu 43
stórþing sitt í Des. Moines, Ia , í síð
ustu viku. Aðalumræðuefni þingsins
var um að breyta trúarjátningu kyrkj
unnar i ýmsum atriðum. Um 640full-
trúar sóttu þing þetta og samþyktu
þeir að ýmsar breytingar væru nauð-
synlegar.
Þrjú börn 3, 5 og 7 ára fóru í berja
mó nálægt bænum Pillsbury, Pa., í síð
ustu viku. Leit var gerð eftir þeim ei
leið á daginn ogfundust þá leifar þeirra
þar. Stór skógarbjörn haíði ráðist á
þau og kramið i sundur. Dýiið fanst í
skóginum um kveldið og var skotið.
Eldgos mikil ganga um þessai
mundir á -Tava. Hraunleðjan úr gos-
fjallinu er sögð að hafa eyðilagt kaffi
akrana i Biitarbéraðin u, ogað kaffi
akrar í Kediva-héraðinu són í mestu
hættu af sömu orsökum. Tiúiegt að
Java kaffi stigi í v.rði, ef Kediva-hérað-
ið eyðilegst.
Um ísafjarðar læknishérað sækja
læknarnir Davíð Sch. Thorsteinsscn,
Guðm. Guðmundsson, fyrv. héraðs-
iæknir (frá Laugardælum), Gumð.
Scheving, Jón Jónsson á Yopnaflrði,
Jón Þorvaldsson aðstoðarlæknir /sa-
fjarðar, Júlíus Halldórsson og Jlagn-
ús Asgeirsson.
Hafís var enginn til muna fyrir
Norðurlandi eftir síðustu fréttum, og
Vesta hafði komist fyrir Langanes
og á allar hafnir nyrðra, er hún átti
að koma á samkvæmt áætlun, nema
Skagaströnd, líklega af þvi, að hún
hefir haft litinn eða engan tiutning
þangað. Frétzt hefir og að Skál-
holt hafi komizt klakklaust fyrir
Horn á norðurleið héðan. Sem bet-
ur fer verður líklega ekkert mein
að ísnum í þetta sinn.
Steingrímnr Johnsen.
Fæddur 10 Des. 1846, dáinn 3 Jan. 1901.
Canta'e.
Vatnavextir í ám og lækjum, sem
renna í Tenuessee-ána geríu svo mik-
inn vatnavöxt í henni að hún varð 33
fetum hærr; en lægsta vatnsborð henn-
ar er vant að vera, og meira en áðm
hefir orðið um 26 ára túnabil. Ain
hefir sópað b urtu htindruðum
húsa og gert milíón dollars eignatjón
í Elizabethtown varð eignatjónið 3250
þús. og í bæ íum Watuga $150,000 tjón.
Allmargír baía drukknað í flóðjnum
og þúsuDdir manna eru heimilisviltir.
Langir partar af járnbrautnm sköluð
ust af grunn sínum og heil landsvæði
með korn og öðrum ökrum h«.fa eyði
lagst.
Hecitnlsv og hór,
Vegir skiptast, —Allt fer /msar
leiðir
inn á fyrirheitins liind.
Einum lífið arma breiðir,
öðrum dauðinn réttir hönd.
Einum flutt er árdagskveðja
öðrum sungið dánarlag,
allt f>ó saman knýttsem keðja,
krossför ein, með sama brag.
Veikt og sterkt í streng er undið,
stórt og smátt er saman bundið.
Aguinaldoer væntanlegur til Band t
ríkjanna í Sept. i haust. Hann ætlar
að kynna sér siðu og stjórnarfar Banda
manna og útbreiða svo þekkingu sina
meðal landa sinna á Filipseyjunum.
Eldur kom upp i kolanámunum i
Wales á Englandi i siðustu viku. 78
menn voru i námtinum þegar slysið
varð og er þeim talið óbjargandi.
/
Islands-fréttir.
Eftir Þjóðólfl.
Reykjavík, 29. Marz 1901.
1. Febrúar þ. á. var íbúatala Dan-
merkur 2,447,441 manns.
Solo (Sopran).
Allt sem á hjarta ber í sér J>rá
upp I söngvanna ríki;
herskara drottins sálirnar sjá
syngjandi engla í líki.
Veikasta strengnum berst ómtir af,
upp til sólkonungs hallar;
rétt eins og lindir renna í haf
raddir f>ar sameinast allar.
Allt á að mætast á efsta stað,
allt að samhljómnum stefnir,
Hvern J>ann, sem vann um æfi J>ar
að,
Stórþingið l Noregi hefir sam-
þykt (sem viðauka við stjórnar-
skrána) frumvarp til laga um að
konur skuli geta orðið embættis
menn.
Gullmedalín fyrir úrlausn víg-
indalegrar spurningar í stærðíræði,
hefir Kaupmannahafnarháskóli veitt
Olafi Daníelssyni stúd. mag. (sonar-
syni séra Ólafs Þorvaldssonar í Víð-
vik). Hafa 2 íslendingar fengið
áður samkynja verðlaun ( þessari
fræðigrein- Stefán Björnsson mæl-
ingameistari, fyrrum skólameistari
á Hólum (d. 1798) og Bjöm Gunn-
laugsson yflrkennari (tvisvar sinn-
um).
3. Apríl. Sakamaðurinn Jóhann-
es Jóhannesson frá Sauðárkróki, er
eilífa lífsbókin néftiir.
Solo (lítis).
Vetrarnótt geta í vormorgun breytt
vöggubarnanna draumar.
Eins geta hugann til himins leitt
hreinu tónan-na straumar.
Yfir oss syngur hinn himneski her
hvar sem kyrð er eg friður.
Lopthafsins titrandi bára ber
boð til mannanna niður.
Andvarp eitt brýst gegnum himn-
anna hjúp,
heyrist æöstum 1 dónti; —
bergmálar/handan við helsins djúp
h&tt, með engilsins rómi
Eór,
Svo blandast hvert minnsta bænar-
ljóð
í brimgný af tímans öldum,
og verk öll leggjast í lífsins sjóð,
undir loptsalsins blikandi tjöldum.
Kdr.
Himnakirkja hvelfist yfir jðrð,
hneigir æðsta prestsins veldisstaf.
Öll með söngvum d/rkar heimsins
lijörð
höf und þann, sem rödd og tungu gaf.
Hvað er ekki, í einu ljóði falið,
einum söng frá góðu hjarta?
Já, allt sem fagurt er skal verða talið
efst við dómsins hástól bjarta.
E. B.
Hringhenda
Altaf galar ofsahrið
yfir bala og hnjótum.
Öll er falin fjallsins-hlíð
fram að dalamótum.
Ægishallar út í brún
oftast valla rofar.
Flóka mjallar hærir hún
hnjúkum fjalla ofar.
Nepjan þiljar iðu og ál.
Yflr hyjlum grænum
sópa kyljur svellin hál;
svifta byljir snænum.
Bylgjan syngnr, háreis-t hrönn
hrín á þingi vinda.
Kyljan dyngir fyilu af fönn
framan í bringu rinda.
Strokur gríar húsin hrjá,
hrimga skjái sparka;
ýlustráin hljóða há.
hringi á SDjáinn marka.
Danðinn hóar hátt við sjó,
hleypur flóann kringum;
lætin óa út’ í mó
öllum snjótitlingum.
Löngun stúrin líður önn,
ljúfum dúrum hallar.
Rjúpan lúrir lögð í fönn
læst í búri mjallar.
Bárugangur bítur stein,
bjargatanga mótar.
Sýldum drang og svalri hlein
sær í fangi rótar.
Norðri andar kalt í kvöld.
kosti stranda grennir.
F-n fyrir handan vetra völdr
vorsól gandi rennir.
Skemdir gjólu bætir bezt
blær, er rólar suður,
þegar að stóli Jorra sezt
Jýður sólmánuður.
Roðna hnjótar, blána börð,
bleytur móta vegí;
belja fljót, en blómguð jörð
brosir móti degi.
Hreytinn hvarmur hefur brá,
er Harpa barininu sýnir.
Út í bjarmann eigra þá
allir harmar roínir.
Lopnir fingur færa sig
af fölskvabingnum inni.
Ég skal hringa og hjúfta mig,
Harpa að bringu Þinni.
Kuldaþjóstinr keyti ég braut,
—kólguróstur linna—
munargjóst og meginþraut
milli brjósta þinna.
Gufimundur Ertðjónsson.
(Eftir Eimreidinni).
Úr bréfi til ritst. Hkr.
MINNEOTA, MINN. 18 Mai 1901,
Það er nær því ótrúlegt fyrir ó-
kúnnan mann hvað vér sem þjóð
gerum mikið veður úr litlum og i
sjálfu sér ómcrkum viðburðum.
Það virðist ekki í sjálfu eér að vera
markverður sögulegur viðburður þó
ráðsmaður þjóðarinnar eða æðsti
þénari hennar takist- á hendur sjö-
vikna ferðalag. En þegar maður
lítur á alt það veður og gauragang
sem blilðin gera út af þessti ferðalagi
Mr. McKinleys, þá gæti ókunnur
maður ímyndað sér að þetta ferða-
lag hefði einhverja óskapa óákveðna
þýðing fyrir framtíð þjóðarinnar; að
út af því mundi myndast eins og
nýtt tímabil, er hefði stór áhrif fyrir
aldna og óborna. En allur þessi
blástur blaðanna er undur marklaus
og raunar hlægilegur.
Það er ekki nema e'blilegt að
Mr. McKinley vilji létta sér upp og
sjá sem mest af landi því er hann
heflr nnnið fyrir I því æðsta embætti
er þjóðin getnr veitt nokkrum syni
sínum.
Það er samt eitt f sambandi við
þetta ferðalag er mér fellur illa, og
það er, að járnbrautaeinveldið legg-
ur til þá dýrustu vagnc sem nokkru
sinni hafa verið bygðir án end-
urgjalds. Það er sagt að járn-
brautakostnaðurinn m ni nema fim-
tíu þúsundum doll. Hver réttsýnn
maður getur séð að Mr. McKinley
getur ekki sjálfur staðist þann kostn-
að, þvf eins og allir vita (sem satt
vilja vita) þá átti hann mikið minna
en ekki neitt þ?gar hann náði em.
bættinu og kaup hans er að eins
fimtíu þúsundir um árið, ég segi að
eins, þvf það er varia einn þriðji af
því er Frakkar borga sínum forseta,
Það er siðferðislega rangt að
forseti Bandaríkjanna skuli vera
sníkjugestur landsins mögnuðustu
einokenda. Annað tveggja ætti
þjóðin að eiga vagna er værn sam-
boðnir æðstu embættismönnum þjóð-
arinnar og borga svo járnbi autunum
vanalegt gjald fyrir að draga þá,
eða að þjóðþingið legði tii peuinga
til að standast slíkan kostnað.
Það getnr hver maður skilið,
sem nokkuð þekkir yfirgang og
græðgi járnbrauta einveldanna í
þessu landi, að þau gera ekki greiða
nema til að fá það margborgað. Það
er því enginn hætta á því að járn-
brautirnar æth að tapa á þessu ferða
lagi forsetans. Stjórnin mun veita
þeim einhver hlunnindi, einhverja
nlutdræga löggjöf eða einhverjar
pólitiskar snapir, er borga margfalt
þennan kostnað, og svo á endanum
fellur alt á f 'tráðs alþýðuna. Það er
siðf'erðislega rangt að löggjafar vor-
irskuli vera fluttir aftur á bak og á-
fram fyrir ekkert. Vér borgum
þeim 10 cent fyrir hverja milu sem
þeir ferðast á þingstaðinn, svo það
sýnist að þeir ættu ekki að þurfa að
snikja út fría ferð hjá járnbrautun-
um.
Einn af háyfirdómurnm þessa
lands segir: “Eg hefi ætíð endur-
sent alla “passa“, er járnbrautarfé-
lögin hafa sent mér og aidrei ferðast
eina mílu án þess að borga farbréf
mitt eins og hver annar ferðamaður.
Ég vil ekki vit i það í samvizku
minni, 'að ég hafi þegið nokkur
hlunnindi frá járnbrautafélögum; ég
skoða þessa “passa'1, sem embættis
menn vorir brúka svo alrnent blátt
áfram mútu, hvorki meira né minna.
En það er eítt I sambandi við
þetta ferðalag Mr. McKinleys, sem
er sannarlegt hrygðarefni fyrir alla
borgara þessa lands, og það er veik-
indi Mrs McKinlev, sem liggur nú
fyrir danðans dyrum í San Francis-
co. Mrs McKinley hetir lengi verið
heilsutæp. Það var álitið að þessi
ferð mundi verða henni til góðs, en
reynzlan heflr nú sýnt það gagn-
stæða. Mrs McKinley er sögð að
vera góð kona og að sambúð þeirra
hjóna hafi ætíð verið hin ástúðleg-
asta. Það má því nærri geta hvaða
hjartasár þetta verður Mr. McKin-
ley, scm sagður er persónulega bezti
drengur, sérstaklega þegar hann
hefir þá skoðun, að þetta sé honum
að kenna, ef trúa má hraðskeytum
er hafa eftir honum: “Þetta er alt
mér að kenna, ég m&tti vita að Mrs
McKinley mundi ekki þola þetta
fetðalag". Ég vona að Mrs McKin-
ley batui og að hún eigi eftir að lifa
marga ánægju daga með manni sin-
um.
G. A. Dalmann.