Heimskringla - 06.02.1902, Side 1

Heimskringla - 06.02.1902, Side 1
XVI. ÁR WINNIPEG, MANITOBA 6. FEBRtJAR 1902. Nr. 17. THE NEW YORK LIFE 3 4. Fyrir 10 árnm voru árlegar inntektir félagsins yfir $30 millionir. 10 árum síðar, eða 1901, voru árlegar inntektir orðnar $70 mill. Fyrír 10 árum voru gíldandi lífsábyrgðir $575 millionir. Við síðustu áramót voru þær orðnar $L,360. FyrirlOárum voru allar eignir félagsins metnar $125 millionir. Við stðustu áramót voru þser orðnar yfir $290 millionir. Fyrir lOárumborgaði félagið skirteinahöfum, árlegayfir$llj mill. Á síðasta ári borgaði og lánaði það til skírteinahafa $34J million. Við siðurtu áramót var New York Life félagið starfandi í hverju stjórnbundna ríki í heiminum, og hafði stærra starfsvið í flestum rikjum, heldur en nokkur önnur samkynja félðg, útlend eða þarlend. Öll ábyrgðarskírteini þessa félags eru ómótmælanleg strax frá út- gáfudegi þeirra. J. <w. Horgan, RAÐSMAÐTJR, Grain Exehange, Winnipeg. Clir. Olafsson, íslenzkur agent. Frjettir. Markverðustu viðbui'ðir hvaðanæfa. Það heflr verið mjög byljasamt við strendur Englands og írlands að undanförnu. Heflr manntjón orð- ið allmikið og fjöldi afskipströndum. Aðallega hafa það verið fiskirnenn og fiskiskötur, sem farist hafa, og urðu fvrir tjóni. Póstskip hafa líka lask- ast, og orðið|svo ófær, að þau hafa verið flutt inn á hafnir af hafnsögu- mönnum og björgunarliði. Mæit er að Búar ætli að senda sendinefnd til Bandaríkjanna með vorinu og reyna að fá Bandaríkja- stjórnina til að skerast í leikinn á milli Breta og Bfia. Óvíst er talið að Kruger gamli geti orðið I þeirri nefpd, vegna heilsubrests. E. S. Dundy dómari, sem dói Nóv. 1896, er nfi orðinn að steini. Idkið var tekið fir grafhvelflngu á- samt fleirum líkum og flutt á annan stað. Við flutning þeirra kom það í ljós að líkami Dundys dómara var orðinn að steingjörvingi. I staðinn fyrir að 4 menn gátu vel boríð líkið til greftrunar, þurfti nfi 7 menn til að hreifa það fir stað. Það vegur nfi yfir þfisund pund, Drættir og einkenni halda sér á líkamanum, en liturinn er fagur kopar litur og glansar. Hár og skegg halda scr óbreytt. Eftirfylgjandi skýrsla sýnir tekj- ur, fitgjöid og gróða C. R. R. félags ins yflr Desember næstliðinn, Tekj- ur $3,499,734, fitgjöld $1,936,842. Afgangur $1.568,692. Fyrir Des- ember 1900 var ágóðinn $1,438,376. Fyrir síðastliðna 6 mánuði er end- uðu 31. Desember 1901, var ágóði fólagsins $8,230,840. En fyrir sama tíma í fyrra um sex og hálfa millíón ir dollarar. Gróði þessa féiags fer nfi stórvaxandi fir frá ári, og sfi stjórn á sannarlega þakkir skilið. sem reynir að afstýra því að þetta járn brautarfélag rýi alraenning svona takmarkalaust. En það er stjórnin 1 Manitoba að gera, að því leyti sem völd hennar ná til. Signor Marconi fór með gufu skipinu Philadelphia til Evrópu, og sem átti fyrst að koma við í South- hamton á Englandi. Að kveldi hins 29. f. m. kl. 11.15 sendi hann flrðboð til Lizard, um 120 mílur. Hann sagðist verða kominn til SouthamptoD kl. 1 f. m. 30. Jan fiar. Hann hélt svo áfram aðsenda flrðboðin um tfma. Fyrsta firðboð ið, sem hann fékk sem svar voru heillaóskir til hans, ásamt að hann var boðlnn velkominn á heimleið- Inni. Varjflþað skeyti frá Daily Express í Lundfinum. Þessu svar- aði Marconi óðar, og bað að sent yrði firðskeyti til einhverra annara á skipinu. Voru þá send flrðskeyti til Mr, Richard Croker og fleiri, sem á skipinu voru, og gekki það alt vel. Sfi fregn kemur nfi að stjórnin í Hollandi vilji semja f'rið við Breta fyrir Bfia. Samt fylgir fréttinni að stjórnin taki þetta upp hjásjálfri sér án íhlutun Bfianna. Frá Victoria kemur sfi fregn að nýfundin sé gullnáma við Indiana- fljótið í Klondyke, 20 mflur frá Dawson City, sem sé auðugri að gulli en nokkur önnur gullnáma f heimi, sem þekt er. Námamenn er unnið hafa í gullnámunum í Suður- Afríku, tóku eftir því að fitlit á svæð inu í kring um Indíánafljótið svipaði mjög saman. Þeir rannsökuðu þetta svæði og fundu fljótlega ósköpin öll af gullmolum, og þykir alt benda á að þarna séu mjög auðugar námur, og gefi ekki eftir námunum f Suður- Afríku, sem eru margra millíóna virði. Reynslan er sfi þarna, að á þeim stöðvum, sem bfiið er að leita í, hefir fundist frá $1 til $200 úr tonninu af gulli. Mr. J. Hepburn í V ictoria hefir um 132 nfimalóðir að velja á þessum stað, og er lagður af stað til Lun- dfina, til að afla fjár til að vinna í þeim. Hann segir að maður sem beri góð kensl á námur, hafl rann- sakað þetta námasvæði og álfti að það muni fela f sér $64,000,000og að þar sé svo mikið af gullmöl, að það sé nægilegt verk fyrir 20 þfis. gull- hreinsunar mylnur í hundrað ár. — Kol hafa fundist þar nálægt líka. Canadian Northern járnbraut- arfél. hefir nfi samið flutningsgjalds lista með brautum sfnum í Mani- toba. Niðurfærsla flutningsgjalds- ins kom í gildi 1. þ. m. Eftirfylgj- andi skýrsla sýnir gamla og nýja flutningsgjalds listann, á hveitikorni, möluðu hveiti, haframjöli og öllum mjöltegundum frá mylnum í Mani- toba. Á aðal ög auka brautinni: Gamla. Nýja. Úr Winnipeg oe austur 15o 13c Portage la Prairie til Wpg. 15 13 Youill og McCieary....... 16 14 Laurier og Makinak....... 17 15 Ochre River og Cowen.....18 16 Fishers og Swan River.... 19 17 Á Morris Braudon auka- brautinni á milli allra staða: Winnipeg og Míami........ 15 13 Altomont og Brandon...... 16 14 Á Hartney aukabrautinni milli allra staða: Ninette og Fairfax....... 16 14 Eigin og Uuderhdl........ 17 15 Argue og Hartney......... 18 16 Ánnarstaðar: Gilbert Plains bracch.... 18 16 Emerson aukabrautinni.... 15 13 Carman " .... 15 13 Winnipegoses .... 18 16 Fyrir nokkrum dögum var saga í ensku blöðunum, um tvo Islendinga, Sigfús Sigffisson og Jón Eiríksson ft á Gimli, er fittu að hafa farið lengst norður i óbygðir í haust til veiða, Þeir bygðu þarkofa, og höfðu nokkra hunda til keyrslu. Þeim gekk veiði- skapurinn vel, þar til litlu fyrir jól að Jón Eiriksson veiktist, og vill þá ekkert annað en komast heim til sín. Leggja þeir á stað A öðrum degi kemur það í Ijós að það er bólan sem gekk að Jóni, og var honum ekki afkomu von. Hundarnir voru uppgefnir og veikir og drápust hver á eftir öðrum. Sigfús komst loks í mannabygðir (t.il Noiway House). Hann tafði lítið f Nýja íslandi og kom til Winnipeg. Þar þykist fregn ritinn hafa talað við hann, og hafl hann verið á förum til gamla lands- ins. Að öllum lfkindum er þetta rugl frá upphafl til enda, þar eð ísl. blöð- unum hafa engar fregnir borist úr Nýja íslandi í þessa átt. Ekki lítur fit fyrir að breska stjórnin ætli að gefa uppástungu Hollandsstjórnarinnar um friðar- samning f S. Afriku mikinn gaum. Ýtusir þingmenn f breska þing- inu bera það á hermálastjórnina að stórkostlegur fjftrdrfittur eða peninga stuldur eigi sér stað hjá henni, gegn um hestakaup liennar, handa hern- um f S. Afrikn. Einkum þó í Ev- rópu löndunum. Það heflr orðið töluvert uppþot út af kosningunni í St. James, Montreal Brenet, Lib., var talinn kosinn með 730 atkv. fram yflr Bergeron kosningakveldið. En strax komuupp dæmlausustu svik og prettir af hálfu Lib. Voru þá teknir tastir kjörstjóri, Hetu, og Desy, er unnu fyrir Brunet. Á kjörstaðnum, sem þeir voru á, voru innritaðir 84 kjósendur, á list- anum, en 94 atkvæði komu fir kass- anum og fekk Brunet 90, en Berge- ron 4. Álitið að 50 atkvæðum hafl verið bætt í kassann, því ekki hafl greitt nema helmingur kjósendanna atkvæði, sem á listanum voru og þar að aukijhafi þau atkvæði sem greidd voru af kjósendum, verið fleiri með Bergeron en Brunet; Það er al. ment álitið að þessir náungar, sem teknir voru fastir, hafi stolið öllum atkv. Bergerons ofan að 4, en bfiið til um 70 atkv. handa Brunet. Bfiist er við að þessi atkvæða þjófnaður hafi verið hafðurum hönd á flcstum eða öllum kjörstöðum í Jkjördæminu. Og þó liberalar hafi oft áður svikið lög og landsréttindi, þá mun þessi kosning bfta höfuðið af öllum klækja verkumþeirra.Mál þetta er ekki rann sakað enn þfi, en svo er það fitlits ljótt, að fjölda margir Liberalar eru bæði hryggir og reiðir fit af svívirð- ing og ósóma sem fram hefir komið í þessari kosningu. Mr. Bergeron heflr sagt að kjörstjórar í 9 eða 10 kjörstöðum í kjördæminu urðu tekn- ir fastir fyrir atkvæðasvik, Það eru allar líkur til að kosningar verði að fara fram aftur í þessu kjördæmi og kanske fleirum, sem Liberalar telja sér að hafa unnið í aukakosningun- um um daginn. Ákaflega mikill bruni varð f Waterbury, Conn, á sunnudags- kyeldið var. Aðal verzlunarpartur borgarinnar er í rjfikandi ösku rfist- um. Skaðinn er metinn á 5 millfón ir dollara. Voðaslys varð í Hondo námun- um f Mexieo um helgina er leið. Um hundrað menn biðu bana. Spreng- ing ollí tjóninu. Mest af mönnun- um, sem týndist þar, voru Sínlend- ingar og Mexicomenn. Fréttir frá Suður-Afríku segja, að 23 herdeildir af Bietum séu að elta DeWet herforingja, og séu alveg vissir að ná honum, bara að þeir hafl nógu langan tíma til þess Margt þykir b;nda á að Bretar verði bfinir í Marz eða Apríl að þrengja svo kosti Bfia, að þeir gangi að friðarsamningum. Samt sem fið- ur eru Bretar alveg hissa á þvf hversu liðmargir Búar eru og vel nð vopnum og vistum bönir. Haldið er að þeir séu styrktir af uppreistar- mönnum f Höfðanýlendunni. Fyrir löggjafarþingi Bandaríkj- anna er nfi lagasrumvarp um afnfim ýmsa tolla, sem ríkið lagði á vörur til herkostnaðar. Frumvarpið á- kveður að nema hertolla af bönkum brakúnum, hveitikaupmönnum, veð- lánurum, tollmiðlurum, leikhfisum, farandsýningum, hnattleikjastofum, keilubekkjum, spilum, tóbab3gerðar- hfisum og tóbakssölum. Tollaf- námið af ólgudrykkjum nemur 60c. ■af tunnunni. Tollur 4 tóbaksteg- undum verður færður ofan í það sama og hann var áður. Enn frem- ur hljóðar þetta frumvarp um afnám á ýinsu fleira í skýrslu sem gefln er fit af sambandsstjórninni. sýnir að 9,100 heimilisréttarlönd bafa verið tekin á árinu sem leið, 28,034 sálir hafa bætzt við í norðvestur landinu. Ár ið á undan voru tekin 7,850 heimilis- réttarlönd, en fólkið sem flutti inn var 24,568. Eftirfarandi skýrsla sýnir hvaða þjóðflokkar hafa flutt inn í landið, og tölu 2 síðustu ár. Þjóðerni tölur 1900 1901 Frá Ontario 1.819. ... .1.721 „ Quebec 1.777. .... 231 ., N. Scotia 50. .... 84 „ Manitoba 337. .... 352 „ Bandarikjunum Canadamenn.. 170. .... 205 Bandaríkjamennl.68l. ... .3.253 „ Englandi 669. .... 641 ,, Irlandi 104. 98 „ Skotlandi 184. ... 206 ,, Frakklandi.... 50. 48 ,, þýskalandi.... 259. ... 245 ., Austurríki og Ungverjalandi. 1 043. ... 969 „ íslandi 71. 162 „ Svíþjóð og Noregi 101 ... 112 „ Danmörku.... 13 24 Frá öðrum Evrópu löndundum cr i tölurnar afar lágar, svo þær eru ekki teknar hér inn. Sömuleiðis íer fram aukakosn- ing, fyrir fylkisþingið, í Pottage ia Prairie kjördæminu. Útnefningar þingmannaefna hafa enn þá ekki farið fram þar. Þann 18. þ. m. fara fram auka- kosningar í Lisgar-kjördæminu til sambandsþingsins. Þrjfi þingmanns efni eru þar í vali: Mr. J.M.Toombs, Con., Mr. Duncan A. Stuart, Lib. og Mr. Richardson, óháður. Alt bend ir til að Mr, Toombs nái kosningu þar. Hugh Armstrong er fitnefndur fyiir þingmannsefni af Conserv atív- um í Portage kjördæminu. Alt bendir á, að hann nái sætinu gagn sóknarlaust. Liberalar eru von lausir að ná sætinu, og setja því engan í þíngmenskusókn að líkiud- um. Um Síðustu helgi kom til bæjar- ins, norðan fir íslendingabygðum, Stefán smáskamtalæknir Sigffisson, fyrrum p:estur á Skinnastað og víðar á íslandi. Hann lét vel af viðtökum og högum landa í hinum ýmsu bygðum sem hann fór um. Hann er hinn frjálslyndastiog&agði aðminsta kosti eitt 8kemtilegt sannyrði: að „jafnvel á Islandi væri orðið dauf- legt ,,Job” að vera prestur.” Hann býst við að hiu „hæzri kritik’ fari að ryðja sér til rfims, og veit til þess að einn — eða fleiri — gamall prestur ætli að koma hingað á næsta sumri Séra Sigffisson hefir aðal - aðsetur sitt í Glenboro- Síðasti sunnudagur var annar sunnudagur eftir Þrettánda. Guð- spjallið var um það þegar Kristur breytti vatni í vín, Sumir klerkar voru f hálfgerðum bobba með út- legginguna, segja blöðin. Þeir hrópa burt með vínið og vfn- drykkju úr fylkinu, j>. e., þeir vilja breyta vfni í vatn í Manitoba, og drótta f>ví j>á um leið að Kristi, að liann hafi farið aftan að siðimum forðum daga. Það er hálfleiðin- legt að prestartskuli verða óafvit- andi að spyrða saman kraftaverk Krists og gamla Bakkusr—En sú samræmi og kenning! Á öðrum stað í blaðinu er augl. frá kvenfél. ‘‘Gleym mér ei“ í Fort Rouge. Hkr. mælir með því að fólk sæki þá samkomu, vegna þess að félagið ver peningum til að hjálpa og styrkja bágstadda og nauðlíðandi íslendinga. Munið eftir samkom unni á Oddíellows Hall 13. þ. m. FRÁ SKÁLHOLT P. O. Það eiu nú liðin 3 ár síðan vér fslendingar fluttum í þessa bygð, sem vér skfrðum “Skftlholt”. Yfir 40 landar munu nú eiga lönd hér. Þessi bygð var strj&lbygð af Menó- nítum og frönskum kynblendingum, þqgar við fluttum hingað, og hafði hfin á sér mikið óorð um þær mundir, og það svo, að engir verzlunarmenn og aðrir “Business”-menn f næst- liggjandi bæjum, svo sem Morden, vildu nokkur mök eiga við þá. En slðan íslendingar bygðu hér heflr á- litið þreyzt svo að nú sækjast allir eftir að eiga viðskifti við okkur. Við höfum stofnað 2 skólahéruð þrátt fyrir mótspyrnu frá Menónítum, því þeir vtlja ekki enska skóla. Póst- hús fengum við í sumar sem leið, og félög hafa verið mynduð, svo sem lestrarfélag, söngfélag, leikfélag og safnaðarfélag. Hinir enskumæl- andi nágrannar vorir segja að fram- tíðarhorfur þessarar bygðar séu eins góðar og hinar beztu I öðrum bygð- arlögum í Suður-Mauitoba. S. A. Kæra Heimskringla. — Gerðu svo vel og ljiðu mér rúm fyrir eítir- fylgjandi Knur: Það or leiðinlegt að maður sá, sem nú er kallaður ritstj. Lögbergs, skuli vera jafn verjulaus og berskjald aður fyrir eftirgrenslunum mínum i grein minni I Hkr. 23. f. m., viðvíkj- andi árás blaðsins á stfident I. Búa-on. Hann getur ekki svarað því og ekki rætt það með stillingu og skynsemi. í nfimeri Lögbergs er fit kom 30. f. m. reynir hann að krafsa oían yflr 'svarið, með því að þeyta upp ryki fir öðrum áttum, sem eru óskyldt málinu. Hann ræðst ft Hkr. með slettum og brigslyrðum, sem ekkert koma m&linu við. Hkr. áengan þfittí grein minni, nema þann, að hún léði mér rúm fyrir hana.—Ég lagði engan dóm á mál- þekkingu I. Búasonar, eins og ritstj. Lögbergs er að koma inn I málið. Eg tók það fram að ekki værí listfengis þýðingu eftir að vænta frá stúdent I. Búasyni á útlegging Kærleiksheimil- ins. Ritstj. íná klæða sig eins upp á í “Illkvitni og heimsku“ og hann á fötin til. Hann sýnir með þvísjálf- an sig og af hverju hann er auðug- astur. Eg ætla ekki að eiga nein búningskaup við svoddan Magnús Er honum gott, að hann á nóga syndapoka undir sín andlegu af kvæmi og e'etur geymt þá poka I einhverju kyrkjuhorninu, og tekið blaðaaðlega syndakvittun hjá ein- hverjum sftlusorgara, þegar hann er orðinn of kámugurtil að láta sjá sig á mannamótum. Ekki er svipurinn of geðslegur samt X Til íslending'a í Winnipeg og Manitoba. Að tilmælem forseta og embætt- ismanna New York Life Insurance Co. leyfi ég mér að þakka Islending- um innilega fyrir þau miklu vsð- skif.i, sem þeir gera við félagið fyrir milligöngu umboðsmanns vors Mr. C. Ólafssonar. Á siðastliðnu ári hef- ir Mr. Ólafson skrtfað fleiri inn í fé- lagið af Islendingum í Manitoba en tél. hefir fengið nokkru sinni áður, og virðir félagið að maklegleikum starfsemi þfi, sem hann hefir sýnt í þarfir þess. Vér vonumst eftir, að allir þeir sem ætla að taka llfsábyrgð sjái Mr Ólafson, eða skrifl honum og fái allar þær upplýsingar um Now York Life og þess Matðhless New Occulation Policy, sem á þessum tfma á ekki sinn jafningja, áður en þeir taka lífsábyrgð annarstaðar. Vér vilj um einnig vekja athygli yðvart á hinni stórvöxtnu starfsemi félagsins, og afleiðinganna sem sjftst, sem sjást I skýrslum þess og vísa má til í dálkum hinna ísl. blaða í þessum bæ, og sýnir viðskifti félagsins árlð 1901. J. G. MORGAN. Manager. DÁNARFREGN. Hinn 12 Des, 1901 lézt að heim- ili Stefáns kaupm. Sigurðssonar að Hnausum í Nýja íslandi hin unga og efnilega stúlka Lára Falldóra Björnsdóttír, eftir langa og þunga sjfikdómslegu. Jarðarförin fór fram þann 17.s. m. og fylgdu fjöldi fólks líkinu til grafar. Séra Rúnólfur Marteinsson flutti húskveðju, sem var mjög hjartnæm og góð. Lára sál. var fædd að Svartárdal fremri f Skagaflrði þann 14. Nóv. 1879. Foreldrar hennar eru þau heiðurshjón'Björn Björnsson (bróðir Lárusar bónda að Ósi við íslendinga- fljót) og Ingibjörg Brynjólfsdóttir. Hafa þau hjón Iengi búið í ísafoldar bygðinni, en eru nú flutt til G-eysir. L&ra sá! flutti með foreldrum sínum til Ameríku sumarið 1888 og var# fyrst framan af hjá þeim, en fór svo smátt og smátt að fara í vistir- Hún var sérlega myndarleg, hft og þrek- lega vaxin og höfðingleg. Hún var mjög vel að sér bæði til munns og handa. Hjarta hennar var við- kvæmt og gott og hún unni af öllu bjarta því, sem var fagurt og háleitt og fáir munu finnast fi hennar aldri framgangsprúðari og guðhræddari en hún var. Allir sem þektu hana unnu henni hugástum, því hfin vildi öllum gott gera, og í allri umgengni sinni var hún hin elskuverðasta; er hennar sárt saknað af öllum þeim, er nokkuð kyntust henni. En sérstak- lega eiga foreldrar hennar, bróðir og frændfólk um sfirt að binda, þvf hún var elskuleg sem dóttir, systir og frændkona—trúföst, einlæg og hrein í hjarta og forðaðist jafnan glaum og soll,—Blessuð sé minning hennar. Vinir og vandamenn Láru sftl. eru af hjarta þakklátir öllum þeim, sem að meira eða minna levti tóku þ&tt f að annast hana og hjúkra henni á meðan hún lá banaleguna, sérstak- lega eru þeir þakklfitir hr. Stefáni Sigurðssyni kaupm. að Hnausum og hinni góðu konu hans, fýrir þfi miklu hj&lp og umönnun, sem þau svo ffis- lega létu í té. Lftra sál. var í húsi þeirra á meðan hún lfi banaleguna (í 6—7 vikur), reyndust þau hjón henni eins og beztn foreldrar, og fyrir alla þá hjálp og umönnun og þann kostnað, sem þar af leiddi þ&ðu þau enga borgun. Sömuleiðis á ungfrú Stefanía Lftrusdóttir, ft Ósi við Islendingafljót miklar þakkir slcilið og einnig heiðurskonan Þor- gerður Jónsdóttir að Eyjólfsstöðum f Breiðuvík. Þær b&ðar hjfikruðu Lftru sál. og reyndust henni vel. — Guð launi þeim þessi góðverk þeirra. Einn af vinum hinnar látnu. LÁKA HALLDÓRA BJÖRNSDÓTTIR. Blíða dóttir, burtu fórsQa nng. I brjðstum okkar rí'^tr 8orgin ’þnngi Föla vanga laugr. tregans tár Nei, tíminn gr mun et 0tkar sár. Lára, þ a v&Yst ljós á okkar slóð, Þvl’iund þln var svo elskuríkoggóð. En nö er dimt og dapu rlegt og hljótt, Dvínar gleði’ á kaldri hrygðar-nótt. Fyrir ást, er okkur sýndir þfi, Elsku dóttir! Þðkkum vér þér nú. Minnast þín við munum lífs umtlð— Minnast þess, hvað þú varst ljúf og þýð. Þó að okkur særi sorgin ströng, Og saknaðarins dægur virðist löng, Þfi styrkir okkur vissan helg og há, Að hinum megin fáum þig að sjá. Foreldrar hinnar látnu.

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.