Heimskringla - 06.02.1902, Síða 2

Heimskringla - 06.02.1902, Síða 2
HEIMSKKINGLA 6. FEBRÚAR 1902 HeimskriDgla. PUBLISHBD BY The Heimskriogla News 4 PublishÍDg Co. Verð blaðsins í CanadaogBandar $1.50 um árið (fyrir fram borgað). Sent til Islands (fyrir fram borgað af kaupend um blaðsins hér) $1.00 Peningar sendist í P. O Money 0:der Registered Letter nða Express Mouey Order. Bankaávísanir á aðra banka en í Winnipeg að eins teknar með afiöllum. K. L. RaldwinNon, Editor & Manager. Office . 219 McDermot Street. P o. BOX I2H3. / Islenzk bókakaup, Hér hafa oft heyst kvartanir um, að bækur og blöð, sem gefið er út á íslandi, sé selt hér með okur- verði. Það hafa komið frara raddir í Heimskringlu um þetta, við og við. Það er trú allra, sem um þetta mál ræða, að ekki sé alt með feldu, sem að því lýtur, Orsakirnar, sem olla þessu, álíta flestir vera samtök. í síðasta blaði Dagskrár II er talað ögn um þetta mál, og sýnir það hversu alment það er orðið að umtalsefni. Dagskráll. skoðar orsakirnar sam- tök Bókasölufélagsins á íslandi og agents eða agenta (ef 2 eru) hér. Menn vita það, að á Islandi er Bók- salafélag, sem heflr nær því alla, eða alveg alla bóksölu á hendi þar Fyrir comulag og stefna þess félags er þannjg, að væri það í þessu landi, þá væri það sannkallað okur- félag bóksala. Þær bækur og blöð, er hingað eru send til sölu, sendir félagið auðvitað umboðsmönnum sínum. Bókafélagið á Islandi kostar ofurlitlu meiru til að senda bækur hingað, en burðargjaldi fyrir út- sendingu á íslandi nemur, En það getur ekki numið stórri upphæð. Bók sem á íslandi ko3tar 1 kr, ætti að vera hægt að selja hér á 30—35 cents. En hér er hún seld á 50c. og stundum meira. Framfærslan er því sem næst 100% og alt upp í 150 p, c. Það virðist sem Bóksölufélag- ið ætti ekki að þurfa að borga um- boðsmönnum sínum hér meira, en á íslandi, se n eru 25%. Það má ske gerlr það heldur ekki. En hvei nig stendur á því að félagið selur þ» bækurnar með öðru eins ránsverði hór og það gerir . Er það að hafa Vestur-Islendinga að féþúfu, eða er það að reyna að loka þá úti frá ís lenzkum bókmentum?- Þegar maður pantar bók frá kunningja sínum á íslandi, þá kemur ekki í ljós önnur framfærsla en burðargjaldinu nem- ur. Verðhækkunin h'ýtur því að vera sprottin af samtökum, sem eru á milli Bóksölufélagsins á íslandi og umboðsmanna þess hér vestra. Það er staðhæft að Bóksölufélagið á fs landi hafi neitað mönnum héðan um að gerast útsölumenn fyrir það, vegna þess, að það hefði hér agent. Mun heldur ekki vera dæmalaust, að manni hér að vestau hafa verið neitað um bók á mdti peningum hjá bóksala á íslandi—verið vÍ3að hing- að til agenta félagsins. Niðurstaðan verður því þessi af líkum og kring umstæðum, að það eru samtök á milli félagsins og agenta þess hér, sem veldur verðhækkuninni. Það er merkilegtaf Bóksölufélaginu á fs- landi að það skuli ekki leyfa frjálsa sölu og kaup á bókum sínum hér því það hefði miklu meiri bókaverzl- un meðal íslendinga hér, en það hefir raeð núverandi .fyrirkomulagi, og þénaði meiri peninga. Þar að auki er því til vanvirðu slfkt verzl- unar athæfl og þetta, nú á dögum. Umboðsmaður þess hér er velkynt- ur maður. Hann fylgir Liberal- flokknum og stefnu hans af alefli, en aðalstefna þess fiokks eru frjáls og óháð viðskifti í allrí verzlun, að flokkurinn segir. En þessi stefna getur ekki komið til mála, þegar einstaklingurinn á að fara að sýna hana I verkinu og svo fer agenti bóksölufélagsins hér. Rúsínugrautar Lögb. í síðustu viku getur Lögberg þess meðal markverðra tíðinda, að járn- og stálgerðarmenn séu að fá Dominionstjórnina til að hækka ▼erndartoll á járnvörum. Þeir segj- ast geta smiðað ýmislegt í Canada, sem smíðað er “ntanlands". Það er stefna Conservatíva að hafa verndar- toll fyrir innanríkis iðnað. En Lib eralar segjast engan verndartoll ætla að hafa, þegar þeir eru að tæla atkv. hjá fólkinu. Þegar þeír eru komnir að völdum, þá stela þeir samt aðalatriðinu úr stefnuskrá Con- servatíva til að stjórna ríkinu með og bæta við tollana á þeirri vöru, sem almenningur kemst ekki hjá að kaupa. Og til þess að koma sér vel við verksmiðjurnar auka þeir tolla fyrir þær. — En f r j á 1 s v i ð- skifti, er heróp þeirra. Lögberg skinnið hefir aldrei rist djúpt í þekk- ingu og rétthermi, og allra síst hefir það gert það upp á síðkastið. Nú hlakkar það til tollhækkunarinnar hjá stjórninni. Því æpir það upp yfir sig af fögnuði, strax og von er um að stjórnin sé að svíkja kjósend- ur sína. Það vonast eftir sínum skerf af bráðinni. Nú er alt t samræmi hjá matsuðukarlinum, ósannindi, matarvon ok tilhlökkun. í síðasta númeri Lögb. er ritstj. að sjóða saman lygar um Roblin- stjórnina, að vanda. Hann er þar að leitast við að breiða þau ósannindi út, að ósamkomulag sé í stjórnarráð- inu út af vínbannsmálinu. Það er röklaus þvættingur og róburður, sprottinn af þeirri uppgötvun hinna verstu manna í Liberalflokknum, að breiða út slúður og æsingaþvaður og skjóta því sem púðurkerlingum aft- anundir bindindismenn, og reyna með því móti, að æsa þá og trylla á móti stjórninni, af því hún ætlar að láta atkv. fólksins ráða málinu til lykta. Síðan ætlar þessi flokkur Li- berala að búa til villibráð úr þeim bindindismönnum, sem hann hefir á- hrif á, handa sér. Það er ólíklegt að margir bindindismenn gíni við veiðibreilum þessum. Raun gefur vitr.i um hver niðurstaðan verður. í öðru lagi er ritstjóra tetrið að að fræða fólk um það, að Fowler (liberal þingm.) hafi gert tillögu um breytingn í hveitiflutningslaga- frumvarpi i þinginu hér um daginn, en dómsmálaráðgjafi Campbell hafi farið frain á, að hún væri feld, en ekki komist upp með það.—Þetta sýnir hið aumasta þekkingarleysi í alla staði. Stjórnin hefir nóg fylgi til að koma því í gegn í þinginu, er hún vill. Svo heflr raunin á orðið. í þessu máli var ekki um neina til- lögu að ræða, sem til atkvæða gat komið. Nefnd akuryrkjumálanna hefir frumvarp þetta til meðferðar. Tillaga í nefndu rnáli getur því ekki af óvitlausum manni verið borin upp í þinginu fyrri en nefndin hefir lagt það fram fyrir þingið. Það sanna er, að Fowler var að tala um breyt ingar á þessum hveitiflutningslögum og blandaði þvf inn í önnur mál, og vildi láta gera breyting á þeim. En dómsmálaráðgjafinn sýndi fram á, að um þær breytingar væri þá ekki að ræða, en tók vel undir að koma þeim að á nefndarfundi akuryrkjumála, þegar þar að kæmi.—Fowler þing- maður er ekkert einfaldari en aðrir Liberalar eru alment yfir. Hann á því ekki skilið að vera gerður að flóni öðrum fremur, eins og þessi vitlausa grein f Lögbergi er or- sök í. í síðasta númeri Lögbergs er ritstjórinn að ausa óþverra “úr sér ” á Hkringlu fyrir litla grein, sem hún tókí tölubl. sitt 23. þ. m. frá X, viðvíkjandi I Búason. Hkringla skal láta hann vita í eitt skifti fyrir öll að hún spyr hann ekkert eftir af hverjum hún tekur greinar, né um hvað þær hljóða. Hún veitaðhverein asti lesandi hennar skilur það, nema Lögb. ritstj., að skoðanir þær, sem koma fram í ýmsu, sem hún flytur frá öðrum, er hún ekki bundin við sjálf. Það er líka þvaður hjá ritstj að Ilkringla sé að koma Stúdenta- félaginu á “kant” við Lögb.. Það er hugleysisheilaspuni hans og ekk- ert annað. Hkringla ætlar ekki að eyða fleiri orðum um þetta rugl. Greinarhöfundurinn X heflr tjáð Hkr. að hann ætli ekki að eyða oftar orðum við ritstj. Lögb., því hann sé ekki annað en “ritsóði.” Lögbergs ritstjórinn segir I síð- asta númeri að “Roblinstjórnin hafi látið safna fjöldamörgum undir- skriftum undir bænarskrá um fé- bætur til vínsölumanna ef vfnsölu- bann komist á.” Þetta er sama teg- und af sannleika og alt annað, sem blaðstjórinn heflr sagt um Roblin stjórnina að undanförnu, það er lygi á lygi ofan. Vínsölumannafél. gekkst fyrir að fá þessar undirskriftir með formann verzlunarsamkundunnar f broddi fylkingar. Kaft. Sigtr. Jón asson er viðriðinn verzlunarsam kunduna. Hann getur borið vitni um það hvort Roblinstj. hefir keypt hann eða túlkað til að skrifa urdir þessa bænarskrá. Full mikið sa^t, Fullmikið sa«;t. Lögberg 1 i 11 a sem út kom í yikunni er leið er mikið þjáð. Það er altekiðaf miður skemtilegri veiki, nei pest, í eftri og neðri endan- um rnest. Það veinar í nauðum sfn- um af því að Ileimskringla hafl 23. f. m. sagt að 7 aukakosningar hafl farið fram til sambandsþingsins, og konservativar hafi unnið 3 sæti af þeim. O, þvílfkar nvalir, sagði Mangi heitinn í Lækjardal!! Já, því líkar kvalir að horfa á Lögberg og M., nei ekki meira. Hkringla vill rétta Lögb. líknarhönd í þessum kringumstæðum þess. Hún skal láta þess getið að það var í misgáti hjá henni að 7 urðu fyrir níu. Æili sjúklingnum létti ekki ögn pestin !! En hitt er Hkr. reiðubúin að sanna að konservativar unnu 3 sætin af þessum 9. Þessi 3 sæti eru: Adding- ton, Hastings West og Laval. Það erlíka óbrúkandi lestur hjá lækjar duðrinni.— Lögberg segir að hverki Telegram né önnur blöð hafi farið fram á að konservativar hafi náð nema 2 sætum. Fyrst Lögb. getur ekki stautað sig fram úr í Morning Telegram 17. f. m. að konservativar hafl unnið 3 sætin, þá er Hkr. fús að ljá því mann til að lesa og þýða orðið “three”—Von er nú þó Dagskrá II fleipaði þessu ura daginn um Lögb. flokkinn, nefnil. hann skamm- aðist sfn fyrir að birta ritstj. nafnið. En hún gat læknað það sú dálitla. — Já, það er svona, enekki erþað gott, en lækna má það, — þó pestin sé hættuleg—samt er hún ekki stnitt- andi á meðal heiðvirðra blaða — þessi hundapest. Lögb, segir nefni- lega frá því í fyrnefndri grein að konservativar séu í hundunum um alt landið. Það er alt of mikið af bl. að segja svona,—að liberalar séu hundarnir og konservativar séu komnir í þá,—en blaðið er fárveikt, í andarslitrunum af þessari h. pest. Þau spauga ekki við þessi veikindin á Lögbergi. — Friður sé með hinum deyjandi sjúkling—Lögbergi!! Neðansjávarbátur. Það eru liðin 300 ár sfðan að menn fóru að reyna að hugsa upp bát, sem sigla og stýra mætti jafnt niður undir mararbotni, sem á yfir- borðinu. Loksins er búið að finna upp þenna neðan og ofan sjávar bát, svo fullkominn, að engu virð- ist þurfa við að bæta. Sá sem fann upp á laginu og útbúnaði þessa kaf báts heitir John P. Holland. Hann er Bandarfkjamaður, eins og áður hefir verið getið um f Hkr. Aðal gagnsemin, sem þessir bátar veita, eru strandvamir, þegar ófrið ber að höndum. Bandaríkin eiga nú 6 af þessum kafförum og Bretar hafa gert pantanir fyrir 5, sem verið er að byggja. Sá sem lætur smfða báta þessa, heitir Lewis Nixon, og er eigandi skipagerðarverksmiðju í Elizabethport í New Jersey, Þessi neðansjávar kafför Bandaríkj- anna heita Pike Grampus, Addan Shark, Porpoise, Maccasin og Plun- ger, og verða eftir lítinn tfma orðn- ir alþektir 1 sjóflota Bandarflyanna. Búist er við að Frakkar fái sér nokkra af pessum bátum nú fljót lega, og sfðan hver þjóðin og rfkið á fætur öðru. Það er ekki vafi um það, að þessir bátar breyta mjög miklu í núverandi hemaðaraðferð á sjó og höfnum. 2 af þeim geta varið stœrstu hafnir í heimi, frá innsiglingu stærstu herskipa og bryndreka. Stórborgir og smábæ- ir þurfa ekki lengur að óttast að herskipafloti óvinanna bruni einn góðan veðurdag inn áfirði og hafn- ir og eyði fólki og bygðum. Þetta játa nú sjóliðsforingjar, sem voru alveg a móti þessum bátum fyrir fáum mánuðum síðan, og töldu þá að flestu gagnslausa. Bátar þessir eru sívalir í lögun ekki ólfkir tóbaksvindli, nema ofan á þeim er ofur lítil lyfting lfk og smáturn í laginu. Þar hefst bátstjóri við. Þegar báturinn er ofan sjávar, f>á sést lítið annað en lyftingin. Hann getur jafnt siglt ofan og neðan sjávar, Hann get- ur dýft sér á 3—5 sekúndum. Hann getur verið 15 klt. f kafi f senn. Hann rúmar saman þéttað lffsloft nægilegt fyrir bátshöfnina f>ann tfma. Þegar hann leggur til sókn- ar við herskip fer hann á yfirborð- inu þar til hann er nær því kominn f skotfæri við það, f>á stingur liann sér og sé skipið kyrt, þá rennur hann að því neðansjávar þar til hann er kominn f færi, En sö f>að á siglingu þá þarf hann að gæjast ujip úr við og við til að komast í færi. En svo kemur hann snögt upp og stingur sér, að sagt' er að ekkert lierskip hafi tfma til að miða á hann skotum sínum,og enda f>ó herskip hafi tfma til að skjóta á hann, f>á yrði liann kominn langt út fyrir skotpúnktinn þegar kúlan komi. Þegar báturinn á eftir um 1500 fet að skipi {>ví sem hann ætl- ar að eyðileggja, sendir hann stóra sprengivél (torpedo)—frá 11 1(5 fet að lengd—, sem hlaðin er með 100 pundum af sprengiefni eða meira, beint á herskipið. Bátur- inn er neðansjávar meðan hann er að þessu starfi. Hitti sprengivél- in markið f>á er lítið meiri veigur í sterkustu bryndrekum en í vatninu og á augnabliki eru þeir tættir og muldir í smælki, sem berst með ölduhreyfingum frain og aftrá sjáf- irborðinu. Hitti sprengivélin ekki þá á neðansjávarbáturinn 2 efir, þvf hann hefir ætfð 3 f einu meðsér. Vegna afstöðu við ströndina eða önnur skip hættir harin þá máske atlögum í það sinn, ellegar hann sendir aðra vélina, og hitti hún ekki, þá sendir hann hina sei'nustu. Hvemig sem honum gengur að hitta herskipið, vel eða illa, þá er honum aldrei nein hætta búin sjálf um, Þessir bátar eru allir gerðir úr stáli og öðrum málmum. Þeir eru um 17 fet á lengd, Hvarftfmi og sjóntími er 3| sek. ef alt er eins og það á að vera. Hreyfingamar em alt að einu eins og höfrungar hafa, þegar þeir era að stinga sér eða koma úr kafi. Þegar hann er neð- ansjávar gengur hann fyrir raf- magni, en þegar hann marar í yfir- borðinu gengur hann fyxir gasolin- vél. Fyrir gufukrafti væri ómögu- legt að láta hann ganga vegna þess að eldsneytið tæki upp of mikið rúm og umstjá. Auðvitað gerir gasólinvélin tvent í senn. Hún knýr bátinn áfram í yfirborðinu og framleiðir rafmagn, sem geymt er þar til hann er komin neðansjávar. John P, Holland hefir varið öllu starfi sínu til að finna upp þenna neðansjávar bát. Hann kveðsthafa fengið hugmyndinaum þenna neðansjávar bát þegar hann lasblaðagrein í Dublin fyrir nær 40 árjim sfðan, um sókn og vöm þeirra Monitors og Merrimacs. John Holland hefir ekki einasta átt við þá örðugleika að stríða, sem fylgja þvf að finna upp stórvirki, heldur við þá erfiðleika, að fræg- ustu og merkustu sjóliðsforingjar og flotaforingjar hafa unnið af al- efli á móti honum alt fram að þess- um tíma. K. Á. Benediktsson. Séra F. J. Bergmann hefir góðfúslega orðið við bón Mu- tual Reserve lífsáliyrgðarfélagsins fyrir milligöngu agents þess, Th. Thorlaksonar, að útleggja eftir- fylgjandi liugvekjur;og þó liann sé ekki á vissum púnktum algerlega samdóma í öllum greinum, þá álít- ur hann samt þær fullkomlega þess virði, að þær séu lesnar af yngri og eldri með eftirtekt, því enginn veit hver annan grefur, svo þetta félag sem er vakandi fyrir velferð ekkna og föðurleysingja, leyfir íér að benda mö’nnum á, að á hinu um- liðna ári 1901, vora teknir inn ný- ir meðlimir upp á $(5,000,000 meira en sfðasta ár, og af þeim litla hóp, sem hræddur var við uppþotið sem átti sér stað á umliðnum mán., hafa núflestlr kannast við fljótræði sitt, og gengið inn í félagið aftur, svo nemur $23,000,000.—Góð sönn un um hag félagsins. Th, Thoelaksson. Hinn mikii giæpur Að vátryggja ekki líf sitt. Ræða um líf-iiíbyrgð —eftii — KEV. T. De Witt Talmage. Hann setji umsjónarmann yfir landið og taki fimtung af afrakstri landsins á þeim sjö nægtaárum. 1. Mós. 41, 34. Þetta vora orð Jósefs forseta fyrsta lífsábyrgðarfélagsins, er litið hefir Ijós dagsins. Farao dreymdi draum, sem fekk honum mikillar áhyggju. Hann þóttist standa á bökkum Nílárinnar og sjá, sjö kýr, feitar og fallegar, svo gljáði á belg- inn, komu upp úr ánni; tóku þær að rffa f sig velsprotna grasið. Ekk ert var nú óttalegt í þessu. En á eftir þeim sá hann koma sjö aðrar kýr upp úr sömu ánni; voru þær horaðar og hungraðar, ljótustu kýmar, sem hann hafði séð í land- inu, og svo var hungur þeirra á- kaft, að þær rifu f sig sjö feitu kýrnar, sem komu á undan þeim. Farao, konungurinn, sendieftir Jó- sef til að leysa úr þessum dular- fullu rúnuin náttúrunnar. Jósef hugsaði sig ekki lengi um, en gaf þegar til kynna, að sjö feitu kýrnar eruppúránni komu, væru sjö ár og þá hefðu alllrnógað eta; og að sjö mögru kýrnar, er á eftir þeim komu, væra sjö ár, og þá yrði ekk- ert að eta. “Núnú“, sagði Jósef, “tökum fimta hlutann af uppskeru sjö góðu áranna, og geymum það eins og forða til þeirra sjö áranna, er engin verður uppskeran”. Konungurinn þáði þetta happa- ráð og gerði Jósef að forsprakka fyrirtækisins, af þvf hann var ráð- vandur maður og félagslyndur. Bændurnir lögðu fram fimta hlut- ann af tekjum sínum. I öllum borgum og bæjum landsins vora forðabúr. Þetta mikla egipska lífs ábyrgðarfélag hafði miljónir dala að höfuðstól. Eftir nokkurn tima komu döpra dagarnir og þá hafði þjóðin öll oltið út af úr sulti og seyra, ef ekki hefði verið hugsað fyrir framtíðinni með svo mikilli forsjálni. En nú var vandinn eng- inn annar en sá, að hvert heimili um leið og það tók að svelta, leit- aði 1 forðabúrið og fekk lífsábyrgð sína útborgaða. Biblían segir frá þessu með örfáum orðum:, “f öllu Egiptalandi var brauð“, Eg segi nú: Þetta var FYRSTA LÍFSÁBYRGÐARFÉ- LAGIÐ. Samkvæmt guðlegri ráðstöfun var það reynt að það hafði f sér fólgna “ráðstöfun fyrir öllu lffinu,“ ‘ráðstöfun fyrir föstum tekjum“, og allskonar aðrar góðar ráðstafanir. Oss er sagt, að séra Anhale, dokt- or í Lincolnshire á Englandi, hafi komið á fyrsta' lífsábyrgðarfélaginu 1698. Nei, það er jafngamalt korn skemmunum á Egiftalandi og guð var sjálfur upphaf þess og fram- kvæmdastjóri. Ef það hefði ekki verið, vœri eg ekki að eyða tíma yðar og tíma mínum núna sjálfan sunnudaginn til að tala um þetta. f minum huga er efnið einkar áríð- andi, það er trúarlegs eðlis og hef- ir óendanlega þýðingu. Það er sið- fræði lífs og elds ábyrgðarinnar. Það er vissulega tfmi til að tala um það frá prédikunarstólnum. En HVAÐ SEGIR BIBLÍAN UM ÞETTA EFNI? Ef biblían er með þessari stofn- un, þá er ég það líka. Ef biblían vill ekki hafa það, ]>á vil ég ekki hafa það heldur. Fyrir utan til- lögu Jósefs í textanum, vil ég benda yður á liking Páls. Hér er maður, sem (fyrir hirðuleysi fær ekki séð fyrir fólki sínu meðan hann lifir, auk heldur, þegar hann er dauður. Hér er annar maður, er hefir skömm á biblíunni og fyrirlít- ur guð. Hver þeirra er lakari? Þú segir sá síðari. Páll segir sá fyrri. Páll segir, að sá maður, er hirðu- laus séum að sjá fyrirheimili sínu, sé fyrirlitlegri en sá, er hafnar ritn- ingunni, sá er eigi hugsar um sitt eigið og einkum eigið heimili sitt, er verri en heiðingi. Lífsábyrgðarfélöain hjálpa flestum af oss til að sjá konu og börnum borgið, þegar vér erum farnir, en ef vér höfum peninga til að borga fyrir lífsábyrgð, en útvegum oss hana ekki, höfum vér engan rétt til að vænta líknar hjá drotni f dóminum. Vér eram þá verri en Tómas Paine, verri en Valtaire, og verri lieldur en Sliaftesbury B.iblí- an segir það sjálf: . Vér emm verri en heiðingjar. Þegar dánarvott- orðið hefir verið útgefið, þegar þrjátíu eða sextfu dagar eru liðnir, þegar erindreki lífsábyrgðarfélags- ins kemur inn á sorgarheimilið og borgar f glerhörðum peningum þá uppliæð, er lífsábyrgðarskjalið hljóðar upp á, þá innir hann af kendi kristilegt kærleiksverk sam- kvæmt orðum Jakobs postula: Hrein og óflekkuð guðsdýrkun fyr- ir guði og föður er sú, að vitja föð- urleysingja og ekkna í þrenging þeirra, og svo framvegis. Þegar menn hugsa um dauða sinn, hugsa þeir oft um hann að eins í sambandi við velferð sálar sinnar, en ekki um þær hörmungar, er yfir heimilið dynja, þegar þeir flytja þaðan út. Það er ekkert annað en auðvirðileg sjálfselska hjá þér, er kemur þér til að hugsa svo mikið um þann liiminn, er þú ætl- ar til, að þú gleymir, hvað verða verða muni um konu og börn þegar þú ert farinn frá þeim. Þú getur yfirgefið heiminn án þess að skilja þeim eftireinn einastadal, og samt sem áður dáið sæll, ef þér var um megn aðsjá fyrir þeim. Þú veizt þá, að þau eru óhult f hendi drott- ins, sem á allar uppskerur og allar hjarðir og hópa; en ef þú ert fær um að borga fyrir lffsábyrgð og vanrækir að gjöra það, ÞÁ ER ÞAÐ FYRIRLITLEGT FYRIR ÞIG AÐ FARA TIL HIMINS. EN LÁTA ÞAU FARA Á SVEITTNA. Þegar þú deyrð, flytur þú inn í höll, sem veit að fögrum fljóts- bakka, en þau flytja inn í tvö her- bergi á fjórða lofti f leigubúsi, er veit aftur í augstrætið. Þegar skín í olnboga þeirra og knén, verður þeim lftill hiti að hugsuninni um hvítu skikkjuna þfna á himni. Presturinn getur flutt ágæta ræðu yfir þér látnum og fjórraddaði söngflokkurinn getur sungið eins og fjórir englar á organsvölunum, en BURTFÖR ÞÍN VERÐUR FJÁRGLÆFRAFÖR. Þú hafðir ráð á að sjá fyrir vellíðan lieimilis þíns áður en þú yfirgafst það, en þú varst nógu vondur maður til að vanrækja það. “Ó!” segja sumir, “ég hefi meiri trú en þú; ég trúi þvf, að þegar ég yfirgef heim þennaj muni drottiiyi sjá um ástmenn mína.” Já, hann mun sjá um þína. Farðu yfir Blnc/cwell’s-eyjuna, gáttu gegn um öll fátækraheimilin á land- inu, og ég skal sýna þér um leið, hvernig guð sér oft fyrir vanhirt- um börnum hirðulausra foreldra. Hann sér fyrir þeim með því að láta þau njóta góðs af opinberum líknargjöfum mannanna. Að þvf er sjálfan mig snertir, vildi ég heldur að guð sæi fyrir mínum á vanalegu heimili með því að blessa eigin iðni mína og sameiginlega trúmensku föður og móður. “En”, lætur nú eínhver sér að orði verða, “ég ætla mér 4 næstu tíu eða tutt- ugu árunnm AÐ AFLA MER MIKILLAR AUDLEGÐAR og svo vonast ég eftir, að skilja fólk mitt eftir í góðum efnum, þegar ég fer úr heiminum.” Hvem- ig veizt þú, að þú munir lifa tíu til tuttugu ár? Ef ég gæti horft upp eftir stræti ókomria tímans, mundi ég sjá lungnabólgu og lifr- arveiki og tæring og járnbrautar- slys og fælna hesta og brotnar brýr og hátíðlegar jarðarfarir. Ertu svo viss um, að þú getir lifað tíu til tuttugu ár, að þú getir ábyrgst heimiiisfólki þínu nokkuð til lífs- viðurhalds, þegar þú ert farinn frá þeim? Auk þess deyja lang.flestir menn í fátækt.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.