Heimskringla - 29.05.1902, Blaðsíða 1

Heimskringla - 29.05.1902, Blaðsíða 1
XVI. ÁR WINNIPEG MANITOBA 29. MAl 1902 Nr. 38. Fregnsafn. Markverðuscu viðburðir hvaðanæfa. Eitt hið ailra voðalegasta ni&nia tjón varð við bæinn Fernie í B. C. ft miðvikuðagskvöldið var. Um 150 menn voru þar við vinnu, og 24 komust lífs af, eins langt og kunn ugt er enr, þá. Hinir eru taldir frá, og er búið að ná nokkrum líkum af þeim sem unnu næst ötgöngunni. Orsökin að það kviknaði í námunni er talíu súi að þeytispjaldamylna. er gekk af rafmagnafli bilaðiog hætti að hvirlfa loftinu í námunum Safn aðist strax gasloft (kveikiloft) og komst eldur í það, og alt blossaði uppínámuuum, Námansem kvikn aði í er kölluð Michel & Morrison náma.—Flestir námamennirnir vom útlendingar, og margir af þeim ný- komnir til Fernie frá Nanaimo, þeg ar miskliðin varð þar ura daginn á milli verkveitenda og verkamanna. Þessi bær, Fernie, er nær þvi nýr bær, og hefir þotið upp á mjög stutt- um tíma. Þar eru feykimiklar kola- námur. Governor J. H. Ross í Tukon. er nýlega kominn vestur að hafi úr fundaferð til sambandsstjórnarinnar. Hann segir mönnum þar vestra þær fréttir, að stjórnin ætli að eyða Í2,804,000 á Ynkonlandið, Af þess ari upphæð etga $128,000 að ganga til vegabóta. Hann hyggur að járnbrautir verði auknar þetta ár i Klondyke námahéraðinu. Stöðugt halda voðafréttir og kynjasögur áfram frá Martinique. Eidsurabrot eru þar mikil, og fólkið á eyjunni er afarhrætt, eins og eðli- legt er, og vill helzt komast burtu. Það segír að guð sé því reiður fyrir einhverjar óafvitandi syndir, og hann hafi í hyggju að tortýna því. Margir eru þegar farnir þaðan. Um daginn þegar Spánar kon- ungur var krýndur þóttust ýmsir sjá eftir á, að flokkleysingjar hefðu set ið á svikráðum við hann, og ætlað að drepa hann, og voru grunaðir menn teknir og settir í dýflisu, en meira mun það hafa verið hræðsla en nokkuð annað, sem olli þeim gauragangi. Alfonso XIII. Spánar konungur er hinn skrafhreifasti við alla sendiboða og sendiherra annara ríkja, og virðist Þvf hvergi srneik- ur. Hann er að tala um nauta-atið sem enn er þjóðskemtun á Spáni. Hann spyr f>á um álit þeirra um þá skemtun, og þegar þeir láta illa yfir þeirri skemtun, segir hann: “Það er grimdaræði. Mér f>ykir ekkert til 'þess koma. Eg er að hugsa um að koma á veðreiðum f þess stað“. Þetta Þykja dýrðleg orð af konungi töluð, — á þessum nauta-ats tímum. Stjómarformaður Frakka brá sér til fundar við Rússakeisara nýlega og var þar um mikið talað af blöðunum. Loubet [>á hinar híifðinglegustu viðtökur, og virð- ingar mót af keisaranum og heldra fólki. Þegar keisarinn mælti fyrir skál stjómarformannsins, gat hann J>ess að vanda, að þessir fundir þeirra yrði til að styrkja og festa vináttubandið á milli Frakka og Itússa. Að sfðustu mælti keisari þessiorð: “O, að [>ú farir héðan eins sæll og ántegður. og með ein s ljúfa minningu eins og keisara drottningin og ég sjálfur eigum frá þeim dögum, er við vomm á Frakk lamli. Ég hef hér upp bikarminn f>ér til hæstajheiðurs og landi þfnu til velgengni og mikilleika, J>ínu fagra landi og sambandi'. Einatt berast eldsumbrota- fréttir frá Martinique eynni og öðr- um fleiri þar 1 kring. Þjóðir og ríki senda fólki þar, er stendur þar uppi bjargþrota og eignalaust, heila skipsfarma af vistum og öðrum nauðsynjum. Eldfjallið MontPelee gýs enn þá við og við, og nýjir eld- gýgir myndast, Verzlunarvið- skifti, og atvinna fólks er engin nú sem stendur. Margir flytja burtu þaðan til annara eyja. Engri lif- andi skepnu er fœrt að fara til St. Pierre fyrir logandi hrauni og eld- fjallaleðju, Stundum fellur aska á skip, sem J>ar eru á ferðinni í kring, svo Jmmlungum skiftir á J>ykt Sú hraöfregn kemur að vart hafi orðið við eldsumbrota fyrir- boða að Pedroso nálægt Oporto í Portiigal, og halda menn að J>au standi f sambandi við eldsumbrot- in á West India-eyjunum. Menn hafa orðið varir [>ar við jarðsprung- ur, sem eldlykt og gufa gýs upp um. A sama tíma kom fellibylur allharður á því svæði. Menn væntu eftir að þingið í Lundúnum mundi gefa fullar upp- lýsingar um friðarsaming milli Breta og Búa, sem talinn hefir ver- ið að væri á næstu grösum, á mán- udaginn var, en sú von brást. Og ýmsum brá heldur 1 brún þegar Mr. Balfour, leiðtogi stjórnarinnar f neðri málstofunni, lýsti J>vf yfir að ekki væri búið að gera uppkast- ið af friðarsamninginum enn þá, og þar afleiðandi gæti stjórnin engar upplýsingar gefið um hann. Mælt er samt að margir hafi búist við því að friðarsamningur- inn væri ekki kominn lengra á veg en þetta, þó blöðin hafi mikið um hann spjallað undanfarna daga. Mælt er að Prins Obensky á Rússlandi sé f mikilli lffshættu staddur nú. Hann'er landsstjóri stjómarinnar 1 Kharkoff, og hefir keisarinn kent honum um upp- hlanp og óeirðir, sem þar hafa orð- ið í seinni tíð. Mælt er að um líf hans sé setið og hann fordæmduraf keisaranum sjálfum. Eru þeir, sem við þær uppreistir eru riðnir mjög hart leiknir, drepnir, settir í þrældóm og hýddir nær til dauða. Þegar forseti Frakka sneri heimleiðis frá Rússakeisara, heim- sótti hann Kristian konung IX í Danmörku, og telja blöðin að sú heimsókn hafi og nokkuð að þýða. Frá Femie, B. C., berast hin- ar hryllilegustu fn'ttir frá náma- slysinu, sem J>ar varð í sfðustu viku og annarstaðar er getið um í blaðinu. Það er búið að ryðja nokkuð af námunum, og um 40 lík fundin. Konur og börn standa grátandi og veinandi við náma- göngin og gráta feður, syni og ættingja. Umboðsmaður stjóm- arinnar í B. C., gefur J>á embœttis- skýrslu að 40 lík séu fundin, 24 hafi komist út lifandi, en fullir áttatugir manna séu enn þá ófundn- ir. Allur eldur sloknaður. Allir geri alt sem í þeirra valdi stendur til að ryðja námumar og ná líkun- um. Nafnalisti er kominn á prent af mönnum þeim er unnu f nám- unum. Ekkert þeirra er íslenzkt eins langt og séð verður. llm J>essar mundir eru miklir þurkar í Ástralíu, og haldi J>eir lengur áfram J>ýða J>eir það, að Ástralíumenn þurfa að kaupa hveitikom að handa sér. Fram- leiðsla þeirra nægir J>eim J>á ekki til heimabrúks, hvað J>ú til út- flutninga. Önnur hveitilöndj^ræða á þvf, Kflapestin er komin upp 1 Majunga á Madagasear eynni. Ei stórfeld enn J>á. Cuba varð sjálfstætt lýðveldi 20. þ. m. Það hefst því nýtt tímabil í sögu eyjarbúa, sem lengi voru und irokaðirog þjáðir af Spánverjum, þar til Bandamenn hrifu þá undan valdi J>eirra, og nú leyfa þeim sjálfstjórn. Poneefot, konsúll Breta í Was- hington, er nýdáinn. Hann var mikilmenni að mörgu leyti, og sakna J>vf ýL sirhans. ÍSLAND. Eftir Þjóðviljanum. Bessastíiðnm. 20, Marz 1902. Lögfræðispróf, Embættispróf f lögfræði hafa tekið: Guðm. Eggertsson (úr Akreyjum) með I. eink. Guðm. Björnsson (frá Svarfhóli á Mýrum) II. eink- Drukknanir. I ofsaveðri aðfara- nóttina 8, Marz, féll maður útbyrð- is af skipinu Josephine frá Rvfk og drukknaði. Maður þessi hét Kristófer Jónsson, 21 árs.—í sama rokinu drukknaði og maður af fiskiskipinu “Kjartan" f Hafnar- firði’ Helgi Magnússon, 18 ára að aldri. Ný heiðursmerki. Biskup Hall- grímur Sveinsson er nýlega sæmdT ur kommandörsnafnbót. — “Mira- bile dictu“ er amtm. Júlfus Hav- steen einnig orðinn—kammandör. Dr. Þorvaldur Thorvaldsen hefir nýskeð verið sæmdur prófessors- nafnbót, en eigi fylgja nafnbót þeirri nein laun. Það er heiðurs- titill að eins. íslenzkur lessalur. Yms fsl. félög f Khöfn hafa ný skeð komið á fót lessal á veitingahúsinu “Al- aska“ við Sfvalaturn f Khöfn. All- ir íslendingar eiga Jar frjálsan að gang að fsl. blöðum og bókum. Hr. Einar Jónsson, fslenzki myndhöggvarinu, er nýlega lagð- ur af stað til Dresden, og þaðan til Rómaborgar, til J>ess að fullkomna sig f íj>rótt sinni, og ver hann til þess sfyrk þeim, er alþingi veitti honum sfðastl. sumar. 5. Apríl. Ávarp til konungs. Ýmsir Reykvfkingar sendu kon- ungi ávarp með ‘Lauru' í f. m., er afhent verður á afmæli hans 8. þ. m., og eru honum J>ar tjáðar J>akk- ir fyrir konungsboðskapinn m. m. Ávarp þetta hafði Benedikt Gröndal skrautritað, með vanalegri snild, og var það f prýðilegum um- búðum, og meðal annars 1 tr(-spjöld um, er listamaðurinn Stefán Eir- íksson hafði skorið út mj">g hag- lega. 12. Apríl. Tfðarfarið, 5. {>. m. sneri til suðaustan veðráttu, svo að vonandi er, að hafísinn hafi nú má ske þokast svo frá landinu, að siglingar komist til norðurlandsins Jarðarför yfirkennara Halldórs Kr. Friðrikssonar fór fram f Kvfk 1. J>. m., og var allviðhafnarmikil, og likfylgdin mjög1 fjölmenn. Prestaskólakennari Eiríkur Briem flutti húskveðju á heimili hins látna, en f kyrkjunni talaði Jóhann Þorkelsson dómkyrkjuprestur. Bæjarstjórn Reykjavfkur hafði gengizt fyrir því, að dómkyrkjan var tjölduð svörtum sorgarblæjum, en ýmsir af lærisveinum hins látna höfðu gefið silfurskjöid á kistu hans, ,*• Kennarar lærða skólans báru líkið f kyrkju, en bæjarfulltrúar Reykjavfkur út úr kyrkjunni, er sorgar athöfninni þar var lokið. 31. f. m. andaðist í Reykjavík Þorkell Gfslason trésmiður. Eftir Aust.ra. Seyðisfirði, 8. Apríl 1902- Nylega drukknaði unglingspiftur frá Krossanesi í Mjóafirði, af skautum ofan um ísiun, skamt frá landi. Úti varð n/lega máður ámilli Borgarfjarðar og Seyðisfjarðar; hann hét Jóhann Jóhannesson, aldraður maður, vinnumaður frá Desjarmýri. 18. Apríl. Heiðurssamsæti heldu 60 Þingeyingar verzlnnar- stjóra Þórði Guðjóhnsen og frú hans 9. Marz síðastl., á Húsavfk. Nýtt félag, er nefnist “Sögufé- lagið, er nýstofnað í Reykjavík eftir áskorun frá Hannesi ritstjóra Þorsteinssyni, dr. Jóni Þorkels- syni yngra og Josafat Jónassyni ættfræðingi. Tilgangur félagsins er að gefa út heimildarrit af sögu íslands í öllum greinum frá þvi á miðöldun- um og síðan. og í samhandi við pau ættvísi og mannfræði pessa lands. Snjókoma nokkur undanfarandi daga. Heyskortur er hér alment mjög mikill í firðinum, en J>ó vart svo að til stór vandræða horfir, ef J>ess- ari ótfð heldur áfram. Að eins einn maður, Sigurður óðalsbóndi Jónsson á Brimnesi, mun hafa tðluverðar heybyrgðir, enda er nú sótt héy til hans á hverjum (legi, J>átt örðugt sé, par sem menn verða að bera alt á bakinu, 26. Apríl. Hláka hefir nú verið síðustu daga. svo góð jörð er kom- in upp hér í firðinum. I dag er hægur suðvestanblær og 8 stiga hiti, svo vonandi er að ísinn reki nú brátt héðan af firðinnm. Islaust kvað nú vera á Bakka- firði og þar út af; á Vopnafirði og Þistilfirði lítill ís. 3. Maí. Reykjavík. Þar býður sig nú fram Jón Ólafsson. Er fróð- legt. að fá að vita, hvort höfuðstað- ur landsins lætur svo lítið að sinna framlx>ði Jóns. í Barðastrandasýslu kvað séra Guðm. Guðmundsson f Gufudal bjóða sig fram sem heimastjórnar- maður á móti séra Sigurði Jens- syni. Úr bréfi til ritstj. Heimskr. “Margt er líkt með skyldum” segir gamalt máltæki. Sannindi þessa orðtækis hafa aldrei verið eins tilflnnanieg eins og á síðastliðnum loissirum. Allir þeir sem nokkuð hafa tekið eftir yflrgangi Breta í því að svifta fámenna þjóð frelsi og sjálfsforræði og um leið athuga svf. virðingar Bandaríkjmanna, sem vaða með eldi og járni yfir fátæka en frelsiselskandi þjóð. Hugsandi menn hljóta að athuga að hershöfð- ingjar þessara stórþjóða brúka. nær því sömu orðin þegar þeir eru að láta stjórnir sínar vita hvernig þessi mannúðarinnar herleiðing gengur. “Mér íellur mjö r þungt” byrjar he>’shöfðingi Breta og svo kemur “fjálffréttin.” Nú er það Cornelius Gardener, settur fylkisstjóri í fylkinu Tayabas, sem er partur af eyjunni Luzon, sem “fellur mjög þungt” að láta stjórn vora vita af ymsum svívírðingum, sem hermenn vorir hafa framið, svo sem pintingar einstaklinga með vatnslækningum, sem er brúkuð á þann hátt að bandinginn er bundinn á höndum og fótum lagður upp í loft og munnurinn er spentur opinn með þar til gerðu ginkefli, svo er höfð vatnstunna nokkuð hærri en bacd inginn, hún er fylt með vatni svo straumurinn falli með meiri þunga I munn vesalingsins, sem á meðan er auðvitað að hugsa um blessun hinn- ar kærleiksrfku menningar, sem streymir frá Mark Hanna og hans félögum. Svo þegar alt er tilbúið, eins og vera ber samkvæmt siðfágun og manngæzku konungssinna, þá lyítir formaðurinn gullbryddri húfu til merkis um að hin hátðlega at- höfn skuli nú byrja. Kraninn er opnaður og vatnið rennur sam- kvæmt lögum þyngdarinnar í munn bandingjans. Sjónarvot.tar hafa sagt að dæmi sé til þess að þessir vesalingar hafl gleypt FIMM GALLÓNUR af vatni án þess að meðganga, það er: segja til auðæfa eða hvar landar þeirra geyma vopn sín og þar fram eftir. En þá er salt látið í vatnið og hefir það þau áhrif að maðurinn segir alt sem hann veit eða deyr. Þannig fór með prest einn sem þeir náðu; Bandamenn héldu hann vissi hvar auðæfi væru fólgin, þeir fóru að brúka vatnslækninguna, en hann meðgekk ekki og lauk svo þeirri viðeign, að presturinn, sem var gamall, þoldi ekki þessa kristilegu b)e(c II w — — — www www www www WWVJ. wuuvruu WUQWU D WUC WU O WCJ O wC3 O vUOV OD VUOuUP WUUWO THE NEW YORK LIFE. <*ro bono PubHco'’ Þegar maður kaupir hlut. Umboðsmenn New York Life ábyriðarféiaKSÍos feerðu forseta félagsÍDS, Honorab.’e John A McCall, 56 millión r dollars í nýjum ltfs- ábyrgðum á sex vikura, or skömmu þar á eftir færðu þeir öðrum varaforseta félagsins hra. Geo. W. Perkins, 62 milliónir doliarsí nýj- um lífsábyrgðum, ÞanDig fékk félaeið EITT HUNDRAÐ OG ÁTJÁN MILLIONIR DOLLARS virði í nýjum íífsábyKÓum á fyrstu 3 mánuðum af árinu 1902. Aldrei fyr hefir jafnmikil lífsá- byrgðar v.pphæð safnast að nokkru einu félagi i heiminum á jafn- stuttum tíma eins og að þessu STÆRSTA og BEZTA af öllnm lífs- ábyrgðarfélögum. THE NEW YORK LIEE er á undan öllum keppinautum í heimi. Það er einfalt sameignarfélag án nokkurra hluthafa. nllur gróði er eien skírteinahafendanna. NEW YÓRK LIFE er á undan öðruin félögum í Canada. Sko’ið vaxtasafnsskirteini NEW YORK LIFE félagsins áður en Þér ganeið í lifsábyrgð í nokkru öðru félagi J. W. ilurgan. raosmaður, Grain Exchange, Winnipee. Chr. Olafsson. íslenzkur agent meðferð!! og dó án þess að svíkja landa sína, án þess að veita böðlum sínum þá ánægn að gerast landráða- maður. Og svo var þessi aidur- hnigni maður — er ég álít að eigi skilið að vera kallaður hetja — disj- aður eins og hræð eða óargadýr. Og svo þykir General Chaffee nndur fyrir því að láta stjórnina vita að skipanir Smiths nm að drepa alla ylir tíu ára, séu ekki i nánn samræmi við mannúðaranda þeirra þjóða, er kristnar kallast. Hann segist vera hræddur nm að svona aðfarir geri vont verra. i En svo segist hann hafa látið hegna yfir 300 af bermönnum vor- nm fvrir ýms brot gegn veisæmi, svo sem að svívirða varnarlansar konur og stúlkur og ræna varnar- iaus og friðsöm heimili og ýmsar aðrar smá syndir, sem ern af marp- víslegri tegnndum en npp verði taldar. Sama hershöfðingja þykir undur fyrir því að láta stjórnina vita að þrjátín og fimm vopnlausir fangar voru skotnir til danðs af því þeir leituðust við að ná frelsi Bínn. Þetta vildi til 3. Maí 1902. Sagt er að General Smitb, hinn áðumefndi slaktari, sé að verða fiemur óvinsæll. Þess er getið að | undirforingjar hans sén að segja af sér, því þeim þykir svívirðing í þvi að tilheyra hans herdeild. Úthald-1 ið í Washington er því í h&lfgeið- j um vandræðum hvað gera skal. pólitiskir stórglæpamenn hata stungið npp á því að Mark Hanna útnefni ein fjögur kúgildi af vikadrengjum sínum, sem eiga að vera þektir framvegis undir nafninu General Smiths rfiðaneyti: margt bendir til þess að tveir af löndum vorum í Pembina County verði útnefndir i þetta sérstaka ráðaneyti. Heiðarleg blöð þessa lands hafa gcrt töluvert veður úr þvl að kjöt- einokunin, sem heíir bækistöð sína í Omaha Nebraska, hafi selt góða steik fyrir tnttugn og fjögur cents pundið til hinn einlægu Oæaha búa, en sama daginn seldi sama félag sams- konar steik í Lundúnaborg fyrir fjórtán cents pnndið. En að benda á annað eins og þetta er landráðnm næst, því Mark Hanna úthaldið seg- ir þjóðinni að það séu útlendingarn- ir sem borga tollinn, og alþýðan fellur fram á ft“jónu síua og segir: “Mark Hanna er rneira virði en Sal- omon í allri sinni dýrð”, og allir hundafífiar og lista mfilgögnin segja það sama, því þau eru bergmál; þau eiga enga upprunalega hngmynd og vikadrengirnir segja faðir vor Hanna upplýkur sinni mildn hendi og seður allar smávika sníkjur af sinni mildi ef vér föllum fram og tilbiðjum hann, látum oss biðja um það að alþýðan sjái ekki sannleikann, því et svo skyldi tiltakast þá eru dagar vorir taldir og verið getur að vér verðum að neyta branðs vors I Bveita vors andlitis, en það er erfitt og hart að göngu fyrir lærisveina konungs sinna. Ó! Hanna, kasta ryki í ángu alþýðu, svo hún sjái ekki nekt vor», og vér sknlnm hjálpa þér með skipa- tillagið, sem er sá voldugasti þjófn- aður á alþýðu fé sem nokkru sinni hefir verið farið fram á. Vér skul- um vera þér hundtryggir við allan þann þjófnað, er þér kann til hngar að koma, og þú er hngvitsmaður og natinn við að ná hnitjnnum af at- kvæðagemsunum. • Gleym oss ekki, vér biðjum ekki ura mikið, litið nægir ve ælnm. Með virðiug. G. A. Dalmann. Merkileg loftsýn. Stjörnufræðingur Percival La- well, sem þóttist sjá að Marsbúar væru að tala til jarðarinnar f Des- ember 1900, |skýrir f ritinu “Popular Astronc>my“, er út kom f Apríl þ. á., frá nýrri loftsjón, sem hann hefir nýlega séð á Mars. Henn staðhæfir ekki að sú sjón sé fregntákn til jarðbúa, er skýrir frá eftirtektaverðri sýn, sem stjiirnu- fræðingar kalla “Projectionn“. Það | er ljósský mikið, sem svffur í loft- inu J>eim megiu á hvolfi Mars, sem nótt er á, eða dimma, en sem allra næst J>eim takmörkum, sem dagur dvfnar. en nótt hefst. Þessi loftsýn, eða “Projection“ hefir áður sést átunglinu, og sem stjörnufræðingar hafa skílið. Þar erhún framleiðsla sólargeislanna, þannig. að þeir skfna á. eða ljóma upp hæstu fjallatinda. En svo kemur stjörnufræðingum saman um J>að, að engin fjöll séu til á reikistjörnunni Mars, og J>ar af leiðandi getur ekki þessi loftsýn verið sama eðlÍ8 þar og á tunglinn. Lowell fullyrðir að þessi loftsýn á Mars hljóti að vera uppiyfir skýjun um þar. en ekki hnattföst. Þetta ljósský segir hann að hafi verið um 134 mflu fyrir ofan yfirborð jarðstjömunnar, og ummál f>ess hafi verið um 150 mílur að flatar- máli, og fór það um 23 niflur á kl. stund, en eftir einn eða tvo daga frá J>vl liann uppgíitvaði það, livarf Jað sýnum.—ogerlfklegt að gufa af mismundi þ'ttleika, í gufuhvolf- inu, hafi valdið þvf, að það hvarf sýnum.—Þykir sumum líklegt að þetta hafi verið fregntákn frá Mars- húum til vor jarðarbúa. “AMBER plötu-reyktóbakið er að sigra aí eigin verðleika. Hafið þér reynt það ? safnið TAGS. Þau eru verðmæti. ódýrust föt eft,ir mAli s»inr S. SVEINsSON, Tailor. 408 Agnes 8t. WINNIREG. TH ODDSON selur allskoDar skófatnað með lægra verði en fólk hefir vanist, t. d. góða sterka karlmannsskó á einn dollar, kvenskó á 50 cents og barnaskó á 25c. Komið og skoðið, þá muuuð þið sannfæiast. 483 Ross Ave.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.