Heimskringla - 11.09.1902, Blaðsíða 1
XVI. ÁR WINNIPEG MANITOBA 11. SEPTEMBER 1902. Nr. 48.
FIRST NATIONAL 8ANK.
K. B. VAN SLYKB, FOKSETI.
M. B. FULLEK, VARA-FORSETI.
Madison, Wis., 14. Jan. 1902
John A. McCall, Esq. President,
New York City.
Kivri herra:—
Vér hefum fengið simdurliðaða skýrslu yðar fyrir síð-
astliðið ár. Vér getum ekki annað en dáðst að vexti félagsins,
sem skýrslan áreiðanlega sýnir, og sem ekkert annað félag
jafnast við.
Ver tökum eftir þvf, að eignir þær, sem félagið hefir stofn-
að fé sínu f, hafa hækkað að mun í verði og eykur það trygg-
ingu allra viðskiftamanna þess, með því eignirnar eru alíar
af beztu tegund. Og satt að segja höfum vér í uhdanfarin
nokkur ár haft skýrsÍur yðar sem fyrirmynd í vali okkar á
eignum sem bankinn hefir varið peningum sínum í.
New York Life óbyrgðarfélagið getur vel staðið við að
segja allan sannleikan um starf sitt. Alt of margar ábyrgð-
arstofnnair segja bara part af sannleikanum.
Yðar með virðineu.
N. B. VAN SLYKE. forseti,
C. Olaffion, J. <>. .Tlorgaii. Manajter,
AOEKT. GRAIN EXCHANOE BUILDINO,
NV I JST JST IPE <3- .
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
—Hveitiuppskeran í Norður-Da-
kota er áætlað að veiði í Ar 55 millí-
ónir bush., og 25 millíónir bush. af,
hör. Allur landbénaður þar er
sagðnr bezta ástandi.
— Brezku mentam&lamennirnir
sem um tíma hafa verið að ferðast
um Canada, láta svo vel af land-
bönaðinum hér, að þeir hafa kevpt
landspildu mikla hjá Red Deer,
Tilgangurinn er að setja þar upp
kenslubú fyrir brezk ungmenni, svo
þau geti l»rt þar landbfinað áður en
þau taka sér heimilisréttarlönd.
—fyrstu kosningar til Dominion-
þingsins fara fram í Yukon-hérað-
inu þann 2 Desember næstkomandi.
Governor Ross er talinn líkiegasti
maður til að sækja um kosningu und
irmerkjum tLiberala.
—Ottawastjórninni hefir verið til
kynt að 2 hópar af Böa-bændum séu
væntanlegir til Canada innan tárra
vikna til þess að skoða land. Stjórnin
ætlar að leiðbeina þeim í öllu, sem
hfin getur, er þeir koma.
—Maður einn í St. Paul féll úr
loftfari 400 fet til jarðar f síðastl.
viku. Hann meiddist mikið, en þó
telja læknar honnm lffvænt.
—Manitobastjórnir. hefir höfðað
m&l móti ríkisstjórninni, til þess að
fá rúm $244,000 af skólafé fylkisins,
er hún segir að Ottawastjórnin haldi
ranglega frá fylkinu.
—Roosevelt forseti varð fyrir því
slysi þann 3. þ. m., að rafmagns
brautarvagn í Pittsgeld, Mass., rakst
á kerru, sem forsetinn var í og
velti henni um koll og braut hana.
2 þeirra manna, sem með forsetan-
um voru, meiddust svo að þeir mistu
líílð, en foreetinn meiddist á höfði,
þó ekki hættulega. Hann heldur á-
fram fetðalagi sínu þrátt fyrir slysið
en breytingnokkur verður á tím-
anum, sem har.n kemur á ýmsa
viðkomustaði.
—Kornuppikeran í Minnesota er
talin að vera í haust frá 20—25
bush. hveiti af ekru., 15—20 bush.
af hör, 50— 80 bush. af korni og
höfrum 200 til 300 bush. af kartöfl-
um, og aðrar korntegundir að sama
skapi. Sömuleiðis er heyræktun
talin ágæt í ár og öli griparækt og
smjörbú í bezta lagi.
—Frétt frá Cape Town, Suður
Afrtku, segir stormur hafl drekkt
70 manna í Algoa Bay þann 1. þ.
m. Ýms skip brotnuðu við kletta f
ofveðrinu og fólk fekk ekki bjargað
sér.
— 200 manna bafa beðið bana af
jarðskjálftum sem urðu & Bermunda
eyjunum fyrra laugardag.
— Sambandsnefnd verkamannafé
laganna á Englandi hafa með at-
kvæðagreiðslu á opinberum fundi
lýst þvl yflr, að Búastríðið hafi í
þeirra augum verið ranglátt strfð,
og að England hafl haflð það að á-
stæðulausu.
—Tyrkjasold&n hefir afturkallað
ýms ákvæði, er hann hafði gert
gagnvart Armeníumönnum. Þykir
betra að egna þá ekki of mjög til
reiði, og óskar friðar þar í landi.
—Timbursmiðir í New York hafa
gert verkfall; ‘þeir heimta $4,50 á
dag, í stað $4, sem áður “var vana
kaupgjald,
—Brezka stjórnin heflr 'nú loksins
lagt fyrir þingið f Lundúnum
skýrslu um herafla sinn í Búastríð-
inu, á þessa leið: Setulið Breta í
Suður-Afrfku þann 1. Ágúst 1899
var 318 foringjar og 9,622 hermenn;
hjálparlið sent suður frá þeim tíma
til 11. Október, þegar stríðið hófst,
nam 12,546 manna, og frá þeim
tfma til 31. Maí 1902 semdi stjórnin
suður 386,081 manna, auk 52,414,
sem gengu f herþjónustu í Suður-
Afrfku. Svo að alls höfðu Bretar á
vígvellinum í þessum ófriði 440,981
manna. Þessi skýrsla telur að mann
fall Breta hafi orðið alls 5,774 falln-
ir á vfgvelli, 23,029 orðið óvígir af
sárum og 16,168 hafi dáið af sárum
eða sjúkdómnm. Ekki getur skýrsla
þessi um hvað verið hafi allur kostn-
aður Bre ta í tilefni af stríði þessu,
enda ekki séð fyrir endann á þeim
kostnaði enn þá.
— Verkamannaþing mikið hefir
nýlega verið haldið á Englandi. Að-
alumræðnefni þess var um það,
hvort verkamannafélögin ættu að
gera sig ánægð með geiðardóma í
ágreiningsmálum sínum við vinnu-
veitendur. Atkvæði féllu svo, að
961,000 voru móti gerðardómum,
en 303,000 atkv. með þeim. Þetta
ákvæði brezku verkamannanna er
ein af þeim átyllum, sem kolanáma-
eigendur í Pennsylvania hafa nú til
þess að neita að enda kolaverkfallið
þar. Önnur ástæðan er, að náma-
eigendum sé ekki hægt að hækka
laun n&mamanna vegna þess að þ'i
yrði kolin úr námum þeirra dýrari
en úr öðrum námum, og með þvf sé
allur sá atvinnuvegur, sem þetta
námafélag ræður yflr, algerlega
eyðilagður.
—Kosningar fóru fram i Dan
mörku þann 3. þ. m. Stjórnin vann
sigur svo að hún hefir stóran meiri-
hluta í landsþingiuu og þar með er
það víst, að eignir Danaí Vest-Inda
eyjunum verða seldar Bandaríkjun-
um, eins og um var sarnið.
—Kolanámaeigendur í Wales á
Englandi sendu um síðustu helgi
8000 tons af harðkolum til New
York. Fféttin segir kol verði frarn-
vegis send vestur eins ör t og skip
fáist til að flytja þau, þar til verk-
fallið í Pennsylvania sé um garð
gengið.
—Ekki er alt friðsamlegt á Fil-
ipseyjunum enn þá. Uppreistar-
menn réðust nýlega á þorp eitt á
Luzon eyjunni. Þeir vorunær 200
að tölu. Drápu þeir þar 2 konur
og meiddu maiga aðra í þorpinu, en
lögregiuliðið Bandarikíahermenn,
sem þar voru, ráku fjandmenn þessa
af höndum sér. Síðan hefir Banda-
ríkjaherliðið náð 700 manns, sem
grunaðir eru um að hafa verið í sam
særinu, og halda þeim f varðhaldí
þartil mál þeirra verður rannsakað
fyrir dómstólunum.
—Kolanámaverkfallíð í Pennsyl-
vania stendur enn yflr. Verkfalls-
menn fá $300 þúsund ,bjálp viku-
lega frá verkafélögum í Bandaríkj
unum, en sú upphæð er talin langt
of lftil, til þess að halda þeim 140
þúsundum námamanna, sem nú eru
atvinnulausir, og fjölskyldum þeirra
við llfið til lengdar. Nokkur hundr
uð manna hafa þegar tekið að vinna
f sumum námunum og mörg hundr-
uð kolavagnar eru nú daglega hlaðn
ir þar og sendir út um alt land.
Talið er vist að þess verði ekki
langt að bíða að verkfall þetta verði
endað á einhvern hátt. Heimenn
eru nú notaðir til að vernda þ& sem
farnir eru að vinna í n&munum, fyr-
ir yflrgangi og árásum verkfalls
manna.
—Tveir Galiciumenn komu hing-
að til Man. fyrir 2 árum, þá alls-
lausír, og hafa grætt svo fé hér
vestra, að þeir hafa nú lagt af stað
til Galiciu til að sækja fjölskyldur
sfnar og ^koma þeim út hingað á
næsta sumri. Þessir menn kváðust
haf grætt hér fé á dagiaunavinnu
fram yfir allar vonir og gæta því nú
borgað öll nauðsynleg fargjöld og
annan kostnað fyrir fólk sitt vestur
hingað.
—Mesta ekla er nú & vinnumönn-
um hér íJManitoba. Bændur fá ekki
nær þvi alla þ& bjálp sem þeir
biðja um, og í bæjum er einnig
mesta mannekla. í sumum tilfell-
nm er nú farið að bjóða algengum
útlendura verkamönnum $2 á dag
og fæði.
— Fréttir frá Svíaríki segja að
þessa árs kornuppskera sé að mestu
eyðilögð vegna votviðra, og svipað
ar fréttir berast frá Noregi og Dan-
mörku.
—Edward konungur og drottning
hans gerðu sér ferð til að heimsækja
gamla Andrew Carnegie f Skibo-
kastala á Skotlðndi í sfðustu viku.
Þau höfðu þar máltíð og dáðust
mjög að húsum karls og skrautgarð
inum umhverfis þau.
—807 kolanámaverkfallsmenn í
Dorcaster á Englandi voru sektaðir
$30 hver fyrir að yflrgefa vinnu í
námunum án fytirvara.
—Vábrestur f kolanámn á Eng
landi vaið 40 manns að bana þann
6. þ. m. Um 120 manna unnu í
námunni.
—Frakkar eru að byggja nýjan
hermannaskóla í borginni Toulon.
þegar þeir voru að grafa fyrir grund
völl hússins, komu þeir niður á
mannabúka. Leftin sýndi að þar
voru yflr 1000 manna grafnir. Þeim
hafði verið raðað í kesti kistulaus-
um. Það er álitið að þetta séu leif
ar þeirra er féllu f uppreistinni, sem
þar varð árið 1793.
—Boxarar f Kfna hafa neglt npp
áskoranir á ýmeum stöðum um að
drepa nú tafarlaust alla útlendinga
í Kínaveldi. Þess7 áskorun er gerð
f tilefni af því að stjórnin þar er far
in að heimta skatta af landsbúum til
þess að borga herkostnað stórveld
anna, sem þar hafa verið um síðastl-
3 ára tíma, og enn fremur af því, að
byrjað var 4. þ. m., að byggja
Canton Hanken járnbrautina, se.m
Boxurum er afar illa við, eins og
öll önnur nýmæli og framfarir þar í
landi.
—Akuryrkjudeild fylkisins segir
að eun þá sé nauðsyn á 6000 kaupa
mönnum i uppskeruvinnu og ef að
þeir fáist, þá sé mögulegt að vernda
þessa árs uppskeru á tveggja mán-
aða tíma.
Jón Antoníu3 Þorssteinsson.
Þú sigldir um marnlífsins myrkasta
svið,
þó má enginn líkja þér örendum við
það ski|i, sem að brotnaði’ á skeri,
frá miðju þfns un«dóins var bliknuð
þfn brá
og bygging þins líkama aumlegog smá
en sál þín var ‘‘gullþingí gleri".
Oi hún þurfti’ að skifta um hæli sem
fyrst
og hverfa úr lfkamans fanrelsis vist
og lyfta sér glöð uppf geiminn;
hún var fyrir mentun svo meðtækileg
og mændi með lotningu fram á þann
veg,
sem liggur { himneska heiminn.
Þú leist ekki’ á sorgina sjónauka gegn,
varst sanngjarn og réttsýnn og trú
lyndur þegn,
Og valdir þér göfuga vini;
þig aldrei á sker vegna skammsýni bar,
þú skoðaðir mannlifið eins og það var
f anda þfns X-geásla skini.
Og þar til þú bugaðist, bróðir, og félst,
þú barðist við dauðann og kjark þín-
hélzt,
sem Grettir við volduga vominn;
en það var i vor að mér fluttist sú
freen,
er flaug inig sem hrellandi kaldsvali
Bef?ni
að krossmessa þín væri komin.
Þvf oss, sem þig þektum, til þfn var
svo hlýtt
og það finst mér yera í sögunni nýtt,
þú varðst ekki vinsælli genginn.
Ég veit að þig leiðir nú engill við arm,
og oft verður ta'að með gleði og harm
um andaða íslenzka drenginn.
G. J. G.
Vér viljum leiða athygli les-
euda vorra að auglýsingu þeirri, er
síðasta blað vort flutti frá Mr. J. Obed
Smith, Commissioner of Immigrat-
ion. Hann býðst til að taka við far-
gjöldum til íslands og er öllum ein-
sætt að nota milligöngu hans, sem
fargjöld senda. Að vfsu er töluverð
óánægja í mönnum út af meðferð á
fargjöldum, sem greidd voru inn á
skrifstofu Mr. Smiths sfðastliðið haust
og vetur, þvf megninu af þeim var
ráðstafað svo vfsdómslega að menn-
irnir, sem fargjöldin áttu að fá, urðu
að fara á mis við fljótasta og ódýr-
ast.v flutninginn og sæta dýrara fari í
staðin, o g ónotuðum fargjöldum
kvað skrifstoían eiga bágt með að
skila. En menn þurfa þó ekki að
láta þetta fæla sig frá að trúa Mr.
Smith íyrir fargjöldum sínum, því í
auglýsingunni er lofað að láta það
ekki koma fyrir aftur, og er óhætt
að reiða sig á það.
Á íslandi hefir línu agentinn
gert sér fargjaldsgreiðendur hér að
féþúfu, með því að reikna fargjalds-
þiggjendum dallarinn lægra en vera
ber; í auglýsingunni er lofað lagfær-
fng á þessu, og bezta ráðið við slík-
um fjárdrætti er að nota milligöngu
Mr. Smiths, þvf hann sendir far
gjöldin til Mr. S. Brynjólfssonar,
sera mun láta sér ant um hagsmuni
vesturfara í hvívetna.
CHARLES TOWN, West Virginia,
29. Ágúst 1902.
Ritst. Hkr.:—
Má ég leiða athygli þess íslend-
ings, sem láir Sunnanmönnum að
þeir vilja ekki sitja til borðs með
svertingjum, að eftirfylgjandi frétt,
ogenn lremur að minna hann, að f
öllum Suðurríkjunum heldur hvfta
fólkið — sem s-jálft var eitt sinn í
þrælahaldi — svertingia handverks-
menn, til þessað vinna fyrir sig. En
hvergi f Norðurríkjunum (hinum
gömlu fríríkjum) er svertingjum
leyft að ganga í handverksmanna-
*lög. Komið suðr og sjáið* * fyrir
yður sj&lf.
Gec. Wilson.
Lexington, Missouri.
“VILJA EKKI VINNA MEÐ
SVERTINGJUM.
Verklallsmenn tilkjrnna stálfélag-
inu að það megi ekki taka svertingja
í verkstæði sín.
LeCanon, Pa., 29. Ágúst.
300 meon, sem tilheyra amer-
iska verkamannafélaginu og vinna
I verkstæðum járn og st&l-félagsins,
og sem verið hafa á verkfalli sfðan í
Maí sfðastl. héldu fund í dag, Á
fundinum var samþykt að tilkvnna
félaginu að ef svertingjar þeir sem
fluttir voru frá Reading snemma í
þessari viku, verða ekki reknir úr
vinnu innan 24 kl. stunda, þá hefji
allir þeir verkamenn félagsins, sem
enn þá eru við vinnu, tafarlaust taf-
arlaust verkfall, svo að öll verk-
stæði félagsins verði að stöðva verk
og þar með missi fél. 1,200 menn og
pilta. Sheriff H. B. Carpenter heflr
svarið 15 auka lögregluþjóna í em-
bætti.”
Þann 15. Ágúst sfðastl. lagðiég
af stað til Álftavatnsnýlendunnar, er
ég hafði mikið heyrt l&tið af, í er-
indum unitariska frfkyrkjufélagsins
fsl., og náði þangað að morgni hins
16. s. m. Strax og ég kom f bygð-
ina, sá ég að ekki mundi ofsagt af
nýlendunni yiir það heila tekið, þvf
alstaðar þar sem ég kom voru menn
glaðir og hinir skemtilegustu heim
að sækja, og alment ánægðir yflr
plássinu og kjörum sínum. Þó áttu
margir ervitt með að ná upp öllu
því heyi, er þeir þurftu, og margir
sögðust þurfa að fara langar leiðir
frá heimilum sfnum til þess að heyja
vegna þess hve blautt væri á þeirra
eigin löndum, er alt stafaði af flóð-
unum I vor.
Á meðan ég dvaldi í bygðinni,
héltég aðallega til hjá þeim hjónnm
Jóni kSigfússyni (Olson) og Soflu
konu hans, þar sem kunningi minn
Þorvaldur Þorvaldsson er til neim-
ilis. Það er mjög skemtilegt heimili
ogheflrÞorv. ekki valið af verri
endanum þegar hann tók sér þar
bólfestu, enda kom okkur vel saman
um það, að þar væri gottað vera, og
ekki sfzt fyrir skólastráka, er komn-.
ir væru í hor eftir veturinn af vök-
um or skrudduþönkum, enda var
það ekki nein “a-þrfori‘“‘ hugleiðing,
þvf Þorv. er nú þegar 18 frjórðungar
Annars er framleiðsla á heimilinu
þar öðru þessu lfk, eftir því sem
Þorv. sagði mér, sem mjög er kunn-
ugurísínu skólahéraði. Auk þess
þar sem ég var til heimilis, kom ég
til þessara: Guðm. Guðmundssonar,
Jóns Sigurðssonar, frænda Jóns Jóns
sonar alþingism. frá Sleðbrjót, og
Högna Guðmundssonar. Alla þessa
var mjög skemtilegt heim að sækja,
og töfðum við Þorv. þar fram & nótt
Norður við Cold Springs kom ég
til Magnúsar Björnssonar járnsmiðs,
er einu sinni var á Hallson, N. D., -
en fluttist þaðan til Narrows en varð
að flýja heimili sitt þar sökura fióða.
Hann heflr nú sezt að hjá Cold
Springs og keypt sér þar land Lftið
skröfuðum við Magnús um búskap
inn.enmargs var að minnast frá
gamalli tíð f Dak. Hjá þeim hjón-
um var ég í þrjá daga og var þar
Hallson bragur á öilu, en allir vita
hvað það þýðir, því Hallson er fyrir
myndar plá sið í Dak. Þar í ná-
grenninu kom égtil veizlunarmanns
Jóns Líndal, og til Stefáns Gutt-
ormssonar, er kennir skóla þar. Stef
án er til heimilis hjá þeiiu hjónum
Magnúsi og Þuríði Gíslason. Þar var
ég tvær nætur og sýndi Stefán mér
skólaverkið sitt fyrir næsta vetur.
Hann er nú búinn raeð það alt og
er nú farinn að reikna út dæmin, er
hann býzt við að hafa seinasta árið
sitt í Wesley. — Stef&n er sjálfsagt
einhver sá langmesti “mathemati
ciaD“, sem íslendingar eiga hér
vestra, og hræddur er ég um, að sá
þyrftiað hafa einhver “þekkingar
takmörk að neðanverðu“, er ætlaði
að hafa full not af þvf sem hann fer
með stundum.
Þann 22. Ágúst keyrðuu við
Þorv. til 8hoal Lake bygðarir.nar og
hittum þar Þorberg bróður Þorv., er
kennir þar skóla. Hann heldur til
hjá hjónum þar skamt frá skólnnum,
Birni Jónssyni og konu hans. Þar
settumst við Þorv. upp og vorum
þar fram á sunnudagskveld. Þar
var engu síður gott að vera en þar
sem Þorv. á heima, og eru þeir séðir
Skagfirðingarnir að komast alstaðar
inn á beztu heimilin. Björn er hinn
allra skemtilegasti, og að mér var
sagt, einn af beztu söngmönnum í
bygðinni. Hann er einnig bóka-
vörður fyrir lettrarfélag,, er Isl.
hafa þar. í því standa Shoal Lake
búar lramar Álftvetningum, að þeir
hafa lestrarfélag, er Álftvetningar
hafa ekki. Þar í nágrenninu kom-
um við iil Sigurðar Eyjólfssonar og
Kristjáns Vigfússonar. Þeir tóku
okkur ágætlega og borðuðum við
miðdagsmat hjá Sigurði. Sigurður
var í miklum önnum þegar við kom
um, en þó settist hann niður og
ræddi við okkur lengi, þangað til
við s&um að ekki dugði að gera hann
verklausann, þóttvið værum lítið að
gera, og fórum því af stað, en sáum
eftir að hafa ekki getað tafið þar
leDgur. Til Kristjáns komum við
að kvcldi til og ræddust þeir Þorv.
við fram á nótt um margt, er þeir
þektu báðir.
Sunnudaginn þann 24. flutti ég
messur sinhvoru megin við Shoal
Lake og voru þær vel sóttar. Austan
megin vatnsins sá ég marga, er ég
þekti frá Dakota,
I Álftavatnsbygðinni messaði ég
tvisvar, sunnudagana þann 17. og
31. Ágúst, og var vel sótt í bæði
skiítin, en einkum þó sfðari sunnu-
daginn. Strax eítir messu lagði ég
afstað áleiðis hipgað ojr fekk keyislu
með Kr. Breckman, er var að ttytja
frændfólk sitt inn til Reabui n. Á
leiðinni til Reaburn stönzuðum við
hjá Þorsteini kaupm. Þorkelssyni,
sem mörgum er að góðn kunnur hér
í bænum, og fengum þar beztu við-
tökur. Þau hjón kunna vel við sig
þar og sagðist Þorsteinn hafa mikia
verzlun. Hann á von á að járn-
brautin, sem leggjast á þangað út
eftir, fari engan óra veg fyrir austan
búðina.
Um nýlenduna yflr það heita tek-
ið get ég lítið sagt annað en það, að
hún er talleg. Samt er það vafa-
samt hvort nokkurn tfmagetur orðið
þar mikil hveitirækt, því landið er
svo grýtt og flest.nokkuð mýrlent, en
þar verður vafataust tramtíðar engi
og gott íyrir kvikfjárrækt, einkum
og helzt ef hægt yrði að gera við
því að ekki flæddi þar, eins og gert
hefir nú undanfarin ár,
Ég ætia svo ekki að orðlengja
þetta meira, en þakka öllum.fyrir
góðar viðtökur og gestrisni, og hvað
þeir tóku mér og máli mínu vel, og
óska þeim ðllum góðs vetrar og á-
batasams árs, og vona að sú lífsskoð-
un nái vexti og viðgangi meðal
þeirra, sem gerir líttð að alvöruefni,
en þo ekki að byrði, sem veitir þeim
óbifanlega trú á að alt það sem er
gott og göfugt f sálum iranna eigi
að varðveitast fremur en úreltar
lagasetningar frá útkuluuðum öld-
um.
Rögnv. Pétursson.
Winnipeg, 4. Sept. 1902.
Peninga
get ég lánað á móti veði f fasteign-
um með eins lágri rentu og góðum
borgunarskilmálum og hægt er að fá
þá nokkurstaðar. Þeir, sem þui-fa
að fá peníngalán, eða endurnýja
gamalt lán, geta sparað sér peninga
með því að flnna mig, eða skrifa eft-
ir upplýsingum áður en þeir taka l&n
hjá öðrum.
N. Gudmundáon,
HENSEL N. D.