Heimskringla - 25.09.1902, Síða 1

Heimskringla - 25.09.1902, Síða 1
XVI. ÁR WINNIPEG MANITOBA 25. SEPTEMBER 1902. Nr. 50. Fregnsafn. Markverðustu viðbnrðir hvaðanæfa. —Lord Salisbu*y er sagður hættu lega veikur í Sviss. Sent heflr yer- ið til Englands eftir læknum til að ■tunda hanu þar. —Kjötsalar í Dawson City hafa. gengið f bandalag—myndað * Trnst“ —til þess að ná elnveldi á kjöt- og gripasölu f Klondike-héraðinu. Bfi- ist við að kjöt hækki þar í verði. —Conger. sendiherra Bandarfkj- anna; sendír Washingtonstjórninni þær fréttir írá Kína, að Boxarar séu f undirbúningi með að hefja uppreist lem ekki verði umfangsminni en sú, er þeir hófu árið 1900, og að orsök- in til þessa nýja ófriðar sé aðallega skattar þeir, sem nú séu lagðir á þjóðina til þess að borga herkostnað ■tórveldanna. —70 ára gamall bóndi í Brandon- héiaðinu skaut í sfðastl. viku tilvon- andi brúðhjón, sem keyrðu inn á land hans til þess að skjóta þar fugls. Konan er sögð dauð, en mað- arinn hættulega særður. Bóndinn drap sig sfðan á eitri af afioknum glæpnum. Astæður fyrir þessu eru þær, að ýmsir sem fara út til fugla- ▼eiða, hafa í leyflsleysi skotið á landi karls í forboði hans, og hann þoldi ekki yflrganginn lengur. —Allmikil óánægja hefir orðið á Porto Kico og Filipseyiunum út af þvf að Commissioner of Immigration f Washington heflr látið það boð út ganga að stjórnin skoðaði eyjar- ikeggja sem útlendinga, þrátt fyrir það þó eyjar þeirra séu orðnar part- »r af Bandaríkjunum og undir stjörnu og randa fánannm. Inn- flutninga Commission heimtar af eyj rskeggjum landgöngutoll og lætur það að öðru leyti beygja sig undir reglur, sem ekki er beitt við þegna ríkisins. —100 þús. ekrur af landi f norð- vesturhéruðunum voru í síðustu viku seldar fyrir hálfa miilíón doll- ars til Bandaríkja auðmanna. —White Star lfnuskipið Oceanic gerði nýlega þá fljótustu ferð, nem farin hetir verið yflr Atlantshaf. Ferðin frá Queenstown til New York var gerð á 5 sólarhringum, 16 kl. stundum og 42mínútum. —Fréttir segja að eignir Portu gals f Suður-Afrfku, þar með Deia- goa flóinn verði bráðlega seldar í hendur Breta til eignar og umráða. —Ræningi einn í Skagway, Al- aska, gekk inn í banka þar í bænum kl. 3 þann 16. þ. m. Hann bar skammbyssu f annari hendi og dynarnit kúla í hinni- Hann heimt aði $20,000 í peningum, eða hann sprengdi bankann í loft upp. Tveir bankaþjónar voru í húsinu, annar þeirra náði byssu og ætlaði að mæta ræningjanum, en þá henti hann kúl- unni í gólfið. Þjónarnir komust ó- skemdir út um glugga, en hú ið sprakk og ræninginn með því. Fólk sem bjó upp á lofti f byggingunni, sprakk f loft upp með húsinu. Annar handleggur ræningjans rifnaði af honutn og hausinn brotnaði. Bank- inn misti $1000 f gullsandi, er þar lá á borðunum, en tapaði að öðru leyti engu. — Ameríkanskir tóbaksgerðar- menn hafa um marga mánuði verið að keppa við brezka tóbaksgerðar- ir. enn um sölu á vörum sínum f Bret- landi. Amcríkanir hafa tapað7| milí ón dollars á þessari keppni í aug- lýsingum og verðlaunagjöfum og á því að selja hvert pund af tóbakinu 8 centum ódýrara en nemur fram- .eiðslukostnaðinum. Hvort Amer- ikanir vinna svo að þeir nái tóbaks- verzlun Breta á vald sitt, er enn þá óséð, en enginn fjárútlát á að spara til að fá því framgengt, ef það er með nokkru móti mögulegt, — Rán var framið í Frakklands- banka í Paris þann 12. þ. m. Það nam 220,000 frönkum. Þetta er fyrsta rán, sem framið heflr verið á þeim banka sfðan hann var stofnað ur fyrir meira en 100 árum. Þjónar bankans eru grunaðir um glæpinn. — Kjötniðursuðumenn f Banda- rfkjunum hafa gert samsteypu. “Trust" þeirra á að byrja félagsbú sitt með höfuðstól, er nemi 25 sinn- um samlögðum gróða allra félag- anna á síðasta ári. Þeita “Trust“ hefur göngu sfna þanu 27. þ. m., og er talið að verða eins áhrifamikið og stálgerðarfélagið míkla. —Eitt sæti eða meðlims réttindi til að sitja á samkomum hlutabréfa- samkundunnar (Stock Exchange) í New York var nýlega selt fyrir $81,000 og að auk $1000 borgun sem inngöngueyrir. Fyrir 7 árum kostnði að eins $13,500 að fá inn göngu f þetta félag. ^-Landstjórir.n yflr Manchuria hefir gert þá tilskipun, að hýða skuli hvern þann mann 100 svipuhögg, sem verði uppvís að því að spila fyr- ir peninga þar f landi. Sama hegn- ing gengur einnig yfir hvern þann húsráðanda, er leyfir peningaspii í húsi sínu. Eftir hýðinguna skal og gera þá seka útlaga úr landinu. — Póstflutningur með rafmagns vírumeru að komast á í Italín. Vél- fræðingur einn að nafni Pisciáelli, hefir uppgötvað aðferð til þess að senda bréfsenuingar í Aluminium- kössum eftir fráðum strengdum á stólpa. Sendingarnar ganga 248 mílur á kl.stund. ítalfustjórnin hef- ir sett konunglega nefnd til þess að athuga mál þötta. Reynist staðhæf- ingar vélafræðingsins áreiðanlegar, þá ætlar stjórnin tafarlaustað taka upp þessa póstsefidingaaðfeið. Upp götvarinn býður fé við því að send- ingarnar geti gengið eins og hann segir og er viðbúinn að sýna nefnd- inni það. —Spánverjar hafa gengið í banda lag til sóknar og varnar með Frökk- um. Sagastastjórnin sér nú að ef Spánn hefði átt aðrar þjóðir að baki sér um það leyti, sem það átti í ó friðnum við Bandaríkin, þá er óvíst að það hefði tapað öllum eyjaeign- um sínum. Það er því álitið nauð- synlegt að gera nú fóstbræðralag við einhverja af stórþjóðunum og kaus sér félag við Frakka. —Sex hundruð vfsindamenn’ og vélfræðingar á Frakklandi héldu þing mikið í Grenoble íþessum mán uði til þess að ræða um notkun á ám þeim og lækjum, sem hafa uppsprett ur sínar í fjöllum uppi og renna ó notaðar ofan fjallshlfðarnar til sjáv- ar. Fundurinn komst að þeirri nið- urstöðu að mynda skyldi félag til þess að frainleiða rafafi úr vötnum þessum, er svo inætti nota til þess að knýja verkvélar f hverju einasta vei kstæði í landinu og væri þá eng- in þörf á koluin lengur til þeirra nota. Enda væri uú kolabyrgðir landsins því nær að þrotum komnar. —Stanley Spencer sigldi nýlega yfir 30 mflur í loftfari, er hann sjálf- ur hafði gert, yfir Londonborg. Hann stýrðitfari sínu í ýmsar áttir og lét það fljúga vel upp f vindinn, og tókst það alt ágætlega. Telja menn nú vfst að stýra megi loftför- um eftir vild. —Englands drottning er um þess- ar mundir í kynnisför til föður síns í Danmörku, f fyrsta sinni sfðan hún varð drottning, og var henni fagnað sem stöðu hennar sómdi. — Svertingjafundur mikill var haldjnn í 'fcBirmingham í Alabama $ann 19. þ. m. Einhveijir urðu ósátt.ir[á fundinum og tóku að berj- ast. Fát mikíð kom þá á fundar- menn og endaði með því, að 86 svertingjar létu þar lffið, en yfir 80 særðust. —Capt. Krie Unge og fylgdar- maður,^hans fóru nýlega í loftfari nllægt Stokkhólmi f Svíaríki. Ixifi- farið sprakk, er þeir voru 2 mílur uppi 1 loftinu, en þeir komu samt niður ómeiddir. Þessir sömu menn höfðu áður feiðast í loftbát 21. Júlí sfðastl. 540 mflur á 14^ kl.stund. —Frakkar eru að koma á vírlaus- nm hraðskeytum milli Frakklands og Martinique og Guadeloupe eyj- anna. Þykir ótrygt að reiða sig á sjóþráðinn ar á milli, sem bilað hettr tvívegis, þegar mest reið á að hann væi i í góðu lagi. — Capt. Sverdrup kom nýlega úr heimskautaferð sinni og lenti i Stav- anger í Noregi 1 skipinu Fram, eftir 4 áia veru f heimskautafsnum. Skip- ið hefir legið fast í ísnum allan þenn an tíma, og segir Capt. að ekki hafi verið mögulegt að sprengja ísinn svo að skipið losnaði, fyi en i síðastl. Júlf, að sunnanstiaumur rak bann svo til að skipið losnaði, En af þvi að gufuvélar þess höfðu gengið úr lagi, þá varð hann að sigla skipinu á vanalegan hátt, þar til hann náði höfn í Stavanger. —Drottningin í Belgíu andaðist viðmatboið sitt að kveldi þess 19. þ. m. Hún varð bráðkvödd. —Bretastjórn hefir ákveðið að nýiendurnar I Suður-Afriku skuli borga $400 millíónir af herkostnaði Breta þar syðra. Þungar álögur verða lagðar á allan n&maiðnað, og ýmsar skorður settar við frjálsum viðskiftum, heldur seld leyfi til að reka þau, svo að fé hafist með því móti saman í herkostnaðarskuldina. Nægur tfmi verður þó veittur til að hafa fé þetta saman, því að Bretar búa9t ekki við að setja álöguvélina i fulla hreyfingu fyr en eftir 2—3 ár. Síld hefir selzt erlendis í vor og sumar, frá 12 til 25 kr. tunnan. Fisknr í háu verði, málfiskur, bezta tegnnd, 58 kr. Sm&fiskur 30kr. Talið að verðið fari lækkandi. — Sláturfé f kaupstiíðum á Norðurlandi mcð lfku verði og í fyrra. Kvennaskólinn á Blönduós hefir 4 kennara. Kensla frá 1. Okt. til 14. Maf, kostar 135 kr. Bókleg og verkleg mentun er þar kend; þar með enska. Steingrfmur læknir Jochumson er orðin aðstoðarlæknir á Akureyri. Þetta embætti talið nauðsynlegt vegna spítalans þar, sem krefst þess nú að einn læknir sé þar stöðugt, en annar þarf að sinna aðkomandi kröf um sem oft heimta ferðalög og burtuveru úrbænum umlengri tíma. Tíðartar ilt, kalt og óþurkasamt. í bvr jnn Ágúst snjóaði f fjöll nótt eftir nótt og hörkufrost var ofan að sjó eina nóttina. Töðuhey óhirt hjá flestum f grend við Akureyri um þann tíma. Afii á Akureyrar skipum er komu þar á höfn í byrjun Ágúst sfðaetl. var Föcix (Fr. M. Kristjánsson) 2600 fiskjar. “Aage“ (Höffner) 75 tunnnr lifrar. “Fliink“ (’) 8000 flskjar. “Tjörn“ (Þorv. dönsk) 4500 fískjar. Talisman1- (Chr, Havsteen) 11000 flskjar. “Æskan“ (”) 43 tn. lifrar. Kierstine“ (Gránufél. 22 tn. lifrar. Látinn er í Reykjavík 1. Ágúst Jens Pétur Thomsen, 53 ára. Hann var lengi kanpmaður í Keflavík og síðar í Búðardal. ISLAND. FIRST NATIONAL BANK. N. B VAN SLYKB, FORSETI. M. E. FULLER. VARA-FORSETI. Madison, Wis., 14. -Jan. 1902 John A. McCall, Esq. President, New York City. Kœri herra:— . Vér hefum fengið sundurliðaða- skýrslu yðar fyrir síð- astliðið ár. Vér getum ekki annað en dáðst að vexti félagsinsÆ < sem skýrslan áreiðanlega sýnir, og sem ekkert annað félag^ I jafnast við. Vér tökum eftir þvf, að eignir þær, sem félagið hefir stofn-T að fé sínu f, hafa hækkað að mun í verði og eykur það trygg-T ingu allra viðskiftamanna þess, með þvf eignimar eru allarj j af beztu tegund. Og satt að segja höfum vér í undanfarin < nokkur ár haft skýrslur yðar sem fyrirmynd í vali okkar á eignum sem bankinn hefir varið peninguin sfnum f. New York Life ábyrgðarfélagið getur vel staðið við að segja allan sannleikan um starf sitt. Alt of margar ábyrgð- arstofnnair segja bara part af sannleikanum. Yðar með virðingn. N. B. VAN SLYKE. forseti, C. Olafson, ,1. 1«. .Tlorgan. Manager, AGENT. ORAIN EXCHANGE BUILDING, YA7 I 3ST 3ST IPEG. Þingmenn Skagfirðinga, Skúli Thoroddsen og Sigurður Stefánsson, hafa krafist þess í bréfi til amtmanns ins yfir Suður- og Vesturamtinu, að skipaður verði óvilhallur dómari f ísafjarðarsýslu til þess að halda á- fram rannsóknum þeim er sýslum. H. Hafsteinn heflr byrjað út af kosningu nefndra þingmanna. Jafn framt hafa þeir krafist þess að rann. sökuð verði fj'ireyðsla II. Hafsteins og fylgdarmanna hans við þessar kosningar, og segja þeir Sk, og Sig, að í alraæli sé að Hjálmari bónda Jónssyni í Stakkadal f Sléttuhreppi hafl verið boðnar 50 kr. til kjörfylg- is við HaLt. Amtmaður verður v ið þeim tilmælum að víkja Hafst. úr dómarasæti í málum þessum, en lof- ar engu um að rannsaka fjárevðslu hans í kosningunum. Þeir Skúli og Sig. eru ekki ánægðir með svar amt- manns og hafa skotið málinu til ráð- giafans í Danmörku. Reykvíkingar héldu hátíð miala 2. Ágúst f sumar. Ræður, kvæði, kappreiðar á hestum og hjólum f<5ru þar frau, svo og lifandi manntafl o. fl.skemtanir. Ungfrú Olafia Jóhanns- dóttir hélt ræðu fyrir minni Vestur- Islendinga, og Jón Olafsson orti kvæði fyrir minni þeirra, er sungið var á þjóðhátíðinni. Er það í fyrsta sinni sem minni Vestur-fslendinga hefir átt svo mikla þátttöku í þjóð- hátíð íslendinga á íslandi, og ernm vér þeim þakklátir fyrir það.— Þenna sama dag var og lagður blóm sveigur á gröf-lóns sál. Sigurðsson- ar, at Lárusi Bjarnasyni og nokkrum fylgjendum hans. En misjafnlega hafa blöðin af þvf látið, sem þó hefði ekki átt að vera, Fjallkonan sel^ séra Óiafi Ólafs- syni f Arnarbæli, frá næstkomandi nýári. Þessi nýi eigandi og vænt- anlegi ritstj. er talin einkar ritfær maður og alkunnur að frjálslyndi og þjóðrækní. Mjaltakensla er kominn á í búnað- arskólanum á Hvanneyri og er hfin ókeypis og stendur yfir 6 til 8 daga. Karlmenn ættu að læra að mjólka, jafnt og konur. REYKJAVÍK 20. ÁGÚST 1902. Kæra Heimskringla! Þegar ég skrifaði þér síðast var ég f kaupmannahöfn; nú er ég kom- inn til Reykjavíkur. Ferðin frá Kh^fn og hingað tók 10 daga: hér um bil jafnlengi og ferðin frá New York og til Khafnar, en þó er vega- lengd sú um 4000 mílur, en Milli Khafnar og íslands að eins 1000. En svona fljótferða eru dönsku damp- skipin, sem send eru til Islands. Þar við bætist þetta hápraktiska fyrir- komulag Dana, að hvert póstskip verður að fara frá Höfn vestur til Skotlands og sfðan til Færeyja, þar sem það er að dunda vanalega einn tvo eða fleiridaga, ogsvo sfðast til ís- lands. Mér leið illa á þeirri ferð, bæði vegna þess að við hreptum hina verstu storma og stórsjó og svo er mjög leiðinlegt að ferðaot með dönsku skipunum á annari káetu. Maturinn vondur og plássið auðvirði legt—líklega ekkert betra en á þriðja plássi á ensku línunum. Við kom til Reykjavikur að kvöldi hins 4. Ágúst og vorum þannig tveim dög- nm of seinir að ná í íslendingadag- inn, þjóðhátiðina er hér var haldin 2. þ. m. og hafði verið mannfleiri nú en nokkru sinni áður — enda engar áfengis veitingar leyfðar. Ég hafði hlakkað til að sjá ís- land og höfuðstað þess, og hvað ís- lard snertir varð ég fvrir engum vonbrigðum, því fegurra útsýni er víst óvíða til, að minsta kosti ekki þar f Amerídu er við búum. Eg minnist ekki að hafa séð nokkurstað- ar fegurra sólsetur en hér, þegar sól- in er að sfga til viðar og gyllir upp allan jökulinn, þar til hann sýnist sem eitt logandi e’dhaf. Þá er Esj- an, að norðanverðu, all tilkomumikil þótt ekki sé hú hátt fjall. En þótt menn verði ekki fyrir vonbrigðum hvað útsýnið snertir, þá er alt öðru máli að gegna með höfuðstaðinn sjálfan. íveruhúsin eru flest afar- ósmekkleg og ljót, að minsta kosti að utan. Flest eru þau klædd að utan með járni. sem gerir þau enn þá ljótari og afkáralegri, auk þess sem húslagið sjálft er mikið óvið- feldara en við höfum vestur frá. Bankahúsið er hér um bil eina húsið í öllum bænum, að einum eða tveim- ur prívathúsum undanskildum, er Jýsir nokkurri smekkfegurð. Það vill svo vel til að nú situr suka alþing hér um þessar mundir og hef ég því haft tækifæri að sjá og heyra beztu menn landsins, þvf ætla má að íslendingar, sem aðrar þjóðir, sendi ekki aðra á menn á þing. Þar má ifka sjá marga tilkomumikla og greindar- lega menn og eru þessir helztir: Klemens Jónsson, sýslumaður á Akureyri og forseti neðrideildar al- þingis; séra Þórhallur Bjarnarson,, forstöðumaður prestaskólansí Reykja vfk; Guðlaugur Guðmundsson sýslu maður, að sögn mælskasti þingmað- ur -á þessu þingi; séra Sigurður Stef&nsson f Vígur, þingm. ísfirð- inga; Stefán Stefánss, kennari á Mððruvöllum; Þórður Thoroddsen, lækni; Lárus Bjarnason, sýslumað- ur Snæfellinga og leiðtogi heima- stjórnarflokksins; og svo hinn ó- gleyraanlegi Þjóðólfs ritstjóri Hannes Þorsteinssou. AUir eru þessir f neðri deild. Ilinn eini efrideildar þingmaður, er mér fanst nokkuð kveða að, við umræður í þeirri deild, var Skúli Shoroddsen sýslumaður, þingmaður Isflrðinga. Aliir þessir menu eru 'el málifarnir og tala mjög skipulega. Þyðingarmesta málið fyrir þessu þingi var stjórnarskrármálið og um það voiu litlar umræður; var sam- þykt írumvarp stjórnarinnar í einu hljóði; svo að öll líkindi eru nú tilað Islendingar fái innan skams þá stjórn- arbót er þeir svo lengi hafa barist fyrir. Það mál er heitastar umræð- ur vakti, var málið um skifting ísa- fjarðarsýslu í tvö kjördæmi; flutn- ingsmaður þessa máls var Lárus Bjarnason og mælti hann með skift ingunni og reyndi til að færa saun- anir fyrir réttlæti krölu sinnar, en mistókst það aigerlega, þó hann í því máli talaði bæði skipulega og með stillingu. Honum svaraði séra Sigurður Stefánsson í Vígur og fór hann ómjúkum orðum um sýsln manninn, um leið og hann rökstuddi mál sitt og sýudi fram á hve ranglátt málið var og af hvaða rót það væri sprottið. Færi skiftingin fram fyrir næstu kosningar, var hér um bil vist að llannes Hafstein mundi kosinn þlngmaður fyrir vestursýsluna ánjð 1903, en annars óvíst ef skifting unni væri frestað. Réttlátast væri þess vegna að fresta þessu máli. Eg var nú búinri að vera rúma viku í Reykjavík og mér var farið að leiðast að hlusta á þingmennina, svo ég af réð að fara austur til Þingvalla í nokkra daga og iðrast ég als ekki eftir því. Það er næstum þvf til vinnandi að fara frá Ameríku til Is lands bara til þess að sjá Almanna gjá, þetta stórkostlegu undraverða verk náttúruunar. Þegar ég á síð astl. vetri ferðaðist gegnum Kletta fjöllin, dáðist ég að þeim mannvirkj um er rutt höfðu burt stórum hömr um og búið til braut gegnum kletta bergið, ekki ósvipað því sem hér á sér stað, en það er sá stóri munur hér á, að f öðrum staðnum er alt unnið af manna höndum með ærnum kosthaði; í hinum er alr unnið af náttúrunni sjálfri kostnaðarlaust. Þegar ég skrifa þessar línur er ég staddur í “Valhöll,” gistihúsinu & Þingvöllum , og get ég frá því séð “þar sem að Öxará rennur, ofan í Almannagjá,” og jafnvel “lyngið á Lögbergi helga, er blámar af berj- um hvert ár, börnum og hröfnum að leik.” Ég get ekki stilt mig um að setja hér fáein orð eftir Sigurð Guð- mundsson málara, um Þingvöll við Öxará, hann segir: “Það mun ver óhætt að fullyrða að Þingvöllur sé af náttúrinni sá stórkostlegasti, fjöibreyttasti og þe is vegna sá fegursti staður á ís- landi. Því enginn staður á fslandi sameinar eins aðdáanlega allan svip Islands, hér er sýnishorn af öllu því hclzta. Hér aru fjöll, jóklar, gj&r og graslendi, hamragarðar og hraun, ár og fossar, slétt’endi, brekkur og skógur og vatn, hér vanta einungis hveri og laugar. Að sunnanverðu er Þingvallavatn, það mesta vatu á Islandi, og er enn fegurst að sjá suðurfjöllin í því á kyrru sumar- kveldi; að austan og vestan umgirða staðinn ákaflega háir hamragaftar, er ganga neðan fiá vatr.i og alt upp til fjalla, sá eystri er lægri og óreglu- legri, og lítur út frá Þingvöllum sem eins og svartur múrveggur, sera er langt í burtu Þesn hamragirðing er eystri barmurinn á Hrafnagjá, sem er vestari Vestri hamragarðurinn er langt- um hærri og reglulegri, og gnæflr við himininn, eins og svartui múr- veggur, það er Almannagjirhamar- inn vestri. langtum hærri en sá hinn Til að auka enn meir fegurð Þingvallar, veittu forfeður vorir Öxará ofaná Þingvöll, og er það ekki alllítil pvýði, að sjá hvítfreyðandi foss- inn steypast ofan af svörtum hamra- garðinum, þar sem vegurinn liggur ofan á sjálfan Þingvöllinn; það er eins og fossinn sé settur þar upprun- alega til að bjóða gestum velkomn- um á þenna fagra stað. Að norðan er Þingvöllur umgirtur af fjöllum, vestast eru Súlur, síðan Ármannsfell og austast er fjallið Skjaldbreiður; úr þvf f jalli hettr alt Þingvallahraun runnið til forna, og má það heita móðir Þingvqllar. Á sumrin er fjall þetta alt þakið hvítum jökuldílum, er sjaldan bráðna algjörlega burtu, því náftúran hefir keyrt þá fast inn f f allið. Þessi litur fjallsins og lögun þess, sem líkist mest smeltum törgu- skildi á hvolfi, hefir getíð því nafnið Skjaldbreið, sem Jónas Hallgrímsson kvað”: “Fannaskautar faldi háum tjallið, allra hæða val, hrauna veitir bárum bláum breiðan fram um heiðardal. Liingu hefir Logi reiður lokið steypu þessa við; ógna skjöldur bungubreiður ber með sóma réttnefnið.”— I. B, Bóason.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.