Heimskringla - 12.02.1903, Blaðsíða 2

Heimskringla - 12.02.1903, Blaðsíða 2
HEIMBKRINGLA 12. FEBRÚAR 1903. Beiinskringla. PUBIiISHBD BY The Heimskringla News & Publishing Co. Verð blaðsins í Canadaoc Bandar S‘2.00 nm árið (fyrir fram borgað). Sent til fslands (fyrir fram borgað af kaupend- um blaðsins hér) $1.50, Peningar sendist í P. 0. Money Order Registered Letter eða Express Money Odrer. Bankaávisanir á aðrabanka eni Winnipeg að eins teknar með afföllum. H. T.. Raldwinson, Editor & Manager. Office : 219 McDermot Ave. P o. BOX Til rainnis Það var vel gert a£ Lögbergi að “fara ofan af” þeirri staðhæf- ingu að núverandi kosningalög væru til þess ætluð að lx>la frjáls- lynda menn frá að geta greitt at- kvæði f fylkismálum, þvf það var ekki tilgangur laganna; heldur sá að gera öllum borgurum fylkisins jafnt undir höfði með atkvæða- greiðsluna, og |>ess vegna voru lög- in svo útbúin að samningur kjör- skránna skyldi gerður undir um- sjón fylkisdómaranna, og án nokk- urrar afskiftasemi stjómarinnar. En nú kemur sama blað með þá staðhæfing að kjördæmaskifting eigi að gera til þess að “bæta sem flestum frjálslyndum kjósendum inn í f>au kjördæmi f>ar sem enginn möguleiki er að láta afturhalds- menn ná kosningu, og það má svo aftur taka sem flesta afturhalds- menn f>aðan og bæta þeim við kjördæmi þar sem flokkarnlr era álika mannmargir.” Margt er Lögbergi vel gefið, en rökfræði virðist ekki vera þess sterka hlið. Flestir skynbærir menn munn t. d. sjá að pegar frjálslyndum kjósend- um er bætt við þau kjördæmi þar sem flokkamir eru álíka mann- margir—jafnir, f>á sé það gert til þess að tryggja liberölum þau sæt- in og ætti slíkt ekki að vera neitt sérlegt umkvörtunarefni fyrir blað- ið, en svo hefir blaðinu gleymst að sýna fram á, á hvem hátt þessi skifting manna á að gerast. Lfk- lega ætlar það ekki að halda fram þvf að f>ær sectionir eða sectionar- fjórðungur, sem frjálslyndir menn byggja, eigi að vinsast úr einu kjördæmi og leggjast við annað og þau skörð aftur fylt með Con- servative-kjósendur. En sé þetta ekki meiningin, )>á gerði blaðið vel í pví að skýra betur skýringar sínar á þessu máli, svo hægt sé að átta sig á því hvað það sé, sem f>að vildi sagt hafa. Þegar sú skýring, ef hún þá verður skiljanleg, er fengin, þá mun Heimskringla við f>vf búin að rœða málið. Hitt er oss ljúft að ræða, og jafnframt svara: 1. Hverja þýðing það hafði fyrir fylkið, þegar (ifeenwaystjómin komst til valda árið 1888. Það hafði þá þýðingu, a) að Lögberg fékk stjórnarstyrk, b) að fylkið var veðsett fyrir 2| million dollars, c) að árleg fastaútgjöld á fylkinu, sem bein afleiðing af þeim lántök- um eru á annað hundrað þúsund dollars rentu eða vaxtagreiðsla, d) að Greenway hleypti fylkinu í ár- lega sjóðþurð, e) að fylkið var lát- ið borga út á aðra millión dollars til jámbrautafélaga án þess að fá umráð yfir far- eða flutningsgjöld- um, f) að um $3000, sem fylkið lagði út fyrir fargjöld íslenzkra vesturfara, var stolið af Greenway- stjórninni—hverju einasta centi— eftir að þau höfðu með æmum kostnaði verið innheimt frá vestur- föram, og að hvergi sést svo mikið sem einn stafur í reikningum stjómarinnar, er sýni að eitt ein- aata cent hafi verið Ixirgað af vest- urförum upp í þetta fargjalda lán, g) að þó Mr. Greenway sjálfur ját aði f þinginu í Febr, 1896, að hann þá væri búinn að veita móttöku yfir þúsund dollars frá fsl. vesturföram, sem afborgun af fargjaldaskuldum þeirra, þá skilaði hann ekki svo mikið sem einu senti í fylkissjóð- inn, h) að auk framantalinnar veðskuldar þá skildi Greenway eft- ir sig nær J mill. doll. aukaskuld, er hann varð að vfkja úr völdum :'yrir ráðvandari og stjómhæfari mönnnm, i) að þegar hann fór frá var fjárhirzlan tóm, og langtum ver en það, j) að Greenway hafi ekkert lag á að haga svo stjórn fylkisins að láta inntektir þess inæta útgjöldunum, svo að fylkið var komið í algerð gjaldþrot, þegar kjósendurnir loksins vöknuðu til meðvitundar um yfirvofandi hættu, og vísuðu stjórn hans úr völdum. Margt fleira mætti telja, en nóg er komið að sinni, ætíð má bæta við sakirnar sfðar, því ekki brestur fjölda þeirra. 2. Hvaða þýðingu kosningarnar 1899 hafa haft. Því er auðsvarað. Þær eru: a) að Greenway-stjórnin féll, b) að Lögberg misti fylkis- stjómarstyrkinn, c) að fjármálum fylkisins er nú stjórnað með hyggindum og ráðvendni, d) að í stað árlegrar sjóðþurðar, er nú ár- legur tekjuafgangur, e) að aukin tillög hafa verið veitt til opinberra- verka, f) að aukin tillög hafa verið veitt til mentamála fylkisins, g) að stjórnin hefir gert þá hagkvæmustu jámbrautarsamninga, fem sögur fara af, h) að án svo mikils sem eins cents útláta hefir stjómin náð yfirráðum yfir far- og flutnings- gjöldum á 1200 mílum af jámbraut- um, i) að beinn hagiiaður fylkis- búa f tilefni af þessum samningi er um 200 þús. doll. á ári, án nokkurra útláta beinna eða óbeinna nú eða síðar, j) að fylkið á fullan kaup- rétt á öllu brautakerfinu að enduðu samningstímabilinu, k) að lönd hveryetna í fylkinu hafa stóram hækkað f verði, sem þýðir aukin auðæfi fyrir hvern landeiganda í fylkinu, 1) að inntektir fylkisins hafa stóram aukist síðan Conserva- tive-stj. lagði sanngjarna skatta á auðfélög fylkisins, til að mæta á- fallandi vaxtagreiðslu af skulda- súpu Grennway-stjómarinnar, og öðrum vaxandi útgjöldum. sem era óhjákvæmileg afleiðing af vaxandi innflutningi fólks í landið. Mörgu fleira má hér við bæta, og skal síð- ar gert verða, að eins skal því hér við bætt að Conservativaflokkurinn hefir aldrei lofað þvf að útgiöld fylkisins skyldu lækka eða standa í stað, þvf það hefði verið óðs manns æði. Eu hann lofaði að eyða ekki meiru en svo að inntektir fylkisins nægðu til að mæta útgjöldum þess, og við það hefir hann staðið. 3. Um það hverjum flokknum kjósendur ættu að trúa betur fyrir málefnum sfnum framvegis, skal verða rætt við Lögberg á sfnum tíma, og kjósendum fylkisins þá sýnd með ljósum rökum afstaða Heimskringlu í þvf máli. Verðskulduö ádrepa “Leikfélag Skuldar” á skarpa skömm skilda fyrir leikrit þau, “Hjartadrotninguna” og “Nei-ið”, sem það narraði Islendinga tfl með æmum tfmamissi og peningaútlát- um að sœkja og horfa á, á Unity Hall, þann 3. og 5. þ. m. Félag hetta hefir að undanförnu vandað allvel til leikja sinna, bæði að leikendum, útbúnaði, hljóðfæra- slætti og allri framkomu yfirleitt; og fólk var farið að hafa álit á flokknum sem heiðarlegum og vönduðum leikflokki. Það var þvf engin von til þess að fólk vort drægi nokkum efa á sannleiksgildi þeirra auglýsinga félagsins, er laut að efniságæti og siðferðisbetran þessara leikja, og þeirra heillavæn- legu áhrifa, sem þeir áttu að hafa á áhorfendurna. T. d. var það aug- lýst að “Hjartadrotningin sé fram- úrskarandi lærdómsrfkur leikur”, “á við góðann skóla fyrir gifta fólk- ið” o. s. frv. Það var gengið svo röggsamlega fram í að auglýsa þessa leiki að það var gert jafnt f ljóðum sem óbundnu máli. Það var því engin furða þó íslendingar keptust við að kaupa sér 35c. sæti og meir en troðfylla húsið kl. 8 að kvöldinu, f von um að njóta þar ó- vanalega ágætrar og siðbetrandi skemtunar. En hvað skeði? 1. “Orchestra” sá, sem spilaði á samkomunni um kvöldið, var als ekki hæfur til þess verks. Á hérlendum leikhúsum er það al- menn venja að nota að eins þá menn til að spila á undan leikjum og milli þátta, sem lengst eru komnir f hljóðfærsláttaríþróttinni; enda eiga áhorfendur þar jáfnan kost á að hlusta á góðan hljóðfæraslátt. En á Unitý Hall var alt öðru máli að gegna; þar lék, eða öllu heldur sargaði, maður á fiðlu svo átakan- lega illa og viðvaningslega, að slíkt er ekki bjóðandi á nokkru leikhúsi, og Skuldarleikfiokkurinn ætti að sjá sóma sinn f þvf að vanda betur til þess starfa framvegis. Því að fiðluslátturinn á þessari áminstu samkomu var með öllu óþolandi og als ekki bjóðandi á nokkrum opin- berum skemtistað. 2. Leikurinn var auglýstur að byrja kl. 8, en hann byrjaði ekki fyrr en kl. 8.40. Það virðist vera orðin föst venja meðal Islendinga að byrja aldrei samkomur sfnar á auglýstum tfma, og er það illa far- ið. En Skuldarflokkurinn er f þessu efni engu sekari en flestir aðrir Isl., sem standa fyrir sam- komum meðal fólks vors hér. Þessi óregla er óhafandi og ætti sem fyrst að afnemast. Það kostar engu meiri vinnu að undirbúa samkomur svo að hægt sé að láta þær byrja á auglýstum tíma, held- ur en þó það sé dregið von úr viti af einskærum trassaskap og slóða- hætti og án nokkurs tillits til tíma eða tilfinninga þeirra, sem sækja samkomumar og leggja fé sitt til að styrkja þau fyrirtæki sem þær era haldnar fyrir, og svo að fólki þessu — oft með böm sín—skuli vera gert ómögulegt að komast heim til húsa sinna fyr en nær miðnætti. 3. Aður en leikurinn byrjaði gekk Sfg. Júl. Jóhannesson frain fyrir fólkið til að skýra efni leikj- anna og þýðingu þeirra, og til að endumýja þá staðhæfingu að “Hjartadrotningin” væri siðbetr- andi í eðli sfnu. Þessar skýringar um efni og eðli leikja era alveg ó- vanalegar hér f landi, og að því er oss virðist, algerlega óþarfar. Það má með sanni segja að það fari eins illa á þeim eins og á söng þeim sem stundum heyrist á leiksam- komum Islendinga aftan við tjöld- in þegar leikendurnir sjálfir finna til þess hve ósanngjamlega langur tími er látinn Ifða milli þátta. Slík- ur söngur er vanalega svo af hendi leystur að langtum betur færi á því að hann væri enginn, og sama er að segja um skýringar á undan leikjum. Annaðhvort er að efni leikjanna er mjög illa framfært af höfundum þeirra og þeir illa leiknir, eða að þeir era svo ljósir frá þenna skáldsins, að þeir verða áhorfend- um skiljanlegir án aukaskýringa. Vér teljum þvf að þessar skýringar á undan leikjum, ættu með öllu að leggjast niður. 4. Efnið f “Hjartadrotuing- unni” er blátt áfram til skammar, og þveröfugt við það sem augl/st var að væri. Þar era nygift, barons- hjón, baroninn er konu sinni ótrúr, hefir framhjá henni með greifafrú nokkurri, sem einnig er manni sín- um ótrú og hefir framhjá honum með sjáanlega hverjum sem hafa vill. Þessi nýgifti baron, ásamt lauslætisbralli sfnu við greifafrúna, spilar einnig lukkuspil við hana og viljandi lætur liana vinna af sér 2000 kr.; en í ógáti skilur hann eftir hjá henni peningaveski sitt með öðram 3000 krónum 1. Þetta peningaveski sér annar maður hjá henni, sem var að finna hana í lík- um erindagerðum og baróninn, greifafrúin gefur honum veskið með 3000 krónunum, sem hún þó vissi að var eign barónsins, og með þvf sýndi hún að hún var bæði skækja og þjófur. Barónsfrú- in, sú eina af aðal-persónum leiks- ins, sem virðist vera með nokkurn- vegin heiðarlegum karakter, nær f og les bréf frá greifafrúnni til bar- ónsins; í bréfi þessu sér hún og skilur samband þeirra og ótrygð mannsins síns við sig. Og afðar fær hún hann með hyggindum og lipurð til að játa synd sfna, og svo í kvenlegum veikleika fyrirgefur hún honum þetta tafarlaust, án þess þó að nokkuð sé um það rætt að hann leggi niður komur sínar til greifafrúarinnar. Það má nú hver sem vill segja að hér sé siðbetrandi leikur fyrir fsl. alinenning, en Heimskringa heflr alt aðra skoðun á því máli. Hún lítur svo á að hér sé sýnd frá fyrst til sfðast hin auðvirðilegasta hlið mannlífsins, eintómur syndasori, frá upphafi til enda, ekkert göfugt eða göfíancli og langt frá þvf að vera siðbetrandi, hvorki fyrir gifta né ógifta. Jafnvel sætt baróns- hjónanna, ber þess vott að unga konan liafi litið með velþóknan á háttsemi og ótrúmensku mannsins síns, þvf hún Sagði blátt áfram á leiksviðinu að hún elskaði hann að meira eftir en áður, þegar hún hafði komist að ótrúmensku hans, og samkvæmt þeirri yfirlýsingu heflr maður fullan rétt til að álykta að elska þessarar konu til manns sfns mundi aukast eða magnast f röttum hlutföllum við vaxandi ó- trygð hans við hana. Það þarf gleggri sjón en Heimskringlu er gefin til að sjá siðbetranareðlið í þessum leik. Þvert á móti er liann als ekki þess virði að vera sýndur eða séður, jafnvel þó hann yrði vel leikinn. 5. Leikurinn var illa leikinn, baróninn gersamlega óþolandi. Föt hans voru að vísu ffn og með ný- móðins sniði og fóru vel, ef sá er bar, hefði kunnað með að fara, en maðurinn var alt annað en baróns- legur, öll framkoma hans var stirð- busa- og afkáraleg, limarburðir stirðir, málrómurinn lágur og óá- kveðinn og látæði alt og framkoma ófyririnannleg. Hann skildi auð- sjáanlega ekki verk sinnar köllun- ar og var þvf als ófær til að leysa það sómasamlega af hendi. Engin ástæða er sanit til að skifta um persónu f þessari rullu, því stykkið ætti aldrei framar að verða leikið. Islendingar ættu ekki að lfða það. leikurinn í heild sinni kennir ekk- ert annað en það, að hver sá gift- ur maður, sem vill halda eða örfa elsku konu sinnar til sfn, geri það bezt og vissast með þvf að vera henni sem ótryggastur, hafa fram- hjá henni; og á hina liliðina sýnir hann að þær konur, sem ekki era opinberlega ótrúar mönnum sínum, lfta samt með velþóknan á losta- gimdina þar sem hún kemur 1 Ijós, og að ást þeirra til manna sinna vex við uppgötvan þessa lastar f eðlisfari þeirra. Oss er sagt að Sig. Júl. Jó- hannesson hafi valið leik þennan fyrir félagið, sem sérstaklega sið- betrandi fyrir fólkið, og vel skilj- um vér að þetta sé samkvæmt smekk hans og skoðun. En oss furðar á því að honum skyldi tak- ast að blinda svo augu skynbærra manna og kvenna í Skuldarleikfél. að það skyldi taka í mál að leika leikinn. Þess skal og getið um þennan leik að hann er að eins einn þáttur, eins efnislítill eins og hann er efnisljótur og siðspillandi. “N e i - i ð” er stuttur gaman- leikur, liann var sæmilega leikinn, og sérstaklega lék Sig. Júl. Jó- liannesson þar vel, en sá var galli á búningi hans í biðilsförinni til Fanny.ar, að buxnaklauf hans var á parti opin, svo að skein f bert, og var það hin viðbjóðslegasta sjón og hneykslaði mjög fjölda áhorf- endanna. Tveir leikflokkar hafa á umliðn- um áram verið reknir með harðri hendi úr bæ þessum fyrir að sýna engu lakari leiki en þessa “Hjarta- drotningu”. íslendingar œttu að reka Skuldarflokkinn af höndum sér þegar hann býður þeim næst að horfa og hlýða á þennan hneykslis- leik. Það er illa gert að nfða þá smekkvísi og velsæmistilfinningu úr Islendingum, sem þeim er eigin- leg, með því að básúna þennan leik sem verandi siðbetrandi fyrir fólk vort, og það er bæði röng og skað- samleg stefna að ætla sér að auka siðgæði og sóma tilfinningu nokk- urrar þjóðar með því að halda sí- feldlega upp að vitum hennar því, sem lægst er og dýrslegast í mann- eðlinu. Það er sjáanlegur skortur, eða ef til vill algerð vöntun á vel- sæmistilfinningu, sem knúð getur nokkum mann til að halda því fram að slík dæmi og sýnd era í “Hjartadrotningunni” séu siðbetr- andi fyrir nokkum mann eða konu. Val slfkra leikja til að skemta með á opinberam leikhúsum getur enga aðra þýðingu haft en þá, að kveikja verðskuldaða fyrirlitningu í huga og hjörtum skynbærra manna fyrir bæði persónu og siðspillingu þess manns, sem á þann hátt auglýsir smekk sinn og eðli, og óbeinlínis einnig fyrir leikflokki þeim, sem af tómri flónsku lætur nota sig fyrir tól til að aka öðram eins ó- þverra og þessum fram á sjónsvið almennings f þeim tilgangi að hann falii fram og tilbiðji hann. Jóla- og nýársblöðin, (Eftir: J. Einarsson). (Niðurlag). Kvæðið “Likir.gar” er að mínu áliti með lakari kvæðum þess höfundar, og sjálfsagt hefði hann get ið betur gett. Eg skil ekki hvernig “Vonin færir oss fullkomin erfiðisgjöld.” Kveðandi hefir gleymst al veg í fyrstu btaglínu síðasta erindis, “Hann kunningi minn” eftir Kr. Stefánsson er langt kvæði, kuldalegt í mesta máta og víða talsvert tilþrifamikið, t. d. er þetta hugsuð setníng: 'Eu setg er hún þrákelkiiiu(n) þutnb- aralýðs, Oí þaulsæt, er öfund 4 rógburðarjálk, Og blóðugt xr tanuafar bítaudi (a) niðs, Og brestfeld er dyggðiu oa; ti vvgðin hjá sliálk..........................” Sumstaðar eru áherslur skakkar, t. d. . .hann talaði óhlíiðarlega, en @att.” Greinimerki vantar sumstað- ar, eða eru skakt sett. Smágalla eins og t. d. á næst síðasta eriddi gætir lítið. Yfir höfuð er kvæðið með því betra í ritin.u. “Nemesis Móðurdómsins” eru eins og sumt, er stundum er kallað “sund- urlausir þankar” um móðurtilfinn- inguna. Málið og rithátturinn hvor- tveggja lélegt. “Móðurdómur” get- ur ekki verið íslenzkt orð í annari merkingu en þeirri að það bendi á uppkveðinn “dóm” (helzt sakar- dóm) a.f móður, í tilefni af eða yfir einhverju barni eða börnum. Þetta orð getur því naumast átt við lat ínska orðið Nemesis, í þessu sam- bandi; “móðurdómur” líkt og t. d. “helgidómur” er ekki íslenzkt orð, heldur bjögun úr dönskn. Rit- hátturinn er fiókinn og stirður, of mörg “þankastrik” sumstaðar, t. d. “Hún hafði lifað líkt og dýrin—þessi slægu, viðsjárverðu dýr. — Endur- minningarnar—hefði henni auðnast að vekja þær, um liðna æfi, hefðu yakið viðbjóð í hjarta hvers þess er heyrt hefði. Og hert jafnvel hjörtu englanna”. Hér er og stórum staf og depil ofaukið, en vantar kommu o. s. frv., eins og víðar í ritum. “í alt fall” (á dönsku: f al P'ald) er ekki (sl.—Að föt “passi” er danskt og sama er að segja u>n “hégóma- skap” o. fl. í “Endurminninga”-kvæðinn myndi “faðir Freyju” að líkindum kalla orðið “þars” hortitt, og ef til vill síðasta erindið “bull”, væri kvæðið annarstaðar að komið. “Léttastúlkan” rituðafMrs Bene- diktsson er smásaga mjög vel sögð; ef til vili eitt hið bezta í þessu riti. Naumast hægt að “fara betur ineð” þetta efni en þar er gjört. Maður getur næstum því hugsað, að sú, er söguna segir þekki af eigín reynd hvað það er, að vera eínstæðingur, munaðarlaus. Hér er farið svo vel með efnið, að það er ólíkt því, er fjöldinn ritar, þeirra, er smíða sér efnið af “líkum” en ekki þekkingu. Það er lítil ástæða að fara að "yrkja sögur” út t hött, þegar hægt er að fá “satt efni” úr hversdagsatvikun um og segja það eins vel og hér er sagt. “Kristín”, kvæði eftir Sig. Júl. Jóhannesson er ljómandi kvæði. Leirskáld geta ekki kveðið lfkt því. —hversu oft á ekki síðasta erindið við hverdags atvikin í lífinu. Þar segir svo: “En vinir, sem rændu þig blöðnm og börk Þeim bregdur e: neitt þótt þú skjálfir. Þeir hlæjandi ræða um rotnandi björk Sem rótina eitrnðu sjálfir”. Ásamt fleiru hefir Sigurður það fram yfir smáskáldin að hann hugs- ar venjulega alt efnið í kvæði sín sjálfur. “Brosið” er lagleg greiu að öðru en málinu til, Um kvæðið “Úrlausn” eftir Stephan G. Stephansson má óhætt segja að væri þetta hans bezta kvæði, þá hefði hann aldrei náð, né átt að ná því áliti sem skáld, er hanu hefir fyrir löngu áunnið sér með ýmsum öðrum kvæðum sínurn. “För Frfðarins” er rituð í þeim anda, að höfundurinn hefir fulla á- stæðu til að iðrast sárlega eftir að hafa með henni auglýst hvert lítil- menni sumir höfundar eru. Efnið, sem á er minst í enda sögunnar(?) er flestum Winnipegísl. kunnugt. Þar er átt við jólagjaflr þær er Sigurður Júlíus safnaði handa btáfátækum börnum, fyrirtæki, sem varla nokkur maður hefir nema gotc orð um að segjajafnvel þeir, sem aldrei láta hann sannmælis njóta í öðrum mál- um. Þótt höf þessarar s<’>gu ef til vill hafl eigi haft “tíma til” að sjá sínura eigin afkvæmum fyrir glaðn- ingu um jólin, þá hefði hann ekki átt að reyna að spilla þvi, að börn- um hinna væri gjört lífið bjartara en efni leyföu heima fyrir. Það væri óskandi að sögnr, sem þessi, væri jafnan síðasta saga hvers höfnndar þeirra — ef þeir gætn ekki hetur gjört? “Harpan inín” er snoturt kvæði þrátt fyrir það, þótt efnið í því hafi áður verið enn betur sagt af öðrum. “Eerhendur” virðast ekki kveðnar í skáldlegum tilgangi, og “Til Skáld- konan Myrrah” er ólíkt “góðum kvæðum” þótt það ef til vill sé ekki það laXasta eftir höf. Það þarf meira til að vera skáld en það, að koma einhverri hugsun í ein- hverja (ó)mynd af rími “Hríslan mín” eftir Myrrah er ekki eitt af beztu kvæðum hennar, en er þó vel brúklegt. Þótt sumt af efninu í “Freyju” sé þannig “mislukkað” þá ber þó blaðið með sér að útgef. vilja velja af skárri endanum, og fer því blaðið sjálfsagt batnandi með vax- andi dómgreind þeirra. Aldamótablað “Dagskrdr” er %Tönduð útgáfa að nærfelt öllu leyti. Pappír, prentun, og prófarkarlestur í bezta iagi á hérlenzka vísu. Kvæð- in: “Garalaárskvöld”, “Sögunar- karlinn”, “Úr daglega lífinu”1 eftir Sig. Júl. Jóhannesson eru svo mikil skáldverk, að þó þau hefðu eigi nema helming síns skáldlega gildis, þá væri höfundurinn löngu viður- kendur, sem stórskáld ef hann væri nógu fylgispakur einhverjum mikils- verðum jábræðrafiokkí (klikku) og opnaði augu sín á víxl eftir því við hvern hann ætti að skifta. Til þess, að koma sér vel við alla þurfa þeir, sem eitthyað vilja segja um atvik lífsins, félagsmejn þess og starfs- háttu sumra leiðandi manna, að hafa ský á báðum augum til þess, að geta því betur látið sér sjást yfir það, sem betur færi í breyttri m.ynd. ‘,Sög- unaikaiiinn” og “Úr daglega lífinu” eru afbragðskvæði. Það eru fáir eins vandir og höf. að ö 11 n m bún- ingi: Kveðandi og háttfestu, og efniviðum, þar er vand.'ega alt í sínu samræmi. Kvæði hans er líka hægt að syngja undir tilætluð- um lögum séu þau kveðin til söngs. Hann ætlast ekki til að kveðinn þríliðnr sé t. d. settur undir tónraddaðan tvílið né tviliður undir þrískiltan takt í lagi eins og flestir af “skáldunum” gjöra jafnast. “Sorgin” eftir Kr. Stephansson er á pörtnm gott kvæði, og þrátt íyrir það þótt háttum sé blandað þar af handahófi og kvæðið sé yfir höfuð nokkuð þunglamalega búið, þ4 er það eitt af betri kvæðum höf. Setn- ingin. “eitrið í því, að fá ekki að sjást” og “stynjandi djúp í stjörnu- hröp vafið”, er hvortveggja van- hugsað, þótt það “klingi” full vel f eyra. “Et'frostkalt er úti, Og þú, sem átt þak. Ilinn þrautkalda með þér í skjólið þitt tak”, Hér er “og” of aukið, en þarf með vegna rímsins að eins. í næstu hendingu er “sál- inni” röng beyging fyrir “sálurini” í (þágufalli), Hugtnyndunum í 6. og 7. erindi er efitt að koma, í sam- ræmi. “Smalavísa” eftir Stephan G. Steph-. ansson er ein af góðu kvæðunum hans vfsa, sem hverju skáldi er sæmilegt að vera faðir að. “Er sólin hneig ’ eftir P. S. P. er mjög laglegt kvæði, þótt síðustu tvær hendingar séu að líkindum naumast satt sagðar, og kvæðið beri dálitinn lit af einhverju áður kveðnu. “Eldflugan” ettir G. J. G. er snotsrt einkum slðasta erindið. “Jólaraddir” eftir S. S. Ísíeld er fr&leitt hans bezta kvæði. “Um jólin” mjög lítilfjörlegt kvæði; aðal“ágæti” þess er falið í vantrúarhugmynd höf. ft “guðlegu spekinni tómu”, sem hann svo

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.