Heimskringla - 11.06.1903, Síða 1

Heimskringla - 11.06.1903, Síða 1
XVII. WINNIPEG, MANITOBA 11. JÚNÍ 1903. Nr. 35. Fregnsafn. Markverðustu viðburðif hvaðanæfa. Stjórnin á Kfisslandi hetir gefið Gyðingum tilskipun, að hún hafi samið lagaboð, þar sem þeim sé leyft að böa í 101 bæ á Kússlandi undir fullri vernd atjórnarinnar. Annarsstaðar en á þessum stöðum fá þeir ekki að kaupa sér lönd, eða reka atvinnu. Aðrar fréttir segja, að siðustu daga hafi Gyðingar pantað og með- tekið svo mikið af skammbyssum, að bæði karlar og konur geti borið á sér þessi vopn. Þeir sem ekki höfðu efni á að kaupa vopn þessi sjálfir, hafa fengið þau gefins frá veindarnefndum þeim, sem Gyðing- ar hafa sett á Rússlandi. Enn fremur hafa þeir gert sérstaka ráðstöfun til þess, að þeir geti látið hverjir aðra vita, ef á þá verði ráðist á einum eða öðrum stað í ríkinu. —Blaðið Times í Lundúnum hefir núlega spáð því, og fært rök til, að Winnipegborg verði höfuðborg í Canada innan alllítils, tíma. —Skógaeldar miklir eru í kring um Mðntreal, og stendur borginni hætta af þeim. Miklar skemdir eru orðnar þar á bændabýlum og lönd um í nágrenninu. Skógar og timb- ur og lönd eyðilögð I stórum stíl. Sömuleiðis standa ógnir af þessum eldum í Quebecfylki og víða á aust urströndinni. Búar eru farnir að flytja sig til Mexico. Tvær nafnkendar familíur konju til New York í vikunni sem leið á ferð Þangað. —Lieutenant E. H. Shackel, sem er í brezka hernum, er nýkominn til New York úr suðurskauts leiðangri. Hann kom til Nýja Sjálands fyrir nokltru síðan, og urðu þeir að skilja við skip sitt, Discovery, við fjalls- ræturnar á Erebus, sem er stórt eld fja.ll alllangt suður í suðurhafinu. Hann segir þannig frá í fáum orð- um: „Allir muna að við lögðura af stað frá Englandi 6. Ágúst 1901. Skip- stjóri var Mr. Scott, Dr. Wilson, ég sjálfur og 44 aðrir skipverjar. Þeg- ar við komum á 77. st. 49 mín. suð- urbr. fraus skip okkar inni í ísreki, og situr þar fast enn þá. Við gerð um okkur von um að það mundi losna næsta sumar(í Desember 1901 og Janúar 1902), en sú von brást. Það getur skeð að það hafi losnað í Desember 1902 eða Janúar 1903, hafi það sumar verið heitara en þá vcum þar. Við skildum við skipið undir Ere- bus eldfjallinu Hæsti tindur þess er 12,500 fet yfir sjávarfiöt, og er ákaflega mikið eldfjall. Við Scott og Dr. Wilson lögðum af stað frá skipinu 2. Nóvember 1902. Við höfðum 22 hunda og sleða. Við urðum stundum sjálfir að draga sleð ana 3 mílur og sækja þann seinni þegar við vorum búnir að koma þeim fyrri þangað sem færi batnaði. Með þessu móti komumst við 270 mílum sunnar, en skipið var. Það var sólskin að heita mátti nótt og dag. Við iuistum hundana hvern á fætur öðrum, og voru þeir allir dauð ir áður en við komum til baka aftur. Við vorum burtu frá skipinu í 90 daga, og komum aftur 3, Febrúar. Uppgötvanir og rannsóknir okkar eru ekki mikilsvirði, og heldur letj andi en hvetjandi fyrir menn að fara í slíkar ferðir. Við urðum yar ir við 'ógrynni af dýrum og fuglum á ströndinni. En upp í landinu urðum við ekki varir við dýralíf af nokkru tægi. Við höfðum I förinni loftbát, og stigum yið í honum 7oO fet f loft upp’þaDn 4. Febrúar f fyrra Við vorum þá staddir á dálitlum vogi, sem borgarís girti fyrir mynn- ið á. Lengst í austrisáum við land, sem euginn hefir þekt áður. Okkur langar til að mega skýra það til heiðurs konungi vorum, og nefna það King Edwards land, og það ger- um við, ef hann gefur okkur sam- þykki sitt til þeSs. ís'-astirnar og flákarnir eru svo stórfeld þar syðra, að óirögulegt er að koina þar við nokkru skipi. ísinn var eins langt suður og við gátum séð. Rastiinar eru 50—280 feta háar ofansjávar. - Stjórnin í British Columbia veltist frá \öldum út úr landasölu- málum, sera hafin var rannsókn í um daginn. Nýtt láðaneyti hefir verið inyndað og kosningar fara fram bráðlega, þó líklega ekki fyrr en í September. —Svarti Joe hefir sagt af sér leið- togaembættinu í Liberalflokknum. Gerði hann það um leið og stjórnin féll. Ekki þykjast menn geta áttað sigá hvað það þýði. En stjórnin, sem nú er við völdin, er Conserva- tívar, og hefir það má ske örvað gamla Martin til að vera á lausum kjala, ef eitthvað kynni að bera í vejði. — Capt. Sullivan, sem hvarf þegar yfirheyrslan byrjaði í Gamey mál- inu, er loksins komin út úr stjórnar- felunum, og mátti til með að mæta fyrir rétti 3. þ. m. Það er komið upp, að hann hafi að nafninu keypt land af stjórninni, ekruna fyiir fáein cent, en svo seldi hann landið sjálfur með vanalegu verði, til þeirra, sem kaupa vildu. Sro bauð hann þeim, sem vildu breyta stefnu og styikja Eossstjórnina í þinginu, að koma í félag við sig og njóta hagnaðar af landsölunni. Hann gat sem sé fengið eins mikið land frá stjórninni undirþessu fyrirkomulagí til að gæða þeim, sem vildu gerast fylgimenn stjórnarinnar. Hann hef- ir veriðeinn af æðstu mönnum stj. ar í hinum svonefnda atkvæða- maskínu flokki, og hennar hægri hönd í atkvæða svívirðingum og mútumálum. Við ytirneyrsluna sór hann ranga eiða og laug tak- markalaust, en varð flæktur í sínu eigin neti, og er enn ekki hægt að sjá hvernig fer með hans vitnis- burð. —Hjónaskilnaðínum fer ,stöðugt fjölgandi á Englandi. Hafa þeir aldrei verið eins margir og siðasta ár. Þykir til vandræða horfa með það mál. —Systur tvær, sem fæddust og voru grónar saman, og hétu Radica og Doodica, voru í sýningarfiokki Barnums hins víðfræga sýningar- manns um langan tíma. Doodica dó fyrir nokkru síðan, en Radica lifir. Dr. Boyen hefir nú að fullu leyst það vandaverk af hendi. að skéra þær í sundur, og græða ^Ra- dieu, sem líka var orðin berklasjúk, sem systir hennar. Radica er talin að hafa náð sinni vanalegu heilsu aftur. Hún varð óh íggandi og úr- vinda þegar Doodica dó, en hefir nú náð gleði aftur. Hún ætlar að ganga í klaustur, það sem eftirer ævinnar, og ætla systurnar að ann- ast hana og vernda. —Mælt er að Edward konungur vilji skipa hertogann af Connaugh eftirmann Roberts lávarðar, þegar þar að kemur að þess þarf með. —Sú hraðfregn kom til Lundúna 1. Þ. m. og hingað vestur þann 5.,að eimtrollari hefði komið til Kirkwall á O. kneyjum og segði þær fréttir, að eldsumbrot mikil hefðu verið við ísland 29. Maí. Skipshöfnin var að fiska æðilangt undan landi, en sjór- inn á 30 mílna svæði varð eins og sápufroða, segir skip3tjórinn. Því segir hann að eldsumbrot hafi vald ið. —Blaðið The Chicago Daily Bul- letin verður bráðum skrifað og gef- ið út af konum. Þær ætla að rita alt sem I því stendur af hverju tægi sem það verður. Bæði ritstj,, freng- ritar og þýðarar eru kvenfólk. Það verður fyrsta blað í heimi, er kven- fólk annast um útgáfu á að öllu leyti. Brenna mikil varð aftur í Otta- wa 4. þ. m. og olli afar tjóni. Talið áreiðanlegt að brennivargar hafi oll- að eldinum. —Stórkostlegar brennur og eldar í Maine ríkinu. Það eru skógareldar á við og dreif um alt ríkið. 50 eldar sáust uppi í einu. Eigna- tjón feiknamikið. Það eina sem kæfir þessa elda er langvarandi steypirigning, sem rennbleytir jarð veginn ogskógana. Þann 4, þ. m. kom sú fregn fr Lisabon, að 30,000 verkamenn hafi hafið verkfall í Oporto í Portugal, og væntanlega geri öll verkafélög í rík- inu verkfall. —í vikunni setn leið brann korn- hlaða í Crystal City, Man. I henni voru 8000 bush. af hveiti, sem alt brann. Byggingin var gömul og óvátrygð. — Brakúnafélagið Ames & Co. í Montreal varð gialdþrota nýlega. Það var stærsta félag af þeirri teg- und hér í Canada. Margir hluthaf- ar eru hræddir utn stórfelt eignatap, en forseti félagsins 3taðhæfir, að það verði ekki tilfinnanlegt. —Sambandsstjórniu hefir nú 100 menn að vinnaennþá við manntals- skýrslurnar, Hún eyddi síðastliðið fjárhagsár §120,000 í þetta, og fóðr- aði á því marga af gæðingum og vildarmönnum sínum. Nú læst hún ætla að fækka þeim ofan í 20 mann, en áætlar að kostnaðurinn við hald þeirra verði §30000. —Yfir 100 menu drukknuðu ná- lægt Marselli 7. þ. m. 2 farþegja- skip rákost á og sökk annað undir eins, og fórust rúmir 100 farþegjar og mest af skip .höfninni. -—Eins og minst hefir verið á í blaði þessu, bað stjórnin í Norðvest- urlandinu sambandsstjórnina um pen.ngastyrk um daginn, til að borga áfallnar skuldir Norðvestur- landsins með. Það fékk síðustu fjár hagsár $457,900. Stjórnin vildi fá $500,000 í viðbót við þenna styrk. Sjóðþuið hennar er nú um $250,000 síðasta ár. Það er skylda sambands- stjórnarinnar að verða vel við til- mælum stjórnarinnar í Norðvestur- landinu, því hún hefir orðið fyrir feikilegum kostnaði við skólahald og annað sem flotið hetir af hinum afarmikla innflutningi þangað, sem einlægt heldur áfram. Mælt er að ráðaneytið hafi komið sér saman um, að láta stjórnina fá þessa upphæð, sem hún heflr óskað eftir. Svo er hún að bollaleggja með sjálfri sér, hvort hún eigi að láta það sein hjálp- artíllag, eða sem lán frá sambands- stjóminni, sem hægt sé að heimta rentur og afborganir af, og endur- borgu.n, ef að Norðvesturlandið yrði sjálfstætt fylki. —í Maímánuði síðastlíðnum komu 14,626 innflytjendur til Canada, en í samamánuði í fyrra 9.925. Innfiutn- ingur er nú miklu meiri að sínu leyti, en í Bandaríkin. ISLAND. Eftir Austra. Seyðislirði, 15. Maí 1903. Veðráttan farin að hlýna og snjór er tekinn talsvert af láglendi. Vatnsleiðslan. Nú er farið að hlaða upp innan safnbrunninn, sem grafinn var i vetur, og byrjað á skurðagrettri fyrir vatnspípurnar sunnan meginn árinnar. Vatns- leiðslupípurnar koma nú með Agli frá Englandi. Að vegabót er farið að vinna hér efst áöldunni. Spitalaforstöðuna hefir bæjar- stjórnín veitt frú Kristjönu, konu Karls verzlunarmanns Jónssonar. Nýja verzlun hefir herra Grím- ur Laxdal sett á stofn á Vopnafirði. Danir hafa veitt 100,000 kr. til þess í fjárlögunum, að gera í sumar út skip hingað til þess að rannsaka fiskigöngur og fiskimíðin kringum ís land og verða margir vísindamenn með skipinu, er heitir „Thor”. Er þetta hið þarfasta fyrirtæki og lík- legf til að verða heillaríkt fyrir fiskiveiðar landsins. Eftir Fjallkonunni. Reykjavlk, 28. Apríl 1903. Samskotin til þeirra, er biðu skaða við Glasgow brunann ganga vel; komnar inn frekar 1250 krónur. „Leikfélag prentara” hettr leikið til ágóða fyrir þá; sömul. hélt Stúdenta félagið samsöng I Good-Templara- húsinu á sunnudagskveldið er var. Einnig ráðgerir Leikfélag Reykja- vlkur að leika tvö kveld og láta á- góðann renna I sama sjóð. Eru öli líkindi til, að með þessum hætti satnist fé nokkuð; betur að svo yrði. Nýdáinn er bóndinn Þórður Torfason, gamall útvegsbóndi í Revkjavík. Hann var korainn á nhæðisaldur og hafði verið stakur dugnaðarmaður, vinsæll og velmet- inn af öllum. 5. Maí. Veðrátta síðustu viku hin ákjósanlegastu. hér sunnanlands. Oftast logn og sólskin; andkaldur samt oft, einkum kveld og morgna. Afiabrögð hafa á vetrarvertíð- irini verið óvanalega góð með sunn aDverðum Faxaflóa. Er mælt, að komnir séu víða suður með 3—5 hundra hlutir af þorski. Fiskur hetir gengið upp I landsteina og mer.n hlaðið ýmist einu sinni eða tvisvar sinnuin á dag framundan bæjardyrum sínum. Til foma var talað um gullkistu Sunnanmanna undir Vogastapa. En Jmeð þorska- netunum gekk sú gullkista til þurð- ar. hvað svo sem olli. En nú hafa menn aftur mokað þar upp þorskin- um. Fiskigangan byrjaði syðst I fióanum og hefir smáfært sig inn með löndura. Ernúkominn góður afli á Selterninga- og Akurnesinga- miðum. Bóndinn I Bollagörðum á Seltjarnarnesi sökkhlóð af þorski á föstuduginn. Hrognkelsa-afli er góður hjá þeim, er þau afiabrögð stunda. Síðan þilskipaútgerðin fór I vöxt, hafa róðrarskip mjög fækkað hér innra. Mannfátt er og mjög til ráða, þar sem allur þorri skipgengra manna er á þilskipunum. Má þvl búast við að minna gagn verði en ellaað ttskignægðinni. Hafís segja nýustu fréttir við Horn. Kosinn piestur að Tjörn á Vatns- nesi séra R. Magnús Jónsson að Hort á Skagaströnd með öllum greiddum atkvæðum. Hið almenna stýrlmannapróf var haldíð 3. 4. og 6.-—7. Apríl. Gengu '29 lærisveinar -undir prófið. Stórtíðindum fyrir ísland mun fregn sú geta sætt, sem nú kom með Ceres. Segir hún, að I Dan- inörku sé myndað félag til þess að koma á loftritun Maiconis milli ís- lands og Skotlands. Eru einna fremstir þar I flokki Heide banka- stjóri og Alex. Warburg, sem ís- lendingum er kunnur orðinn af stofnun íslands banka. Þetta félng ætlar aftur að semja við ríkisþingið og aiþingi Islendinga. Má að llk- indum vænta þess, að á næsta sumri geti orðið ljós úr þessari glætu. 12. Jlaí. Séra Benedikt Eirlksson iPPgjafaprestur I Saurbæ I Efri- Holtaþingum andaðist 4. þ. m. Séra Benedikt var elztur allra nú- lifandi lærðra manna hér á landi og allra andlegrar stéttar manna um alt Danaveldi, Varð hann 96 ára gam- all og 6 mánaða, 8 dögum fátt 1. Vitavarðarsýslan á Reykjanesi 2. þ. m. veitt Jóni Helgasyni, vita- verði á Garðskaga. 6. þ. m. lézt séra Jósef lvr. Hjörleifsson á Brelðabólsstað á Skógarströnd, 37 ára að aldri. Hann var sonur Hjörleifs prófasts Einars- sonar á Undornfelli. PIANOS os, ORGANS. Ileliitíf.inan & Co. Píiiiiom.-Kell Orgel. Vór seljutn með máoa',arafbor);unarskilmálnm. J. J. H MeLEAN & CO. LTD. 530 MAIN St. WINNIPEG. ew York [jfe | nsurance JOHN A. McCALL, presidext. Infsábyrgðir í gildi, 31. Des. 1902. I 5ÖO niillionir llollarm. 700,000 gjaldendur, sem eru félagið eiga það og njóta als gróða. 145 þús. manna gengu í félagiðá árinu 1902 með 302 million doll. Abyrgð. Það eru 40 milliónir meíra en vðxtur fél 1901. Gildandi ábyrgðir hafa aukist A síðastl. ári um 1S8 mill. Dollars. Á sama ári borgaði félagið 5000 dánarkröfur—yfir 15 mill. Doll,— og þess utan til lifandi neðlima 14J mill. Doll.. og ennfremur var #4,750.000 af gróða skift upp milli nreðlima. sein er #800.000 meira en árið 1901. Sömuleiðis lánaði féiagið 27.(X)0 meðlímum $S 750,000 á ábyrgðir þeirra, með 5 per cent rentu og án annars kostnaðar. C. Olafson, .1.14, Morgan, Mrnager, AGENT. GRAIN EXCHANGE BUILDING, "W' IFTNriPEG. Islenzku próíið á Manitoba- háskólanum í vor. Lesendum Hkr. mun þykja all- fróðlegt að sjá hið fyrsta prófbréf á ísleozku, er Manitoba-háskólinri hef- ir gefið út. Prófbréf þetta er samið af séra Fr. •). Bergmann og er ætlað fyrra hluta undirbúningsdeildarinn- ar við háskólann. Spurningarnar eru sem fylgir. Matiiculation. Part I- Icelandic Grammar and Authors. 1. (a) Sýnið fleirtölu þessara orða: önd, tönn, örk, fló, töng, glóð. (b) Sýnið þátíð og hluttaksorð fortíðar þessara sagna: ráða, rjúfa, dylja, tjá, yrkja. 2. (a) Segið I hvað maika llokka íslenzknm sögnuum er skift og gerið grein fyrir einkennum hvers um sig. (b) Nefnið kennimyndir þess- ara sterku sagna: sverfa, vefa, aka, hníga, lúka, auka. (c) Myndið setningu með veikri sögn I þátíð. 3. Ritið upp aftur og leiðréttið þessi orð og orðatiltæki; um fagran himinn, til læknisins, þetta kyn, um Sverri, þau svstkinin, til föð- urs síns, um Jmóðir sína, til oss, um heiðin mann. (a) Skýrið hugsun skáldsins. Gerið grein fyrir þýðingu þeirra orða, er með skáletri standa. Skýrið sérstaklegi hugsunina I tveim siðustu hondingunum. Til- greinið fyrirsögn kvæðisins og nafn höfundarins. (b) Bendið á allar líkingarna í erindi þessu og segið I stuttu máli álit yðar um, hvað eðlilegar þær eru: 7. Það dísir grétu. að gumar þeir, er glóðu af hreysti og óði, semungir fjalla-ernir tveir I eigin hjuggust btóði; svo grimmlegt strfð hlauzt örnum af þeim ítra Borgar-svani, að loks þeir börðust handan haf, þar hvor varð annars bani. Liðið erindi þetta sundur til að greina aðalsetningarnnr frá hinum ósjálfstæðu og skýra samband þeirra. Bendið á þau sérstöku orð, er ósjálf- stæðu setningarnar skýra. Gerið grein fyrir fólkinu, sem átt er við, og nefnið það. Nefnið kvæðið, sem þetta er tekið úr, og tilgreinið nafn höfundarins og fæðingarár. 4. Þýðið á íslenzku: — I put a New Testament among your books for the very same reasons and with tha very same hopes that made me write an easy account of it for you Jwhen you were a little child, because it is the best book that ever was, or will be, known | in the world; and because it teaches you the best lessons by which any human creature who tries to be truthful and faithful to duty can possibiy be guided. 5. í grafar nöpru nausti þó nú hvolfi skipin kyr, aftur mun þeim á annan sjó eilífðar fleyta byr Snúið þessari stöku á óbundið mál. Bendið á frumlag, andlag og sagnorð. Tilgreinið nafn höfund arins, fæðingarár hans og dánarár, 6. Gegn um Iffið gengur kvöl hins eina gjörvöll jarðar börnin kveina; slfelt glymur sorgleg dauðans u n n. Óðarslögin óð og h ö f u g titra, ú r g a r döggvar blóðgum ljóma glitra, fölnar rós við djúpan d r e y r a- br un n. Áfram þeytir ö 1 d í reginmóði, altaf gengur tímans möndlinær, af sér hún I rauðu banablóði böl og sárar eymdir þvær, LUNDAR, 15. MAI1903. Henaritstj. Hkr. Eg sendi þér þessar línnr I þeim tilgang', að koma I veg fyrir rangar Imyndanir um upptök elds þess, er orsakaði bruna á fjósum mínum og gripum þann 7. Maí, um ki 8,15 að kveldinu. Fjósið sem brann var á breidd tæp 20 fet og lengd 60 fet. en I því voru 4 framdyr og 3 bak- dyr, og inni voru 2 þverveggir, plastraðir, með líku millibili, en að öðru levti var fjósið plastrað og hvft- þvegið utan og innan; bygt næstliðið sumar.—I fjósinu brunnu 17 kýr, 12 kálfar og þrevett naut; af þessum kúm voru 6 óbornar, en 11 bornar. Af þessari upphæð átti Magnús Ól- afssan 2 kýr bornar og 5 kál fa; líka brunnu “harnes3‘‘ af 3 hefetum. Alt bendir á að það hsfi verið kveikt I austustu og vestustu framdyrum fjóssins, sem höfðu verið opnaðar, en sem við gengum frá luktum hér um bil 15 til 20 mlnútum áður en elds- ins varð vart- Eg fors' ara mig og alt heimil- isfólk mitt, fyrir að hafa orsakað eld inn. Hör heflr orðið vart við flakk- ara mjög grunsamlega, og hefir einn náðst allareiðu. Hér hafa menn mjög heiðarlega og mér óverðskuldað hlaupið undir bagga að bera skaðann með mér, með fjárframlögum. Þeirra verður getið síðar. Með vinsemd og virðing. Pétur Árnascn.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.