Heimskringla - 11.06.1903, Síða 3

Heimskringla - 11.06.1903, Síða 3
HEIMSKRINGLA 11. JÚNÍ 1903. hækki landið í verði. Þar er víða svo til hagað, að þar væri óbyggi legt, vegna þess, að nýbyggjarnir gætu ekki komið afuiðum frá sér, nema að brautin sé komin á undan bygðinni. Brautirnar eru bygðar handa fólkinu, en fölk ekki útvegað handa brautanum. Þær hafa ýms hlunnindi handa fólki, sem varla er hægt að telja upp í fáum orðum. Börn fá frftt far að og frá skólum, þar sem brautir er hægt að nota. Þegar stór vandræði koma fyrir, svo sem bæir hrynja, brenna, eða eitt. hvað sérstakt vill til svo fólk er í vanda statt, þá sendir stjórnin tatar- laust með alla þá hjálp sem fáanleg er, og þeim sem fyrir tjóninu verða er ekki færður til reiknings sá lesta- gangur. Fargjald er nú alstaðar 2c. á míl una, og með passa til baka fyrir lc. á míluna til allra staða með fram meginbrautum, með viku frest. Það þarf enga peninga að taka fram yfir tilkostnað, því þar standa engir auðmenn með vasana á bak við til að safna almennings peningum í. Það sama er að segja um fi egnþræði og talþræði. Það er hægt að senda 12 orð fyrir 12c. hvert sem maður vill um ríkið. V'iðvíkjandi verföllum og öðrum vinnuþrætum, þá er gerðanefnd á kveðin með lögum til að jafna þess háttar. En nú á seinustu árum heyrist ekki slfkt koma fyrir. Gjörðanefndin í slíkum málum «ru 3 menn. Verkamannafélögin velja einn, verkveitendur annan, og aá þriðji er dómari úr landsyfirrétt- inum. Dómþingið skal háð þar sem verkið er unnið, sem deilan rís út af, hvar svo sem það er í landinu. Vitnaleiðsla og skilríki, sem til eru í málinu, skulu framlögð fyrir gjörð arnefndina, og úrskurður hennar er æðsti dómur í málinu, og ekki hægt að skjóta honum til laga né réttar- halds. Þetta fyrirkomulag hefir gef- ist svo vel, að verkföll eru dottin úr sögunni og aldrei heyrist nú talað um að menn vilji taka þau upp aftur. New South Wales, er næsta rlki við Nýja Sjáland, og hefir nú eftir gaumgæfilega yfirvegun tekið upp sömu stefnu í járnbrautarmál- um, Þegar ég mintist á þetta i San Francisco fyrir nokkrum dögum, þá mótmæltu nokkrir þvf, og sögðu að verkamennirnir f New South Wales, vildu fegnir losna við slíkt fyrir- komulag, sem allra íyrst. Þessu fyrirkomulagi þar hefði verið þröngvað upp á almenning. Menn verða að kafa það hugfast í þessu sambandi, að það er ekkert annað fólk til á Nýja Sjálandi en verkafólk. Jafnvel forsætisráðherrann, Hon. Richard Seddon, sem er búinn að halda þeirri stöðu lengur en nokkur annar maður í heimi (f 15 ár sam- .fleytt), var námamaður fyrst á tfð. Hann hefir það álit og tiltrú þann dag í dag, enda eiu fáir á móti hon- um, sem mikið kveður að. Það sem við kemur atkvæðisrétti kvenna á Nýja Sjálandi, þá er fyrst að geta þess, að það eru 10 ár síðan að þær fengu þau réttindi. Allir þeir illu spádómar, sem spáð var fyrirfram um hluttöku þeirra f opin- berum málum hafa látið sér til skammar verða, og hafa að engu leyti uppfylst. í fyrsta skiíti sem konur greiddu atkvæði við kosning- ar, þá komust engir opinberir mis- endismenn að í þinginu. Síðan hefir stjórnmenska komist á hærra stig og veglegra en áður. Nú sækja jafnaðarlegast pólitiska fundi jafn- margt kvenfólk, sem karlmenn, og taka þær eins mikin áhuga í almenn- ingsmálum sem þeir. Nýja Sjálands- menn eru stiltir og kurteisir á þeim fundum, og alyeg það sama er með kvenfólkið. Þær hlusta á og yiir vega ástæður og stefnur f opinberum málum rétt eins og karlmenn gera. Þær tala um stjórnmál í heimahús- um með ró og stillingu, sem karl. menn, og hafa yfir höfuð góð áhrif á opinber mál. Þingið í Ástralíu hefir tekið sér þissi kvenréttindi á Nýja Sjálandi til fyrirmyndar, og hefir samið lög, sem veita kvenfólki rétt- indi til að greiða atkvæði f öllum kosningum. Um vínsölumálið þar er það að segja, að allir sem kosningarétt hafa mega greiða atkvæði um það. Og atkvæði um það eru tekin einu sinni á hverjum þremur árum, um leið og þingkosningar fara fram, Á at- kvæðaseðlunum standa þessi orð: a) “Eg greiði atkvæði með því að núverandi vínsala tala, haldi áfram óskert”. b) “Eg greiði atkvæði með því að talan í þessu héraði sé minknð”. d) “Eg greiði atkvæði með því, að þessu héraði sé ekki veitt vín- sölulevfi”. Allir kjósendur geta greitt atkv. með einhverri einni af þessum greinum. Bindindismenn biðja kjósendur einn og alla að merkja ekki við fyrstu greinina. Meiri hluti atkvæða takmaikar vínsölu, en til vínbannslaga þarf þrjá flmtu hluta allra atkvæða. í Nóvember í fyrra fóru fram kosningar, þá greiddu að eins 6 kjósendur atkvæði með al- gerðu vínsölubanni í rikinu, en fjórtán atkvæði voru með fækkandi vínsöluleyfum; þetta þyddi það, að nefnd vínsöluleyfanna, var kosin a f a 1 m e n n i n g i, til að halda áfram óskeitum veitingum á vín- sölulej'fum. Þó getur hún sjálf minkað leyfin um 25 per cent ef henni sýnist. í elstu héruðum í ríkinu fær fólk, sem er 65 ára gamalt ellistyrk, sem nemur $2 um hverja viku. K. Ásg. Benediktsson. FjallgÖngur, Á Fjallgöngulandi í Fomeskjudal, þar fult var af skottum og draugum; f björgunum álfanna ýmislegt tal, og útburðavælið f haugum. Þar drengur einn fæddist f fjall- anna sal; af fólki sá talinn var heppinn, á Fjallgöngulandi f Forneskjudal, að fœðast, og eiga þar hreppinn. I æskunni lifði hann við andlegan sk@rt á öllu þvf fagra og góða; þar heyrðist ei annað en gamal- dags gort, og göfguð hver peningasjóða. En fagur var dalurinn sílgrænn að, sjá á sólkystuni vormorgni frfðum með túnin og engin og blómgresin blá, sem blikuðu’ í daggtárum þýðum. Þar brunandi áin kvað blfðfögur ljóð. I bláheiði söngfugla kliður. í hlfðunum undi bezt stormþjakað stóð og stigðarlaus búsmalinn fríður. En hljóðöldur bárust um stonn- barða storð frá stöðum f fjarlægum heimi. Hann teigaði þyrstur hvert einasta orð úr andanna dulfagra geimi Því mannssálin unga var áköf og þyrst af yndisleik draumanna vakin, og þama hann byrjaði fjallgöngu fyrst sva fátækur, hryggur og nakinn. Hann margan sá lúinn og bogið með bak og bitinn af eitruðum kjöftum; og framsókn gekk öfugt og afur á bak f ánauðar þrælsnúnum höftum. Þvf reizlan hét vani, og lóð voru lök og létt alt, sem n/tt var, á hana; þvf bjóst hann til glírnu með garp- mannleg tök, að gegnbreyta eldgömlum vana. Og litskreyttar myndir, með lífsvon og þrótt, af ljómandi deginum blíða, hann virðum þar sýndi, er válega nótt og vanans rót, burt skyldi sníða. Það gengur alt ramskakt, hver ein- asti er hér annan, að rýja og svíkja, en skyldu þá allir, sem brœðrun. um ber f bróðurhug jafnfrjálsir rfkja. Þá ys varð f mannkinda háreistum hring, og hásum róm útburðir vældu, og skottur sér ílfrandi óku í kring, og allir sig brettu og skældu. ^mmmmmmmmwmmmmmmmmmmmmmmmK | Islenzki/ frumbyggjar | vita að þe'm vegnar betur hér en á Kamla lai.din». Þeir komast strax að því að það er meiii hagnaður að kaupa frumbyggjara- kaffi brent en óbrent. Þar er hreint og rusl- laust og án steina. Biðjið kaupmennina um það það or miklu betra en óbi ent kaffi.— íslendingar eiga hór að stríða við örðug- leika. Einn þeirra er að óbrent kaffi tapar einuri) fimta við brensluna. Hygnir menn kaupa pioneer COI'fei: BREN.T, hreint, ó- rnengað. Spyrjið eftir því, skrifið eftir því ásamt enn þá betra og ljúffengara blue RIBBOX COFFEE beitakaffií Canada Skrifið og finnið: ÍB Blue Ribbon Mfg . Co. Winnipeg. ^ Þcir glentu upp augun mcð grenj- andi raus, sem glefsandi helvítis naðra; þeir æddu og skóku sinn heimsk- unnar haus og heiftmálgutungunni blaðra: Þú frásinnu úrhrak og ættmanna- skömm, þér ætti til hundanna, að fleygja; við skulum það sýna þér raunin er römm, og réttur þinn að eins að þegja. Þó niikið þeir hömuðust, þreklegir þá og þrútnaði offyltra kviður, þeir frelsisins víntrjám varnað ei fá það var nú þar gróðursett niður. Og þsngið var rofið, og kaldari kjör nú kreftu að högum, en áður, en marga þó átti’ hann þar fjall- göngu för þó fannskefldi stormurinn bráður. En ei lét hann svífast né hrekjast að liót þó haglélin æddxi á móti; og ekki þó geltand glifsuðu’ í fót oft, greyhundar magnaðir blóti. En smámsaman færðist nú gróður á grein, sem grænkaði’ veðrinu hlýja; og breyttust í lffsvökva margsollin mein og myrkur í daggeisla nýja. Þann árgeislaljóma sá öldungur þar, sem áður var heimskingi talinn. Og siðurinn nýi hann seinna þó yar þar samþyktur hvervetna um dal- inn. Um garð voru liðnar þá aldir og ár. og ófrelsið breyst hafði’ á svipinn, þar hvfldi nú maður í moldinni nár, af mannhundum særður og klipinn. En tréð óðum þroskast og breiðir sfn blóm í blíðvirði og stormunum hörðu, und’ greinum þess syngur alt sæt- asta róm, um sólskin og friðinn á jörðu. Hver særður og lúinn þar finna mun frið, —hið forna altbreytt er nú þannin. Hver kraminn, sem áður var kann- ast það við það kent er við jafnaðarmanninn. I hætut hver lagði þó fyrstur sitt fjör? lians frumnafn er gleymt fyrir löngu, hann endaði lífið f fjallgöngu för, í frosti og veðrunum ströngu. H. Þ. Gamey-málið Royal Commission hefir skilað af sér nefndarstarfi í Gamey-mál- inu. Hún fríkennir Hon. Stratton og alia stjórnina af öllu saknæmu, en áfellir Gamey, og málar hann svörum litum. En hvernig sem litið er á málið, og hvaða tilgang sem Gamey hefir haft upphaflega, þá var það æðsta skylda nefndar- innar að byggja álit sitt á þvi, sem er og óhrekjanlega á sér stað f stjórnmenskuathöfnum, en snúast ekki um getgátur og áætlaðan til- gang eins manns. Það sannar bæði þessi málsrannsókn og ótal fleiri, að stjórnarfarið f Oritario- fylki er veiðibrellu og múlumál. Þess vegna kemur þetta álit og um- sögn Royal Commission eins og sólskin og gróðrarskúr upp úr kafaldsbyl, með 50 stiga frosti. NefndarAlitið er ekkert annað en ldægilegur vitnisburður frá vinnu- kind til liúsbónda. Nefndin geng-! ur jafnvel svo langt í þessu áliti sfnu að nefna athafnir Mr. Gamey i skopnafni, og er slíkt athæfi í alla staði ósamboðið jafn háu réttar-! haldi, þar sem lieiðarlegustu menn \ ríkisins eiga að sitja og starfa í nafni !aga oglandsréttinda. Nefnd-! in heflr enfremur getgátur um það, í hvenær andinn hafi skotið þvf að Gamey fyrst, að ljóstra þessum ó- sannindum upp um einstaka menn f stjórninui. í fáum orðuin sagt er álit nefnd- j arinnar f hæsta máta ógeðfelt, eftir þvf sem það hefir enn þá birst fyrir almenningssjónum, og f fylsta máta mótmælanlegt. Þó þvf sé nú ekki haldið fram að Hon. Stratton og stjömin sé sek, og Gamey sé hér um bil játaður eins svartur og nefnin málar hann, þá er enginn efi á því, að þessi skýrsla nefndar- innar nægir að engu leyti til þess, að þvo óorðið, sem komið er á stjórnina af henni, að nokkm leyti. Miklu fremur eykur það orðróm þann á henni, og dregur upp svart- ari ský á pólitiska hemninum f Ontario fylki, en þau hafa verið áður, ef við sortan er unt að bœta. Og þvf stærri verður liimningin, sem glæpirnir eru lengur duldir, þegar hún kemur. Þegar lög og landsréttindi eru einskisvirt og troðin undir fótum f einu eða öðru rfki, þá er það að eins tfmaspurs- j mál, hve nær fólkið og kringum- í stæðurnar taka dómsvaldið f sfnar j liendur. En það skeður ætfð fyrr j eða síðar. Stúlka, sem svaf í 20 ár. Marguerita Boyenval vaknaði j 26. f. m. eftir að hafa sofið í 20 ár., og dó tæpum 2 sólarhringum síðar. j Svefn þessarar stúlku er einn sá merkilegasti viðburður, sem læknis- vísindin enn hafa að fást við á þess - j Um tímum. Pún féll í svefn 21. 1 Maf 1883, litlu eftir barnsburð. Barnið dó strax, og féll grunur á j hana, jað hún hefði fyrirfarið þyf, svo lögreglan hafði sterkar gætur á henni og ætlaði að fanga hana þeg ar hún væri orðin frísk og heilbrigð. j Hún var staðin af sæng fyrir fáum dögum og var að hjálpa konn til að þvotta. Alt í einu hrópaði konan: j “Þeir koma að taka þig”. Hún féll í ómegin, og raknaði við með veik- um burðum, en komst ekkiáfætur. Eftir 2 daga, frá þeim viðburði, sofnaði hún, og hefir sofið síðan, eins og sagt er frá hér að framan. Fyrstu 2 mánuðina eftir að hún féll ísvefn inn, leið hún mikið af veikindum, sem stöfuðu af ofhræðslu, En eftir það svaf hún eðlilegum svefni, eins langt og séð varð, að öðru leyti en því, að hún hafði tannagnistur og drætti í andliti, Auðvitað þurru henni hold og kraftar. Læknar stunduðu hana margir, en gáfn loks upp alla von að geta vakið hana. Hún virtist alveg meðvitundarlaus um sig, þar til fyrir 5 máriuðum, að ■ lækriir sá sem stundaði hana þóttist sjá einkenni til þess, að meðvitund- in væri að vakna hjá henni. Hún opnaði augun þriðjudaginn 26. f. m. en þegar hún fann hendi læknisius, mæ'ti hún í veikum rómi: “Þú meiðir mig”. Síðan svaraði hún spurningum hans, að eins með já eða nei, en önnur orð mun hún ekki hafa getað mælt. Það var auðfundið, að hún þekti ekki fólk sitt. Hún hélt móður sína vera systnr sína. Aðal- endurminningar hennar voru um um þann tíma, sem hún vann á syk- SÆLGÆTISLEGA EFNIS- GODUR OG ILMSCETUR The T. L. “Cigar” Það er vinsæl tegund, sem heflr áunnið sér hylli og vináttu vegna verðskuldaða eiginleika. Þús- undir reykja nú þessa ágætu vindla. j REYKIÐ ÞÉR'Ta? í WESTERN CIGAR FACTORY Tho». Iice, eigandi. ’WHsTIijriPEG. HANITOBA. Kynnið yður kosti þess áðUr en þér ákveðið að taka yður bólfestu snnarstaðar. íbúatalan f Manitoba er nú.............................. 275,000 Tala bænda í Manitoba er................................ 41,000 Hveitiuppskeran í Manitoba 1889 var bushels............. 7,201,'519 “ “ “ 1894 “ “ .............. 17,172,888 “ ‘ “ 1899 “ “ ..............2'. ,922,280 “ “ " 1902 " “ .............. 53 077.2S7 Als var korcuppskeran 1902^ “ “ ............ 100 052,343 Tala búpenings í Manitoba er nú: Hestar...... .......... 146,591 Nautgripir............. 282,343 Sauðfé................ 86,000 Svín.................. 9 .598 Afurðir af kúabúujn í Macitoba 1902 voru................ <747 608 Tilkostnaður við byggingar bænda í Manitoba 1899 var.... $1,402,300 Framfðrin i Manitoba er auðsæ af fólksfjölguninni, af aukntm afurðum lanisins. af auknum iárnbrautum, af fjölgun skólanna, af va i- andi verzlun, af vexti borga og bæja, og af vaxandi vellíðan almennings. í siðastliðin 20 ár hefir ræktað land aukist úr ekrum........... 60 000 Upp i ekrur..................._. ................................2,500 000 og þó er síðastnefnd tala að eins einn tíundi hluti af ræktanlegu landí i fyikinu . Manitoba er hentugt sræði til aðseturs fyrir innflyténdur, þar er enn þá mesta gnægðaf ágætum ókeypis heimilisréttarlöndum og mörg uppvaxandi blómleg þorp og bæir, þar sem gott er til atvinnu fyrir karla og konur. í Manitoba eru ágætir /rískólarfyrir æskulýðinn. f Manitoba eru mikil og fisksælveiðivötn sem aldrei bregðast. í bæjunum TFinnipeg, Brandon, Selkirk og fleiri bæjum mun nú vera vfir 6,000 íslendingar, og i sjö aðal-nýlendum þeirra i Manitoba, eru rúmlega aðrar 5,000 manna. Þess utan eru i Norðvesturhéruðunum og British Columbia um 2,000 íslendingar. Yfir ÍO mlllionlr ekrur af landi i Haniioba, sem enn þá hafa ekki verið ræktaðar, eru til sðlu, og kosta frá $2.50 til $6.00 hver ekra, eftir gæðum. Þetta land fæst með vægum kaupskilmálum. Þjóðeignarlönd i öllum pörtum fylkisins, og járnbrautarlönd með fram Manitoba og North IFestern járnbrautinni eru til sölu. Skrifið eftir nýustu upplýsingum, kortum o. s. frv. alt ókeypis, tií HON. R. P KOKLIN Minister of Agriculture and Immigration, WINNIPEG, MANITOBA. Eða til: Josiepli B. NknpatNon, innflutninga og landnáms umboðsmaður. arverkstæði.—Hún var fædd reglu- le§;a allan þann tíma, sem hún svaf, á léttmeti, en tennui varð að draga úr henni, til að koma fæðunni ofan í hana. Hún var 22 ára þegar hún sofnoði, en 42 ára þegar hún vakn aði. Hún varorðin holdlaus þegar hún vaknaði, ogdóaf því að vakna. Var það henni ofmikil áreynsla. Móðir hennar sýndi hana í s efn ástandinu, en þó fyrir litla peninga. Bonner & Hartley, Liðgfræðingar og landskjalasemjarar 494 Main St, -- - Winnipeg. K. A. BONNER. T. L. HARTLBT. ‘iillaii-Liiiii’ flytur framvegis íslendinga frá íslandi til Canada og Bandaríkjanna upp á ó dýrasta og bezta máta, eins og hún ávalt hefir gert, og ættu þvi þeír, sem vilja senda frændum og vinum fargjöld til íslands, að snúa sér til hr.H. Bardal i Winnipeg, sem tekur á móti fargjöldum fyrir nefnda línu, og sendir þau upp á tryggasta og bezta máta, kostnaðarlaust fyrir send anda og móttakanda, og gefur þeim sem óska, allar upplýsingar því við- vikjandi. Fari ekki sá sem fargjaldið á að fá. fær sendandi peningana til baka sér að kostnaðai lausu. $3,000.00 = = SKÓR^—_ Thorst. Oddson hefir keypt 3.000.00 virði af skótaui, sem hann selur með stórum af- slætti allan þennan mánuð fyrir peninga, í búð^sinni að 483 Ross Ave. D. W Fleury & Co. UPPBOÐSHALDARAR. a*« SM ITH STKEET, two doors north of Portage Ave. selur og kaupir nýja og gamla hús- muni og aðra hluti. einnig skiftir hús- munum við þá sem þess þu. ‘., Verzlar einnie með lönd, gripi og alskonar vörur. TELEPHONE 1 457. —Oskar eftir viðskiftum Islendinga, OLI SIMONSON MÆLIR MEÐ 8ÍNU NÝJA Skandinavian Hotel 718 Hain Str, Fæði $1.00 á dag, Woodbine Restaurant Stærsta Billiard Hall í Norðvesturlandinu. Tiu Pool-borð,—Alskonar vín og vindlar. I.ennon A Hebb, Eigendur. (Janadiao Pacific J^ailway Jola skemtiferdirnar i Desember. Fram og aftur lœgsta fargjald til allra staða í ONTARIO, QUEBEC og SJOFYLKJANNA. Gildir þrjá mánuði. Við3töðuleyíi veitt þegar komið er austur íyrir FORT WILLIAM. TOURIST og fyrsta pláss SVEFNVAGNAR á hverjum degi. Jola og nyars-farbrefin fram og til baka kosta TVO ÞRIÐJU vanaverðs.—Earbréfln til sölu Des. 21. til 25. og 30.31., og Jan. 1. Gilda til 5. )an., að þeim degi með töldum. Eftir frekari upplýingum snúið yður til næsta umboðsmanns C. P, R. fél. eða skrifið C. E. McPHERSON, Gen. Pass. Agent, WINNIPEG.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.