Heimskringla - 01.10.1903, Qupperneq 1
XVII. WINNIPEG, MANITOBA 1. OKTÓBER 1903. Nr. 51.
PIANOS og ORGANS.
HeliitKiiian A Co. Pianon.--Bell Orgel.
Vér seljum með mánaðarafborgunarskilmálum.
J. J. H- M'LEAN & CO. LTD.
530 MAIN St. WINNIPEG.
ew
York |_ife |
nsurance
JOHN A. McCaLL, president.
Lifsábyrgðir í gildi,31. Des. 1902, 1550 inillionir llollars.
700,000 gjaldendur, sem eru félagið eiga það og njóta als gróða.
145 þús. manna gengu í félagiðá árinu 1902 með 3Ö5Í million doll.
ábyrgð. Það eru 40 milliónir meira en vöxtur fél. 1901.
Gildandi ábyrgðir hafa aukist á síðastl. ári um 188 mill. Dollars.
Á sama ári borgaði félagið 5000 dánarkröfur—yfir 15 mill. Doll,—
og þess utan til lifandi creðlima 14J mill. Doll., og ennfremur var
*4,750,000 af gróða skift upp milli nreðlima. sem er $800,000
meira en árið 1901v Sðmuleiðis lánaði félagið 27,000 meðlimum
$8,750,000 á ábyrgðir þeirra, með 5 per cent rgjitu og án annars
kostnaðar,
C. Olafson, J. «. Horgan. Manager,
AGENT. GRAIN EXCHANGE BUILDING,
W I JST 1SJ“ IPE <3-.
Gestur Pálsson
hálf gefinn.
Nýjir kaupendur að “Heimskringlu”,
sem senda oss $2.50 fyrirfram borgun,
geta fengið vestur-íslenzku útgáfuna af
ritverkum Gests sál. Pálssonar senda
þeim kostnaðarlaust, og sem þeir þann-
ig fá fyrir 50 cts.
Alstaðar annarstaðar kostar bókin
$1.00, og hér á skritstofu Heimskringlu
fæst hún keypt fyrir $1.00, en í sam-
bandi við Heimskringlu kostar hún nýja
kaupendur að eins 50 cents.
Útgáfunefnd Heimskringlu telur víst
að margir Islendingar, sem enn þá hafa
ekki keypt blaðið, muni gjarnan vilja
eiga það og lesa, og að hið sama eigi
sér stað með verk Gests Pálssonar.
Þess vegna hefir nefndin komist að
samningum við útgefandann, sem gerir
það mögulegtað gera nýjum kauper.d-
um þetta boð( fram að uýári r.æstk.
Heimskringla, án bókarinnar kostar
$2 00 um árið. Allir þeir, sem vildu
gerast kaupendur að blaðinu og fá í it-
verk Gests með hálfvirði, sendi oss með
pöntunum fyrirfram borgun: r
i ■ ..
HeMriila News & PÉlisliii Co.
P. O. Box 12S:S IVliinipeg,
llanitohn.
in er úr bálastorku bergkastali j Jasonssonar og Guðrúnar Eirlks-
iribjóð1,—Hérer efni fyrir þjóð-! Höi.tnr t —.. ----
Fregnsafn.
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
—Bankarnir í Canada hafa í
hyggju að auka vaxtagreiðslu af
sparifé þjóðarinnar upp í 3^% f stað
3%, sem nú er.
—-J. Hird, frá bænum Bridge I
Canada, 82 ára gamall, klifraði í
f. m. upp á hæsta findinn á Ben
Nevis fjalli á Bretlandi, sem er 4405
fet yfir sjávarmál Gamli Hird
var 4| kl.tíma að komast upp á
fjallið.
Millíónaeígandi einn í Chicago
heflr nýlega skift einni millón doll-
ars upp á milli erfingja sinna til
þess að komast eftir hvernig þeir
verji fénu. Svo ætlar hann að eftir-
skilja þeim eigur sínar í réttum
hlutföllum við það sem hann álítur
þá verðskulda.
—Fróðleg skýrsla er nýútgefin
um inntektir í ríkissjóð Breta af dán-
arhúum auðmanna þar í landi á síð-
astl. ári til 31. Marzsíðastl. Það eru
lög í landi. að stjórnin heimtar viss-
ar procentur í ríkissjóð af eignum
alha þeirra manna, sem degja og
láta eftir sig eignir sem yfirstíga
vissa upphæð í fasteignum eða pen-
ingum og hluta eða skuldabréfum. Á
síðasta ári fékk ríkið þannig skatt af
62,310 stóreignum dáinna auðmanna
sem til samansnámu 1400 millíónum
dollars. Rtkisskatturinn af eignum
þessum varð sem næst 55 millíónir
dollars. Þetta er þægileg inntekta
grein fyrir ekki stærra land en
Bretland. og fer langt með að jafn-
ast upp í allar ríkisinntektir Canada
á ári.
—Nýlátin kona í Philadelphia gaf
$15,000 af eignum sínum aðsérlát-
inni til að byggja skóla fyrir Douk-
hobors í Canada. Umsjónarmenn
dánarbúsins voru í Winnipeg í síð-
astl. viku að ráðstafa fénu í hendur
Peter Veregrinjeiðtoga Doukhobora.
— Sendiherra Bandaríkjanna í
Marseilles [á Frakklandi, hefir tekíst
ferð á heridur til að heimsækja Mene
lick konung yfir Ahyssinia. Þetta
hefir vaktð hina mestu eftirtekt S
Evrópu hlöðum, en engin veit hvert
erindið er. Þess er getið til að
Bandaríkjamenn muni hafa auga-
stað á einhverjam hluta af landi
Menelicks konungs.
—Árlegur herkostnaður Breta á
friðartfmum er talinn £37.487,860,
eða sem næst í$190 millíón dollast.
Ekki er að furða þó þeim sé ant um
að koma parti af þessum undra
kostnaði yfir á herðar gjaldþegn-
anna í nýlendunum.
Lávarður Benson hefir auglýst
í írskum blöðum, að hann sé fús að
selja allar landeignir sínar á Irlandi
til ábúendanna með þeim skilmálum
sem nýju írsku landlögin ákveða.
Ekki er sagt hvort hoð hans verður
þegið-
—Mrs. Florence Maybrick, sem
fyrir nær 15 árum var dæmd til líf-
láts f Englandi fyrirað myrða mann-
inn sinn, en sem síðar var náðuð til
15 ára fangelsis, hefir eftir fáa mán-
uði fullnægt dóminum og verður þá
látin Iaus,’,Lögmenn eru nú að reyna
að ná handa henni þeim $40,000
sem eftir eru af eignum afa hennar,
svo hún geti átt áhyggjulausa og
rólega ellidaga. Kona þessi er
þegn bandaríkjanna, og margar til-
rannir bafa gerðar verið til þess að
fá hana fyrir löngu látna lausa, en
árangurslaust.
— Mjöl heflr stigið í verði í Mont-
real um 70c. hver tunna, kostar nú
þar$4,80, f tilefni af þessu hafa bak-
arar allir sett upp verð á brauðum
sínum svo nemur 2c. á 6 punda
brauði. Þess ei og getið að hvenœr
sem hakarar heimti hærra kaup fyr-
ir vinnn sína svo hækki brauðin að
sama skapi í verði fratnyíir það sem
uú er.
—Maður einn í Austur-Canada,
sem lögreglan var að leita að, skaut
sig til hana fyrir nokkrum dögum.
I vasa hans fanst bréf, þar sem
hann skýrði frá að í því tilfelli að
hann yrði tekinn fastur og settur í
fangelsi, þá fengi hann þar ekkert
Morphine, og þar eð hann gæti ekki
lifað án þess, þá hefði sér þótt viss-
ast að ráða rér sjálfum bana.
—Allar hveitimölunarmylnur í
Minneapolis hafa hætt starfi um ó-
ákveðin tíma. Yfir 2000 manns írá
17 mylnum hafa yfirgefið atvinnu
sína. Ástæðan er að mennirnir báðu
um 10 tíma ;borgun fyrir 8 tíma
vinnu á dag, en mylnueigendur
neituðu.
—Strætisbrautafélagið í Montreal
sem nýlega jók höfudstól sinn um 1
millfón [dollars upp í 7 millíónir
biður nú bæjarstjórnina í Montreal
að framlengja einkaleyflstímabil sitt
um 30 ára tíma. Fyrir þau hlunn-
indi bíður félagið að halda hreinum
þeim strætum bæjarins, sem vagnar
þess renna eftir, sópa af þeim snjó á
vetrum og ryki og óhreinindum á
sumrum. Félagið biður um vald
til þess að mega semja viðönnur fé-
lög um umferð á strætunum, þó með
hliðsjón af vilja bæjarbúa. Svo bið-
ur félagið um undanþigu frá skatt
greiðslu af eignum sínum, og að
borgin taki að sér eftir 30 ára tíma-
bil, að kaupa allar eigur félagsins
utan og innan takmarka borgarinn-
ar, ef einkaleyfistímabilið verði þá
ekki framlengt.
—Ágæt harðkol fundust f þessum
mánuði við Fortune Bay á Labrador.
Landsvæði það er lftt knnnugc og
engin átti von ákolafundi þar. Mikl-
ar hirgðir kváðu vera af kolum á
þessu svæði, en engir mannavegir
liggja þar nálægt.
—Járuverkstæðið mikla hjá Sault
St. Marie, Ont., sem Mr. Clergne er
yfirmaður yfir, hefir hætt að starfa
um óákveðin tíma. 3500 manns
mistu atvinnn við það núna undir
veturinn. Kaupgjald manna þeirra
sem þanni? hafa mfst atvinnu, var
50 þús. dollars á viku, Peninga
skorti félagsins er kent um þetta
verkfall En það vonar jafnframt
að geta byrjeð vinnu í öllum verk-
stæðum sínum með vorina.
—,,Alt er stórkostlegt í Canada.
Vötnin eru höf, slétturnar eru ómæli
leg viðAtta.Fjöllin yfirgnæfa ímynd
unarafiið og árnar eru aðal megín •
landsvegir. Þegar maður hug3ar
um það að Canadaþjóðin hefir af-
kastað því verki á tiltölulega fáum
árum að ná yfirráðum yfir öllum
möguleikuin landsins og að ytirstíga
mikilvægar tálmantr, og að þetta er
gert af þjóð, sem ekki er mannfleiri
en Lundúnahorg, þá sannar það
bara framtakssemi, dugnað, áræði
og þolgæði þeirrar þjóðar, sem for-
sjónin hefir gætt þeiin eiginleikum,
sem gera hana að mestu þjóð heims
ins, er tímar líða“. Þannig talaði
einn af verzlunarkonungum Eng-
lands á ferð sinni um Canada í fyrri
viku.
— Verkamannafélögin héldu fund
í Adelaide í Ástralíu 18. f. m. Þar
var rætt um að hefja baráttu fyrir
því að löglegur vinnutfmí skuli hér
eftir vera 6 kl.stundir á dag í stað 8
stunda, sem nú er þar eystra. Góð-
ur rómur var gerðui að þessari upp-
ástungu í þinginu, en ekkert form-
legt ákvæði var tekið uir. málið að
svo stöddu.
—Þvottakonur í Duluth, Mínn.,
eru að mynda félag til að fá laun
sín hækkuð. Þær heimta $2,50 á
dag, hvort heldur þ4 þær þvo fatnað
í fjölskylduhúsum eða þær þvo gólf
eða annað þessháttar. Sagt er að
verkamannafélögin standi á hak við
þessa hreyfingu.
—Indiána Reserve í Minnesota
740 þúsund ekrur á stærð, verður
opuað sem heimilisréttarland, kl. 9
að morgni þess 10. Nóvember næst
komandi. Það er talið gott búland.
ISLAND.
Eftir Þjóðvijanum.
Bessastöðum, 28 Ágúst 1903.
Norður-ísafjarðarsýslu, Álftafirði,
8. Ágúst. ,,Tíð hefir verið hér
þurkasæi, en afarköld, útnorðan-
garður f gær og í dag, og hefir snjó
að í fjöllum. Töður nýttust vel hjá
þeim, sem búnir eru með túnin og
voru þau sumstaðar í góðu meðal-
lagi, en alment er kvartað um gras-
leysi á útengi. Harðvellistún hafa
og verið snögg.
Þeir, sem stundað hafa sumar-
róðra hér inn frá, hafa aflað fremur
iítið. Nokkur hafsíld er farin að
fást í lagnet, einkum í Út-Djúpinu,
en ekki hefir þó verið neinn fyrir-
taks afli á hana. — Margir ætla að
motor-bátaveiðin í Út DjúpÍDU séal-
menningi lítt til hagnaðar, af því að
slæingin frá þeim hamli göngu lisks-
ins inn Djúpið.
Hvalaveiðin heílr gengið írem-
ur seigt og fast hjá hvaiveiðamönn-
um hér í hreppi.
Kíghósti hefir gengið í börnum
á stöku bæjum og margir hafa haft
þráiátt kvef.
Bolungarvík, 16. Agúst: „Hér
hefir verið ljota tíðin, stöðugur norð-
angarður síðan 1. Ágúst með kulda
og krapa öðru hvoru, svo að aldrai
hefir fiskur eða hey orðið breitt
þenna tímann.
Hér var mikið góður afli um
tíma f sumar, en nú er bæði sjaidró-
ið og aflatregt“.
Mjölnir heitir hlutafélag, sem
nýlega er stoínað í Reykjavík. og
ætlar það að koma sér upp vélum
og verksmiðju til að mylja grjót og
steypa úr því steina til húsahygg-
inga.
Byrjað er þegar að reisa verk-
smiðjuhúsin, og er húist við að félag
ið geti tekið til starfa i næsta Októ
bermánuði.
Formaður félags þessa er Knud
Zimsen verkfræðingur, en lébirðir
Sturla Jónsson kaupmaður.
Póstblaðið heitir smáblað, sem
póststjórnin er farin að gefa út, til
þess að íiytja starfsmönnum sínum
ýmsar nýjungar er póstmál varða.
Sild á Eyjafirði. í öndverðum
Ágúst gekk síld inn á Eyjafjörð og
aflaðist allvel í lagnet, bæði utarlega
og innarlega á firðinum. í neta-
kvíar fengust og 100 —200 tunnur í
hverjar, að því er Norðurland skýrir
frft, en á hinn hóginn stóð sildin ef
djúpt til þess, að hún næðist í vörp
ur.
Drukknun. 23. Júlí sfðastl.
vildi það slys til á Skutulsfirði, að
báti hvolfdi undir tveimur mönnum,
er fiutt höfðu farþegja og farangur
út i gufuskipið Scandia og drukn-
aði annar maðurinn, Eiríkur Jóns
8)n að nafni, kvæntur maður, er
flutzt hafði til ísafjarðarkaupstaðar
á sfðastl. vori, ættaður úr Skaptafels
sý8lum. llinn maðurinn, er bjarg-
að var, hét Eiríkur Eiríksson.
27. Júli síðastl. andaðist að
Núpufelli í Eyjaflrði bóndinn Sigfús
Einarsson Thorlaeius, 80 ára að aldri
merkur bóndi. Hann á þrjá syni á
lífi og eru þeir: Jóhannes, kennari
við Flensborgarskólann, Einar hóndi
á Stokkahlöðum f Eyjafirði, og Jón
búandi í bygðum Islendinga í Vest-
urheimj.
Cull fundið í Færeyjum. Verk-
fræðingur, sem starfað hefir að jarð-
fræðislegum rannsóknum á Færeyj -
um. kvað hafa fundið þar gull, í
Nolsey. Er þegar tekið að semja
við landeigendnr um leyfi til gull-
graftarjns. Lengra er því málið enn
ekki ko'mið.
Fjallk.
Eftir Austra,
Sevðisflrði, 15. Ágúst 1903.
Nýdánir eru á Héraði merkis-
bændurnir Eiríkur Eiríksson í Ðag-
verðargerði og Þorvaldur Guðmunds
son í Geitdal.
22. Ágúst. Dáinn er snemma f
f. m Sveinbjörn Gunnlaugsson að
heimili sínu, Gilsárstekk í Breiðdal.
Skógræktunin. Skógfræðingur
Flensborg, er nú fór heim med
Vestu, sagði oss að alþing mundi
leigja Hallormsstað af prestinum í
Vallanesi fyrir 380 kr. eftirpjald á
ári hverju, kaupa Vagli í Fnjóska-
dal fyrir c. 2.800 kr. og leigja Háls-
skóg fyrir 80 kr. árlegt eftirgjald.
Tíðarfar ákaflega óstilt. Eftir
iangvarandi rigningar komu bér
nokkrir flæsudagar fyrri hlutá vik-
unnar, en héldust þó ekki svo lengi
að menn næðu hér töðum sínum,
nema einstaka maður, og það þá eigi
vel þurt.
Fiskiafli regar, enda gæftir illar.
Reknetafiinn má heita ágætur og
koma reknetaskipin flest inn uppá
siðkastið með góðan afla. Sum skip-
in hafa eigi komið aflanum fyrir f
iestinni, en hafastafna á milli haft
fult þiltarið af síld. En hér fer að
vanta tómar tunnur og salt, ef þess-
um mikla afia heldur áfram.
1. Sept. Tíðarfarið virðist nú
vera að skftna, enda mft eigi seinna
vera, því útlitið var hið versta, töð
ur víðast mjög hraktar, snjóað ofan
í bygð og hnésnjór á Smjörvatns-
heiði, og töður farnar að grotna á
Langanesi ogSléttu.
Fiskirí gott.
Síldarafli nú minni.
Engin nótasíld, CP leknetasild
töluverð.
MINNEOTA, MINN. 18. Sept. 1903,
Tíðarfar. Síðastl. víku var hér
ómuna regnfall, er oili bæði skemd-
um á uppskeru og vinnutjóni; svo
má heita að þresking sé hér ógerð
enn sökum óveðra. Nú sem stendar
eru vindar og sólþerrir og lltur út
fyrir að þannig muni viðra um
stund.
Dauðsfall: Nýdáinn er hér Ól-
afur C. Arngrímsson frá Búastöðum
í Vopnafirði, einn af mestu lipur-
mennum hér á meðal Islendinga.
Hann var verzlunarmaður f betra
lagi og félagsmaður góður, Um
hann mátti með sanni segja, að
,,hann var drengur góður“. —Séra
N. S. Þorláksson kom hér suður og
var við útför Ólafs-
Nýmæli. Séra Francis E. Clark,
D. D., sá er ferðaðist um ísland í
fyrra sumar, ritar í blaðið The Inde-
pendent (New York) 27. Ágúst þ. á.
aillanga grein um Island, meðfyrir-
sögninni: „Hvers vegna ekki Is-
land”. I þeirri grein færir hann
lfkur fram fyrir því, að það mundi
heiliadrýgra fyrir Bandaríkin að
kaupa af Ðönum íslaud, heldur en
að sælast eftir þessnm Kyrrahafs
eyjum, er þeir séu að draga til sín,
sem sönnun fyrir máli sínu færir
hann fram kosti þjóðarinnar and-
lega og líkamlega að fornu og nýju.
Enn fremur, að á ófriðartímum víð
Norðurálfuþjóðir væri ísland ein
ákjósanlegasta herstöð fyrir Banda-
ríkjamenn Clark liggja sérlega
vÍDgjarnlega orð til íslendinga.—
Uonum hefir sjálLagt fallið vel í
goð bæði þjóðin og landið. Mikið
dáist hann að’fegurð og mikilleik
náttúrunnar á Þingvöllum, þar sem:
Seigt gengur þeim Columbia-
mönnum að verða sammálaum Pan-
amaskurðar samninga við Banda-
ríkjamenn, og lítur helzt út fyrir að
það mál falli um sjálft sig. En þá
snúa Bandamenn sér að Nicaragua
og skera þar í sundur eiðið.
FOAM LAKE, ASSA. 21. Sept. 1903
Þaðsorglega slys vildi til hér
þann 14. þ. m. að 2 ára gamall
drengur, Edward Georg Bjarnason,
sonur þeirra heiðurshjóna Bjarna
mjólk var í, og brendist skaðlega.
Læknir var þegar sóttur, en hann
gat ekkert að gert. Drengurinn dó
á sama sólarhring.
Jarðartörin fór tram þann 18.
s. m. og var sú fjölmennasta, sem
hér hefir verið, þar sem því nær
allir nýlendumenn voru viðstaddir.
Þetta var eini drengurinn, sem
hjónin áttu. Hann var efnilegt og
gott barn og því sftrt saknað of for-
eldrunum. Hin syrgjandi hjon hafa
hjuttöku allra nýlendabúa í þessu
sorgartilfelli.