Heimskringla - 15.10.1903, Side 2

Heimskringla - 15.10.1903, Side 2
HEIMSKRINGLA 15. OKTÓBER 1903, Qeimskringla. PUBLISHBD B V Th« Heimskringla News 4 Pnblishing Co. Verð blaðsins i Canadaoir Bandar. $2.00 nm árið (fyrir fram borgað). Sent til íslands (fyrir fram borgað af kaupend- am blaðsins hér) $1.50, Peningar sendist í P. O. Money Otder Registered Letter eða Express Money Odrer. Bankaávisanir & aðrabankaen í Winnipeg að eins teknar með afföllum. B. L. Baldwinson, Edltor & Manasrer. Office : 219 McDermot Ave. p o. BOX Til íslenzkra presta í enda Ágústmánaðar sfðastl. sftndi f'g iillnm fslenzkum prestum f A’r,. r!ku svolátandi hréf: “Winnipeg31. Ágúst 1903. Háttvirti vin:— Ég hef ákveðið að láta næsta jólablað Heimskringlu flytja mynd- ir af fslenzkum prestum f Ame- rfku, ásumt stuttu æfiágripi af þeiin. Það em f>vf vinsamleg tilmæli mfn að þér vilduð gera svo vel að senda múr góða Ijósmynd af yður, ásamt m<tð stuttu æfiágripi, eins fljótt og hentugleikar yðar leyfa, en helzt ekki sfðar en 1. Nóvember næstkomandi. Það er áríðandi að myndimar geti komist til mín í tíma, því það tekur talsverðan tíma að gera eyr- myndimar til prentunar, eftir þeim. Myndunum get ég skilað aftur óskemdum, strax og búið er að nota þacr. Gerið svo vel að lofa mér að vita á meðfylgjandi i>óstspjaldi, hvort eða hvenær ég má eiga von á að þér verðið við þesari bón minni. Virðingarfylst B. L. Baldwxnsson. Box 1283.” Ég hefi enn þá <>kki fengið svar mót bréfi þessu nema frá 4 prestum. Ég mælist því til að f>eir þeirra, sem ekki enn þá hafa | svarað, vildu gera það sem fyrst. Mér er ant um að hafa sem flestar myndimar, og sem beztar að fóng eru til, og að fá f>ær ásamt æfi- ágripunum svo snemma eftir 1.; næsta mánaðar sem mögulegt er. Sömuleiðigis vildi ég biðja þá sem vildu se.xda ljóð eða greinar | f jólablaðið, að láta það vera kom- ið til mfn um miðjan Nóveinber ef mögulegt er. B. L, Baldwinon. Lækkun flutningsjrjalda sparar Manitoba raillíón dollars á ári. Járnbrautarstefna Roblinstjórn-; arinnar hefir f síðustu viku gefið vott um hyggindi, framsýni og þjóðrækni Mr. Roblins og félaga hans í stjóminni, sem fáir af fylk- isbúum áttu von á að fram mundi koma f eins mikilfenglegum mæli og nú hefir raun á orðið. Mr. Roblin hefir sem sé gert samninga við C. P. R, félagið, sem hafa þau áhrif að auka hagsmuni fylkisbúa um millfón doliarsá ári í lækkuðum flutningsgjöldum á hveiti og féAurtegundum. Eins og lesendur muua. [>á var mikil! óánægja meðal fylkisbúa yfir fví, að C. P. R- var ófáanlegt til að mæta flutningsgjaldlækkunjþeirri, em Roblin8tjóminJgerði Já Cana- dian Northem brautinni í fyrra, þegar ttutningsgjald á hveiti var fært niður í 12c. hver 100 pund. En svo berti stjórnin á þessu í sumar með þvf að færa gjöldin nið- 1 ur í 10 cents A hver 100 pd., frá Manitoba til Port Arthur, og varð jþá flutningurinn 4c. lægri með stjómarbrautinni en með C. P. R Þetta þótti fylkisbúum ilt. Þeir ! voru þnkklátir fyrir lækkun þá er stjómin gerði; en hagsmunir fylk- isbúa urðu afar ójafnir, [>ar sem allir sem bjuggu með brautum C. P. R. urðu að bqrga mlklu meira ; fyrir flutning afurða sinna, heldur en peir sem bjuggu með fram j stjómarbrautunum. En’nú hefir j Mr. Robliri tekist að komast að samningum sem gerir Jtíutnings- : gjöldin jöfn með báðum brautun- um, þannig, að C. P. R. lækkar flutningsgjöld sfn um 3c. hver 100 ! pd. frá öllum stöðum vestan Win- nipeg, en 4c. hver 100 pd. frá Win- j nipeg og allra staða austan. Svo j að nú er lOc. [flutningsgjaldið í tgildi frá Winnipeg og til allra , staða eystra, en llc. gjald frá stöð- j um vestan Winnipeg. Til þessað öðlast þessi hlunn- indi varð Roblinstjómin að hækka lOc. gjaldið um lc. á hver 100 pd. frá öllum stöðum vestan við Win- nipeg, en sú eftirgjöf er svo lftil f i samanburði við pá miklu hags- j muni, sem rnestur þorri fylkisbúa fær við þessa samninga, að ráðstöf- | un stjórnarinnar liefir alstaðar ! mælst vel fyrir. Blaðið Tribune, j sem mjög var audvígt jámbrauta- i samningi Roblinstjórnarinnar f>eg- ar hann var fyrst gerður, lætur nú hið bezta yfir áhrifum hans, og. þykir Roblin hafa vel að verið, ; Sömuleiðis herra A. J, Andrews, I fyrrum borgarstj óri í Winnipeg, sem mjíig var æstur gegn brautar- samninguin Roblins, segir nú skil- yrðislaust að þetta sé ágætt fyrir fylkið og að Roblinstjórnin eigi j miklar þakkir skilið fyrir starf- semi sína f þaríir fylkisbúa, og að si'rhver góður Manitoba og Canada maður hafi ástæðu til að fagna yfir ; þessu, Það sé virkilleiki sem eng- in geti lokað augurn fyrir og sé undraverð umbót á ekki lengra stjómartfmabili. Ymsir aðrir hátt standandi og mikilsverðir menn hafa látið ánægjn sína f ljósi yfir þessu og ekki einn einasti maður hefir enn [>á haft annað en gott um [>að að segja. Meðal annars hefir það haft þau álirif, að auka verð landa á öllum pörtum fylkisins þar sem brautimar ná til. Borgar- stjóri Arbuthnot hælir stjórninni mjíig mikið fyrir [>essa samninga, og var hann þó áður æstur mjög móti jámbrautarsamningunum. En nú er svo komið að allir, sem áður voru á móti þefm, verða nú að játa [>á miklu hagsmuni, er þeir liafa liaft á f/lkið og sama verða allir þeir að gera, sem nokkurra sanngimi vilja beita í þessu máli. Ýmsir frams/nir menn láta ótvf- ræðilega í ljós [>á skoðun sfna, að innan fárra ára muni Manitoba- fylki hafa árlegan hagnað af þessu svo nemi 3 millfónum dollars, og pá sé ineira en líklegt að flutnings- gjöldin verði færð niður enn þá meira, jafnvel niður úr 10 centum á hver 100 pund. Fylkisbúar sjá nú ljóslega að þeir gerðu rétt í [>vi að kjósa Mr. Roblin og stjóm hans við síðustu kosningar. Því aldrei fyr hefir Manitoba átt þvf láni að fagna, að hafa eins hygna, fram- ; kvæmdarsama og þjóðholla stjórn ! eins og Roblinstjómina. Einíákattsmálið. \ Yinur vor, Páll J. Clemens, hefir í síðasta blaði Hkr. ritað um einskattsmálið út, af ummælum þi’ssa blaðs um einskattsbón Tor- ontobúa. Hann getur ekki felt sig við skoðinir Hk. á f>ví að ein- skatt fyrirkomulagið mundi verða eins mikið f hag auðkýfinga sem verkamanna. Þetta leggur vinur vorClemens út á þann hátt að [>að sésama og að segja að skattundan- þága á $700 húsum sé engujn manni til hagsmuna. En þetta var ekki meining blaðsins. Skatt- undanþága er ætíð til beinna hags- muna þeim sem njóta hennar. Það er viðurkent. En blaðið hefir þá skoðun að einstakir auðmenn mundu undir þvf fyrirkomulagi njóta fult eins mikilla, ef ekki langtum meiri, beinna hagsmuna en einstakir verkamenn. Sé það nú rétt að leggja skatta á fasteignir manna eftir efnum og ástæðum, f>á sjáum vér ekki betur en að rétt sé einnig að byggja skattundanþáguna, ef hún annare á nokkur að vera, á sama grund- velli, og sé það rétt að skatta lönd eingöngu, en ekki umbætur á þeim, eins og oss skilst að sé kjarni einskattskenningarinnar, þá er eins rétt, og einskattskenning- unni samkvæmt, að skattfría $100,000 fbúðarliús auðmannsins, eins og $500 kofa verkamannsins. Hvortveggja væri að vorri hyggju rangt. Eins er um það, að eigi landskatturinn að byggjast á verð- mæti laudsins, þá yrðu hver 12,000 teningsfeta lóð verkamannsins, sem héldi kofa hans og kálgarði meira virði til skattgreiðslu heldur en jafnstór lóð sem héldi fbúðarhúsi auðmannsins enn sem ekki hefði sáðtegundir í sér, því að sú lóð, sem væri undir ræktun, og gæfi ár- lega uppskeru væri að sjálfsögðu verðmætari en hin sem enga upp- skeru gæfi. Ef ekkert tillit væri tokið til bygginga á Iandinu. En einmitt á þessari hagsýni skilst oss einskattskenningin vera bygð. Má vera að vér misskiljum þctta ntriði, og þá gerði vinur vor Clemens rétt f að sk/ra fyrir lesendum Heims- kringlu aðalliugsuu þá. sem ein- skattskenningin byggist á, svo auðveldara verði að ræða málið án misskilnings og afvegaleiðslu. Þetta er svo alvarlegt mál að al- menningur ætti að skilja það, og f sambandi við það væri nauðsyn- legt að gera sér grein fyrir því hversvegna skattar eru heimtir af eignum manna, og til hvers þeir eru notaðir, og hver hefir þeirra not; þvf að á f>ví byggist skatt- fyrirkomulagið. Þegar grundvöll- urinn er þannig skýrður fyrir les- endunum, þá, og ekki fyr, verður einskattsmálið rætt á röksemdanna grundvelli og þá ætti að mega ræða það svo að á því væri nokkuð að læra. Vilji vinur vor Clemens offra nokkrum Þlstundum sfnum til að skýra mál þetta nákvæmlega fyrir lesendum Heimskringlu, f>á er honum boðið og búið rúm í blað- inu til þess, og f>á llka verður Heimskringla við f>ví búin að sínu leyti að athuga röksemdir hans. En á grein hans í síðasta blaði er Iftið að græða, þvf hún er bygð á algerðum misskilningi, 6 f>eim staðhæfingum sem gerðar voru f sambandi við einsskatt-hreyfing- una f Toronto. Landnáinsboð. I Sfðasta blaði Hkr. birtist á- skorun frá St Sigfússyni og Jóni Siguiðssyni, til þeirra Islendinga, sem óska að ná í heimilisröttarlönd hér vestra, meðan þau eru enn fáanleg. Heimskringla hefir áður kvatt íslendinga til landnáms og finnur sér nú skylt að leiða athygli lesendanna að þessari áskorun þeirra félaga. Eins og innfiutningur fólks inn í Manitoba og Norðvesturhér uðín fer nú vaxandi, svo að segja með hverjum mánuði, þá getur ur ekki hjá f>vf farið að öll góð heimilisréttarlönd hér í fylkinu og’ enda lengra vestur, verði tekin upp innan fárra ára. Vestur- Canada er nú orðið svo vel þekt að fólk streymir hingað úr öllum áttum í tuga þúsunda tali. svo að segja mánaðarlega, eins og sést á því að á sfðastl. 12 mánuðum hefir á antiað hundrað þúsund manna flutst inn í canadiflka Norðvestur- landið. En með þvf að stærð landsins er takmörkuð en aðsóknin nálega ótakmörkuð, f>á gefur að skilja að það kemur að f>eim tíma að landið verður alt upp tekið. Það er því mjög áríðandi fyrir alla þá Islendinga, sem hugsa sér að ná fótfestu í landi þessu, að ná sér í góð heimilisréttarlönd svo fljótt sem auðið er, áður enn tækifcerin til þess ganga þeim algorlega úr- greipum. Enginu f>arf að ætla áð hann tapi á því f>ar sem lönd stfga nú óðum árlega í verði. Það er óhætt að ætla að hvert heimilsrétt- arland sé nú þúsund dollara virði; og innan lítils tfma tvöfaldast verð f>eirra f>ar sem járnbrautir leggjast nú út um öll héruð, og markaður fyrir afurðir bænda færist út með þeim og anka verðmæti afurðanna. Þá þarf enginn að sjá eftir þeim þriggja ára tfma, sem verja þarf til f>ess að vinna eignarrctt á löndun- um. Þau eru og eign sem ætíð er seljanleg fyrir peninga út í hönd, og eru margfalt betri og tryggari eign en jafngildi f>eirra í pening- um á banka. Það kemur að þvf að landar vorir ýmsir sjá eftir þvf ef þeir nú ekki grípa gæs f>essa þegar hún gefst. Meðal lönd f Manitoba eru nú hvovetna frá $(> til $10 ekran, ef f>au eru nokkurs nýt, og f>aðan af hærri þótt engar umbæt.ur séu á þeim, og eins og áður er sagt tvö- faldast f>au í verði innan örfárra ára. Vér ledðum J>vf alvarlega at- hygli landa vorra að máli þessu í þeirri von og með þeirri ósk að þeir sjái sér hag f þvf, sem flestir, að ná sér f heimilisréttarlönd, meðan enn er tfmi til J>ess. Þeir St. Sigfússon og Jón Sigurðssen. bjóða mönnum sem þetta hafa t hyggju, að finna sig að máli að 524 Young St. JÓN JÓNSSON: / Islenzkt þjóðerni. Alþýðufyrirlestur Rvik. SÍKurdur Kristjáns- sou, 1903. P. P. I — VI. 1,—262. 8 o. Bók [>essi er n/komin að heim- nn. Hún er einhver sú eftirtekta verðastabók, sem þuðan hefir kom- ið í seinni tfð, og hafa þó margar góðar þaðan komið, þegar tillit er tekið til alls. í sinni röð er f>essi bók alveg sérstök af íslenzkuin bókum. Hún má katin ske teljast f flokki sagnaritanna, en er þó að eins saga á vissan hátt. Hún fer yfir helztu atriði Islands sögu frá landnámstfð ofan að dauða Jóns Sigurðssonar f þeim tilgangi að leita innan um viðburðina að ein- kennum þjóðarinnar, sem helzt mætti telja til þjóðernisins. Hún er því nokkurskonar „Socialogical study” um Islendinga, eðli [>eirra, uppruna og starf, hvernig að skap- ferli þeirra, hugsunarháttur og arf gengar skoðanir verða ýmist til þess að stofna þjóðinni í voða eða pá hinsvegar að frelsa hana þegar í raunimar rekur. Efni bókarinnar er 4 þessa leið: Fy j s t i fyrírlesturinn byrj ar á f>ví að segja frá Norðmönnum f>egar víkíngaöldin liefst. ferðum : þeirra vestur um haf og viðskiftum peirra við Kelta á Bretlandseyjun- um. Fyrst framan af voru ferðir víkinga til Suðureyja óreglulegar og að eins þá [og J>á, eftir þvf sem byr og leiði gaf. Þær vorn allar f sama tilgangi gerðar, að afla fjár. Við þessar ferðir vöndust Norð- menn samt á að leita frekar til Suðureyja, ef um víking var að ræða eða kaupferðir, en eitthvað annað, og á f>ann hátt smá kyntust f>eir [>jóðinni er fyrir var f land- inu, og fór svo áður en á löngu leið að þeir fóru að haf ji [>ar vetur- setu og jafnvel að taka sér þar ból- festu. Innlenda höfðingja ýmist ráku f>eir frá ríkjum eða gerðust þeim handgengnir og fóru kynni þeirra af Keltum stöðugt vaxandi. Allareiðu f>egar Haraldur hárfagri brýst til rfkis f Noregi eru þotnar upp blóinlegar Norðmanna nýlend- ur fyrir vestan haf. Rfki eru stofn- uð undir riorrænum höfðingjum og tengdir og mægðir komnar á milli þeirra og landsmanna sjálfra. Margir Norðmenn eru búnir að vera f>ar svo lengi, að J>eir hafa kastað nöfnum sfnum og tekið upp önnur, keltnesk, í þeirra stað, til þess a3 geta orðið betri borgarar f landinú. Eftir sigur Haraldar konungs flytja enn flelri vestur, höfðingjar með öllu sínu skyldu- liði. Þessir sem þá flytja verða að allega landnámsmennimir á ís- landi, eftir að ferðir hefjast þang- að. Þetta, að þeir fiytja fyrst vest- ur og svo til Islands, telur höfund- urinn mjög þýðingarmikið atriði fyrir myndun fslenzks þjóðemis, svo að J>jóðareðlið megi frekar teljastjkeltneskt en norrænt. Annar fyrirlesturinn talar um fund Islands. landnám o. s. frv. Landnámsöldinni skiftir hann í [>rent: Upphaf Islands bygg- ingar 874—'90, landnám vestan um haf 890—900 og lok íslands byggingar 900—20. Suður- og Ves.urland telur liöfundurinn að mestu nuniið af mönnum vestan um haf, mest- meornis Norðmönnum, er f>angað höfðu flutt frá Noregi eftir Hafurs- fjarðarorustu ogjeinstöku Kelta er þeir höfðu út með sér til Islíifids Austlendinga- og Norðlendinga- fjórðungur eru numdir að eins að litlu leyti frá Suðureyjum, að stöku landnámum undanteknum, líkt og Helga magra, Auðunnar skökuls, Höfða-Þórðar. Hámundar heljar- skins o. s. frv. Als telur hann að fullur helmingur Islandsbygðar sé komin vestan um haf, að meðtöld- um vistráðnum mönnum og þýjum, er landnámsmenn höfðu með sér, er flest voru af frsku kyni, sumt aðalsættar. Af þessn ræður hann að íslenzkt þjóðerni sé sambland af keltnesku og uorrænu, J>vf f>á sem úr Suðureyjum koinu telur hann alla saman sem keltneska. Á sðguöldinni og jafnvel frá byrjun álftur hann að þetta tvfeðli íslenzku þjóðarinnar kornií ljós. Á víkingaöldinni voru Keltar, seg- ir hann, einhver mesta bókmenta- f>jóð Norðurálfunnar og starfs- menn kyrkjunnar. Þeir fóru um alt sem kristniboðar, skrifuðu ann- ála og guðfræðisrit. Þeir Voru til- finninga og hugsjónamenn, skáld og málskörungar, og voru skáhlin einkum f hávegum liföð á uieðal þeirra og f>að svo, að undir Þau voru borin helztu vandamál þjóð- arinnar, hvaðj>á annað. Þau voru spámennirnir er sfigðu konungum og stjómendum til syndanna, f>au áréttu hluti manna á meðal, en allajafna á f>ann hátt að stjórn og reglubnndin félagsskapur beið heldur tjón af. Aftur 4 mót.i seg ir höfundurinn vóru Norðmenn alt f>yngri fyrir. Þeir eltust í innavið hugsjónir en hugsuðu f>ess meir um það, sem var Af>reif anlegt og virkilegt í kringum þá Staðfesta, djúpskygni og vilja[>rek einkendi f>á sem f>jóð. Þeir voru mennirnir, er gátu smfðað úr brot- um suðræuu menningarinnar kon- unga og keisaradaimi, er höfðn dá- lftinn varanleik. Til þeirra t.elur hann stjómarfyrirkomnlagið ís- lenzka. en bókmentalffið, fjörið, hugvitið og snildina, er einkendu gullaldar }>jóðlff íslendinga, segir hann komið frá Keltum. Sá hæfi- leiki íslendinga, sem kemur fram í sagnarituninni, skáldskapnum forna og skólastofnunum á ofan- verðri 11. öld, J>akkar hann kelt- neeka blóðinu. „Það er al[>ekt lögrnál f sög- unni, að þegar tvær f>jóðir blanda blóði saman, þá táknar [>að ætíð uppgangsöld fyrir afkvæmið. Þetta átt.i sér stað um Norðmenn og | Kelta f Bretagne eða Normandí. | Upp úr [>ví sambandi spratt ridd- ! araskáldskapnr miðaldanna. Al- I veghið sama er að segja um Norð- menn og Kelta 4 Islandi, upp úr I þvf sambandi spruttu f o r n-í s- lenzkar bókmentir. Það | voru blóðtengdirnar vlð Kelta, er | gerðu það að verkum. að skáld- 1 skapur og sögulist varð svo rót- gróið hjá Islendingum“. bls. 54. Þ r i ð 3 i fyrirlesturinn ræðir um stofnun alsherjarrfkis á ís- landi og ættjarðarást og þjóðemis 1 tilfinningu íslendinga á söguöld- inni, tilraunir Noregskonunga að ná yfirráðum 4 íslandi o. s. frv. Eftir að föst stjórn er komin á ! °g þjóðin fer að finna til f>ess að | hún eigi heima. frekar á einum stað en öðrum, þá fyrst fer hún að | fá sjálfs meðvitund og við það vaknar ættjarðarástin og þjóðernis- tilfinningin. Þetta kemur frain hjá Islendingum st.rax á söguöld- inni, er þeir metast við Norðmenn ^ og aðra útlendinga og þola ekki það, að vera eftirbátar neinna. Sög umar telur höfundurinn einn sam- feldan ættjarðaróð, lýsingu af ferða lagi út um alla heima, en hvert ! svo sem leiðin lág, könnuðust ís- lendingar f>ó allajafna hvorir við j annan. Heimpráin skildi aldrei j við þá, oettarböndin gat engin fjar- lægð slitið. Tign, metorð, auð- I legð, d/rar gjafir, vinátta konunga og stórmenna, vóg aldrei upp á ; móti „endurminningunni um fj.öll- in heima“, og á endanum var f>vf bátnum ætfð stefnt heim. Hið | annað dæmi, sem höfundurinn | dregur fram sem sýnir ljósast hve-isu mikil uppgerð og látalæti f>(‘ssi þjáðrækni var hjá forfeðrum vorum, er það sem kom fram hjá [>eim mönnum er lögin bönnuðu landsvist. Gunnari 4 Hlfðarenda var alvara með þjóðerni sitt þegar hann sagði: „fögr er hlíðin, svá at mér hefir hon aldrei jafnfögr sýnst —bleikir akrar en slegin tún — ok mun ek rfða heim aftr ok fara livergi”. Enn annað dæmi upp á þjóðrækni landsmanna var það | hversu vel þeir vörðust lygum og undirferlum Ólafs konungs Har- aldssonar í tilraunum hans að fá þá til að játast undir yfirráð sín og ! þegnskyldu. F j ó r ð i fyrirlesturinn er um íslenzku kyrkjustofnunina f elztu ; tfð, skólastofnanir o. fl„ deilur höfðingj i 4 Sturlungaöldinni og glöt.un sjálfsforræðisins. í nærri hundrað ár heyrist livorki hósti né stuna eftir að kristni var lögtekin. Á þessu tímabili telur höfundurinn að grundvöllurinn hafi verið lagður undir söguritunina og kyrkjuskip- unina, en eftir að kemur fram yfir árið 1100 byrja deilumar. Með kristnitökunni varhin forna stjórn- arskipun særð til ólífis, Goða- valdinu hnignaði eiðar og dómar að fornum sið voru afnumdir, al- þing var ekki lengur æðsti dóm- stóll allra mála, því kyrkjan viður- kcndi ótal valdsmenn utan rfkisins Og þótt höfundurinn taki það ekki fram, þá er [>fið hún, þessi stofnun, sem liggur í dái f hundrfið ár með- an liún er að grafa um sig, en rís svo upp voldug og drottnandi sem mest og bezt vann að [>ví, að ís- lendingar glötuðu frelsinu. Þflð koma ætfð nýir siðir með nýjum herrum. Gamli siðuriim dó út.. Siðalögmálið sem hann kendi og sem [>jóðmonningin hvíldi á, er svfvirt og lftils metið. Eidar og drengskaparorð þ/ða ekkert. Heim ilis-oghjúskaparlífið er eyðilagt,. Aftur fer drottnunargirriinni fram að þvf skapi. Völd og auður eru |>au einu gæði, sem eftir er sótt, og meðölin sem notuð eru til þess að ná [>essum gæðum, eru vfg, morð og griðrof og brennur. Endir leiksins verður sá, að ís- land gengur með öllu undir Noreg, eftir að f>ess beztu menn hafa ver- i« myrtir eða flæmdir af landi burt

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.