Heimskringla - 19.05.1904, Síða 1

Heimskringla - 19.05.1904, Síða 1
XVIII. ÁR. Nr. 82 WINNIPEG, MANITOBA 19. MAl 1904. Helntzman & Co. Pianbs.-Bell Orgel. Vér seljum með mánaðarafborgunarskilmáium. J. J. H- McLEAN & CO. LTD. 530 MAIN St. WINNIPEG. r I HEW rORK LIFE JOHN A. McCaLL, president Síðasta skýrsla félagsins sýnir að á árinu 1903 hefir það gefið út 170 þús. iifsábyrgðarskírteini fyrir að upphæð miliónir doll. Á sama ári borgaði fél. 5,300 dádarkröfur að upphæð yfir 16 miliónir doll., og til lifandi meðlima borgaði það fyrir útborgað- áarlífsbyrgðir fullar 18 miliónir doll. Sömuleiðis lánaði félagið $32 þús. meðlimum út á iífsábyrgðarskirteini þeirra nær þvf 13 miliónir dollars. Einnig hefir félagið skift á mílli meðlima sinna á Síðnstl. ári 5J mlión dsll., í vexti af ábyrgðum þeirra í því, sem er $1,250,000 ineira en borgað var til þeirra á árinu 1902, Lífsábyrgðir í gildi hafa aukist á siðastl. ári um 191 millionir Dollnrs. Allar gildandi lífsábyrgðir við áramótin voru #1,745 milionir Allareignir félagsins eru yfir .......35»J mlllion Dollars. •I. t*■ Morgan, Manager, GRAIN EXCHANGE BUILDING, C. Olafson, AGENT. ~wiisrisrii3e Gr. BAKER BLOCK. 47o MAIN STREET. Priöju dyr fyrir sunnan Bannatyne Ave., vest- anveröu 6 Aöalstrætinu. Phorie 2685. ÁGÆTT LAND 480 ekrur; 100 plægðar. Ágætt fveruhús. Timburfjós fyrir hundr- að nautgripi, að stærð 80x 100 fet. Á rennur gegnum landið Þetta land er sunnan við íslenzku nýlenduna í Lake- side, Man Verð og skilmálar svo rýmilegir, að hinir fátæk- ustu geta keypt. Þetta er bezta landið f héraðinu og svo sem 7 mílur frá bænum Glad- stone. Skrifið eða sjáið okkur þessu viðvfkjandi. Eggortxson & Bililfell. Tel. 2685 470 main street Fregnsafn. Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. STRIÐS-FRÉTTIR Herforingjar Kuroki og Osako hafa haldið hertleildum sínum norður umManchuria og sameinað f>ær n&lægt Newchwang. Þeir hafa samtals 100 þúsundir manna, en Rússar, sem hafa víggirt staðinn, hafa þar 80 J>úsundir. Er búist við öflugum bardaga ]>ar, ]>ví að Rússar eru sagðir að hafa safnað þangað matvælum til að fæða 200 þúsund manns þar til í júli næstk. Það er hin mesta nauðsyn fyrir þá, að verja vfgi sfn þar f lengstu lög, til þess að tapa ekki matnum. En svo eru fréttir komnar nm það, að Rússar séu að yfirgefa þennan stað af því þeir treystast ekki að halda lxonum fyrir Jöpunum, ef til bardaga kæmi. 700 rússneskir riddarar réðust á fáeina Japana, sem settir höfðu verið til að verja Anju borg. Bar- daginn stóð yfir í 12 klukkutíma. Japanar vörðu staðinn og feldu 50 Rússa á meðan f>eir sendu eftir hjálp, sem kom seint um daginn; og hörfuðu þá Rússar undan. Ekki mistu Japanar nema 4 menn allan daginn, enda vörðust þeir innan borgarmúranna, en Rússar sóttu að á bersvæði. Rússar hafa sprengt upp haínar- virkin, skipakvíar og lendingar- bryggjur í bænum Dalny, til þess að Japanar skuli eiga óhægra með að lenda mikln liði þar. Eignir þær, sem Rússar eyðilögðu, eru metnar á 10 millíónir rúbla. Rúss- ar töpuðu í vikunni sem leið einu herskipi, sem rakst á eina af sjó- arsprengivélum ]>eirra, er sprengdi ]>að. Sömuleiðis sprakk einn af torpedóbátum Japana af sprengi- vélum Rússa, og er J>að eina her- skipið, sem Japanar hafa tapað í þossum ófriði; lötust þar 7 menn og 7 særðnst. Japanar vaða nú yfir Manchuria f J>remur deildum; þeir gefa Rúss- um engann frið, en elta þá með meiri hraða en hinir geta flúið. Eftir að hafa unnið Rússa við Feng Wang Cheng eltu þeir ]>á til Wafungten og neyddu þá til bar- daga þar pann 9. þ.m.; og er sagt, að Japanar hafi þar náð ógrynni af hergögnum og felt mesta fjölda Rússa, sem voru illa við búnir, því þeir áttu ekki von á svo hraðri eftirför Japana, er höfðu méð sér stórskotalið sitt og drógn þyngstu fallbyssur sínar um svo brattar fjalliibrekkur, að Rússar nndruð- ust; þeir höfðu taiið það als ómögu- legt á svo stuttum tfma. Næsti bardagi lialda menn að verði við Liao Yang, og talið vfst, að Rússar veiti þar alt það viðnám, sem þeim er unt. Rússar hafa a'ð sögn getað komið á fréttasambandi við Port Artlmr; er sagt þeir hafi ráðist á Japana, er voru liðfáir þar um slóðír, og rekið þá undan með mannfalli nokkru og hafi síðan gert við braut sína og talþræði og haldi uppi stöð- ugum samgöngum við Mukden og Harbin. Japanar hafa tekið 50 millfón dollars lán f New York; þeir borga 6 prócent vexti af lánijju. Jfipánar hófu skothrfð á Port Arthur 10. þ. m., og er sagt að Rússar hafi þá eyðilagt allan her- skipaflota sinn, er lá þar á höfn- inn, til þess að fyrirbyggja að hann félli í hendur Japana. Það voða-slys vildi til í Tokio, Japan, þar sem fólk hafði safnast saman svo tugum þúsunda skifti til að gleðjast yfir sigri landa sinna yfir Rússum við Yalu-ána, að um 20 drengir voru troðnir undir til ó- lffis og yfir 40 manns særðust í fagnaðaræði fólksins. Svo eru mikil brögð að veikind- um meðal rússneskra hermanna í Mukden, að mál]>ráða>'skeyti hefir verið sent til St. Pétursborgar að senda tafarlaust 100 lækna þangð austur, Tangaveiki, bólusýki og lífsfki eru að gera útaf við herinn þar eystra. Sex þúsund ræningjar er sagt að sé í og umhverfis bæinn New Chwang í Kfna. Bretar hafa þar nær=-8 millíónir dollara virði f eign- um, en engin ráð til að verja þær. Eru menn þvf mjög óttaslegnir og heimta vernd Breta, en óvíst mjög að því verði sint. Rússar em að taka skildingalán hjá Frökkum. Þeir segja strfðið við Japana kosti sig 255 millfónir dollars upp að næsta nýjári. Lánið nemur 150 millíónum dollars. Skipagöngur f stórvötnunum hóf- ust frá Owen Sound f Ontario á- leiðis til Port Arthur 9. þ.m. — Þingforsetinn á Italfu lét þess getið f þinginu 11, þ.m., að drotn- ingin vonaði að ala barn f sept. næstk. Við þessi fáheyrðu tíðindi varð þingmönnum svo mikið, að þeir stóðu upp og sungu þjóðsöng- inn og sendu síðan kongi og drotn- ingu lukkuóskir sfnar yfir væntan- legum erfingja — og þarafleiðandi auknum útgjöldum þjóðarinnar. Öll Evrópu-blöð hafa svo básúnað þessa frétt, eins og það væru ein- hver undur, að g i f t kona ætti sér erfingja von. — Independent Order of For- esters fékk 1038 nýja meðlimi á einum fundi f Ontario í vikunni sem leið. Lffsábyrgðir félagsins eru um 283 millfónir dollars og varasjóðurinn nær 8 millíónum. — Maurur Jokai, skáldsagna- höfundur Ungverja, er nylátinn. Skáldsögur hans voru þektar um allan heim og þóttu f tölu hinna beztu. Árið 1895 hélt hann 50 ára afmæli fyrstu bókarinnar, sem hann gaf út. Þá skutu vinir hans saman 80 þúsund dollars og gáfu honum. Yið það tækifæri heim- sóttu hann einnig 100 málarar landsins og færðu honum sitt mál- verkið hver, er þeir höfðu sjálfir málað. Dauða Jokai hefir verið getið í mörgum blöðum sem þjóð- legs óhapps. 1— Grand Trunk járnbrautarfé- lagið hefir hækkað flutningsgjald á alskonar vörum sem það flytur með brautum sfnum norður og vestur frá Toronto. — Svo eru uppreistarmenn á Rússlandi æstir, að þeir hafa á- kveðið að ráða keisarann af dögum og brenna upp stjórnarbyggingarn- ar í St. Pétursborg, Moskva og öðrum borgurn; einnig að sprengja upp herbúðir Rússa á ymsum stöð um í landinu, þar sem mest herlið er saman komið. E.inhver af liði uppreistarmarxna hafði gefið stjórn- inni tilkynningu um þetta ráða- brugg og fengið ærið fó að verð- launum. En svo er stjórnin ótta- slegin, að hún hefir sett strangan hervörð um allar opinberar bygg ingar og herbúðir og um keisara- höllina. Sömuleiðis hefir hver stjórnarráðgjafi margra manna líf- vörð hvar sem þeir fara. Ástandið er talið mjög ískyggilegt þar í landi; þjóðin er sár-óánægð, ekki aðeins yfir almenna stjórnarfarinu heldur miklu fremur yfir ástandi herliðs Rússa í Asíu. Hver fjöl- skylda í landinu, sem á ættingja f hernum eystra, kennir stjórninni um fjarveru og fall vina sinna og ættingja þar, — Ein af stærstu komhlöðum C.P.R. félagsins í Fort William, Ont., brann til ösku á fimtudaginn var ásamt hérumbil hálfri millfón bus. af hveiti. Skaðinn er metinn $500,000. — Bandarfkjastjórnin ætlar taf- arlaust að halda áfram vinnu við Panama-skurðinn þar til hann er fullgerður. W ashington-stjórnin hefir fengið John Findlay Wallace, aðal-verkfræðing Illinois Central jámbrautarinnar, til að taka að sér yfiramsjón á verkinu; laun hans verða $25,000 á ári, og er það jafn- gildi forseta launanna. — Handtekinn var á Englandi f síðustu viku E. T. Hooley, sem fyrir fáum árum var einn af auð- ugustu mönnum á Englandi. Hann starfaði að myndun gróðafélaga og græddi 12^ millfón dollars á einu þeirra. Alt, sem hann lagði hönd á, aflaði honum auðs, en svo varð hann svo eyðslusamur, að hann eyddi öllu sem hann átti og græddi, og öllu því, sem hann gat fengið lánað hjá öðrum, þar til nú, að liann er gjaldþrota og skuldafang- elsin gapa við honum. Kæran gegn honum er sviksemi í við- skiftum. — Macedoniu málið hefir komið til umræðu í brezka þingina. Það var viðurkent, að ekki mundi verða mikið um umbætur þar í landi, og ekki vildi stjómin eiga nein af- skifti af því máli að svo stötldu. Stungið var upp á, að kalla saman alþjóða fund til að hrinda málum Macedoniumanna í vænlegt liorf, pn stjórnin mælti á móti þvf. — Fjórir af fregnritum rúss- neskra blaða, sem em með Rússa- hér í Manchuria, hafa fallið fyrir vopnum Japana, og aðrir rúss- neskir fregnritar þar eystra hafa engar fréttir sent um laugan tíma, Blöðin hafa sent hraðskeyti anstur til að vita hvað gengi að mönnum þeirra, en fá þaðan ekkert svar, og þykir það benda á, að stjómin feli fréttirnar til þess þjóðin skuli ekki fá að vita annað en það, sem sijórnin álftur henni fyrir beztu. — Aðalbert, þriðji sonur Þýzka- landskeisara, er á ferð f Kfna til að tala við keisarann þar. Enginn veit um þýðingu þeirrar farar, en talið lfklegt, að hann eigi að mæl- ast til, að Kfnastjórn veiti ekki Japönum að máli f ófriði þeirra við Rússa. — Bardagi varð 9. þ. m. milli Brazilíu og Pem herdeilda. Pem- menn lögðu á flótta. — Lýðvelðið Peru er að búa sig út f strfð móti Brazilíu og hefir þegar sent herflokka til Alto Jura og Chandless. Verið er í óðaönn að víggirða Iqutost með þvf að byggja öflug vamarvirki og að leggja sprengivélar f hafnarmynnið og 3 þúsund menn séu settir þar til varnar. , — Sir Henry M. Stanley, Af- ríkufari, andaðist í London á Eng- landi á mánudaginn var. Hann kannaði mikinn hluta af Afríku fyrir brezku stjórnina og var á þeim dögum einn af nafnfrægustu mönnum 1 Evrópu. — Tólf ára garnall piltur í Rost hern, N. W. T., varð 10 ára gam- alli systur sinni að bana í vikunni sem leið. Hann skaut á hana úr byssu, sem hann var að handléika, og allar líkur benda á, að hann hafi viljandi verk það unnið. Máli hans hefir verið vísað til kvið- dóms. — Lögmaður Bangs í Calgary hefir skilað $6,000 af þeim $10,000, sem fyrir nokkrum mánuðum var stolið frá Hamilton bankanum f Winnipeg. Hann var í vitorði með 2—3 öðrum mönnum sem stálu fénu. — Pétur Servíukonungur er svo taugasjúkur og óttasleginn, að íann festir ekki svefn. Hann sér drauga og alskyns ofsjónir og ótt- ast mjög um líf sitt. — Austanblöð, bæði frá Ontario og Quebec, hafa nýlega flutt tvær einkennilegar greinar. Onnur greinin skyrir frá þvf, að á Islandi sé og hafi verið aðeins einn lögregluþjónn og að hann hafi æfinlega getað fullnægt lögreglu- >örfum landsins, nema f eitt skifti. Það hafi verið á Þingvöllnm árið 1874, þegar konugur Dana kom til Islands; þá hafi verið 70 þúsund manns á landinu og flestir þeirra hafi ætlað að sækja Þingvallafund- inn. Lögregluþjónninn hafi þá óttast, að hann gæti ekki haldið reglu xúeinn og hafi því beðið laudshöfðingja að leyfa sér að ráða lijálparmann fyrir þann dag, en landshöfðingi hafi ekki viljað taka upp á sig þá ábyrgð að eyða lands- ins fé á þann hátt án samþykkis þingsins, svo hann hafi vfsað þessu vandamáli til þings og þar hafi, eftir langar umræður, verið sam- þykt að leyfa lögregluþjóninum að fá sér hjálparmann yfir Þingvalla- fundardaginn og landshöfðingja veitt heimild til að borga honum úr landssjóði einn rfkisdal í silfri. Hin greinin skýrir frá þvf, að Island hafi um 76 þúsund íbúa, sem allir tali dönsku ásamt móður- máli sínu, og margir einnig ensku, þýzku og frönsku, því að Islend- ingar séu á mjög svo háu menta- stigi. Þjóðin hafi 18 öflug dagblöð og að auki 12 mánaðar og viku- blöð. En sá sé blettur á þjóðinni, að hún hafi enga járnbraut. Nú hafi samt verið ákvéðið, að afmá þennann blett með því að enskt fé- lag, sem haldi 300 manna við vinnu í brennisteinsnámum austan lands, ætli bráðlega að byggja járn- braut frá námunum inn í Húsa- víkurkaupstað. Það sé í orði að lengjabraut þessa áfram til Reykja- vfkur til að tengja hana við brenni- steinsnámana, sem þar séu í grend. Kirkjueign Unitara-safnaðarins verður seld við opinbert nppboð á föstudaginn 27. þ.m. Eignin er Lots 40 & 41, Blck 1, a part of lot 10 of the parish of St. John as shewn on a plan of subdivision in Wpg. L. T. office no, 182. Uppboðið fer fram f kirkjunni. Safnaðarnefndin. Kr. Asg. Benediktsson selur gift ingaleyfisbréf hverjum sem þarf. Tvö kvæði Eftir Styrkár Vésein, flntt A skemtisamkomu Hagyröingafélaffsins, í Unity Hall, 14. april 1904, viö bröttför Sig. Júl. Jóhannessonar til Harvard háskólans. KVEÐJA FRÁ ÍSLANDI TIL Sig. Júl. Jóhannessonar. Lag: Pú bléfjallageimur, meö heiöjöklahring. Frá ættstöðvum hrifu þig örlaga- rögn á æskuvori, hafs um kaldar slóðir. ' Jver sigrar hin djúpgreyptu dular- vættamögn, sem dómafjötrum binda lönd og þjóðir? Þar brugðust þér vinir og bræðr anna trygð; í blíðmælum svikavefir felast. Með vongeislamyndum oss villir lífsins brygð, að vonarstjörnum rökkurskuggar stelast. Á byltingahrönnum hins beljanda flóðs. með brimföllum tfmans heiman leiðstn. Þú hræddist ei stormdyn né ólgu Ýmisblóðs, þvf ills og góðs með hetjnmóði beiðstu. En móðir þig harmar,— hin xnjall- krýnda fold og myrksollin tár af hvörmum svífa. Þar klökkuar við grátstöfum klaka- stirðnuð mohl—, hin köldu sorgarél að höfði drífa. í útlegð þú hraktist, á ókynnis- hjarn, f alhvörf frá móðurlandsins strönd- um. Þó breyttir þú jafnan sem ættlands óskabam og ísland vildir svifta þrælabönd- um. Því óma nú dimmkveðin harm- stunuhljóð frá hollvættafjöld í Snælandsdaln- um, og glymur þar sorgþrungin gígju- strengjaljóð hin grætta sögudfs í fjallasalnum. KVEÐJA frá HAGYRÐINGAFÉLAGINU til Sig. Júl. Jóhannessonar. Frá ættlands öldnnm ströndum þú ungur hingað sveifst. í Leifs ins heppna löndum þú lýði kvæðum hreifst. Svo ljúft oss leið að eyram þitt létta strengjaspil, sem lindstraums lag vér heyrum, er lækjar hnígnr til. Þú varst oss hollur vinur, þín verk oss reyndust bezt. Þá hinna bygging hrynur, þín handtök geymast flest.— Þfn orð, og frelsisómur oss æ mun lifa hjá, þinn ljósheims lúðurhljómur ei lfður minnum frá. Nú glúpnar greppa saga, þitt gígjuhljóð oss dvín. Seui ljóss, um liðna daga, svo ljúft vér minnumst þín, Þitt glaða göfga lijarta, sem gleði bræðrum ól, er blik ins heiða’ og bjarta og Braga vonarsól. Nú lif þú vel og lengi og ljóða hreif þú streng. Af draumum vek þú drengi, við dyrann Sigtýsfeng; — og heill kom hingað aftur, frá hafi sjónargmnns, þar vex þér viskukraftur, að veigum Mímisbranns. Mann-úlfur. Svo er nefndur villimaður einn, sem tyrir nokkrum tíma fanst í dýrabæli einu í Neðra.Bengal-hér- aðinu á Indlandi af landmælinga- mönnum stjórnarinnar, sem tóku hann og fluttu í herbúðir stjórnar- innar og ólu hann þar til dauðadags. Maður þessi var algerlega viltur og mállaus, þó hann gæfl ýms hljóð af sór, eins og úlfur, en svo var hann heyrnar- og lyktnæmur, að hann fann og vissi hvar villidýr voru hvenœr sem þau komu i námunda við berbúðirnar. Hann gekk á höndum og fótum og aflaði sér fæðu sem dýr. en neitaði lengi vel almennum matvælum. Svo varð hann þó taminn að slðustu, að hanu þáði Boðinn mat og aðra fæðu, sem hermenn höfðu, en sú breyting hatði þau áhrif á hann, að hann tók tær- ingarsjúkdóm, sem dróhann til bana Gamlir menn I héraðinu töldu mann þenna, sem var 20 ára gamall, er hann náðist, vera sama barnið sem tapast hafði þar úr grendinni á unga aldri og verið alið upp af af kvenúlfi. Er þetta talin fyrsti maður, sem svo heflr náðst, þótt sög- ur fari aí missi margra barna & Ind- landi af völdum dýra. Atburði þess um heflr verið veitt hin mesta eftir- tekt meðal vísindamanna og læfcna á Indlandi. 0

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.