Heimskringla - 30.06.1904, Síða 3

Heimskringla - 30.06.1904, Síða 3
HEIMSKRINGLA 30. JÚNÍ 1904 Hann vill aðstoða fslendinga eftir mætti, og mikið mun f>að honum að þakka, að hinn efnilegi og gáf- aði landi vor, Steingrímur Stefáns- son, heíir komist svo vel af hér vestra. Ég tel f>að stórsóma fyrir oss að eiga Gunnlögson fyrir samlanda. Hann er maður ókvæntur og lætur lítið á sér bera og gefur sig allan við bókvísi. Prinsessa sú, er blaðið getur um að hann hafi kent á Eng- landi, mun vera Beatrice, dóttir Victoriu sál. drotningar. Heiðni og heiðingi, Það hafa æði margir spurt mig ■ eftir, hvað orðið heiðingi þýði í réttri merkingu. Orsakir til þess- . ara spurninga hafa þeir sagt mér að væri f>ær, að sumir sem standa framárla í Fyrsta Lúterska Kyrkjufélagi íslendinga í Vestur- heimi, segi að þeir menn, sem utan við það standi, séu heiðingjar. Og í öðru lagi það, að þá langi til að vita, eftir skýringu orðs- ins, hvort Helgi magri hafi verið heiðinn eða kristinn. Eg hefi þvf leitað mér þekkingar um þessi orð í fornsögum vorum og eldri ritum. í skýring yfir fornyrði lögbókar, eftir Pál Jónsson Vídalín lögmann, er löng skýring á orðinu heiðni. Hann segir að orðið sé komið frá heiður, sem við nú nefnum heiði, og heiði af hæð eða liávöðum. Framan af þektu menn lftið til sigiinga, ogbjuggu upp um heiðar og hálendi og lifðu hjarðmanna lffi, og aðskildir. Á*'r elstu tfmum þótti hyggilegt að hafa hýbýli á hæð eða hóli, og sjá lengra til aðfarir óvina sinna. En þegar menn fóru að þekkja skipa og báta smíði, þá safnaðist fólk ofan úr landi og settist að við sjó og vötn. Þá kemur fram að orðið heiðingi er haft yfir þann er af heiðinni kom, og þótti virðingar orð. Þeir höfðu aðra siðu og háttu, en þeir sem fyrir voru, og einnig annan átrúnað, og kölluðu þeir sem fyr- ir voru hann heiðni, en trúendur hans heiðinga. Páll lögmaður Vfdalín segir: “Heiðni merkir allan átrúnað þann, sem eigi er annaðhvort á þann fyrirheitna Messias eða á hans opinberuðum vilja grundvallaður.” Að hans dómi er heiðni alt sem til ákalls og dyrkunar goðanna snertir, og öll önnur trúarbragða áköllun. Blót offran og heit til goðanna er lieiðni, osfrv. Margir fornmenn offruðu goð unum, löndum, gripum munum, og hétu á þau til fulltingis, og bundu sig í móti að vera þeim trúir og dyggir, og halda minn- ingu þeirra á lofti. Þórólfur Mostrarskegg helgaði Þór fjallið um sfna daga og afkomenda sinna. Þorkell á þverá gaf Frey uxa, segir í Vígaglúmssögu. Hrafn- ketill í Hrafnkelsdal helgaði Frey, hestinn góða, Freyfaxa, og Ásbjörn Reirketilsson, hdlgaði land sitt Þór, og kallaði Þórsmörk. Helgi magri hét á Þór til sjóferða og harðræða. Einnig voru það heiðn- ir menn kallaðir, sem frömdu á- trúDað ineð yfirsöngum og gerninga atferlum, t. d. Svanur á Svanhóli; og Gríma á Eiríksfjarðarbotni, á Grænlandi, er hún villir sjónir fyr- ir þórdísi af Löngunesi, er hún leitaði Þormóðar hjá henni, en sá ei nema Þór ristan á stólbrúðuna, þótt Þormóður sæti ætfð í stóln- um ineðan Þórdís leitaði. Margir fleiri sýndu innilegan heitan átrúnað á goðin, en liér er liægt að segja, og var það alt þá kall- aður heiðindómur. Svo segir f Kyrkjurétti þeirrra Þorláks og Ketils byskupa: “Þá blótar maður heiðnar vættir, ef hann signir fé sitt öðrum en guði og helgum mönnum hans.” 25 cents punds kanna. — 3 verðlaunamiðar 1 hverri könuu. PENINGAR og Bökunarefni, Egg, Mjöl og fleira sparast með þvf að nota muE m\m wmMi rowDKR sem ætíð hepnast vel. Engin vonbrigði vib bökun, þegar það er notað. Biðjið matsal- ann um það. t n e Bíue Ribbon Hfg., Co. WINNIPEG. — — MANITOBA M. TuMuMMúiu iiiMuiiú iMúmmmm uuuutj Orðið heiðni merkir þá í eðli allan átrúnað, sem ekki er bygður á átrúnaði á hingað komu J. Kr. eða hvflir á kenningum hans. Orðið er fallegt og hefir víða merkingu. Heiðingi er þá aðeins sá maður sem ekki trúir á Krist. En sá maður sem kristnast hefir sam- kvæmt fyrirskipunum hinna lút- ersku trúarbragða, og heldur trú sína, eða hefir ei opinberlega afneit- að henni, hann er kristinn maður þó hann standi ekki f þessum eða öðrum kyrkjulegum félagsskap. Að Helgi magri verður að teljast heiðin maður er ekkert vafa- mál, og er það honum og minningu hans als ekki til vansa að telja. Og eftir kyrkjurétti þeirra bysk- upanna Þorláks og Ketils, þá heyr- ir það undir heiðni að “signa” heiðnum mönnum fé, tíma og dýrkun. K. Asg. Benecliklsson. GUNNAR Á HLÍÐARENDA. Herra ritstjóri:— í Heimskringln 2 þ. m. sé ég grein “Úr bröfi úr sveit,” hvar í Gunnar á Hlíðarenda er talinn að vera sá mesti maður, sem Island hefir átt eða mun eignast. Að Gnnnar hafi í ýmsu verið framar mörgum, eða máske flestum, dettur mér ekki í hug að véfengja, en að hann hafi verið liinn mesti maður, sem Island hafi átt, eða mun eignast, álft ég of hermt. Ef skoðað frá óhlutdrœgu sjónar- miði, þá var breytni hans við konu sína alt annað en heiðarleg. Að hann hafi vopnfimur maður verið, er óefað, en ekki man ég eftir neinu í Njálu sem gefur nokkrar ástæður fyrir að álíta að hann hafi verið sérstaklega vænn eða skynsamur. Jeg hefi mikið líka skoðun um Hallgerði, sem hafði Sig. Breið- fjörð, og hefði hún ekki orðið fyrir þvf óhappi að vera gift, nauð- ug manni, sem, svo að segja, ekk- ert kvað að, þá hefði hún alla daga sfðan hún var til, verið álitin merkur og mikilsháttar kvenn- maður. I öllu falli er hægt að sjá, að höfundur Njálu, liafði þann ásetning í lijarta sfnu að gjöra allt sem hann gat, Hallgerði til skammar, en Bergþóru til sóma. Það er ómögulegt að hrekja, að Úlfljótur,Þorgeir Ljósvetningagoði, Hallur af Sfðu, Skapti Þóroddsson Njáll, Kári Sólmundarson, Snorri Sturluson, Jón Sigurðsson, Konráð Gfslason, Valtýr Guðmundsson, og margir fleiri tóku og taka Gunnari mikið fram. Ég sé enga ástæðu til að álfta Grettir As- mundsson nokkuð ófrægri mann en Gunnar, og svo eru margir fleiri. Ekki sýnir það mikla skynsemi af Gunnars hálfu, ef hann átti ekki nema einn boga- streng, og vissi þó vel að hann sem annar lögbrotsmaður átti iff sitt mest undir boga sínum. Shakespeare segir á einum stað: “Some are born great, someachieve greatness, and some have great- ness thrust upon them.” Og sfn- ist mér að Gunnar, þó röskur, fimur ©g liðvaskur, tilheyri sfðasta flokknum. í gegnum rangsleitni og vanafesti þá verða sumir án sérstaklegra tilverkana að nokkurs- konar dýrðlingum, .en aðrir að níðingum. . John Thorgeirson, DÁNARFREGN. Hinn 8. Júnf andaðist að heimili Gunnars sonar síns í Marietía Wash., öldungurinn Jóhannes Sveinsson Hólm, er lengi bjó á Korreksstöðum f Hjaltastaðaþinghá Sfðar á Hjartarstöðum í Eiðaþing- há, og eftir 1885 1 Minnesota. Jóhannes sálugi var á 74. aldurs- ári, þjóðhagur og merkur fróðleiks- maður. Hann lætur eftir sig aldurhnigna ekkju, Soffíu Viljálmsdóttir og 4 sonu; Gunnar, Viljálm, Sveinn og Guðjón, nf útskrifaðan frá Minne- sota-rfkis liáskólanum er faðir hans lést. Winnipeg Fyrir nokkru sfðan hefi'- Magnús J. Borgfjörð, 781 William Ave., byrjað á aldinabúð og svaladrykkja verzlun. Á miðvikudagskveldið í vikunni sem leið voru ákaflega miklar þrum- ur og eldingar hér f bænum og grendinni. Fylgdi þeim hellirign- ing. Var það nokkuð yfir 2 þuml. á hálfum öðrum klukkutfma. Eld- ingum sló niður í talþræði og raf- víra þá, sem knýja strætisvagnana áfram, svo sumstaðar hættu vagnar að ganga. Þó urðu ekki stórskemd- ir hér í bæ. Guðmundur Símonarson, sem búið hefir að Brú P.O., Man., biður þess getið, að hann sé nú alfluttur með fjölskyldu sfna til Glenboro. Allir þeir, sem eiga bröfaviðskifti við hann, eru beðnir að árita bréf hans þannig: W. G. SIMONS, Glenboro P.O., Man. FÆÐI OG HÚSNÆÐI Nokkrir menn og konur geta feng- ið fæði og húsnæði hjá Mrs. Sam- son, 508 Langside St. Veðrátta er blaut, stormasöm og hvikul, fólki er þess vegna hætt við köldu,kvefi, hæsi og brjóstsjúk- dómum. Beztu meðulin eru Dr. Eldridge lióstameðulin. Þau bregð ast aldrei, séu þau tekin f tfma. Þau fást hjá Kr. Á. Benediktssyni, 409 Young st. Á stríðsvelli lífsins HINN AQŒTI ‘T. L.’ Cigar er laugt á undan, menn ættu ekki að reykja aðia yindla en pá beztu. Búnir til hjá : L WESTERN CIGAR FACTORY | Thos. Lee, eigandi. 'WINriTIPEG-. FYRIRSPURN um hvar Olafur Gunnar, sonur Kristjáns sál. Sigurðssonar Back- manns er niðurkominn. Kristján sál. faðir Ölafs mun hafa flutt frá Meðalheimi á Sval- barðsströnd við Eyjafjörð til Ont., Canada, og þaðan aftur til Nýja Is lands, Man., á fyrstu árum land- náms þar, og svo þaðan hingað suður í Víkurbýgð, N. Dak., og dó hér síðastl. ár og lét eftir sig tals- verðar eignir, og er ég gæzlumaður þeirra á meðan þessi meðerfingi er ekki fundlnn, eða þar til skyl-1 yrði laganna er fullnægt. Sé því nokkur, sem veit um þennan ulaf Gúnnar. óska ég hann geri svo vel og láti mig vita það. Mountain, N, D. 28. Febr. 1904. ELIS THORWALDSON KETVIVARA vantar fyrir Big Point skólann No. 962^sem hefir tekið annað eða þriSpfi kennarapróf. Kenslutíminn er 10 mánuðir frá Ista September, 1904, til 30. Júní, 19Ó5. Lysthafendur snúi sér til undirritaðs, er tek- ur á móti tilboðum til 15. Júlí, 1904. Tiltakið kaup og mentastig. Verðið að geta kent söng. Wild Oak P.O., þann 26. Mal, 1904. INGIM. ÓLAFSSON, Skrifari og féhlröir. Qisli Johnson PRENTARI 656 Young St. Cor. Notre Dame Páll Reykdal, Lundar P. 0., Man., selur gifting-ar- leyfisbréf hverjum sem hafa þ&f. Coronation Hotel. 523 MAIN ST. Carroll & Spence, Eisendur. Æskja viöskipta íslendinga, gisting ddýr, 40 svefnherbergi,—ágætar máitíöar. Þetta Hotel er gengt City HaU, heílr bestu v lföng og Vindla —þeir sem kaupa rúm. þurfa ekki nauösynlega aö kaupa máltíöar, sem eru seldar sérstakar. Department of Agricul- ture and Immigration MANITOBA. TILKYNNING TIL BÆNDA: Það koma nú daglega inn í þetta fylki hópar af ungum mönnum frá Austur Canada og Bretlandi, sem vilja fá bændatinnu. Margir þeirra eru æfðir vinnumenn og aðrir óska að læra bændavinnu. NÚ ER TÍMINN til þess að útvega sér vinnuhjálp fyiir komandi árstíð, EF ÞÉR ÞARFNIST VINNU- MANNA 1, 2 eða 3 menn, þá ritið til undir- ritaðs og segið hvernig vinnumenn þér þarfnist, hvort heldur æfða eða óvana menn, og hvers þjóðemis, og kaup það sem pér viljið borga, Skrifið strax og forðist vonbrygði. j j. <;oi.i»F,N, PROVINCIAL OOVERNMENTT IM- MIGRATION AGENT, 617 Naiii St. Wiiiiiipcg. . Woodbine Restaurant Stœrsta Billiard Hall í Norövesturlandin Tíu Pool-borÖ.—Alskonar vin ogvindlar. Lennon A Hebb, Eiaendur. DISG DRILLS Ég hugsaði’ í æsku til frama og fjár, þá fullorðins kæmu hfn sólríku ár, þá yrði ég hugaður, sterkur og stór, með stálhönd ég inni í líking við Þór; og Illmóann slétta ég ætlaði’ í tún frá árstöðvum sólar að vestfjallabrún. Og koldimm var gjáin, sem gapandi stóð og gleypti með helkrafti sveina og fljóð, við yztu rönd móans hún bráðsoltin beið ef banað þeim gæti’ hún, sem færu þá leið; þá hét ég að fylla þann liræsvelg við barm er hefði ég krafta’ í fullvöxnum arm’. En enn er ei slöttaður Illmói sá eða’ ofan í mokað þá koldimmu gjá; í krappþýfðum móa slá kengbognir menn, í koldimmu gjánni þeir drepa sig enn; og nú er ég vaxinn, en vinnan ei nein og verðlaun frá Tfma er hundnagað bein. I ísuhaus mannlffsins öfugt snýr flest og oftast það versta, sem tignað er mest, og kvarnirnar skrölta svo helvíti liátt, að hugsunin sljófgast f glamrinu þrátt, og margir, sem eiga’ enga hugsun f haus, en hafa’ aðeins tungu, sem altaf er laus. Sem móðurlaus vorlömb f hnappheldu heft af hundum og smölum f gróðurauðn kreft, sem fyrst vilja losast og frelsi sitt þrá, en firtast og hætta og spektinni ná, — svo leiðtogar hundsitja lýðinn í heim unz legst hann og tugguna jórtrar með þeim. Og vanans hin máttugu Mundíufjöll og myglugrá trúþoka’ er hylur þau öll, * er fósturstöð andans um æskunnar skeið, sem arfleiðir börnin að þrekleysi’ og neyð, sem horfellir andann frá kyni til kyns og kveifarskap leiðir frá þessum til hins. Og því vil ég njóta þfn, ljósvakta líf, og lifa á meðan ég heimsstrauminn klýf til hjálpar að slfta þau helsterku bönd, * sem heimskuna samtengja’ um nútfmans lönd svo börnin, er ókomin brjótast um veg, til banda ei fæðist sem þú eða ég. Ég held ég sé ódeili’ í ómælisgeim, ein örlftil fluga af vængdýrum þeim er vakna við ljósgjafans lffgandi yl og lífsins fá notið um sekúndu bil, en falla t eilffan algleymsku blund þá úti er vermandi hásumar stund. Ég veit það og finn það svo vel ég er smár og vistin svo skorðuð sem kemba í lár. Mér starfsþol var lítið af lífgjafa veitt og leti mfn liamlar þvl smáa sé beitt. En þó skal ég berjast mót krossi og kvöl unz kraftarnir falla í eilffa dvöl. Ég hugsaði’ í æsku til frama og fjár, sem fljótlega breyttist f þreytandi ár. Ég sö ég verð lítill um lffdaga fjöld, því lán mitt er stopult og veröldin köld, og vonblóm mfn deyddu þau vetur og hregg, en viljinn er melétinn þráður á legg. En samt hygg ég ennþá til frama og fjár og farsældar njóta um komandi ár. — Það liggur í eðli hvers einasta manns að ásælast gæfunnar smáblóma kranz, og fyrir þá löngun þess logandi elds er lifað og barist frá morgni til kvelds. Og máske að bak við þau tilverutjöld, sem tfminn nú hylur með éljadrög köld, ég styrkleika safni við strfðsára fjöld svo stærri mér hlotnist að sfðustu gjöld og vonin mfn lifi um aldir og öld með eldsterkum vilja, sem þekkir ei kvöld. Þorst. Þ. Þorsteinsson ‘•viRiir Fólks- og vöruflutn- inga skip Fer þrjár ferðir í hverri viku á milli Hnausa og Selkirk. Fer frá Hnausa og til Selkirk á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Fer frá Selkirk til Hnausa á þriðjudögum og fimtu- dögum, en á laugardögum til Gimli og sunnudögum norður að Hnausa. Laugardag í liverri viku lendir skipið við Winnipeg Beach, og fer þaðan norður að Gimli og til baka. Fer sfðan að Gimli sama dag og verður þar um slóðir á sunnudög- um til skemtiferða fyrir fólkið. Stöðugar lendingar verða f hverri ferð, þegar liægt er, á Gimli og í Sandvík — 5 mílur f/rir norðan Gimli. Þessi ákvörðun veiður gildandi fyrir þann tíma, sem mestur fólks- flutningur verður með C.P.R. ofan að Winnipeg Beach. S. SIGURDSSON ALMANAK ' fyrir árið 1904, —eftir— S. B. BENEDICTSSON, er til sölu hjá höf., 530 Maryland St, Winnipeg, og hjá útsölu- mönnum.—Verð 25 cent. Nú er tíminn t 1 sumarplæeinga. Og Hversvektna skylduð þér þá ekki fá JOHN DEERE eúa Moltue plóg og spara ydur óþatfa þreytugaug ? Sé lard vðar mjög límkent þá eefst JOHN DEERE Disc P.ógur bezt. Deir eru léttir og bteglega uotaðir og rista eins breitt far og hverjum þóknast og eru hinir beztu í snúningum. Það eru beztu plógarnír, seoo nú eru á marknðnuui. C. Drummond=Hay, IMPLEMENTS & CARRIAGES, BELMOITT MjVrST- BRAUÐIN GÓÐU eru gerð með vélum og seljast og étast á flestum heimilum í þessum b*. Þeir, sem bragða þau einu, sinui kaupa þau ætíð síðan. ísrjómi og brjóstsykur af öllum tegundum er til- búinn af oss og er það bezta af sínni tegund i Canada. Nýtt og ferskt og gómsætt. BOYD’S McINTYRE block ’PHONE 177 8onnar& Hartley, Lögfræðingar og landskjalasen jarar 4#4 llain 8t, -- - Winnipeg. R. A. BONNBR. T. L, HARTLBY. i

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.