Heimskringla - 08.02.1906, Blaðsíða 1

Heimskringla - 08.02.1906, Blaðsíða 1
Arni Eggertsson Land og Fasteignasali "Útvegar peningalán og tryggir líf og eignir Skrifst-'fa: Room 210 Mclatyre Block. Telephone 3364 Heimili: 671 Ross Avenue Telephone 3033 ingu við fangelsisdóminn, — svo þótti honum d/rslegt athæfi þessa manngarms. — Þann 2. þ. m. kom eimskipið Gemma, sem er þýzkt, til Leith á Skotlandi. Skipshöfnin segir, að smáskipafloti óþektur haíi skotið á sig nokkurum sinnum. Þetta skeði f Norðursjónum nálægt Kategat kl. 9 að morgni f>ess 27. f. m. Færið var litið meira en skipslengdin. Ytirstýrimaðurinn á Gemma særð- ist töluvert og leitaði læknishjálpar strax og hann kom til Leith. Hann segist hafa hevrt orðaskil, en skildi ekki málið. Öeldur helzt að það hafi verið finska, sænska eða rfiss- ncska. Alls var skotið um 7—8 skotum — Canadian Pacific félagið er farið að bjóða npp verk við járn- brautarbyggingar í Norðvestur- landinu. Ætlar að byggja þar fá- eina brautarspotta næsta sumar, og er éætlaður kostnaður við það um B millfdnir dollara. Það sem sama félag hefir ákveðið að byggja í Manitoba næsta sumar eru fram- lengingar á Winnipeg Beach og Teulon brautunum. Og héldu nfi fbfiarnir, að morð hefði verið framið, og hlupu út á götu. Það varð hið mesta uppþot alt f kring um bygginguna. Loks réðust B lögregluþjónar inn í húsið með spentar skammbyssur, fundu köttinn, en hvorki f>jófa né morð- ingja. Kysa flúði undan en þeir eltu hana, og murkuðu úr henni lffið með 3 skotum niður í kjallara horni. Þetta er einhver sfi merki- legasta herför, sem nokkur köttur hefir farið og sögur geta um. — Tfu ára fangavist heíir skip- stjóri sá f New York borg hlotið, sem stjórnaði skemtiskipi þvf, er brann þar í fyrra og varð yfir þús und manns að bana. 8viksemi í embættisfærslu sannaðist á hann og var sfi sviksemi talin bein orsök þess, að skipsfólkinu varð ekki bjargað, er eldur kom upp f skemti- skipinu. — Meðal annars f fjárlagafrum- varpi Japana, sem borið var fram f Tokio þinginu þahn 24. janfiar, eru ákveðnar 225 millfónir dollara til þess að kosta flutning hermanna og hergagna frá Manchuriu til Japan, og “til annara herm&la r&ð- stafana. — Mrs. Sliure í Grand Forks hetir leitað á náðir lögreglunnar þar og beðið liana að vernda sig fyrir ofsóknum hr. Winters nokk- urs, sem hfin hefir búið með þar í bænum um tfma. Konan kveðst hafa búið með bónda sfnum, Shure, & landi 2 mflur frá Winnipeg, þar til þessi Winters kom þar & heim- ilið. Hann sagði konunni að hann elskaði hana og að hann væri vel fjáður. Hfin trúði þessu. Wint- ers stakk svo upp & J>vf, að hfin yfirgæfi bónda sinn og heimili og flytti með sér til Grand Forks, J>ar sem allar eigúir sfnar væru. Hfin gerði þetta. En er þau hefðu bfiið saman þar um vikutfma, sagði hann henni hreinskilnislega, að hann væri öreigi, og að til J>ess að hún gæti unnið fyrir sér og honum yrði hfin að setjast að í vændis- kvenna hfisi einu par f borginni. Það taldi hann vera arðvænlegan atvinnuveg er mundi leiða mikla gæfu yfir þau bæði. Þá varð J>að að ást konunnar til manns þessa kólnaði snögglega og hfin leitaði til lögreglunnar og bað hana að koma sér til Winnipeg aftur. Hfin kvaðst vera viss um, að bóndi sinn mundi fyrirgefa sér og taka sig f fullkomna sátt. — Það er verið að bfia undir kosningarnar á Rfisslandi. Þing- mannsefnin eru farin að bjóða sig fram og klfibbar og klikkur mynd- aðar í óða önn. Hvergi er undir- búningurinn meiri en f Moscow. Það hafa sex eða átta pólitisk félög myndast þar og ætla að sameina sig um að gefa fit pólitiskt blað. Ritstjóri þess á að verða Prins Eugene Troubetskoy. Gapon prest- ur, sem flfiði fir Pétursborg við fyrstu uppreistina J>ar, sækir um þingmensku í einu kjördæminu í borginni. Hann hefir farið huldu höfði um Sviss og Frakkland, en er nú kominn heim til Pétursborg- ar aftur og hamast í kosninga und- irbfiningi. Hann sækir nú undir merkjum verkamanna. Hann er á sama tlma að vinna að J>vf, að verkamenn geri samtök og stofni stórt verkamannablað. Telur hann þegar nauðsynlegt að fræðast um ýmsa hluti utan lands og innan, þvf þekking J>eirra sé mjög lítil og ólioll. — Frakkar eru að gera aðskiln- að á ríki og kirkju. Klerkalýður og sumir safnaðarmenn berjast af alefii á c.óti og gengur svo langt í seinni tfð, að áflog og meiðingar eru f kirkjum. Eitt upphlaupið kom fyrir nýlega f Parfs. Var lög- reglan sótt að skakka leikinn og voru tveir lögregluþjónar stór- meiddir, en söfnuðurinn hékk f hárinu hver á Jiðrum og rifu og bitu sem óarga dýr. Spurningar og Svör. 1. Hvernig á sú kona að fara að, til þess að geta fengið algerðan skilnað frá inanni f>eim, sem hetir hlaupið frá henni og yfirgefið hana að öllu leyti? Og hvað mundi það kosta hana? 2. Nú verður uppvfst, að maður- inn hefir brotið og verður sannur að sök, hvernig fer þá konan að, til þess að geta fengið löglegan skilnað, og hvað mundi það kosta? SVÖR. — 1. Hjónaskilnaður f Canada fæst að eins með leyfi ríkis- ♦----------------------------» Fregnsafn Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. Fullnaðarskýrslur yfir nýafstöðnu kosningarnar á Bretlandi sýna, að Liberalar hafa þar náð B76 sætum í þinginu, Unionistar 160, Nation- aiist^r 84 og Verkamenn 59. Hefir þvf Campbell-Bannerman stjórnin 7B atkvæði umfram alla liina flokk- ana til samans, og er það meira at- kvæða-afl en nokkur stjórn hefir áður haft á Bretlandi. — Skýrslur Japan-stjórnar lagð- ar fram f Tokio-Þinginu þann 28. f. m„ sýna, að Japanar vörðu til herkostnaðar frá byrjun ófriðarins við Rússland þangað til honum lauk f sept. sl., 450 millíónum doll- ara til landhersins og 90 millfónum til sjóhersins. — Rfissneskir liermenn, sem voru fangar Japana meðan á strfðinu stóð og sem að því loknu voru fluttir til Vladivostock, gera þar daglegar uppreistir og sprengja heilar járnbrautarlestir með rúss- neskum hermönnum í loft upp. Rfissastjórn sendi f vikunni sem leið heila vagnlest liermanna frá Harbin til Vladivostock til þess að þvinga þessa óróaseggi til friðar, en sú lest var einnig sprengd upp með dynamit og létu þar Iffið þrjfi þfisund vopnaðra hermanna. Þessir náungar virðast að hafa lært her- kænsku og áræði af Japönum með- an þeir voru hjá þeim. — Tilraunir voru nýlega gerðar í Edinborg á Skotlandi með að lækna krabbameinsemdir. Meðal það, sem sprautað var inn í sjfik- lingana, lieftir trypsin, og var það santiað, að i n n a n minaðar frá þvf þvf var spýtt inn í sjfiklingana var krabbameinsemdin læknuð, Um þetta leyti var læknaþing mik- ið haldið í Brussels á Belgfu, þar sem sérstaklega var rætt um lækn- ingu krabbameina. Próf. Van Er- menghen sk/rði þinginu frá, að ftrekaðar tilraunir sfnar með hið svo nefnda Jakobs lækningalyf, sem einnig er innsprautingar vökvi, liefði gefist vel f lækningum ^þess- ara illkynjuðu meinsemda Frum- efni þessa meðals er tekið úr krabbameinsemdum. En liann kvað það ekki mega notast nema af æfðum læknum, ef meðalið ætti að koma að fullum notum. Allar tilraunir lækna þessara voru gerðar að tilhlutun gamla Carnegies og fyrir borgun úr sjóði þeim, sem hanu hefir gefið til slfkrk rann- sókna. — Ástralíu stjórnin hefir aug- lýst, að hfin ætli á næsta &ri að leggja fram fé til þess að efla inn- flutning fólks frá Bretlandseyjum, er flytja vill þangað til lands, og lofar lifin að sjá u í, að fargjaldið verði mjög lágt. — Maður f Ontario, sem í áflog- um beit annan mann, var í sl. viku dæmdur f 7 ára fangelsl. Dómarinn kvað sér nœst skapi, að bæta hyð. — Nýlega héldu auðmenn í Lundfinum, sem eru hluthafar í Mutual Life Insurance Co. í New York, fund með sér. Hlutir þeirra nema $2,545,000. Fundarsamþykt var staðfest og endurrit af henni sent til New York, því þar er aðal- aðsetursstaður félagsins. Var hún á þá leið, að Englendingar lieimta, að félagið ávaxti peninga sfna & Englandi hlutfallslega að eigna- magni. Vilji félagið ekki ganga að því, þá ætla hluthafar á Eng- landi, að snfia sér til brezka þings- ins tafarlaust og láta það skerast f leikinn. — Sfðan frost óx og snjór dýpk- aði hefir viðartekjan fir Rainy Riv- er héraðinu aukist um 150 vagn- hlöss á dag. Eldsneyti er þvf heldur að koma niður í verði. — Canadian Pacific félagið flyt- ur menu þá beinustu og styztu leið sem til er kring um hnöttinn. — Leiðin er með fljótustu hraðlestum á landi og örskreiðustu eimskipum á sjó. Tveir yfirmenn félagsins eru nú að leggja af stað f hringferð þessa, og er búist við, að þeir verði töluvert fljótari en nokkur maður, sem farið hefir kringum hnöttinn áður. — Millfónaeigandi, sem býr ná- lægt New York, heitir Tonkin. Hann á son 26 ára gamlan og dótt- ur; hún er ennþá ung að aldri. Sfðastliðin 5 ár hefir Tonkin stöð- ugt fengið bréf, sem hóta honum að stela dóttur hans, nema þvf að eins að hann borgi hinu svonefnda “Félagi með svörtu hendurnar” svo og svo mikið fé. Stundðm er upphæðin $1,000,000, stundum að eins $10,000 og stuiulum $100 000. Þessar hótanir hafa aukið föður og móður stórrar áhyggju. Eftir þvf sem tfminn lfður komabréfin örara. Vörður er haldinn nótt og dag kring um Rósamundu litlu (svo heitir mærin). Og hfin er látinsem minst vita um, hvað á seiði sé. Tonkin hefir látið leynilögregtu fé- laga vera sífelt & njósnum og borg- að þeim mikið fé. En alt kemur fyrir eitt. Sonur hans hefir gifst tvisvar sinnum. Hann skikli við fyrri konuna eftir viku,en var með þeirri sfðari Iftið lengur. Sumir halda, að þessar atfarir standi f sambandi við giftingar hans, og bæði faðirogmóðir hafaollað þess- um hjónabandsrofum hans. — I Bandarfkjunum eru B konur, sem eru farand-vfnsalar. Þær ferð- ast um og taka pantanir hjá vfn- sölum. Ein þeirra byrjaði f fyrra, og hafði $11 um vikuna. Nfi hefir hfin $8B um vikuna. Ekki virðist I>að viðkunnanleg atvinna fyrir kvennfólk, að ferðast um og selja vfnföng. — í marghýsi einu f Brooklyn ærðist svartur köttur nýlega. Kona að nafni Mary Walsh bjó f einni fbfiðinni. Hfin átti dóttar 5 ára að aklri. Barnið lék sér oft við svart- an kött, sem móðir þess átti. Eitt kveld var Mrs. Walsh að bfia til kveldverð, en barnið og kötturinn voru ein í setustofunni. Alt f einu heyrir konan ógurlegt, liljóð og hleypnr inn að vitja um barnið. Kötturinn hafði þá bitið það og rifið f hálsinn. Móðurin ætlaði þegar að reka kysu fit, en hún réð- ist á konuna og reif hana. Þá kom n&búa kona hennar til hjálþar, en kysa fór með hana á sömu leið. Konurnar tóku að hljóða og hrópa. þingsins og'þá því að eins, að hór- dómssök sé sönnuð. Kostnaður við að fá skilnaðinn mundi verða sem næst $500. % 2. Sjá svör við fyrri spurning- una. Eitstj. Kristjáa Danakonungur látinn. Hver er dáinn? Danaþjóð dökkum slæðum tjaldar; geislum fágar friðarglóð fallið merki skjaldar. Kristj&n sjóli, það ert þfi þfnum horfinn lýði, Dana skjól og Dana trfi, Dana ljós og prýði! Sæmdar verkin sólu mót sigurmerki tjalda, nú þfn blóm frá nýtri rót Norðurlöndin falda. Bitur sorg frá brjóstum inst byrgir öðling dáinn, hæztu völd og hreysi minst hjfipa tárum náinn. Fregn við sára fósturmold faldinn beygir háa, þakkartár af fjarri fold flytur aldan bláa. Fyrir skjólið hjarta hlýtt, heillaráð og trygðír, friðarsól er signdi blítt svalar Snælands bygðir. Gráttu sjót þinn gram í mold, grafðu þökk á skjöldinn. Drottinn gaf þér, Danafold, Dreng, sem hæfðu völdin. Blftt að loknu lffsstarfi lifir minning valda, njóttu Kristján nfundi nfi í friði gjalda. Þfi, sem drótt á stjómarstól, stiltir kærleikseldi, tivíldu rótt, þfn sögusól signir Danaveldi. M. Markvsson. ÁRSFUNDUR ÚNlTARA. Únftara söfnuðurinn hélt ársfund sinn 21. og 28. þ.m. Tekjur safnaðarins á ár- inu voru..........$3,362.53 Útgjöld............. 3,178.60 í sjóði .......... 183.93 Yeðskuldin á kirkjunni, er var $6,000, hafði verið minkuð á árinu um $1,500, og aðrar skuldir, sem hvfla á söfnuðinum, eru litlar. Fjárhagurinn virðist þvf vera f góðu lagi. Búist er við, að tals vert verði einnig borgað f veð- skuidinni þetta ár. I safnaðarnefndina voru kosnir: Thorsteinn S. Borgfjord, Frederic Swanson, Wm. Anderson, Albert Uoodman, Eyjólfur Ólson, Magnús Pétursson, Arni Thordarson. — Dróttsetar voru kosnir: Arni Krist- jánsson og Th. M. Halldórsson. — I útbreiðslunefnd voru kosin: Ingi- gerður Stevens, Helga Halldórsson, Gertie Byron, Vilhjálmur Olgeirs- son, Hannes Pétursson, Erlendur Jónsson.— Yfirskoðunarmaður fyr- ir hönd safnaðarins var kosinn J. B. Skaptason. Forseti safnaðarins gaf munn- lega skýrslu yfir starf safnaðar- nefndarinnar á árinu sem leið og mintist þess, hve mikið söfnuður- inn hefði ráðist í fyrir rfimu ári sfðan, að byggja þessa vönduðu kirkju, eitt af hinum veglegustu samkomuhúsum, sem Islendingar eiga. Þrátt fyrir alla örðugleika hefði kirkjubyggingin blessast vel og orðið söfnuðinum til mikils góðs. Einnig mintist hann á kvennfélag safnaðarins, er hefði sýnt svo dæma- fáan áhuga og framtakssemi í starfi sfnu að velferð safnaðarins. Það hefði gefið kirkjunni 2 orgel og rafljósahjálma og áhöld í kirkjuna, er kostað hefðu til samans hátt á sjðtta hundrað dollara. Prestur safnaðarins las upp árs- skýrslu sfna yfir starf sitt f þarfir safnaðarins og finftariskra málefna hér f bœnum og 6t um nýlendur og uiintist hins liðna árs sem hins NEW Y0RK LIFE Insurance Co. A,?.Æ.r Árið 1905 kom beiðni um $400,000,060 af lífsábyrgð- um; þar af veitti fél. $296,640,854 og innheimti fyrsta ársgjald; $50,000,000 meira en nokkurt annað lífsáb.- félag hefir selt á einu ári.— $20,000,000 var borgað fyr- ir 6,800 dánarkröfur. — $20,000,000 borgað til lifandi skýrteinahafa fél. — $17,000,000 var lánað gegn 5 pró- sent rentu út á skýrteini þeirra. — Tekjur fél. hækk- uðu um $5,739,592, og sjóður þess um $45,160,099, svo sjóður þess er nfi $435,820,359. — Lffsábyrgðir f gildi hækkuðu um $132,984,578; öll lífsábyrgð f gildi 1. janfiar 1906 var $2,061,593,886. CHR. ÓLAFSSON, J G.MORGAN, AGENT. - WlNNIPEG MANAGER viðburðarlkasta í sögu fslenz^ra Unítara. Formaður bygginganefndarinn- ar las upp sundurliðaða skýrslu yfir hvað kirkjan með öllum innan- stokksmunum hefði kostað, og var það $11,398.64. Kvennfélag safnaðarins bauð fundarmönnum — á annað hundr- að manna — niður 1 samkomusal- inn og voru þar borð hlaðin fast- um, er gestunum var boðið að gera sér sér gott af. Veitti kvennfélagið öllum með sinni alkunnu rausn. 51 fullorðnir innrituðu sig f söfn- uðinn á árinu sem leið. Y fir höfuð að tala virðast fram- tlðarhorfur þessa safnaðar hinar beztu. Samsæti Helga magra að viku liðinni. Þið munið það! Sutnir spyrja: Er maturinn með eða á óg að borga fyrir hann sér- staklega? Það er áreiðanlegt. Maturinn er með. Það þarf ekkert — alls ekk- ert fyrir hann að borga sérstaklega. Og það hefir alt verið gert, sem unt er að gera, til þess hann verði konungum boðlegur. Aðrir spyrja: Á ég að koma með fslenzka bfininginn minn? Sjálf- sagt. Því fleiri konur, sem & ís- lenzkum bfiningum verða, þvl betra. Að eins 500 aðgöngumiðar verða seldir. Ekki einn umfram þá tölu. Þessa viku þarf að kaupa. Fyrir helgi, nauðsynlegt að geta látið brytann vita, hve margir verða. Munið það! Myndir, spánnýjar olfumyndir af merkum st'jðum á íslandi, gerðar af Vestur-Islendingi, verða þarna til sýnis í höllinni, til yndis og ánægju fyrir gestina. Htiskarlar. TIL GAMLA ÁRSÍNS 1905. (Á gamlaársdag). í kvöld verð ég þ& að kveðja þig ár, sem komst f fyrra með gleði ogtár. Þfi komst með gnægtir glóandi seims og gafst mörgum bðrnum þessa heims. Þfi gafst lfkamörgum grátog hrygð og gleðinni sviftir marga bygð; einkum þars blóðug banaspjót borin voru hvort öðru mót og valkðstum hlaðið I vfgamóði, velt um jörðunni fljótandi’ í blóði. Þá yfirtekur þó allra mest það, hve eftirlifandi hjörtun kveina, s$m nfi eiga’ ei lengur nokkurn að, en nístandi heljartök sorgar reyna. Þfi hefir líka böl margra bætt, blómvendi rétt og hjartas&r grætt, verið þeim blfðlynt og bætandi ár; af barnsvanga þerrað mörg hrynj- andi tár. Margur 1 draumi þig líðandi leit, lyfti’ ekki kollinum, hugannei sleit frá sfnum möljétnu maurum og þá moldjós með ánægju og gekk svo þeim fr& gramur 1 huga, af ergelsi ær, af þvf þfi fluttir liann gröfinni nær. En “dauða” er f eyrum hans fer- legast fár að flutt geti nokkurt komandi ár. Þú hefir f mörgu götuna greitt, >:rjóti burt kastað og veginum breytt. Hjá mörgum síðmenning viljað vekja og vantrfi úr hjörtunum reynt að hrekja. En aftur þfi hefir & öðrum stað aukið og margfaldað sitt og hvað, sem hindrar og drepur heimsmenn- ing alla, sem héðan af uppræta muntu valla; þvf nfi ertu að flýja fr& oss á braut og fl/ta þér inn í tfmanna skaut, hvaðan þfi aldrei að eilffu sn/r. Að eins hjá fjöldanum minning þfn býr. Já, farðu nfi vel með þitt flaksandi hár, þvf nfi fæðist um leið hiðnýja&r.— Eirikur Vigfússon. Skemtisamkoma Undir stjóm stfikunnar ísland nr. 15, A. R.G.T., verður haldin skemtisamkoma 8. febrfiar f sam- komusal Únftara, á horninu á Sher- brooke og Sargent strætum, kl. 8 e. m. Aðalskemtunin verður sýn- ing á myndum, bæði alvarlegs og gamanefnis. Þar að auki verður ýmislegt annað, bæði fyrir og á eftir s/ningunni. Inngangur 25c. NefncUn. -------------------♦ Bezta Kjöt i! og ódýrasta, sem til er f bænum fæst ætfð hjá C. G. JOHNSON Cor. Ellice og Langside St. Tel.: 2631. Thorsteinn Johnson, Ffólíns-kennari - 543 Victor St. 1-12 tf Markusson & Benediktsson selja lóðir frá 3 dölum fetið og upp. Hús fyrir Ms-virði, lönd fyrir \ verðs. Þetta stendur að eins fáa daga. Þeir fitvega Straiqht Loan & hfis með 6, 7 og 8 prósent, vá- tryggja hfis utanbæjar og innan, ásamt húsmunum, ef óskað er. Alt selt með lægra verði en hjá nokkr- um öðrum fasteignasölum. — Þeir eru agentar fyrir lóða og landeig- endur um allan bæinn. Komið og kaupið, eða biðjið upplýsinga. 205 lclntyre Bl’k., W’peg. Telephone 4159.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.