Heimskringla - 15.03.1906, Blaðsíða 1

Heimskringla - 15.03.1906, Blaðsíða 1
XX. ÁR. WINNIPEGr, MANITOBA 15. MARZ 1906 Nr. 23 Arni Eggertsson Land og Fasteignasali Utvegar peningalán og tryggir líf og eignir Skrifst'-fa: Boom 210 Mclatyre Block. Telephone 3801 Heimilí: 67L Ross Avenue * Telephone 3083 Fregnsafn Markverðustu viðburðlr hvaðanæfa. Einn af gasbrunnum Standard olíufélagsins er að brenna. Brunn- ur þessi, sem er í Kansasríkinu, varð fyrir eldingu þann 23. febr., og við það kvikuaði í gasinu, og hefir það brunnið síðan. Eldstrók- urinn stendur 150 fet í loft upp, og brennir 150 millíónum cubic feta af gasi á sólarhring. Svo er hávaðinn f logannm mikill, að hann heyrist margar mílur vegar. Félagið hefir gert ítrekaðar til- raunir til að slökkva logann, en ekki tekist það ennþá. McCurdy, fyrrum fkrseti Mutual lífsábyrgðarfélagsins, lagði af stað til Parísar í sl. viku. Áður hann fengi að fara, varð hann að gefa skriflega skuldbindingu um að koma aftur til New York fyrir 1. septemder itæstkomandi, eða fyr ef dómsmálastjóri ríkisins krefð- ist þess. þessi skuldbinding var í tilefni af því, að verið er að und- irbúa málsókn á henditr fyrver- andi stjórnendum þessa félags, út af óhreinni ráðsmettsku meðan þeir vkru við völdin. — Fellibvlur æddi í sl. mánuði yfir Society og Tahiti eyjarnar i Kvrrahafinu og gerði 5 millíón dollara eignatjón og varð 10 þús. manns að bana svo enn sé kunn- ugt, en talið víst, að mikill fjöldi sjómanna umhverfis Tuamotie eyjarnar hafi farist og þar einnig orðið mikið eignatjón, þó enn sé ekki frétt ttm það. Svo varð sjór- inn æstnr af vindmagninu, að öld- tirnar risu 75 fet í loft upp. Taron þorp var algerlega eyðilagt, öld- urnar skoluðu hverju einasta húsi burt af eyjunni; önnur þorp á ná- granna eyjunum höfðu og skolast í sjóinn með öllu fólki þeirra. Af öðrum evjum komst nokkuð af fólki undan í smábátum, eftir að sjórótið minkaði nokkuð, en svo búast menn við, að fólk það muni svelt í hel, ef það ekki hefir farist með bátum sínum. þetta er talið mannskæðasta veður, sem komið hefir yfir þessar eyjar í manna minnum. — Góðæri í British Columbia er að færa fjárhag fylkisins í betra horf. þar hefir undir McBride stjórninni verið tekjuafgangur í sl. 2 ár; nú síðast 265 þús. dollarar. N ámar gáfu af sér til fylkisins á sl ári 22 Ynillíónir dollara. — Manntjón hefir orðið á Finn- landi. Um þúsund tnanns með hésta voru þar að fiska gegnum is meðfram austurströnd landsins Alt í einu losnaði ísinn frá landi og rak undan vindi út til hafs og síðan sprakk ísbreiðan nundur við vindbreytingu. Tvo hundruð af öllum hópnum komust á einum ís- jakanum á land í Friðrikshöfn, en hin 800 hundruð manns cr talið að hafi farist, því ekkert hefir enn frétzt til þeirra. — Frá Noregi fréttist, að á föstudaginn í sl. viku hafi v»ða- stormur snögglega skollið á. 300 fiskibátar í grend við þrándheim voru á fiskimiðum, er veðrið skall á, og segir fréttin að þeir allir, eða llestir þeirra muni hafa farist. En siðar er þess getið, að 70 bát- ar muni hafa náð landi á hinum ýtnsu eyjum þar í grend. Gufuskip hafa send verið til að leita hinna týndu báta, og fundust margir af þeim á hvolfi á sjó úti. það er og talið víst, að sumir bátanna hafi komist á eyðieyjar, og eru menn því hræddir um, að skip- drotsmenn frjósi og svelti í hel, ef þeitn berst ekkl hjálp hið bráð- asta. — Tveir hænsaþjófar í bænum St. Catherines í Ontario fengu ný- lega einkennilegan dóm fyrir að stela fuglum þesstnn. Dómarinn dæmdi þá til að fara í kirkju á hverjum sunnudegi frá því dóms- ákvæðið var birt fram til 12. júní næstk., og að færa sér 2 ábyrgð- armenn- til tryggingar því að þeir hlýddu þessum dómi. Svo skyldu þeir þann 12. júní koma aftur til sín og gera grein fyrir breytni sinni á þessu tímabili. — Brezka stjórnin er að undir- búa lagafrumvarp, er veiti henni vald til að borga þingmönnum landsins. það er borið fyrir, að nýlendur Breta geri þetta, og því sé rétt, að England geri það líka. Enn er þó óvíst, hvað ofaná verð- ur í þessu máli. — Eins og getið var utn í þessu blaði fyrir nokkru, hafa Frakkar eftirlátið Bretum öll réttindi sin til fiskiveiða vrið strendtir Ný- fundnalands. Nú auglýsa Bretar, að þeir háfi borgað Frökkum 5273,080 fyrir veiðiréttinn. Um- ræður urðu um þetta í parlament- inu á Englandi, og töldu margir að Nýfundnaland liefði átt að borga þessa upphæð, þar eð það hefði allan hagnaðinn. En stjórn- in kvað sér nægja, að þeir viður- kendu, að vel hefði verið til þeirra gert. — Nýlega kvongaðist annar son- ur þýzkalandskeisara, og lét þá keisarinn það boð út ganga, að hvorki hann né brúðhjónin þægu nokkrar gjafir við' það tækifæri, en hinsvegar væri sér ljúft, að þeir, sem ætluðu að gefa brúðar- eða minnis-gjafir vildu gcfa í þess stað sömu upphæð til líknarstofn- ana landsins. Við þetta er mælt, að þær stofnanir hafi auðgast um I2l/i millíón dollara. — Eldur í bænum Teira í Japan brendi í sl. mánuði 600 íbúðarhús og varð 37 manns að bana. Ýms önnur óhöpp hafa komið fyrir þar í landi á síðustu mánuðum, svo að almenningur hefir fengið þá trú, að þetta verði óhappaár fyr- ir þjóðina, og er það að nokkru einnig bygt á gömlum spádómum. — Voðalegasta námaslys, sem komið hefir fyrir á Frakklandi, varö þar á laugardaginn var. Um 1900 manna voru að vinna í kola- náma í Carrieres héraðinu, þegar vábrestur tnikill setti alt í bjart bál. Náminn var langt neðanjarð- ar og námasvæðið afar víðlent. Verkamennirnir voru í stórhópum langt úti í hinum ýmsu göngum, og áttu ekki kost á að bjarga sér. Sagt er, að 1219 manns hafi látið þar lífið, en 590 manns komist undan. Yfir 22 þúsund manns safn- aðist að námamynninu á sunnu- daginn var til þess að leita ætt- ingja sinna, sem ttnntt i námanum. En þetta fólk varð að hverfa frá ttm kveldið með þeirri vissu, að engin von væri um björgun þeirra sem niðrí væru, og að það yrði að líða 8 sólarhringar að minsta kosti þangað til búið væri að hreinsa svo loftið í neðanjarðar- göngunttm, að hægt yrði að leita þeirra, sem kafnaö hefðu, en kynntt að finnast óbrunnir. — Eldttr í bænttm Wolseley, Sask., gerði 40 þús. dollara eigna- tjón á sunnudaginn var. það voru fjórar sölubúðir með vörum og eitt hótel sem brann. — Mál er höfðað í Prince Albert móti yfirkjörstjóranum þar út af kosningasvikum þeitn, sem áður hefir verið getið um hér í blaðinu Frekari fréttir af máli þessu verða væntanlega skemtilegar, þegar málið kemttr fyrir dóm. — Frétt frá Manchuria segir her menn alla vera að hafa sig þaðan og að verzlun og atvinnuvegir séu að færast í gott horf, og að nú sé ölltitn þjóðum, setn vilja, opið að reka þar verzlun og iðnað. Kínar eiga að hafa þar öll stjórnarráð, þótt Japanar liafi þar enn tals- verð áhrif. — Bóndi í McLeod, Alta.. sáði hveiti í 16 ekrur þann 9. þ.m. — Stjórnarskifti hafa orðið á Frakklandi. Héitir sá Sarrien, er nú hefir tekið þar við stjórn. — Fjögur þúsund manns fóru írá Montreal á laugard. var til þess að setjast að í Norðvestur- landintt. þeir eru flestir frá strand- fylkjunum. — það hefir kotnið í ljós við réttarhald í Pétursborg á Rúss- landi, að maðttr að nafni Sechoff, úr liði verkamanna og trúnaðar- maður Gapon prests, sem leiddi verkamennina í atlöguin þeirra móti stjórnarhernum í róstunum miklu, sem ttrðu þar í landi fyrir fáum mánuðum síðait, — var svik- ari í verkamannaflokknum og þáöi fé bæði frá þeitn flokki og einnig frá stjórninni til þess að vísa her- mönnum hennar á leiðtoga flokks- ins. Hann var kærður um að hafa fengið 525 frá prestinum til að starfa að málutn stéttarbræðra sinna, en svo að fénu fengnu gekk hann í leynilögreglulið keisarans, og vann það verkamönnum hið mesta tjón. Fyrir réttinum gekk alt vel, og leit svo út sem ltann tnuttdi verða fríkenflttr, en alt í eintt þreif hann skamtnbyssu upp úr vasa sínum og réð sér bana í réttarsalnum. þykir þetta bcnda áreiðanlega á sekt hans. — General Booth vill láta Ott- awa stjórnina borga fargjöld fyr- ir menn þá, setn hann ætlar að flytja til Canada í sutnar. Segir hattn það vera í hag ríkinu, að þeir setjist hér að. — Friðrik A. Burnham, forseti Mntual Reserve lifsábyrgðarfélags- ins í New York, og Gek. Burnham bróðir hans og Geo. D. Eldridge, báðir varaforsetar sama félags, vortt þann 8. þ. m. kærðir um skjalafölsun og þjófnað. Fimm kærttr eru færðar móti hverjum þessara tnanna. þær ern afleiðing af rannsókn, sem dómsmálastjóri ríkisins hefir haft nteðferðis í sam- bandi við stjórnsemi félagsins í sl. nokkra mánttði. Jjeim er kent um að hafa notað fé félagsins til eig- in þarfa. Stærstu upphæðirnar, sem kærttrnar eru bygðar á, ertt $1500 og $7500; en skjalafölsunin felst í því, að bæknrnar hafa ver- ið ranglega færðar til þess að hylma yfir þessa þjófnaði úr fé- lagssjóðnum. Sakirnar ná aftur til október 1901. Enn er Óvíst hvernig máli þessu reiðir af. — Prófessor Robert Koch í Ber- lín hélt nýlega fyrirlestur fyrir keisarantttn og öðru stórmenni um “Svefnsýkina” svo nefndu, sem ltann rannsakaði í Suður-Afríku á sl. ári. Hann kvað stungu “gloss- ina palpalis” flugunnar orsaka sýk- ina, sem hann kvað hafa orðiö 200 þús. manns að bana þar í landi. Lækning eða vörn gegn sýk inni væri enn ófunditi, en hann vonaði að geta fttndið hvort- tveggja. — Morocco þrætan milit Frakka °g þjóðverja, sem rædd hefir verið sérstökum þar til settuin fulltrúa- fundi, er enn óútkljáð. þjóðverjar hafa að vísu látið undan í nokkr um smáatriðum, en halda á hinn bóginn fast við jafnrétti sitt við Frakka í Morocco. Öll stórveldi Iívrópu hafa tekið þátt í fundi þessum í þeitn tilgangi, að binda að einhverju leyti enda á þrætunaj En samkomulag hefir enn ekki orðið í einstkikum þýðingartnikl tttn atriðum. — þann 7. þ.m. tók hin tilvon- andi Spánardrotning formlega hina katólsku trú. Var þá mikið um dýrðir, lesiö upp blessunar- óska bréf frá páfanunt og prin sessunni færðar tnargar og dýrar gjafir. — Gamli Andrew Carnegie hefir nýlega ritað í brezk blöð og held- ur því þar fram, að auðlegð auki að engu leyti sanna sælu mann kvnsins. Hann telur þann mann sælastan, sem hefir góða heilsu og svo nægilegt fyrir sig að leggja, að hann þurfi ekki að óttast skort á elliárum sinttmj Alt, sem þar sé framyfir, auki óþarfa áhyggjur og dragi úr hinni sönnu lífsgleði, sem allir eigi að geta notið. ÍSLAND. I)r. Finnur Jónsson hrfir fengið riddara-orðuna — Helgi Péturs- son hefir fengið doctors nafnbót við Kaupmannahafnarháskóla fyr- ir ritgerð um jarðfræði íslands.— Pþnar Jochumson hefir verið dæmdur sekur um goðgá og sekt- aður 50 krónu fjárútlát og máls- kostnað, og það eintak “Hróps- ins” gert upptækt, sem guðlastið var í. — Gullsveig, all veglegan, heíir stjórn Islands gera látið og sent utan til þess að leggja hann á kistu Kristjáns konungs sál. (er það myndarlega gert og mttn mæl- ast vel fyrir heitna ekki síður en í Danmörku. — Ferðaáætlun sam- einaða gufttskipaféfagsins milli ís- lands og útlanda á þessu ári sýn- ir, að skipin fara frá Leith áleiðis til Islands þessa daga: 17. jan., 6. og 20. fcbr., 6., 7. og 17. marz, 10., 12. og 28. apríl, 5. og 19. maí, 2., 5., 14. og 19. júní, 14., 24. og 31. júlí, 1. og 18. ágúst, $3., 18., 19. og 22. sept., 2. og 20. okt. og 4. des. Frá Reykjavík áleiöis . til útlanda: 9. og 18. febr., 3. 18. og 25. marz, 4. kg 30. apríl, 11., 14., 16. og 24. tnaí, 19. og 29, júní, 2., 9., 15. og 24. júlí, 14., 27., 28. og 30. ágúst, 1. og 25. sept., 11. og 25. okt., 2. og 10. nóv. og 11. og 17. des. — það sem af er þessum vetri mun varla hafa átt sinn líka manna minnutn sunnanlands. Jörð var plægð í des. og janúar. Nýtt blað, er nefnist “Lög- rétta”, er heimastjórnarflokkurinn farinh að gefa út í Reykjavík þorsteinn Gíslason er ritstjóri þess og er blaðið hið myndarleg- asta. A Akttreyri hefir sami flokk- ttr keypt blöðin “Gjallarhorn” og Stefnir”. þau verða bæði látin hætta að koma út, en í þcirra stað á að koma út nýtt blað, et heiti “Noröri”, með Jón Stefáns- son fyrir ritstjóra. — Látin er í Reykjavík Margrét Árnadótt\r, ekkja Jónasar sál. Helgasonar, organista. Sömuleiðis Friðrik Gíslason, ljósntyndari, 35 ára gatn all, úr lungnatæringu. — 30. jan. varð Stykkishólmspósturinn, Mar- ís Guðmundss’on, úti og 2 menn með honttm. þeir fundust frosnir niðttr í flóa skamt frá bænutnGrís- hóli í Helgafellssveit. — Gamall maður, Jón að nafni, hafði og orðið úti í sama veðrinu. — 1 miðjum janúar brann íbúðarhús í Feigsdal í Arnarfirði til öskn. Fólkið gat með nautnindum forð- að sér, en engtt af muntttn varð b.iargað, nema litlu einu af rúm- fötum. Húsið var vátrygt. — 1 Reykjavík hefir taugaveiki gert vart við sig, einn tnaður látist úr henni. — “Dagfari”, hið nýja blað Austfirðinga, sem Ari Jónsson er ritstjóri að, hefir byrjað göngu sína; það er landvarnarblað. — Fréttin utn lát Kristjáns konungs barst með loftskeytum til íslands, gegnutn England, sama daginn og andlátið bar að. Konttngur andað- ist í Kaupmannahöfn kl. 2.30 e.h., en fréttin var í Reykjavík ttm kveldið sama dag. — Taugaveiki í Hafnarfirði í jan. sl., 3 eða 4 hafa dáið þar úr henni og nokkrir aðrir liggja sjúkir. — Vindstorm ar feyktu Holtskihkju í Fljótum, þinghúsi á Hjalteyri og timbur- húsi á Hömrum i Eyjafirði, einn- ig nkkkru af heyjutn. Bátar brotn uðu á Eyjafirði og hús fuku í Naustavík. — Vörugeymsluhús á Svalbarðseyri við E)-jafjörö urðtt eldi að bráð um áramótin, hús og vörnr vátrygt. — Trúvakning haf in í Reykjavík og fólki stefnt sam- an á fjölmennar bænasamkontur. Prentaðar auglýsingar, sem út var býtt, sýna fyrir hverjum beðið skal á hverjum degi. Eitt kveldið var beðið fyrir Japan, Kína, Tí bet, Indlandi, Arabíu, Tyrklandi og Afríktt, einkum fyrir Sfttdan °K Nígeríu, og fyrir katólskum og heiðnum landshlutum í Norðttr og Sttður Ameríku^ Indlandseyjttm, Kyrrahafseyjtim og Ástraliu. En Kirkjublaðið tjekur þessu fálega. KENNARA vantar til Mary Hill skóla, nr.987 Kenslutími 5 mánuðir, frá 1. maí næstkomandi. Umsækjendur snúi sér til undirritaðs fyrir 15. apríl næstk. og tiltaki kaup. Th. Jóhannsson, Mary Hill, Man. Winnipe^. Hr. Bjarni Stephansson. Glen, forsa, var á ferð hér í bænutn um helgina er leið. Hann var að finna börn sín hér í bænum, og fór héð- an vestur til Lake Manitoba, að finna bróður sinn, er þar býr. Hr. Stephansson lét vel af líðan og heilsufari í sínu bygðarlagi, Ný- lega hrapaði Englendingur ofan i brunn og hálsbrotnaði. Hann átti heima ekki all-langt frá Stephans- son. B. Stephansson er einn með efnaðri bændum þar í bygð, samt er hann til meö að selja lönd sín, og leita sér bústaðar annarstaðar. þar eru lönd Ji2—525 ekran, og landgæði í betra lagi. Vér leiðum athygli lesendanna að land og ábyrgðarsölu hr. Geo. S. Shaw í Blaine, Wash., sem aug- lýst er í þessu blaði. þeir setn vifdu taka sér bólíestu þar vestur ströndinni, ættu að skrifa honutn og fá upplýsingar. þeir herrar Sigurður Iljaltalín og S. R. Johnson, frá Mountain, N.D., komu til Winnipeg í sl. viku Sigurður á leið til Nýja Islands, til að finna kunningja og vini þar, en Johnson til lækiringa hér i bæn- um við fótarmeiui. Frá West Selkirk fluttu í þessari viku allarnir með fjölskyldur sínar Jón Andrésson, til Pt. Robertsog þorlákur Guðmttndsson, til Blaine, Waslt. þeir biöja Heimskringlu að skila kærri kveðju til Selkirkbúa. Héðan úr bænutn fluttu í þess- ari viku til Edmonton í Alberta Carl Vopni, Benedict Clementsson, Thorv. Swanson, Swan Swanson og einhverjir fleiri. Flestir munu þeir hafa farið til að sjá sig um í Edmonton, en líklegt þó að sttm- ir þeirra setjist þar að fyrir fult og alt, því nú kvað vera veltiár þar í héraðinu. Prince Arthur of Connought er væntanlegur hingað til bæjarins þ, 9. apríl næstk., kl. II f.h. Bæj- arstjóruin er þegar tekin að búa undir komu ltans hingað. Galicíumaður einn stakk annan landa sinn til bana ltér í Norður- bænum á lattgardagskveldið var. þeir voru báðir ölvaðir og lentu í illdeilum út af konu einni á Magn- us avenue. Hr. Stefán J. Hallgrímsson, frá Garðar, kom tneð móðnr sína Mrs. Hallgrímsson, hingað í sið- ustu viktt. Hann flutti hana á sjúkrahúsið hér í Winnipeg. Hún gekk undir uppskurð strax. það murt vera krabbamein í brjóstinu, sem að ltenni gengur. Henni líður tnjög vcl eftir uppskurðinn, og er búist við, að hún þurfi ei að vera þar nema lítinn tíma. Safnaðarfundur verður haldiriii f Tjaldbúðar kyrkjunni kl. 8 annað kveld (16. þ.m.) Fólk er beðið að fjölmenna & fundinn. Stúdentafélagið heldur fund á laugardagskvöldið kemur, kl. 8, á venjulegum stað. Búist við að Dr. Brandson flytji þar ræðu. Fölags- menn beðnir að fjölmenna. H. M. HANNESSON, Lögfræðingur Room 502 Northern Bank, horni Portage ave. og Fort street, Winnipeg Markusson & Benediktsson selja lóðir frá 3 dölum fetið og upp. Hús fyrir t/2-virði, lönd fyrir ^ verðs. Þetta stendur að eins fáa daga. Þeir útvega Straiqht Loan á hús með 6, 7 og 8 prósent, vá- tryggja hús utanbæjar og innan, ásamt húsmunum, ef óskað er. Alt selt með lægra verði en hjá nokkr- um öðrum fasteignasölum. — Þeir eru agentar fyrir lóða og landeig- endur um allan bæinn. Komið og kaupið, eða biðjið upplýsinga. 205 Melntyre Bl’k., W’peg. Telephone 4159. Landi vor herra G. H. Jenson, ttmferðaerindsreki fyrir The North West Thresher Co., hefir beðið oss að geta þess, að félag það, sem hann starfar fvrir, hefir sett á stofn skrifstofu hér í Winnipeg, í þeim tilgangi, að ltafa þaðan út- sölu á þreskivélutn og öðrttm ak- uryrkju verkfærttttt, sem það býr til í bæmttn Stillwater, Minn., í verkstæðum síntnn þar, — svo sem þreskivélum, guíuplógutn og nýjustu “cross cotnpoiind double cylinder" vélum, sem draga plóga og vinna tneð gufuafli önnur störf til verkaléttis á búlöntþtm bænda. Herra Jensen biður þá ísiend- inga í Manitoba og Norðvcstup Iandinu, setn kynnu að vilja k .ltit- ast þessum ágætu akuryrkjtp-erk færum, að skrifa sér til, og kveðst hattn þá strax skttli senda þeim myndabæklinga og verðlista og gefa þeim allar upplýsingar lút- andi að vélum, setn þeir óska. Skrifstofa hans er á horninu á James og I’rincess st., hér í bæm um. Áritan hans er: G. H. Jen- son, P.O. Box 664, Winnipeg. Kvennfélag Tjaldbúðar-safnaðar hefir ákveðið að halda samkomu f kyrkjunni þriðjud. 27. þ.m. Hr. Jónas Pálsson hefir lofað að syngja þar og verður það f fyrsta sinni að hann syngur hér opinberlega. Hann syngar þar einn og svo f tvfsöng með PAli bródur sfnum. Prógram sfðar. Inngangur 25 cts. HERBERGI TIL LEIGU með fæði að 691 Victor Street. Central Bicycle 5hop... 5G6 Jíotre Dame W. (rétt fyrir vestan Young St.) Ný og brúkuð hjól til sölu Allskonar aðgerðir fliótt og vel afgreiddar pegn sanngjörnu verði — Gamlir skiftarinir beðnir að muna eftir staðnnm. Bárður Sigurðsson & Mathews. Skínandi Veggja-Pappír Ég levfl mér aö tilkynna yÐur aö ég hefl ná fengiö inn meiri byrgöir af veggja pappir, en nokkru sinni áöur, og sel ég hann á svo láu veröi, aö slikt er ekki dœmi til í sögunni. T. d. hefl ég ljómandi góöan, sterkan ag fallegan pappír, á SV4c. rúlluna og af Ollum tegundam uppl 80c. rúlluna. xMlir prisar hjá mér 1 ár eru 25 — & prósent lægri en nokkru sinni áöur. Enfremur hofl ég svo miklu úr aö velja, aö ekki er mér annar knnnnr i borginni er meira hefir. Komiö og skoö- iö papplrinn — jafnvel þó þiÖ kaupiö ekkert. Ég cr sá eini íslendingur í öllu land- inu sem verzla meö þessa vörutegund. 8. Anderson 651 Bannatyne Ave. 103 Nena St. Flestir kunna illa viö græn föt. En þegar græna litnuru er blandaö saman viö rauöau, bláan og gráan lit, þá hverfa allar aöflnslnr. Hvergi 1 borginni er hœgt aö fá góö föt, þar sem þessum litum er eins snildarlega hlandaö saman, eins og í Tuttugustu Aldar fötunum sem seld eru hjá Hyndman & Co. Fatasalar Þeirra Manna Sem Þekkja Sitt The Rialto. 480t^ Main St.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.