Heimskringla - 22.03.1906, Blaðsíða 1
XX. ÁR.
Nr. 24
WINNIPEG, MANITOBA 22. MARZ 1906
Arni Egprtsson
Land og Fasteignasali
Utvegar peningalán og
tryggir líf og eignir
SkrifsWft: Room 210 Mclatyre
Block. Telephone 8364
Heimili: 671 Ross Avenue
Telephone 3033
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Síðustu fréttir frá Noregi um
skipskaða og manntjón, sem getiS
var um í síðasta blaöl, segja, að
öll skipin séu fundin nema 8 bátar
og ekki vanti nú meira en 25 af
mönnunum. Talið er víst, að bæði
þessir menn og skip hafi týnst í
sjóinn.
— Nýlega héft háskólakennari
Robert Koch fyrirlestur í Berlin,
um stingflugurnar (Glossina palpa-
lis) í Afríku. Keisarinn sjálfur og
og margt annað stórmenni hlust-
uðu á þennan heimsfræga bakteríu
fræðing. Hann dvaldi í sumar sem
feið nokkra mánuði í Afríku og
ferðaðist um héruð, sem liggja
tindir miðjarðarbaugnum. Sting-
flugan veldur veiki, sem alment er
nefnd “sofandi sýkin”, þó það nafn
feli ekki að öllu leyti sjúkdómsein-
kennin í sér.
Kóch sagði að veiki þessi væri
þekt á vesturströnd Afríku síðan
í byrjun síðusttt aldar, og hefði
breiðst út norðurströndina, alla
leið til Victoria Nýanza, og sýnt
sig sem voðagestur við íbúanaa og
orðið bæði Afríku búum og þýzk-
um nýlendutn til hins mesta tjóns.
Alls mundu um 200,000 hafa dáið
af' þessari sýki. Hann kvaðst hafa
komið í þorp á þessu svæði, sem
liefðu verið gersamlega magnlaus,
og fólkið í stimutn eyjum skamt
frá landi hefði hrunið niður mann
fyrir mann, svo að enginn hefði af
komist.
Sóttkvevkjan sagði hann að bær
ist mann frá manni, og væri bráð-
smittandi. þessi “glossina palpa-
lis” væri dálítið stærri en venju-
legar sumarfiugur. Frá því flugan
stingur geta liðið nokkrir dagar
þangað til sjúklingurinn kennir
sem byrjar með hitasótt, rénandi
og vaxandi á víxl. Albr kirtlar
stokkbólgna , sjúklingurinn verður
afllaus og lamaðir, og svefnsýki
fer að sækja fast á hann. Prófess-
orinn þekkir engin meðöl, sem
lækna stingsýki þessa, en býst við
að hægt sé að finna meðal við
henni, þegar búið er að rannsaka
eiturefni þau, sem flugur þessar
hafa í sér. Koch ætlar að ferðast
aftur fljótlega til Afríku í þeim er-
indum, að rannsaka fhtgur þessar,
og sjúkdóma þá, sem þær valda.
það má búast við góðum árangri
af ferð hans þangað; hann er ein-
hver sá færasti maður, sem nú er
ttppi, til að rannsaka þessháttar
hluti.
— Stjórnarformaður Witte hefir
ráðlagt Gyðingum á Rússlandi, að
taka eindreginn þátt í kosningun-
um, sem þar standa yfir. Nýlega
kotn sendinefnd frá Gyðingum til
ÍWitte. Nefndin var úr þeim héruð-
tim, sem þeir hafa mest verið of-
sóttir í. Nefndin kvartaði sáran
undan meðferð á Gyðingum og gat
þess, aö þeir hefðu fengið nýjar
hótanir utn ofsóknir og líflát, ef
þeir létu nokkuð tif sín taka við
kosningarnar. Nefndin bað stjórn-
ina, að skipa vaktir og verði um
kosningartímann í borgum og hér-
uðum, þar sem Gyðingar hafa
sætt mestum ofsóknum og líflát-
um. Witte tók nefndinni mjög hlý-
lega og lofaði Gyðingum liðsinni
sínu, þegar hann bæri mál þeirra
fyrir ríkisráðið. Hann játaði há-
tíðlega, að meðferðin á Gyðingum
væri til skaða og skammar ríkinu,
og þóttist þess sannfærður, að
þingið tæki upp hlut þeirra, þegar
það kæmi saman og skipaði mál-
um þeirra í betra horf enn áður.
Hann ráðlagði þeim að taka dug-
lega í strenginn í kosningunum og
koma að þingmönnum af s’num
flokki, þar setn þeir hefðu bolmagn
til þess. Siðan eru Gyðingar von-
betri enn áðttr um réttindi sin og
framtíð.
— Andrew Carnegie, millíöna-
maðurinn frá Bandaríkjunum. er
farinn að bera sig iila undir miUí-
ónabyrðinni. Hann ritar, að auð-
urinn þyngi og flýti ellinni, eyði
frekar en attki vndi og glaðværð
lífsins. “það mttn vera hart að
finna þann millíóna mann, setn
getur hlegið”, segir karltötrið.
— Anarkisti, sem nýdáinn er í
fangelsi á Italíu, lýsti þvi yfir í
dauðatevgjtinum, að Anarkistar
heföu fastráðið aö drepa Ítalíu-
konung kringum' þann 18. apríl
næstk., þegar hann sækti sýning-
una í Milan. Bað hann að gera
konungi aðvart um að vera varan
um sig.
— Nýlega dó maður á vitlausra
hælinu í Brockville, Oht., 103 ára
gamall. Hann geggjaðist á geðs-
mununum, þegar hann var 58 ára,
og var því inni í 45 ár. Hann lá
aðeins í kör 2 síðustu mánttðina.
—Aldrei hafa fleiri menn, setn
tilheyra lífsábyrgarfélögum, komið
saman ttndir einu þaki en nýlega í
höfuðdorg New. York ríkis. Rann-
sóknarnefndin skýrði frá rannsókn-
tnn sínttm, hvers ltún hefði orðið
vísari og hvað ráðlegast væri að
gera. Samkunda þessi varaði tvo
daga. Nefndin hefir samið xo laga-
greinir, sem hún ráðleggur félög-
ttnum og hluthöfunum, að gera að
bíndandi lögum. Eitt atriðið er,
allir hlutliafar ábyrgöanna hafi
kosningarétt til að kjósa forseta
og framkvæmdarnefnd félaganna
árlega. Hlunnindi og borgun til
“agenta" er takmörkuð, og sömu-
lefðis ítök (bonuses), gjafir og ann-
að góðgæti er fyrirboðið, nema
því aðeins, að þau fvrirmæli standi
í aðallögum félaganna. Starfslaun,
sem ná og fara vfir §5,000 á ári
verða yfirlitin ársárlega, og hefir
þar lífsábvrgðafélaga eftirlitsmað-
ur rikisins hönd í bagga. Margt
fleira skj'nsamlegt leggur nefndin
til, og er vonandi, að bendingar
ltennar verði teknar til greina.
— A fimtudaginn var var fyrsta
fylkisþing í Alberta fylkiku sett.
Töluvert margir voru viðstaddir
þingsetninguna. þingið er haldið í
Thistle Rink, því fvlkið á ekki
þinghús enn þá. Utahlands verzl-
unarviðskifti við Canada hafa náð
$5ii5i7i264 upphæð fram yfir sama
tímabil síðasta ár. Tímabilið er 8
mánuðir af fjárhagsárinu.
— Vinnukona ein á St. Marv’s
spítalanum í Minneapolis var í sl.
viku glödd með andlátsfregn
frænda síns á Engl., sem hafði áðr
hann andaðist arfleitt hana að öll-
um eigmnn sínum að upphæð 650
þús. dollarar. Stúlkan, sem er
rúmlega tvítug að aldri, lét sér
fátt um finnast. Hún er ánægð
með vinnukonustöðuna á spítalan-
um og kveðst óráðin í hvort hún
yfirgefi hana, þó hún aí tilviljun
hafi mætt þessu happi.
— Svarthandar félagið í New
York er farið að reka starf sitt
einnig í Canada. það hefir hrætt
margar fjárupphæðir út úr ítölsk-
um vinnumönnum í Ontario með
bréflegum hótunum um að ráða þá
af dögum, ef þeir ekki greiddu fé
til lausnar sér, frá 30 til 50 doll-
ara í hverju tilfelli. Svo hefir þetta
gengið langt, að Bandaríkjastjórn
hefir fariö þess á leit við Ottawa-
stjórnina, að hún hafi samtök tneð
sér til þess að stemma stigu íyrir
framhaldi þessa ófagnaðar.
—Utnboðsmenn frá 300 óháðum
telefón félögum í Ohio ríkinu höfðu
ný-lega fund í. bænum Des Moiaes,
. Ia., til þess að sameina öll þessi
félög tncð því augnamiði að keppa
' við Bell félagið. Hvert Jiessara 300
félaga hefir samþykt að leggja til
1 þús. dollara til þess að leggja
þræði, þar sem þörf gerðist, svo
að Bell félagið skyldi hvergi í rik-
inu hafa einveldi. Með þessu er
vdnað, að Bell félagið verði bráð-
lega að hætta starfi sínu þar í rík-
inu.
— Danska stjórnin hefir ákveðið
að senda nefnd þriggja akuryrkju-
fræðinga til Canada á komandi
sumri til þess að athuga búskap-
araðferð Canadamanna og sérstak-
lega að læra af þeim meöhöndlun
og flutnings fyrirkomulag landbún-
aðarafurða.
—Partur af Tustin þorpi í Mich-
igan ríkinu brann til ösku þ. 16.
þ.tn. Eldurinn bj'rjaði í hótelli og
varð 4 mönnum að bana.
— Herforingja-dóttir ein á Rúss-
landi var dæmd til dauða þar ný-
lega. fyrir að vera í samsæri með
uppreistarmönnum, en dóminum
síðar brej'tt í æfilangt fangelsi. —
Bréf frá henni hefir borist úr fang-
elsinu og lætur hún þar illa yfir
meðferðinni á sér, segir lögreglu-
liðið hafa smáð sig og svívirt á
allan hugsanlegan hátt, hrækt í
andlit sér, látið sig hlaupa nakta
um fangelsið og barið sig um höB
uðið, þar til hún varð meðvitund-
arlaus.
—Stoessel herforingi er nú sem
stendur undir herrannsókn á Rúss-
landi, og fréttir segja, að hann
standi þar illa að vígi. Hann krefst
þess, að Rússar sendi til Japan
eftir Nogi herforingja og öðrum
herforingjum, til jxess þeir geti
borið sér vitni um, að hann hafi
varist vel í Port Arthur. En það
er talið líklegt, að herrétturinn
neiti að gera þetta. — Annað
rannsóknarmál hefir staðið yfir út
af því, að einn herforingi í Mos-
cow neitaði að láta menn sína
skjóta á alþýðuna, þegar uppþotið
mikla var þar í borginni í vetur.
Maður þessi er dætndur rækur úr
her Rússa og á að sitja 18 mán. í
fangelsi fyrir vikið.
—Lögreglan í Montreal náði á
sunnudaginn var 120 mönnum, cr
höfðu safnast satnan í útihúsi einu
þar borginni til þess að horfa á
hana-at. Yfir 70 hanar voru látnir
etjast til að skernta fólkinu. Fim-
tíu lögregluþjónar réðust a stað-
inn og tóku alt saman, fólk og
fugla. Margir voru sektaðir um
$50 dollara, en sttmir tninna, en
fuglarnir voru gefnit til líknar-
stofnana í borginni.
— Spánarstjórn hefir tilkynt
þinginu í Madrid, að ákveðið hafi
verið að leggja hinni væntanlegu
drotningu rikisins 50 þús. dollara
árlegt tillag Eru það vasapening-
ar fýrir drotninguna og enginn
hluti af launum konungs, sem eins
góðum bónda sæmir er ætlað að
fæða og klæða kontt sína á sinn
eiginn reikning en ekki hennar.
— Manitoba þinginu var slitið
þann 16. þ.m. eftir 9 vikna setu.
I.ang-þýðingarmesta frumvarpið af
þeim 96 frumvörpum, sem þingið
samþykti, var talþráða frumvarp-
ið, og næst því ef til vill var neit-
un þingsins um að leyfa Kildonan
sveitarstjórninni að gefa strætis-
brautafélaginu í Winnipeg einka-
leyfi um aldur og ævi, að renna
strætisbrautum þar um svcitina.
þinginu kom saman um, að engin
sveit í fylkinu megi hér eftir gefa
nokkru félagi einkaleyfi utn lengri
tima en 30 ár, og er það lengra
tímabil en vera ætti, Ontariostj.
hefir fyrir nokkrum dögum fært
eit kaleyfis tímabilið niður í 25 ár.
— það kom fyrir í lífsábyrgðar-
rannsóknarneíndinni í New York
þann 15. þ.m., að Hamilton dóm-
ari, sá scm mest var bendlaður
við fjármál New York Life félags-
ins, kom inn í fundarsalinn án þess
nokkurn grunaði. Hann hafði ný-
lega komið frá París. Nú heimtaði
hann að mega tala fyrir nefndinni,
og var honum leyft það; hann hélt
þá harða skammat'æðu yfir öllum
núverandi stjórnendum þess félags,
hvað þá vera hunda og svikara,
og alla hafa vitað um, hvernig
hverju centi hefði verið varið, sem
hann hefði meðhöndlað af félags-
sjóði. Ilann kvaðst hafa varið fé
þvi öllu samkvæmt samþykki
stjórnendanna. Mr. Hamilton
hældi mjög McCall sáiuga, kvað
hann hafa verið bezta mann, en of-
sóknir rakka þeirra sem með hon-
um hefðu verið í stjórninni og sem
allir hefðu haft samtök til að
svíkja hann og rægja, hefðu lagt
hann í gröfina. Hann kvaðst hafa
sókt fund nefndarinnar eingöngu til
þess að segja gott orð um sinn
látna vin McCall, og um leið til
þess að segja skoðun sína á með-
stjórnendum þefm, sem hann
hefði haft. og sem nú hefðu myrt
hann með svikum og íúlmensku.
Að öðru leyti kvaðst hann viðbú-
inn að svara hverjum spurningum,
er nefndin óskaði.
Ottawa-stjórnin hefir, ákveðið, að
stofna 2 fyrirmyndarbú, sitt í
hverju hinna nýmynduðu fylkja,
einnig að afnema lögin frá síðasta
þingi um eftirlaun þeirra manna,
sem veriö hafa ráðgjafar í Ottawa
stjórninni, og einnig að minka
þinglaun þingmanna, sem þá voru
hækkuð að mun. Hvtorttveggju
þessi lög hafa reynst svo óvinsæl,
að það er talið nauðsynlegt, að
afnema þau og að gera breyting-
una svo, að hún sé þjóðinni viðun-
anlcg. Óvíst cr þó enn hversu mik-
ið þinglaunin verða færð niður úr
því sem þau ertt nú.
— Svo varð mikið snjófall í Cal-
ifornia rikinu í sl. viku, að menn
muna ekki annað eins. Telefón
frétt frá þorpinu Pine Ridge, sem
er 5,000 fet fyrir ofan sjávarmál,
segir sttjóþyngslin á fjöllunum
vera 22 fet á dýpt á sumum stoð-
um. Millwood þorpinu, sem einnig
er á fjöllum uppi, er snjórinn 20
feta djúpur, og vatnsmagnið 1 án-
um hefir aukist svo, að vtða hefir
flætt yfir lönd, og fólkið er hrætt
um, að innan fárra daga tnuni
flóöin muni verða svo n ikil, ;:ð
hús þess sópist burtu af stórum
landflákum. það er þegar fatið að
bera á þessu og 600 manns úr Lá-
ton bæ hafa þegar flúið heimili sin
og eignir, hugsa að eins um að
forða lífinu.
— Nefnd hefir Ottawa stjórnin
skipað til þess að rannsaka stjórn-
semi canadiskra ábyrgðarfélaga og
er hún þegar tekin til starfa, en
verður lítið ágengt, því forkólfar
félaganna neita að svara ýmsum
árírtandi spurningum, svo sem um
það, hver sé launaupphæð stjórn-
enda félaganna. þessu neita félögin
að svara, og segja það vera mál,
sem almenning vrarði ekkert um og
lætur nefndin það gott heita.
—Jarðskjálfti varð á Formosa
eyjttnni á sunnudaginn var; hundr-
uð húsa hrundu til grunna og
mörg hundruð manna týndu lífi.
Hellirigning fylgdi jarðskjálftanum
og urðu þá jarðföll á nokkrum
stöðum, og vatnsflóð á öðrum
stöðutn, sem gerðu feikna mikil
eignatjón. Svo er sagt, að í bæn-
um Petropolis, sem hafði 900 íbúa,
hafi jarðfall orðið 50 tnanns að
bana, og margir aðrir meiddust
mjög mikið. Járnbrautir eyðilögð-
ust á pörtum og talþræðir slitn-
uðu. Alls er talið, að 800 manns
hafi farist og 200 íbúðarhús lagst
í rústir.
— Charles konungttr í Roumaníu
er heilstiveill mjög. Læknar segja
hann geti ekki lifað lengur enn í
ínesta lagi fáa nfánuði, en búast
megi við dauða hans á hverju
augnabliki.
CHR. ÓLAFSSON, J G. MORGAN,
AGENT. WlNNIPEG MANAGER
Páll Ólafsson,
SKALD.
Á ljóðahitnni lít ég Pál, —
Ljós um heima falla.
Harpan dttnar heilagt ntál,
Hljómar tíma alla.
Skapaður var að skreyta mál,
Skemta þeim sem vildu.
En listum búna lofðungssál
Langtum fáir skildu.
Mærðardísin margan fann,
Margir vel þá sungu,
En lifandi blómin — liðinn hann
Leggur á Islands tungu.
K. Asg. Benediktsson.
SÆKIÐ BREFIN YKKAR!
þessir ciga bréf á skrifstofu
Heimskringlu:
Styrkárr V. Helgason, 5 bréf.
Sig. Jónasson Hlíðdal, 3 bréf.
Jóhann V. Jónatansson.
Th. H. Vigfússon.
ólafur Ólafsson.
Magnús Smith.
Br. E. Björnsson.
Og þessi bréf frá íslandi:
Ben. B. Bjarnason.
Miss Anna Davíðsson, 540 Lang-
side st., fl bréf.
NEW YORK LIFE
Insurance Co.A,e—rr
Árið 1905 kom beiðni um $400.000,060 a£ lífsábyrgð-
um; þar af veitti fél. $296,640,854 og innheimti fyrsta
ársgjald; $50,000,000 meira en nokkurt annað lífsáb.-
félag hefir selt 6. einu ári.— $20,000,000 var borgað fyr-
ir 6,800 dánarkröfur. — $20,000,000 borgað til lifandi
skýrteinahafa fél. — $17,000,000 var lánað gegn 5 pró-
sent rentu út á skýrteini þeirra. — Tekjur fél. hækk-
uðu um $5,739,592, og sjóður þess um $45,160,099, svo
sjóður þess er nú $435,820,359. — Lífsábyrgðir f gildi
liækkuðu um $132,984,578; öll lffsábyrgð í gildi 1.
janúar 1906 var $2,061,593,886.
Sóley i an..
Á vormorgni hlýjum í hugljúfum
blæ,
í hlaðvarpa opnaði’ ltún brá
mót árröðli skærum, sem upp
rann úr sæ,
og ylgeislum beindi sér frá.
Henni fanst, að hún alein ætti það
hnoss:
að eignast frá ltonum jafn dýrmæt
an koss.
Koss, sem að vakti’ alt af vetrar-
ins blund
og vot hennar þerraði blöð.
í leiðslu hún horföi á hann langa
stund,
yfir lífinu ánægð og glöð:
ó, hversu ég Árrööull elska þig
heitt,
sem einn hefir kyst mig, og lífið
mér veitt”.
En röðullinn brosti og braut sína
leið
um bládjúpan, skýlausan geim.
En sóleyjan hugfangin sat þar og
beið,
— henni sýndist hann stefna þar
hcim. —
En röðullinn hélt sína bogabraut,
og brosandi leið hann í unnar-
skaut.
þá viknaði sóleyjan, von hennar
sveik,
og í vindblæ htin titraði köld
því ótti’ hana gagntók; hún var
ung og veik,
og vissi ekki utn “morgun” og
“kvöld”.
hún grét, en sofnaði sætt og rótt,
og svaf þessa vorsins stuttu nótt.
En aftur kom morgun, og árröð-
ull skær
henni eldheitan koss sendi' á brá
hún vaknaði og mælti: “Ó, vinur
minn kær,
ég vildi ég mætti þér ná! ”
En röðullinn seig svo liægt og
hljótt
í hvílbeð sinn eins og fyrri nótt.
Svona leið tíminn, og sóleyjan
þcið
í saklausri dreytnattdi ró.
Hún vissi, að röðullinn leið sína
leið,
eh að líta hann, það var henni
fró
og ávalt hún mttndi það inndæla
hnoss,
þá að henni rétti’ hann hinn fyrsta
koss.
Svo kom hið geigvæna, hrím-
þrungna haust
tneð heljardóm birtandi um grund.
Sóleyjan hríðskalf að heyra þá
raust,
að hér væri síðasta sttind
komin, og vetur tneð klaka og
snjó
kæmi nú bráðum, — hiin fölnaði'
og — dó.
E. Vigfússon.
----—<$--------
H. M. HANNESSON,
Lögfræðingur
Room 502 Northern Bank,
horni Portage ave. og Fort street,
Winnipeg
Central
Bicycle
Shop...
566 Notre Dame W.
(ré^t fyrir vestan Young St.)
Ný og brúkuð
hjól til sölu
Allskonar aðgerðir fljótt og vel
afgreiddar gegn sanngjörnu verði
— Gamlir skiftarinir beðnir að
muna eftir staðnum.
Bárður Sigurðsson
& Mathews.
Skínandi
Veggja-Pappír
levfi mér aö tilkynna yöur að ég
hefl nú fengið inn meiri byrgöir af veggja
pappír, en nokkru sinni éöur. og sel ég
hann á svo láu veröi, aö sllkt er ekki
dœmi til 1 sögunni. *
T. d. hefi óg ljómandi góöan, storkan
ag fallegan pappír, á 3V4c. rúlluna og af
öllum tegundum uppf 80c. rúlluna.
Allir prísar hjá mér 1 ár eru 25 — 30
pró.sent lægri en nokkru sinni áöur,
Enfremur hefl ég svo miklu úr aö
velja, að ekki er mér annar kunnur í
borginni er noeira hcfir. Komiö og skoö-
iö papplrinn — jafnvel Þó þiö kaupið
ekkert.
Ég er sá eini íslendingur í öllu land-
inu sem verzla meö þessa vörutegund.
S. Mmm
651 Bacnatyne Ave. 103 Nena St,
KENNARA
vantar til Mary Hill skóla, nr.987.
Kenslutími 5 mánuðir, frá I. maí
næstkomandi. Umsækjendur snúi
sér til undirritaðs fyrir 15. apríl
næstk. og tiltaki kaup.
Th. Jóhannsson,
Mary Hill, Ma*.
Flestir kunna illa TÍft fðt. En pegar
írrflena litnnm er blandaft saman vift rauftan,
bláan og gréan lit, þé hverfa allar aftflnslur.
Hrergi t borginni er h®gt aft fá gdft fftt, þar
sem þessum litum er eins snildarlega blandaft
saman,oins og í Tuttugustu Aldar fötunum seu
seld eru hjé
Hyndman & Co.
Fatasalar Þeirra Manna
Sem Þekkja Sitt
The Rialto. 48014 Main St.