Heimskringla - 19.04.1906, Blaðsíða 1
'Q. Johnson.
Verzlar með “Dry Goods’\ Skótau
og Karlmannafatnað.
Suðv. horn. Ross os Isabel St
WINNIPEG
Q. Johnson.
/
Hvað sem ykkur vantar aö kaupa
eða sojja þá komið eða skrifiö til mín.
Suðv. horn. Ross og Isabel St.
WINNIPEG
XX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 19. APRÍL 1906
Nr. 28
Emttn
✓
Land og Fasteignasali
Útvegar peningalán og
tryggir líf og eignir
Skrifstofa: Room 210 Mclatyre
Block. Telephone 3864
Heimili: 671 Ross Avenue
Telephone 3033
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Úpphlanp mikiÖ geröu sósíalist-
ar í San Francisco á sunnudaginn
var, út af þvi, að tveir af leiötog-
um þeirra höföu verið hneptir í
fangelsi fyrir grun um að vera
valdir að- morði ríkisstjóra Steu-
enbergs. úppþotið stóð yfir eina
klukkustund. Margir lögregluþjón-
ar voru illa meiddir, en 14 sósíal-
istar teknir til fanga.
— Stjórnar lögsóknari Curry i
Toronto hefir fengið því til leiðar
komið, að eignir kizst píanó fé-
lagsins verða seldar til hagsmuna
fyrir þá, sem áttu fé í York Co.
lánfélaginu. Peningar York félags-
ins höfðu verið brúkaðir til þess
að mynda og viðhalda pianó fé-
laginu. Hr. Curry segir ennfremur,
að hann hafi hug á, að ná í eignir
eins lífsábyrgðarfélags í Toronto,
og selja þær á sama hátt, því að
það félag hafi einnig stofnað verið
af fé York félagsins. Dómarinn, er
rannsakað hefir alt þetta mál,
segist aldrei hafa vitað til, að
eins berlega hafi verið unnið að
því, að svíkja fé af mönnum eins
og York County lánsfélagið hefði
gert.
— Fjórir menn voru fyrir 7 ár-
um dæmdir í fangavist i St.Paul,,
Minn., fyrir að ræna vagnl^st G.
iN.R. félagsins. þeir voru dæmdir'í
12 ára fangavist hver. En nú hefir
það sannast, að menn þessir eru
saklausir, og verður •þeim því að
sjálfsögðu slept úr fangelsinu. En
-um skaðabætur til þeirra er ekki
talað að svo stöddu. Líklegt þó,
að þeim verði sýndur sanngjarn
sömi.
— Yfir 500 manns hafa látið líf-
ið, sem afleiðing af hinum miklu
eldsumbrotum í fjallinu Vesúvíus,
og sagt, að mörg þorp séu enn í
svo mikilli hættu stödd, að ekki
sé útlit fyrir, að íbiiar þeirra geti
fórðað sér. Búist er við á hverri
stundu, að þúsundir manna í þess-
um þorpum tapi lífi og eignurn og
að þorpin eyðileggist algerlega.
— Paul Uhelenhuth, þýzkur efna-
fræðingur, hefir uppgötvað aðferð
til þess, að greina mannablóð frá
-dýra, jafnvel þar sem blóðblett-
irtíir voru orðnir gamlir og harð-
ir. þýzka stjórnin hefir látið hann
gera rannsóknir undir sinni um-
sjón, og er þess fullviss, að að-
ferð hans sé alveg óskeikul og á-
reiðanleg.
— Merkileg saga er sögð frá
Tvundúnum. úng kona, sem býr
með móður sinni skamt utan við
bæinn, gerði sér fyrir nokkrum
tíma ferð á hendur inn í London
borg, til þess að láta taka mynd
af sér. Eftir nokkurn tíma fékk
'hítn skeyti frá myndasmiðnum um
•að myndin hefði ekki tekist og
bað hana að koma og sitja fyrir í
annað sinn. Hún gerði þaö, og
•eftir nokkra daga fékk hún aftur
bréf, þar sem henni var tilkynt,
;að enn á ný 'hefði myndin mis-
bepnast, og var hún beðin að
koma afttir til borgarinnar og sitja
fyrir í þriðja sinn. Konan gerði
3>að, og ált gekk vél. 'Svo leið
langur tími, að hún fékk ekkert
skeyti frá myndasmiðnum. Hún
skrifaði honum þá bréf og spurði
um myndirnar. En hann svaraði
með því, að biðja hana að koma í
fjórða sinni til Lundúna og hafa
einhvern vin sinn með sér. því
næst fór konan með móður sinni
á fund myndasmiðsins. Sýndi
hann þeim mæðgum þá allar þrjár
myndirnar, sem hann hafði tekið,
og voru þær allar góðar af kon-
unni, en á hverri þeirra kom í ljós
dauf mynd af manni, sem stóð við
hlið hennar með uppreiddan tigil-
hnif í bendinni. Myndin var dauf,
en þó svo skýr, að maðurinn var
þekkjanlegur, og það var sami
maðurinn á öllum myndunum. —
Konan þekti, að þetta var mvnd-
in af unnusta hennar, sem var
undirherforingi í liði Breta á Ind-
landi, og henni varð svo mikið um
þetta, að hún sendi unnusta sín-
um uppsagnarbréf.
— Tvö þúsund manna sendinefnd
frá öllum sveitafélögum í Óntario
hefir farið á fund stjórnarráðsins í
Ontario og krafist þess, að fylkis-
stjórnin gerði að fylkiseign allar
rafaflsstofnanir í fylkinu, svo að
framleiðsla og sala þess afls væri
ekki lengtir í höndum einstakra fé-
laga eða manna, heldtir fylkisins
sjálfs. Nefnditi krafðist og að sett
væri sístarfandi stjórnarnefnd . til
þess að annast þetta mál og að
sjá um, að fvlkið bygði þær raf-
afls stofnanir til framleiðslu, sem
nauðsynlegar væru, en tæki með
(valdi allar stofnanir, sem nú væru
eign auðfélaga eða cinstaklinga.—
Stjórnin lofaði, að taka þessa
kröfu til íhugunar.
— Edmonton bær er að koma
upp hjá sér “automatic” talþráða
kerfi. Almennur borgarafundur hef-
ir verið haldinn til þess að ræða
um þjóðeignarmálið, og var þjóð-
eignarstefnan sámþykt með öllum
atkvæðum, og bæjarráðinu falið á
hendur, að sjá um, að sú stefna
yrði ofan á þar í bænum.
— Bandaríkja stjórn hefir fengið
tilkynningu um, að stór hópur af
anarkistum hafi lent í San Fran-
cisco og Baltimore, og hún hefir
því sett út hóp lögregluþjóna til
þess að handtaka þá. Stjórnin á
Ítalíu hefir sent nöfn þessara
manna til Bandaríkja stjórnar, —
með æfiágripi hvers eins, og tekið
sérstaklega fram um þá, sem eru
álitnir skaðlegastir mannfélaginu.
Einn þeirra manna, sem lent hefir
í Baltimore, er talinn leiðtogi
þessa flokks og stfórninni er sér-
lega umhugað um, að ná honum,
sem allra fyrst. það hefir komist
upp, að tilgangur þessara. náunga
sé að ráða forsetann af dögum. —
Einn anarkisti, sem nýlega var
hneftur í fangelsi í San Francisco,
játaði, að ef hann fengi að ráða
gerðum sinum, þá hætti hann ekki
starfi fyr en hann hefði ráðið for-
setann af dögum. það er og sann-
að, að þessir þokkapiltar hafa ver-
ið gerðir útlægir á ítalíu. þess
vegna^ hefir stjórnin ákveðið, að
handsama alla þessa menn, sem
fyrst að unt er, áður en þeir fái
framkvæmt fyrirætlanir sínar.
— Nýlega hefir verið slept úr
fangelsi á Englandi, eftir 9 ára
veru þar. J.S.BalfOur, sem dæmd-
ur var í 14 ára fangavist fyrir að
hafa svihið 30 millíón dollara virði
af eignum og peningum út úr auð-
trúa fólki þar i landi.
— Sex menn létu nýléga lífið á
Bandaríkja herskipinu “Kear-
sarge”. við heræfingar, sem á því
voru haldnar á föfetudaginn langa.
Einhver sprenging hafði orðið í
fremri skotturni skipsins .meðan
verið var að fara þar með púður.
— Ungur piltur í Montreal opn-
aði kirkjudyr þar á páskadagskv.,
meðan stóð á guðsþjónustu, og
hrópaði hástöfum: “Eldur”. Síð-
an hljóp hann í burtu. En þeim
400 manns, sem voru í kirkjunni,
varð svo bylt við þetta hróp, að
það varð sem næst vitstola. Allir
reyndu að komast sem fyrst út úr
kirkjunni. Presturinn reyndi að
sefa fólkið með því að seg'ja því,
að engin hætta væri á ferðum og
að verið væri að leika á það. En
fólkið gengdi ekki presti eða trúði
honum ekki. Hver barðist um sem
bezt hann gat, til að komast út,
ólætin enduðti með því, að fjögur
stúlkubörn voru troðin undir og
biðu bráðan bana af því, en yfir
20 tnanns meiddust hættulega. —
það var enginn eldur. Pilturinn,
sem orsakaði þetta uppþot og 4
baraa dauða, er enn ófundinn.
— Fimm þúsundir rnanna réðust
að 3 svertingjum i Springfield.Mo.,
á föstudaginn var, og tóku þá og
hengdu, brendu og skutu. þeitn
var kent um að hafa svívirt ungá
konu þar í bænum. Eítit að búið
var að lífláta þá kom það upp,að
konan sýknaði þá af kærunni og
kvað þá ranglega hafa verið tekna
af lífi.
—Nýlega var haldinn fundur i
Lundúnttm á Englandi þar sem
mættir voru þeir, setn eiga lífsá-
byrgðir í Mutual lifsádvrgðarfé-
laginu, sem hefir höfuðból sitt í
New York borg. það var skoðun
fundarmanna, að fjárhagur Mutnal
félagsins stæði svo vel, að ekki
væri ástæða til að óttast hann,
en að nauðsynlegt væri að skifta
um stjórnendur, svo að félagið
gæti losnað við alla þá, setn hafa
verið meðstjórnarmenn McCurdvs,
sem áður var forseti félagsins, en
nýlega var vikið frá því embætti
sökum sviksemi og eyðslusemi úr
sjóði félagsins. það var og ákveÖ-
ið, að halda attnan fund þann 20.
þ.tn. til þess að ræða þetta mál
frekar.
— Sú saga berst frá St. John,
N.B., að 12 ára gamall skólapilt-
ur hafi barið vngri skólabróður
sinn til bana þ. 12. þ.m.
— þeir Gaynor og Greene, stiit
kærðir voru um íjárdrátt !rá
Bandaríkjastjórn og teknir voru
hér í Canada á sl. ári og fluttir
stiður fyrir línu, hafa verið dæmd-
ir í 4. ára fangavist hvor og til
að borga stjórninni $574,749 hvor
um sig.
:---4--------
Fréttabréf.
Sinclair Sta., Man., 4. apríl 1956.
Herra ritstjóri!
það er orðið all-langt síðah, að
blað yðar flutti nokkrar fréttalin-
ttr héðan úr bygð, og hlýtur það
að vera af gáleysi okkar sjálfra
hér; én komi ekki Heimskringla á
réttu kveldi, þá virðist verða
skarð fyrir skifdi, og skiljum vér
þá, hvað vér höfum mist.
þessar, línur eiga því að færa
Heimskringlu og ritstjóra hennar
innilegustu þakkir sérstaklega fyr-
ir hinar mörgu og ágætu frum-
sömdu ritstjórnargreinar. Vér
skiljum þær vef, og einnig þær
leiðbeiningar, sem þær í sér fela.
Fréttir héðan eru margar og ým-
islegar, ef alt yrði upptalið, en að
eins það helzta birtum vér hér.
Svo sem um uppskeru sl. sumar,
sem hefði orðið ein hin allra bezta
ef ekki hefði haglskúr lamið alt
niður, og fyrir því tjóni urðu allir
Islendingar hér, að ótöldum ein-
um eða tveimur. þetta var eitt
hið rnesta mótlæti, sem hér hefir
kómið síðan bygðin byrjaði, og
bendir margt til þess. Haustiðn
var ágæt og plægingar urðu mikl-
ar, svo voraði óvenjulega snemma
og sáðu því margir í alt það iand
sem þeir áttu til. Skaðinn við byl
þenna skiítir þvi háum tölum, því
margir munu hafa fengið að eins
10 bush. af ekrunni af hveiti, sum-
ir dálítið meir, en aftur sumir
minna, og enn sumir, sem alls ekki
slógu akra sína.
Tíðin í vetur hefir verið góð, en
heilsuíar með langversta möti, er
ég man eftir hér í bygð. Strax í
haust byrjaði kíghósti, sem var
langur og strangur. þó urðu mjög
íáir fyrir liftjóni utan þati hjónin
ólína og Albert Guðmunds, sem
mistu barn iir þessum hósta. Og
að þessu tæplega loknu, tóku við
mislingar, og eru þeir enn hér í
algleymingi, en þó engin ljsuðsiöll
enn sem komið er.
Abraham Friðriksson, sem ['.r
til Winnipeg í hatist héðan úr
bygðinni til að vera þar ttm tíma,
varð fyrir því slysi, að hrapa ofan
af byggingu og liggur á sjúkra-
htisinu í Winndpeg. þetta er mjög
tilíinnanlegt fyrir aðstandendur
hans, sem atiðsjáanlega máttu
ekki missa aðstoðar hans heima
fyrir.
Féfagsskapur gengur hér ekki vel
frekar en hjá sumttm öðrum. þó
hefir kvenfélagið gert töluvert.
það hefir nú í seinni tíð haft bæði
kökuskurð og tombólu, og lukkast
hvorttveggja allvel. Forseti þess
er Mrs. þóra Finnbogason, féhirð-
ir Fanny Bárdaf og ritari S. H.
Johnson.
Giftingar hafa orðið hér í sumar
með fangmesta móti, eða regfu-
legt veltiár í ástamálum, og alt
hefir það gengið,. vel og friðsam-
lega. F'jögur pör gfftu sig í sumar
og svo í haust eitt par, hr. Jó-
hannes Bárdal og ungfrú Gunn-
laug Einarsson, frá Winnipeg, og
að hann sé sá eini Jói, sem gifti
sig hér í nálægri framtíð, er meir
en ég vil segja. Öllum þessum ný-
giftu hjónum óskum vér alls hins
bezta.
Og þá er farið að lifna yfir sum
um hér með pólitík, og er Heims-
kringla þar að draga að sér mjög
marga góða og velhugsandi drengi
ekki síst nú í seinni tíð. þó má
þess géta frá hinni hfiðinni, að
þeir segjast fylgja sfnum flokki og
ekki kikna, þó þeir Ijúgi og steli,
svona dálitið við og við.
En yfir höfuð eru menn mjög á-
nægðir hér yfir þeinr hagnaði, sem
fylkisstjórnin hefir þegar veitt.
--------<8>------
York County lán félaafið
*/ o
NEW YORK LIFE
Insuranee Co.
Alex. E. Orr,
PRESIDENT
Árið 1905 kom beiðni um $400.000,OfiO af lífsábyrgð-
um; þar af veitti fél. $296,640,854 og innheimti fyrsta
ársgjald; $50,000,000 meira en nokkurt anuað lífsáb.-
fólag hefir selt á einu ári.— $20,000,000 var borgað fyr-
ir 6,800 dánarkröfur. — $20,000,000 borgað til lifandi
skýrteinahafa fél. — $17,000,000 var lánað gegn 5 pró-
sent rentu út á skýrteini þeirra. — Tekjur fél. hækk-
'uðu um $5,739,592, og sjóður þess um $45,160,099, svo
sjóður þess er nú $435,820.359. — Lífsábyrgðir f gildi
hækktiðu um $132,984,578; öll lífsábyrgð f gildi 1.
janúar 1906 var $2,061,593,886.
. CHR. OLAFSSON,
AGENT.
WlNNIPEG
G. MORGAN,
MANAGER
Eins og áður hefir verið getið
um í þessu blaði, hefir sakamál
staðið yfir í Toronto borg um
nokkrar nndanfarnar vikur móti
lir. Phillips, ráðsmanni þessa ó-
happa gjaldþrota félags.
1 þeirri rannsókn hefir það orð-
ið ljóst, að Phillips notaði fé fé-
lagsins á alt annan hátt, en ráð-
vandur og hygginn ráðsmaður
mundi hafa gert. Til dæmis er það
sannað, að hann hafði mjög grun-
samleg mök við Geo. A. Burt, for-
mann Liszt píanó félagsins í Tor-
onto. Hann leigði Burt t. d. 68
þús. dollara stórhýsi fyrir $1200
árlega leigu og lánaði honum þcss
utan marga tugi þúsunda dollara,
án þess að hafa nokkura trygg-
ingu fyrir enclurborgun þessa fjár,
aðra en loforð Burts um að borga
þessi peningaláns upphæð nam öll
tun 58 þús. dollara, þegar félagið
varð gjaldþrota. Og það var með-
al annars fyrir drátt á borgun
þess láns, að York County félagið
varð að hætta starfi, þetta sam-
band við York County félagið hef-
ir staðið síðan árið 1903, og 'talið
víst, að viðskiftin milli félaganna
séu meiri, heldur en ennþá er upp
komið.
það hefir og komið upp, að
Phillips, ráðsmaður fclagsins, hefir
haft ýms grunsamleg viðskifti við
önnur félög og persónur, og að
hann hefir með tilhjálp þeirra
komið undan stórum fjárupphæð-
um, sem ennþá hafa ekki fundist.
Svo er málið orðið útlitsljótt
móti Phillips, að honum er nú
haldið í fangelsi svo hann fær ekki
að leika lausum hala, þar til mál
hans er útkljáð, og það eru líkur
til, að hann verði dæmdur í langa
fangavist.
það kom upp við réttarhaldið í
Toronto þ. 1. þ.m., að Phillips
hafði borgað til blaðsins “Nation-
al Monthly" ýmsar stór upphæðir
og þó sýndi bókhaldari hr. Phill-
ips fram á, að blaðið vajji ekki
s.jálfstæð eða borgandi stofnun, en
ekki. vissi hann þvj Phillips hafði
borgað blaðinu þessar upphæðir.
Pikki heldtir gat bókhaldarinn gert
neina grein fyrir því, hversvegna
Phillips hafði borgað til systur
sinnar ýmsar peninga upkhæðir,
sem í alt nema meira en 22 þús..
doll. Ekki heldur vissi hún (bók,
haldarinn er í pilsum), hvernig á
því stóð, að Phillips hafði borgað
vissu féfagi 10 þús. dollara ávísun
til þess að kaupa fyrir 2 þúsund
doll. virði af hlutum í C.N. járn-
brautarféiaginu.
Engin grein fæst heldur gerð fyr-
ir því, hvers vegna 10 þús. doll.
var varið til að borga fyrir 2 þús.
doll. virðí í hlutabréfum.
það hefir og vaknað sterkur
grunur á, að Phillips hafi lagt
stórar upphæðir af félagsins pen-
ingtim á vöxtu undir sínu eigin
nafni, en ennþá hefir það ekki al-
gerlega sannast, en þó talið áreið-
legt.
Bækur félagsins hafa verið eyði-
lagðar, brendar, svo að ekki er
við annað að styðja sig, en bæk-
ur, sem sannað hefir verrð að eru
falsað eftirrit af hinum glötuðu
bókum.
Málið, sem verið hefir fyrir rétti
svo mánuðum skiftir, má heita
að sé enn í byrjun, og að líkind-
ttm það minsta uppvíst orðið af
því, sem vænta má að komi upp
er stundir líða..
• f
En það er þegar orðið deginum
Ijósara, að Phillips er fantur af
fyrstu skúffu, og að hajin hefir í
vitorði með sér, enginn veit hve
marga, máske verrí en ltann er
sjálfur, en þó svo miklu vitrari,
að þeir hafa ennþá komist hjá
glæpa-ákærum og fangelsi.
-------+--------
Þúngbær missir
Á síðastliðnu hausti, snemma í
októbermánuði, urðu þau hjónin,
Jörundur Signrbjarnarson Evford,
póstmeistari á Siglunesi, Man., og
kona hans Anna Jónsdóttir, fyrir
þeirri miklu sorg, að missa 4 börn
sín á tæpum 5 dögum. Hið fyrsta
kendi veikinnar á sunnudag og
hið síðasta var andað á fimtudag.
þau fóru öll í sömtt gröf og voru
grafin heima á bújörðinni. það
voru daprir dagar íyrir foreldrin,
að bera út hvert líkið á fætur
öðru, út í eyðihús, er stendur þar
á hlaðinu, unz öll fjögur voru
burtkölluð, og þá fyrir föðurinn,
að taka gröfina að þeim og f«ggja
þau sjálfttr til hvíldar. En það
var enginn annars kostur.
Er fyrsta barnið tók veikina,
sem leiddi öll til dauða, hugðu
menn enga hættu búna, en þar er
hvergi læknir að fá, í allri þeirri
bygð, og var því ekki sent til
Winnipeg eftir lækni fyrr en hið
fyrsta var dáið, er natn að eins
rúmu dægri, frá því það veiktist.
Er læknirinn kom, var hið siðasta
þá nýskeð andað. Hann sagði veik
ina hafa verið barnaveiki (Dip-
theria).
Nöfn barnanna og í þeirri röð,
sem þau dóu, voru þessi:
Ráðhildur Snjólög, f. 10. nóv.
1898; d. 2. okt. 1905.
Kristíana, f. 16. april 1902; d.
4. okt. 1905.
Sigurður Mathews, f. 24. ágúst
1900; d. 5. október 1905.
Jónasína Sigurbjörg, f. 14. okt.
1903; d- 5- okt. 1905. $
Voru þau tvö er létust síðasta
daginn að fárra tíma millibili.
Als hafa þau hjón mist 7 börn,
eit-t á íslandi er Guðbjörg hét, og
tvö síðar í Narrows bygð: Guð-
björgu, f. 29. jan. 1896, d. 9. júní
1906, og Jóttas Sigurvin, f. 6. ág.
1894, d. 26. febr. 1901.
þau Eyford hjón eru búin að
vera hér 13 ár í landi, fluttust
hingað frá Laxamýri í S.-þingevj-
arsýslu 1893; voru þá fvrst eitt ár
t N.-Dakota, en hafa dvalið síðan
þar nyrðra.
þau eiga blómlegan bæ við Sigl-
unes víkina, og hafa unað vel hag
sínum alt til þessa. En við þenna
sorglega missir hefir stór hluti
þeirrar ánægju, er þau áður nutu,
horfið, — fallið til moldar með
þeim hluta heimilisins, er nú hvíl-
ir nár þar fram með víkinni. —
En glaðværðin hverfur oft,- þótt
minna sorgarefni sé. — það er
fagurt að horfa þar suður með
víkinni, — en fyrir þau sem mistu,
bera við bárufald vatnsins leiðin
lágu, ungu systkynanna dánu.
þau hjón eiga eltir 3 börn á lífi,
er komin eru að fullorðins ártim:
Baldrúnu, Sigurbjörgu og Emeliu.
Öll mannvænleg og vel gefin.
Föstudaginn 9. marz sl. var hald
in erfiminning systkynanna fjögra,
og. talaði séra Rögnv. Pétursson
nokkur skilnaðarorð þar í húsinu.
Flest fólk úr býgðinni þar um-
hverfis var viðstatt og virtust all-
ir nágrannarnir sína hina dýpstu
hluttekningu í þessari miklu sorg
hjónanna, enda eru þau virt og
vel látin af öllnm.
Drottinn blessi þatt og hús
þeirra og •veiti þeim von og styrk
fyrir ókomið æfist'ríð.
Vinur foreldranna.
Central
Bicycle
Shop...
566 Notre Dame W.
(rétt fyrir vestan l'ouiig St.)
Ný og brúkuð
hjól til sölu *
Allskonar aðgerðir fliótt og vel
afgreiddar gegn sanngjörnu verði
— Gamlir skiftavinir beðnir að
muna eftir staðnum.
Bárður Sigurðsson
& Mathews.
Skínandi
Vcggja-Pappír
levfi mér aö tilkynna yéur aö ég
hefi ná fengiö inn meiri byrgöir af veggja
pappír, en nokkru sinni áöur, og sel ég
hann á svo láu veröi, aö slíkt er ekki
dœmi til í sögunui.
T. d. hefi ég ljómandi góöan, sterkan
ag fallegan pappir, á 3V4c. rúUuna og af
öUum tegundum uppí 80c. rúUuna.
Allir prísar hjá mér í ár eru 25 — 30
prósent lægri en nokkru sinni áöur.
Enfremur hefi ég svo miklu úr aö
velja, að ekki er mór annar kunnur í
borginni er meira hefir. Komiö og skoð-
iö pappíriun — jafnvel þó þiö kaupiö
ekkert.
Ég er sá eini íslendingur i öllu land-
inu sem verzla meö þessa vörutegund.
S. indersoii
651 Bannatyne Ave. 103 Nena St.
Þetta er það
12
T ó 1 f daga sala áður en alt yerð-
ur rifið ínnan úr búðinni.— Vörur allar
verða að selast fyrir 30 april. —
Vér sleppum ágóðanum — alt er selt
með lægsta innkaupsverði. — Nú er
tsekifærið — notið það.
Hyndman & Co.
Fatasalar Þeirra Manna
Sem Þekkja
The Rialto. 480V£ Main St.