Heimskringla - 03.05.1906, Side 1
'Q. Johnson.
Verzlar meöt“Dry Goods”, Skótau
og KarlmannafatnaO.
Suðv. horn. Boss ok Isabel St
WINNIPEG
G. Johnson.
Hva® sem ykkur vantar aB kaupa
eða aelja þá komiB eda skrifíB til min.
Suðv. horn. Ross or Isabel St.
WINNIPEG
XX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 3. M A f 1906
Nr. 30
imi EggertssoB
Land og Fasteignasali
Útvegar peningalán og
tryggir líf og eignir
Skrifstofa: Room 210 Mclntyre
Block. Teiephone 3364
Heimili: 671 Ross Avenue
Telephone 3033
Fregnsafa
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
J)a5 er þegar byrjað á a5 reisa
San Francisco borg úr rústnm aft-
ur. Strætisvagnar hófu göngu sina
og pósthúsiS tók til starfa strax
og eldurinn varö viöráöanlcgur. —
Yfir io millíón dollara vir&i í mat-
ar og fatagjöfum náöist saman á
fyrstu fjórum sólarhringunum eftir
aÖ jaröskjálftinn kom. — Winnipeg
gaf $io,ooo, Regina vagnhlass af
hveiti, og mjög margir bæir í Can-
ada hafa sýnt myndarlega hiut-
tekningu í þessu voðaslysi. Nokk-
ur hluti af vesturparti San- Fran-
cisco borgar slapp óskemdur. Og
þaÖ er markvert, að þau stórhýsi,
sem bvgö voru úr stáii, skemdust
ekki við jarðskjálftann að ööru en
því, að veggjalím sprakk í þeim,
en húsin sjálf stóðu, þar sem stein
og múrstcins og thnbuf’ byggingar
féilu til grunna. Alltir verzlunar
og iðnaðarhluti borgarinnar og
fullur helmingur allra íveruhúsa í
borginni er algerlega' eyðiiggt. Og
svo segja blööin, að Chicago eld-
urinn mikli fyrir 35 árum siöan
ha.fi verið smáræði eitt í saman-
burði við þennan eld og það ógna-
tjón, sem hann hefir 'gert. — Und-
ir eins og nokkuri reglu varð við
komið voru gefnar út skipanir, er
bönnuðu nokkrum að kveykja ljós
í húsum sínum eöa kveykja eld í
matreiðslustóm, og engum var
leyft að ganga milli húsa nema
með sérstöku lögregluleyfi. þetta
var gert af því, að sú skipun var
út gefin strax og kviknaði í borg-
inni, að ertgan skyldi handtaka,
heldur umsvifa og miskunarlaust
skyldi skjóta livern þann, er fttnd-
inn væri að því að hreyfa við nokk
uru því, er honum kætni ekki við,
— að stela. Svo að fólki var skip-
að að halda sig algerlega heima í
hústim sínum. því var og lofað
nægum matyælum og nægu vatni
tif drykkjar skyldi útbýtt meðal
þeirra nauðstöddu, og fólk beðið
að vera eins rófegt og því væri
unt. — Hjálparsamskotin eru þau
langmestu, sem nokkurntíma hafa
verið gerð við slík tilfelli: New
York borg gefur 2 millíónir doll-
ara, Massachusetts ríki 3 millíón-
ir, Chicago borg 1 millíón, Phiia-
delphia jú millión. Og vænta má
að miklu meira komi frá öllum
þessum stöðum tim það að sam-
skotunum er lokið. — Peninga-
sláttuhús st'jórnarinnar, pósthúsið
og aðrar stofnanir hennar í San
Francisco eru sagðar lítið skeml-
ar, og er það þakkað því, að þa-r
byggingar eru allar úr stáli og alt
verk á þeim sérlega vandað, svo
að þær stóðust hristin^nn, sem af
jarðskjálftanum feiddi. þær skemd-
ir, sem orðið hafa á þessum bygg-
ingnm, , eru að mestu af völdum
utan'aö komandi elds frá öðrum
byggingum umhverfis, sem kvikn-
að hafði í.
— Nýkomnar fréttir frá Islandi,
þaðan boroar með skipi, segja, að
Hekla hafi gosið nú í vor, en taka
um leið fram, að enginn skaði
hafi orðið af gosinu.
— Áætluð útgjöld Dominion stj.
fyrir yfirstandandi fjárhagsár eru
89 millíónir dollara.
— íbúar San Francisco borgar
eru þegar farnir að taka út bygg-
ingaleyfi og byrjaðir að byggja
bæinn upp að nýju. Alt fer fram
meó hinni mestu reglu,,'óg matvæl
um og öðrum nauðsynjum er út-
býtt meðal nauðstaddra, svo að
allir fá nóg og enginn líður skort.
Innan lítils tima er vonað að a'.ls-
konar vinna verði svo almcnn í
borginni, að flestir borgarbúar
verði sjálfb'jarga.
— Uppdræt'tir Midland Railway
félagsins hafa verið “registeraðir"
á landeigna skrifstofu fylkisins hér
í bænum, og sýna að járnbraut
þessi á að liggja inn í Winnipeg
borg niður Kfgin avt. og yfir á
Ross ave. nokkttð fyrir vestan
Nena st., síðan niöur Ross ave. til
Paulin st. Blööin segja, að aðal-
fólkflutningastöð félagsins 'eigi að
standa á svæðinu milli Ross og
Pacific stræta og Iæonard og Pau-
lin stræta. Enn er þess ekki getið,
hvar vöruhús félags þessa verði
sett, en vart verður þess langt að
bíða, að það verði opinbert.
— Síðari fregnir frá San 'Fran-
cisco hafa getið þess, að miklu
færri hafi dáið af völdum jarð-
skjáiftuns þar en fyrst var talið,
og að tala hinna látnu muni ekki
fara fram úr 300 manns. Eígna-
tjónið er metið 250 mill. dollara,
og borga ábyrgðarfélögin 125 mill-
íónir dollara af þeirri upphæð; og
er búist við, að öll ábyrgðarfélög-
in að undanteknu einu eða tveim-
ur muni borga að fullu sarnkvæmt
samningum, en að þessi félög, sem
ekki borga alt sem 'þeim ber, verði
gjaldþrota og hætti starfi.
Bandaríkjastjórn hefir látið það
boð ú't ganga, að landslýður allur
hafi brugðist svo drengilega við á-
skorun forsetans um að styrkja
San Francisco búa í nauðum
þeirra, að svo mikið fé sé þegar
samankomið, að ekki sé þörf á að
þiggja gjafir frá útlöndutn; Banda-
ríkjaþjóðin sé einfær um að veita
alla þá hjálp, sem þörf sé á og
því engin ástæða til að þiggja fé
frá ú'tlendum ríkjum, af hversu
glóðum hug sem það sé boðið.
— Frá Kaupmannahöfn kom sú
fregn þ. 23. f.m.. að tvö fiskiskip
hefðu nýlega farist við strendur
Íslands', annað með 30 mönintm.
það er og talið líklejft, að þriðja
skipið hafi farist þar, því ekkert
hefir frétzt af því í langan tíma.
Ekki getur fréttin um hvort skip
þessi voru íslenzk eða ekki.
— Kaupmaður einn í Philadel-
phia seldi nýlega einn smákassa af
berjum til arðs fyrir þurfalinga í
San Francisco. Hann seldi hvert
ber sérstaklega og fckk yfir $: 00
fyrir fyrsta berið. Alls fékk hann
fyrir kassann hálft þriðja þúgund
dollara.
— Nýlega er látinn maður á ír-
landi 118 ára gamall, talinn elzti
maður í brezka ríkinu. Hann var
nýlega heiðraður af Edwurd kon-
ungi með neftóbaksdósum úr gulli.
— Belgiskt seglskip sökk nýlega
á rúmsjó í ofsa veðri, og létu þar
32 menn líf sitt, en 26 manns varð
bjargað.
— Verkamenn strætisbrauta fé-
lagsins í Toronto hafa neitað að
halda áfram vinnu nema félagið
reki úr þjónustu sinni alla þá, sem
sendir voru hingað vestur til að
vinna fyrir félagið hér meðan á
síðasta verkfalli stóð. Félagið hef-
ir svarað með því að segja sum-
um Union mönnum upp a'tvinnu,
og er því búist við verkfalli þar i'
borginni nema félagið láti undan.
— Borgin Montreal hefir samið
um framlenging á einkaleyfi gasfé-
lagsins þar í bænutn um 15 ára
tímabil, með því skilyrði, að eftir
árið 1910 skuli gas til ljósa og
eidsneytis ekki kosta yfir 8oc hver
1000 fet og til framleiðslu á verk-
stæðum 6oc hver 1000 fet.
— Meiðyrðamál all mikilfenglegt
hefir staðið yfir í London, Ont.,
um nokkurn tíma og kostað hlut-
a'ðeigandi málsparta mikið fé. En
dómur í því féll svo, að sækjand-
anum var dæmt eitt cent í skaða-
bœtur. — Betur farið en heima
setið! 1
— þingið í Alberta hefir satn-
þykt, að Edmonton bær skuli vera
höfuðborg þess fylkis. Uppástung-
ur um að gera Calgary, Red Déer
og ifanff að höfuðstöðum féll við
a'tkvæðagreiðsluna.
— Um eitt þústtnd bændux frá
Iowa í Bandarikjunum íluttn í sl.
viku til norðvestur fylkjanna hér í
Canada. Margir þeirra höfðtt áður
fest sér búlönd þar, en aðrir fóru
til að taka þau, með þeim ásetn-
ingi, að gera þar framtíðarheimili
sín og sinna.
— Jarðskjálfti á Formosa eyj-
unni þ. 14. f.m. drap yfir eitt þús-
und manns og særði sjö hundruð.
Tólf hundruð hús féllu í gruatít nið-
ur og er eignatjónið metið 50 mill-
íónir dollara,
— Fellibylur æddi yfir bæinn
Briggs í Texas þ. 12. f.m. og eyði-
lagði hann að mestu leytf. Tveir
menn létu þar lífið og 30 særðust.
I'búatala þorpsins var 250.
— Einn háttstandandi stjórnar-
em'bæt'tismaður í París á Frakk-
landi fór nýlega til tannlæknis til
að láta draga úr sér tönn. þegar
hann var sestur í stólinn, dró tann
læknirinn upp skammbyssu og hót-
aði að skjóta manninn til bana, ef
hann hreyfði sig fyr en hann væri
fullkomlega læknaður af tannpín-
Svo dró hann úr honum 8 tennur,
eina sjúka og sjö alheilar og lét
hann svo fara eftir að hafa tekið
3 franka íyrir verk sit-t. Maðurinn
vprð íeginn að fá að sleppa lifandi
úr höndum hans og hraðaði sér -á
næstu 'lögreglustöð og lagði þar
inn klö'gun inóti taimlækninum.
Lögregluþjónar voru sendir til að
taka hann, en 2 þeirra létu lífið
áður en læknirinn yrði handsam-
aður.
— Pólverjar, 150 að tölu, og aðr
ir útlendingar, sem unnu á járn-
btaut í Arkansas, keyptu sér vín-
sopa þ. 16. f.m. til þess að halda
páskahátíðina hátíðlega. En þeg-
ar þeir voru orÖnir ölvaðir sló í
bardaga með þeim og endaði með
því, að 9 menn láu dauðir á vig-
vellinum og margir hættulega særð
ir. þeir börðust með hnífum, öx-
um, skammbyssum og skófium.
Hermenn voru að síðustu sendir
til að koma á friði og handtaka
morðingjana.
— Eldur kom upp í hesthúsi i
Baltimore fyrir skömmu. Bruunu
þar inni 303 hestar og aðrar skepn
ur. Gripirnir vóru mjög verðmætir
og er skaðinn metinn 68 þús. doil-
ara. Grunað að etnhver hafi lagt
eld í húsið af ásettu ráði.
— Timbursmiða verkfall var
gert í Fort William þ. 1. þ.m.
Timburmenn heimta kauphækkun
af því lífsnguðsynjar hafi stigið í
verði. Verkveitendur eru fúsir til
að 'borga beztu mönnutn hæsta
kaup, en vilja ekki gjalda jafnhátt
kaup þeim, sem hvorki hafa fulla
þekkingu á verkinu né eru sæmi-
lega afkastamiklir. En timbur-
menn heimta jafnt kaup fyrir alla
sem vtftna, án tillits til hæfileika
þeirra eða atorku. Aðrag hand-
verksmanna deildir biðja og utn
kauphækkun. Bricklayers heimta
6oc, plasterers 55C, plumbers 55C
og 'timburmenn 35C um tímann. —
Talið er víst, að samið verði við
plumbers og plasterers og þeim
veitt kauphækkun.
— Keisaradrotningin í Kína hef-
ir sent hjálparsjóðs nefndinni í
San Francisco $50,000, og þess ut-
an $20.000 sérstaklega til hjálpar
Kínverjum þar í borginni, sem
biðu tjón við jarðskjálftann í f.m.
Nýdáinn er í Steinbach, Man,
Klós Reimer, kaupmaður, um 70
ára, talinn rikastur kaupmanna
austan Rauðár í Manítoba. Hann
var vinsæll af alþýðu. Hann lætur
eftir sig ekkþt óg 15 börn, — 12
syni og 3 dætur.
Dáfallegt athæíi
lagsins, $40,000 í jæningum tili
þess gð vot'ta að reik'ningarnir
væru réttir og gefa félagintl tneð-
mæli sín, svo það gæti haldið á-
fram að fleka almen.ning, og að
þessir peningar hefðu verið borg-
aðir meðan vitnið var í Evrópu.
En hversu mikið félag þetta borg-
aði sama augnamiði áður eða sið-
ar gat vitnið ekki sagt. Sjálfsagt
má þó ætla að þetta sé að eins
lítill hluti þeirrar upphæðar, sem
varið var í þetta þokkastarf, cg
alls óvíst einnig, að þetta sé eina
félagið, sem þannig hefir breytt,
þó ekki hafi enn orðið uppvist um
fleiri. En svo er þetta ekkert tjón
fvrir félagssjóðinn, því almenning-
ur, landar vorir og aðrir, voru
látnir borga brúsann.
Atkvæðaskrár Manitoba
\ærða endurskoðaðar þann 29. og
30: þ.m. (maí).
I Gimli kjördæminu verða þess
ir skrásetningarmenn fyrir hinar
ýmsu deildir:
No. 1. Joseph Hamelin, St. Laur-
ent.
2. Wm. Isbister, Harpervilíe
“■ 3- Cbas. de Simencourt, Rad-
way, Pétur Bjarnason,
Otto og Guðmundur Stef-
ánsson, Otto.
“ 4. James Clark, Jr., Clark-
leigh.
“ 5. Paul Reykdal, Lundar.
u 6. Joseph Miller, Cold Springs
** 7- John Blue, Scofth Bay, og
J.K.Jónasson, Siglunes.
II 8. Paul Kjernested, Narrows.
“ 9. Donald McDonald, Fairford
“ 10. þorvaldur Sveinsson, Húsa
vick.
“ 11. Sig. Einarsson, Gimli, og
A. B. Olson, Gimli.
“ 18. Isleifur Helgason, Árnes,
og A.C.Baker, Gimli.
“ 13. O. ,G. Akranes, Hnausa.
14. S. G. Nordal, Geysir.
“ 15: Jón Jónsson, Jr., Framnes.
11 16. Jón Sigvaldason, Icelandic
River.
“ 17. Haraldur Sigurgeirsson að
Hecla, og Percy Wood, að
Fisher River.
I næsta blaði yerður frekar get-
iö um þetta endurskoöunarmál.
Bréf frá Blaine Wash.
í sviksemis og fjárdráttarmáli
því, sem fyrir nokkru síðan var
höfðað móti stjórnendum Mutual
Reserve Fund lífsábyrgðar félags-
ins, sem Lögbergs klikkan fyrir 15
árutn síðan prentíiði heilan lof-
gerðar bækling um til þess hægra
yrði að táldraga og féfletta landa
vora í þdssu fylki, með því aið tæla
þá inn í þaö félag með lognum
staðhæfingum og svika loforðutn,
sem aldrei var tilgangur stjórnar-
innar að haldin yrðu, —.hefir ertt
vitni borið það, að hr. Frederick
A. Burnham, fyrrum forseti félags-
ins, hefði sagt sér, að hann hefði
orðið að borga þeim embættis-
manni New ,York ríkis, sem settur
var til að yfirskoða reikninga fé-
Kæri vinurll
Eg sendi þér nú nokkrar linur,
þú hefir svo oft beðið mig að rita
þér fréttir héðan, en ég verð að
biðja þig að lesa í málið, því að
ég er óvanur skriftum.
Mönnutn líður hér yfirleitt vel
og tíðin er góð, frost svo sem
engin í vetur, bara kul á nóttum
og stundum héla og rigningar með
minsta móti.
það hafa svo margir komið hing
að fátækir, að það er ekki von á
miklu; en þó eru flestir búnir að
kaupa sér lóð og hús eða þá hús
og blett úti á landi, og eru farnir
að ryðja og rækta blettina.
þó að lítið s^, er heldur að fær-
ast áfram hjá okkur hérna í Blaine
Nýlega kom hingað Islendingur frá
Ballard, Magnús nokkur að nafni,
og setti upp skóbúð í bænum, og
er ‘ líklegt, að honum gangi vel;
svo eru landar búnir að setja upp
aðra verzlunina til rét-t tvýlega, er
vonandi og óskandi, að þeim gangi
vef. þeir eru líka því starfi vantr;
það ertt þeir Andrés Daníelsson
og Ófeigur Runólfsson. Hefir ann-
ar þeirra verið fjögur ár við verzl-
un hjá innlendum, en hinn 2l/i ár
hjá íslenzka félaginu Blaine' Trad-
ing Co., og áður stjórnað verzlun
í Winnipeg. þeir eru báðir liðlegir
og greindir menn.
Svo höfum við fengið nýjan gest
hingað á ströndina, séra ÍMagnús
Skaptason. Hann er búinn að vera>
hjá okkur 3 vikur og hefir messað
tvisvar fyrir fullu húsi og ætlar
að halda fyrirfcstur á laugat'dags
kvöldið. Margir hafa haíl gaman
af að sjá bann og hafa tekið hon-
um vel, svo ég held að engum
landa hafi verið jafuvel tekið, sjálf
sagt ekki presti En hálfskrítið er
efniö.~sem hann ætlar að tala um.
Fyrirlesturinn heitir: ‘‘Frá öðrum
heimi", eða svo segir auglýsingin.
Svo er að minnast á samkom-
urnar. þær eru hér einlæqt við og
við og fara vel fratn og sýna, að
við getum verið kátir eins og aðr-
ir. Við þurfutn lika að létta okkur
upp eftir vinnuna, því að flestir
vinna á myllunum. Hér ertt lestr-
arfélag og kvennfélag, Forestersfé-
lag, söngfélag og lífsábyrgðarfélag
NEW YORK LIFE
InsuFancG Co* pkesident
Árið 1905 kom beiðni um $400.000,060 af lífsábyrgð-
um; þar af veitti fél. $296,640,854 og innheimti fyrsta
ársgjald; $50,000,000 meira en nokkurt annað Iffsáb.-
félag hefir selt á einu ári.— $20,000,000 var borgað fyr-
ir 6,800 dánarkrðfur. — $20,000,000 borgað til lifandi
sk/rteinahafa fél. — $17,000,000 var lánað gegn 5 pró-
sent rentu út á skýrteini þeirra. — Tekjur fél. hækk-
uðu um $5,739Ji92, og sjóður þess um $45,160,099, svo
sjóður þess er nú $435,820.359. — Lífsábyrgðir í gildi
hækkuðu um $132,984,578; öll lffsábyrgð í gildi 1.
janúar 1906 var $2,061,593,886.
CHR. ÓLAFSSON,
AGENT.
WlNNIPEG
G. MORGAN,
MANAGER
en ekkert bindindisfélag og ekkert
kirkjufélag, því enghm drekkur og
enginn kærir sig ttaa: kirkjufélag.
Svo er hér engitm íslenzkur læknir
því allir erú heilsugóöir, og eng-
inn blaðamaður, þvi attir geta rif-
ist sjálfir, flestir beeði á ensku og
ísfcnzku. Ja, ég hefi kannske of-
sagt um heilsuna, því að menn
eru einlægt að metða sig á myll-
unumj Núna nýlega tveir landar,
Ben Alexander og«Stone Stoneson,
en báðir eru þeir á| bata\'egi. $En
myllurnar gefa hverjum atvinnii,
sem vill, og stúlkurnar fá atvinnu
á “kanneríunum".
Já, nú færðu ekki meira, þvi að
ég er enginn pettftamaður og þarf
annað að gera en að skrifa þér,
og vertu nú sæll. Z.
Dauðsfall
þann 9. des. 1905 lézt í Lewis-
tkn, Mich., Arnbjörn Arnbjörns-
son, trésmiður, úr lungnatæringu,
36 ára gamall, fæddur 2. júlí 1860
að Krossé^ á Beruíjarðarströnd í
Sttður Múlasýslu. Hann-var sonur
Arnbjarnar Sigmundssonar ogGuð-
nýjar Erlendsdóttur, óðalsbónda á
þorvaldsstöðum í Breiðdal. Arn-
björn sál. fluttist til Grayling,
Mich., með þorgrími bróður sín-
um ári'ð 1886, og þaðan 4 árum
síðar til Bay City og giftist þar
stúlku af svenskum ættum árið
1903. þau hjón fluttu síðar til
Lewiston. — Biaöiö Austri er beð-
ið að flytja fregn þessa.
kemtanir
■-OG--
veitingar
í samkomusal
ÚNÍT ARASAFN-
AÐARINS
Gleðifregn
r
fimtidites-
kveldid
3
maf. 1906,
kl. 8 e. h.
Þetta verður sfðasta kvöldskemt-
anin á þessu vori sem Unftarar
halda, og má fullyrða að það verð-
ur með vönduðustu samkomum eem
haldnar hafa verið á vetrinum.
Prógram gott; vandað til Þess á
allan hátt.
Eftirfylgjandi verður til skemtana:
1. Forseti—Setur sarakomuna.
2. Sóló—Gísli Jónsson.
b. Ónefnt.
4. Upplestur—Kristján S'ef&nsson.
5. /Sóló—Miss Á. Dinuson.
6. Ræða—Ótefán Thorsson.
7. Tableau—“MayQueen” (í 3 þátt-
um).
8. “Essay”—séra Rðgnv. Pétursson.
9. Sóló—Gísli Jónsson.
10. Ræða—Skafti B. Brýnjólfsson.
11. óóló—J, A. Johns»n.
12. Lestur—Þorst. Þ, Þorsteinsson.
12. Kaffi veitingar.
Islervdingar sem leggja leið slna
um Pembina Stræti| 1 Fort Rouge,
eru ámintir um að koma við í verzl
un Jónasar Jónassonar, á suð aust-
ur hoírai Pembina St. og Corrydou
Aveaue.
Þar fæst á öllum tfmum alskonar
svaladrykkjir, Sætabrauð, Aldini,
ísrjómi, Vindlar, Brjóstsykur og
annað sælgæti. Alt af beztu teg-
und og á lágu verði.
Sérstök stofa fyrir karlmenn að
reykja í og lesa dagblöðin. Einnig
sérstakur “Ice Cream Parlor” fyrir
konur, og frí Telefón —nr. 4326 —
fyrir alla. \
Þessi böð er ómissandi hvíldar
og hressingastöð ðllum þeim, sem
f kveldkyrð vorra hlýju sumardaga,
takajsér göngutúr suður á leið til
River eða Elm lystigarðanna, eða
þaðan að sunnan.
Jónas Jónasson.
'PHONE 3668 s®á fljótt og
........ . vel af beadi levstar.
Komið og skemtið yður vel.
Samkoman byrja- kl. 8. e. h.. fimtu-
dagskveldið 3. maf, 1906. f Únftara
salnum. Inngangur 25c.
Adams & Main
PLUMBIHC AHD HEATINC
555 Sargent Ave. - - W’peg,
Skínandi
Veggja-Pappír
Ég levfi mér aö tilkynna yöur aö ég
hefi nú fengiö inn meiri byrgöir af veggja
pappír, en nokkru sinni áöur, og sel ég
hann á svo láu veröi, aö slíkt er ekki
dœmi til ( sögunni.
T. d. hefi ég ljómandi góöan, sterkan
ag fallegan papplr, á 3V4c. rúlluna og af
Ollum tegundam uppl 80c. rúlinna.
Allir prísar hjá mér í ár eru 25 — 30
prósent lægri en nokkru sinni áönr.
Enfremur hefi óg svo miklu úr aö
velja, aö ekki er mér annar kunnnr 1
borginni er meira heflr. Komiö og skoö-
iö pappírinn — jafnvel þó þiö kaupiö
ekkert.
Ég er sá eini íslendingnr 1 öUu land-
inti sem verzla raeö þessa vörutegnnd.
S. Aiiderson
651 Bannatyne Ave. 103 Nena St.
Þetta er það
Tuttugustu aldar fatnaður er
svo vel þektur, að iýsing hans er
ónauðsynleg. — Lag og efni það
bezta í Cauada.
Okkar vanaverð er rétt. — En
meðan stendur á tilhreinsunar söl-
unni er mikill afsláttur — og sama
gildir um allar aðrar vörur f búð-
inni.
Komið og sjáið. Nú. f dag.
Hyndman & Co.
Fatasalar Þeirra Manna
Sem Þekkja
The Rialto. 480V2 Main St.