Heimskringla - 31.05.1906, Qupperneq 1
'G. Johnson.
Verzlar með “Dry Goods”, Skótau
og Karlmanaafatnað.
Suðv. horn. Ross oe Isabel St
WINNIPEG
G. Johnson.
Hvað sem ykkur vantar að kaupa.
eða selja þá komið eða skrifið til mín.
Suðv. horn. Ross og Isabel St.
WINNIPEG
XX. AR.
WINNIPEGr, MANITOBA 31. M A 1 1906
Nr. 34
Ami Eggertsson
Skrifstcfa: Rooni 210 Mclntyre
' Block. Telephone 3364
Victor stræti, lot $26.00
fetiS, að vestanverSn. bak-
stræti fyrir aftan lotín.
Agnes st., lot 26J4 fet, á
$24 fetið.
Eitt lot á Maryland st.,
30 fet, á $35 fetið.
Sargent aye., 33 fet að
norðanverðu, næst við hús
Goodtemplara (setn er nú
í smíðum), á mjög' sann-
gjörnu verði og skilmálum
Simcoe st., 25 feta lot á
$16.50 fetíð.
Home st., lot á $16, að
vestanverðu.
Furby st., cottage á 33
feta lóð, að eins $1,400.00
Góðir söluskilmálar.
Peningalán fit á hús. —1
Sölusamningar keyptir o.fi1..
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
J>ann 20. þ.m. dó móðir upp-
reistarmannsins Louis David Riel,
sem var foringi tveggja uppreista
í vestur Canada, og hengdur var í
Regdna. Lík hans var flutt til St.
Bondface og graíið þar. Hún var
frönsk að ættum, og 86 ára göm-
ul þá hún dó. Hún áttl heima í
St. Vital. Tveir syuir hennar eru
lifandi ennþá og ein dóttir. Hún
var grafin í sama grafreit og son-
ur henttar, Louis David Riel, og
fvlgdi fjöldi manns henni til graf-
ar, og jarðarför hennar var að
leyti hin veglegasta.
— í París réði drengur á ellefta
ári sér bana. Hann hafði óafvit-
andi orðið bróður sínum að bana.
En lögin náðu þar ei rétti yfir
honum. Honum félst svo mikið
um óviljaverk sitt, að hann hengdi
sig.
— Tveir heldri menn, sem eru í
Lundúnum, annar prins James of
Bourbonji en hinn barón von Kor-
win, ætla að sigla til Eyjaálfunnar
eins fljótt og þedr fá suðvestan
vind, á loftbát. þeir hafa björgmt-
arbát í loftfarinti, og segjast hvergi
vera smeikir, þó þeir falli af ofan í
haf eða vötn. Vegna ktilda í loft-
inu ætla þeir að hafa til klæöa
loðfeldi og annan hlýjaiv búning.
Loftfarið vegur hér um bil 900 pd.
en þeir vega til sarnans rúm 300
pd. þeir segja: Ef við fáum skarp-
an suðvestan vind, þá getum við
.an suðvestan vind, þá getum við
komið ferð okkar fram. Ef vind-
staöan bregst, þá má vel vera, að
við föllitm niður í þjóðverjalandi,
Póllandi eða suður Rússlandi, og
jafnvel ofan í Miðjarðarhafið, en
við erum hvergi smeikir. Einn
hlutur er áreiðanlegur, að við
hnígum ekki fyrir örlögum ofan á
nokkurn stað fyrr enn við þurfum.
Okkur tekst ferðin.
— Hárgerðarmenn í París gerðu
■verkfall nýlega. þeir vildtt ekki
vinna nema til kl. 12 á laugardög-
um. Rakarar og hársölumenn
:skeyttu þessu einkis. Verkfalls-
menn gerðu þá samning við sjóiið-
ið í París. Sjóliðsmenn lé-tu ekki
■raka sig eða klippa í 2—3 vikur.
Svo gengu fleiri hundruð í aðal-
,gÖtu bæjarins á laugardaginn var,
og inn í rakarabúðir, og heimtuðti
sig a%reidda. Aðlinttm leist ei á
þessa náunga, og forðaði sér út
hið skjótasta. En allar rakara-
búðir lokuðu kl. 12, og samþyktu
að vinna ekki lengur en tíl kl. 12 á
laugardögum. Með þessu móti var
verkfallmu lokið, og þeir sem verk-
fallið gerðtt fengu vinnu sína aftur
og heimtaðan verkatfma.
— Kvenfólk á Englandi sækir
fast' á, að fá kjörgengi til þings,
og aðrar opinberar stöður. Ólæti
urðu af kvenna hálfu allmikil út
af þvi nýskeð. Kvenfólkið var uppi
á áheyrenda pöllum, og lét ail illa,
svo lögreglan .var köllttð til halds
• og trausts þingreglu og góðttm
siðum. En nú lætur forsætisráð-
herra, Campbell Bannermann, all
liklega um kjörgengi kvenna, en
segir á sama tíma, að þær multi
þó verða að bíða langan tíma enn
þá eftir þeirri réttarbót. Hvað
þýða ummæli slík ? Líklega fögur
loforð og táldrægni.
— þær ríða ekki við einteyming
þessar skýrslur og sögur um þenna
stjórnmáia ræíil W.T.R.Preston,
agent Iyattrier stjórnarinnar á Eng
landi, sem kailaður hefir verið
vestur um haf til að standa fyrir
rétti í Canada. Hann er harðlega
ákærður um svik og meðráð í
þessu illræmda North Atlantic
Trading Co. máli. Loks hefir hann
orðið að gefa opinberan lista af
hluthöfum nefnds félags. Tengda-
sonur hans, Alexander lögmaðttr í
Lundúnum, er talinn lögverji fé-
iagsins. Átta hiuthafar fvrirfinnast
í þessu félagi, sem heima eiga í
Ivttndúnum á Englandi, og þar að
auki einn vesalings Holiendingur,
er Albert Pleifel heitír í Amster-
dam. Hann er innritaður fyrir 292
hlntum í félaginu, en hinir að eins
fyrir einum ltltit hver, og hinir sex
hluthafarnir I Lundún'um eru allir
kunningjar og vildarmenn þessa
Alexanders. Hr. Sainbury segist
ekkert vita um þetta félag, þegar
hann var spurður eftir því. En
frændi sinn hafi mint sig á það og
undirskrift sína sem hluthafi. þessi
iögmannsræfill, Alexander, kvaðst
vita alt 'ttm þetta félag og þekkja
það út í æsar, en- vegna beiðni
ktt'nningja sinna, sem séu hluthafar
í fólaginu, megi ltann engar upp-
lýsingar gefa um félagið. — Mikill
er sá levndardómur um opinbert
verzhmarfélag! 1
— Blöðin segja stöðugar óeirðir
og manndráp í Zulu landinu, en
þeim er leynt eins og auðið er.
— Kvenfólk á Ítalíu þykir með
friðasta þjóð-kvenfólki. Stúlkan,
sem talin er fríðust á Italíu nú,
heitir Niny Bttcci. Hún var nýlega
kærð fyrir þjófnað og dæmd í sjö
mánaða fangelsi. Mælt að móðir
bennar hafi þröngvað henni til að
stela, en Niny Bucei vill bera blak
af móður sinni, og þess vegna
sleppttr kerlingar úrþvættið.
— Dr. Hansteen, íyrirlestramað-
ur akttryrkju stjórn'ardeildarinnar
í Noregi, liélt nýlega fyrirlestur í
Kristíaníu um kræðu, sem vex upp
til fjalla í Noregi, og segir að
beztu grauta og brauð megi búa
t'il úr henni, og sé það holl fæða
O'g nærandi. Miðdagsmatur handa
sex manns segir hann að kosti að
eins 2 cent.
— Kapteinn Gosling, sem er einn
aiðaimaðurinn í Alexander Gosling
h'iðangrimtm í Mið-Afríku, hefir
nýlega skrifað til Lundúna, að
hann hafi náð dýri sem Okapi heit-
ir. Aldrei hefir hvítur maðttr séð
eða fangað það dýr fyrri. Fyrsta
skinnið, sem sást í Evróptt, sendi
Sir Harrv Johnston árið 1901 til
fortígripasafnsins í Lundúnum.
— í Austurríki er 12 ára gamall
drengur, sem hefir meðgengið, að
hann hafi stolið 153 sinnum á síð-
astliðnum* ártnn. Seinasta þýfið
var peninga kassi með $200 í. —
Ölltt þýfintt hafði hann og hróðir
hans 15 ára gamall eytt í samfé-
lagi við stelpur nokkrar á þeirra
reki.
— í nýja verzlunarvöru hafa
Engfcndingar nýlega náð. það eru
httndar frá Lhassa. J>eir líkjast
kanínum og er hafðir fyrir kjöltu-
hund’a. Frúrnar borga frá $^00 tíl
$2500 fyrir hundinn.
— Sama dag og jarðskjálftarnir
byrjuðu í San Francisco, voru
nokkurir Indíánar í tjöldum við
svo neínt Peltiers vatn í Norð-
vesturlandinu. Vatn þetta heitir
líka öðru nafni Eágk Qttill Lake.
Indíán'arnir vöknuðu um tniöja
nó'tt við alltnikinn hristing, sem
líkfcgt er að hafi staðið í sam-
bandí við jarðskjálftamt' í San
Francisco. En enginn efi er á því,
að innri öfl náttúrunnar hafa ekki
veri'ð aðgerðaiaus þar, því sama
morgun sáu þessir Indíánar, að
vatnsstrókur stóð ttpp í háa loft,
þar sem áður var heii og óröskttð
jörð. Hann var full 30 fet á hæð,
óg allmikill ttm sig. Nú er þegar
komið þar stórt stöðuvatU', og
gosið heldur áfram. Vatnið er utn
20 mílttr suður frá þeirn stað, sem
heitir Swift Current. Að svo
komnu vita menn ekkert annað en
sögusögn Indíána ttm atburð
þenna, en engin ástæða til að vé-
fengja þá um náttúruundur þessi.
— Um ttndanfarinn tíma hafa
eldar miklir verið uppi í norður-
hluta Michigan ríkisins ; 4—5 þorp
eru brunnin og manneydd, sem frá
150 tii 300 íbtiar áttu heima í.
Fleiri þorp hafa brunnið að meiru
og minna leyti, en flest af íbúun-
um hefir komist lífs af. Talið er
víst, að allmikið af skógarhöggs-
mönmim hafi farist í landbruna
þessum. Af bændum og búaliði
hefir ekki farist til muna. Vestan-
vindur kom á brennu þessa, og
æstust þá eldarnir og gleyptu alt,
sem fyrir varð. Menn, sem unnu
við sögunartnvlnur og skógartöku,
urðu að grafa konur og börn í
jörðu niður, svo skall eldurinn
fljótt á þá\ það fólk komst flest
eða alt lifs af, en hestar hrunnu,
þeir sem ekki hluptt undan eldin-
um, en hýmdtt viö hesthúsin. —
Eigna'tjón er afarmikið, og enn þá
óreiknað, en það er óefað svo
miljónum skiftir. Eldarnir hafa
verið í rénun nú í seinni tíð, og
vonandi að þeir sétt nú dattðir
eða því nær.
— þing Saskatchewan fylkisins
hefir kjörið bæinn Regina fyrir höf-
uðborg og þingsetustað fylkisins.
Saskatoon fékk að eins tvö atkv.
við atkvæðagreiðsluna.
Norðri.
Krýnda hátign hvítra skauta,
hát't 'þinn ennisfjóma ber,
og til þinna björtu brauta
bragarguðinn vísar mér.
Sé ég bungur bjartra tinda,
breiddar um þinn komtngsstól,
ægistoltar af sér hrinda
örvamergð frá vorsins sól.
Sé ég lönd í svellafeldum,
sé ég höf með ölduþró'tt,
sveipuð köldum ttndra eldum
undir þinni bláu nótt.
Mikli granni! æfi alla
út við takmörk ríkis þíns
þínar ishafs-öldur falia
upp að þergi skagans míns.
Engin skarpleg skil né greining
skildu okkar hönd né lund ;
hann og þú í ást og eining
unduð marga vetrarstund.
Yfir bláa öldttdúka,
yfir hásigld jakabönd
mína sá ég hvíta hnúka
horfa á þín jötunlönd.
Rammi Norðri, vetrarvaldur,
voðamynd, — og þó svo hrein! I
Nafn þitt gýs sem gustur kaldur
gegnum kulvís heimsins bein.
Beyg úr deigttm bjálfttm hristir
’bylja þinna gletnisdans ;
þeim er fé og frægð, sem gistir
firnaströnd þíns bjarmalands.
Hreysti, afl og erfðastæling
alt þitt l'íf’ í svipnum ber ;
innri glóð gegn ytri kæl'ing
er hið fyrsta boð hjá þér.
Ivei't ég undir beltítm betri
borgir, fyltar veilli þjóð ;
sá ég kvíða sólskins vetri
sviplaust þý njeð geitarblóð.
Sá ég lífið að sér anda
eitri fúnutn gryfjum frá,
meðan dáð og mannúð granda
munaðsfýkn og valdaþrá.--------
þaðan fanst mér hækka, hækka,
himinskauts þíns bjarmarönd ;
þaðan sýndust stækka, stækka,
stranda þinna kyndiabönd.
Risafell á ströndum standa
stöðva ölduró'tsins för ;
brotnar fram til beggja handa
breið og mikil jökulskör.
Höfin hví'tír flotar fylla, —
fast sér þrýsta borg og spöng ;
ísahörpur óð sinn stilla
yfir móðri hvalaþröng.
Vængjasterkir fiiglar flögra
fiskiríkum vökttm hjá ;
birnir, tinnueygðir, ögra
ísa-grænum skútum frá.
Sveipast grænu svörður kalinn,
svellur lauf ttm frosin börð ;
viðrar grön, við óblítt al-in,
ittirfrjáls og hvatleg hjörð.
Hnakkakertir hreinir þjóta
hjarni renda fjallabratit,
en tneð knáum kiauíum brjóta
klakagadditin mosknsnaut.
— Eiturkind þar engin lifir,
enginn snákur vefst um fót ;
engin blóm þar brosa yfir
beiskjusúrri illskurót.
Skip, með klakakrans á stokkum,
kastast fram í ísaþröng ;
svignar rá með svefialokkum,
sv/fa rosabiys um stöng.
— Heill þér veiðifar, sem fiýgtir
fálka líkt, um vök og sund,
ótal hættur ótraivtt smýgur,
eins og stýrimanns þíns lund'.l
— Innan borðs má kappa kenna
kunna að rnargri hreystiför ;
undir brúnum úfnum brenna
attgun ga-tin, hvöss og snör.
Ríki Norðri, veðravaldur,
vetrarás með snjóug lönd! •
þeim er vel, sem ala aldur
undir þinni víkingshönd.
Frjálst og“einart fang þú býöttr,
frækni’ og dáð til heiðurs ber ;
aldrei niðingsahdi skríður
ttndir vinarsvip hjá þér. —
Ettgin bæn þinn anda mýkir,
einlæg, hrein er lundin þín ;■
vetur .undir rifjum ríkir,
rausn 'og tign í svipnum skín.
það er sunnar, sem þeir naga,
sem þá skortir hug og trú ;
ttndir himni hlýrri daga
höggormslundin á sér bú.
þar sem íjálgi falskra kossa
fylla væmni hjartans blóð ;
þar sem iindir kúgun krossa
klerkum hrakin stvnur þjóð ;
þar sem vesæl valdahylling
vígafrægð og manndómsskin 1
varpa atimri ytri gvlling
yfir lífsins fúna hlyn.
Ég vil frá þér, flái eimur,
frá þér lyga,Paradis,
til þín blái, hái heimur,
himinn yfir kyrrum ís.
Ég vil til þin, bjarta, bjarta
breiða, sein svo fagurt skín ;
ég vil endttrhreinsað hjarta
hvíla við þitt brjóstalín.
þar má gröf mín gleymast, ftjósa,
grevpt í kristallsvegginn intt,
ef í sveiflur segulljósa
setjast tná þar andi minn.
Önnur lönd þú átt að vinna
út frá þínttm hvita pól,
eftir því, sem minna, minna
megnar okkar bkssúð sól.
þú og Sttðri saman þokið,
satnan 'grafið fjöll og djnp
og við hinstu lífslit lokið
látna heimsins dauðahjúp. —
Lát þá brim af logabifi
lýsa ttpp þín himintjöld,
svo þeir hinstu hjá þér lifi
hart, en dýrlegt vetrarkvöld.
(Ó8inn) G. M.
---------<S>-------
Grand Trunk Pácific
Eftir ölltjm likum að dæma ætl-
ar Canadian Nortbern brautin og
Grand Trunk Pacific brautin að
koma sér saman og nota sömu
járnbrautarstöð í Winnipeg. þó
ber þeim nokkttð etm á milli. En
það er: C.N.R., sem á mest af
landintt austan við Aðalstrætið
alla leið stinnan frá Assiniboine
ánni <*>g norður á Water st., — vill
■byggja brautarstöðina á horninu
á Broadway og Aðalstrætimi, en
G.T.P. vill hafa hana á Aðalstræt-
intt og Water stræti. H.B. Co.
seldi C.N.R. Co. Fort Garry Park,
og krefst af nefndu félagi, að það
byggi þar sínar aðaletöðvar hér í
bænttm. Líklega verður þesstt máli
NEW YORK LIFE
Insurance Co.
Alex. E. Orr,
PEESIDENT
Árið 1905 kom beiðni um $400,000,060 af lífsábyrgð-
urn; þar af veitti fél. $296,640,854 og innheimti fyrsta
ársgjald; $50,000,000 meira en nokkurt annað lífsáb.-
félag hefir selt á einu ári.— $20,000,000 var borgað fyr-
ir 6,800 dánarkröfur. — $20,000,000 borgað til lifandi
skýrteinahafa fél. — $17,000,000 var lánað gegn 5 pró-
sent rcntu tlt á skýrteini þeirra. — Tekjur fél. hækk-
uðn um $5,739,592, og sjóður þess um $45,160,099, svo
sjóður þess er nú $435,820.359. — Lífsábyrgðir í gildi
hækkuðu um $132,984,578; öll lffsábyrgð í gildi 1.
janúar 1906 var $2,061,598,886.
CHR. OLAFSSON,
AGENT.
WlNNIPEG
J G. MORGAN,
MANAGER
ekki ráðið til lykta að sinni, og
lfklegt, að Dominion stjórnin haíi
þar hönd í bagga með. Hr. J. J.
Hill afsakar sig frá að vera í nokk
uru sambandi við nefnd félög, og
er einráðitm í a<5 byggja brautar-
stöð sína á Ross ave. nálægt Prin-
cess st.
Hvar G.T.P. leggur soorveginn
inn í borgina og að járnbrautar-
stöðinni, er enn þá óvíst. það fé-
lag hefir þegar keypt miki'ð af
landi í St. Boniface. þar ætlar fé-
lagið að byggja verkstæði sín og
hafa þar vörugeymsluskála sína,
jafnvel. Mælt er að félagið hafi ný-
lega kevpt mikið af stræt-i f Fort
Rottge, sem nær frá Rattðá alla
lei-ð vestur í “McDonald Dttmp’’,
og ætlar að byggja brú yfir Rauðá
þar sem nefnt stræti rennur að
ánni.
Enn þá sem komið er virðist
vera ómögulegt að vita, hvar G.
T.P. rennttr inn í borgina. Mælt
er, að þetta félag muni kattpa
við hlið C.N.R. í Fort Rouge, enn
litlar líkur ertt t\l þess að svo
komntt.
];n við því mætti búast, að
þessi járnbrautarfélög komi sér
sér saman ttm, að G.T.P. komi
að austan Water st. og renni inn
að Union Depot, noti braut C.N.
R. sttður í Fkrt Rotrge, þar til
það nær sinni braut frá St. Boni-
face, og renni út úr bænum eftir
Woodworth ave. Aitðvitað veröur
læt'ta ljóst innan eins eða íveggja
tnár.vt'ða.
Nú' er staðhæft, að brautarstöð-
in Veröi bygð á Main st. og
Water stræti.
BILDFELL & PAULSON
Uniou Bank 5t.h Floor, No. 520
selnr hns og lóðir o? annast þar að lút.-
andi stðrf; útvegar peningalán o. fl.
Tel.: 268ö
Skemtisamkoma
Verðurhaldin þ. 4, junl ’06, undir stjórn
Hagyrðingafjelagsins
f samkomusal TÍnftara, Cor. Slterbrooke & Sargent
Nefnd sti, er stendur ívrir þessari samkomu, heiir ko.uið
sér saman um, að fresta sam konvuhni, frá 28. þ.m., eins og
áðttr auglýst í blöðunum, til FJÖRDA (4.) JÚNl næstk. Er
það gert til að geta enn betur auglýst hana og tilgang henn-
ar, sem auk þess sem áður er tekið fram, er sá, að láta á-
góðann ganga til samskota þeirra, er verfð er að safna
handa fólki því á íslandi, sem mest líður við hið ógtirlega
manntjón, sem þar hefir ný-lega skeð. Hagyrðing-afélagiÖ
skorar því á.í'ólk, að sækja þessa samkomti vel og láta sjá
að það niuni eftir ættbræðrunum og systrunum heima á föð-
urlandimt okkar allra.
Programme:
HijóðffBrasláttur, Andorson's Orch.
Ávarp forseta.
Krwði, I>. t>. Porsteinsson.
Hljóðfærasláttur, Anderson's Orch.
Ræða, M. J. Benedictson.
Kvæði, H. l>or3teinsson.
Sóló, A. J. Johnson.
k*ÍLssay‘k um Otnar Khayyam, S. B.
Upplestr, H. Gíslasou. (Benedictsou
10. Kvæði, H. Magndsson.
11. Fjórraddaður Karlmanna söngur,
( A.J.Johnson.
1 P. t>orsteinssoii
( S.B.Benedictson
( A.Thordarson.
Í2. kkEssayu, B. Pótursson.
13. Hljóðfærasláttur, Anderson’s Orch.
14. 3*emtigöngur (march s)
Svo verða lesin upp kvæði eftir fjarverandi féiagsmenn.
Samkoman byrjar kl. 8 slbdegis á slaginu. Komið í tíma
til aö ná sætttm. Glevmi'ð eigi deginttm: Mánudaginn 4. júní.
Thomas, Thor/akson
& Thomas
52* JHain St . Oifice 15
Phone 4689
selja hús og lóðir í ölluni bænum.
Sömuleiðis yrkt og óyrkt land
víðsvegar í Cattada. þeir útvega
einnig lífs og eldsábyrgð og pen-
ingalán, leigja hús*og fieira.
Hafið hugfast, að FLEST hjá'
þeim er með sanngjörnu verði.
77/ Kaups.
Gott íbúðarhús og járnsmiðja,
með öllu tilheyrandi ; öll verkfæri
af nýlustu og beztu tðgund, meiri
og betri en vanalega gerist. Heilsu
brestur orsök til sölu og burt-
fiutnings. Skriftð eða talið við.
J. J. Breiðfjörð,
Járnsmiöur.
Mountain, N. Dak.
KENNARA
vantar við Framnes skóla, nr.
1293. Kenslan byrjar 1. september
næstk., og stendur vfir í sjö mán-
uði', eða til 31. marz 1907. Um-
sækjendur tilgreini mentastig og
hvaða kaup þeir óska eftir. Und-
irritaður vettir tilboðum móttöku
til 1. ágúst næstk.
21. maí 1905.
JÓN JÓNSSON, Jr.,
Framnes P.O., Manv.
Skíuandi
Veggja-Pappír
Ég levfi mér að fcilkynna yður að ég
hefi nú fengið inn meiri byrgðir af veggja
pappír, en nokkru sinni áður, og sel ég
hann á svo láu verði, að silkt er ekki
dæmi til 1 sögunni.
T. d. hefl óg ljómandi góðan, sterkan
ag fallegan pappír, á 3V3c. rúlluna og af
öllum fceguudum uppl 80c. rúlluna.
Allir prlsar hjá mér 1 ár eru 25 — 30
prósent lægri en nokkru sinni áður.
Enfremur hefi óg svo miklu úr aö
velja, að ekki er mór annar kunnur í
borginni er meira hefir. Komið og skoö-
iö pappírinn — jafnvel þó þið kaupið
ekkert.
Ég er sá eini íslendingur í öllu laud-
inu sem verzla með þessa vöruteguud.
S. Anderson
651 Baunatyne Ave. 103 Nena St.
Þetta er það
Tuttugustu aldar fatnaður <
svo vel þektur, að lýsing hans <
ónauðsynleg. — Lag og efni þt
beztaí Canada.
Okkar vanaverð er rétt. — F
meðan stendur á tilhreinsunar sð
unni er mikill afsláttur — og san
gildir um allar aðrar vörur f bú'
inni.
Komið og sjáið. Nú. í dag.
Hyndman & Co,
Fatasa'ar Þeirra Manna
Sem Þekkja
The Rialto. 480y2 Main St.
I