Heimskringla - 28.06.1906, Blaðsíða 1

Heimskringla - 28.06.1906, Blaðsíða 1
 G. Johnsofi. Hva8 sem ykkur vantar að kaupa eða selja þá komiO eOa skrifiö til min. Suðv. horn. íloss Ojj Isabel St. WINNIPEG G. Johnson. Verelar með “Dry Goods”, Skótau og KarlmannafatnaO. Saðv. horn. ítoss og Isabel St WINNIPEG XX. ÁR. * WINNIPEG, MANITOBA, 28. JtJNÍ 1906 ' ------------ ------------------------------------------------- * Arni Eggertsson Skrifstrfa: Room 210 Mclntyre Block. Telephone S364 Victoj: stræti, lot $26.00 fetið, að vestanverS-u. bak- stræti fyrir aftan lotin. Agnes st., lot 26J2 fet, á $24 fetið. Eitt lot á Maryland st., 30 íet, á $35 fetið. Sargent ave., 33 fet að norðanverðu, næst við hús Goodtemplara (sem er nú í smíðum), á mjög sann- gjörnu verði og skilmálum Simcoe st., 25 feta lot á $16.50 feti-ð. Home st., lot á $16, að vestanverðu. Furby st., cottage á 33 feta lóð, að eins $1,400.00 Góðir söluskilmálar. Peningalán út á hús. — Sölusamningar keyptir o.fi1. Heimili: 671 Ross Avenue ele phone 3033 Fregnsafn Markverðustu viðbmðir hvaðanæfa. Su frétt berst fiá Rússlandi, að mannflokkur einn, 2 þús. talsins, sem ól aldur sinn í Yakutsk fjöll- unum, hafi nýlega fallið á mjög sorglegan hátt. það hafði komið upp svki í búpemngi hjarðmanna 'þessara, svo að/hunn stráféll, og var þá engin lífsvon fyrir fólkið úr því, þareð landið var hrjóstr- ugt og fólkið mjög fátækt. Eftir nokkura mánaða bið, var öll lífs- björg að þrotum kotnin, og var haldið allsherjar þing. Eftir dag- langan fund var satnþykt, að hver fjölskyldufaðir skyldi stytta aldur konum sínum og börnum og öðru skyldyliði, og síðan sjálfum sér. þetta var svo alt framkvæmt næsta morgun, en tveir eða þrír gamlir menn voru of huglausir til að deyja, og þeir drógu einhvern- veginn fram lífið þar til ferða- menn, sem leið lögðu um fjöllin, fundu þá og fréttu um það er skeð hafði. — Áskoranir h'afa sendar verið út um alt Rússland, þar sem skor- að er á alþýðuna að evðilegjya með öllu Gyðinga kynflokkinn i*r í landi ; ,-og er svo sagt, að áskor- un þessi sé gerð að undiriagi stjórnarinnar og send út með vit- und og samþykki embættismanna hennar. Áskorun þessi er pvona: “Rússar, nú er títninn til þess að vernda alt það, sem þér helgast teljið, og að eyðileggja miskunar- laust alla óvini trúarbragða yð- ar! Hefjist því handa, allir góðir Rússar, og drepið og gjöreyðið öllum þeim, sem veita oss mó£- sþyrnu. Húrra fvrir hinni rúss- nesku þjóð! Niður með alla Gyð- inga! ’’ — þessi áskorun er svo ljós, að engutn efa þarf að vera bundið, hver þýðing hennar er. Allir Gyðingar, sem nokkur ráð hafa til þess, eíu því lagðir á flótta, en hinir verða að sæta of- sóknum og lífláti. Svo er sagt, að konur séu jafnvel dýrslegri en karl menn í ofsóknum sínum gegn Gyð- ingum. — Fimm þúsund dollarar í bréf- peliingttm fundust nýlega í sorpi í Montreal borg. Peningarnir voru í þremur pökkum, en verkamenn höfðu pjakkað eða stungið þá svo mjög í sundur áður en þeir urðu þeirra varir, að seðlarnir voru skemdir mjög. þó er talið víst, að þeir verði innleystir með ákvæðis- verði. Harry N. Pillstmry, taflkappinn mikli, andaðist í Philadelphia 17. þ.m. eftir nokkura mánaða veru á vitfyrringa spítala. Hann var 33. ára gamall, fæddur 5. des. 1872. Hann fór að leggja stund á mann- tafl þegar hann var 16 ára gamall og varð brátt í beztu taflmanna röð. Hann gat teflt blindandi við vfir 20 manns í einu og unnið flest töflin. Hann sýndi þessa list sína um alla Amertku og í ýmsum Ev- rópulöndum. í þessari list var hánn talinn langmestur taflkappi í heimi. — EHefu manns létu lífið í dyna- mit verksmiðjti í Pennsylvania 9. þ.m. og fimm særðust hættuleqa. Fréttin segir, að þessir 11, sem létu lífið, hafi verið tættir í smá- agnir. — Bandaríkjastjórnin hefir á- kveðið, að höföa sakamál móti járnbrautafélögunum þar í landi, fyrir ólögl-eg samtök þeirra á meö- al til þess að flytja vörur fyrir kolatekju • og önnur stórverzlunar- félög með lægra verði en öðrum borgurttm ríkisins er sett fyrir vöruflutning á jafnri þyn-gd yfir jafnlangan Veg. — íbúatala Brandon bæjar hér í fvlkinu var þann 1. þ.m. 9,898. — Wm. McKenzie, forseti C. N. R. félagsins, er um þessar mundir á leið til Lundúna borgar. Mælt að hann sé að fá peningastyrk til þess að fullgera járnbraut til Hud- sons flóans. Hr. McKenzie kvað hafa komist að því, að járnbr,- félög þau, sem nú flytja afurðir Norðvesturlandsins til hafnstaða eystra og syðra hafi á liðnum ár- um unnið á móti því, að pening- ar fengjust til að byggja braut til Hudsons flóans, af því, að þá mundu þau tapa miklu af flutningi þeim, sem þau uú hafa. Er svo mælt, að McKenzie ætli að gera tilraun til að hafa sainan nægi- legt fé til þess að byggja braut þangað norður, svo að flutningur geti framvegis orðiij gegn um fló- ann til Evrópu. — Hákon konungur Norðmanna var krýndur i þrándheimi þ. 22. þ.m. Var þá mikið um dýrðir, og margar veglegar gjafir sendar þeim konungshjónunutn. Um 1500 Norðmenn frá Ameríku sóttu krýn ingarhá'tíð þessa, og inesti fjöldi fólks frá ýmsum Evrópulöndum var þar og viðstatt. *— Frá Rússiandi eru fréttirnar enn hinar hryllilegustu. Gyðinga ofsóknirnar halda stöðugt áfrain, — á sumum stöðum jafnvel undir forustu lögreglunnar og hervalds- ins, sem hvorttveggju taka þátt í ofsóknunum og eggja lýðinn til á- rása á vesalings Gyðingana. A hinn bóginn er uppreistarandiun í þjóðinni að magnast æ tneir og meir móti stjórninni, sem nú hefir upplevst þingið með þeim ásctn- ingi, að margir hyggja, að láta það aldrei koma saman aftur. — þúsundir hermanna hafa snúið i lið með uppreistarmönnum, og á nokkrum stöðum líflátið herfor- ingja sína og eyðilagt herbúðirnar og vopnabúrin. Veit enginn hvern enda allar þessar róstur kunna að hafa. — Miklar umræður eru um þess- ar mundir í Ottawa út af helgi- daga lagafrumvarpi stjórnarinnar. þykir það ganga ofhart að þæg- indum almennings með því að banna alla vinnu á sunnudögum. — Nokkrir málsmetandi Gyð- ingar á Englandi, tneð Rothschild lávarð og Sir Samuel Montague í broddi fvlkingar, hafa átt fund með stjórn Breta og farið j>ess á leit, að stjórnin taki að sér það nauðsynjaverk, að vernda Gyð- inga á Rússlandi fyrir algerðri eyðileggingu af hálfu herliðs, lög- reglustjórnar og óaidarlýðs þar í landi. Margir Gyðingar á Bret- landi, setn eiga auð fjár, hafa lof- að að leggja fratn drjúgan fjár- styrk, ef stjórnin gangist fyrir þessu tnáli. Meðal annars er farið fram á það, að séð sé um að Rússar fái ekki peningalán meðal heimsþjóðanna fyr en Gyðinjrum þar í landi sé með lögum trygður jafnrétt'ur við aðra borgara ríkis- ins, svo að þeir þurfi ekki að vera síhræddir utn líf sitt og eignir. það kom fram í umræðum þess-' um við stjórnina, að ýmsir Gyð- ingar, sem rneta peninga meira en trúmál sín, «ru jafnan reiðu'búnir að lána Rússum stórar fjárupp- hæðir gegn háum vöxtum. Ekki vildi stjórnin lofa neinu ákveðnu um þetta mál að svo stöddu, Hún kvað nauðsynlegt að leita á- li'ts Frakka t málinu, því að þeir ættu ógrynni fjár hjá Rússum, óg þau skuldabréf kynuu að falla f verði, ef alveg væri tekið fyrir lán tökuna, og heldur en tapa vöxt- um sínum af þeim lánum mundu þeir með rósemi horfa tippá slátr- un allra Gvðitíga á Rússlandi. — Auglýst er, að North West Thresher Company, frá Stillwat- er, Minn., ætli að setja upp aðal- sktifstofu s1’na í Braudon bæ hér í fylkinu. SBmttleiðis aetlar Inter- national Harvester Co., að ha'la sölustöðvar þar í bænum. Annað félagið byggir hús, 250 feta langt og 150 feta breitt. Hitt félagið byggir einnig stórhýsi þar í bæn- um. þar ætla þau að geyma vör- ur sínar og selja þær svo til lvst- hafenda í Norðvesturhéruðunum. — Bandaríkjastjórn hefir aug- lýst, að hún ætli að höfða mál á móti Standard Oil félaginu jyrir ólöglega verzlunaraðferð, er það hafi í frammi, og samsæri við járnbrautafélög um flutningsgjöld. — Svo er að sjá, að stjórnin sé einráðin í að láta skríða til skar- ar með sér og félögunum, er stöð- ugt brjóta flutningslög Bandarikj- anna. ------o------ / Islendingadaguriim 2. ágú9t f River Fark Framkvæmdarnefnd íslendinga- dagsins hefir starfað af alúð siðan hún var kosin þann 30. maí sl. Staðurinn, scm halda skyldi dag- inn hátíðfegan hefir verið nefnd- inni mesta áhugaefnið. Um tvo staði að eins var að velja: Elm Park og River Park. Um Ehn Park er það að segja, að hann hefir að undanförnu reynst Islendingadags nefndinui lang arðmesti staðurinn, sem ís- lendingadagurinn hefir verið hald- inn í, og aklrei arðsamari en í fyrra. Fólki voru hefir og geðjast vel að staðnum, og þess vegna hefir það sótt daginn betur þang- að heldtir en á nokkurn annan stað. En s’ðan í fyfra hefir orðið ráðsmanna skift'i á þeitn garði og nefndin átti ekki í ár kost á að fá hann með eins aðgengilegum skil- málum og í fyrra. J>ar á móti hefir nú sá tnaður umráð yfir River Park, sem þá hafði Elm Park, og hann hefir gert tslendingadags nefndinni svo aðgen'gilegt tilboð, að hún hefir þegar tryggingu fyrir meiri inn- tekt'um þar, en hún fékk í Ijilm Park í fyrra, — en með því sjálf- sögðu skilyrði, að landar vorir leggi sinn skerf engu síður en þá til þess að gera hátíðahaid'ið borgandi með því að sækja vel samkomuna, og þess óskar nefnd- in og biður að landar vorir geri. Frá nefndarinnar hálfu verða skemtanir í ár engu síðri en í fyrra, en heldur meiri og marg- breyttari, með því að ráðandj River Parks mun gera alt sem i hans valdi stendur fil þess að gera hátiðah'aldi'ð sem fullkomn- ast og ánægjulegast og að styðja nefndina eftir megni í öllum henn- ar framkvæmdum til undirbún- ings hátíðahaldsins. Til skemtana verður tneðal ann- ars: Knattleikir, glímur, aflraun á kaðli, hlaup, stökk og aðrar lík- amsæfingar. tslenzkur söngflokkur verður í garðinum að deginum til að syngja íslenzka þjóðsöngva, og góður hornleikendaflokkur verður þar eftir miðjan dag og að kveld- inu, og annar flokkur spilar fyrir dansinn í danshöllinni. Verðfauna'listinn er ennþá ekki fastlega ákveðinn, en nefndin mun reyna að sjá svo um, að hann verði vel sætnilegur. það verður og séð urn, að börn- in verði látin njóta skemtana i fullum mæli', svo sem fríjar hring- reiðar og annað þess háttar. Yfirleitt mttn nefndin gera alt, sem í hennar valdi stendur, til þess að tryggja það, að hátiða- hald'ið verði eins ánægjulegt eins og frekast eru föng til að bafa það. Heit't og kalt vatn verður ó- keypis, svo og mjólk í te eða kaffi handa þeim, sem sjálfir búa sér það til í garðinum. þetta verður alt nákvætnar aug- lýst síðar. Neíndin skorar á íslendinga að styðja t að því, að hátíðin verði sem allra fjölsóttust, og að því leyti gerð setn fullkomnust og á- nægjulegust. Staðurinn er óaðfinnanlegur og þeir sem hafa umráð hans gera alt sem þeir aeta til þess að gest- irnir geti notið sem tnestrar og og beztrar skemtunar. Mílu kappreið á bicycle verður og haldin og 3 verðlatin veitt fyr- ir hana. Sömnleiðis verður sérstakt jq- mílu kapphlaup frítt fyrir alla, er þeir herrar Swevnson og • Peter- son, sem hafa billiard stofu og aldina og svaladrykkja búð á Nena st. við Elgitt ave., — hafa lofað að gefa 3 verðlaun fyrir, að upphæð Slo.oo, S6.00 og S3.00 virði Önnur sérstók kapphlaup verða og höfð, sem j’msir aðrir hafa lof- að verðfaunum fvrir. • þeim er að fjölga í þessum bæ, sem nú er orðið það skiljanlegt, að það borgar sig vel, að koma á sérstökum keppisk'emtunum á ís- fendingadaginn með því að leggja til öll verðfaunin, sem þeim skemt- unum fvlgja. I.íklegt er að kappsund verði haft að deginum, því áin er bein, breið og sem næst lygn meðfram skemt'igarðinum, og útsjón þar hin fegursta, hvort sem augum er litið til lands eða vatns. Me-ð samvinnu nefndarinnar og Islendinga alment, ásamt með hjálp þeirra, sem f\rrir River Park ráða, getur ekkert verið sjáanlega því til fv-rirstöðu, að þessi þjóð- hátíð landa vorra verði sú veg- legasta, sem ennþá heúr haldin verið hér í bænum. -------+------- ^áheyrt gjörræði Stutt frásaga um það, hyernig ung stúlka verður að berjast fyrir að fá móður sína jarð- aða þar sem hún vildi. þegar móðir mín andaðist vildi ég láta jarða hana við hlið móð- ur hennar —•* ömmu minnar — en það gekk ekki stríðlaust. þó ég væri komin af barnsaldr- inttm, þegar dattðinn burtkallaði mína^ástkæru móður, þá var ég svo örmagna af hrygð, að mig skorti þann kjark, sem ég annars hefði haft til að sjá rétti mínum borgið. I>essa sögu, sem öðrum kann að finnast fátt um, þó hún særði mig djúpum sárum, rita ég til leið- beintngar þeim, sem framvegis kunna að þttrfa að leita sama tnannsins í sömu tilfellum og mig henti í þetta skifti. Eg vissi, að það var hjartans ósk móður tnimtar sál. að hvíla hjá móður sinni i St. James graf- rei'tnum, og þess vegna vildi ég l'áta jarða hana þar. Jafnskjótt og hún var látin, var læknir hennar látinn vita það og hann beðinn að kom-a strax og skoða líkið. En hann var þá að sinna sjúklingtim síntim og kvaðst ekki geta komið. Um sama leyti var sá maður lát- inn vita af dauðsfallinu, sem hefir þann starfa á hendi að sjá um út- farir. Kotn hann von bráðar og vildi flytja líkið burtu af því hann þurfti að undirbúa það í líksaln- um. En ég vildi það biði heima, þar til læknir hefði sköðað það, og spttrði, hvort ekki mætti ttnd- irbúa það til greftrtinar í heima- húsittn. Var þá svarið: “Nei, — heima væri svo rúmlaust”. Eins og við gætum ekki haft nægilegt rúm, fvrir hana ohirlítið fengur, þó hún væri ntt liðin! Svo var hún tekin, flutt að heiman frá sér, þar sem hún hafði þjáðst og strítt þetta var gert án míns vilja eða samþykkis, og það á annan veg en venjulegt er. Tekin, — eins og ég, barnið hennar, ætti ekkert til- kall til hennar, og flutt á líksal þessa góðhjartaða nianns. Og þégar ég svo kom þangað nokkru síðat til að sjá líkið, sem ég vildi fyrir engan mun láta eiga við fyr en læknir hefði séð það, — var talsverð breyting á því orðin, — breyting, sem mér var ekki ætlað að sjá, og setn ekki h-afði orðið af sjálfu sér. þegar !g svo, hrygg og reið, gekk út, sá ég þar auglýst, að hana ætti að jarða í Brookside grafreitnum. Mótmælti ég því strax og bað að hún yrði jörðttð í St. James grafreitnum, við hlið móður sinnar. Var mér þá sagt, að þar fengjust engar grafir leng- ttr. En ég vissi, að ekki aHs fyrir löngu hafði verið bætt við graf- reit þann og hélt því fram kröht minni. Fullyrti þá útfararstjórinn, að engar prívat grafir fengjust þar. þetta sama sagði hann föður mínttm og írúði hann því, eins og fleiri tntwtdu hafa gert í hans spor- Nr. 37 \ % ,—■— ' ♦ NEW YORK LIFE Insuranee Co. Arið 1905 kom beiðni um $400.000,060 af lífsábyrgð- um; þar af veitti fél. $296,640,854 og innheimti fyrsta ársgjald; $50,000,000 rneira en nokkurt annað lífsáb.- félag hefir selt á einu ári.— $20,000,000 var borgað fyr- ir 6,800 dánarkröfur. — $20,000,000 borgað til lifandi skýrteinahafa fél. — $17,000,000 var lánað gegn 5 prð- sent rentu út á skýrteini þeirra. — Tekjur fél. hækk- uðu um $5,739,592, og sjðður þess um $45,160,099, svo sjóður þess er nú $435,820,359. — Lffsábyrgðir f gildi hækkuðu um $132,984,578; öll lffsábyrgð ’f gildi 1. janúar 1906 var $2,061,593,886. CHR. ÓLAFSSON, JG. MORGAN, AGENT. WlNNIPEG MANAGER ♦----------------------------------------• ■ um. Lét þá útfararstjórinn flytja líkið í Brookside grafreitinn og varpa því þar í geytnsluhvelfingu þá, er geytna lik á vetrum. Aí þessu var ég svo hrvgg og óá- nægð, að ég fékk ekki fest svefn. Eg fann þaö glögt, að ef ég léti hér staðar nema, þá fengi tnóðir mín ekki að hvílast þar sem hún hafði svo einlæglega óskað. Og ég fann að vilja minum og afskiftum af þessu máli var kaldranalega traðkað af manni, sem ekki varð- aði ^nálið öðru en því, að gera það, sem hann var beðinn að starfa fyrir fulla borgun. Ég fór þá til annars manns til að vita, hvort grafir ekki fengjust í St. Jatnes grafreitnum, og sagði prestur sá, er þjónar kirkju þeirri er grafretturinn tilhevrir, að þar mætti fá svo margar grafir, sem hver vildi, og festi ég þá fjögra grafa “Family Plot”. Síðan fór ég til útfararstjórans og tjáði hon- um hvar komið var, og krafðist þess, að móðir mín yrði þangað flutt og þar jörðuð. það gat hann ómögulega, því það kostaði laga- leyfi og peninga. Kvaðst ég geta látið lögmann minn annast alt það fyrir mína hönd. Hvesti hann þá á mig augun og spurði hvort ég hefði lögmann, og játti ég því og nefndi nafn hans. Hann hafði nokkur ummæli um, áð aðeins sinn lögmaður eða hann sjálfur gengi gegntftn þetta fyrir mig, en varð jafníramt mjög alúðlegur og lofaði að gera alt eins og ég ósk- aði. En ég var nú orðin trúlítil á staðhæfirfgar hans og hann sá, að svo búið mátti ekki vera. Nokkru síðar fann ég hann aft- ur, og kvaðst hann þá vera búinn að kippa öllu í rétt lag. Loksins hafði ég þá fengið al- gerðan sigur. Lík rnóður minnar var jarðað þar sem ég vildi hafa bað„ og útfararstjórinn var nú eins fús til að flytja hana þangað, eins og h'ann var áður ófus til þess. En hvort sú breyting varð af hlu'ttekning við sorgabarnið, eða af ótta við lögmann jtess, læt ég ósagt. Mörg atriði eru enu ósögð í mál'i þessu, sem ekki er þörf á að minnast á að svo stöddu, — svo sem aukinn kostnaður við alt þetta umstang o.m.fl. þess skal þó hér getið, til þess að fvrirbyggja nokkurn misskiln- ing, að jarðarförin fór í sjálfu sér vel fram, að uridanttjknum þeim atriðum, sem prívatlega snertu tn-ig og fram hafa verið tekin.— Enda var þá faðir minn viðstadd- ur, en áður þurfti hann að fara að hei'tnan og fól mér að kippa í lag því er aflaga hafði farið. þ-að er nú gert, og ég er ánægð, jafn- vel þó þet'ta stríð hafi kostað mig marga andvökunótt og verið að öllu leyti óþarfttr og óverðskuld- aður ábætir á sorg mína. Öllum, sem hafa stutt mig og greitt fyrir mér í þessu stríði mtnu, er ég innilega þakklát. Hin- um get ég líklega einhverntima fyrirgefið. S. E. -------*-------- “Þatinií? lít ég á það.” , ÖnjHt flýtur frá þér raus, fólkið hlýtur sjá það. þú ert vítis þaungulhaus, “•þannig lít ég á það". HUGULL. Bezta Kjöt 1 '_og (jdýrasta, sem lil er f bænum fæst ætfð hjá mér. — Nú hefi ég inndælis hangikjöt að bjðða ykkur. — C. G. JOHNSON Cor. Ellice og Langside St. Tel.: 2631. Gott kjöt. Landar góðir! • Nú er svo kom- ið, að þið getið haft tækifæri til að sjá mig og skifta við mig sjálf- an í minni eigin búð. Ég skal gera eins vel við ykkur eins og þeir ríku, þótt ég sé ekki eitin i þeirra tölu. Og vonast ég því til, að þið komið allir að sjá mig og það sem ég befi á boðstólum. M. S. JOSEPHSON, Butcher 448 Toronto st., Cor. Ellice ave. Skínandi Veggja-Pappír És levfl mér að tilkynifa yður að ég hefi nú fengið iqn meiri byrarðir af vegma pappir, en nokkru sinni éður, og sel é* hann á svo láu veröi, að slikt er ekki d®mi til I sðjfunui. T. d. hefl ég ljómaudi góðan, sterkan ag fallegan pappir, á 3»4c. rdlluna og af ðllum tegundam uppí 80c. rdlluna. Allir prísar hjá uuér i ár eru 25 — 30 prósent lægri en nokkru siuni áður Enfremur hefl ég svo miklu dr aö velja, að ekki er mér annar kunnur 1 borginni er meira heflr. Komið og skoð- iö pappirinn — jafnvel þó þið kaupið ekkert. Ég er sá eini ísleudingur í öllu land- inu sem verzla með þessa vörutegund. S. Anderson 651 Bannatyae Ave. 103 Nena St. •vm Hyndman & Co Veizlanú ígamla staðnum 11. júnf, 1906 Kl. 8 þennann morgun verð ég kominn aftur í “Rialto” búðina. Ekki fullsestur þar að — eu komið samt og finnið mig ef ykkur van- hagar um eitthvað f fata áttina. Hyndman & Co. Fatasalar Peirra Manna Sem Þekkja The Rialto. 480Vá Main St.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.